Hrekkjavökumyndir!!!!!
Fjölbreytileiki
Ég sá "status" hjá Pálínu Ósk á Fésbókinni þar sem hún spyr eftirfarandi:
"Er ég búin að vera of lengi í Noregi þegar mér finnst eðlilegt að kennarinn taki upp gítar og syngi glærurnar ofaní okkur, þegar mér finnst eðlilegt að kennarar kenni í gönguskíðaskóm á veturnar og noti stundum krít og töflu í stað tölvu og power point.
Norðmenn rokka !! Það er eðlilegt :O)"
Það er nefnilega svolítið skemmtilegt að spá í þessu, í okkar skóla eða allavega í okkar Institjúti ganga flestir kennarar um í frekar hversdagslegum fötum, gönguskór eru algeng sjón já og útivistarfatnaður almennt. Sama má segja með nemendurna þó þeir séu sumir hverjir oft ansi "náttúrulegir" í sínu "útliti". Flestir eru þó að því er virðist í afar þægilegum fötum + þægilegum skóm = friluftslivsfólkið og skogfagfólkið. Það er ekkert verið að fara offörum í meiköppinu heldur.
Stundum gengur þetta kannski of langt í hina áttina þ.e. sumir skipta varla um föt, eru grænir frá toppi til táar í hermannaklossum með grúví klippingu og göt í eyrum, nösum, vörum, tungum og sennilega fleiri stöðum líka.....það eru svokallaðir naturforvaltarar.
Þegar vetrar og snjórinn kemur eru gönguskíði í lange baner fyrir utan Institjútið, margir á gönguskíðaskóm og með skíðagleraugu á hausnum.
Kennararnir eru frekar venjulegir (eða hvað er venjulegt????) en kennslutækni hefur verið okkur hugleikin síðustu vikur. Einn kennarinn mætti til dæmis með gítar skellti glæru á myndvarpann en á glærunni var mynd af norskum hippa frá 1972 sem gerði einhverja voða fræga vísu, því næst skellti kennarinn næstu glæru á og þar var texti og þegar nánar var að gáð mátti sjá þessa vísu. Síðan byrjaði kennarinn að spila og söng þessa hippa vísu og nota bene, hvatti okkur til að syngja með. Þetta var í kúrs sem heitir Flerburk av skog, fjölnytjaskógrækt og umfjöllunarefnið var mismunandi upplifanir í skóg. Annar kennari í sama fagi er að komast á ellilífeyri, hann heitir Lars Helge Frivold, fínasti karl en svolítð fyndið að hann er hvað mest nýmóðins gallabuxurnar og girðir sig illa!!!..... beltið hangir um miðjan rass þannig að það skín í Björn Borg nærbuxurnar hans (mest móðins nærbuxurnar í Norge). Þessi kennari notar power point og krítatöflu. Hér eru sko ekki tússtöflur, þó var húsið sem hýsir Institjútið tekið í gegn fyrir ca þremur árum og settar upp fullt af stórum góðum krítartöflum I LIKE því tússtöflur eru hallærislegar!!!
Alltaf þegar nemendur eiga að halda fyrirlestra þá nota þeir power point, ég og hópfélagi minn gerðum undantekningu í vikunni, við dreyfðum bara einni mynd á pappír, héldum fyrirlestur á töflu.....kennararnir vissu ekki hvernig þeir ættu að bregðast við því þetta var ekki vanalegt að nemendur gerðu svona. Það er nefnilega allt í lagi að benda fólki á það að það að nýta hin ýmsu tól til kennslu skilar bestum árangri - það hef ég lesið í vísindalegri grein, þó ég geti nú ekki linkað hana hér inn akkúrat núna en svona er þetta.
Fjölbreytileikinn er bestur, hvort sem um er að ræða klæðnað fólks eða kennslutækni

Það þarf ekki allt að vera eins.
Það þurfa ekki allir að vera eins.
Það þurfa ekki allar skoðanir að vera eins.
Maður á að standa við sitt, vera maður sjálfur.
....og muna að virða náungann, hvort sem hann er í skrítnum fötum, gerir eitthvað örðuvísi, eða hefur aðrar skoðanir.
