Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Árið 2010 í afar stuttu máli og smá um 2011

28. desember 2010 klukkan 08:33
Janúar:
Ég tók þriggja vikna kúrs í „Environmental monitoring" s.k. janúarblokk. Haukur vann mikið í snjómokstri og strákarnir höfðu nóg að gera í skóla og leikskóla. Haldið var upp á afmæli Stefáns með pomp og prakt, pizzuveisla og bíóferð fyrir vinina. Þórður byrjaði á gönguskíðanámskeiði. Stefán skrapp í heimsókn til pabba síns um mánaðramótin janúar-febrúar.
Febrúar:
Formleg vorönn hófst. Íslendingarnir hér að Åsi héldu þorrablót. Við fjölskyldan tókum okkur langa helgi í frí og skruppum í bústað til Skövde í Svíþjóð með Sverri frænda og fjölskyldu. Gönguskíðin voru mikið notuð. Ég gerðist „medlem" í Ås treningsenter.
Mars:
Mikið að gera í skólanum. Við tókum okkur eina helgi í frí og skruppum til Elverum yfir helgi, fórum á skíði, á skógarsafnið og prufuðum að skjóta. Halla kom í heimsókn til Hrafnhildar og einnig kom Bebba í heimsókn til okkar. Það byrjaði að gjósa á Fimmvörðuhálsi og flug til Íslands raskaðist.
Apríl:
Sverrir og fjölskylda komu í heimsókn til okkar yfir páskana. Stefán var í Danmörku um páskana. Snjórinn fór. Ég kláraði „project report" fyrir mastersritgerðina. Byrjaði að skokka aðeins úti. Skráði mig á einhverju kæruleysisflippinu í hálft maraþon í Osló í sept. Haukur fór óvænt til Íslands vegna dauðsfalls í fjölskyldunni.
Maí:
Uppgötvaði að ég var ekki alveg nógu frísk, blóðleysi líklega að hrjá mig. Próf. Hlaup. Gönguferð í Maridalen. Júróvísjón. Útivera. VOR!!!! Ása Dóra kom í heimsókn og stoppaði í viku, það var skemmtilegur tími.
Júní:
Ansi krefjandi „júníblokk" mikil vinna. Fór burt í viku í tengslum við þennan kúrs, til Brandbu. Stefán skrapp til Danmerkur til pabba síns, fór á Skive festival. Annars voru tívolíferðir og strandferðir bísna algengar í júní. Tengdamamma, Kollamágkona og fjölskylda komu í heimsókn. Tedda og synir komu í heimsókn. Við fórum í ævintýraferð upp í Femundsmarka, sigldum á kanó út í eyju á vatninu Isteren, tjölduðum þar og eyddum þar þremur dögum.
Júlí:
Mamma, pabbi og öll systkinin mín og fjölskyldur komu og voru hér í viku. Vorum í viku í Norefjell. Fórum svo til Elverum í þrjá daga. Jón á Hlíðarenda kom í heimsókn. Stefán fór með mömmu og pabba til Íslands.
Ágúst:
Þórður varð fimm ára, héldum upp á það á leikskólanum (í Parken). Fórum í útilegu með Oddný, Ola og dætrum upp á Ringebufjellet. Stefán kom frá Íslandi. Ég tók ágústblokk. Fór á hreindýraveiðar með Oddný og Ola. Svæðið sem við vorum á var í Dovrefjell, æðislegt alveg!!!. Æfði hlaup af miklu kappi. „Drullaðist" loksins til læknis og í kjölfarið í blóðprufu, niðurstaðan var lítið blóð og þá var bara að fara að gera eitthvað róttækt í þeim efnum. Mikil járntaka og c vítamín og auk þess var ákveðið að gera smá tilraun sem ég ætla ekkert að fara út í hér. Við Bríet skelltum okkur á sveppatýnslunámskeið.
September:
Haustönn byrjaði. Ég hélt áfram að æfa hlaup. Vilborg og María Lovísa komu hingað yfir nótt en þær fluttu til Bærum í ágúst. Torfi Jóh kom í heimsókn á leið sinni til Alta og síðan til Ítalíu. Bebba kom í heimsókn, Oddný kom í húsmæðraorlof eina nótt hingað (á sama tíma og Bebba var hér). Ég hljóp hálft maraþon í Osló á tímanum 2 klst og 49 mín.Get ekki annað en verið glöð miðað við að ég æfði afar stopult og þetta er mitt fyrsta opinbera langhlaup síðan ég hljóp 3 km á landsmótinu á Akureyri. Ég fór til Íslands, tók Þórð með mér, erindið var að safna gögnum og vinna í lokaverkefninu mínu.
Október:
Ég kom til baka frá Íslandi. Mikið að gera í náminu. Var dugleg í ræktinni og í hlaupum, Haukur byrjaði að æfa með mér. Pálína og fjölskylda komu hér og gistu, elduðum úti í skógi og nutum lífsins.
Nóvember:
Steinunn vinkona og Dóri komu í heimsókn, versluðum og skoðuðum. Nóg að gera í skólanum, dugleg í ræktinni. Haukur gerðist „medlem" í Ås treningsenter og við vorum dugleg að mæta saman þangað.
Desember:
Próf. Jólaundirbúningur. Hreyfing. Mikil vinna á Hauk. Kósíheit í jólafríi. ....og svo eitthvað minni hreyfing-meira át. Skíðin tekin fram, skiloypar komnir og síðan var skautasvellið hér í Ås prófað.

Markmið næsta árs, 2011:
Haukur er búinn að skrá sig í Birkebeiner en það er „túrganga" frá Rena til Lillehammer 54 km leið, þessi ganga fer fram 19. Mars. Við ætlum að verja þeirri helgi í Hafjell á skíðum
Skreppitúr til Ítalíu.
Ég ætla að klára námið endanlega í lok júní.
Við komum til Ísland í byrjun júlí, kannski alkomin ef við fáum vinnu.
Stefán Snær fermist í Hóladómkirkju þann 17. Júlí.
Ég stefni á hálft maraþon í Reykjavík í ágúst.
Þórður Logi byrjar í skóla!!!
Annars er ætlunin að njóta þess sem dagurinn í dag hefur upp á að bjóða, fara á skíði, skauta, hlaupa og hjóla, ferðast og vera saman
Gestakomur 2011:
Solla Telma Sól koma í janúar. Þórhildur og fjölskylda koma í febrúar. Tengdamamma og Hjalti mágur koma í mars/apríl. Mamma og pabbi koma í júní.
Það sem okkur dreymir um.....: Kaupa kajak og verða leiguliðar!!!

