af möguleikum og meiðslum
1. Flug fyrir fólkið - dót og bíll í gám.
2a. Sigling með Norrænu fyrir fólkið og bíl með þriggja nátta stoppi í Færeyjum - dót í gám.
2b. Sigling með Norrænu fyrir fólkið og bíl ekki með stoppi í Færeyjum - dót í gám.
2c. Sigling með Norrænu fyrir allt fólk, bíl, dót (en þá þurfum við að kaupa kerru).
3. Flug fyrir fólkið - dót í gám, bíll í Norrænu.
Held að möguleiki nr 2a hljóti flest atkvæði, við Stefán Snær erum talsmenn þess að heilsa upp á vini okkar í Færeyjum og ég held að við fáum okkar fram

Haukur fór til læknis í dag, það var mjög ánægjuleg ferð fyrir hann. Vöðvafestingarnar eru ekki slitnar (sem betur fer!!!) miklar bólgur í hné og vöðvafestingar marðar, hann á að taka viku voltaren kúr og vera heima. Semsagt, hann er búinn að vera heima "sykemeldt" í viku og verður allavega aðra viku í viðbót og þá verður staðan endurmetin.
Ég var í prófi í gær, við Haukur skruppum svo til Svíþjóðar í dag til að fylla á frystinn, búrskápinn og ísskápinn. Í fyrramálið fer ég á fund með leiðbeinandanum mínum, geri áætlun og fer á flug í verkefninu mínu.
Endalaus gleði hér á bæ, áfram Ísland og góðar stundir.
Þrjú ný albúm
Helgarferð til Elverum og Budor 14.-16. jan 2011
Skólamyndir janúar 2011
Kíkið á þessi albúm hér.
Föstudagsblogg
Strákarnir eru hressir, alltaf nóg að gera. Stefán Snær á hljómsveitaræfingum og í ræktinni í frítímanum. Þórður Logi byrjaði í skíðaskólanum á þriðjudaginn og er mjög ánægður með það.
Nú styttist í "blokkarpróf" þ.e. próf í janúarblokk verða á mánudaginn, þannig að ég hef verið að lesa fyrir það. En kúrsin sem ég er búin að vera í, í janúar heldur áfram út önnina en það sem við erum búin að taka núna á þremur vikum eru 50% af öllu. Svo helli ég mér í ritgerðina eftir það
.....og já það er ótrúlega stutt eftir eitthvað, ritgerðarskil og próf í skog210 (kúrsinum sem ég talaði um hér að framan) eru um miðjan maí og svo þarf ég að skila "spesialpensum" 24. júní. Svo er vörn og þá er ég búin. Biluð vinna framundan en ég sé fyrir mér að þessu verði öllu skipt upp í áfanga, þarf að gera mér áætlun.....
Tek sennilega mið af heimsóknum og hyttuferðum þegar ég geri þetta plan. Dagsetningarnar sem ég er með í huganum núna eru:28. janúar (Solla og Telma Sól (Hvanneyri) koma í heimsókn og verða yfir helgi).
11. febrúar (Gísli Einars og Guðrún (Borgarnesi) kíkja í kaffi).
17. febrúar (Þórhildur og co (Brekku, Norðurárdal) koma, förum í hyttu).
4. mars (mamma og pabbi koma í helgarheimsókn).
18. mars (skíða/hyttuferð til Hafjell með Bríeti og Birni, Pálínu og Ísak og barnaskaranum okkar allra).
31. mars (tengdamamma og Hjalti Þórðar (bróðir Hauks) koma í helgarheimsókn).
Svo eiga sennilega einhverjar dagsetningar eftir að bætast við. Rak augun í það mér til mikillar skelfingar að ég fer í próf í skog210 þann 16. maí en á að skila ritgerðinni 15. maí sem er nú reyndar sunnudagur þannig að skilin eru 16. þannig að ég þyrfti að græja málin þannig að ég prenti út og skili föstudaginn 13. maí
En þetta kemur allt í ljós og svo reddast allt.Ég er fékk þetta fína hlaupaplan í byrjun janúar en hef eiginlega ekkert skokkað
Frekar léleg en ég ætlaði mér að skokka inni á bretti núna í vetur því ég ætla ekki að brjóta mig í hálkunni hér, svo er það bara þannig að mér finnst svooooo leiðinlegt að skokka inni, finnst tíminn ekkert líða og bara hundleiðist á brettinu. Ég hef því frekar valið að fara í spinning frekar en að gera ekkert og er að taka mjög vel á þar, í skemmtilegum félagsskap og með alveg frábæra þjálfara. Þó þetta séu hjólaæfingar þá er ég að þjálfa vöðvana og hreyfa mig, bara gróði 
Eins og ég hef áður sagt þá stefni ég á að hlaupa 1/2 maraþon í Reykjavík 20. ágúst og svo er ég mjög heit fyrir því að hlaupa í Jökulsárhlaupinu þann 6. ágúst, þá mundi ég bara fara stystu vegalengdina eða 13 km. Verð eiginlega að drífa í að skrá mig í þessi tvö hlaup, meiri pressa, meira og eiginlega betra skipulag......
