Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Ísland í dag

27. september 2010 klukkan 05:59
Jæja, nú erum við Þórður Logi (leynifarþeginn) að taka okkur til, það eru tæpir þrír tímar í að við tökum flugrútuna upp á völl. Áætluð brottför frá Gardemoen kl 14:45 og áætluð lending í Keflavík kl 15:25. Seinniparturinn þéttskipaður, þarf að nálgast tölvu sem ég var að kaupa, kíkja á eitt "nýtt" barn, knúsa vini og kunningja og svo er það lambakjöt hjá Þórunni og Sigurjóni einhverntíman þegar ég verð búin að öllu hinu!!!
Svo er það fundur á Mógilsá á morgun, og feltvinna hina dagana, Skagafjörður um helgina og Austurlandið í næstu viku.
Hreyfingin veðrur að mestu í formi sundferða, gönguferða og e.t.v. skokk fyrir austan Cool Ég er þokkalega stíf í skrokknum núna í morgunsárið eftir afrek gærdagsins......Embarassed...stuð að fara í flug.

Góðar stundir allir!!

Náði enn einu markmiði - hljóp 1/2 maraþon í dag.

26. september 2010 klukkan 19:25
Jæja, það tókst - ég komst í mark á undir þremur tímum en það var markmiðið. Ég hljóp fyrstu 10 km en tók því svo rólega eftir það, var ákveðin í að komast og ætlaði ekki að láta sjúkrabílinn pikka mig upp. Hér er smá tölfræði.

Punkt Totaltid min/km km/t Splittid min/km km/t
4,3 km 0:28:28 6:37 9,07 0:28:28 6:37 9,07
9,9 km 1:12:35 7:20 8,18 0:44:08 7:53 7,61
13,8 km 1:48:08 7:51 7,66 0:35:33 9:07 6,58
21,097 km 2:49:46 8:03 7,46 1:01:39 8:27 7,10
Þá er ekkert annað að gera en að halda áfram að æfa og stefna að því að bæta sig, taka hálft maraþon að ári Cool

EN ég hefði aldrei látið mér detta þetta í hug hvað þá að vera svona dugleg að æfa ef ég hefði ekki verið með frábæra manneskju mér við hlið síðasta árið en það er hún Bríet elsku vinkona mín - knús á þig Bríet og takk fyrir skemmtilega skokktúra síðasta árið, hvatningu og skemmtilegheit - við erum sko ekki hættar!!!! Takk Jóna Lind og Eva Margrét og Sigrún Þöll fyrir frábæran innblástur í gegn um blogg, tölvupósta og fésið!!!! OG auðvitað allir aðrir sem hafa haft trú á mér og komið mér eða hjálpað mér að fá trú á sjálfri mér Kiss



p.s. fór ekki að gráta þegar ég kom í mark....soldið svekkt yfir því......Embarassed

af kjötætu sem kannski hefur látið sér til munns fórnarkjöt annarra trúarbragða

21. september 2010 klukkan 18:14
Á meðan "feisbúkkstatusar" einkennast af "Halal" og sólin kemur upp í austri og sest í vestri þá er ég búin að vera í nettu stresskasti. Það kemur reyndar því ekki við hvort ég borða fórnarkjöt annarra trúarbragða eða ekki en ég hef haft í nógu að snúast. Reyndar skil ég ekki hvað er í gangi með þetta Halal mál. Hvað er að því þó einhverjir ákveði að taka upp þá sláturaðferð sem kennd er við Halal, þó ég sé reyndar ekki viss um hvort aðferðin sjálf heiti Halal, kjötið er allavega kallað Halal kjöt. Múslimar borða þetta Halalkjöt og hvað ætli þeir séu margir í heiminum? Ég hef bara ekki hugmynd um það, velti þessu svona upp í gamni bara. Þyrfti að fá allar þessar staðreyndir á hreint hjá múslimskum Kenýskum kunningjum okkar sem eru nota bene besta fólk og virða það þó ég gangi um á hlýrabol með hárið flaksandi.
Berum virðingu fyrir trú, hver svo sem hún er.
Lifi byltingin!!!

