Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Nóvemberuppgjör

30. nóvember 2010 klukkan 22:57
Þessi mánuður fór ekki alveg eins og lagt var upp með. Maður á náttúrulega aldrei að ganga að neinu vísu og þá vísa ég til heilsunnar. Ég var svo óheppin að fá flensu og átti bara þónokkuð lengi í því og varð að taka mér tíu daga frí frá æfingum. Byrjaði svo aftur eftir þetta "veikindafrí" á síðasta degi nóvembermánaðar.
Í byrjun mánaðar setti ég mér það markmið að taka 8 skokkæfingar, 8 hjólaæfingar og 8 æfingar af öðru tagi. Það stóðst ekki.
Svona eru tölur nóvembermánaðar, athugið að í svigunum fyrir aftan eru október tölurnar.

Hlaup 12,1 km (38) Tími: 1:27 (4:35) Skipti: 3 (6)
Hjól 100 km (75) Tími: 5:00 (3:45) Skipti: 6 (6)
Ganga 11,35 km (4) Tími: 1:48 (0:40) Skipti: 2 (1)
Annað --------------- Tími: 3:15 (6:00) Skipti: 4 (8) 

 Nýr mánuður ný markmið.... 8-8-8  Cool taka tvö semsagt Cool 8 hlaupaæfingar, 8 hjólaæfingar og 8 æfingar af öðru tagi (zumba, body pump, göngutúrar....).

kuldaboli

30. nóvember 2010 klukkan 16:58


Hér er ískalt, frostið er mikið, var -11° þegar ég leit á mæli í morgun en það hefur hert síðan þá og spáin gerir ráð fyrir -18° í fyrramálið. Frétti að á Íslandi væru plústölur á hitamælum í dag en ég geri ekki ráð fyrir að sjá svoleiðis tölur hér fyrr en kannski í mars.  Já, mér líkar vel að búa við meginlandsloftsslag, þar sem árstíðaskiptin eru skörp og þegar það er vetur, þá er sko vetur. Maður klæðir sig vel, ullarsíðbrókin og ullarsokkarnir eru staðalbúnaður, það að "kose seg" inni með kakó og piparkökur rímar algjörlega við þennan árstíma. Sólin lætur sjá sig yfir miðjan daginn, það brakar í snjónum og svo til að auka enn meir á stemminguna þá eru  jólaljósin að tínast upp eitt af öðru í nágrenninu. 

Jæja, þá styttist í prófin, ég er í prófi á mánudaginn í næstu viku (6.), svo mánudaginn (13.) og föstudaginn (17.) í vikunni þar á eftir þannig að eiginlega er þetta þriggja vikna törn.
Ég mun sitja að mestu hér heima á þessu tímabili en það er varla líft út í skóla, troðfullt af fólki í öllum lessölum og einhvernvegin hálfgert stress andrúmsloft og ónæði - heima er best Wink Mun samt sennilega nýta mér skólaaðstöðuna eitthvað um helgar ef mér finnst vera þörf á því að flýja karlana mína.
 
En hvað skildi vera mikilvægt að hafa í huga þegar setið er langtímum saman og lært fyrir próf? Það má segja að engar töfralausnir séu til, hér er listi yfir þá þætti sem mér finnst mikilvægir og hef í huga (eiginlega gilda þessi ráð hvort sem setið er við nám eða vinnu):
1. Maður á að skapa sér gott vinnuumhverfi svo einbeitingin sé góð. Það getur skipt máli hvernig maður snýr í herberginu sem maður lærir í. Hvort maður situr með bakið í glugga, hvort vinnuborðið er á miðju gólfi eða upp við vegg, hvort stóllinn sé góður, birtan hæfileg og svo framvegis. Mér finnst ótrúlega gott að vinna við eldhúsborðið, það er alveg merkilegt því það skarast á við margar ráðleggingar um að maður eigi einmitt ekki að læra þar sem maður slappar af þ.e. í svefnherbergi, stofu eða eldhúsi.....kannski er þetta vegna þess að ég slappa sjaldan af inní eldhúsi Undecided
2. Standa reglulega upp í 5 til 10 mín á ca 1 til 2 tíma fresti, fá sér kaffi, ganga um.....
3. Muna eftir að borða hollan og góðan mat, það er lífsnauðsynlegt að nærast.
4. Fara í líkamsækt, ekki sleppa því - þó það taki tíma þá er maður mikið hressari á eftir., bara gróði.
5. Forðast nammiát, vera með mandarínur eða eitthvað álíka á kantinum til að grípa í.
6. Ekki sleppa nætursvefninum, góður nætursvefn er lykillinn að velgengni sagði einhver.

