gamall vinur minn, man einhver eftir honum?
Daglega:
4 ávextir
2 x 300 gr grænmeti
15 gr fita
2 brauðsneiðar
2 x 80-170 gr kjöt eða fiskur, ostur, skyr, baunir....
0,5 l mjólk
Vikulega:
3-5 x fiskiskammtar
3 x kjötskammtar
0-7 x kjúklingaskammtar
4 egg
0-5 x ostskammtar
0-3 morgunkornsskammtar
Ég man vel eftir honum, hann veitti mér mikla vellíðan, orku, þrek og þor - ætla að rifja upp kynni mín af honum, NÚNA.
FÓKUS!! BEST AÐ BYRJA HÉR

að éta eitthvað ofan í sig....
Febrúar er að verða búinn!!! Fyrsti dagur marsmánaðar ekki á morgun heldur hinn, tveir og hálfur mánuður til ritgerðarskila, fjórir mánuðir til heimflutninga og svo erum við þvílíkt búin að plana ýmsilegt annað hér í úttlandinu. Við eigum eftir að fá nokkrar gestakippur, fara í einn skíðahyttutúr, taka þátt í eins og einu eða tveimur hlaupum, taka túr á Vestlandið og þetta er það sem er fastákveðið - svo er allt hitt sem við erum að spá í að gera en eigum bara eftir að taka endanlega ákvörðun um

Við Bríet tókum þá ákvörðun um helgina að nú þyrftum við að fara að beyta hvora aðra hópþrýstingi og plana regluleg hlaup LOKSINS ætla ég að byrja á prógramminu sem Eva sendi mér í byrjun janúar.
Semsagt núna er vor í lofti (þrátt fyrir snjóinn) og það verður hlaupið á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum ÚTI!!!!!
Ég stefni á að taka þátt í "Sentrumlopet" þann 7. maí og fara þá 10 km og svo er spurning með "Hadeland maraton" og fara þá svokallað kvartmaraton 10,5 km - ég geri ekki ráð fyrir að treysta mér í hálft maraþon akkúrat þá, stefni bara að því eins og áður í Reykjavík í ágúst
....Þið verðið bara að fyrigefa mér kæru lesendur en það að lesa um þessi plön mín aftur og aftur er líklega mjög þreytandi en svona nota ég bloggið til að veita mér aðhald og skipuleggja mig. Núna er HM í skíðagöngu og skíðastökki, haldið á Holmenkollensvæðinu í Osló, verðlaunaafhendingar og fjör á kvöldin niðrí miðbæ. Við fylgjumst með þessu - ótrúlega spennandi. Mamma og pabbi koma á fimmtudaginn og verða hjá okkur í þrjár nætur, við stefnum að því að taka laugardaginn frá fyrir HM og enda niðrí miðbæ í fjörinu þar, sjá verðlaunaafhendingar, flott tónlistaratriði og mannhafið
Eins og mér þótti skíðastökk spennandi íþrótt svona til áhorfs og skíðagana óspennandi þá hefur það aldeilis snúist við. Ég sé nefnilega ekkert jákvætt við að horfa á anorexíusjúklinga svífa í loftinu en þannig er þetta víst, það snýst um að vera sem léttastur og svífa sem lengst - sorglegt. Skíðaganga er hins vegar mjög heilbrigð íþrótt og til fyrirmyndar þó að auðvitað er eitthvað um steranotkun og svoleiðis vesen þar eins og í öðrum greinum EN já það sem fólk almennt talar um að það taki því eins að horfa á málningu þorna þá getur 50 km ganga verið æsispennandi. Já það er ýmislegt sem maður þarf að éta ofan í sig þegar maður kynnir sér málin og setur sig inn í þau. Þess vegna hef ég t.d. ekkert verið að tjá mig um Icesave.....maður er víst alltaf að reyna að bæta sig sko
p.s. Plan morgundagsins er: Fyrirlestur, vinna í verkefni, hlaup (5 km), elda fisk í kvöldmatinn og njóta dagsins/kvöldsins.
