Ísland eftir tvo mánuði
hvað ætli vikan hafi farið í.....???
Við höfum semsagt haft það fínt þessa viku, ég átti nú von á að hún yrði lengi að líða þar sem Haukur byrjaði að vinna á mánudaginn og við Þórður Logi ein á daginn.....en það hefur ræst úr þessu.
Ég er í góðum málum varðandi hreyfingu, skokk og ganga
gleði, gleði, gleði 
Seinnipartinn í dag ætlum við til Son á Olsok-hátíð og seinnipartinn á morgun ætlum við að keyra til Grimstad þar sem við ætlum að vera um helgina hjá Bjarnarfjölskyldunni (Björn og Bríet).
Spekemat
"Fenalår" en það er lambalæri sem hefur verið saltað, þroskast eða hangið held ég að átt sé við (n.modnet) og þurrkað. Þetta getur maður keypt heilt á beini eða í bitum. Maður borðar Fenalår þannig að það er skorið niður í örþunnar sneiðar og notað sem snakk eða borðað með eggjahræru. Ég hef prófað hvorutveggja og þykir gott.
"Spekeskinke" er svínslæri sem hefur verið saltað og þurrkað. Það er eins með hana, hægt er að kaupa hana í heilu á beini eða í bitum. Hún er borin fram í þunnum sneiðum ásamt norskum flatkökum og sýrðum rjóma, þannig að spekeskinkan og flatbrauðið er eins konar snakk og sýrði rjóminn ídýfa.
Fleira sem flokkast undir spekemat er:
SALAMI, LETTSALAMI, KRYDDERSALAMI, FÅREPØLSE,VOSSAFÅR OG TIRILTUNGE, STABBUR, FJELLBIT, REINSDYRPØLSE, MORRPØLSE, PÆRESKINKE, WESTFALERSKINKE, SPEKEKJØTT, SKINKERULL, DYREKJØTT.
Spekemat er mjög vinsæll og selst alltaf mikið af honum á sumrin þar sem hann hentar vel í hverskonar ferðir og svo er hann ekki slæmur á heitum degi með svalandi drykk.
Olsok
Ég varð enn forvitnari um þennan dag þegar Haukur fór að segja mér áðan að ef við vildum kynnast norskum tradisjonum þá þyrftum við að fara á hátíð á fimmtudaginn sem væri haldin vítt og breytt. Hér í nágrenninu gætum við valið um að fara til Son eða Drøbak....og á þessari hátíð er borðaður rømmegrøt og spekemat.....hm...enn meira forvitin, þetta hafði ég upp út krafsinu - það er semsagt Ólafsvaka á fimmtudaginn!!!! Hún er víst ekki bara haldin hátíðleg í Færeyjum - jibbíí!!!
Olsok (fra norrønt ólafsvaka) er festen for Olav den hellige, som feires på hans dødsdag 29. juli.
Olsok betyr - tilsvarende som for Jonsok - egentlig høytidsaftenen før Olavsdagen. Olav den hellige falt på Stiklestad 29. juli 1030, og dermed skulle olsok være 28. juli om kvelden (og natt til 29. juli). Men olsok har etter hvert kommet til å bli brukt om selve Olavsdagen den 29. juli. Dagen er markert med en øks på primstaven.
Før reformasjonen var dette en av de viktigste helgenfester i Norge, og på grunn av Olavs spesielle posisjon i norsk historie ble den bevart som en nasjonal festdag også etter reformasjonen.
I moderne tid har dagen i Den katolske kirke i Norge status som høytid, det vil si en dag hvor det er obligatorisk å feire messe for Olav den hellige. I andre land feires samme dag festen for Marta av Betania. Dagen feires også av ortodokse kirker i Norge.
Dette trenger du til fire posjoner rømmegrøt
* 5 dl seterrømme
* 2 dl hvetemel
* 5 dl melk
* 1 ts salt
* sukker og kanel
Fremgangsmåte
1. Kok rømmen under lokk i 2 minutter.
2. Rør i halvparten av melet. Rør kraftig, så kommer smøret frem. Skum av litt av smøret og server det varmt til grøten.
3. Rør i resten av melet, og spe med melken. Kok grøten i ca 5 minutter. Smak den til med salt.
4. Server den med rømmesmøret, sukker og kanel på.
Rød saft smaker godt til.
Spekemat til rømmegrøten
Ha gjerne et fat med spekemat og frukt og gønt til det er lekkert og godt.
Legg for eksempel fårepølse, salami, spekeskinke, jordbær, honningmelon og purre på et lekkert fat.
Til spekmat er øl supert å drikke.
Sprungnir hælar
Ég tók ca 2 msk maldonsalt og svipað magn af kókosolíu (allt í lagi að nota hvaða olíu sem er) hrærði þessu saman. Settist svo á gólfið með handklæði undir fótunum og byrjaði að nudda hæla, iljar og tær með þessu gumsi, horfði í mynd í sjónvarpinu á meðan með rauðvín á kantinum.
Fullt af myndum!!
Albúmin heita:
6.-13.juli_2010 Er frá dvölinni í Norefjell með stórfjölskyldunni.
14.-20.júlí_2010 Er frá viðkomu í Hamar, Elverum, Löten, Kongsvinger og Holmenkollen.
21.-22.júlí_2010 Er frá skoðunarferð í nágrenni Askim, grillveislu hjá Stínu frænku og síðan lautarferð upp við Sognsvann eftir að við vorum búin að keyra mömmu, pabba og Stefáni Snæ á flugvöllinn.
Komin heim eftir gott ferðalag
Mánaðargestatörn lauk í dag þegar mamma og pabbi flugu heim eftir 16 daga frí hér í Noregi. Gestatörnin byrjaði 22. júní þegar tengdamamma, Kolla og fjölskylda komu og voru í viku. Síðan kom Tedda vinkona og synir og þau voru í viku (þessar heimsóknir skörðuðust lítillega). Þá komu systkyni mín og fjölskyldur og voru í viku og mamma og pabbi komu með þeim og voru 9 dögum lengur. Síðan kom Jón á Hlíðarenda, æskuvinur Hauks fyrir viku og var í fimm daga.
Það má segja að við höfum farið ansi víða á þessum vikum, farið á ýmsa staði og má segja að austur Noregur sé orðin ágætlega dekkaður hjá okkur