Núna eru 10 dagar síðan ég lagðist í kvef og flensuskít, ég hef ekki farið í ræktina og varla hreyft mig síðan föstudaginn 19. nóv úff hvað er langt síðan og er mér nóg um!! Enda held ég að ég sé búin að ná þessu að mestu úr mér og stefni að því að fara í spinning í kvöld en ég er ekkert að taka útiæfingar alveg á næstunni, þarf að passa mig.
Á morgun er 1.des og þá blogga ég aftur og kem með uppgjör nóvember mánaðar og skelli inn desembermarkmiðum.

Aðventa og jólaskap

29. nóvember 2010 klukkan 00:03
Það má með sanni segja að núna um helgina hafi örlað á jólaskapi hjá minni. Í gær sóttum við jólakassan niður í geymslu og grófum upp eina jólaseríu, jóladúk sem yngri sonurinn málaði á í fyrra og einn aðventukertastjaka. Þegar búið var að koma þessu fyrir var arkað niður í bæ til að horfa á ljósin tendruð á jólatrénu sem stendur við ráðhús bæjarins. Það var mjög kalt og smá vindur, svolítið íslenskt bara. Þarna voru tvær stúlkur og ein lúðrasveit sem tóku lagið og arkaði fólk hringinn í kring um jólatréð, afar látlaus samkoma, en gaman samt sem áður en þó einkennilegt að gera ekki meira úr þessu. Hefði verið næs að geta keypt kakóbolla t.d. af einhverjum félagasamtökum, íþróttafélagi, skátum eða.....vera kannski með smá jólamarkað. Þarna voru ca 100 manns eða um 0,7% af íbúum sveitarfélgsins og þó ég hafi mistalið þá hefði varla munað meira en 100 manns og þá erum vð komin upp í 200 manns eða  1,3% 
Eftir að hafa verið viðstödd þennan viðburð fórum við og keyptum rauð kerti í aðventukertastjakann Smile

Í dag héldum við áfram að jólast. Tókum lestina til Osló eða nánar tiltekið í Nordberg kirkju. Þar var aðventusamkoma íslenska safnaðarins í Noregi. Við mættum snemma því Stefán og önnur fermingarbörn áttu að aðstoða við undirbúning og framkvæmd samkomunnar.
Ískórinn söng, nýstofnaður barnakór söng, Pálmi Gunnarsson söng og spilaði ásamt hljómsveit, Davíð Þór Jónsson hélt ræðu og sr. Arna sagði jólasögu. Á eftir var kaffi í boði íslendingafélagsins.
Þetta var mögnuð stund í alla staði, maður klökkanaði undir "Ísland er land þitt" sem Pálmi söng ásamt Ískórnum af mikilli innlifun...úff ég fékk kökk í hálsinn og táraðist.
(Ég bloggaði ekkert um daginn um upplifun mína í messunni sem við fórum í fyrir þremur vikum. Það var allraheilagra messa, látinna minnst og lífinu fagnað. Mjög sterk upplifun, fallegir sálmar sungnir og kveikt á einu kerti fyrir hvern íslending sem lést í Noregi síðasta árið. En þetta var útúrdúr.)
Aðventustundin í dag var mjög hátíðleg og skemmtileg, við hittum fullt af íslendingum sem við þekkjum hér, Þórður hitti vini sína, Stefán hitti vini sína og allir glaðir og ánægðir. Haukur hefur verið að vinna heilmikið þessa helgi en komst í kirkjuna og kaffið og fór svo aftur að vinna. Hér snjóaði smá í gær og svo hefur snjóað smá í dag - enn jólalegra Laughing Við mæðginin tókum lestina heim, vorum samferða frænkum okkar þeim Vilborgu og Maríu með T bana niður á OsloS. Þar skildu leiðir og við héldum í sitthvora áttina, við með lest, þær með strætó. Gunna kom með okkur heim en við buðum henni í soðna íslenska ýsu, kartöflur og smjör og tók Þórður Logi til piparkökur í eftirmat.
Já góður dagur að kveldi kominn - fyrsti sunnudagur í aðventu og við búin að kveikja á spádómskertinu Smile
 

