Dagur 3 og heimsókn til Tofte
10 kaffi:
Hádegismatur:
Síðdegishressing:
Kvöldmatur:
Kvöldhressing:
Hreyfing:
Uppfæri þessa töflu að kvöldi.
Annars er allt ágætt að frétta hér. Það snjóaði reyndar hér í nótt, en núna þegar sólin er komin á loft og fuglarnir teknir að syngja þá hef ég nú trú á að snjórinn sem kom í nótt og eldri snór muni nú eitthvað taka upp í dag. Það stefnir í tveggja stafa hitatölur um helgina og sól, það er flott því nú er tengdamamma og Hjalti mágur að koma í helgarheimsókn og þá er nú skemmtilegra að veðrið sé skikkanlegt.
Í gær fór ég með skólafélögunum og einum kennara að skoða Sellulósaverskmiðjuna "Södra Cell" í Tofte. Það var mjög áhugavert og gaman að sjá uppskipunarhöfnina og móttökusvæðið fyrir timbrið og "fylgja því" í gegn um vinnsluferlið með því að fara inn í stjórnherbergin þaðan sem öllu er stýrt og út kom pappamassi í örkum sem er svo pakkað í 1/2 rúmmeters pakkningar (reyndar ekki 100% viss um stærðina), tilbúið til flutnings til pappírsframleiðenda. Það sem mér þótti áhugavert í þessari verksmiðju var að hún knýr sig sjálf áfram, þ.e. hún notar óhemju mikla orku en framleiðir hana sjálf. Auðlindin sem er grundvöllurinn fyrir því að svona verksmiðja geti gengið (fyrir utan timbrið að sjálfsögðu) er VATN. Vatn og skógur, MIKILL skógur eða auðveldar og ódýrar flutningaleiðir eru forsendan fyrir því að svona verksmiðja geti gengið.
Jæja læt þetta duga í bili - hef mikil og stór plön í dag og því best að koma sér að verki.
Dagur 2....
Morgunmatur: 30 gr kornfleks, 250 ml léttjógúrt, appelsína.
10 kaffi: lítill banani
Hádegismatur: Langloka með skinku, osti og grænmeti (ekkert annað val, var í vettvangsferð í sellulósaverksmiðju). Gulrætur.
Síðadegishressing: 1/2 banani
Kvöldmatur: 400 gr grænmetissúpa, 120 gr hakk
Kvöldhressing: nokkur vínber
Hreyfing: Hlaup 5,7 km og ganga 2 km
Kongsberg-myndir
Dagur 1
Það var keypt batterí í vigtina í gær. Ég steig á þessa elsku í morgun - stund sannleikans - ég er 77 kíló.
"Kjörþyngd" mín er 67 kg. Ég veit mér líður vel ef ég er innan við 70 kg. Maðurinn minn réttilega benti mér á þá á mér eftir að líða rosalega vel um leið og 2-3 kg eru farin. Hér um árið var meðalléttingur 500 gr á viku, eða 2 kg á mánuði. Markmiðið hjá mér núna er að ná að léttast um eitt kíló á mánuði. Þið getið séð á undirsíðunni "Tölfræði" allar dagsetningar með markmiðum og verðlaunum. Auðvitað verð ég að fá verðlaun ef mér gengur vel, ekki satt
Ég geri ráð fyrir að það taki mig allt þetta ár að ná mér niður og til þess að ná markmiðinu mun ég borða "ddv" vænt og hreyfa mig.
Í kvöld uppfæri ég svo þessa bloggfærslu með mataræði og hreyfingu dagsins. UPFÆRSLA GERÐ KL 20:31.
Morgunmatur: 30 gr kornfleks, 250 gr léttjógúrt, 1/2 banani, kaffibolli með léttmjólk (1,5 g fita)
10 kaffi: Appelsína
Hádegi: 60 gr. brauðbolla, 80 gr túnfiskur, 30 gr majones, 200 gr grænmeti.
Síðdegi: Cappuchino
Kvöldmatur: Salat með kjúklingi (grænmeti ca200 gr + 100-120 gr kjöt)
Kvöldhressing: 150 gr melóna
Hreyfing: Þrír klukkutímar á svigskíðum í Kongsberg 
Nú man ég ekki alveg en á ég að borða 3 eða 4 ávexti á dag?????
Er búin að búa til "Átaksmyndaalbúm" - myndir allt frá 2006.
Barnalegt átakshugleiðingamataræðisblogg
Hér á heimilinu malar þvottavélin, Tommi og Jenni í morgunsjónvarpinu, Haukur glamrar á lyklaborð hér á móti mér og ég ákvað að henda inn bloggi á meðan ég drekk morgunkaffið.
