engin mæða hér!
30. ágúst 2010 klukkan 12:19
Jæja þá er ágústblokkinni formlega lokið, prófið afstaðið og ekkert annað að gera nema að finna sér eitthvað að gera það sem eftir lifir dags.
Haustönnin byrjar svo á morgun.
Ég mun því nýta það sem eftir lifir dags til að gera það sem hefur setið á hakanum um nokkurt skeið, þ.e. að þrífa, taka utan af rúmum, þvo þvott Í NÝJU ÞVOTTAVÉLINNI og prjóna. Stefnan er svo að fara í SpinPump tíma í Ås treningsenter seinnipartinn, elda einhvern mat og svo byrjar ný syrpa í uppáhaldssjónvarpsefninu mínu "71°N".
Á morgun byrjar haustönnin formlega og við munum fá gest frá Íslandi um kvöldmatarleytið en Torfi vinur okkar er væntanlegur.
Fleira er ekki í fréttum á þessum gullfallega mánudegi - hver fann upp þetta með að mánudagar væru til mæðu.... ég bara spyr því hann er sko engin mæða hér!!

laugardagur til lesturs, spinnings og nammiáts!!!!
28. ágúst 2010 klukkan 16:11
Á morgun eru akkúrat fjórar vikur í stóra hlaupið í Osló
Við Bríet erum svona eitthvað að dunda við að æfa fyrir þetta. Ég skrái allar æfingarnar mínar á hlaup.com og tja - þetta eru engar maraþonhlauparaæfingar sko, heldur meira svona blanda af hlaupi, göngu og hjóli. Að jafnaði er ég að æfa þrisvar í viku og vegalegndin er ca 20 km (á viku). Verð að bæta aðeins í næstu fjórar vikurnar
Við skelltum okkur til dæmis í spinningtíma í hádeginu í dag, gengum á og frá æfingu. Stefnum á skokk á morgun en ef það verður rigning þá er plan B að fara í treningsenterið í MRL tíma.
Ég er að lesa fyrir próf þessa helgina, já það er próf í ágústblokkarkúrsinum. Próflestur púffff, þá drekk ég ótakmarkað af kaffi, er endalaust að narta í eitthvað og er alveg ómöguleg. Þannig að hreyfingin er alveg nauðsynleg til að brjóta upp daginn. Haukur og strákarnir skruppu og týndu maís í dag, þetta er fyrsta ferðin þetta haustið en stefnan er að fara oftar. Síðan ætla Stefán og Haukur í bíó í kvöld en ætli ég verð ekki að dunda við lestur þegar Þórður verður sofnaður.....jú, ég reikna með því.
Úti hellirignir, þrumur og eldingar.
p.s. keypti bland í poka í dag.......ég veit ég var hætt að borða nammi EN ég á bágt!!!!
Við Bríet erum svona eitthvað að dunda við að æfa fyrir þetta. Ég skrái allar æfingarnar mínar á hlaup.com og tja - þetta eru engar maraþonhlauparaæfingar sko, heldur meira svona blanda af hlaupi, göngu og hjóli. Að jafnaði er ég að æfa þrisvar í viku og vegalegndin er ca 20 km (á viku). Verð að bæta aðeins í næstu fjórar vikurnar
Við skelltum okkur til dæmis í spinningtíma í hádeginu í dag, gengum á og frá æfingu. Stefnum á skokk á morgun en ef það verður rigning þá er plan B að fara í treningsenterið í MRL tíma.Ég er að lesa fyrir próf þessa helgina, já það er próf í ágústblokkarkúrsinum. Próflestur púffff, þá drekk ég ótakmarkað af kaffi, er endalaust að narta í eitthvað og er alveg ómöguleg. Þannig að hreyfingin er alveg nauðsynleg til að brjóta upp daginn. Haukur og strákarnir skruppu og týndu maís í dag, þetta er fyrsta ferðin þetta haustið en stefnan er að fara oftar. Síðan ætla Stefán og Haukur í bíó í kvöld en ætli ég verð ekki að dunda við lestur þegar Þórður verður sofnaður.....jú, ég reikna með því.
Úti hellirignir, þrumur og eldingar.
p.s. keypti bland í poka í dag.......ég veit ég var hætt að borða nammi EN ég á bágt!!!!
yfirlit....
26. ágúst 2010 klukkan 06:17
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld!!
Það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram, nú eru 13 mánuðir síðan við silgdum á vit ævintýranna - já pælið í því og ekki nema 10-11 mánuðir þangað til við siglum heim. Fyrir ári síðan þótti mér það fjarstæðukennt að við ættum eftir að endast hér úti og tvö ár voru á þeim tíma heil eilífð. En það hefur allt gegnið ótrúlega vel, skólinn er á réttu róli hjá mér, Stefán þrífst vel í sínum skóla og á fullt af vinum, Þórður brillerar í leikskólanum og Haukur hefur það fínt í sinni vinnu - er búinn að prófa fullt af nýjum hlutum og bæta í sinn reynslubanka.
Framundan er stífur vetur hjá mér en að einhverju leyti léttari vetur fyrir strákana og svo ætla ég að vona að snjóþunginn verði ekki eins mikill í vetur og hann var síðasta vetur þannig að álagið á Hauk verði minna.
Flutningur!!
Ég var á fundi í gær hjá SiÅs, það er búið að vera að gera upp blokkirnar hér á Skogveien, nr. 22 er búin og nr. 28 er að klárast, svo verður byrjað á nr. 26 í október og hjá okkur í nr. 24 í apríl....og þá þurfum við að flytja.....svaka stuð semsagt þegar ég verð á lokasprettinum í ritgerðinni jahúúúúú!!!