Helgin framundan, lestur, lestur, lestur, anatomía - skoða smásjársýni og greina trjátegundir með því að skoða trékubba. Súrefnisinntaka á gönguskíðum, til að rétta úr sér og hvíla inn á milli lestrarskorpa. Auðvitað hefðbundin föstudagspizza í kvöld, það er ekki séns að breyta út af þeim vana að mati drengjanna en fyrst af öllu, fara út í skóla, læra og spinning seinnipartinn.
Farið vel með ykkur kæru lesendur - njótið dagsins, góða helgi!
slysasaga
Fékk nett sjokk í dag þegar Haukur hringdi í mig úr vinnunni og sagðist hafa verið að slasa sig, svona líka rólegur. Til að gera langa sögu stutta þá var vinnufélagi hans í vandræðum með að festa dráttarvélarskóflu á vél og bað Hauk að tékka á því hvað væri, Haukur ætlaði að gera það og þá vildi það svo óheppilega til að skóflan datt á hann. Eftir að hafa hringt í læknavakt og verið vísað á heimilislækni (því hann var ekki við það að drepast), þá hringdu þeir í heimilislækninn sem svaraði ekki . Þeir keyrðu þá til hans og þar var biðstofan full en Haukur tróð sér framfyrir í röðina. Læknirinn vísaði honum á sjukrahúsið í Ski. Þar fór Haukur í rannsókn og myndatöku, beið svo í góðan tíma á meðan sérfræðingarnir skoðuðu myndirnar. Niðurstaðan: Haukur er ekki brotin en þeir óttuðust það, rétt fyrir ofan hné, en hins vegar slitnuðu vöðvafestingar. Hann fer svo aftur í rannsókn eftir viku, þegar bólgan hefur hjaðnað og þá verður tekin ákvörðun um framhaldið en semsakt nú er Haukur "sykemeldt" og verður því heima í allavega viku.
Eiginlega svolítið mikið að gera í skólanum hjá mér, verð að vera duglegri að hreyfa mig til að halda geðheilsu......
Jónína amma er enn á gjörgæslu, hænuskref í rétta átt......knús og fullt af hlýjum hugsunum til ykkar allra
það sem á daga okkar hefur drifið...
Hef bara ekki verið í skapi til að blogga, nóg að gera í skólanum, nóg að gera í vinnunni hjá Hauk og fullt að gera hjá strákunum. Ég er í foreldraráði í leikskólanum og skipulögðum við jólatréskemmtun sem var haldin síðasta þriðjudag kl 17-19. Fínt að hafa þetta bara beint eftir leikskóla á virkum degi, svolítið seint reyndar en þetta var fín samvera. Fjölskyldurnar komu með eitthvað á hlaðborð og var það fyrirfram ákveðið að skipta því eftir deildum hverjir kæmu með brauð-mat eða tertur-kökur á hlaðborðið. Skemmtunin gekk aðallega út á það að borða og taka þátt í loddi. Jólasveinninn og það að dansa í kring um jólatréð tók ca 15 mínútur af heildardagskránni. Skemmtileg reynsla.Núna um helgina fórum við til Elverum, gistum þar hjá vinum okkar og fórum bæði á laugardag og sunnudag á skíði í Budor sem er í ca hálftímafjarlægð. Við borðuðum góðan mat, spjölluðum og höfðum gaman. Á föstudagskvöldið þegar við komum til Elverum drifum við fullorðna fólkið okkur í smá gönguskíðatúr og það var æði (ég mundi eftir að teipa á mér hælana). Knús Oddný, Ola og Svavar fyrir skemmtilega helgi.