Í dag stendur til að gera ýmislegt. Núna þegar ég verð búin með kaffið og komin í æfingagallann ætlum við hjónin í skokktúr og stefnum á svona 7-10 km. Ég hef ekkert skokkað síðan á miðvikudag en tók mér semsagt tveggja daga frí til að leyfa beinhimnubólgunni aðeins að jafna sig. Ég fer á eftir í þröngum hnéháum sokkum og með legghlýfar til að halda hita á mér. Búin að komast að því eftir að hafa ráðfært mig við manninn minn og nokkrar kunningjakonur að sennilega mundi það borga sig að skreppa í Löplabbet og fara í göngugreiningu og þá ráðgjöf um skókaup, því ástæða beinhimnubólgunnar er líklega hversu rangt ég beiti mér á hlaupum, ég hlammast í skrefin í staðin fyrir að tilla létt í tærnar á hlaupum. Þessi hlaupastíll hefur það einnig í för með sér að bakið er ekki upp á sitt besta. Þannig að: göngugreining, nýjir "passlegir" skór og æfingar á hlaupastíl er það sem ég þarf að einbeita mér að. Svo er það líka helv..... mataræðið ohhh get bilast hérna á þessu - er á kafi í vinnu í verkefninu, hef varla tíma til neins en hlaupatúrar og önnur hreyfing eru "verðlaunin" mín sem ég fæ seinnipart hvers dag, fyrir utan helgar en þá fer ég nú í félagsskap mannsins míns fyrri partinn.
En já maturinn - ég borða ristað brauð í morgunmat, ávexti, fæ mér svo kannski tortillaköku með grænmeti og afgöngum í hádeginu, ávextir, kannski brauðsneið seinnipartinn og svo er eldaður kvöldmatur. Ég borða nánast ekkert nammi en get alveg misst mig í snakk og svoleiðis ef það liggur fyrir framan mig. Ég drekk rosalega mikið kaffi, sérstaklega fyrri part dags. Mér finnst ég hafa þyngst um sautján kíló en hef reyndar ekki stigið á vigt því hún er batteríslaus þessi elska....en Haukur segir að ég hafi örugglega ekki þyngst um meira en 2-3 kíló. Ok en hvað á ég að gera? Leita að "danska" vini mínum? Skrá mig á Grete Roede námskeið sem kostar 1350 NOK (4 vikur), vinna í hausnum á mér og blogga um mataræði og svoleiðis stöff næstu vikurnar til að halda mér við efnið? Hvað skal gera? Ég er hrædd um að það muni ekki skapast eins heitar umræður í kommentunum hér eða á fésinu, í tölvupóstum, símtölum og á msn vegna einhvers átaksbloggs í staðin fyrir "sprengjubloggs" þar sem ég gagnrýni fólkið í kring um mig hehehe. ....en jú ég fæ kikk út úr því ef fólk kommentar hehehhe.
En sannast sagna að þá held ég að nú sé komið að því, ég þarf á orku að halda, einbeitingu og gleði. Ég fæ þetta ekki út úr hræðilega illa ígrunduðu mataræði, sælgæti, snakki, rauðvíni og bjór. Hlaupin munu líka reynast mér auðveldari ef ég hugsa um mataræðið líka. Það fer auðvitað tími í að snúllast í matnum en á móti kemur meiri orka þannig að tímalega séð stend ég á "pari".
Hins vegar verð ég að segja það að þegar ég var á "danska" hérna 2006-2007 þá fékk ég kikk út úr því að mæta vikulega í viktun, fá kg töluna skrifaða í kladda og límmiða ef vel gekk, þá setti ég líka upp vörður og verðlaun.....annaðhvort verð ég að gera þetta svoleiðis eða ekki. Verð að biðja Hauk að klæða sig upp eins og Sigrún Sólmunds (vigtunarkonan í Borgarnesi) setja upp gleraugu og vigta mig, skrá þetta í kladda og gefa mér límmiða ef ég stend mig. Barnaleg??? Játs!!!!
Þannig að í dag mun ég senda Hauk opg strákana til Svíþjóðar að versla mat og batterí í viktina (ég þarf að vinna í ritgerðinni á meðan). Skáparnir verða fylltir af "dansk" vænum mat og á morgun byrjar þetta. Ég vikta mig og skrái allt sem ég borða daglega hér inn á bloggið af því að ég er skráningaróð, það er ekki heilbrigt að skrá alla hreyfingu og át ....en jæja það er bara ég og þið verðið víst að sætta ykkur við það
Þannig að á morgun má vænta þess að fá skýrslu á líkamsþyngd minni, markmiðum og matarpælingum. Allt á svart og hvítu og upp á borðinu!!
Það sást dráttarvél (e.tractor) í Reykjavík city!!!!!!