kjólablogg

26. nóvember 2010 klukkan 16:09

Það verður seint sagt um miðbæinn hér í Ås státi af mörgum búðum. Þær eru þó nokkrar og verð ég að segja að hér finn ég alltaf eitthvað spennandi. Það er t.d. gullsmiður, heilsubúð, gleraugnabúð, skóbúð, málningarbúð, myndavélabúð, hjólabúð,  og kaupfélag (Erik Johansen) þar sem er dótadeild, búsáhaldadeild, snyrtivörur og allskonar dóterí, hér er líka steinabúð, vefnaðavörubúð, blómabúð og að lokum uppáhaldsbúðin mín. Í uppáhaldsbúðinni minni fæst garn og föt. Ég sá kjól í vor í búðinni minni sem ég heillaðist af og hef mikið hugsað um, svolítið flippaður, litríkur, stutterma og náði niður á hné, úr bómull. Ég keypti kjólinn ekki því ég vissi að þetta merki (sjá hér) væri alltaf með þennan stíl en samt ekki alltaf í sömu útfærslu. Áðan tók ég mér göngutúr niðrí bæ, frelsinu fegin, búin að skila síðasta verkefni annarinnar með fyrirlestri og bara ánægð með mig. Ég kíkti í blómabúðina og svo í búðina mína, sá kjól frá spænska merkinu, hnésíður bómullarkjóll með síðum ermum, svartur með litríki ísaumaðri mynd og nú gekk ég lengra en að horfa - ég mátaði...........og.....
........... jamm ég lét vaða og keypt´ann!!! 

hef þetta að segja í dag

25. nóvember 2010 klukkan 08:25
Hef mikið velt fyrir mér tilgangi lífsins að undanförnu. Ég kemst alltaf að sömu niðurstöðu. Maður á að lifa og njóta, halda utan um þá sem manni þykir vænt um því það gæti allt í einu orðið of seint. Fékk leiðinlegar fréttir í vikunni af þremur manneskjum sem allar verða að taka á honum stóra sínum, sendi þeim kraft og hugrekki til að takast á við erfiða tíma. Erfiðleikar þroska mann, það er kostur. 
Eins og ég hef margoft komið inn á hér á bloggsíðunni þá skipta veraldlegir hlutir engu máli þegar heilsan og fjölskyldan er annars vegar. Stórt hús, flottur bíll, allskonar "stöðutákn" skipta engu máli í samanburði við að eiga fjölskyldu, vini og góða heilsu.

Annars er allt gott að frétta, er öll að koma til eftir veikindin. Haukur og strákarnir hressir og við unum okkur (oftast) vel hér á 45 fermetrunum okkar. Ég er reyndar með óþarfa heimtufrekju sem stangast algjörlega á við það sem ég segi hér fyrir ofan, langar rosalega til að búa á 60 fermetrum, það væri deiligt!!!

járn, klementínur og kaffi....

23. nóvember 2010 klukkan 17:33


Mandarínur eða klementínur eru algjör snilld fyrir fók eins og mig. Það á reyndar við um alla c vítamínríka ávexti því að neysla þeirra gerir það að verkum að járnupptaka líkamans eykst. 
Ég tek reyndar alltaf inn sterkar járntöflur, c og b vítamín OG háma í mig þessum dýrindis klementínum sem flæða úr ávaxtarekkunum þessi misserin. 
En af hverju skiptir þetta máli? Jú járn eins og önnur steinefni eru líkamanum nauðsynleg til að byggja upp bein og tennur, til að stjóran vökvajafnvægi líkamans til að umbreyta matnum sem við borðum í orku. Í mínu tilfelli vantar mig járn en orsakirnar eru óljósar en ég er í tilraunaferli til að finna það út, ræði það ekki frekar hér. Nema hvað að þó að það sé best og nýtist líkamanum best að fá steinefni í formi matar þá er það ekki að virka 100% hér hjá mér. Um 60%af járni líkamans er bundið í hemóglóbulíni sem finnst í rauðu blóðkornunum. Það er lífsnauðsynlegt fyrir súrefnisupptöku þar sem það bindur súrefnið í blóðinu og flytur það til vefja líkamans. Ég er alltaf að komast betur og betur að því hvað ég var langt leidd í járnleysinu í vor, merkilegt hvað skortur að þessu tagi getur læðst aftan að manni og bið ég ykkur að spá í það hvort þið séuð að borða nægilega járnríkan mat. Járnríkur matur er t.d. Rautt kjöt, blóðmör, lifur, baunir, steinselja, spínat, sesamfræ og ýmisar aðrar korntegundir. Munið bara að neysla á c vítamínríkri fæðu eykur upptöku járns og er því mikilvæg. 

Já þetta blogg var um járn (sem er eitt af steinefnunum) og c vítamín (sem er í ávextinum sem við tengjum oft við þennan árstíma).

En hér er smá kaffivitneskja........