Annars er ég bara á fullu í að undirbúa heimferð, vinna mér í haginn í skólanum og undirbúa mig fyrir hálfa maraþonið á sunnudaginn en jæja....
Ég er farin að læraTongue out
Góðar stundir.

change of plan

20. september 2010 klukkan 06:24
Þetta gengur ekki lengur! Er búin að láta líða sex daga á milli bloggfærsla þannig að fók hefur ekki hugmynd um hvað er í gangi á bænum!!!
Það er einfalt að segja frá svosem, það er búið að vera nóg að gera. Ég fékk þá hugmynd í svefnrofunum á fimmtudaginn að það væri kannski sniðugt að eyða smá pening í örlitla skemmtun og ánægju fyrir yngsta mann á heimilinu. Ég hringdi í Icelandair og tékkaði á hvað flugmiði fyrir hann myndi kosta ef hann kæmi með mér til Íslands. Miðinn kostaði alveg slatta en þó innan við 2500 NOK sem var viðmiðunin. Við létum taka frá miða og hugsuðum málið og á föstudaginn staðfestum við. Þannig að ég er ekki að koma ein á mánudaginn Cool Þórður Logi ætlar að skella sér með. Skipulagið er reyndar ekki alveg komið á hreint en hann verður allavega í nokkra daga á Hvanneyri en það er mögulegt með hjálp góðra vina. Ég verð að vinna á Suðurlandinu þá daga en svo sýnist mér við fara norður á föstudeginum í okkar kæra Skagafjörð og þar verður Þórður Logi seinni vikuna á meðan ég er austur á Héraði. Ætli við hittumst ekki svo á Borgarfjarðarsvæðinu á föstudeginum og fljúgum heim laugardagsmorgninum 9. okt. Þetta kostar auðvitað mun meiri fyrirhöfn að hafa hann með, púsla öllu saman og svona en ég held að það sé vel þess virði.
Í dag erum við heima, það er skipulagsdagur á leikskólanum en ég verð að nýta daginn vel í lærdóm. Vikan er þéttskipuð hjá mér, verkefni, verkefni, verkefni og inn á milli nokkrar léttar æfingar - má ekki ofgera mér síðustu vikuna fyrir hálfa maraþonið í Osló á sunnudaginn Smile

Þetta er Þ-blogg!!!

14. september 2010 klukkan 17:44
Það eru þrír dagar þangað til Bebba kemur í heimsókn.
Það eru tólf dagar í hlaupið mikla í Osló.
Það eru þrettán dagar í ferð til Íslands.
Þangað til á ég eftir að skila einu reikningsverkefni í skogplanlegging, einu hópaverkefni um upplifun í skógi, flytja einn fyrirlestur og skrifa tvær litlar skýrslur, okey það gera fimm verkefni.
Þungu fargi af mér létt á morgun þegar ég verð búin að halda fyrirlestur um samanburð á módelum til að ákvarða ákjósanlegustu og hagkvæmustu tímapunkana á lokahöggi...uuuuu já, þá verða bara fjögur verkefni eftir!!!
Þess á milli þarf ég að æfa fyrir hlaupið, vera hluti af fjölskyldu og undirbúa Íslandsferð!
Þeink jú verrí næs!! Rúllum´essu´upp!!


Allt í góðu hérna megin

10. september 2010 klukkan 16:34
Búin að fá það skjalfest að ég er aðeins of lág í hemoglóbulíni og járnbirgðirnar eru ekki í lagi.
Hemoglóbulín: 11,4 g/100mL en á að vera 11,7-15,3.
Járn: 9 ug/L en á að vera 15-200.
Annars er í góðu lagi með blóðið og þvagið úr mér Cool
Þannig að nú verð ég að skella í mig extra skammti af járni, hef verið að taka 2 töflur á dag síðan ég "rakst á vegg" í vor en nú ætla ég að bæta um betur og taka þrjár töflur á dag og vera duglegri í járnríku grænmeti Laughing

Þetta verður í kvöldmat:

09. september 2010 klukkan 08:02
4 Kjúklingabringum raðað í elfast mót (ég nota Rómertopf pottinn minn sem er leirpottur með loki).

200 gr sólþurrkaðir tómatar, niðursaxaðir
4 hvítlauksrif, marin
1 lúka spínat, niðurtætt
1/2 dl olía
Salt
Pipar
Þessu er blandað saman og makað yfir bringurnar.

Bakað í ofni og borið fram með pasta og fersku salati.