Laugardagsmorgun, ég er að fara í SpinPump, Haukur er búinn að fara út að skokka. Eftir hádegið þurfum við að versla inn og klára að græja Halloween búninga!!! Klukkan 18:00 munum við svo öll fjölskyldan leggja af stað uppáklædd í okkar búningum á Ekornveien í Halloween partý jeijjjjj

maraţon-paraţon
Var að vonast til að ég fyndi eitt slíkt í Svíþjóð, nálægt Uppsala en þar eigum við heimboð....Haukur farin að æfa hlaup, ég er alsæl með það, gott að hafa kallinn með sér í þessu - næ honum kannski með í hálft maraþon 2011 tja hver veit
Hann ætlar að taka þátt í Birkebeiner í mars EF hann nær að skrá sig en það opnar fyrir skráningu í byrjun nóv en í fyrra var orðið fullt á 46 sek!!!! Birkebeiner er gönguskíðakeppni 52 eða 54 km (man ekki alveg) þar sem gengið er frá Lillehammer yfir til Rena í Austurdal. Ég ætla bara að taka því rólega á skíðunum í vetur, ætla frekar að einbeita mér að því að ná upp tækni - veitir ekki af því!!!! Hlakka til.Fer í klippingu á morgun, ágætt til að minnka loftmótstöðuna hahahhahha!!! ....og hvað á ég að elda í kvöld....????
Góðar stundir.
jólablogg (fullsnemmt) en ég er ekki í jólaskapi!!
Þá er bara að standa við stóru orðin......Annars erum við orðin mjög spennt aðeins átta dagar í að Steinunn og Dóri komi í heimsókn til okkar, jibbbbííí!!! Þá verður farið í skoðunarferðir, búðir, borðaður góður matur og haft gaman, vá hvað ég hlakka til!!! En þangað til verður fókusinn á náminu
kaffispjall
Við erum á fullu að skipuleggja fríhelgar vetrarins, nú er Haukur kominn með plan yfir hvenær hann á pottþétt helgarfrí og er okkur að takast að gera fríhelgarnar að skemmtilegum viðburðum. Við ætlum t.d. í eina hyttuferð með vinum frá Íslandi, ætlum að taka eina lúxushelgi í Hafjell, fáum vinkonu og dóttur hennar í helgarheimsókn í lok janúar, síðan stendur til að fara til Budor sem er þægilegt skíðasvæði í ca 2 tíma fjarlægð og skíðaferð til Trysil er einnig í kortunum.
Jólafríið verður alveg þokkalegt hjá mér og strákunum. Stefán Snær ætlar til Danmerkur til pabba síns þannig að við hin verðum bara þrjú í kotinu, ætla bara rétt að vona að það verði ekki eins og í fyrra snjór, snjór, snjór en Haukur þarf að vera á vakt yfir öll jólin og áramót
En hins vegar en þarna fullt sem hægt er að láta sér hlakka til. Ég geri svo ráð fyrir að þegar byrjar að vora verði ég í mínum heimi á endasprettinum í náminu.Ég er farin að tala um vorið!!!! En það er nú málið að október er að verða búinn bara mánuður eftir af fyrirlestrum þessa árs - tíminn er svo fljótur að líða........
Jæja best að skunda út í skóla og taka stöðuna, eigið góðan dag
Veikindi
Fyrir hádegi í gær lagðist Þórður Logi upp í rúm, sagðist vera kalt og þreyttur. Hann svaf meira og minna í allan gærdag, borðaði sama og ekki neitt (ca eina brauðsneið og eina pönnuköku) og bara svaf . Í nótt kastaði hann upp tvisvar og var mjög slappur. Í morgun borðaði hann eina jógúrt, hálfa brauðsneið og fékk smá kók að drekka, hann horfði á barnaefni í sjónvarpinu en er núna lagstur uppí rúm, eftir að hafa verið hér frammi í stofusófanum í ca tvo tíma. Mikið svekkelsi í gangi þar sem í dag ætlaði Þórður að taka þátt í haustsúpudag á leikskólanum en þá selja börnin foreldrunum haustsúpu frá kl 15-16:30 og bjóða einnig til sölu listaverk en allt þetta er liður í safna pening til að styrkja skóla á Indlandi. Í fyrra styrktu þau skóla í Nepal og lærðu heilmikið um menninguna þar, mat og annað en núna í ár er það Indland. Síðasta vika fó að miklu leyti í undirbúning fyrir þennan viðburð, grænmetið sem átti að fara í súpuna var brytjað og fryst, það var tekið til og þrifið og gengið frá listaverkum. Agalegt að missa af þessum degi.