NORSKT SKÓGARKAFFI
Að laga ketilkaffi er skemmtileg tilbreyting. Einfalt er að laga ketilkaffi hvort sem er úti við opinn eld, eða inni í eldhúsi á eldavélinni. Ég læt vatnið ná suðu og set svo mjög grófmalað kaffi út í það. Fylgist með því þegar það sýður saman við vatnið og passa að ekki sjóði upp úr. Þegar kaffið er soðinn saman við vatnið er ketillinn færður af hitanum og hann látinn standa í nokkrar mínútur meðan kaffikorgurinn fellur. Svo er hellt rólega úr katlinum, ekki er ólíklegt að í fyrsta bolla komi korgur með kaffinu sem hefur borist upp í stútinn á katlinum við suðu. Hlutfall vatns og kaffis er misjafnt en ca 5 kúfaðar matskeiðar af grófmöluðu kaffi í 2 lítra af vatni gæti verið hæfilegt. Svo er bara um að gera að prófa sig áfram með styrkleikann.

dorm, skype og atvinnumöguleikar....

22. nóvember 2010 klukkan 22:20
Ég er búin að liggja í bælinu í dag. Hafði fundið fyrir eymslum í hálsi og smá kvefdrullu í hálfan mánuð en samt ekkert rosalegt, verið kannski með stíflað nef á morgnana og hálf rám en svo hefur það bara lagast þegar liðið hefur á daginn. Þegar ég fór í jólagjafainnkaupin á laugardaginn hnerraði ég þessi ósköp, fann að ég var að kvefast. Í gær var ég alveg stífluð og hálf kalt og í dag helltist yfir mig hiti og beinverkir, semsagt mér tókst ekki að bægja þessari óþverra flensu frá mér Frown Ég er nú samt svo heppin að ég var búin að senda frá mér kaflann minn í verkefninu sem á að skila á föstudaginn, á bara eftir að hitta hópinn til að fínpússa verkið í heild og búa til fyrirlestur. Og svo ég haldi áfram í Pollýönnuleiknum þá er mun skárra að veikjast núna heldur en í prófatörninni Wink Ég hef nýtt daginn í dag semsagt til að liggja og dorma upp í rúmi, spjalla við vini og ættingja á msn og skype þess á milli og svo hef ég aðeins spáð í atvinnumöguleika.....já, já, alltaf verið að pæla hérna megin.

OG ÞAR HAFIÐ ÞIÐ ÞAÐ!!!!

21. nóvember 2010 klukkan 21:22
Ég get ekki skilið vælið í sumu fólki. Það kvartar yfir peningaleysi og allir svo blankir, ótrúlega margir í greiðsluvanda en vúbbbbs ég hef heyrt að það séu álíka mörg heimili í greiðsluvanda árið 2010 og árið 2004 hm hvernig getur það verið? Á sama tíma eykst eftirspurnin eftir lýtaaðgerðum, fólk lætur sig dreyma um róbótaryksugur til að létta sér störfin á sama tíma sem það hefur ekki efni á að gera neitt....skil ekki svona!! Og þegar það virðist vera að fólk sé að lepja dauðann úr skel þá er það að éta sig í hel, allavega hættir þjóðin ekki að fitna. 
Dragið fram sópinn ef ykkur vantar eitthvað að gera.
Étið minna, það svelta börn í Afríku.
Hugleiðið þegar þið kaupið enn eitt fótanuddtækisígildið hvað framleiðslan eða eyðingin á draslinu kostar okkur og umhverfið.

Já, engar heimildartilvitnanir í dag - þetta blogg byggir á minni túlkun á fréttum, vinsælustu myndbrotunum hjá íslenskum vefmiðlum, auglýsingum og statusum á Feisbúkk.
....og þar hafið þið það!!!
 

helgin....

21. nóvember 2010 klukkan 11:10

Við höfðum verið að gæla við að fara eitthvert og leyta að skíðafæri en ákváðum að fresta því aðeins, bíða eftir aðeins meiri snjó. Verja helginni hér heima við í staðin.

Við fengum gesti í föstudagspizzuna, Björn, Bríet og dætur og að auki kom AuPairinn þeirra hann Gústi. Ég gerði hér fjórar stórar pizzur, smá tilraunastarfssemi í gangi en það telst alltaf tilraunastarfsemi ef breytt er út af pepperonivananum. Það var reyndar ein með pepperoni og osti, önnur með pepperoni, lauk, papriku, sveppum, ólífum og osti. Þriðja var með tacosósu (í stað pizzasósu), tacokrydduðu hakki, papriku og osti, síðan muldi maður smá doritos yfir ef maður vildi. Sú fjórða var með grænu pestói (í stað pizzasósu), kotasæla kom þar næst, þá spínat, ólífur og að lokum ostur, grófur pipar og maldonsalt. Síðan var ísterta í desert. Sannkölluð veisla. 