Jólahátíðin 2010 í myndum

27. desember 2010 klukkan 22:49
"jólahátíðin 2010" heitir nýjasta albúmið á myndasíðunni.
Myndirnar eru frá aðfangadagskvöldi hér heima og hjá Bríeti og Birni, frá skíðaferð á jóladag og veislu í Askim hjá Stínu, frá skautaferð, jólaballi og matarboði á annan í jólum.
Hér er myndasíðan

Gleðileg jól og takk fyrir okkur!!

25. desember 2010 klukkan 21:18
Aðfangadagur hófst á róelgu nótunum hér, kósístund hjá okkur Þórði Loga en Haukur var að vinna. Við vorum boðin í möndlugraut til Benna og Höllu og þegar heim var komið byrjaði ég að undirbúa matinn. Við borðuðum síðan klukkan sex, Sigríðarsúpu með harðsoðnum eggjum í forrétt, léttreyktan lambahrygg með heitu rauðkáli, rósakáli, brúnuðum kartöflum og sósu í aðalrétt og eftirrétturinn var konfekt en við stóðum á gati og höfðum ekki lyst á ís. 
Pakkarnir voru teknir upp undir  hátíðarmessunni á Ruv1. 
Í aðalhlutverki var Þórður Logi en hann fékk að ráða í hvaða röð pakkarnir voru teknir upp og Haukur las á.
Drengurinn var frekar vonsvikin en hann fékk eiginlega ekkert dót, einn lítill playmokassi, skautar, bangsi, lopapeysa, dvd og svo fullt af bókum. Það sem hann var mest hugfanginn af var þó skóladótið sem hann fékk en það var mappa full af stærðfræðitengdum verkefnum. Við gáfum honum skautana en hann var búinn að óska sér þá. Okkur fannst hann þó taka þessu öllu með ró en ég held að það hafi ekki margir fimm ára krakkar setið með foreldrunum og lesið á kortin í staðin fyrir að skoða jóalgjafirnar sínar. 
Við fullorðna fólkið fengum líka helling og held ég að bókastaflinn sem við fengum dugi okkur næstu árin. 
Stefán Snær er hæstánægður með jólin í Danmörku, fékk fullt; dvd, tölvuleik, geisladiska, föt og miða á musicfestival í Jelling í lok maí Laughing

Við enduðum aðfangadagskvöld á að kíkja í kaffi til Bríetar og Björns, fullorðna fólkið spilaði Fimbulfamb og börnin léku sér, vorum ekki komin heim fyrr en um hálf eitt leytið. 

Áður en ég sofnaði byrjaði ég á "Enn er morgunn" eftir Böðvar Guðmundsson Laughing

Í morgun var svo "ræs" klukkan níu, Þórður Logi fór að horfa á barnatímann og leysti svo nokkur stærðfræðiverkefni - ég kíkti yfir jólabréfin og skoðaði jólakortin betur. 
Við ætlum núna að hita upp matinn frá því í gær og demba okkur svo út á skíði eða skauta Smile Seinnipartinn munum við svo bruna til Askim í jólahangikjötið til Stínu móðursystur og fjölskyldu.

KÆRAR ÞAKKIR FYRIR JÓLAGJAFIRNAR - TAKK FYRIR JÓLAKORTIN OG ÖLL BRÉFIN Laughing 
Vona að allir njóti hátíðanna - gleðilega hátíð!!

Þrjú ný albúm

24. desember 2010 klukkan 04:21

Þorláksmessa 2010 - brot af því sem við gerðum í dag....
Þórður ROKKAR 19. des 2010 - foreldrarnir veikir og Þórður slapp í myndavélina.... 
Laufabrauðsgerð 18. des 2010 - við fórum til Askim og áttum þar góðan dag með frænkum og fjölskyldum... 

ÖLL ÞESSI ALBÚM ER AÐ FINNA HÉR

Þorláksmessa

23. desember 2010 klukkan 19:14
Eins og ég gaf í skin í gær þá var ekkert farið til Osló. Við skelltum okkur í smá leiðangur til Svíþjóðar í staðin - verslaði smá í matinn, keypti rúllukragaboli á Þórð og skó, púrtvín í sósuna og smá nammi Wink 
Núna í morgunsárið ætlar Lydía að koma og klippa Þórð, Benni, Halla og börn ætla að kíkjaí smá kaffi og síðan stefnum við Þórður á að taka jólarúnt til Dröbak. Ég minnist lítið á eiginmanninn í bloggunum þessa dagana en hann er vant við látinn, vinnur út í eitt og sést varla, mér leiðist hvað hann getur lítið tekið þátt í undirbúningi jólanna með okkur Cry 
Núna er ég að hlusta á jólakveðjurnar enlangar reyndar til að benda ykkur á að hlusta á óskastundina sem var síðasta föstudag en síðasta lagið er "Ó helga nótt" í flutningi karlakórs Reykjavíkur og litli frændi hann Sveinn Dúa syngur einsöng - er mjög stolt af honum - hér er hlekkur á Óskastundina
Seinnipartinn eða í kvöld ætla ég að sjóða hangikjötið og skreyta jólatréið. 

hvað er þetta

22. desember 2010 klukkan 17:04
jólastress....ég held það sé bara eitthvað í höfðinu á fólki!! Allavega var mitt stress aldeilis ekki tengt jólunum - neibb heldur prófunum. Kláraði prófin á föstudag og tók því rólega eftir það, kíktu á vini okkar um kvöldið en vorum komin snemma heim í háttinn. Á laugardaginn svaf ég út, þurfti að beita mig hörðu að rjúka ekki á fætur og fara að læra Undecided Við keyrðum svo til Askim þar sem móðursystir mín býr en Vilborg frænka sem býr í Bærum var líka komin þangað og gerðum við laufabrauð í sameiningu. Við gerðum um 60 laufabrauðskökur með miklu kúmeni í. Um kvöldið lögðumst við Haukur í þá mestu magapest sem við höfum fengið um ævina held ég - þar að auki hélt ég að hausinn á mér myndi springa!!! Ég byrjaði þarna um kvöldið að gera Stefán kláran fyrir Danmerkurferðina en ég bara hafði ekki orku í það og kláraði það morguninn eftir en þá leið mér aðeins betur en var alls ekki góð, með hitavellu og þungan höfuðverk. Haukur gat varla lyft hausi frá kodda og vorum við í mestu vandræðum með það hvernig í ósköpunum vð ættum að koma Stefáni upp á Gardermoen. Ég mundi svo eftir því að Eyjólfur (nemandi hér) var á leið heim til Íslands þennan dag og hringdi í hann en hann var þá bara að fara á rútuna og var til í að leyfa Stefáni að vera samferða sér og fylgja honum í gegn um innritunina og öryggishliðið. Það gekk allt eins og í sögu nema hvað að þegar ca klukkutími var í flugtak þá fór Stefán að finna fyrir ónotum í maganum. Ég var frekar stressuð hér heima en varð rólegri þegar ég vissi að fluginu myndi ekki seinka og hann var kominn um borð í vélina. Ef hann mundi veikjast þá fengi hann allavega aðstoð frá flugfreyjunum. Hann lenti svo í Billund án teljandi vandræða og hefur ekkert bólað á magapestinni hjá honum, sem betur fer.
Hann hringdi svo í mig í gær með þær fréttir að hann hefði farið í gleraugnabúð því hann fann þegar hann var á flugvellinum að það var eitthvað erfitt að sjá á skiltin - úps niðurstöðurnar benda til að hann verður að fara til augnlæknis þegar heim er komið, -0,75 og 0,50 í sjónskekkju á öðru og eitthvað svipað á hinu. Þetta er svipað og Guðrún systir var fyrst þegar hún þurfti gleraugu en svo hrakar henni alltaf meir og meir.....
 