Gestir!!
Gestagangur verður einhver í vetur. Bebba kemur við þegar hún verður á fundarferð um miðjan sept. Ein vinkona okkar er að gæla við að koma í helgarferð í lok jan. Ein fjölskylda stefnir á að kíkja við seinnipartinn í febrúar (hyttetur yfir helgi+hótel í Osló). Svo veit ég af vinum sem langar að koma einhverntíman en eru ekki búin að ákveða það endanlega. Mamma og pabbi stefna á að koma í júní á næsta ári, veit ekki hvort þau kíkja eitthvað í vetur.
Frí!!
Markmið vetrarins hjá okkur er að plana nokkrar hyttu og skíðaferðir á fríhelgunum hans Hauks. Jól og áramót eru óplönuð, nema að sennilega fer Stefán til Danmerkur um jólin. Ég geri ráð fyrir að páskarnir verði ekki skemmtilegir hjá mér árið 2011 þar sem þeir eru í lok apríl, rétt fyrir ritgerðarskil en sjáum til með það......
EN það er svo langt í þetta allt saman en samt ótrúlega stutt!!!
En fyrst þetta!!!
Næsta mál á dagskrá hjá mér er lestur, fer í próf í vinnusálfræði á mánudaginn, geggjað stuð!!
já og átið á mér!!!
Í gær borðaði ég þetta:
Morgunmatur: Cultura+kornfleks+nektarína
10 kaffi: Nektarína
Hádegismatur: 2 egg, salat + salatsósa+ brauðsneið
Síðdegi: Hrökkbrauðsneið m smjöri+osti
Kvöldmatur: Svínakjöt+grænmeti+kartöflur
Kvöldkaffi: Rauðvínsglas hjá Bríeti

EN það er svo langt í þetta allt saman en samt ótrúlega stutt!!! En fyrst þetta!!!
Næsta mál á dagskrá hjá mér er lestur, fer í próf í vinnusálfræði á mánudaginn, geggjað stuð!!
já og átið á mér!!!
Í gær borðaði ég þetta:
Morgunmatur: Cultura+kornfleks+nektarína
10 kaffi: Nektarína
Hádegismatur: 2 egg, salat + salatsósa+ brauðsneið
Síðdegi: Hrökkbrauðsneið m smjöri+osti
Kvöldmatur: Svínakjöt+grænmeti+kartöflur
Kvöldkaffi: Rauðvínsglas hjá Bríeti
Rauðvínsglasið var nú ekki á dagskrá en eftir að hafa gengið rúmlega 8 km þá bauð Bríet mér í rauðvín um kvöldið og við horfðum á "Hamarinn" á NRK1, ferlega gaman að sjá svona íslenska sjónvarpsþáttaseríu í norska sjónvarpinu 
Amish...sjálfær þróun....
23. ágúst 2010 klukkan 18:22
Byrjaði á þessari færslu í gær 23. ágúst en hafði ekki orku í meira en tvær línur og klára því þetta núna í kvöld (24. ágúst).
Horfði á þátt um Amishfólkið og þá rann upp fyrir mér ljós, það að afla sjálfur þ.e. veiða, tína ber, sveppi, fjallagrös, eiga hænur, býflugnabú, rababara, jarðaber, kálgarð, gróðurhús og svo framvegis er einmitt málið
Langar til að eiga sneisafullt búr af allskonar afurðum t.d. sultum, saft, krydd og te.....
Hef reyndar alveg lifað svona, þ.e. týnt ber og ræktað eitt og annað en eiginlega ómeðvitað - langar til að bæta um betur. Svo er annað sem ég mun hafa í huga það er að það sem ég þarf að verða mér út um sé íslenskt ef sá valkostur er fyrir hendi. Sjálfbærni og samheldni verður mitt mottó....og svo verð ég að muna að vera sjálfri mér samkvæm
Auðvitað get ég ekki gengið alla leið, ég er auðvitað háð bílnum mínum, verð að komast á milli staða, bíllinn er innfluttur - get ekki búið hann til en eldsneytið þar eru valkostir. Fötin mín þar hef ég val, íslensk hönnun, íslenska ullin - love it!!
Þannig að þegar ég flyt heim til Íslands látið ykkur ekki bregða þá er stefnan að ég toppi mig
Ég kann ákaflega vel við hugtakið sjálfbærni og hefur "sustainable development" eða sjálfbær þróun oft verið fleygt fram þegar menn rökræða t.d. um nýtingu lands en á nú við alla aðra hluti einnig.
Hugtakið hefur verið í notkun í rúmlega tuttugu ár og það sem átt er við með sjálfbærri þróun er: "Þróun sem gerir okkur kleift að mæta nútíma þörfum án þess að stefna í voða möguleikum komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum." Hverjar eru okkar þarfir og komandi kynslóða? Matur, húsaskjól, menntun, siðferði, já og auðlindir!!! Hugsum okkur að við búum á eyjunni okkar og það kæmi eitthvað uppá í líkingu við stríð, náttúruhamfarir eða annað í þeim dúr, hvað ef við þyrftum að stóla algjörlega á okkur sjálf, getum við það? Ég nefni siðferði því ég er ekki viss um að þróunin þar sé jákvæð fyrir afkomendur okkar.