Húsnæði óskast frá 1. júlí 2011
Ég er alltaf að heyra af hinu og þessu húsinu sem er til leigu eða sölu á því svæði sem við erum að leita á - merkilegt en svo skoða ég fasteignasíðurnar og þá finn ég eitthvað lítið, sem passar við "budgetið" og þarfirnar.... nema þá kannski eitthvað sem á að vera löngu komið af sölu (samkv. eigandanum) en fasteignasalarnir hafa ekki komið í verk að taka út af sölu!!! Leigumiðlunarsíðurnar sýna eitthvað lítið sem ég skil ekki miðað við þann ógurlega (umtalaðan) fólksflótta og fjölda eigna á sölu á svæðinu, er ekki betra að leigja en að eiga tómt hús og bíða eftir að það selst?? OG eins og ég sagði að taka út það sem er EKKI á sölu?
Þannig að nú læt ég vaða og set auglýsingu hér.
Húsnæði óskast frá og með 1. júlí 2011 á Borgarfjarðarsvæðinu (Borgarnes, Hvanneyri, sveitin).
Leiga til langs tíma eða kaup.
Í íbúðinni eða húsinu þurfa að vera þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofa, þvottahús/geymsla, bílskúr er stór kostur.
Ef þið hafið eitthvað sendið mér þá línu á siggajulla@hotmail.com
Kær kveðja Sigga Júlla og fjölskylda sem eru að fara að flytja heim eftir rúma fjóra mánuði 
p.s. Ef þið viljið benda mér á eitthvað, sendið mér þá link á viðkomandi auglýsingu, búin að fá leið á "orðrómsábendingum".
draumur
Þá sit ég hér yfir bókum og blaðagreinum, spái og spegúlera. Febrúar er að verða BÚINN!!!! Hvað varð af honum??
Næstu dagar verða svipaðir hér, læra, lesa, skrifa, hreyfa sig, elda kvöldmat, þvo þvott......þarf að spíta í lófana og koma fleiru á blað
og standa mig í öllu hinu líka. Dreymdi í nótt að ég var að verja ritgerðina mína, ósköp vinalegt til að byrja með, sat á móti leiðbeinandanum mínum og ætlaði að spjalla bara um efnið, held við höfum verið með kaffi. En þá var allt í einu komið fullt af fólki við borðið sem vildi heyra hvað ég hafði að segja og ég ekki með neina sérstaka kynningu. Man sérstaklega eftir Hafdísi Sturlaugs en hún klappaði mér á öxlina og sagði að það gæti verið sniðugt að vera með power point þegar maður ver ritgerð, svo man ég ekki hvernig stóð á því að prins póló kom þarna við sögu en allavega virðist ég hafa lifað þessar hremmingar af. Boðskapur: Það sem ekki drepur mann styrkir mann. Ég skil ekki hvað ég er eitthvað kvíðin út af þessu verkefni ......dæs!
Í dag ætla ég að sitja hér við borðið, fara með Stefán Snæ til tannsa í hádeginu (ganga þangað 4 km), vesenast í þvotti í pásum, fara á gönguskíði, skokka eða í spinning seinnipartinn og elda fisk í kvöld.
Eigið góðan dag.
það sem við höfum brasað síðustu daga.....
Á afmælisdaginn minn byrjuðum við Þórður Logi á að fara til tannlæknis en hann var boðaður í eftirlit og hitti það á daginn minn. Eftir það tókum við, ásamt gestunum okkar (Þórhildi, Elvari, Ernu og Arnari), lestina inn til Osló. Gengum týpískan túristahring: úr lestinni á Nasjonaltheatret stasjon, gengið út á Karl Johann upp að höllinni, niður á Akerbrygge, Akershusfestning (kastalinn), Karl Johann, Operuhúsið, Oslo sentralstasjon og lestin heim. Sáum hermenn og fullt af fólki undirbúa skreytingar á Karl Jóhann fyrir setningarhátíð HM í skíðum. Sá Sonju drottningu þegar hún keyrði fram hjá okkur fyrir framan höllina, hún vinkaði - ég vinkaði á móti
Við fórum á kaffihús, í túristabúð og í kryddbúðina á Karl Jóhann þar sem ég birgði mig upp af allskonar kryddi og rúsínum og apríkósum mmmm. Þegar heim var komið var Haukur kominn heim eftir rúmlega sólarhringsvinnutörn. Hann og drengirnir gáfu mér afmælisgjöf en það var útivistardót: Lítil steikarpanna, ferðakoddi og tréstaup. Þarna um kvöldið gerði ég pizzu eins og alltaf á föstudögum.Á laugardaginn fórum við til Ski og Dröbak, Stefán Snær fékk að ráða hvað var í matinn þá um kvöldið en það var ekta norskur matur kjöttkaker, kartöflur og brún sósa + salat og hindberjasulta.