En já ég ætlaði að tala um þetta svokallaða fyrirbæri "jólastress" frekar neikvætt orð eitthvað en hvað um það - en hvað er jólastress?? Ég allavega finn ekki þetta jólastress, kallast það jólastress ef maður er óþolinmóður, vill að allt gerist en to tre eða hvað? Við tókum íbúðina og þrifum hana hér í fyrradag, hátt og lágt - og ég varð ekkert stressuð. Við Þórður Logi bökuðum tvær sortir í gær og fundum ekkert þetta jólastress - fórum frekar í eitthvað sem kallast jólaskap Wink Við löbbuðum í bæinn og keyptum kerti og servéttur - ekkert jólastress, þurftum stundum að bíða í röð en það var fín hvíld í því, ekkert stress. Jólagjafirnar voru keyptar - ekkert stress....á reyndar eftir að kaupa jólatré, skyrtu og skó á Þórð en er ekkert stressuð út af því. Í staðin fyrir þetta stress er ég komin í jólaskap. Held að "jólastressið" sem fólk talar um sé skortur á umburðarlyndi, það er auðvitað þannig að fólk vill fara í bæinn og njóta og kannski kaupa jólagjafir rétt fyrir jól, fá jólastemminguna beint í æð, fara á kaffihús og lifa og njóta en það þolir ekki að þurfa að bíða í röð og þess háttar, þolir ekki að það eru fleiri á höttunum eftir því sama þ.e. að lifa og njóta.

Við Þórður Logi vorum að velta því fyrir okkur að taka lestina til Osló í dag og gleypa í okkur jólastemminguna, sjá jólaljósin og skautasvellið á Karl Jóhann en ég held við "pössum" á það í dag, úti er -20° svolítið mikið, held við finnum okkur eitthvað annað að gera í dag.
Eigið góðan dag!!

Afmæli!!

17. desember 2010 klukkan 23:31

Í dag er fæðingardagur ömmu minnar. Hún hefði orðið níræð í dag ef hún hefði lifað. Ég minnist hennar alltaf sérstaklega á þessum degi. Eitt af því sem gert var á uppvaxtarárum mínum (nú hljóma ég eins og gömul kerling í bók eftir Guðrúnu frá Lundi) var það partur af jólaundirbúningnum að fara til Akureyrar þann 17. eða í kring um þá dagsetningu, versla inn, deila út jólagjöfum og fara í kaffi eða mat til ömmu.
Ég hugsa núna til pabba og systkina hans en núna í kvöld ætla þau og makar að borða saman á Akureyri. Það verður matur í anda ömmu Siggu. Sigríðarsúpa í forrétt, lambalæri með tilbehör (örugglega rauðkál nýsoðið, grænar baunir, rababarasulta...og og og) í eftirrétt en hin fræga eplakaka með rjóma. Sigríðarsúpan og eplakakan og soðið rauðkál eru hefðir sem hafa skilað sér á milli kynslóðanna því þetta hef ég alltaf á jólunum Laughing
Ég hef alveg frá því ég byrjaði að blogga minnst á ömmu þennan dag og ætla ég ekki að breyta út af þeirri venju án þess að vera alltaf að endurtaka mig. En hún amma Sigga var hetja - sterk, flott og sjálfstæðKiss

p.s. ég var í síðasta prófinu á þessari önn frá tvö til fjögur í dag - gekk vel - til marks um það hve prófatímabilið hefur mætt á heimilismeðlimum þá liggja báðir synirnir í sófanum og steinsofa og klukkan er bara fimm.

Farin að sjá fyrir endan á stressinu....

16. desember 2010 klukkan 18:14
Heimilið er komið á yfirsnúning af stressi og spennu!! Ég er stressuð vegna þess að nú er prófatímabilið en síðasta próf þessarar annar er á morgun. Stefán Snær er spenntur vegna þess að það styttist í að hann fari til pabba sín í Danmörku, Haukur vegna þess að hann veit aldrei hvenær hann er að vinna og hvenær ekki, hvenær hann fer að sofa og hvenær honum er óhætt að vaka og svo að lokum er það yngsti maðurinn á heimilinu sem er klárlega að komast á jólatilhlökkunaryfirsnúning!! Við Haukur tölum um það það gæti farið svo að þessi jól verði jólin sem Þórður "fer á límingunum" eins og gerðist hjá Stefáni jólin 2001 eða 2002, man ekki alveg hvor jólin það var en þá var hann svo spenntur að hann brjálaðist við matarborðið á aðfangadagskvöld!!!!
En varðandi prófin hjá mér þá er það ekkert betra að mínu mati að prófin dreifist mikið - það eykur bara álagið og spennuna og maður lærir ekkert meira eða betur - eða allavega ekki ég.
Ég hef litið komist í ræktina þessa vikuna, en á milli þess sem ég lít í bækur er maður að reyna að sinna drengjunum. Við fórum til SKi seinnipartinn í gær og keyptum jólaföt á Stefán, jólagjöfina hans og jólagjafirnar fyrir dönsku fjölskylduna. Síðan skoðuðum við skauta fyrir Þórð en hann er að láta sig dreyma um skauta í jólagjöf - spurning hvað við gerum Wink 
Íbúðin er varla hægt að kalla íbúð lengur, hún minnir meira á svínastíu og hlakka ég mikið til að taka skurk í að taka til og þrífa.
Já, klukkan 16:00 á morgun er prófum lokið og þá ætla ég að gera allt!!! En fyrst og fremst að sofa og lesa mmmm (nú er ég dreymin á svip) - fæ svo handrit af myndskreyttri barnabók sem ég ætla að lesa fyrir Þórð Loga en við erum búin að lesa hana ómyndskreytta, hlakka til að sjá myndirnarSmile
Á laugardaginn verður frænkuhittingur með laufabrauðsgerð - hlakka mikið til Smile Á sunnudaginn fer Stefán Snær til Danmerkur en hann verður þar í rúmlega tvær vikur. Síðan er stefnan að komast á skíði á sunnudaginn þegar búið er að keyra á flugvöllinn Laughing