En þetta var bara svona smá pæl....nenni ekki að skrifa allt pælið - gæti haldið áfram með þetta eftir nokkra daga.....er að fara ð horfa á einn innfluttan afþreyingaþátt í sjónvarpinu.
Góðar stundir.
Horfði á þátt um Amishfólkið og þá rann upp fyrir mér ljós, það að afla sjálfur þ.e. veiða, tína ber, sveppi, fjallagrös, eiga hænur, býflugnabú, rababara, jarðaber, kálgarð, gróðurhús og svo framvegis er einmitt málið
Langar til að eiga sneisafullt búr af allskonar afurðum t.d. sultum, saft, krydd og te..... Hef reyndar alveg lifað svona, þ.e. týnt ber og ræktað eitt og annað en eiginlega ómeðvitað - langar til að bæta um betur. Svo er annað sem ég mun hafa í huga það er að það sem ég þarf að verða mér út um sé íslenskt ef sá valkostur er fyrir hendi. Sjálfbærni og samheldni verður mitt mottó....og svo verð ég að muna að vera sjálfri mér samkvæm
Auðvitað get ég ekki gengið alla leið, ég er auðvitað háð bílnum mínum, verð að komast á milli staða, bíllinn er innfluttur - get ekki búið hann til en eldsneytið þar eru valkostir. Fötin mín þar hef ég val, íslensk hönnun, íslenska ullin - love it!! Þannig að þegar ég flyt heim til Íslands látið ykkur ekki bregða þá er stefnan að ég toppi mig

Ég kann ákaflega vel við hugtakið sjálfbærni og hefur "sustainable development" eða sjálfbær þróun oft verið fleygt fram þegar menn rökræða t.d. um nýtingu lands en á nú við alla aðra hluti einnig.
Hugtakið hefur verið í notkun í rúmlega tuttugu ár og það sem átt er við með sjálfbærri þróun er: "Þróun sem gerir okkur kleift að mæta nútíma þörfum án þess að stefna í voða möguleikum komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum." Hverjar eru okkar þarfir og komandi kynslóða? Matur, húsaskjól, menntun, siðferði, já og auðlindir!!! Hugsum okkur að við búum á eyjunni okkar og það kæmi eitthvað uppá í líkingu við stríð, náttúruhamfarir eða annað í þeim dúr, hvað ef við þyrftum að stóla algjörlega á okkur sjálf, getum við það? Ég nefni siðferði því ég er ekki viss um að þróunin þar sé jákvæð fyrir afkomendur okkar.
En þetta var bara svona smá pæl....nenni ekki að skrifa allt pælið - gæti haldið áfram með þetta eftir nokkra daga.....er að fara ð horfa á einn innfluttan afþreyingaþátt í sjónvarpinu.
Góðar stundir.
Hreindýraveiðar í Dovrefjell
23. ágúst 2010 klukkan 10:35
Ég tók lestina héðan frá Åsi um hálf eitt á miðvikudaginn, það byrjaði reyndar ekki vel því henni seinkaði um korter og ég varð svolítið stressuð um hvort ég næði að hlaupa á milli brautarpalla á Oslo S, yfir í lestina sem ég ætlaði að taka upp í Hamar. Þetta tókst allt saman mjög vel, ég hafði með mér glósur sem ég ætlaði að lesa á leiðinni en ég fékk engan frið til þess vegna þess að við hliðina á mér sat gömul kona (72 år gammel Oslo jenta) sem talaði alla leiðina. Þegar ég kom til Hamar tók Oddný á móti mér, hún var ekkert rosalega hress hafði fengið í magann um nóttina og hafði bara verið heima um daginn. Við fórum í vinnuna til Ola í Skogfröverket, fengum okkur smá kaffi þar, skruppum í búð og keyrðum svo af stað. Fyrsta stopp var (Lilleström) Lillehammer (á þetta að vera) þar sem við fengum okkur kaffi, kíktum í Intersport og kíktum á ýmislegt bráðnauðsynlegt og brunuðum svo upp Guðbrandsdalinn. Við beygðum út af veginum við Ringebu og keyrðum yfir Ringebufjellet, komum niður í Atnadalen og keyrðum í norðurátt til Folldal og þaðan í áttina að E6 í Dovre. Við gistum í hyttu fyrstu nóttina. Keyrðum svo áfram til Kongsvoll þar sem við geymdum bílinn og gengum af stað. Það var ansi krefjandi ganga upp miklar brekkur upp í gegn um skóginn og þar fyrir ofan tóku við móar, við tjölduðum í um 1300 m hæð en ég held ég hafi aldrei áður tjaldað í svo mikilli hæð. Fyrsta kvöldið sáum við moskuxahópa og einn hreindýrahóp en því miður var veiðitímabilið ekki byrjað og við gátum ekkert annað gert en að fylgjast með hópnum. Á föstudagsmorgun mátti byrja að veiða, það var ræs kl 4:00 við héldum af stað frá tjaldinu upp úr kl 5:00. Það var þoka og smá rigningarúði. Við gegnum og gengum og gengum, sáum engin dýr, fullt af ummerkjum um þau á svæðinu en ekkert meir. Við lentum í því að vera óþægilega nálægt moskus-kú og vorum fljót að koma okkur í hvarf
Við gengum á einn topp í leiðinni sem var 1700-1800 m.y.s.