Á sunnudaginn brunuðum við til Budor. Við vorum búin að leigja æðislega íbúð, en hún var sem höll. Þrjú svefnherbergi og baðherbergi á efri hæðinni, stofa, borðstofa, eldhús og klósett niðri - algjör lúxus. Við fórum í göngutúr seinnipartinn þennan dag, skoðuðum aðstæður og sváfum yfir sjónvarpinu um kvöldið.
Á mánudaginn fórum við á gönguskíði, Elvar og Arnar prófuðu gönguskíði og Þórhildur og Erna voru í sleðabrekkunni. Eftir hádegi fórum við til Elverum og skoðuðum skógarsafnið. Við elduðum hreindýr og elg um kvöldið, steiktum hreindýravöðvan heilan í ofni en elgvöðvinn var sneiddur í þykkar sneiðar og steiktur á pönnu, með þessu voru möndlukartöflur, salat og sveppasósa með lauk og rauðvíni jammmmí jammí. Þetta tókst rosalega vel hjá okkur.
Í gær tókum við daginn snemma. Við Haukur vorum á svigskíðum allan daginn, Þórður Logi var á gönguskíðum og renndi sér á sleða inn á milli, Erna renndi sér á sleða, Arnar hélt áfram að æfa sig á skíðunum, sömuleiðis Elvar. Þórhildur prófaði gönguskíði og tók nokkra hringi. Flottur dagur í alla staði.
Stefán Snær var ekki mjög hrifinn af þessu fríi, var mest inni, hékk í tölvu og horfði á myndir, þvinguðum hann aðeins með okkur út en hann sýndi þessu lítinn áhuga. Ferðin í skógarsafnið stóð upp úr að hans mati.
Í dag tókum við daginn snemma, pökkuðum og gengum frá íbúðinni (þurftum ekki að þrífa) og keyrðum til Gardemoen, þangað vorum við komin um hálf tólf, kvöddum gestina okkar og héldum áfram heim.
Haukur fór að vinna hálftíma eftir að við komum heim. Við Þórður skelltum okkur í göngutúr í kuldanum, þvottavélin er á fullu og svo er alltaf heilmikið verk að ganga frá eftir ferðalög.....
Á morgun kafa ég ofan í verkefnið mitt, tek skokktúr eða gönguskíðatúr, fylgi Stefáni Snæ til tannlæknis en verkefnið mitt verður AÐAL á morgun......
HM í skíðaíþróttum var sett í Osló núna í kvöld og sjónvarpið er yfirfullt af allskonar þáttum í tengslum við það......heia Norge!!!
fimmtudagur
Ég sótti þau á völlinn, við tókum gönguferð um háskólasvæðið, sáum kindur með hala, hest og fullt af framandi trjám.
Eldaði fiskrétt í kvöld.
Stefán Snær er lasinn.
Þórður Logi fer til tannsa á morgun en við fengum bréf þar sem hann var innkallaður í eftirlit. Svo er spurning um að skella sér með lestinni til Osló og sýna gestunum það helsta þar.
Pizzakvöld a la ég annaðkvöld eins og flest önnur föstudagskvöld hér í Norge....
Yfir og út, góða nótt.
fermingarfræðsla, miðvikudagur og búðarsaga
Seinnipartinn í gær keyrðum við Stefán Snær til Kolbotn, heim til Örnu prests. Íslensku fermingarbörnin af stór Oslóarsvæðinu hittust, horfðu á mynd og spjölluðu um boðskap hennar en þetta er hluti af verkefni sem heitir trúarstef í kvikmyndum.
Boðið var upp á snakk, popp, pizzur og gos.