Jæja, ætla núna að fara að lesa grein sem ber heitið "Ungdom og tradisjonell bruk av naturen" og þar á eftir "Naturopplevelsens kvaliteter" - fullt af skemmtilegu efni sem maður les í skólanum Smile 
Eigið góðan dag og góða helgi!!! 

Þórður Logi, gráfíkjur, Tanaz og Íran

14. desember 2010 klukkan 14:14
Þ: Þórður Logi og M: Mathias vinur hans.

Þ: Hvernig ætli það sé að búa í búð?
M: Þá getur maður borðað rosalega mikið.
Þ: Já en þeir sem vinna í búð þeir þurfa alltaf að borga líka.
M: Já, en hvernig ætli það sé að eiga engan mat, það er örugglega alveg hræðilegt!
Þ: Já eins og þau í Afríku, þau deyja vegna þess að þau fá engan mat.
M: Já og í Indlandi líka.
Þ: Mamma ætlar að elda hakk og spagettí á eftir, við verðum að vera duglegir að borða.
M: mmmmm já!!

Gráfíkjur eru hið mesta lostæti og borðar Þórður Logi þær eins og hann fái borgað fyrir það. Ástæðan er ekki bara sú að honum þyki þær góðar, nei  það er sko ekki málið. Hann er nefnilega búinn að læra það á leikskólanum að gráfíkjur eru mikið borðaðar í Íran. Reyndar eru þessar sem maður kaupir út í búð oftast frá Tyrklandi en Tyrkland er einmitt eitt þeirra landa sem liggur að Íran. Á leikskólanum hans Þórðar vinnur írönsk kona sem heitir Tanaz, hún talar mjög bjagaða norsku og orðaforðinn er ekkert rosalega mikill, hún talar mjög einfalt mál en henni fer fram, hún hefur búið hér í Noregi í þrjú ár og maðurinn hennar býr hér líka og tvö börn en þau eru komin með fjölskyldur hér. Þessi kona á eina systur sem býr ekki í Íran. Hún vill alls ekki fara til Íran aftur en það virðist vera eitthvað vesen í gangi með það og er konugreyið niðurbrotin yfir því, sagði mér að hún ætti ekkert í Íran lengur, enga fjölskyldu ekki neitt. Það er því verið að vinna í því að hjálpa henni að fá lengra dvalarleyfi hér. Þetta er samviskusöm kona sem mætir alltaf í vinnuna, aldrei veik og þó hún hafi lítinn orðaforða þá veit hún sínu viti en hún starfaði sem kennari í Íran. Ég er nú ekki alveg búin að kynna mér trúarbrögðin hennar ofan í kjölin en hún er múslimi en gengur þó aldrei með höfuðklút en ég held að islamstrúin í Íran sé blönduð einhverri annarri hugmyndafræði - þarf að lesa mér til um það við tækifæri.
En af hverju veit ég svona mikið um þessu góðu konu? Ástæðan er að Kroer friluftsbarnehage er aðeins fyrir utan Ås í ca 8 -10 km fjarlægð en Tanaz fær oft að sitja í með okkur og þá er hún að segja okkur svona hitt og þetta af sjálfri sér og fjölskyldunni.
Já þessi litla saga sem átti að vera um gráfíkjur varð meira sagan af Tanaz. Óháð umræðuefninu þ.e. gráfíkjum, Tanaz eða Íran þá finnst mér það samt mikilvægt, að það að börn og fullorðinir þekki uppruna vörunnar sem þau leggja sér til munns.

MYNDIR

13. desember 2010 klukkan 22:51

próf, jól og HEIMFERÐ

12. desember 2010 klukkan 17:36
Alveg merkilegt hvað hugurinn ber mann langar leiðir þegar maður á að vera að lesa fyrir próf!!!!
Vá hvað ég hlakka til þegar þessari törn er lokið. Á morgun er próf í SKOG300, skogplanlegging það gildir 50% af lokaeinkun en ég er komin með alveg ágætis einkunnir fyrir verkefnin og ekki yfir neinu að kvarta - hef lært helling og er nú að reyna að summera vitneskjuna upp - það gengur svona allt í lagi og breytir varla einn lestrardagur til eða frá miklu þegar öllu er á botninn hvolft. Ég er nefnilega ekki þessi ekstreme prófatýpa sem leggst yfir bækurnar og innbirði allt sem í þeim stendur á nó tæm korter í próf, nei það hefur aldrei virkað hjá mér kannski sem betur fer. Nei ég læri mest á því að mæta í fyrirlestra og glósa og lesa mig í gegn um efnið í rólegheitum. Það að hlusta á fyrirlestra, og skrifa og skrifa og skrifa er minn námsstíll. Ég get ekki skilið fólk sem getur sleppt fyrirlestrum eða sleppt því að glósa, sér í lagi þegar maður er að læra á öðru tungumáli en sínu móðurmáli. En svona er þetta misjafnt, sem betur fer kannski, ef við værum öll að gera eins værum við væntanlega með sömu eiginleikana og það er ekki það sem við viljum, við þurfum að vera misjöfn annars held ég að ekkert muni fúnkera.
En allavega núna er ég að renna yfir glósur og fyrirlestra fyrir morgundaginn, það gengur alveg bærilega Wink 
Síðan er ég að fara í próf á föstudaginn og eftir það er ég komin í jólafrí.
Þá verður ýmislegt brallað, við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt, t.d. er stefnan að gera laufabrauð með frænkunum hér í Norge, fara til Osló og fá stemminguna beint í æð, hitta vini, fara á skauta, fara á skíði, baka kannski smá, föndra, spila, hlusta á jólakveðjurnar í útvarpinu, lesa, já - njóta lífsins Laughing En þangað til ætla ég að njóta þess að fara yfir efni fyrir próf og krossa svo putta og vona að ég hafi lært eitthvað í vetur Wink

