Skemmtileg upplifun
Ég tók frumburðinn með og svo kom Ása Dóra vinkona mín með sem var akkúrat í heimsókn i síðustu viku.
Fjórir aðrir Åsverjar (íslendingar búsettir í Ås) voru samferða okkur þremenningunum. Við tókum lestina til Osló og fengum okkur að borða á veitingastað í miðbænum. Þaðan tókum við "Eurovision" strætó til Bærum þar sem keppnin var haldin.
Strætóinn var troðfullur af allskonar fólki allsstaðar frá, þvílík gleði einkenndi mannskapinn og tilhlökkun.
Ákaflega vel til hafður norskur eurovision aðdáandi spurði okkur frétta af Ágústu (Silvíu Nótt) og Páli Óskari og söng lagið hennar Silvíu svo dæmi sé tekið um umræðurnar og stemminguna

Þegar við komum að Telenor höllinni fór heldur betur um mann, allir í svo miklu stuði og tilhlökkunin mikil. Við fórum í gegn um öryggishlið, allur vökvi var tekinn af manni, kíkt í veski og svo var leitað á manni. Þegar allt það var afstaðið komum við á opið svæði (ég er sko enn utan við höllina) þar sem þvílíkur fjöldi fólks var kominn saman, sölutjöld með minjagripum og drykkjum, söngur, hvatningarhróp, fánaveif og gleði
Til okkar kom m.a. maður sem spurði hvort við ættum aukafána en hann er hollendingur sem býr í Vín og elskar Ísland, við vorum allt kvöldið að rekast á hann og spjölluðum við hann í strætónum á leiðinni heim - hann og Ása Dóra eru nú fésbókarvinir
....en þetta var smá útúrdúr.Við fórum svo inn í höllina en vorum látin fá betri sæti, nær sviðinu því það var langt í frá að vera uppselt á þennan viðburð. Las einhversstaðar að það hefðu verið 8500 manns í höllinni +/- 500 og því 9000 laus sæti +/- 500 (....sló mig eftir á að þeir skildu ekki hafa haft kontrol á því hve fjöldinn var mikill).
Uppúr klukkan átta hófst svona undirbúningsprógram til að byggja upp stemmingu, nokkrar sönggrúppur komu fram, útsendingarstjórinn fór yfir nokkra punkta um hvað væri leyfilegt og hvað ekki og svo framvegis, mikið glens og mikið gaman - alveg heljarinnar stuð. Á slaginu níu hófst síðan útsendinginn. Vá hvað það var geggjað!!!! Stemmingin í höllinni geðveik og lögin öll frábær. Grikkinn ætlaði allt að trylla og þegar Hera steyg á svið þá varð allt vitlaust - hún átti sko salinn - þau semsagt; grikkinn og Hera voru klapp og stemmings sigurvegarar kvöldsins.
Þegar úrslitin voru gerð kunn og áður en síðasta umslagið var opnað þá hljómaði í slanum HERA, HERA, HERA!!! Magnað alveg. OG mikið varð okkur létt þegar í ljós kom að Ísland fór áfram. Stemmingin í strætónum á leiðinni heim var ekki síðri, Hellas, Hellas, Hera, Hera og svo framvegis var hrópað.
Stemmingin og andrúmsloftið var einstakt, allir vinir, ein heild, engin landamæri, sameiginlegt áhugamál, gleði, gleði, gleði - já það er sko Eurovision!!!!!
Sannarlega frábært og get ég með sanni sagt að Hera gerði allt vitlaust þetta kvöld og ég hef heyrt frá vinkonu minni sem fór á úrslitakvöldið að Hera hafi átt salinn þá ekki síður en á undanúrslitakvöldinu. Það voru því viss vonbrigði að hún lenti í 19. sæti en jæja - mér fannst lögin reyndar mjög góð í ár og engan vegin hægt að spá fyrir um úrslitin - þó ég hafi nú lengi vel talið að við myndum taka þetta, svona uppá stemminguna