Þetta hér er mjög algeng sjón á götum Noregs, bæði snjórinn og ekki síður dráttarvélin. Það er næstum hægt að segja að hvert sem maður keyrir eitthvað þá sér maður svona farartæki, lendir á eftir svona tæki eða mætir því. Það þykir ekkert stórmál, auðvitað sneiða þeir sem þessi tæki keyra frá eins og aðalæðunum ef þeir eiga ekki erindi þangað eins og t.d. E6 (Evrópuvegur nr 6) en hér er það talið mikil gæfa að svona tæki séu til. Því nánast allar götur, plön og göngustígar eru mokuð með dráttarvélum. Ástæðan er m.a. sú að bændur eiga fullt af dráttarvélum sem þeir nýta lítið yfir vetrartímann, því geta þeir leigt þær til snjóruðningsfyrirtækja og fengið þar með innkomu (peninga) inn á vélina á þeim tíma sem hún vélin (fjárfestingin) væri annars bara lokuð inní geymslu. En þessi pistill átti reyndar ekkert að fjalla um þetta. Ætlaði bara að lýsa því hvað ég og Haukur urðum hissa þegar við sáum að allavega tveir íslenskir fréttamiðlar þóttu ástæða til að slá upp frétt um að það var dráttarvél í bænum (Reykjavík) í gærmorgun....úffff!! Hugsanlega tafði hún umferðina, ég veit ekki, en hvað ætli hún hafi tafist um margar mínútur? En kommon er þetta svona mikið stórmál?? Hvert stefnum við ef við getum ekki unnt einhverjum að keyra á dráttarvéllinni sinni inní Reykjavík? Hvað búa aftur margir þarna? Í Osló búa 600 þúsund manns, hér á okkar svæði s.k. Follo sem er sýslan sem Ås, Ski, Dröbak og fleiri bæir eru í búa í kring um 125 þúsund manns. Ég held ég sé nærri sveitinni, dráttarvélum og hægri umferð hér heldur en á Íslandi og spyr því er það alveg eðlilegt?
Af hverju þetta stress?
morgunbloggið...
Frétti af íslendingabjórkvöldi þar sem aðalumræðuefnið var hvað allt er ömurlegt í þessu landi, landinu sem er að taka á móti þúsundum flóttamanna frá Íslandi...og já það er ömurlegt land!!! Það er ótrúleg vanvirðing að "hrauna" á þennan hátt yfir land og þjóð sem á allan hátt er ótrúlega umburðarlint við okkur íslendingana. Ég hefði kannski alveg tekið þátt í þessari umræðu einhverja fyrstu mánuðina hér en ekki núna, það er klárt mál.
Látum okkur sjá, hvað er það sem brennur á vörum íslendinga, sér í lagi fyrsta árið þeirra í þessu landi:
Norðmenn kunna ekki að elda mat, þeir kunna ekki að byggja hús, vegakerfið er í molum og kerfið allt þungt í vöfum. Þetta er svona topplistinn yfir það sem er ómögulegt. Svo fer maður að hugsa og venjast og aðlagast....."enkelt og greit" eru jú einkunnarorð margra og þá sér í lagi þegar kemur að mat, hvað maður eldar er val hvers og eins. Húsin hér verða aldagömul, hvaða kunnáttuleysi er fyrir að fara þar? Vegakerfið er frábært, hér er hámarkshraði nokkuð lægri en heima og hér eru líka góðir vegir á útnárum eins og alveg nyrst í Finnmörku. Kerfið er jú þungt í vöfum en sér í lagi þegar maður er ekki rosalega góður í norksu og getur misskilið allt en auðvitað væri e.t.v. hægt að bæta það á einhvern hátt.
Við megum vera þakklát fyrir að fá tæikifæri á að búa í þessu landi, sjá hlutina frá annarri hlið, þó svo að allt sé nú ótrúlega líkt og heima. Mér finnst t.d. við mjög lík norðmönnum, sérstaklega "Trondörum" og fólki frá Finnmörk og Troms en það er nú ekkert að marka mig með það því ég hef kannski kynnst mest af fólki frá þessum svæðum og þess vegna kannski ekki alveg marktækt.
En látum okkur sjá, hver skyldi vera munurinn á norðmönnum og íslendingum, svona yfir heildina litið? Við lentum í smá umræðu um þetta um helgina og þar kom það!!!
Á einfaldan hátt er munurinn þessi:
Norðmenn eru með fjölskylduna í fyrirrúmi.
Íslendingar eru með heimilið í fyrirrúmi.
venjulegur morgun
Það er mikil vorstemming hér, 10°C í gær og sól og það sama er upp á teningnum í dag. Snjórinn hefur minnkað alveg rosalega síðustu daga, ég gæti trúað að með þessu áframhaldi verði hann allur farinn eftir tvær vikur.
