Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

í fríi

29. júní 2010 klukkan 18:41
Kúrsinn (skólinn) kláraðist klukkan fjögur fimmtudaginn 24. júní - þannig að nú er ég komin í sumarfrí Cool
Tengdafjölskyldan var hér í viku, fóru í dag - við fórum með þeim á ströndina í Hvitstein, Tusenfryd, Osló og svo skruppu þau til Gautaborgar um helgina. Tedda vinkona og synir komu á laugardaginn var, fara á sunnudag næsta - við erum búin að fara með þeim á ströndina í Dröbak, Tusenfryd og til Ski. Á morgun á að kíkja til Osló og keyra svo til Elverum. Á fimmtudaginn verður förinni heitið upp í Femundsmarka en við ætlum að taka með okkur tjöld, nesti og nýja skó og sigla á kanó og finna okkur góða vík til að tjalda við og njóta náttúrunnar á þessum magnaða stað. Við verðum í för með Oddný og Ola sem þekkja svæðið vel. Semsagt ekkert nema gleði hér Smile
Við Tedda erum búnar að fara í tvo göngutúra og eitthvað munum við ganga upp í Femundsmarka ef ég þekki okkur rétt. Í næstu viku byrja ég svo að fara eftir prógramminu góða Kiss
Góðar stundir Wink

Nytt endurskodad plan eftir goda abendingu ;)

24. júní 2010 klukkan 12:55
Nyja planid - (eftir endurskodun) litur svona ut:

Juli Mandag Tirsdag Onsdag Torsdag Fredag Lørdag Søndag
Vika 27 3 km 3 km Årungen 4 km
Vika 28 3 km 4 km Årungen 4 km
Vika 29 4 km 4 km Årungen 4 km
Vika 30 5 km 4 km Årungen 4,5 km
Agust
Vika 31 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 3 km
Vika 32 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 4 km
Vika 33 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 5 km
Vika 34 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 7 km
September
Vika 35 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 9 km
Vika 36 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 11 km
Vika 37 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 12 km
Vika 38 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen Oslo-hlaup

Thid erud ørugglega ordin leid å thessum markmidum minum endalaust.....en....

23. júní 2010 klukkan 11:23
Enn og aftur hef eg farid i gegn um likamsræktarmålin min og markmid. Thad hef eg thurft ad gera vegna heilsuleysis og anna i skola Embarassed
Eg se fram a ad thurfa ad breyta skraningunni minni i Osloarmarathoninu og fara frekar bara 10 km i stad 21 km, en ætla tho ekki ad gera thad strax - ætla ad sja til hvernig sumarid fer i mig. Skokkplanid er i grofum drattum thetta:

Juli Mandag Tirsdag Onsdag Torsdag Fredag Lørdag Søndag
Vika 27 3 km 3 km Årungen 4 km
Vika 28 3 km 4 km Årungen 4 km
Vika 29 5 km 5 km Årungen 5 km
Vika 30 5 km 5 km Årungen 7 km
August
Vika 31 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 7 km
Vika 32 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 7 km
Vika 33 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 8 km
Vika 34 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 9 km
September
Vika 35 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 10 km
Vika 36 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 12 km
Vika 37 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen 12 km
Vika 38 6 km + styrke 6 km + styrke Årungen OSLO-Hlaup

Til ad utskyra thetta betur tha stefni eg a ad fara i "styrke" tvisvar i viku i sumar-haust-vetur og skokka til og fra æfingum. Thetta eru klukkutima langir timar thar sem æft er med allskonar lod og allir vødvahopar få æfingu Cool Å føstudøgum er planid ad ganga hringinn i kring um Årungen (vatnid) en thad eru rumlega 12 km.
Svo hjøla eg nu i skolann og svona thad sem eg tharf ad snuast en thad er ekki partur af programminu.

Eg mundi gjarnan vilja fa komment fra ykkur lesendur godir, hvad ykkur finnst um programmid mitt - tilløgur ad breytingum ef einhverju er åbotavant.