Í gær byrjuðum við daginn á að horfa á Útsvar frá kvöldinu áður, en það er eiginlega það eina sem ég nenni að horfa á í íslenska sjónvarpinu. Síðan skelltum við Haukur okkur í SuperSpinPump tíma í Ås treningsenter. Þá var mjög flottur 45 mínútna spinningtími og BodyPump á eftir í 45 mínútur. Ég og Stefán Snær fórum svo í verslunarferð í Skistorsenter ásamt Bríet og náðum að versla allar jólagjafirnar sem eiga að fara heim til Íslands, fyrir utan gjafirnar til mömmu, pabba og tengdamömmu. Kvöldinu eyddi ég svo í að pakka inn.

Í dag ætla ég að sitja við lestur og lærdóm. Ég hafði líka hugsað mér að taka skokktúr í góða veðrinu en hér er frostið ca -2° og auðvitað logn og snjóhula. Veit samt ekki hvað verður er að fyllast af kvefi en göngutúr verður það í það minnsta. 

Tilgangsleysi og tímaeyðsla

18. nóvember 2010 klukkan 09:28


Ég á eftir að skila einu hópaverkefni en skil með kynningu verða á föstudaginn í næstu viku. Við kláruðum stærsta hluta verkefnisins (s.k. bakgrunnsnotat) í lok október en hittumst í síðustu viku til að ákveða hvernig við mundum leysa afganginn af verkefninu sem er s.k. "Behandlingsplan" þ.e.a.s. við eigum að koma með tillögur að nýtingu á ákveðnu skógarsvæði með fjölnytjar í huga - þurfum að ígrunda þetta út frá hagfræði, vistfræði, menningar og félagslegum þáttum. Við funduðum þarna í síðustu viku og deildum niður verkefnum. Svo funduðum við aftur í gær og ég hélt að það væri til að við sýndum þau uppköst sem við værum með og leiðrétta ef einhver væri kominn af leið. Það var misskilningur, ég get svo svarið það, það var farið að ræða málin fram og til baka, aftur á bak og áfram, mér fannst eins og ég væri stödd á sama fundi og ég var á í síðustu viku. Svo til að toppa fundinn þá sagði einn úr hópnum, við verðum að deila verkefnunum niður!!!!! Svo var ég spurð hvaða kafla ég vildi taka, ég sagðist hafa haldið að við hefðum skipt með okkur verkum í síðustu viku.....uuuuu jú reyndar en það var meira svona bara til að spá í þetta Yell EN ég var allavega byrjuð á mínum kafla og sagðist vilja halda mig við hann ef þeim væri sama, jú jú það var í góðu lagi og allir voða hissa að ég væri búin að setja niður á blað smá texta. Nú er komið "deadline" það eiga allir að vera búnir með sína kafla á mánudaginn og ég ætla að vona að það verði allir búnir því ekki nenni ég að eyða enn einum klukkutímanum í fund um það sama og síðast. Mikið skil ég fólk sem ræðir um tilgangsleysi funda!!!

Morgun"hugs"

17. nóvember 2010 klukkan 10:49
Ég hlakka til jólanna. 
Ég er þó ekki komin í neitt sérstakt jólaskap.
Núna er næstsíðasta kennsluvikan (hjá mér) á þessari önn.
Haukur á frí um helgina, pizzupartý á föstudag og skíðaiðkun á laugardag og/eða sunnudag.
Ætla kannski í Skistorsenter annaðkvöld að klára að versla jólagjafirnar. 
Ég þarf á smá fyrirlestur á eftir og svo er það fundur seinnipartinn.
Vá hvað ég hlakka til þegar ég hef tíma til að byrja á bókinni sem ég ætla að skrifa, get ekki beðið.
Já og lokaverkefnið, geri það á undan bókinni, spennandi verkefni, hlakka til að hella mér í það. 
Hvort ætti ég að fara í Spinning, Body Step eða Zumba í kvöld..... 
Hm, ætla að laga mér góðan kaffibolla og halda svo áfram að lesa Laughing
 

ekki alveg eftir planinu en...