Ég fór út að skokka í gær, Gunna kom og við byrjuðum á að ganga niður á Ekornveien og athuga með Bríeti, gengum svo út á skógarstíginn meðfram teinunum og byrjuðum að skokka þar. Færið var ansi þungt og blautt, mikið krap, vatn og drulla. Þetta var mjög hressandi túr, ég var rennadi í fæturna þegar heim var komið en að sama skapi ferlega fersk.
Það er enginn skokktúr á planinu í dag en það gæti samt alveg farið svo að maður bryti daginn upp einhverntíman og taki sér göngutúr. Þórður Logi fer heim með vini sínum í dag og verður sóttur um sjö leytið þannig að ég ætti að ná langri rispu í vinnu og þarf líklega alveg á fersku lofti og fullt af sólargeislum að halda.
Eigið góðan dag, nú ætla ég að fá mér gott kaffi.
vinkonutjatt
Ég er ennþá mjög upptekin af ástandinu í Japan, ótrúlegt alveg, ég er ekki að komast yfir þessar hamfarir allar.
Ég er líka rosalega leið yfir því að norsðmenn skuli taka þátt í stríði.
Mér finnst fólk ótrúlega fljótt að taka afdrifaríkar ákvarðanir og auglýsi eftir hugtakinu "málamiðlun" er fólk búið að gleyma því? Er pólitík ekki svipuð og hjónaband, eða ætti hún ekki að vera það, samstarfsverkefni? (þarna var ég að tjá mig um fréttir dagsins úr pólitíkinni).
Spurning um að fá forstjóra Coca cola til að stjórna Íslandi í nokkur ár?....eða Bill Gates..??
Kraftaverkin eru allt í kring um okkur, systir mín er ófrísk.
Við vinkonurnar erum báðar að æfa hlaup, pepp, pepp, pepp, pepp!!
Hlakka til að fá mér prins póló í forrétt fyrir næsta matarklúbb......og kannski líka kók í gleri
Klem og knús!!
Hafjell - myndir
Það voru teknar slatti af myndum, kíkið á þær hér.
Þegar upp er staðið...
Ég var svo agalega ánægð með skokktúrinn í gær að mitt fyrsta verk í morgun, eftir að hafa skutlað Þórði Loga á leikskólann, var að fara út að skokka. Kom svo heim og fór að grufla í "R" það gekk ekki betur en svo að mér fannst að við hvert skref framm á við var eins og ég rynni aftur um tvö
Líkt og gerist stundum í fjallgöngu, en ég ákvað að taka mér hvíld en toppinum skal ég ná, það tekur nefnilega stundum svolítið á taugarnar að ná þangað sem maður vill en þá þýðir ekkert að gefast upp, með viljann að vopni þá eru manni allir vegir færir. Eða er það ekki??!!! Í kvöld fórum við á foreldrakvöld í Ås ungdomsskole, þar sem krakkarnir í öllum bekkjardeildunum í 9. bekk voru að sýna uppskeru eftir 9 daga vinnu í svokölluðu "utdanningsvalg". En þá velja krakkarnir sér grúppu til að vinna í og tengist sú grúppa því sem þau vilja fást við í framtíðinni. Þarna voru allskonar grúppur, verkfræði-og tæknigrúppa, nýsköpunargrúppa, fyrirtækjagrúppa, útivistargrúppa, tónlistargrúppa, kvikmyndagrúppa og leik-og dansgrúppa. Stefán valdi að vinna í músikgrúppu og gerðu þau verkefni eða söngleik með leiklistar-og dansgrúppunni. Þetta var ástarsaga, þar sem hinu ýmsu tónlistarstefnum var blandað inní og eiginlega kannski of langt mál að fara með það. Ég tók upp nokkur videó og setti eitt inn á fésið en það er flutningur þeirra á "Haba haba" sem er norska framlagið í júróvísjón þetta árið. Semsagt svaka stuð hjá okkur í kvöld.
Um hádegisbil á morgun munum við leggja af stað í Hafjell en það er eitt af flottari skíðasvæðunum hér í Noregi, staðsett upp í Lillehammer. Við verðum í hyttu með tveimur öðrum fjölskyldum og ætlum að hafa það gaman, njóta þess að renna okkur á skíðum og slaka á. Vá hvað ég hlakka til!!!
Eitt ljóð fyrir svefninn
Ja visst gör det ont (Karin Boye)
Ja visst gör det ont när knoppar brister.
Varför skulle annars våren tveka?
Varför skulle all vår heta längtan
bindas i det frusna bitterbleka?
Höljet var ju knoppen hela vintern.