Við íslendingar erum jú langflottust

.....og ég á eftir að prófa þetta aftur og þá vil ég gera eins og hommarnir sem við hittum - taka allan pakkan
nýtt albúm
Búin að vera með gest frá Íslandi en hún Ása Dóra vinkona er búin að vera hér í viku. Við vorum duglegar að hreyfa okkur og gera ýmislegt annað skemmtilegt....eins og t.d. að fara á undankeppnina í júróvísjón.
Hér er nýtt albúm með yfir 200 myndum sem heitir 22.-30. maí.
Skrifa aftur fljótlega.
Vorprófin búin
Draumanámsmatshlutfallið mitt væri einhvernvegin svona:
Einstaklilngsverkefni (ritgerð) 40%
Hópaverkefni (eitthvað vandamál skoðað og fundin lausn á því + kynning) 10%
Stutt skilgreiningapróf (mætti vera á miðri önn) 15%
Krossapróf (mætti vera á miðri önn) 5%
Gagnapróf 30%
Ég held þetta væri alveg að gera sig svona, skilgreiningaprófið og krossaprófið gætu verið á sama tíma og væri svona klukkutímapróf til samans, það hefði þá í för með sér að fólk þyrfti að vera búið að lesa yfir allt það efni sem búið að væri að fara yfir og eftir þetta próf gæti einbeitingin farið að mestu í verkefnavinnu. Já ég held að þetta mundi alveg vera að gera sig.
Önnur mál:
Ég fór og keypti mér járn, er byrjuð að taka það inn og ætla að vona að ég nái mér fljótlega á strik.
Í dag ætla ég að taka íbúðina í gegn, gera allt fínt hér en húsverk hafa mætt afgangi síðustu vikur/mánuði.
Við fáum gest á laugardag en þá kemur hún Ása Dóra í heimsókn, hún ætlar að dvelja hér í rúma viku og er ætlunin að þvælast um nærumhverfið hér, kíkja til Osló, Dröbak, fara í gönguferðir, skokka, kíkja á ströndina og lifa og njóta. Þórður Logi talar um að fara í Tusenfryd með konuna en það er svo ágætt að við keyptum ársmiða fyrir fjölskylduna sem verður til þess að maður er ekkert að spara ferðirnar í tívolíið enda er það í 10 mín fjarlægð frá okkur

Mánudaginn 31. maí hefst svo 4 vikna júníblokk - 10 eininga kúrs sem mér sýnist að verði ansi strangur, tímaplanið gerir allavega ráð fyrir að flesta daga verðum við frá 8:15 til 21:30 með ca 45 mín hádegispásu og ca 2 1/2 tíma middagpásu. Ég geri semsagt ekki ráð fyrir að vera til stórræðana hér heima fyrir og því eins gott að ég nýti tímann í þessu fríi mínu til að lifa, njóta og slappa af

Í gær var ótrúlegur hiti, þegar ég var búin í prófinu um kl 16 fór ég beina leið heim í stuttbuxur og hlýrabol og sólaði mig. Við gerðum kjúklingasalatið sem ég póstaði hér inn í síðustu færslu og það sló í gegn hjá feðgunum. Um áttaleytið í gærkvöld kom skýfall og þvílík gleði sem braust út hjá börnunum, það var ekki þurr þráður á Þórði Loga þegar hann kom inn og var hann settur beina leið í sturtu og upp í rúm eftir að hafa ólmast úti.
Við Bríet tókum daginn í dag snemma, vorum komnar út að skokka kl 6:15 í morgun í 16°hita og sólarlausu. Svona ca 10 mín eftir að við komum inn fór að rigna og það hellirignir, þvílíkt gróðraveður.
Jæja best að hætta þessu stauti og smella sér í gúmmíhanskana og byrja, eigið góðan dag

þriðjudagur til......þrrrGleði!
Á morgun klukkan 14:00 fer ég í síðasta prófið á þessari vorönn, morguninn verður kannski eitthvað nýttur í lestur síðan stefni ég á göngutúr og innkaup.
Eftir próf mun ég arka heim og undirbúa sumarlegt salat í kvöldmatinn - einfalt og fljótlegt því ég mun vilja nýta mér góða veðrið sem er í kortunum þegar heim verður komið

Uppskriftin af salatinu sem ég ætla að gera annaðkvöld er fengin af vefnum Cafe Sigrún og læt ég hana fljóta hér með:
Kryddað kjúklinga- og vínberjasalat
Fyrir 2-3
* 500 gr grilluð (helst) eða steikt kjúklingabringa, rifin í strimla. Skinnið ekki notað. Notið "hamingjusaman kjúkling" (þ.e. free range og organic)
* 2 sprotar sellerí, sneiddir fínt
* 250 gr steinlaus, blá vínber, skorin í helminga (má nota græn líka)
* 60 gr möndluflögur, þurrristaðar á pönnu þangað til aðeins farnar að brúnast (5-10 mín)
Karrísósa
* 50 gr majones eða sýrður rjómi frá Mjólku (5%, án gelatíns). Hægt er að kaupa létt majones (6% fita) en það inniheldur sykur og viðbætt efni og getur innihaldið glútein.
* 175 gr sýrður rjómi frá Mjólku, (5% fita, án gelatíns). Einnig má nota jógúrt
* 1 msk agavesíróp
* 2 tsk karríduft
* 1/4 tsk paprikuduft
* 1/4 tsk chilliduft
* 1/4 tsk svartur pipar
Aðferð:
* Rífið kjúklinginn í strimla og setjið í skál ásamt celleríinu.
* Skerið vínberin og setjið í skálina ásamt möndluflögunum
* Til að búa til karrísósuna, blandið majonesinu, sýrða rjómanum, agavesíropinu, karríinu, chilliduftinu, paprikuduftinu og piparnum saman.
* Hellið karrísósunni yfir kjúklinginn og blandið vel saman.
* Berið salatið fram á diskum eða í skálinni (og hver og einn skammtar sér).
* Það er gott að bera fram salat með icebergi, kirsuberjatómötum og þurrristuðum graskersfræjum (enska: pumpkin seed).
* Blandið saman og setjið í sér skál.
* Einnig er gott að bera fram gróft snittubrauð með réttinum eða glúteinlaust brauð fyrir þá sem hafa glúteinóþol.
17. maí 2010