Það verða svo vaktaskipti hér um hádegi þegar Haukur kemur heim og ég þarf að fara í skólann.
Allir aðrir á heimilinu eru hressir.
útieldun - myndir
útsvar
Ég er eitthvað svo fókuseruð á hreyfinguna að það er ekkert venjulegt, held að hlaupaáráttan sé orðin að vana þó ég sé reyndar ekkert að hlaupa neitt agalega oft í viku, eða bara tvisvar sinnum. Það vildi hins vegar til í dag að ég var í skólanum mjög lengi og það var orðið myrkur þegar heim kom. Eiginlega er það léleg afsökun því það er alveg hægt að hlaupa í myrkri, maður notar bara höfuðljós! Það er nefnilega þannig að þó ég búi í 16 þúsund manna sveitarfélagi og þéttbýlið sjálft hér að Åsi losi 8 þúsund manns þá er mjög langt á milli ljósastaura og birtan frá þeim fáu sem eru er ekki upp á marga fiska. Af hverju er ég að flétta inn íbúatölum, jú af þeirri ástæðu að fjöldin í sveitarfélaginu öllu samsvarar einni Akureyri og fólksfjöldin í þéttbýlinu Ås er eins og hva ca 3 sinnum Borgarnes..... Ef ég væri íbúi í þessum sveitarfélögum myndi ég frekar vilja draga úr lúxusnum sem öll lýsingin gerir og eyða peningunum mínum/sveitarfélagsins s.s. útsvarinu í að standa vörð um störf. Eða borga sveitarfélögin kannski ekki þann pakka? AHHH þarna tala ég kannski í hring, því þegar við kaupum rafmagn þá erum við að búa til störf......
En þessi bloggfærsla átti ekki að fjalla um þetta. Hún átti að fjalla um hreyfingu. Ég fór semsagt ekki út að skokka í dag eins og segir í æfingaplaninu. Hins vegar veit ég að ég verð búin snemma í skólanum á morgun og því ætla ég mér í skokktúr á "hvíldardegi"
í björtu!!
Ég er ekki komin í jólaskap.....
Hér er uppskriftin:
Sjokoladeflarn
2 matskeiðar sykur
3 egg
250 gr hveiti
1 tsk lyftiduft
3 dl mjólk
300 gr haframjöl
150 gr smjör (brætt)
Blandið öllu saman í skál og hrærið, setjið bráðið smjör í síðast og hrærið vel.
Setjið með matskeið á bökunarplötu og bakið í 5 mín við 200°C
200 gr dökkt súkkulaði er brætt og því smurt á kökurnar og þær lagðar saman (tvær og tvær) eins og samlokur. Kökurnar eru síðan kældar í ísskáp í klukkutíma.
Ţrjú ný albúm
Epli 2010
Íslandsferð haustið 2010
Sýning og skógarferð sept 2010
Status rapport
Helgin hefur verið mjög róleg hjá okkur, ég byrjaði helgarfríið reyndar á því að taka stigaganginn og ganginn niðri í gegn, þ.e.a.s. sópaði gólf og skúraði með sterkri blöndu af AJAX - held að síðast hafi verið sópað í sumar og ekki hefur verið skúrað síðan í vor hugsa ég, bölvaðir sóðar sem búa hér hehheheh!!!