Jæja best ad halda åfram ad læra - tok mer bara sma påsu til ad blogga - eftir klukkan fjøgur å morgun (fimmtudag) verd eg komin i fri fra skola til 10. agust jeeiiijjjjj!!!!

Sannleikur

21. júní 2010 klukkan 10:04
"Treystu sjálfum þér. Skapaðu persónu sem þú getur hamingjusamlega lifað með alla ævi. Gerðu það besta úr sjálfum þér og glæddu þinni innri vonarneista til að kynda undir bál drauma þinna og afreka." Golda Meir.

komin heim

19. júní 2010 klukkan 13:54
Ég kom heim um þrjúleytið í gær (föstudag) eftir að hafa verið á Åstjern (Brandbu) alla vikuna. Ég lærði ýmislegt þar og fékk innsýn inn í viðarfræði, lærði undirstöðuna í viðarflokkun og fylgdi vinnsuferlinu frá trjástofni til utanhúsklæðningar og svo lærði ég ýmislegt um skógarvegi og vegagerð í skógi. Útivera var mikil og stemmingin alveg týpísk norskt. Við bjuggum í stóru húsi þarna en í því voru herbergi, stofa og eldhús og matsalur, í öðru húsi við hliðina á var kennslustofa, sturtur og klósett sem voru af frumstæðarin gerðinni svokölluð "utedo" mjög kósí - fannst samt alltaf eins og ég ætti eftir að gera eitthvað eþgar ég var búin að loka, sturta niður eða eitthvað....fann samt þegar ég settist á mitt vatnsklósett hvað það er nú einhvernvegin svona meiraa ég.....  UUUUU en já, Åstjern liggur í 560 m hæð yfir sjávarmáli, mjög skemmtilegur skógur þar í kring, mikið af kindum á svæðinu en það heyrðist vel í þeim en allar voru þær með bjöllur. Skiptst var á að elda á kvöldin og þá var venjulegur norskur heimilismatur, fyrir utan síðasta kvöldið en þá var grillað:
Mánudagur: Kjötpylsur og kartöflustappa + smá gulrætur og brokkoli.
Þriðjudagur: Kjötkaker (kjötfarsbollur) brún sósa, kartöflur, soðnar grænar baunir.
Miðvikudagur: Gryturéttur með brauði og það var keyptur eitt heilt salatknippi með, samskonar og Lambahagasalatið fyrir okkur 10 manns!!!!!
Fimmtudagur: Svínakótelettur, pylsur, lompur, kartöflusalat og grillaðir tómatar.
Í morgunmat alla dagana var brauð og allskonar álegg, þá smurðum við okkur hádegisnesti. Ávextir og meira grænmeti var ekki í boði - allt of dýrt var sagt. Þannig að ég byrgði mig vel upp af eplum og nektarínum strax á fyrsta degi. Ég á rosalega erfitt með að skilja mataræði innfæddra hér, mikið til unnar matvörur, allt þetta brauð, ávextir og grænmeti í lágmarki ussussusss.
Mér tókst að krækja mér í flensu í vikunni, byrjaði að gera vart við sig á miðvikudag og svo var ég alveg ómöguleg á fimmtudag og föstudag. Við fjölskyldan hættum því við helgarferð til Grimstad og erum bara heima að safna kröftum. Ég stefni á að komast í gönguferð á morgun, nú eru ekki nema 99 dagar í stóra hlaupið mitt í sept og ég hef lítið komist til að hreyfa mig......agalegt hvað skólinn er að slíta í sundur hjá manni tímann!!! En núna er bara ein vika eftir af kúrsinum og þá er ég komin í sumarfrí til 9. ágúst.
Það styttist svo í að fyrstu sumargestirnir komi...... Mikill spenningur á heimilinu.
Hér eru svo myndir frá vikunni.
Góðar stundir.