Fyrir utan það að hafa hugsað um jólafríið í "próflestrarpásunum" þá hef ég hugsað heim, það er bráðum bara hálft ár í flutninga heim á eyjuna og ekki laust við spenning - er búin að senda fyrirspurn um eina vinnu, fer að halda áfram í þeim pakka uppúr jólum, vona að hlutirnir fari að skýrast bráðlega. Þoli ekki óvissu og ekki heldur unglingurinn á heimilinu sem hefur ákveðnar meiningar um heimflutningamál. Vildi á margan hátt að það væri enn 2007 og vinnurnar biðu manns í bunum og maður þyrfti ekki hafa fyrir því að sækja um, ég er týpísk veimiltíta, finnst ég ekki vera merkilegri en einhver annar og kann ekki að koma mér á framfæri.....vil fá tilboð og ekkert kjaftæði EN það er nú ekki raunin árið 2010 og alveg örugglega ekki 2011 - það er auðvitað ekkert vit að ætla að flytja heim EN jú, þar slær hjartað, á Íslandi er mitt HEIMILI.

helst í fréttum og friðarverðlaun Nóbels

10. desember 2010 klukkan 12:34
Eftir ágætis lestrardag hér heima í gær skelltum við Haukur okkur í ræktina seinnipartinn. Það var fínt, nema hvað mér þykir alveg með ólíkindum leiðinlegt að hlaupa á bretti, það er þúsundsinnum skemmtilegra að hlaupa úti að mínu mati. Nema hvað á meðan ég barðist þarna um á brettinu horfði ég á sjónvarpið á sænskan þátt á NRK2 sem heitir Kobra og var þátturinn m.a. helgaður manni sem dreifði tómum póstkortun og bað fólk að skreyta þau og skrifa leyndarmál (nafnlaust) og senda honum. Gæjinn er að græða þvílíkt á þessu, gaf út bók, heldur fyrirlestra og er þvílíkt að bjarga fullt af fólki sem var með þessu litla póstkorti að opna sig um eitthvað sem það hafði verið að burðast með jafnvel allt sitt líf. Síðan horfði ég á fréttirnar en þar er Nóbelsmálið ofar öllu og samskipti Kína og Noregs, sem hangir á bláþræði. Ein af ríkari konum Noregs fannst látin á mánudaginn og nú er farið að rannsaka málið því eitthvað virðist vera bogið við það. Þessi kona hét Ellen Ugland en maðurinn hennar Johan Jörgen Ugland dó í mars á þessu ári. Konan (Ellen) og barnabarn erfðu eignir milljarðamæringsins en þrjú börn hans fengu ekkert. Miklir kuldar eru einnig fréttnæmir, verð á rafmagni hækkar og hækkar. Ribbe - ein af jólasteikunum hér selst eins og heitar lummur, ekki vegna þess að fólk ætlar að nota það í jólamatinn, nei þetta er svo ódýrt, mikið ódýrara en hundamatur.

Eftir þessa afar fróðlegu hlaupabrettasjónvarpsáhorfsæfingu fórum við á leikskólann að sækja Þórð því í gær var langur fimmtudagur eins og ég kom inn á í bloggfærslu gærdagsins. Þórður neitaði að koma heim, það var svo gaman. Þau voru að horfa á Tomma og Jenna en áður voru þau búin að fara út með vasaljós og rákust þá á ummerki efitr jólasveininn, fundu spor og meira segja skóna hans!!! Síðan voru þau búin að fá heitt kakó, pizzu og piparkökur, rosalega kósí.
Þórður fór svo fljótlega að sofa þegar heim kom en ég eldaði ferlega einfaldan pastarétt:
Soðið pasta
Steikta/bakaðar/grillaðar kjúklingabringur, brytjaðar
Rauð paprika, niðursöxuð
Pestó
Öllu hrært saman og etið!!!


Ég má ekki gleyma því að minnast á það að í dag er "Nobeldagen" Dánardagur Alfred Nobels en auðlegð hans var notuð til að stofna Nóbeldsverðlaunin. Það er því mikið um að vera í Osló í dag en friðarverðlaunin eru veitt þar en eins og þið vitið þá er handhafi friðarverðlauna Nóbels þetta árið er kínverjinn Liu Xiaobo en því miður þá getur hann ekki sjálfur tekið á móti þeim því hann situr í fangelsi í Kína. Kínversk stjórnvöld eru ævareið út í norsk stjórnvöld í þessu máli en norsk stjórnvöld segja að þau hafi ekkert að gera með þessi verðlaun það sé hins vegar nóbelsnefndin. Nokkrar þjóðir hafa af þessum sökum afboðað sína fulltrúa við athöfnina í dag. Stemmingin er því aðeins spennuþrungnari en hún var í fyrra þegar Obama fékk friðarverðlaunin en þá ríkti meiri gleði og eftirvænting.
Ef þið viljið kynna ykkur Liu Xiaobo betur þá getið þið það t.d. hér. Ég gæti skrifað hér langan pistil um mannréttindabrot í Kína en ætla ekki að gera það í dag - það gæti orðið svo langt mál......þarf að fara að einbeita mér að lestri námsbóka.

Dagurinn verður með svipuðu sniði og í gær:
Lestur, leikskólaskutl, spinning, pizzugerð......

Eigið góðan dag!!