Þegar við komum í tjaldið var staðan sú að Oddný var orðin fárveik, henni var ískalt og sjóðheitt á víxl, með höfuðverk og leið mjög illa. Þá var tekin ákvörðun um að laugardagurinn yrði heimferðardagur. Við vorum svo komin niður til Kongsvoll um klukkan tvö á laugardeginum, fengum okkur smá kaffi og meðlæti áður en við keyrðum heim á leið. Bílferðin frá Kongsvoll til Elverum tók rúma þrjá tíma. Ég gisti svo þar og tók rútuna í bítið á sunnudag, var komin hingað heim á Skogveien um hádegi.
Þó þessi ferð hafi ekki farið eins og vonir stóðu til þá var þetta frábær upplifun, landslagið æðislegt, skemmtilegt fólk, flott hreyfing og algjörlega eitthvað sem á eftir að koma sér vel í reynslubankanum
Ég hef núna ferðast um fullt af svæðum í Noregi og ég held að ég hafi séð eitt fallegasta svæði Noregs á heimleiðinni en það er Rondane - ætla klárlega að fara þangað í hyttu við tækifæri. Svo sá ég líka hluta af Pilgrimveien sem væri gaman að fara í áföngum einhverntíman í framtíðinni og Lillehammer!!! Jeminneini hvað það er kósi þar, helgarferð þangað klárlega á dagskrá
og svo væri líka ferlega gaman að ganga á Snöhettu í Dovrefjell sem er sérlega fallegt fjall og var lengi vel talið hæsta fjall Noregs en hún er 2286 m.y.s
Kíkið endilega á myndirnar úr ferðinni, þær liggja hér.
Þegar við komum í tjaldið var staðan sú að Oddný var orðin fárveik, henni var ískalt og sjóðheitt á víxl, með höfuðverk og leið mjög illa. Þá var tekin ákvörðun um að laugardagurinn yrði heimferðardagur. Við vorum svo komin niður til Kongsvoll um klukkan tvö á laugardeginum, fengum okkur smá kaffi og meðlæti áður en við keyrðum heim á leið. Bílferðin frá Kongsvoll til Elverum tók rúma þrjá tíma. Ég gisti svo þar og tók rútuna í bítið á sunnudag, var komin hingað heim á Skogveien um hádegi.
Þó þessi ferð hafi ekki farið eins og vonir stóðu til þá var þetta frábær upplifun, landslagið æðislegt, skemmtilegt fólk, flott hreyfing og algjörlega eitthvað sem á eftir að koma sér vel í reynslubankanum

Ég hef núna ferðast um fullt af svæðum í Noregi og ég held að ég hafi séð eitt fallegasta svæði Noregs á heimleiðinni en það er Rondane - ætla klárlega að fara þangað í hyttu við tækifæri. Svo sá ég líka hluta af Pilgrimveien sem væri gaman að fara í áföngum einhverntíman í framtíðinni og Lillehammer!!! Jeminneini hvað það er kósi þar, helgarferð þangað klárlega á dagskrá
og svo væri líka ferlega gaman að ganga á Snöhettu í Dovrefjell sem er sérlega fallegt fjall og var lengi vel talið hæsta fjall Noregs en hún er 2286 m.y.sKíkið endilega á myndirnar úr ferðinni, þær liggja hér.
Nýtt albúm frá hreindýraveiðum
22. ágúst 2010 klukkan 14:22
Ekkert hreindýr lá í valnum, sáum fullt af dýrum á fimtudagskvöldið, sáum Moskuxa, fengum út úr þessu góða hreyfingu. Blogga meira síðar en hér eru myndir.
Allt klárt! Farin á hreindýraveiðar :)
18. ágúst 2010 klukkan 06:59
Jæja þá er allt klárt, búin að pakka í bakpokann, allskonar föt, hlý og regnheld í bland, ull og aftur ull, þurrmatur, harðfiskur, flatkökur, bollasúpur, smurostur í túbu, kex, hnetur, þurrkaðir ávextir, kakó, te, kaffi, svefnpoki, gsm, gps, kíkir, myndavél, peningar, bolli, skeið, gaffall, hnífur, sólgleraugu, tannbursti, tannkrem, blautþurrkur, klósettpappír...... Já ég held að ég sé með allt það nauðsynlegasta
Öllu þessu hef ég troðið í bakpokann minn og er klár í fjagra daga útiveru.
Svona er planið:
Ég tek lestina héðan inn til Osló S, þaðan tek ég aðra lest til Hamar og býst við að vera þar um klukkan þrjú. Þar hitti ég Ola og Oddný og við keyrum í norðurátt. Við ætlum að koma við í Lillehammer á leiðinni og versla ef eitthvað vantar, síðan höldum við áfram upp í Dovrefjell. Það verður smá lúxus á okkur fyrstu nóttina því við munum gista í hyttu sem vegagerðin á en Oddný vinnur hjá þeim. Síðan í fyrramálið keyrum við áfram í áttina að Snøhetta en það er svæðið sem Oddný fékk leyfi til að skjóta eitt stykki hreindýr á. Við ætlum að byrja á að ganga inn á fjallið og finna góðan stað til að slá upp tjaldinu, síðan er planið að taka daginn og fram í myrkur í að kanna aðstæður. Geri ráð fyrir að það verði þónokkuð mikil ganga á morgun semsagt. Á föstudaginn byrjar svo veiðitímabilið og þá má byrja að skjóta. Það er auðvitað ekkert öruggt að Oddný fái dýr á fyrsta degi og því gerum við ráð fyrir að vera þarna á gangi fram á sunnudag og miðast allt við það. Þegar búið er að ná dýrinu verðum við að gera að því og bera það með okkur í bílinn og ég ætla nú að vona að það verði ekki margir tugir kílómetra en maður má alveg búast við því
Eg reikna svo með að taka rútu eða lest frá Elverum eða Hamar í síðasta lagi á sunnudagskvöldið, nema að Haukur og strákarnir verði komnir á móti okkur en það á allt eftir að koma í ljós.