15. nóvember 2010 klukkan 21:56
Dagurinn byrjaði hjá mér þegar síminn hringdi og Haukur fór inní Osló að moka, eða eitthvað um klukkan þrjú í nótt....fljótlega eftir að hann var farinn og ég farin að festa svefn aftur kom lítill kútur uppí, við sváfum þar til vekjaraklukkan hringdi um hálf sjö. Þá var snjókoma úti sem átti bara eftir að þéttast. Ég ákvað að vera ekkert að þvælast til Kroer með drenginn á leikskólann, var ekki að þora vegna þess að vetradekkin voru enn niður í geymslu Undecided Stefán Snær var slappur um helgina og var heima í dag þannig að eiginlega var dagurinn í dag ansi líkur deginum í gær. Haukur kom heim fyrir hádegi og náði góðum svefni yfir miðjan daginn.
Ég sinnti annars lærdómi á milli þess sem ég skemmti drengjunum. Fyrirlestur seinnipartinn og dekkjaskiptasnúningar urðu til þess að ég komst ekki í SpinPump tímann minn. Síðan var komið myrkur og kvöld. Haukur fór aftur til Osló eftir kvöldmat, jamm það vetrar snemma, allavega fór moksturinn, söltunin og malaríborningurinn ekki svona skarpt af stað í fyrra. OG vá hvað ég er glöð að núna vitum við að Haukur á fastar fríhelgar í vetur Cool Spurning um að hafa upp á svæði með skíðagöngubrautum um næstu helgi....já þá er fríhelgi Laughing

kaffi

14. nóvember 2010 klukkan 14:30
Ég var kannski full harðorð í síðasta bloggi en það er stundum nauðsynlegt, ég nota nefnilega bloggið sem aðhald og þá fyrir mig. Enda neyðir enginn ykkur til að lesa þetta.

Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér kaffidrykkju. Málið er að ég er að drekka kannski full mikið kaffi og er að hugleiða það að fara að gera eitthvað í því. Ég er alls ekki að hugsa um að sleppa því alveg, nei, nei, mér þykir það svo gott að mér dettur það nú ekki í hug. Spurningin er að skera niður í heildarfjölda bolla á dag. Ég er að drekka svona 4 til 10 bolla á dag....jebb, svolítið mikið. Þannig að nú hugleiði ég að skera niður í tvo bolla á dag. Einn góðan á morgnana og einn góðan seinnipartinn.
Það ætti ekki að reynast mér erfitt því hér heima er enginn annar sem er í kaffinu, Haukur hætti í kaffinu í janúar 2006 og hefur ekki nokkra þörf fyrir það, heldur sig við te, ávaxtasafa og vatn. Ég er mjög dugleg í vatninu en spurningin er að þegar mig langar í eitthvað annað að drekka að fá mér þá jurtaseyði eða engifer-sítrónudrykk sem er mjög heilsusamlegur.
En af hverju að skera niður í kaffidrykkju, eru einhverjar rannsóknir sem segja að það sérstaklega sé skaðlegt heilsunni? Hvað með hina koffíngjafana? Nei ekki að maður eigi að "kötta" út allt kaffi, eftir því ég best veit. Það eru hins vegar fullt af "kellingarbókum" sem segja að kaffi sé skaðlegt heilsunni og þess vegna eigi maður að sleppa því alveg en ef þið finnið rannsóknir sem sýna án efa að um skaðleg áhrif kaffis sé að ræða þá megið þið láta mig vita.
Mjög stórum koffínskömmtum geta fylgt ýmis líkamleg og andleg óþægindi. Koffín er náttúrulegt, örvandi efni það finnst ekki aðeins í fræjum kaffiplöntunnar heldur í um það bil sextíu plöntutegundum en magn koffíns í þessum plöntum er mjög mismunandi (kakóbaunir, telauf og fl.). Það er ýmislegt sem bendir til að of mikið magn af koffíni, til dæmis þrír til átta bollar af kaffi, geti haft ýmis óþægileg áhrif á líkamann í formi skjálfta, hjartsláttartruflana, svima og höfuðverks en koffínið hefur eins og áður hefur komð fram örvandi áhrif. Hjá mér eru það höfuðverkur og bakflæðiseinkenni það sem hrjá mig og fær mig til að endurskoða kaffineysluna.

Rannsóknir hafa sýnt að neysla sem er umfram 400 mg af koffíni á dag, sem samsvarar um það bil þremur kaffibollum, getur aukið hættuna á ýmsum kvillum. Þannig að ef ég sker niður í kaffineyslu og leyfi mér 2 bolla á dag þá ætti ég að finna mun......eða er það ekki Wink Athugið að ýmsir heilsudrykkir innihalda koffín og það verður maður líka að hafa í huga og ekki má gleyma venjulegt telauf af terunnanum Camellia sinensis inniheldur líka koffín og það þýðir að við verðum líka að passa okkur á að drekka ekki umfram þessi 400 mg af koffíni á dag í formi venjulegs tes.
Það er líka áhugavert að velta því fyrir sér hvað kaffi er mikilvægt í hagkerfi heimsins, pælið í því að það er næst algengasta verslunarvaran á eftir hráolíu. Getur verið að það eigi sér stað spilling í kaffirannsóknum eins og ýmsum lyfjarannsóknum - það er kannski ekkert sérstakelga hagkvæmt ef allir myndu hætta að versla kaffi.....