af kósíheitunum á leikskólanum

09. desember 2010 klukkan 10:45
Það var mikil spenna hjá yngsta manni á heimilinu þegar hann fór á leikskólann í morgun. Það er nefnilega kósí-seinnipartur á leikskólanum. Málið er nefnilega að leikskólinn í Kroer varð fimm ára í haust og af því tilefni fór starfsfólkið í helgarferð, þau þurftu að loka leikskólanum á hádegi á föstudegi og svo var bókaður starfsdagur á mánudegi þannig að þetta var alveg ágætis frí sem þau náðu. Í staðin fyrir þennan hálfa dag sem við foreldrar gáfum þeim í frí buðu þau upp á að í dag þyrfti ekki að sækja börnin fyrr en í síðasta lagi hálf átta. Þannig að eftir venjulegan leikskóladag er ætlunin að borða pizzu, horfa á mynd og fá kakó og piparkökur - rosalega spennandi. Mér finnst þetta alveg rosalega flottur "díll" því þeir sem eru í námi geta þá nýtt sér lengri lestrardag, það er líka hægt að nýta tímann í jólagjafainnkaup eða eitthvað annað stúss sem maður nennir kannski ekki alveg að hafa börnin með í Laughing
Þórður Logi ætlar svo að taka sér alveg frí milli jóla og nýárs - og þá verður sko dúllast. Hann var spurður að því í gær hvað hann langaði í jólagjöf, hann svaraði því til að hann vildi ekki vita hvað hann fengi en hann langaði samt í skauta. Ég er mjög ánægð með það hvað hann er áhugasamur um að prófa allt....svona fyrir utan reykingarnar hahahaha!! Bróðir hans er allt öðruvísi, það þarf alltaf að beita ákveðinni tækni til að fá hann til að prófa nýja hluti samanber skíði, snjóbretti og hitt og þetta. Mjög ólíkir að þessu leiti bræðurnir.
Stefán skrapp til Töcksfors í Svíþjóð eftir skóla í gær, honum var boðið með vini sínum, honum Kevin. Þessi Kevin á skoskan pabba (sem er dáinn), mamman er frá Chile og Kevin er norskur ríkisborgari. Mamma hans er það reyndar líka en hún flúði frá Chile af pólitískum ástæðum fyrir meira en tuttugu árum. Af lýsingunum að dæma þá var þetta gert almennilega (þ.e.a.s. verslunarleiðangurinn), það var farið á tveimur bílum - vinkona/kærasta mömmunnar, konur af Chile-iskum uppruna fóru semsagt og fylltu þessa tvo bíla af mat. Stefán gerði líka stórinnkaup, fór í nammibúðina og missti sig og kom líka með öskju af gosdrykkjum!!!! Ótrúlegur að tíma að eyða peningunum sínum í þettaUndecided

En jæja best að láta staðar numið að þessu sinni - ég ætla að lesa í dag, lesa mjög mikið og svo stefnum við Haukur á skokktúr seinnipartinn.
Til gamans er hér stjörnuspá sem ég rakst á, finnst þetta ekki eiga vel við mig, muhahahhahha:

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

póstburðargjald

08. desember 2010 klukkan 16:56
Í dag komu þrír pakkar frá Íslandi, sem er ekki í frásögu færandi nema hvað að mér varð litið á póststimplana á þessum pökkum og varð um og ó:
3 kg pakki ----> 4255,- kílóverð 1418,-
3 kg pakki ----> 4450,- kílóverð 1483,-
8 kg pakki ----> 7130,- kílóverð 891,-
Jamm það er dýrt að eiga ættingja í útlöndum sem manni finnst maður verða að senda pakka. Ef ég þarf að eiga heima hér í Noregi um næstu jól þá gæti borgað sig að kaupa flugmiða og fara með fulla ferðatösku af jólapökkum heim og fylla hana aftur heima.....en pælið í því hvað það er nú vitlaust.....eða bara að sleppa þessu Undecided Því ef þið spáið í það hvað ein jólagjöf er búin að kosta....í fyrsta lagi fyrir þann sem kaupir hana+far/póst+umhverfisáhrifin. Hvet ykkur til að lesa þessa grein eftir Stefán Gíslason: síða 1 og síða 2.

Annars þakka ég fyrir okkur - það er auðvitað alltaf gaman að fá pakka en sumt má náttúrulega ekki fara útí öfgar.

miðvikudagur

08. desember 2010 klukkan 11:32
Lestrardagur í dag, sem og næstu næstu daga - þessir lestrardagar eru svo brotnir upp með hinu og þessu. Í gær braut ég upp daginn með að fara í búð og kaupa jólagjöf handa mömmu og pabba, við vorum áður búin að kaupa allar "Íslands" gjafirnar og senda heim með Bríeti þannig að þær ættu að skila sér á leiðarenda fyrir jól. Gjöfin til mömmu og pabba fer í póst á morgun og því er ég komin með ástæðu til að rölta í bæinn þá. Í dag verð ég að brjóta upp daginn með að fara í vefnaðarvörubúðina og kaupa rennilás í gallann hans Þórðar Undecided þoli ekki þegar nýjar (og dýrar) flíkur eru að klikka svona og það á versta tíma þegar maður þarf virkilega á þeim að halda í kuldanum.

Í gærkvöld horfði ég á þáttinn um Reyni Pétur sem var á ruv á sunnudagskvöld. Það eru tuttugu og fimm ár síðan hann gekk hringinn í kring um Ísland, ég man svo vel eftir þessum atburði. Maður fylgdist með í fréttunum á hverju kvöldi hvert hann var kominn, hvernig gekk þann daginn og alltaf var hann jákvæður og glaður. Hann hefur ekkert breyst með það, jákvæðnin uppmáluð.  Þessi maður hann Reynir Pétur er algjör perla, það mættu margir taka sér hann til fyrirmyndar, lokaorðin hans eru svo sönn:
‎"að vera glaður og jákvæður og bjartsýnn og með von í hjarta, ef maður hefur allt þetta, getur maður sigrast á öllu".

Eigið góðan dag!!

eftir próf blogg og bara hitt og þetta

06. desember 2010 klukkan 23:41
Okey, sko....
Ég fór "b)" leiðina og kom ýmsu í verk eftir prófið (skýring sjá fyrri bloggfærslu dagsins).
Ég var komin heim rétt fyrir klukkan eitt. Eftir að hafa kíkt í tölvuna og spjallað við t.d. Eddu, Bebbu og Ingu Dóru þá lokaði ég tölvunni og setti mig í gírinn, því að rúmið hafði ekkert aðdráttarafl. Orsök: Það er byrjað að brjóta og bramla og smíða og bora hér niðrí kjallara, því það var ákveðið af SiÅs (þeim sem reka og eiga stúdentagarðana) að taka eitt af kvalitíunum af íbúnum á Skogveien og breyta "ferllesrúminu" í íbúð - því þá eru þeir að græða svo mikið því þá minnkar alveg úr 85 niður í 83 á biðlista eftir húsnæði hér!!!! Fellesrúmsins verður sárt saknað af íbúunum hér því þarna hefur verið hægt að halda t.a.m. afmæli, þorrablót og ýmsar aðrar veislur. Eeeen þetta var útúrdúr.
Ég semsagt þreif baðherbergið, þreif hjónaherbergið, fór í búðina, fór í ræktina og eldaði svo fiskisúpu í kvöldmat. Hef svo bara slakað á í kvöld, horfði á 71°N og hef haft það fínt hér fyrir framan sjónvarpið með prjónana mína Laughing Þórður Logi var sofnaður jamm sofnaður þegar ég kom heim úr ræktinni rétt fyrir klukkan sex og því varð ekkert af prjónakennslu - hann rumskaði rétt áðan og kallaði "pabbi, spurðu mömmu hvort hún ætli ekki að lære meg að prjóna" ....lagðist svo aftur á koddann og steinsofnaði. Þreyttur karlinn eftir útiveru dagsins.
Hér hlýnaði snögglega í gærkvöldi og fyrripartinn í dag fór niður í -8°C en var núna um klukkan sex í kvöld -15,5°C........já hlýindakaflinn stóð ekki lengiWink 
Haukur og Þórður prófuðu gönguskíðin í gær, bara hér í kring, engar brautir komnar hér í gær. Hins vegar sagði Haukur mér það í kvöld að Eivind (vinnuveitandi Hauks) byrjaði að brauta skíðagöngubrautir í dag - þetta er allt að gerast Smilejíhahhahahha!!!!
Á morgun stendur til að Mathias vinur Þórðar komi með honum heim af leikskólanum, kannski verður Mathias í stuði til að læra að prjóna, hver veit......