Svo skal ég blogga um ferðina á mánudaginn
Góðar stundir.
Öllu þessu hef ég troðið í bakpokann minn og er klár í fjagra daga útiveru. Svona er planið:

Hvatning
17. ágúst 2010 klukkan 06:30
Ég var að lesa grein eftir Sigurð Erlingsson á mbl um hvatningu en það er einmitt eitt af því sem er mikið rætt í ágústkúrsinum sem ég sit núna og því er ég mjög upptekin í þeim pælingum þessa dagana. Í greininni stendur m.a. þetta:
"Hvatning er meðvituð aðgerð annað hvort á eða innra með persónu til að hrinda af stað ákveðinni hegðun. Í stuttu máli hæfileiki til að framkvæma. Fólk veit oftast allt sem þarf að gera til að ná árangri en það bara framkvæmir ekki." Sjá greinina á mbl.
Og leiðirnar sem bent er á í umræddri grein til að viðhalda hvatningu eru t.d. þessar fimm:
1. Settu þér markmið.
2. Finndu jákvætt fólk til að umgangast.
3. Brostu.
4. Talaðu jákvætt.
5. Lestu hvetjandi bækur og farðu á hvatningarfyrirlestur.
OK eru ekki allir klárir í slaginn??
Kem örugglega til að skrifa meira um efni sem tengist þessum kúrsi þ.e. þegar ég verð búin að lesa í gegn um Kaufmann & Kaufmann og sitja í nokkrum fyrirlestrum. Þá ræði ég kannski um hvað veldur því að fjöldi veikindadaga eru algengari á sumum vinnustöðum en öðrum....
Matarbloggið....ég fór alveg eftir planinu í gær, fyrir utan það að ég datt óvart í saltstangir sem voru til inní skáp
og svo fór ég ekki út að hlaupa, var á flandri með drengjunum eftir skóla. Keyptum hlaupaskó á Stefán og hálfs árs kort í Ås treningssenter fyrir drenginn 
Matarplan dagsins í dag hljómar svona:
Ég þori ekki öðru en að borða vel af kjöti áður en ég fer á fjöll, nauðsynlegt að vera með góðan forða

| Mm: | 250 ml Cultura+30 gr havrefras+1/2 banani |
| 10 kaffi | 1/2 banani |
| Hm: | Brauðsneið+1 egg+40 gr túnfiskur+200-300 gr grænmeti |
| 3 kaffi | Nektarína |
| Km: | 120-170 gr nautakjöt í sýrðum rjóma/koriander + 200-300 gr. grænmeti |
| Kk: | Appelsína |
| Hreyfing | Ætla út að hlaupa og/eða í treningsenter með Stefáni Snæ |
Ég þori ekki öðru en að borða vel af kjöti áður en ég fer á fjöll, nauðsynlegt að vera með góðan forða

Real turmat
16. ágúst 2010 klukkan 15:51
Ég fór áðan og verslaði "Real turmat". Keypti alveg hreint heilan helling fyrir mikinn pening en þó hef ég það á tilfinningunni að svoleiðis nokkuð sé enn dýrara heima á Íslandi. Þannig að þannig lagað þá hef ég grætt 
En af hverju er ég haldinn þeirri sjálfspíningarhvöt að fara út í búð og kaupa þurrkaðan mat?? Það er nefnilega þannig að þegar lagt er af stað í fjögurra daga fjallatúr þá er nauðsynlegt að huga að orkunni og borða vel en jafnframt þarf maturinn að vera léttur. Já það er ekki tekið út með sældinni að vera að fara á hreindýraveiðar
En ljós í myrkrinu, ég verð líka með harðfisk, flatkökur og smjör

Aðhaldsblogg
15. ágúst 2010 klukkan 18:14
Verð að halda mig við efnið, mánudagur á morgun og þá er best að vera með daginn fyrirfram ákveðin matarlega séð.
Fyrir utan það að borða þá er stefnan að, byrja daginn á hlaupi, sitja í fyrirlestri í 4 klukkutíma, lesa, fara í búð og kaupa mér nýjan útivistarjakka og byrja að vigta og pakka í bakpokann......
| Mm: | 250 ml Cultura+30 gr kornfleks + 1/2 banani |
| 10-kaffi: | 1/2 Banani |
| HM: | 1 brauðsneið + 80 gr túnfiskur + 30 gr majo + 200-300 gr grænmeti |
| 3-kaffi: | Nektarína |
| KM: | 120-170 gr hakk og 200-300 gr grænmeti |
| Kk: | Appelsína |
Fyrir utan það að borða þá er stefnan að, byrja daginn á hlaupi, sitja í fyrirlestri í 4 klukkutíma, lesa, fara í búð og kaupa mér nýjan útivistarjakka og byrja að vigta og pakka í bakpokann......