Markmið og skipulag

07. september 2010 klukkan 07:25
Ég fékk símtal um daginn frá vinkonu á Íslandi. Hún var að leita ráða hjá mér því henni hefur skilist á blogginu mínu að ég komist yfir allt mögulegt og spurði einfaldlega að því hvernig ég kæmist yfir þetta allt. Þetta "allt" er semsagt að vera í námi, sinna heimili, sonum og manni, stunda hreyfingu og líka að eiga frítíma og vera í ævintýrum.
Svarið sem ég gaf henni var einfalt, skipulag og markmiðssetning.
Þegar ég set mér markmið eru þau í nokkrum "lögum". Þannig að ég set mér t.d. það markmið að ég ætla að klára master í skógfræði, þá deili ég því niður á annir og önnunum deili ég niður í vikur. Það liggur fyrir í upphafi anna hve mörgum og hversu stórum verkefnum ég þarf að skila og því set ég það niður fyriri mér hvernig þau dreifast og skipulegg tímann mínn út frá því. Ég set mér markmið fyrir hverja viku, t.d. klára að lesa ákveðnar greinar eða bókakafla, byrja á þessu verkefni og klára annað. Svo ég taki dæmi fyrir vikuna sem núna er þá er það þannig að ég unirbý mig fyrir alla fyrirlestra, kíki yfir efnið og set mig inn í málin "mótivera" mig - ég les ekki allt spjaldana á milli - geri það frekar eftir á þegar ég er búin að sitja fyrirlesturinn. Annað sem ég mun gera í þessari viku og er byrjuð á er að lesa grein sem ég á að halda fyrirlestur um á miðvikudaginn í næstu viku, markmiðið er að vera búin að skilja greinina og glósa upp úr henni fyrir helgi. Þannig er þetta nú bara.
Það sem ég mælti með við vinkonu mína það er að vera með fullt af undirmarkmiðum, t.d. ef hún er að skrifa ritgerð sem hún á að skila um áramót svo ég taki dæmi að þá væri sniðugt að setja niður á blað hvað eigi að klárast í hverri viku. Allt sem klárast umfram markmið vikunnar er bara bónus. Mér finnst betra að hafa mörg undirmarkmið því það gerir allt svo mikið einfaldara - það er alltaf svo stutt í að maður nái markmiðinu.
En þá er það heimilið, okey, það er reyndar afgangsstærð í okkar tilfelli hér, allt gert í lágmarki - jú við þvoum þvott af og til í miðri viku en aðallega um helgar, við þrífum um helgar og varðandi eldamennsku þá er það þannig að Haukur og strákarnir hafa allir sinn eldamennskudag og svo sé ég um fasta daga líka en helgarnar eru ekki eins planaðar. Eldamennskudagarnir eru planaðir út frá frístundaiðkun heimilismeðlima.
Hreyfing: Hún verður að skapa stóran sess í mínu lífi - annars kemst ég ekkert áfram og koðna bara niður. Ég verð að hreyfa mig lágmark þrisvar í viku en ekki oftar en fimm sinnum því hvíldin er líka nauðsynleg. Ég er með hvíldardagana á virkum dögum því þá er alltaf nóg annað að gera.
Mitt ráð er að setja upp "eftir skóla og vinnu" stundaskrá þar sem kemur fram hver er í frístundum á hvaða tímum og hver á að elda og ganga frá í eldhúsi - ef sú stundaskrá er heiðarleg og raunveruleikatengd þá virkar þetta.
Ekki blekkja sjálf ykkur, verið raunsæ og skynsöm þegar þið setjið ykkur markmið. Munið líka að sætta ykkur við ykkur eins og þið eruð, gerið það besta úr þeim aðstæðum sem þið eruð í, njótið lífsins. Ekkert stress, þetta kemur allt.

Það er alltaf verið að ota að manni einhverju óraunhæfu eins og t.d. á fésbókinni tók ég eitthvert svona "próf" um hversu þung ég á að vera miðað við mína hæð, það er náttúrulega ekki í lagi að ég eigi t.d. að vera 60 kíló en ef ég væri ekki ég heldur einhver önnur þá gæti sú mannseskja hugsað með "gvöð ég er allt of þung ég á að vera 60 kíló!!!!" og þar með fer manneskjan sem áður var  alveg sátt við sig orðin ósátt, það er einhver annar bbúin að segja að hún sé ekki í lagi af því að hún verði að fylgja þessari "formúlu".
Ef þú ert í master þá ætlast þú til að þú sért tvö ár í því námi af því að þannig Á það að vera, en hvað skeður ef þú ert óvart tvö og hálft ár??? Trúið mér það skeður ekkert, það er ekkert hættulegt heldur. Maður má ekki vera vondur við sjálfan sig og rífa sig niður þó hlutirnir gangi ekki alveg upp, maður setur sér bara raunhæfari markmið miðað við þær aðstæður sem maður er í.
Svo held ég að það skaði ekkert smá "dass" af kæruleysi Wink