Ég er búin að vera hálfslöpp síðustu daga, smá hitavella í mér í gær, hálsinn viðkvæmur og örlítið kvef Undecided
"Karlarnir" mínir eru allir með einhvern smá hósta en alveg sprækir sem betur fer. Það hefur snjóað aðeins síðustu daga og hefur Haukur farið þrjár nætur í röð til Osló að salta, kústa og moka sína leið. Nú eru í rauninni bara tvær kennsluvikur eftir í skólanum á þessari önn, þrjár vikur í fyrsta próf og ótrúlega stutt í jólin. Við erum að leggja síðustu hönd á jólagjafirnar sem eiga að fara til Íslands þannig að þær verða komnar úr húsi fyrir aðventu Cool

velmegunarsjúkdómar??

12. nóvember 2010 klukkan 12:53
Sá auglýsingu áðan þar sem var verið að auglýsa "hvíttun tanna" en það er að mér skilst mjög vinsælt hér í Noregi, ásamt ljósabekkjanotkun N.B. hjá ákveðnum hóp sem á margan hátt er erfitt að skilgreina Undecided Þeir eru þó ekki eins ljósabekkjasjúkir og danir sem skora mjög hátt í því, allavega ef marka má fjölda ljósabekkjastofa þar í landi. 
Útlitsdýrkun virðist hafa fylgt manninum í gegn um aldir og árþúsund og því verður seint breytt. Hins vegar breytist það á milli ára, áratuga, kynslóða, alda, árþúsunda hvað það er sem telst fallegt.  
Það þótti til dæmis ekki fallegt á árunum í kring um sautjánhundruð og súrkál að vera útitekinn, brúnn, grannur og "fitt" - ekki aldeilis! Það gaf vísbendingu um það að maður hefði það ekki gott og þyrfti að vera úti að vinna, léttklæddur í sólinni og fengi eitthvað lítið að borða. Það þótti nefnilega ekki fínt að láta sólargeislana komast í snertingu við bera húð, það að gera lítið og borða var merki um velmegun. Já svona gengur þetta. 
Annars finnst mér agalegt hvað fólk er oft fast inní einhverju boxi, ætlar að vera svona og svona og svo finnur það ekki grensuna - heldur alltaf áfram í brjálæðinu og eiginlega er það oft sjúklegt. Agalegustu "velferðarsjúkdómarnir" í mínum huga eru átröskunarsjúkdómar já ég held það séu velmegunarsjúkdómar kannski er ég að segja hér eitthvað af algjörri vanþekkingu og kannski er þetta algjört bull í mér en jú ég er farin að halda það velmegunarsjúkdómar. Átröskun er nefnilega ekki bara anorexía, það er líka búlemía og ætli offita flokkist ekki þarna með? Ég særi/móðga kannski einhverja en þetta er alls ekki illa meint. Ég fitna vegna þess að ég borða of mikið og hreyfi mig lítið en ég er líka alltaf að reyna að breyta hlutföllunum þar á milli. Kannski er þetta sjúklegt ástand sem ég er í, finnst ég verða að hreyfa mig 3-5 sinnum í viku en HALLÓ ég er í kyrrstöðuvinnu, sit við tölvu eða skólaborð allan daginn!!!!!
ÉG HEF ÞAÐ OF GOTT = Velmegun.
Annarð velmegunarsjúkdómur sem fer ekkert framhjá manni þegar maður mætir manneskju með þann sjúkdóm er svokölluð tanorexia eða það að vera tanisti. Fólk haldið þeim velmegunarsjúkdómi er sjúkt í að verða brúnt, ég kalla það velmegunarsjúkdóm því mest er þessi brúnka tilkomin út frá ljósabekkjanotkun - allavega virðist það vera raunin í Danmörku, maður sér það líka hér í Noregi og ÉG VEIT að þetta er til á Íslandi.

En jæja best að halda áfram að sitja við og læra í kyrrstöðu Cool

Heimsokn...