Annar í afmæli
14. ágúst 2010 klukkan 18:48
Í dag héldum við upp á afmæli Þórðar Loga, fyrir leiskólafélagana. Við fengum lánaðan "Parken" sem er útileiksvæði sem leikskólinn hans nýtir. Þetta er afgirtur garður með litlu bjálkahúsi þar sem er salernisaðstaða, eitt herbergi sem hægt er að nýta sem borðstofu og svo er forstofa með pínulitlum eldhúskrók. Pallurinn fyrir utan er yfirbyggður og svo er þónokkuð af leiktækjum þarna, kanínur í búri og undir rennibrautinni voru kettlingar. Bara gaman, þegar heim var komið fórum við með afgangana út í garð og gáfum krökkunum sem búa hér. Flottur dagur. Hiti 25°C logn, sól - yndislegt
Myndir sem við tókum í dag eru hér
Myndir sem við tókum í dag eru hér
5 K
12. ágúst 2010 klukkan 19:08
Við Gunna fórum út í kvöld með það að markmiði að hlaupa 5 km sem við gerðum. Þetta var svona:
Ganga 1 km - 10 mín.
Hlaup 5 km - 37:40 mín.
Ganga 890 m - 9 mín.
Við erum hrikalega sáttar
Ég held að formið sé alveg ásættanlegt, nauðsynlegt að vera búinn að byggja sig aðeins upp fyrir átökin sem framundan eru á hreindýraveiðum.........

allt á "fúllsvíng"
12. ágúst 2010 klukkan 07:02
Stefán Snær kemur "heim" til Noregs í dag, það eru allir mjög spenntir að fá drenginn heim en hann er búinn að vera á Íslandi í þrjár vikur. Þar hefur hann verið að mestu hjá föðurfólkinu sínu, skroppið á Akureyri, hitt vini í Reykjavík og farið í bíó, farið í matarboð til fjölskyldu minnar en aðallega hefur hann verið að vinna í gróðurhúsunum hjá ömmu sinni þannig að nú á hann pening karlinn 
Skólinn hjá honum byrjar síðan þann 19. ágúst en svo er það sem áður hét kartöflufrí en heitir nú haustfrí í viku 40 eða 4.-8. okt. Fyrsti dagur í jólafríi er svo 22. des.
Það er í nógu að snúast þessa dagana hjá okkur. Við Gunna erum rosalega duglegar að æfa og ætlum að taka 5 km hlaup í kvöld + einhverja göngu. Dagurinn á morgun fer svo í að undirbúa leikskólaafmælið hans Þórðar Loga, baka og stússast. Síðan á ég eftir að versla aðeins inn og undirbúa mig fyrir það sem gerist í næstu viku........eða eftir sex daga
......já og svo er ég í námi og Haukur að vinna, þannig að það er allt á fúllsvíng!!!!

Smá matarblogg eftir pöntun
11. ágúst 2010 klukkan 11:52
Ég er kolvetnafíkill!!!! Og þess vegna ákvað ég að taka í hnakkadrambið á mér og borða "rétt", vera með mig í gjörgæslu hvað mat varðar. Það er nefnilega alltaf þannig að ég dett í brauðát með tilheyrandi vanlíðan og orkuleysi og því er það mikilvægt fyrir mig að borða "rétt". Ég þarf að passa uppá að hafa dagsskammtinn rétt samsettan og því reynist sá gamli góði danski mér ákaflega vel, ég kann þetta alveg
hér er smá útlistun á tveimur dögum og nokkur lykilatriði sem ég fer eftir.
Þetta borðaði ég í gær:
Þetta er dagurinn í dag.
Það sem er lykilatriði að borða á hverjum degi er:
4 ávexti.
Tvisvar sinnum grænmetisskammt ca 250-400 gr.
Ca 1/2 líter af mjólk eða 250 ml jógúrt eða AB mjólk.
Fita!!! ca 20-30 ml í formi smjörs á brauð, olíu í dressingu, majones í salat og ef ég geri ekkert af þessu þá tek ég olíu í matskeiðaformi á kvöldin.
Hámark tvær brauðsneiðar.
Ca 80-120 gr kjöt eða fisk eða 2 egg eða 50 gr ost í hádeginu.
Ca 120-170 gr kjöt eða fisk í kvöldmat.
Muna!!!
Alltaf samtals fjögur egg á viku, hvorki meira né minna. Alltaf minnst þrisvar sinnum í viku fisk, má vera oftar. Aldrei meira eða minna en þrisvar sinnum í viku rautt kjöt. Aldrei meira en 200 gr af osti á viku.
hér er smá útlistun á tveimur dögum og nokkur lykilatriði sem ég fer eftir.Þetta borðaði ég í gær:
| Morgunmatur | 30 gr kornfleks (special K), 250 ml Cultura (AB mjólk) 1/2 banani |
| "10" kaffi | 1/2 banani |
| Hádegsimatur | ca 300 gr heimalöguð grænmetissúpa, 2 harðsoðin egg, 1 brauðsneið með smjöri. |
| Síðdegishressing | Epli |
| Kvöldmatur | Kjúklingabringur með bökuðu grænmeti, sólþurrkuðum tómötum og salat. |
| Kvöldhressing | Appelsína |
Þetta er dagurinn í dag.
| Morgunmatur | 30 gr kornfleks (special K), 250 ml Cultura (AB mjólk) 1 banani |
| "10" kaffi | Nektarína |
| Hádegismatur | ca 300 gr heimalöguð grænmetissúpa, túnfisksalat (80 gr túnfiskur + 30 gr majo) 1 baruðsneið |
| Síðdegishressing | 1 brauðsneið með gúrku |
| Kvöldmatur | Matarboð en borða smá grænmeti áður en ég fer og passa mig að borða passlega mikið. |
| Kvöldhressing | Appelsína |
Það sem er lykilatriði að borða á hverjum degi er:
4 ávexti.