Línudans, lúðrasveit, heitar vöfflur, hoppukastali - nýtt albúm

13. júní 2010 klukkan 07:38
Ås mart´n var um helgina - byrjaði á fimmtudagskvöld og endaði í gærkvöld. Veðrið hefði reyndar mátt vera betra en hér var rigning og 15° hiti en það aftraði okkur ekki að taka þátt. Á seinnipartinn á föstudaginn röltuðum við á milli sölutjalda, horfðum á línudansgrúppu sína atriði, keyptum okkur heitar vöfflur af bekknum hans Stefáns og spáðum í hjól hjá hjólasölumanninum. Þegar heim kom var gerð pizza eins og vanalega á föstudögum og horft á HM í fótbolta um kvöldið (ég dormaði reyndar yfir því).
Á laugardaginn tókum við til í 45 fermetrunum okkar og eftir hádegið röltuðum við niður í bæ með fjóra lítra af vöffludeigi sem við skildum eftir í sölutjaldi 8-3 Cool Við keyptum okkur vöfflur, fórum á kaffihús í kakó, skoðuðum í búðir og sölutjöld og hlustuðum á lúðrasveitina. Þá bættust við góðir gestir frá Osló; Pálína, Íris dóttir hennar, Huginn 3 ára vinur þeirra og Ísak kom svo um kvöldmatarleytið. Þá hófst nú fjörið og krakkarnir fengu miða til að fara í "tívolítæki" þ.e. hoppukastala og hringekju - á leiðinni heim voru allir pollar hér í Ås þurrkaðir upp, kíkt á rólur og ýmis leiktæki.
Við enduðum svo daginn á grillveislu hér heima með Oslóargestunum okkar.

Til gamans þá set ég hér inn uppskrift af 2 lítrum af vöffludegi en hver nemandi í 8-3 skaffaði 4 lítra af deigi í vöfflusöluna. Það er snilldar fjáröflun að mínu mati, vafflan var seld á 10 NOK og glas af safti eða kaffi á 5 NOK. Tvö tvöföld vöfflujárn, plastglös, servéttur, sultur, mjólk, kaffi á brúsum, saft á flöskum og fullt af deigi í gosflöskum er allt sem þarf Laughing

Vöffludeig 2 lítrar
4 egg
1,5 dl sykur
1 líter hveiti
1,5 tsk lyftiduft
1,5 tsk vanillusykur
1,5 tsk kardimommur
1 líter mjólk
150 gr brætt smjör

Deigið er svo sett á plastflöskur eða í mjólkurfernur svo þægilegt sé að flytja það og hella í vöfflujárnið Cool



Ég legg af stað fyrir sex í fyrramálið til Åstjern sem er í u.þ.b. 120 km fjarlægð en ég verð þar alla vikuna í kúrs....og síðasta vikan í kúrsinum er hér í Ås 21.-25. júní.
Við erum að gæla við að skreppa til Grimstad (sem er á Sørlandinu) um næstu helgi í heimsókn til Björns og Bríetar í sumarhúsið þeirra. Á þriðjudaginn eftir rúma viku (þann 22.) koma svo gestir frá Íslandi; tengdamamma, Kolla, Hemmi og börn. Tedda og synir mæta svo á svæðið þann 26. júní. Það er semsagt nóg um að vera hér og sjáum við fram á að ferðast mikið næsta mánuðinn - vona að veðrið verði þokkalegt en hér er spáð köldu sumri, spurning hvort okkur finnist það ekki alveg frábært samt Cool


Dagurinn er lítið planaður í annað en afslöppun, hreyfingu og samveru - núna eru Haukur og Þórður í hjólaviðgerðum en merkilegt alveg - slöngunni úr afturdekkinu á hjóli hans Stefáns var stolið!! Skrítið að stússast við að losa dekkið til að ná slöngu!!!!

HÉR ERU NÝJAR MYNDIR - NÝJASTA ALBÚMIÐ HEITIR 12. JÚNÍ 2010.

Góðar stundir allir!!