Stefán Snær var samferða mömmu og pabba heim til Íslands í dag og verður þar í þrjár vikur. Við hin sem heima sitjum stefnum á að vera hér heima við í rólegheitum næstu daga - skreppum kannski á ströndina og dúllum okkur. Síðan er stefnt á skemmtiferð með skokkívafi upp í Sognsvann á sunnudaginn.
Jæja verð að rjúka, Gunna var að senda mér sms og við ætlum að fara út að hreyfa okkur

Set inn myndir frá fríinu fljótlega.
Góðar stundir
Halló!!!
Ég er búin að setja inn þrjú ný albúm á myndasíðuna mín, þau heita:
24.-25.juni_2010
27.-20.juni_2010
Kanótúr og útilega 1.-3.julí_2010
Ég og við öll erum alsæl eftir frábæra ferð norður til Femunden, þar sem við sigldum á kanó og tjölduðum úti í eyju á vatninu Isteren, þar sem við áttum saman skemmtilegan tíma með góðum vinum okkar þeim Teddu og sonum sem voru í viku heimsókn hjá okkur og Oddný og Ola sem voru fararstjórar þessarar ferðar. ohhhh hvað ég hlakka til að halda áfram að ferðast hér í Noregi!!! Maður er alltaf að sjá eitthvað nýtt og prófa eitthvað nýtt - Haukur heillaðist af kajakróðrinum og ég mér kæmi ekki á óvart að það verði eins með kajakmálin og skíðamálin....say no more....
En jæja, best að fara að halda áfram að þvo þvott og undirbúa næstu heimsókn og ferðalag. Stórfjölskyldan mín kemur á þriðjudag og við verðum hér á Åsi í þrjá daga og brunum svo til Norefjell

....og já hlaupaskórnir verða brúkaðir reglulega frá og með morgundeginum.