Þórður Logi fór í afmæli eftir leikskóla á föstudag en síðan var hefðbundin pizzugerð um kvöldið og vorum við svo heppin að fá vini okkar þau Björn, Bríet og dætur í heimsókn það kvöld - það sem við eigum eftir að sakna þeirra þegar leiðir skiljast í vor

Í gær fór ég í SuperSpinPump (45 spin og 45 bodypump) svo var bara slappað af hér heima, kíkti til Lydíu sem átti stórafmæli og svo fór ég ásamt nokkrum litlum vinum mínum og Höllu í eplatínslu í Eplehagen, kom klifjuð heim og nú stendur til að gera eplachutney, þurrka epli og frysta
Á laugardagskvöldið fórum við svo í kjötsúpuveislu til Eyjólfs. Í dag fór ég út að skokka, við kíktum á loppemarket í Kråkstad, fór í vöfflukaffi til Bríetar og slappaði svo af hér heima, Stefán Snær sá um kvöldmatinn en það var tómatsúpa og harðsoðin egg jammí jammí

Annars er nú lítið að frétta hér, nema að Þórður Logi er hættur að eyða í laugardagsnammi, nú er hann farinn að safna fótboltamyndum og kaupir sér pakka á laugardögum

Allir hressir og kátir en hugsum mikið heim EN ætlum líka að njóta þess tíma sem eftir er hér - bara ca 8-9 mánuðir eftir af þessum tíma og eigum eftir að gera fullt!!
Sagan af ropkonunni
Miðvikudagskvöld eru Zumbakvöld hjá mér og fjölmörgum öðrum konum og já reyndar einum kalli hér að Åsi. Þetta er kennt í Ås treningsenter en þar vinna frábærir þjálfarar af öllum stærðum og gerðum, en flestir hafa einhverja viðbótarmenntun en einhver Les Mills æfingakerfisréttindi, oft eru þau nuddarar eða sjúkraþjálfarar og svo zumbaþjálfarinn sem er ég held að sé danskennari. Allir þjálfararnir eru norskir nema Roddy sem er ástrali af ísraelskum ættum (hefur mér skilist). En þetta kemur ekki sögunni við, fannst ég bara þurfa að segja frá þessu.
Sagan:
Í vikunni fyrir maraþonið fór ég í zumbatíma á miðvikudagskvöldi, búin að gíra mig upp í frábæran suðrænan og seiðandi tíma með tilheyrandi salsa, tangó, afró - töktum. Gunna kom með en þetta var hennar fyrsti tími og vonandi ekki sá síðasti. Þegar við erum komnar inn í salinn og búnar að taka okkur stöðu kemur ein kona og tekur sér stöðu ská fyrir aftan mig, svolítið sérstök kona verð ég að segja. Hafði séð hana áður hér úti í garði á vormarkaði og þá kom hún mér þannig fyrir sjónir eins og hún væri bara vel í því. Upplifunin í tímanum var eins. Annaðhvort er hún með eitthvert syndrom eða bara alltaf blindfull eða uppdópuð. Þegar konan var búin að taka sér stöðu ská fyrir aftan mig ROPAÐI hún hátt og snjallt, ég hugsaði "æi greyið konan þetta hefur hrokkið uppúr henni". Tíminn byrjaði og þá ropaði hún aftur og aftur og aftur, svo settist hún niður.....en við hinar héldum bara áfram eins og við tækjum ekki efitr þessu, frekar vandræðalegt. Konan fékk sér vatn og stóð upp og hélt áfram, ropaði reglulega hátt og snjallt út tímann en settist niður af og til inn á milli. Konurnar sem vorum fyrir framan við voru alltaf að líta aftur fyrir sig og þá blasti ÉG við þeim
Ég mátti einbeita mér verulega til að skella ekki uppúr, forðaðist að líta á Gunnu og það sama átti við um hana, dönsuðum þarna, einblíndum beint áfram og reyndum að gera æfingarnar rétt og láta ekki hátt og snjallt ropið trufla einbeitinguna og ánægjuna. Verð samt að viðurkenna að ég hálfvegis reyndi að fikra mér jafnt og þétt aðeins frá ropkonunni en það var ekki einfalt, því í salnum voru 35-40 konur og 1 kall en ég bjóst alveg við að konugreyið myndi kasta upp þá og þegar. Við veltum því fyrir okkur eftir tímann, þegar fram í anddyri var komið af hverju í ósköpunum konan var að mæta, sárlasin. En til að toppa kvöldið þá kom ein kona til mín sem var fyrir framan mig í tímanum og spurði hlæjandi "hva varst það þú sem ropaðir svona??" ég fékk áfall, mína verstu hugsanir rættust, það héldu vísast allir að þetta hafi verið ÉG en svo fór hún að skellihlæja.....hjúkket!!!