09. nóvember 2010 klukkan 11:55
Jæja nu er rumlega vika sidan eg bloggadi sidast og thad thykir minni ekki gott, ætla thvi ad skrifa oggolitid her inn nuna tho eg sitji ut i skola. Var ad hitta felaga minn utaf verkefni sem vid eigum ad skila fyrir kl 12 i dag, eg klaradi minn hluta i gær en svo vorum vid ad hittast nuna til ad sameina skjølin okkar og finpussa. Tha er thad fra!! Tha er bara eitt verkefni eftir sem verdur skilad 26. nov med kynningu.

Sidan eg bloggadi sidast hefur heilmikid verid brallad. Vid fengum gesti a fimmtudaginn en thad voru Steinunn vinkona min fra aldaødli og Dori madurinn hennar. Thad var alveg meirihattar ad fa thau, Haukur tok runt med theim her um nagrennid a fimmtudag en eg var i skolanum til kl 4, sidan vorum vid i rolegheitum heima um kvøldid. Vid skruppum til Sverige eftir skola a føstudag thar sem verslad var heil oskøp. A laugardeginum forum vid og versludum adeins meira i Ski, forum til Drøbak, skodudum okkur um, kiktum a markadstorgid, jolahusid og forum a kaffihus. Um kvøldid eldadi eg norskan jolamat, tynnribbe, julepølse og tilbehør. Sunnudagurinn var einnig ansi skemmtilegur, vid tokum lestina inn til Oslo, Haukur rølti med gestina um borgina og syndi theim thad helsta - konungshøllina, Karl Johann, Stortinget, Nasjonalteater, operuhusid, Akershusfestning og svo endudu thau a Akerbrygge a kaffihusi. Vid Stefan thurftum hins vegar ad yfirgefa hopinn og tokum T-bane upp i Nordbergkirke og vorum vid messu (hja islenska søfnudinum) en fermingarbørnin adstodudu vid undirbuning messunnar. Thetta var sannkøllud veisla a allan hatt, flottur kor, flott undirspil, flott predikun og svo messukaffid a eftir jeremias!!!! Thad var lika mjøg spes ad hitta eina konu tharna sem eg hef verid i miklu netsambandi vid sidustu manudi en thad er hun Jona Lind en vid høfum verid ad vinna i svipudum malum med hreyfingu og heilbrigt liferni. Vid hittum lika Vilborgu og Mariu Lovisu og vorum vid samferda nidur i bæ a eftir, gaman ad sja hvad thær mædgur eru ad pluma sig vel her i Norge. Eftir messukaffid tokum vid svo T-banann nidur i bæ og hittum Hauk og gestina a Akerbrygge, fengum okkur sma ad drekka og tokum svo lestina heim. Um kvøldid var svo pizzuveisla a la eg.

Steinunn og Dori foru svo med fluginu i gær og tha  tok vid verkefnavinna hja mer. Vid Haukur tokum svo skokktur seinnipartinn en nu verdur madur ad standa sig eftir fjagra daga hreyfingarfri. Thad fri var reyndar kærkomid og alveg naudsynlegt af og til ad slaka a inn a milli.

Nu er thad semsagt nam og hreyfing sem eg fokusa a og audvitad einhver fjølskylduafthreying um helgar....

Hreyfingarskýrsla októbermánaðar

01. nóvember 2010 klukkan 11:28

Hreyfingarskýrsla fyrir októbermánuð. 
Mánuðurinn fór rólega af stað hjá mér hreyfingarlega séð. Ég hljóp 1/2 maraþon í lok sept og fór svo í vinnuferð til Íslands, ég tók einn skokktúr þar en var annars í fríi til 11. október. 
Þá setti ég upp áætlun sem ég ætla að fylgja fram til áramóta. Þetta hefur gengið ágætlega og ég er komin í alveg ágætis rútínu með þetta.
Hér eru nokkrar tölulegar staðreyndir varðandi októberhreyfinguna mína:  
 
Hlaup: 38 km Heildartími: 4:35 6 skipti
Hjól: 75 km Heildartími: 3:45 6 skipti
Ganga: 4 km Heildartími: 0:40 1 skipti
Annað: Heildartími: 6:00 8 skipti

"Annað" eru Zumbatímar og bodypump hlutinn í "SpinPumpinu". Ég set ekki inn í þetta svona snatt hér og þar, hjól í búð eða ganga í skóla eða búð. Það eru eingöngu markvissar æfingar skráðar. 

Markmið fyrir nóvember er að halda þessu áfram og ná allavega að skokka 8 sinnum, taka 8 hjólaæfingar og 8 í annað. Að hafa gaman að þessu og njóta er einnig mikilvægur partur af þessu og muna að hvíla inn á milli.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.