p.s. Aðeins smá svona sem tengist vinnusálfræðikúrsinum sem ég tók í ágúst. Ef manni finnst manni ganga illa þá er svolítið tendens til að kenna öðrum um, kannist þið við það?? En vitið þið að það er einn þáttur í þroskaferlinu að viðurkenna það fyrir sjálfum sér að maður ráði ekki við hluti og það er líka allt í lagi!! Maður gerir stundum mistök og það er algjör óþarfi að kenna alltaf öðrum um, maður gerir mistök til að læra af þeim og eitt mikilvægt atriði sem þið skuluð hafa í huga. Það er að vinnuveitendur eru ekkert hrifnir af fólki sem viðurkennir ekki mistök sín. Það er nefnilega enginn til sem hefur ekki gert mistök - annað væri ekki mannlegt..... en þetta var bara smá útúrdúr Kiss

Ísbjarnaárás - lítill heimur.

06. september 2010 klukkan 07:23
Lítill heimur!!!
Ég var að tengja - skólabróðir minn (í skogfag) var annar norðmannanna sem var á kajaktúr við Svalbarða og lenti í ísbjarnarárás, hann náði að skjóta ísbjörninn og bjarga þar með félaga sínum. Þetta gerðist í sumar og var mikið í fréttum hér í Noregi - þeir verða með fyrirlestur og myndasýningu frá ferðinni  á "Samfunnet" á Åsi annaðkvöld kl 19-21.

Afmælishelgi

05. september 2010 klukkan 08:20
Það sem af er helgi hefur ýmislegt verið brallað. Á föstudaginn eftir skóla og vinnu bakaði ég kökur fyrir kökuloddið sem var í gær, við mæðginin fórum í búð til að kaupa afmælisgjöf, okkur var boðið í mat (alísvín) á meðan Haukur fór með vinnufélögunum sínum í villisvínaveislu. Ég varð svo að sækja hann tímanlega í veisluna því ekki var hægt að missa af landsleiknum. Villisvínaveilsan var haldin á sveitabæ hjá gömlum bónda sem sérhæfir sig í villisvínaveislum, ég þurfti að keyra malarveg eitthvert lengst út í skóg og rambaði að lokum á þetta. Leikurinn var hafinn þegar heim var komið en það var ekki tekið út með sældinni að finna út úr því hvar leikurinn var sýndur því hann var á lokaðri stöð sem ekki var mögulegt að kaupa aðgang að nema í gegn um tölvu og það kostaði eitthvað á milli 100 og 200 NOK sem er slatti mikið. En eins og allir vita þá fór þetta ekki nógu vel.....
Í gærmorgun, kláraði ég að græja "lodd" kökurnar, pakka þeim inn og svo bakaði ég eina BOMBU í tilefni dagsins, fór í spinningtíma með Bríeti og ég held ég geti fullyrt að ég hef sjaldan farið í jafn góðan tíma VÁ!! Þegar heim var komið græjuðum við okkur, smurðum nesti og fórum öll fjölskyldan í Tusenfryd þar sem við áttum stefnumót við vini okkar frá Elverum þau Oddný, Ola og börn - tókum salibunu í nokkrum tækjum og buðum þeim svo heim í afmæliskaffi. Oddný, Ola og stelpurnar brunuðu af stað til Jessheim en Svavar varð eftir hjá okkur, tekur lestina upp í ELverum í dag.  En best að halda áfram.....að kaffitímanum loknum skelltum við okkur með nokkra maísstöngla og smá kjöt yfir til Hrafnhildar og Ragnars þar sem þau höfðu skipulagt sameiginlega íslendingamáltíð, við borðuðum og fórum snemma heim, alveg búin á því - Haukur eftir villisvínadjammið og ég eftir spinningtímann.

Í dag ætla ég út að skokka, Kunningi Hauks hann Pétur Hrólfs ætlar að kíkja í heimsókn og svo er það bara að njóta veðurblíðunnar.

Svo er stutt í næstu Tusenfrydferð, Vilborg frænka mín og dóttir hennar hún María Lovísa fluttu til Bærum fyrir tæpum mánuði síðan og við höfum enn ekki hist, þær stefna að því að koma um næstu helgi Smile

Stefán og Svavar ætla að reyna að komast á veiðinámskeið eftir hálfan mánuð í Trysil, þetta er svona fugla og héraveiðinámskeið, mjög spennandi. Helgina 24.-26. sept fer Stefán síðan á fermingarbarnamót sem verður haldið í Svíþjóð og er sameiginlegt fyrir íslenska krakka á norðurlöndunum. Brjálað að gera hjá drengnum!!!