Síðan fór ég til Íslands, missti úr tvær zumbavikur og fór svo aftur núna á miðvikudagskvöldið - haldið þið ekki að þegar við bíðum fyrir framan salinn að þá kemur ropkonan....ég hugsaði ætlar þetta að endurtaka sig, æi nei ég trúi því ekki! Við förum inn í salinn, tökum okkur stöðu, ropkonan ískyggilega nálægt mér en færði sig svo fremst en þá heyrist ROP. Þið sem þekkið mig vitið hvað gerðist í framhaldi - ég fékk hláturskast dauðans, ég hló og hló og hló!!! Konan ropaði ekki meir eða ekki svo ég heyrði allavega
smá raus í mér....
Ég sá það á fésbókinni í gær að fólk var í umvörpum að setja statusa um að það hlustaði ekki á fréttir og setti bara tónlist á "fóninn" í stað þess að hlusta á neikvætt raus. Þá fór ég að hugsa um hvað það er hálf ömurlegt að upplifa alla þessa neikvæðu umræðu sem er í þjóðfélginu þarna heima og hvað það er nú niðurdrepandi. Það er svosem ekkert skrýtið að umræðan sé neikvæð - við erum jú í djúpum skít en ég hef trú á að það lagist en það tekur tíma, allt tekur tíma. Hins vegar þótti mér frábært að þrátt fyrir allar neikvæðar fréttir, þá sá ég breytingu á fólki þegar ég var heima um daginn. Ótrúlegasta fólk er hætt að reykja, ótrúlegasta fólk er farið að stunda hreyfingu, hugsa um mataræðið og fyrir vikið sér maður hamingjuna geisla af fólki. Ætli "kreppan" hafi ekki hreyft við fólki og fengið það til að hugsa hvað það er sem virkilega skiptir máli?
Vinkona mín spurði mig hvort við værum enn ákveðin í að koma heim næsta sumar, hvort við hefðum það ekki mikið betra í Noregi. Ég sagði henni að við hefðum það svo sem ágætt í Noregi en það eru önnur lífsgæði sem ég sækist eftir en "böns of monní". Lífsgæðin eru fólgin í fjölskyldunni, vinunum, fallega landinu okkar, heita vatninu og og og....já þar sem ræturnar eru, það er allavega mín skoðun. Ég er íslendingur og verð aldrei neitt annað.
p.s. annað sem mér þótti gaman að uppgötva þegar ég var heima, það var hversu fólk í verslunum og þjónustustörfum er kurteist og hjálpsamt - mikill munur á því á milli Noregs og Íslands, Íslandi í hag.
ćfingablogg
Í stuttu máli er hún svona:
Mán: SpinPump (hálftími í spinning, hálftími í bodypump).
Þri: Hvíld
Mið: ZUMBA
Fim: Skokk
Fös: Hvíld
Lau: SuperSpinPump (45 mín spinning, 45 mín bodypump)
Sun: Skokk
Ég er ákveðin í að hlaupa 1/2 maraþon í næsta Reykjavíkurmaraþoni - nauðsynlegt að hafa að einhverju að stefna. Ég ætla að fylgja prógramminu sem er hér á síðunni fram til áramóta en eftir áramót ætla ég í samráði við hlaupaþjálfara að hefja æfingar fyrir hálfa maraþonið - ég ætla nefnilega að bæta tímann minn verulega.
p.s. Loksins hef ég uppfært undirsíðuna markmið 2010-2011.
af Íslandsferđ....