Vad är det för nytt, som tär och spränger?
Ja visst gör det ont när knoppar brister,
ont för det som växer
och det som stänger.
Ja nog är det svårt när droppar faller.
Skälvande av ängslan tungt de hänger,
klamrar sig vid kvisten, sväller, glider -
tyngden drar dem neråt, hur de klänger.
Svårt att vara oviss, rädd och delad,
svårt att känna djupet dra och kalla,
ändå sitta kvar och bara darra -
svårt att vilja stanna
och vilja falla.
Då, när det är värst och inget hjälper,
Brister som i jubel trädets knoppar.
Då, när ingen rädsla längre håller,
faller i ett glitter kvistens droppar
glömmer att de skrämdes av det nya
glömmer att de ängslades för färden -
känner en sekund sin största trygghet,
vilar i den tillit
som skapar världen.
næs dagur í dag
hds<-subset(hoy2, hoy2$sor==0)
hd<-subset(hds, hds$Species==100)
hd.st <- c(b0=1,b1=1)
mod0_100<-nls(Height_m~13+b0*DBH_mm^b1, data=hd, start=hd.st)
summary(mod0_100)
Fékk mér reyndr pásu í hádeginu og skokkaði til Ingu Völu og við tókum okkur rólegan skokktúr, í heildina náði ég rúmum 10 km í dag og er bara sátt við það.
Sólin skín, er að hugsa um að setjast út á svalir í kaffipásunni.
Seinnipartinn er svo ætlunin að skutlast í G-sport, sækja nýju skíðin hans Þórðar Loga

Svo ætla ég að halda áfram með hr "R" í kvöld.
andskotans væl!!!
Eigið þið virkilega svo um sárt að binda??? Áttið þið ykkur á því að það að búa í húsi eru forréttindi, það að einhver talar um þig eru líka forréttindi því þá er allavega munað eftir þér, það að geta farið í búðina og keypt salt og hafragrjón og skrúfað svo frá krana til að fá vatn það eru forréttindi og svona gæti ég lengi talið áfram. Hugur minn er hjá fólkinu sem er virkilega að fá að glíma við vandamál sem það ræður ekki við eins og t.d. krabbamein. Hugur minn er hjá fólkinu sem býr í Japan. Ég er þakklát fyrir að ég á grjón og salt, get skrúfað frá krananum til að fá vatn, leigi íbúð sem er uppistandandi og er við góða heilsu.
Ég er hætt að taka þátt í þessu að "like"a og "share"a á einhverjar vælugreinar ojjj!!!
Dagurinn í dag: Nú leik ég mér í "R" tölfræðiforritinu og fer síðan í dekur (sem eru forréttindi) þ.e. að láta skrapa af mér líkþorn, hlaup eru einnig á dagskránni og Despó í kvöld. Ég er mjög þakklát fyrir það að hafa tækifæri til að eiga svona frábæran dag, ég vona að þið séuð ánægð með ykkar daga. KNÚS!
p.s. En vá nú er farið að gjósa í ofanálag þarna í Japan
....to do
Í dag er ég búin að vinna í að skoða gögnin mín, fór svo og hitti leiðbeinandann minn eftir hádegi og sat hjá honum í næstum tvo tíma en hann var að kenna mér á tölfræðiforritið "R" ég kom svo heim núna seinnipartinn og ætlaði aldeilis að hefjast handa og skruna í gegn um allt sem ég hafði lært....en nei, það gekk ekki. Einhver meinloka í gangi en ég ætla að leggja þetta aðeins frá mér í bili og svo ætlar Inga Vala að kíkja á mig í fyrramálið en hún hefur tekið kúrs í "R" kannski sér hún í fljótu bragði hvaða vitleysu ég er að gera.
Núna elda ég matinn, middag kl 17 að norskum sið, skokktúr um kl 18, húsmóðurstörf í kvöld og svo smá sjónvarpsgláp en í kvöld er annar þáttur í nýrri þáttarröð af 71°N sem er útivistarþáttur mjög skemmtilegur.
Always plenty to do!
Myndir frá deginum í dag
Ferðaplan
30. júní: Skilum íbúðinni, síðasti vinnudagur Hauks. Sníkjum gistingu í eina nótt hjá vinum okkar.
1. júlí: Kveðjum Ås. Keyrum til Kristiansand í Suður Noregi, tjöldum þar.
2.-3. júlí: Förum í skemmtigarðinn "Dyreparken" í Kristianssand.
3. júlí: Tökum seinnipartsferjuna frá Kristiansand. Kveðjum Noreg. Komum í land í Hirsthals í Danmörku. Tjöldum í nágrenninu.