prófdagur

06. desember 2010 klukkan 08:30
Ég er að fara í próf.......grrrrrrr!! Eftir ca einn og hálfan klukkutíma mun ég sitja við borð, hríðskjálfandi á beinunum - já stressið hellist yfir mig svona rétt fyrir eða í þann mund sem prófið sjálft byrjar. Ég hef það fyrir venju þegar ég þarf að mæta í próf kl 9 að líta ekkert í bækur þann morgun. Ég legg aðaláherslu á að fá góðan nætursvefn og fer því ævinlega snemma að sofa fyrir prófdag, vakna svo og tek morguninn rólega. Kaffi og ristað brauð með osti - svo brytja ég epli í box og tek nokkrar mandarínur með og vatnsbrúsa. 
Eftir prófið á ég von á að, annaðhvort:
a) Verða eins og sprungin blaðra, skríða upp í rúm og sofa.
b) Verða upptjúnnuð og koma ýmsu í verk.
Það er engin leið til að vita hvor líðanin það verður a eða b og mun ég láta ykkur vita í kvöld.
Seinniparturinn er planaður í ca klukkutíma í ræktinni og svo er Þórðru Logi búin að panta prjónakennslu, því indjánar búa til sín föt sjálfir!!!!!
Eigið góðan dag.
 

Uppskriftirnar....

05. desember 2010 klukkan 11:02
Ég er búin að stofna nýja undirsíðu, sjá hér til vinstri "Uppskriftir" búin að setja inn allar uppskriftir sem ég hef birt á þessu ári, ætla að fara yfir blogg síðustu ára og bæta fleirum við þegar tími gefst til - læt vita þegar það er búið Kiss

laugardagsstatus

04. desember 2010 klukkan 15:00
Dagurinn í dag er ósköp venjulegur laugardagur. Við Haukur fórum í ræktina í morgun, hjóluðum eins og við ættum lífið að leysa og fórum svo og lyftum lóðum - þessi tími hét SuperSpinPump, þá er hjólað í 45 mínútur, og gerðar æfingar með lóð og stöng sem miðuðust við að æfa efri hluta líkamans í 45 mínútur. Ansi góð kombinasjón.
Það er svo agalega kalt úti að við erum ekkert að þvælast í útihlaupum fyrst við erum í aðstöðu til að nýta okkur aðstöðuna, tímana og þjálfarana inni í Ås treningsenter. Núna er t.d. -17°C en það styttist í að það hlýni því það er afar dimmt yfir og og snjókomulegt þannig þá minnkar frostið eitthvað en svo skilst mér að það eigi nú að aukast aftur í næstu viku.  
Ég er að fara í fyrsta prófið á mánudaginn. Ætla að nýta það sem eftir lifir dags í dag í að æfa mig að reikna ýmis dæmi, koma skipulagi á gögnin sem ég má taka með mér í prófið Wink Haukur og drengirnir skruppu í bíltúr, þannig að nú er best að ég nýti næðið.

Semsagt:
Hreyfing - tékk.
Lærdómur - tékk.
Kvöldmatur......uuuuu held það verði steiktir kjúklingabitar með einhverju sem á eftir að ákveða.

Eigið góðan dag Laughing

Kökuuppskrift í tilefni aðventunnar

03. desember 2010 klukkan 11:18
Hið ljúfa líf - ávaxtakaka

 2 dl hveiti
 1 tsk lyftiduft
 1 tsk vanillusykur
 1 ½ dl sykur
 3 egg
 500 gr döðlur (ég nota ferskar, því þær eru svo góðar og svo eru þær til sölu í lausvikt í öllum búðum þessa dagana).
 100 gr gráfíkjur
 100 gr apríkósur
 5 dl Brasilíuhnetur eða möndlur (ég nota möndlur, af sömu ástæðu og ég nota ferskar döðlur).

Þurrefnunum er blandað saman og eggin hrærð saman við. Þá er grófbrytjuðum ávöxtum og hnetum/möndlum bætt saman við. Deigið á að vera mjög þungt. Formkökuform ca 1 líters er smurt vel að innan og bökunarpappír settur í botninn. Kakan er bökuð neðarlega í ofni við 150°C í ca 1 ¼ tíma. Hún er látin kólna í forminu og líklega þarf að vanda sig við að ná henni úr því, þarf e.t.v. að nota hníf. Best er að pakka kökunni vel inn og geyma í ísskáp.

Mamma, ég ætla að reykja þegar ég verð stór...

03. desember 2010 klukkan 09:06
.....þetta tilkynnti yngri sonurinn þegar við vorum að versla í Kiwi (matvörubúð) núna í vikunni. Af hverju spurði ég, mjög hissa á þessari opinberun og það fyrir framan nammirekkann í búðinni. Hann svaraði, bara, ég vil vita hvernig þetta er!!! En Þórður Logi það er svo vitlaust sagði ég og týndi nokkra nammimola í poka. Af hverju? sagði hann, nú það er t.d. hættulegt sagði ég. Já en ég ætla að prófa einu sinni, hélt hann áfram - mamma hennar Heklu reykir og hún er ekki vitlaus. Mér varð orðavant, þarna stóð ég agndofa á drengnum, týnandi nammi í poka sem ætti nú ekki að teljast gáfulegt eða til fyrirmyndar og ræddi við son minn fimm ára sem ætlar að prófa að reykja þegar hann er stór!!!! 
Þegar heim var komið skarst stóri bróðir í umræðuna og sá var hneykslaður á þeim stutta. Þetta er svolítið merkilegt því ekki reykjum við, nokkrir vinir og ættingjar reykja en alls enginn sem er daglegur gestur hér á heimilinu - hvað er það sem fimm ára snáði sér spennandi við reykingar?