Foreldrar voru velkomnir með og sátum við þarna nokkur og spjölluðum um heima og geima. Ég tók prjónanana með og kláraði aðra ermina á peysunni sem ég er að prjóna á Hauk. Þá á ég bara hina ermina eftir og berustykkið, spurning um að ég nái kannski að klára þessa fyrr en ég bjóst við (markmiðið var að vera búin með hana áður en við siglum heim) kannski get ég byrjað á annarri áður en sumarið kemur hmmmm það væri það
Í dag er markmiðið að sitja við skrifborðið og vinna, mér finnst allt ganga svo hægt hjá mér þessa dagana en ég held að svona sé það bara, stundum flýgur maður áfram og stundum gerist eitthvað minna - maður þarf bara að læra að sætta sig við það. Síðan ætla ég aðeins að skipuleggja heimilið....hmmm kannski geri ég það áður en ég fer að vinna á fullu við tölvuna, svo notalegt að setjast niður og umhverfið er eins og maður vill hafa það.
Kristín hafði samband við mig í gær og stakk upp á ferð í ræktina í kvöld, þannig að ég skokka bara þá, og sleppi morgunskkokkinu í þetta sinn.
Í kvöld verður salat í matinn (grænmeti, kjúlli, dressing).
Í blálokin langar mig til að segja frá atviki í búðinni í fyrradag. Við Þórður Logi fórum að versla í Rema1000 sem er í rauninni ekkert merkilegt nema hvað að þegar ég er búin að borga og er byrjuð að setja vörurnar í poka sé ég að Þórður Logi er búinn að taka af sér vettlingana og er að bogra eitthvað. Hann var að taka upp peninga (smámynt) af gólfinu, hann hugsaði sig ekki um heldur fór með þessa einu krónu og fimmtíu aura til afgreiðslukonunnar, gjörðu svo vel og við fórum út. Ég hugsaði með mér að ég ætlaði ekki að hæla honum fyrir þetta, það er óþarfi að hæla fyrir hluti sem eru sjálfsagðir, hann átti ekki þessa krónu og aur og því sjálfsagt að afhenda afgreiðslukonunni þá. Gerði ég rangt eða ekki? Það er spurning en ég held samt ekki.
þriðjudagur
Í dag byrjaði ég daginn á góðum göngutúr, var að hugsa um að hlaupa og bjó mig þannig að ég gæti hvort heldur sem væri hlaupið eða gengið. Ég ákvað að fara meðfram teinunum en ef ég færi meðfram þeim að göngubrú nr tvö og til baka þá næði ég ríflega fimm kílómetrum. Þegar ég kom niður eftir sá ég að leiðin hafði ekki veirð mokuð nýlega og því ekkert spes að hlaupa þarna. Í staðin fyrir að snúa við og skokka um hálar götur bæjarins þá ákvað ég að taka röska göngu þarna í snjónum, semsagt 5,5 km á 49 mínútum og ég bara nokkuð sátt. Kom svo heim, fór í sturtu og settist við tölvuskrímslið, fór á einn fyrirlestur og sit nú enn og aftur við tölvuskrímslið.
Ég er búin að drekka allt of mikið kaffi í dag
held ég verði að fara að gera eitthvað róttækt í þeim málum - gengur ekki að liggja svona mikið í kaffinu þegar ég er hér heima. Spurning um að gera vatnið meira freistandi og kaupa kannski gott te 
Ég er búin að haga mér vel varðandi umgengni við sykur og sælgæti - ekkert svoleiðis farið inn fyrir mínar varir í dag
Búin með tvo ávexti (appelsínu og banana), á einn eftir - ætla að eiga hann inni í kvöld. Búin að taka inn járn og c vítamín töflur dagsins. Búin að hreyfa mig í dag. Stefán Snær fer í fermingarfræðslu seinnipartinn, annað hvort ég eða Haukur fer með honum.
Haukur er allt annar í fætinum.
Þórður Logi fór í skíðaskólann í dag.
Læt þetta duga héðan í dag, góðar stundir.
mánudagur
Seinnipartinn ætla ég að taka hlaupatúr á meðan Þórður Logi verður í dansi.
Í dag byrja ég í nammibindindi.