Tvisvar sinnum grænmetisskammt ca 250-400 gr.
Ca 1/2 líter af mjólk eða 250 ml jógúrt eða AB mjólk.
Fita!!! ca 20-30 ml í formi smjörs á brauð, olíu í dressingu, majones í salat og ef ég geri ekkert af þessu þá tek ég olíu í matskeiðaformi á kvöldin.
Hámark tvær brauðsneiðar.
Ca 80-120 gr kjöt eða fisk eða 2 egg eða 50 gr ost í hádeginu.
Ca 120-170 gr kjöt eða fisk í kvöldmat.
Muna!!!
Alltaf samtals fjögur egg á viku, hvorki meira né minna. Alltaf minnst þrisvar sinnum í viku fisk, má vera oftar. Aldrei meira eða minna en þrisvar sinnum í viku rautt kjöt. Aldrei meira en 200 gr af osti á viku.
Útilega við Vinjeveien
09. ágúst 2010 klukkan 15:23
Útilega skildi það vera um helgina með Ola, Oddný og stelpunum.
Við lögðum af stað frá Åsi kl 16:30 á föstudaginn, fyrsti stoppustaður var Ski, þar sem við keyptum það sem vantaði að mati bóndans (bjór og mótorolíu). Við vorum komin til Elverum milli sjö og hálf átta en það var rosalega þung umferð svona ca frá Eidsvoll og norður fyrir Minnesund. Við borðuðum hjá Ola og Oddný og drifum okkur af stað upp Austurdalinn tja líklega um hálf tíuleytið um kvöldið. Við keyrðum upp í Koppang þar sem við keyptum okkur veiðikort og héldum svo upp dal eftir vegi sem kallast Vinjeveien og liggur í rauninni norðvestur frá Koppang, við vorum fljótlega búin að hækka okkur úr ríflega 250 hæð upp í tæplega 900 metra, vorum alveg í skógarmörkunum, tré á stangli og hreindýramosi og lyng þakti yfirborðið. Við fundum ekki staðinn sem við stefndum á að tjalda á þarna í myrkrinu, þannig að við tókum ákvörðun um að slá upp tjöldum og gista á alveg ágætisstað en samt ekki alveg eins og við stefndum að..... Við vorum sofnuð um klukkan tvö um nóttina.
Morguninn eftir byrjuðu börnin á því að tína krækiber, við borðuðum morgunmat, tókum niður tjöldin og keyrðum að Imsdalsfjellet og gengum á það. Ola þekkir þetta svæði mjög vel en þarna hefur hann oft verið á veiðum og hann benti okkur á hin ýmsu kennileyti, dali og fjöll. Þegar fjallgöngunni var lokið fórum við og fundum staðinn sem við vildum tjalda á, slógum upp tjöldum, fengum okkur smá að borða og héldum að vatni í nágrenninu þar sem reynt var að veiða fisk, en ekki tókst og svo tókum við smá kajaktúra, allir fengu að prófa, það var svo gaman!!! Þegar klukkan var langt gengin í níu fórum við í tjaldbúðirnar, grilluðum og nutum stundarinnar, sólarlagsins og kyrrðar. Vorum komin inn í tjöld og sofnuð um hálf eitt. Á sunnudagsmorguninn, fórum við í að pakka saman, borða morgunverð og keyra niður á við, týndum ber og fengum okkur vínarpylsur í Koppang. Við keyrðum heim á leið frekar snemma því búist var við mikilli umferð frá Elverum til Osló vegna hátíðar og sýningar sem var þar um helgina. Við vorum komin á Ås um hálf sjö um kvöldið. Allir alsælir eftir ekta norska útilegu í frábæru umhverfi með frábæru fólki.
Á morgun byrja ég svo í ágústblokk, kúrs sem er kenndur næstu þrjár vikur og heitir "Organisasjons- og ledelsespsykologi". Stefán Snær kemur heim á fimmtudag, við höldum upp á leikskólaafmæli fyrir Þórð á laugardaginn og eftir níu daga, já bara níu daga....ef þið bara vissuð!!!

myndir 6.-8. ágúst
09. ágúst 2010 klukkan 07:44
Ég er búin að skella inn fullt af myndum frá helginni inn á myndasíðuna hér.
útilega
05. ágúst 2010 klukkan 21:03
Á morgun er ætlunin að byrja daginn á skokktúr, taka til, versla inn og þegar Haukur er búinn í vinnunni ætlum við að leggja land undir fót. Stefnan verður fyrst sett á Elverum til Ola og Oddný og þaðan ætlum við að keyra norður fyrir Koppang, til fjalla þar sem við ætlum að tjalda og eyða helginni. Stefnt er að því að veiða, tína moltebær, fara á kajak og í gönguferð. Við erum öll mjög spennt
leiðinlegt samt að Stefán Snær skuli ekki vera með en hann er enn á Íslandi - kemur hingað heim eftir viku.
leiðinlegt samt að Stefán Snær skuli ekki vera með en hann er enn á Íslandi - kemur hingað heim eftir viku.kílóa og hlaupablogg....