Um kvöldið sama dag fórum við í ræktina ég og eldri drengurinn. Hann er farinn að hlakka til að dvelja í Danmörku um jól og áramót. Hann tæpti á því við mig að það væri alltaf svolítið mikið um svona snafsa í jólaveislunum þar og mikið verið að drekka bjór. Held hann hafi verið að kanna viðbrögðin hjá mér en ég sagðist vita það vel, það væri þannig "kúltúr" í Danmörku. Þá sagði hann: En ég get ekkert verið að prófa það því ég er með "Avtal". Þá fattaði ég hvað þessi litli samningur sem við, skólinn og Stefán gerðum í haust skiptir miklu máli, (öllum unglingum í ungdomsskólanum stendur til boða að gera slíkt avtal) en það er yfirlýsing um að þau ætli ekki að reykja, prófa snus eða drekka áfengi. Þetta skrifa allir aðilar undir og skólinn heldur einu eintaki og við einu. Þetta hljómar kannski ferlega lítið en mér þykir það dýrmætt á meðan krakkinn talar um þetta á þessum nótum, hann skrifaði undir þetta og ætlar að standa við sitt.  En það er svo fyndið með hann að hann vill hafa stífan ramma, ákveðna rútínu og það liggur við að hann biðji mig um að banna sumt.
Ég held að á milli okkar ríki traust, það er dýrmætt.....er á meðan er.

Geðvonskukast.....

02. desember 2010 klukkan 18:48
Af hverju finnst mér þessi prófatími svona agalega leiðinlegur. Að vera á kafi í lestri fyrir próf í desember er eitthvað svo agalega leiðinlegt, mér þykir vorprófin mikið þægilegri og skemmtilegri. Munurinn er nefnilega sá að þá er oftast gott veður, maður fer frekar út og hressir sig við inn á milli, maður veit að það mun verða gott frí eftir vortörnina já maður hefur eitthvað svo mikið til að hlakka til. Núna í desember er kalt, dagurinn er stuttur og eitthvað lítið frí í framhaldinu.....Undecided
Og svo ég haldi áfram að væla þá er endalaust mikið að gera hjá Hauk, það er eiginlega ekki hægt að ganga út frá því að maður fái fasta 8 tíma lotu í vinnu (lestri) yfir daginn því það þarf að keyra á leikskóla, sækja á leikskóla, þvo, elda, taka til, halda öllu dótinu gangandi. Þetta annríki kemur þó ekki í veg fyrir að ég fari í ræktina eða út að hlaupa, ó nei - ég held geðheilsunni með því að hreyfa á mér afturendann!!! Því þegar maður situr við lestur allan daginn þá er mjööööög hætt við því að maður detti óvart á kaf í skápana og finni sér eitthvað að maula yfir allan daginn og ekki ábætandi ef maður þarf að fara út í búð eftir prófatörnina til að kaupa stærri föt!!!!
Ég var að hugsa það í dag hvað það hafi verið sem var öðru vísi í fyrra, jú mér hundleiddist auðvitað lesturinn en ég hafði eitthvað sem ég gat látið mér hlakka til, vinkonur mínar voru væntanlegar hingað í helgarheimsókn strax eftir próf, mamma og pabbi komu hingað yfir jólin. Núna er engin heimsókn í kring um jól og áramót og eiginlega hálf ömurlegt að Stefán Snær verður hjá pabba sínum í Danmörku frá 19. des til 4. jan - ég gleðst samt fyrir hans hönd, það er dýrmætt fyrir hann að halda tengslum við föðurfjölskylduna.

JÆJA EN ÞÁ ER ÉG BÚIN AÐ AUSA ÚR MÉR!!! Haukur heppinn að vera ekki heima til að fá alla geðvonskuna yfir sig (kannski er það ástæðan fyrir því að hann er aldrei heima).....Tongue out Annars á ég ekki að vera að geðvonskast þetta, ég hef það fínt. Það er annað en bloggvinkona mín sem þarf að horfast í augu við vágest sem er alls ekki velkominn, krabbameinið - helvítis krabbamein!!!! Já mín kæra, ég hugsa mikið til þín Smile


Frídagur í ræktinni í dag, fer seinnipartinn á morgun annaðhvort í SpinCore eða að hlaupa en þá fer ég líklega á bretti. Frostið er svo bítandi hér þessa dagana, í gærmorgun þegar ég keyrði Þórði á leikskólann var -21°C jebbs, það er ekkert rosalega spennandi að hlaupa úti í svoleiðis frosti - en það er allt hægt. Hálkan er ekki vandamál, ég á gorma á skóna mína síðan á ég á þykkar hlaupabuxur og ullarnærföt, ullarvettlinga, ullarbuff og allar græjur.....það er bara að draga inn andann og skella sér út. Svo á nú að hlýna um helgina, frostið fer niður í svona -10° til -12° á morgun og laugardag og svo niður í -4°og snjókomu á sunnudag og svo fer frostið að herða aftur Cool Já hér er vetur. 

 

nýtt líf!!!

01. desember 2010 klukkan 23:59
Mikið rosalega er nú gott að vera byrjuð að æfa aftur. Mér finnst ég öðlast líf!!!! Ég finn líka hvað það er manni mikilvægt að komast út á meðal fólks, því hér sit ég heima og læri daginn út og daginn inn án samskipta við nokkurn mann. Ég ætla nú ekki að gera lítið úr því að auðvitað hef ég samskipti við manninn og drengina en maður þarf líka að komast meira út, skipta um umhverfi, eiga samskipti, tala norsku og svo framvegis. Þetta er einmitt það sem ég verð að passa mig á þegar ég fer í lokaritgerðarvinnu að sleppa ekki hreyfingunni, halda rútínu. Annars er ég farin að leita logandi ljósi að markmiði hreyfingarlega séð sem ég get einbeitt mér að, það er of langt í Reykjavíkurmaraþonið, Jökulsárhlaupið er ca mánuði fyrr en það er of langt í það líka. Verð að finna eitthvað hlaup til að stefna að sem væri í mars/apríl - held að það væri fínt. Ef einhver sem les þetta hefur einhverjar tillögur að hlaupaviðburði endilega að kommenta Smile

Í kvöld fór ég í Spin 2 tíma. Þetta er klukkutíma spinningtími, með fínni tónlist, góðum þjálfara og skemmtilegum hóp af fólki. Mikill sviti og og ófáar kaloríurnar sem fengu að fjúka. Stefán Snær fór líka í ræktina, skellti sér á hlaupabretti og fór svo í tæki, hann er að reyna að hafa það fyrir fasta reglu að fara í ræktina tvisvar í viku.  

Já, þetta var blogg dagsins  Smile góða nótt og sofið rótt

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.