Semsagt lífið hefur gengið sinn vanagang hjá okkur hér en óneitanlega hefur hugurinn leitað ótt og títt heim síðustu tíu daga. En amma hans Stefáns Snæs lenti í skelfilegu bílslysi og heyjar mikla baráttu á gjörgæslu í bænum. Ýmislegt hefur flögrað í gegn um hugann, við höfum reynt að tala sem mest um þetta hér á heimilinu, langar til að vera heima, en hvað getum við ss gert? Sendum því bara fullt af orku, styrk og hlýjum hugsunum. Okkur hlakkar til að hitta Jónínu ömmu og alla hina ættingjana okkar og vini sem okkur þykir óendanlega vænt um - í sumar þegar við komum heim
Munið að halda vel utan um þá sem ykkur þykir vænt um, stórt knús kæru bloggvinir.
hversdagslegt helgarblogg
Skil ekki alveg þessa bloggþurrð hjá mér, finnst ég vera að endurtaka mig í gríð og erg. Það mætti halda að það sé ekkert að ske í lífinu okkar hér í Noregi.
Strákarnir dafna vel, Haukur hefur nóg að gera í sinni vinnu og námið hjá mér skríður áfram. Virku dagarnir eru skipulagðir frá morgni til kvölds; vakna, taka til nesti, keyra á leikskóla, fara í skólann og svo seinnipartinn; sækja á leikskólann, fara í búð, elda, fara í íþróttir, þvo þvott, lesa sögu og fara að sofa. Helgarnar eru afslappaðri en eiginlega hefjast þær síðdegis á föstudögum, því samkvæmt hefðinni þá er gerð pizza á föstudögum og ekki inn í myndinni að breyta því. Í gærmorgun fórum við Haukur ásamt Bríet í smá gönguskíðatúr, ákváðum að drífa okkur áður en snjókoman yrði mjög þétt og slóðirnar myndu hverfa. Þetta var fínasti túr, við fórum um 6 km og uppskar ég þessi líka svakalegu hælsæri - alveg merkilegt að ég skuli ekki hafa framkvæmt fyrirbyggjandi aðgerðir og teipað mig áður en við fórum af stað, en það er alltaf hægt að vera vitur eftirá. Í hádeginu biðu okkur svo amerískar pönnukökur og kaffi hjá Birni - ekki slæmur endapunktur það á skíðagönguferðina. Seinnipartinn brunuðum við svo til Vestby í Norwegian Outlet til að leyta að snjóbuxum og úlpu á Stefán Snæ, við kíktum í ýmsar merkjabúðir t.d. Stormberg, Bergans, Norröna og enduðum í Helly Hansen búðinni þar sem við fundum þennan líka fína galla á drenginn. Haukur fór svo að vinna í gærkvöldi og er enn, það er nóg að gera í snjómokstri hér, svo mikið er víst. Samt er eitt sem mér þykir ákaflega undarlegt, það er að síðan í haust hefur salti verið dreift á göturnar og göngustíga , það er saltað fyrir snjókomur til að varna því að snjórinn sitji fastur og allt gott um það að segja en ég er enginn sérfræðingur á þessu sviði, sjáið til.
Nema hvað að mokstursmenn eru mjög misjafnir með það hversu mikið þeir dreifa af salti og hreinlega hafa margir bruðlað allasvakalega með það. Það er nefnilega komið í ljós, allt í einu núna, þegar veturinn er rétt hálfnaður að saltbirgðirnar eru næstum búnar, ekki bara hér í Noregi, heldur í allri Evrópu. Það sem er líka mjög merkilegt við þetta er að þetta kom öllum svo á óvart, það var eins og enginn vissi hvað væri mikið til af salti - birgðabókhaldið eitthvað skrítið 
Í dag erum við áfram á rólegu nótunum hér heima - við ætlum út í snjóinn á skíði og snjóþotu, ég þyrfti að ná hlaupaæfingu, verð að sjá til hvernig hælsærið hefur það. Það verður eldaður fiskur í kvöld og heimilið gert klárt fyrir erilsama viku. Næsta helgi er fríhelgi hjá Hauk og ætlum við í smá ferðalag, stefnan verður tekin til Elverum í næturgistingu og dögunum verður eytt á skíðum í Budor. Alltaf gaman að hafa eitthvað svona til að stefna að og brjóta upp hversdagsleikann.
óþolinmæði og agaleysi
kannski er það bara það að fólk er þannig alið upp að það hefur alltaf þurft að bíða eftir hlutunum, hefur ekki geta bara smellt fingrum og þusst af stað í átt að markmiðinu. Svolítið merkilegt því nú höfum við íslendingar aldeilis þurft að hafa fyrir okkar sjálfstæði eins og norðmenn, báðar þjóðirnar hafa barist áfram frá fátækt til allsnækta. Við erum líkar þjóðir, það er alveg á hreinu EN eins og ég segi þá erum við íslendingarnir ekki eins öguð.já já það held ég bara....