05. ágúst 2010 klukkan 09:25
Ég og Gunna erum búnar að vera duglegar að fara út að hlaupa saman núna undanfarið, höfum bætt okkur í hvert skiptið sem við förum og erum bara ansi ánægðar með okkur. Það er svo makalaust að oft hugsa ég áður en ég fer að hlaupa að þegar heim verði komið ætli ég að fá mér eitthvað svakalega gott en svo endar það oftast þannig að ég læt vatn og ávöxt duga. Hreyfingin hefur nefnilega ótrúleg áhrif á mataræðið, allavega í mínu tilviki. Thea var að senda mér póst um aðhaldanámskeið (Grete Roede) sem er ekkert ósvipað því sem dönsku vigtarráðgjafarnir bjóða uppá. Þetta er átta vikna námskeið, þar sem fundað er 1 sinni í viku í 1 til 1 1/2 klukkutíma, vigtað og frætt - mjög spennandi námskeið EN auðvitað kostar þetta peninga 1990 NOK!!! Það sem er innifalið auk fundanna og ráðgjafar eru tvær bækur. Það er fínt að taka svona námskeið til að koma sér í góðan matarlegan farveg, læra ný "trix" í hollum matarvenjum. Ég hef reyndar ekki hugmynd um hvað ég er þung þessa dagana en ég finn það alveg að í sumarfríinu var ég ekki að léttast, eiginlega bara að bæta á mig!!! Gæti verið að ég þyrfti að taka burt 5 kíló en hvað með það....???!!!!
Mér finnst reyndar kílóatalan ekki segja neitt í raun, því þetta er jú bara tala en gefur ekkert viðmið um annað líkamlegt ástand. Ég veit ca á hvaða róli ég á að vera 67 kg +/- 5 kg. en auðvitað ef ég væri 25 kílóum of þung þá væri það ekki gott en ég meina að þó ég sé eitthvað þyngri en formúlan segi þá finnst mér skipta meira máli að vera í góðu líkamlegu ástandi, geta gengið upp á fjall án þess að ganga fram af mér, geta skroppið í hjólatúr, út að skokka, í leikfimi og svona mætti lengi telja
Svo er líka ágætis markmið að stefna að því að halda sér í sömu fatastærðinni, það virkar hjá mér og svo er það svo asssgoti mikill sparnaður

þrjár staðreyndir
04. ágúst 2010 klukkan 09:41
Við Haukur eigum átta ára brúðkaupsafmæli í dag.
Guðrún Ólafía (systir mín) er 33 ára í dag.
Hér verður grillað lamb í kvöldmatinn.

5
03. ágúst 2010 klukkan 07:27
Þórður Logi er fimm ára í dag - eigum við eitthvað að ræða það hvað tíminn er fljótur að líða - drengurinn er að byrja í skólahóp á leikskólanum!!!! Við ætlum að hafa smá kökuboð í dag fyrir íslendingana eins og Þórður Logi segir en aðalveislan fyrir jafnaldrana verður haldin í "Parken" á leikskólanum hans þann 14. ágúst n.k. gleði, gleði, gleði
Grimstad og Melody Gardot
03. ágúst 2010 klukkan 07:23
Eftir vinnu á föstudag brunuðum við á Skódanum til Moss þar sem við tókum ferjuna til Horten og keyrðum svo suður til Grimstad. Við vorum komin á Binabbgaten til Bríetar og Björns fyrir níu um kvöldið þar sem beið okkar þessi fína pizzuveisla og rauðvín. Húsið er alveg frábærlega staðsett, rétt ofan við miðbæinn en frá veröndinni er gott útsýni yfir höfnina og út í eyjar. Við tókum smá könnunarleiðangur í bæinn strax þarna um kvöldið og komum svo heim og sátum við spjall frameftir nóttu. Á laugardeginum fóru karlarnir og börnin í smá siglingu út í eyju en við Bríet fórum og hittum fisksalan og keyptum í kvöldmatinn, ekta norskan sumarmat; rækjur og krabba. Við gerðum okkur svo klárar fyrir kvöldið, borðuðum þennan fína mat og drukkum kampavín með (ekki amalegt). Við vorum svo keyrðar til Arendal þar sem við áttum miða á einn viðburð á "Canal street" en það voru tónleikar frá kl 18-24 með Hilde Louise Asbjørnsen, Richard Bona og Melody Gardot. Mér fannst þessi Hilde Louise alltof djössuð fyrir minn smekk og eiginlega ekkert spes, Richard Bona var mjög skemmtilegur og hress en toppurinn var auðvitað að sjá og hlusta á Melody Gardot. Ég á eiginlega ekki til eitt lýsingarorð yfir þá manneskju heldur verð ég að notast við mörg en samt næ ég ekki að koma orðum yfir þetta: Hún er magnaður tónlistarmaður, fjölhæf, sérvitur, skemmtileg, spes, einstök og og og ég gæti haldið svona lengi áfram. Ég mæli með tónleikum með henni EF ykkur líkar tónlist af þessu tagi. Ég mun lifa á þessari tónlistarveislu lengi en ég má ekki gleyma þeim fjölmörgu hljóðfæraleikurum sem spiluðu með þessu frábæra fólki, magnaðir alveg en ég verð að segja að sellóleikarinn sem spilaði undir hjá Melody hafi komið mér mest á óvart - hverskonar ólíklegustu hljóð geta komið úr því hljóðfæri....en eins og fyrr, það er ekki hægt að lýsa þessu með orðum, ég mæli með svona tónleikum.
Á sunnudeginum skruppum við í siglingu út í litla eyju, veiddum krabba og grilluðum pylsur, enduðum svo í köku og kaffi hjá Bríeti og keyrðum svo heim. Yndisleg helgi sem var allt of stutt.