4. júlí: Skagen í Danmörku, af mörgum talið fallegasta svæði norður Jótlands. Gistum í tjaldi í Hirsthals.
5. júlí: Siglum frá Hristhals heim til eyjunnar fögru (ætlum að sleppa Færeyjum í þetta skiptið).
5.-6. júlí: Á siglingu í Norrænu - gerum bara gott úr því og njótum þess að vera túristar í skipinu.
7. júlí: Förum á fætur fyrir allar aldir og horfum á eyjuna nálgast, siglum inn Seyðisfjörðinn og stígum á land.
um tannkrem og það sem er framundan

Dagurinn í dag er fullskipaður.
Þórður Logi fer til tannlæknis klukkan hálf tíu en á myndum sem teknar voru um daginn sást skuggi í einum jaxli - ekki alveg nógu gott - það er búið að fjárfesta í tannþræði og kasta barnatannkreminu en tannlæknahjúkkan sagði að þegar keypt væru tannkrem þá ætti maður að velja eins og fyrir Þórð tannkrem sem er með um 1000 ppm natríumflúoríð og gaf honum Zendium sem er 1100 ppm, ég fór svo að lesa á tannkremstúbuna hér heima en venjulegt Colgate inniheldur 450 ppm, Sensodine er 1400 ppm.....þannig að ég játa hér með fávisku mína á þessu sviði og viðurkenni að ég hef ekki verið að kaupa það besta í tannkremum fyrir okkur hér - bæti mig héðan í frá.
Eftir tannlæknaferðina fer drengurinn á leikskólann svo ég geti nú nýtt tímann í verkefnið mitt.
Haukur vinnur og vinnur, betra fyrir mig að gera ekkert ráð fyrir honum þegar ég er að plana mína vinnu, svolítið súrt því mér veitti ekki af að taka prinsessuna á þetta næstu tvo mánuðina og þurfa ekkert að hugsa um neitt nema mig sjálfa EN ég er nú ekki eina manneskjan sem hef þurft að standa í þessum sporum og ætla því ekkert að vera að kvarta eitthvað.
Svo er það massa hreyfing í dag, ef líkaminn er í lagi þá er andinn betri
Engin pizzuveisla í kvöld, er búin að stinga upp á að steikja hamborgara og svo kaupi ég gróf hamborgarabrauð og bý til holla dressingu - er ekki að nenna þessu föstudagspizzuveseni enn eina ferðina.
Heyrðu já og svo er saumó í kvöld!!! Mikið að geraaaaaa

Á morgun kemur Íris vinkona Þórðar Loga í heimsókn en hún verður í pössun hér fram á sunnudag og á sunnudaginn er stóri dagurinn, þá keppir Þórður Logi í skíðagöngu á svæðinu við Holmenkollen!!
Læt þetta duga í bili - föstudagskveðja frá Skogveien.
I feel olympic today
Var alltaf að hugsa að ég þyrfti nú kannski að heyra í leiðbeinandanum mínum hér og ákvað svo um síðustu helgi að ég myndi hafa samband við hann í lok vikunnar. Nema hvað á þriðjudaginn kom tölvupóstur þar sem hann var svona að forvitnast um mig, hvort við ættum ekki að kíkja á það sem ég væri komin með og svona.....
....þannig að nú er ég að fara að hitta hann kl 13 í dag og vonast til að fá rækilegt spark. Ég ætla líka að biðja hann um að setja upp smá plan með mér fyrir næstu vikur og óska eftir fundum einu sinni í viku fram að páskum. Leiðbeinandinn á að sinna manni í 40 eða 50 klst og ég ætla bara að nýta mér það, hugsa að hann sé kannski búinn að eyða 4 klst í mig þannig að....Pressan eykst, tíminn styttist, þá fer ég að vinna betur - I feel olympic today!!!
veðurlýsing og hversdagslegt miðvikudagsblogg
Ég tók mér göngutúr seinnipartinn í gær í vinnuna til Gunnu, við gengum svo í áttina að Dröbak og náði ég þá tæplega 7 km í göngu í gær. Við komum svo hingað heim og ég eldaði fisk mmmm og svo leið kvöldið með honum excel félaga mínum og endaði svo við sjónvarpið með Desperate Housewifes. Ég náði að haga mér skikkanlega í mataræðinu, borðaði 2 appelsínur, 1 banana, kornfleks og mjólk, 2*brauð með osti, skyr með smá rjóma, fisk-hrísgrjón-salat, slatta af vatni og allt of mikið af kaffi.
Haukur fór að vinna í nótt, kom heim snemma í morgun og var að fara af stað aftur bara rétt í þessu. Núna snjóar og svo á að fara að rigna eitthvað smá á morgun og svo fer sólin að skína og hitatölur næstu viku eru í kring um 6°C þá kemur vorið (skulum við vona)

Í dag ætla ég að vinna í verkefninu mínu, taka eina hlaupaæfingu inni á bretti (nenni ekki að hlaupa úti í snjókomunni).