Í kvöld ætla ég að elda hakk og rófufranskar, með þessu verður létt og góð hvítlaukssósa (sýrður rjómi, marinn hvítlauksrif, smá pipar og salt).
Á morgun ætla ég að passa mig á að innbirða a.m.k. 3 ávexti.
sunnudagur

Norðmenn völdu sitt framlag í júróvísjón í gærkvöldi - við erum ágætlega sátt við það en lögin sem voru núna í lokakeppninni voru öll vel frambærilegt á júróvísjónmælikvarða og í rauninni var mjög erfitt að velja eitthvað eitt, en þetta sem var valið er svona grípandi og verður líklega vinsælt á dansstöðum.
Í kvöld verður kjúklingur, kryddaður með svörtum pipar og ferskri sítrónu - bakaður í ofni og meðlætið verður salat og hrísgrjón.
komin "heim" til Norge
Helgin verður annars nýtt til að púsla sér saman, nota góða veðrið og snjóinn og njóta.
síðasta vika og Ísland í dag
Geðheilsunni var nú samt bjargað í upphafi vikunnar þar sem ég fékk símtal frá Landgræðslunni um að ég hefði verið valin úr hóp umsækjenda um stöðu héraðsfulltrúa á Vesturlandi og Vestfjörðum.
Ég komst út á skíði, í göngutúr og skokktúr í vikunni þannig að það er í plús. Það má því segja að þessi vika hafi verið í plús þegar upp er staðið. Sko fyrir mig. Því það eru öllu leiðinlegri fréttir af manninum mínum. Hann byrjaði að vinna á fullu í vikunni sem varð til þess að hnéð á honum bólgnaði upp, hann hitti svo lækninn í fyrrakvöld sem skrifaði upp á tveggja vikna veikindafrí + bólgueyðandi áburð + sjúkraþjálfun.
Núna er ég að klára að gera mig klára fyrir Íslandsferð. Flýg í dag til eyjunnar. Ætla að hitta systur mínar í dag, hitti svo Þórunni í kvöld og ætla að vera hjá henni á Hvanneyri á morgun. Síðan er ég að fara á fund í nýju vinunni og heilsa upp á gamla vinnustaðinn á mánudag og svo tekur við vinna við lokaverkefnið, verð staðsett á Mógilsá en ætla að gista hjá Lilju vinkonu í bænum. Flýg svo til baka til Norge á föstudag. Markmiðið er að komast í sund sem oftast, nýta ferðina að sjálfsögðu í botn og kaupa slátur og harðfisk handa köllunum mínum.
Góðar stundir.
veikindi og vinna
Það er leiðindarpest að ganga hér, fólk fær hita og liggur lengi - veit um nokkra sem hafa legið í viku
Við prófuðum semsagt að skíða á nýjum stað í gær, fórum í svokallaða "lysloypa" upplýst skíðagöngubraut út í skógi. Það var ansi hart færi, slóðirnar lélegar og fullt af bröttum brekkum. Ég er svo mikil hæna að ég er ekki að þora að láta mig gossa niður, sérstaklega þar sem sporin eru orðin léleg og jafnvel beygja í brekkunni. Ég plægði flestar brekkurnar og gekk niður tvær því mér leyst ekkert á þær. Jebb algjör hæna!!! Merkilegt hvað maður verður ragur með aldrinum

Ég reikna ekki með að fara á skíði í dag, ætla hins vegar í langan göngutúr með Pálínu núna seinnipartinn og Ísak (maður Pálinu) og Haukur ætla á skíði.
Annars eru nýjar fréttir af mér - ég er komin með framtíðarvinnu, byrja í sumar - þannig að manni líður ansi vel með það að flytja til Íslands í sumar í sumar í sumar.....!!!! Vá hvað tíminn líður hratt. Við þurfum því að fara að leita að húsnæði, íbúð eða hús sem rúmar fjagra manna fjölskyldu og bílskúr óskast til leigu í Borgarnesi eða nágrenni.
Jæja ætla að skella mér í að lesa um rules for land use, land use change and forestry .....
Góðar stundir.
síðustu dagar...