Foreldrafundur

09. júní 2010 klukkan 05:28
Í gær hittust foreldrar krakkanna í 8-3 til að spjalla um arbeidsmiljö-ið í bekknum og skólaferðalagið sem á að fara í haustið 2011. Í stuttu máli sagt þá er andinn í bekknum góður og kennararnir ánægðir með bekkinn - en auðvitað voru þarna foreldrar sem vildu nú ekki trúa því og spurðu í þaula hvort það væri ekki örugglega eitthvað vandamál sem þyrfti að velta sér upp úr.....en nei, það var ekki. Kennarinn hafði tekið hvern og einn nemanda í viðtal og spjallað um hitt og þetta og spurði sömu spurninganna um vinnufrið, andrúmsloftið í bekknum og svo framvegis - og það eru allri sáttir. Auk þess hefur félagsfræðingur fylgst með bekknum af og til í vor og tók hún undir þetta. Þannig að við foreldrarnir erum hæst ánægð.
Síðan var rætt um ferðina haustið 2011 - við verðum væntanlega flutt heim þegar þessi ferð verður farin en ætlum að taka þátt í að safna, það er búið að skipuleggja þrjú kökulodd á haustönn, flöskusöfnun, bílaþvott og svo framvegis en fyrsta fjáröflunin verður bekkjarkvöld í næstu viku þar sem fjölskyldum er boðið að koma. Krakkarnir ætla að rukka inn og bjóða upp á ýmis skemmtiatriði og svo verður lodd.
Ástæða þess að þetta er allt skipulagt svona snemma er sú að skólar í Noregi eru ókeypis, fólk á ekki að þurfa að borga fyrir hluti eins og skólaferðir - það eru bara lög í landinu sem segja þetta - auk þess eiga allir að vera jafnir og eiga jöfn tækifæri. Því er betra að hefja söfnun og skipulagningu snemma til að eiga næga peninga. Ef söfnunin gengur vel þá er möguleiki á að hægt verði að fara í dagsferð næsta vetur líka en það kemur allt í ljós um áramót þegar við sjáum hvernig söfnunin gengur.
Laughing

morgunblogg

06. júní 2010 klukkan 05:08
Ég er búin með eina viku í júníblokkinni en hún hófst mánudaginn 31. maí. Ansi vinnufrek en ég hef verið að mæta kl 8:15 og verið að fram á kvöld, oftast til ca 19 og stundum lengur. Við höfum byrjað inni og fengið útdeilt verkefnum, svo förum við út að mæla og endum svo inni í tölvum að reikna. Þetta hefur orðið til þess að ég hef ekki gefið mér tíma fyrir hreyfingu á kvöldin enda er ég mikið úti í skógi í gagnaöflun eða náttúruskoðun og fæ þá nokkra hreyfingu. Markmiðið er þá að bæta mér "hreyfingarleysið" upp um helgar.
Í gær fórum við til Hvitsten á ströndina þar, hún er ósköp notaleg - sandur, gras, steinar, bryggja, kiosk, wc, vöfflusala í gömlu bryggjuhúsi og notalegt, afslappað andrúmsloft. Á heimleiðinni kíktum rúntuðum við á nokkrar strendur í nágrenninu svona til að taka þetta allt út SmileEftir strandferðina skelltum ég mér í u.þ.b. 8 km göngutúr með Gunnu og Hildi.
Við stefnum svo á hjólatúr núna fyrir hádegið til Vinterbro þar sem við ætlum að kíkja á Breivoll ströndina (held þetta séu um 8-10 km hvor leið). Við verðum að vera búin að taka út slatta af ströndum áður en sumargestirnir koma Laughing

Stefán Snær fór á miðvikudagskvöldið í helgarheimsókn til pabba síns og fjölskyldu í Danmörku, kemur heim seinnipartinn í dag. Hann fór með pabba sínum á fimmtudaginn á Skive-festivalið en þar spiluðu fimm hljomsveitir og rúsínan í pylsuendanum var Rammstein. Þetta var víst ótrúleg upplifun og bara gleði - gaman að fá að heyra þetta í smáatriðum þegar drengurinn kemur heim Wink

Læt þetta morgunblogg duga að sinni, læt heyra í mér fljótlega Cool

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.