Ég er búin að fá mér kornfleks og mjólk, tek svo ávöxt um tíuleytið, skyr, rjóma, brauð, ost og ávöxt í hádegi, ávöxt seinnipartinn og svo tók ég gúllas úr frystinum þannig að það verður súpa eða pottréttur í kvöld.
Eigið góðan dag
um árskort í sund
Í tengslum við bloggfærsluna í gær fór ég inn á vef Borgarbyggðar til að sjá verðskrá íþróttamiðstöðvarinnar en mér finnst sjálfsagt að taka þann mikilvæga póst sundferðir inn í dæmið þegar ég er að finna út kostnaðinn við að reka heimili. Ég var búin að heita á mína menn að þegar við flyttum heim þá væri okkar fyrsta verk að kaupa árskort í sund í nesinu. Verðskrána finnið þið hér.
Árskort s.k. heilsukort (þreksalur, sund, spinning) fyrir mig og Hauk kostar 32.300 en bara árskort í sund myndi kosta 22.700 - ég tek dýrari kostinn í þetta dæmi þ.e. heilsukortið 2*32.300 = 64.600. Árskort í sund fyrir strákana 2*9400 = 18.800
Samtals mun ég greiða með glöðu geði 83.400 kr.
Til samanburðar ef ég mundi ekki kaupa svona árskort þá þyrftum við að borga 1640 krónur fyrir sundferð fjölskyldunnar, hvað þyrftum við þá að fara oft í sund til að árskortin borgi sig?? 51 skipti og við höfum yfirleitt stundað sund og íþróttahúsið í Borgarnesi mun oftar en það á ári. Allavega einu sinni í viku yfir vetrartímann og tja alveg óhikað að meðaltali þrisvar í viku þegar tekur að vora og fram á haust. Já ég held að þetta sé fjárfesting sem muni borga sig og af hverju þarf ég eitthvað að réttlæta það? Hvað skyldu þetta vera margir sígarettupakkar? Já eða rauðvínskútar?
Svo til gamans get ég frætt ykkur á því að Haukur og Þórður Logi fóru í sund í Askim hér um daginn, þeir borguðu 350 NOK fyrir skiptið 7 þús kall íslenskar!!!!! Það var þá sem ákvörðunin um árskortakaupin voru gerð
Afar óvísindaleg könnun

Hvað fer mikill peningur í matvæli og heimilisvörur á mánuði?
Hvað eru margir í heimili?
Tekur þú slátur?
Veiðir þú í kistuna?
Kaupir þú fisk í búðinni eða í blokkum?
En hvað með kjöt kaupir þú það í stórum slumpum t.d. beint frá bónda eða afurðarstöð?
Ræktar þú eitthvað sjálf/ur?
Býrðu til sultur, saft og vín?
Hvað fer mikill peningur í nammi og áfengi á mánuði?
Reykir þú eða tekur í nefið/vörina, hvað kostar það á mánuði?
Hvað notar þú bílinn mikið í mánuði?
Hvað eyðir þú miklu í bensín?
Þarftu að keyra allt eða er athöfnin að stökkva upp í bíl og keyra af stað orðin sjálfsögð?
Gætir þú keyrt minna?
Fer mikill peningur í líkamsrækt á þínu heimili?
Fullt af spurningum....já ég veit, ég veit en svörin verða ekki notuð í vísindalegum tilgangi. Nota þau einungis til að pæla í því hvers ég get vænst í mínu heimilisbókhaldi og kannski er leikurinn gerður einnig til að ÞÚ spáir í hvað þú ert að gera...og hvar eða hvort þú getir breytt einhverju hjá þér.
það má skipta um skoðun og það á "nó tæm"
Aldrei þessu vant hlustaði ég á manninn minn þegar ég skráði okkur hjónin í Reykjavíkurmaraþonið. OKEY - ég fer ekki hálft maraþon í ágúst, við ætlum 10 km. Sumarið verður undirlagt í flutningum og að koma sér fyrir á nýjum stað í nýrri vinnu og ná áttum. Það er eiginlega ekki hægt að búast við að maður nái að æfa svo vel að tímamet verði slegin en eins og minn maður sagði að þá færum við ekki til að verða síðust no way!! Enda..... er ekki eitthvað hlaup í haust, í október? Þar sem hægt er að velja 1/2 maraþon?