Hlaup: 10,3 km (jebb ég veit, lélegt) - 2 skipti
Hjól: 144 km - 8 skipti
Ganga: 11,5 km - 2 skipti
Skíðaganga: 17 km - 3 skipti
Annað: ------- - 4 skipti
Semsagt 19 æfingar, 182,8 km í allt. Markmiðið fyrir janúar var 150 km í einhverri hreyfingu og það tókst og vel það.
Ég fór ekki nema þrisvar á gönguskíði í janúar (skammast mín fyrir hversu sjaldan það var) en svo ég finni "afsökun" þá get ég sagt ykkur það að gönguskíði og gönguskíði eru ekki það sama. Prófaði "ný" skíði um helgina þ.e. notuð Fischerskíði og sá það að skíðin mín eru drasl sem renna ekkert í samanburði. Við Haukur fórum svo saman í smá túr í gær (ég á "nýju") en nú er hann farinn að geta farið á skíði í rólegheitunum en verður að passa sig í brekkum.
Ég ætlaði að hlaupa inni á bretti núna eftir áramótin, fékk hlaupaprógramm frá Evu og er ekki að standa mig í að fara eftir því - vel alltaf spinningtíma í staðin fyrir hlaupabrettið. Reyndar er orðið það hlýtt að ég get vel farið út að skokka og það er mikið skemmtilegra. Ég vil nefnilega hafa gaman að þessu, nenni ekki að eyða frítímanum í eitthvað sem mér þykir leiðinlegt. Markmið febrúarmánaðar er að fara 200 km - allt í bland á hjóli, skíðum, hlaupandi, gangandi eða syndandi.
Það er búið að vera mikið að gera hjá okkur. Við fórum til Jónu Lindar og Muggs á fimmtudagskvöldið. Haukur var á örnámskeiði í skíðasmurningu hjá Muggi. Við Jóna náðum spjalli um heima og geima, við borðuðum æðislegt kjúklingasalat og krakkarnir ærsluðust. Skemmtilegt kvöld en mikið vorum við öll þreytt þegar heim var komið.
Haukur tók svo fram Fischerskíðin sem okkur áskotnuðust, keypti nýjar festingar á þau og tók þau í gegn, ég prófaði þau svo um helgina og segi að ég hafi kynnst nýrri íþrótt, ég rann!!!!!
Solla vinkona frá Hvanneyri og Telma Sól dóttir hennar komu í heimsókn yfir helgina. Við kíktum til Ski, fórum í H&M, KappAhl og Lindex og fleiri búðir strax á fyrsta degi (föstudaginn). Tókum því rólega hér í Åsi, fórum í göngutúra, á skíði, borðuðum góðan mat og höfðum það gott. Fórum í bíltúr til Dröbak og einnig til Vestby þar sem við krúsuðum í gegn um Norwegian Outlet. Þær mæðgur fóru svo heim í gær, sælar eftir fína afslöppunarhelgi.
Það var tekin ákvörðun fyrir helgi um að ég færi til Íslands í nokkra daga til að vinna í verkefninu mínu, koma tölunum öllum á rétt form og byrja útreikninga. Er búin að mæla mér mót við Brynhildi leiðbeinanda minn og við ætlum að vinna saman í þessu í þrjá daga. Það er fínt að komast aðeins heim og fá svona púst - ég þarf alveg á því að halda. Þannig að ég næ því að hitta einhverja ættingja og vini. Ætla þó ekkert norður, hef engan tíma til þess, verð aðallega á stór Reykjavíkursvæðinu og í Borgarfirðinum.
Gummi mágur varð afi um helgina, sem þýðir að litla systir mín er orðin "ská" amma
og ég því ömmusystir 
Þessi vika byrjar ekki vel hjá yngsta manni hann fékk hita á sunnudaginn og var með hita í gær og þarf því að vera heima í dag.....og missir af skíðaskólanum

Stefán Snær er eins og allir unglingar (eða flestir) upp og niður - skapsveiflur ógurlegar en er alltaf bara litli drengurinn minn inn við beinið

Haukur er að koma til í fætinum, keyrir samt ekkert dráttarvél alveg strax, þannig að hann verður ekkert í snjómokstri alveg á næstunni.
Læt þetta duga í bili
Góðar stundir.