Ferðin til Íslands gekk vel, við Þórður Logi tókum flugrútuna héðan frá Åsi á mánudeginum fyrir hálfum mánuði og brunuðum upp á Gardermoen, þaðan flugum við heim með Icelandair. Það var mjög notalegt, Þórður talaði mikið um það á leiðinni að það töluðu bara allar flugfreyjurnar íslensku og barnaefnið í flugvélinni var meira að segja á Íslensku!!!! Flugið og lendingin gekk vel, við fórum með flugrútunni til Reykjavíkur og á BSÍ tóku Þórhildur, Björk og Hekla á móti okkur. Okkar fyrsta verk var að fá okkur pylsu og svo var keyrt upp í Borgarnes í kaffi til Ingu Dóru en hún hafði fyrr um daginn nálgast tölvu fyrir mig sem ég var að fá mér. Þaðan var brunað til Sollu og fjölskyldu en ég gaf mér engan tíma til að stoppa en gat þó allavega séð framan í alla fjölskyldumeðlimi. Þaðan var svo keyrt til Þórunnar og Sigurjóns sem buðu upp á lambahrygg og tilbehör, við gistum þar fyrstu nóttina. Daginn eftir fór Þórður með Þórunni á leikskólann en ég skutlaðist suður á fund, þegar ég kom til baka að sunnan var klukkan um hálf sex, við fórum í sund í Borgarnesi, Þórunn kom með okkur og svo hittum við Sirrý og dætur þar og fullt af öðru fólki. Keyrðum svo á Hvanneyri í mat til Eddu og Gulla en við gistum þar næstu þrjár nætur og sáu þau góðu hjón um drenginn á meðan ég var fyrir sunnan, myrkrana á milli að vinna. Það má segja að ég hafi þessa daga aðeins hitt Þórð á morgnana og átti með honum stund milli hálf sjö og korter í átta. Eitt kvöldið var mér boðið í kjötsúpu hjá Ingu og Kela en ég var ekki komin til þeirra fyrr en um kl tíu um kvöldið en það var samt alveg frábært.
Föstudagskvöldið 1. okt kom svo mamma suður á Hvanneyri og sótti okkur. Við fórum í sund í Hofsós, heimsóttum tengdó og borðuðum veislumat hjá mömmu og pabba á laugardeginum, á sunnudeginum kíktum við í morgunkaffi til Steinunnar, kíktum á Sillu og Gumma og fórum svo norður á Akureyri og hittum ömmu gömlu. Ég sótti svo bíl á bílaleiguna og kvaddi mömmu og Þórð og brunaði austur á Egilsstaði. Þórður var alla vikuna hjá mömmu og pabba, fór á leikskólann og hafði það gott, fór í sund daglega og naut sín vel. Ég var fyrir austan að vinna og sofa, fór tvisvar í sund og hljóp einu sinni 5 km. Bjó hjá Ólöfu og Adda og hafði það gott hjá þeim. Ég tók svo flugið suður á föstudaginn, var komin í bæinn um hálf sex, brunaði á Mógilsá, skilaði öllu dótinu af mér og svo mætti Þórhildur og sótti mig og við keyrðum upp á Hvanneyri í "molasopa" til Bjarkar sem var víst eitthvað aðeins meira en molasopi, brauð, ostar og ég veti ekki hvað og hvað. Fullt af kunningjum leit við og áttum við þarna skemmtilegt kvöld saman. Mamma og pabbi komu keyrandi á Hvanneyri með Þórð þetta kvöld. Um nóttina lögðum svið svo af stað til Keflavíkur, Þórhildur skutlaði okkur. Við tékkuðum okkur inn, versluðum eitthvað í fríhöfninni, og flugum svo til Norge. Ég var eins og sprungin blaðra eftir að ég kom heim, svaf meira og minna seinnipartinn á laugardaginn og fór snemma í háttinnn um kvöldið og dormaði fram undir hádegi í gær!!!
Þetta var fín ferð, einkenndist af miklum hraða, mikilli keyrslu og gleði.
Ég þakka öllum kærlega fyrir alla hjálpina, mamma og pabbi, Edda og Gulli, Þórunn og Sigurjón - fyrir gistingu, fæði og pössun. Ólöf og Addi - fyrir gistingu og fæði. Björk og Þórhildur fyrir skutl, lán á bíl, "molakaffið", gistingu og fyrir að vera alltaf til staðar. OG auðvitað allir hinir fyrir allt!!