Ég er byrjuð í skólanum á fullu, næstu þrjár vikurnar eru undirlagðar af anatómíu, er að læra að greina trjákubba, taka sýni af trjám og greina í smásjá, læra hvernig þetta er allt byggt upp. Það er mjög gaman, svo tek ég próf og held svo áfram í þessum kúrs fram á vorið, með mastersritgerðinni. Kannski ekki alveg æskilegt, hef víst alveg nóg að gera en ég held að það sé jákvætt að hafa stundum eitthvað annað til að brjóta upp skorpurnar. En semsagt það er í nógu að snúast. Kúrs (með prófi í lok jan og aftur í maí), ritgerð skil 15. maí og svo tek ég lítinn lestrarkúrs í júní og munnlegt próf úr honum í lok júní plús munnlegt próf úr ritgerðinni.
Haukur er með frí aðra hvora helgi fram á vor og erum við á fullu í að plana þessar helgar, ýmist hyttuferðir eða gestakomur. Ég skráði mig í DNT eða norska ferðafélagið og ætla að vera dugleg að nýta mér þau hlunnindi sem því fylgir. Það þýðir ekkert annað en brjóta upp hversdagsleikann og gera eitthvað skemmtilegt.
Hreyfingin er á sínum stað, svolítið dugleysi í gangi í kring um hátíðirnar en núna er ég komin með æfingaprógram frá henni Evu og eftir því verður farið. Það má því segja að nú sé hafið formlega æfingatímabilið fyrir næsta hálfa maraþon. Ætla að hlaupa á eftir og taka einn zumbatíma í framhaldinu.
uppbygging, samvera, ævintýri
Uppbygging, samvera, ævintýri......gaman að vera til

Í gær fórum við Þórður Logi í gönguferð með Pálínu og Írisi á útivistarsvæðinu við Sognsvann í Oslómarka, á meðan tóku karlarnir okkar skíðaæfingu fyrir Birkebeiner. Það var fullt af fólki á svæðinu, ýmist á gönguskíðum, hlaupandi eða gangandi. Börnin voru með, á skíðum, snjótþotum, í s.k. pulk. Nokkrir voru að dorga í gegn um ísinn. Fólk var að nýta umhverfið, njóta veðurblíðunnar og þess sem þetta svæði hefur upp á að bjóða. Ýmist með nesti, eða grillaði sér pylsur já eða fór í veitingasöluna á svæðinu og fékk sér eitthvað þar. Já það er ýmislegt hægt að gera í frítímanum sem kostar ekki mikla peninga. Það er bara að fólk sjái möguleikana í því umhverfi sem það býr í. Fyrir okkur Pálínu var þetta skemmtileg vinkonustund, fyrir börnin var þetta frábært tækifæri til að leika í nýju umhverfi, vinastund og mömmustund og fyrir karlana okkar var þetta frábær æfing.
Læt þetta ekki vera lengra að sinni.
Hafið það gott
njótið augnabliksins.
Hreyfignaruppgjör desember - og ársins 2010 - markmið 2011
Nóvembertölurnar eru í sviga.Km Tími Skipti
Hlaup 5 (12,1) 0:40 (1:27) 1 (3)
Hjól 115 (100) 5:45 (5:00) 7 (6)
Ganga 3 (11,35) 0:30 (1:48) 1 (2)
Annað 2:45 (3:15) 5 (4)
Janúarmarkmið: Ætla að ná samtals 150 km í janúar (hlaup, ganga, hjól).
Árið 2010.
Fjöldi æfinga: 161
Tími: 145:23:18
Samtals vegalengd: 649,3 km (ath. hjólavegalengdin er umreiknuð yfir í hlaup og þess vegna er heildar km svona lág - dæmi ef ég hjóla 10 km þá jafngildir það 3,5 km hlaupi).
Ég hljóp 1/2 maraþon í fyrsta sinn í Oslóarmaraþoni - verð seint þreytt á að monta mig yfir því
Hafði áður bara tekið þátt í 3 km á Landsmótinu á Akureyri 2009 og var ein af þeim seinustu í mark.Hreyfingarmarkmið 2011.
Ætla í 1/2 maraþon í Reykjavíkurmaraþoni í ágúst og bæta Oslóartímann.
Fara í fjallgöngur, gönguferðir og hjólatúra.
Prófa sjósund á Íslandi.
Gleðilegt nýtt hreyfingarár!!!