Þannig að vorið og sumarið 2011 verður tileinkað 10 km hlaupum
og markmiðið er að hlaupa 10 km á undir 60 mínútum.Myndir
Þarna eru myndir frá hyttuferð til Budor og svo ferð okkar á skíðagöngukeppni í gær með viðkomu í Osló sentrum.
Núna eru Haukur og strákarnir að keyra mömmu og pabba út á völl, stutt stopp hjá þeim gömlu en mjög skemmtilegt samt sem áður en það er búið að fara á skíði, fara í búðir, hitta frænkurnar, borða góðan mat, upplifa einn dag á HM 2011 í norrænum skíðagreinum á Holmenkollensvæðinu, fara í miðbæ Oslóar og fá stemminguna beint í æð og veðrið hefur sko ekki spillt fyrir, sól og blíða og hiti um frostmark. Yndislegt. Hlakka til að fá foreldra mína í eina heimsókn enn í júní

Haukur og strákarnir ætla svo í fermingarfræðslu og messu eftir að hafa keyrt á völlinn en ég ætla að taka til hér heima og skipuleggja verkefni vikunnar.
Dagurinn í gær, dag og á morgun
Í morgun spruði ég þau hvort þau hefðu áhuga á að kíkja í búðir....jú jú þau voru alveg til í a ðskoða Outletið og allar merkjavörubúðirnar, aðallega til að kíkja á síðbrækur fyrir pabba. Það er skemmst frá því að segja að pabba verslaði heil ósköp, sáiðn f´roum við í Lindex í Skistorsenter og mamma fataði sig upp þar. Núna er ég að elda matinn, karlarnir skelltu sér einn rúnt á gönguskíðunum og við ætlum að slá upp veislu í kvöld þar sem systir mömmu og dætur hennar koma en þær hafa búið hér í Noregi í 16-17 ár, einnig kemur Vilborg frænka og dóttir hennar. Þannig að hér mun gleðin ráða ríkjum í kvöld. Á morgun verður farið á heimsmeistaramotið í Holmenkollen og kíkt niðrí miðbæ Oslóar
verslunartúr
Halla bauð mér far til Svíþjóðar í morgun, við brunuðum af stað upp úr kl 8, vorum því komnar þegar matvörubúðin var að opna og versluðum heil ósköp af lífsins nauðsynjum. Ostar, kjöt, ávextir og grænmeti og allskonar nauðsynjar. Síðan kíktum við á kaffihús og í Ittala Outletið, keyrðum svo til Strömstad í eina búð og svo aftur til baka heim. Var komin hingað um hálf tvö og er bara nokkuð sátt við afrek dagsins. Síðan gekk ég frá, vesenaðist eitthvað í heimilisverkum og fór svo út að hlaupa (samkvæmt prógramminu). Mataræðið er nú kannski ekki alveg upp á það besta í dag, líklega of lítið innbirt en ég bæti úr því í kvöldmatnum. Verkefni kvöldsins er að halda áfram að gera heimilið heimilislegt OG síðan ætlum við Heiða mágkona að "hittast" á skype og skrá okkur í eins og eitt hlaup sem við stefnum á í sumar
Hreyfingaruppgjör febrúarmánaðar
Hlaup: 13,4 km 1:31 3 skipti
Ganga: 31,5 km 6:01 8 skipti
Skíðaganga: 21,3 km 3:03 4 skipti
Annað: -------- 6:00 1 skipti (svigskíði)
Semsagt 66,2 km farnir, 16 klst og 35 mín "eytt" í hreyfingu á 16 dögum. Þetta er frekar lélegt og engir hjólatúrar til að ná upp kílómetratölunni og allt of fáir hlaupadagar en markmið mánaðarins var að fara í heildina 200 km - því var ekki náð.
Markmið marsmánaðar er hins vegar að ná lágmark 15 km á hlaupum í hverri viku en það ætti að gefa 65 km yfir mánuðinn en ég tala um rúmlega 15 km á viku þannig að markmiðið er 70 km á hlaupum í mars. Síðan er markmiðið að nýta snjóinn til gönguskíðaiðkunnar, göngutúrar og jafnvel hjólatúrar verða í plús.
Við Bríet hlupum fimm kílómetra í gær, vel búnar með gorma undir skónum og alles, leiðindarslabb á gangstígunum, vel blautar í fæturnar þegar heim var komið en mikið djööö var þetta gott - það er svo gaman að geta hlaupið úti, ekki þetta bítandi frost heldur hitastig um frostmark og ferskt loft, bara notalegt. Við erum semsagt að koma okkur í hlaupagírinn og nú verða fastar æfingar þrisvar í viku. Ein æfing með vaxandi hlaupahraða, önnur með sprettum og sú þriðja róleg en eitthvað lengri. Hlaupadagarnir eru mánudagar, miðvikudagar og föstudagar klukkan 16:30.