Jæja best að hætta þessu og koma sér í hlaupagallann, eigið góðan dag Cool

tölvubras

02. september 2010 klukkan 20:30
Er að reyna að breyta aðeins "bannernum" á síðunni en það er ekki alveg að ganga upp eins og ég ætlaði Frown
Annars er dagurinn búinn að vera góður, gaman í skólanum, gaman í Sverige og auðvitað keyptum við hellingsmat og m.a. íslenskan fisk Smile já og fyrsta "Bergans" flíkin mín er komin í hús Cool Reyndar ekki útivistarskel eins og mig vantar, merkilegt að ég bara virðist ekki ætla að detta niður á eða finna það sem hentar mér og er á viðráðanlegu veðri. Sá einn í Lillehammer um daginn sem kostaði aðeins 4000 NOK en ég var að hugsa um að kaupa mér skel á svona ca 2000 NOK og flíkin á að vera regnheld og með góða öndunareiginleika. En það fór allavega þannig í Sverige að ég sá ullarjakka sem ég gjörsamlega féll fyrir og keypti - æi það er stundum þannig bara Smile þið getið fundið hann hér, í dömuflokknum, undir "teknisk ull" og hann heitir "1912 Myrull Lady Coat" og er svartur - hlakka til að vera í honum í vetur. Fékk reyndar dúnúlpu í afmælisgjöf frá Hauk og strákunum sem þeir áttu eftir að kaupa, þannig að þetta kemur svona í staðin fyrir hana.....bíddu, bíddu.....af hverju er ég að afsaka þessi kaup????

skóla-zumba

02. september 2010 klukkan 05:57
Jæja þá eru haustannarkúrsarnir að skríða af stað, einn af öðrum. Þónokkuð er af verkefnum liggja fyrir og svo verða "seminar" sex sinnum á önninni þar sem við eigum að skiptast á að kynna innihald ritrýndra greina og koma af stað umræðu um þær. Ég var svo agalega heppin að vera dregin fyrst þannig að nú fer ég að undirbúa þann fyrirlestur á fullu. Svo er ég nú svo heppin að Seminar 2 verður akkúrat þegar ég verð á Íslandi sem þýðir að ég verð (af því ég kemst ekki að hlusta á fyrirlestrana sem verða þá) að skrifa smá verkefni um þær greinar sem verða til umfjöllunar á því Seminari. Svo eru allavega tvö önnur skilaverkefni sem ég ætla að vera búin með áður en ég fer heim, þannig að það er í nógu að snúast. Þetta þýðir það að ég verð að vera skipulögð og vinna mikið á vikrum dögum því helgarnar reyni ég að halda sem mest fyrir fjölskylduna. Það lítur allavega út fyrir að allar helgar í september eru að einhverju leyti planaðar en það eru tívolíferðir, heimsóknir frá Íslandi, afmæli, meiri maís-týnsla, fermingarbarnamót í Svíþjóð, Oslómaraþon og svona mætti lengi telja.

Við, þrjár íslenskar konur fórum í gærkvöld og prófuðum s.k. ZUMBA í Ås treningsenter - jeminn eini, það var rosalega skemmtilegt, mæli með því að þið prófið en þetta er fínt með öðru. ZUMBA er eiginlega svona leikfimi eða öllu heldur bara spor með salsa ívafi, þar sem maður þarf að hreyfa mjaðmirnar mjög mikið en það er eitthvað sem maður gerir ekki mikið eins og t.d. þegar maður skokkar eða hjólar. Þess vegna er ZUMBA klárlega einu sinni í viku hjá mér, svo er það spinpump tvisvar og skokk tvisvar. Ég held að það sé mjög vænleg blanda.

Við ætlum að skella okkur til Svíþjóðar eftir vinnu í dag, það veitir ekki af að fylla á ísskápinn og bökunarskápinn. Bekkurinn hans Stefáns stendur fyrir kökuloddi á laugardaginn og þá þurfum við að leggja fram eins og tvær kökur, auk þess á elsti heimilismeðlimurinn afmæli um helgina - ætli ég skelli þá ekki í eina "Mississippi mud pie" fyrir hann. Vorum einhverntíman búin að hugsa okkur að skreppa til Gautaborgar um helgina en við frestum því frameftir hausti. Það er spáð fínu veðri um helgina, þannig að það verður eitthvað skemmtilegt brallað, eigum jafnvel von á vinum okkar í heimsókn - tóm gleði Cool

Já, alltaf nóg að gera hér.....yfir og út!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.