Tvö ný albúm:
17. maí 2010
og
14. maí 2010
Gratulerer med dagen alle!!!
Rakst á vegg á föstudag
Seinnipartinn fórum við Bríet svo Årungen-hringinn sem er rúmlega 12 km hringur, ætlunin var að ganga til að bryja með en taka svo ca 4 km kafla þar sem við mydnum skokka 300 m og ganga 200 m. Áður en við fórum fékk ég Garminúrið hennar Bríetar því það er með púlsmæli (mitt er ekki með svoleiðis aukabúnaði). Það er skemmst frá því að segja að púlsinn var allt of hár hjá mér að mati hjúkkunnar og gengum við því meirihlutann. Þegar fór að síga á seinnihluta leiðarinnar fann ég að orkan var að verða búin, ég var með rúsínur í vasanum, ég drakk allt vatnið mitt og helminginn af vatni Bríetar. Ég hafði það þó heim, skellti mér í sturtu og svo fórum við í "konuferð" í Skistorsenter. Maturinn var ekki til heima áður en við fórum og ég borðaði því ekkert. Þegar við komum til Ski fórum við í Intersport, þar keypti ég mér proteinbar til að innbirða einhverja orku. Ég gúffaði því í mig. Því næst var kíkt í skóbúð, þar byrjaði ég að svitna og líða verulega illa - sat á meðan Bríet og Lydía skönnuðu búðina. Því næst var kíkt í Kappahl þar sem ég hafði verið búin að hugsa mér að finna eitthvað sumarlegt eins og t.d. kjól á mig og eitthvað sætt handa tveimur litlum vinkonum mínum á Íslandi sem ég hef verið á leiðinni að senda smá sumarglaðning....ég gekk um og gat varla haldið mér uppi - sá fullt en hafði ekki orku til að taka fötin og skoða þau almennilega. Því næst var kíkt í H&M en ég var búin að ákveða að kaupa mér hvítar leggings og hlýraboli.....rétti Bríeti leggnings og einn hlýrabol sem voru næst hendinni þegar inn var komið en fór út og settist á bekk. Lydía náði í vatn og stóð yfir mér því ég var að drepast!!! Síðan kom Bríet og náði í kók.....ég þambaði þarna semsagt háttí hálfan líter af vatni og næstum hálfan af kók áður en við lögðum af stað heim á leið. Ég hafði mig hingað upp, náhvít og ómöguleg, fékk mér banana og þá hresstist ég. Bríet kom og nuddaði mig og svo fór ég að sofa,klukkan ekki orðin tíu. Mér leið vel í gær - svolítið eftir mig líkamlega og hvíldi og passaði mig að borða....

Í dag verður það sömuleiðis fæðan sem verður passað uppá spínat í öll mál og sennilegast hjólatúr - og auðvitað að lesa fyrir síðasta prófið sem er á miðvikudaginn. En vá ég hef aldrei lent í svona og þetta er bara ekki að passa, miðað við það form sem ég á að vera í - ég hljóp 5-7 km fyrir jól, var auðvitað þreytt og móð en kommon, þetta er nú einum of að vera svona búin á því eftir 12 km sem eru að mestu leyti á göngu. Ég er verulega svartsýn að ég nái að þjálfa mig upp í hálft maraþon ef þetta lagast ekki.....
Blóðleysi og æfingar
Við Bríet höfum verið að pæla í þessu og höfum við rætt um að kannski sé þetta asminn að taka sig upp aftur en ég var með vægan asma og tók lyf hér áður fyrr en hætti því þegar ég gekk með Stefán Snæ fyrir 14 árum. Svo heldum við áfram að pæla og það er komin niðurstaða sem passar algjörlega, blóðleysi! Ég er alls ekki ókunnug því en gleymi mér alltaf, veit ég verð að passa mig

Alveg merkilegt en blóðleysi hefur gríðarlega mikil áhrif á allt daglegt líf og þetta er þannig kvilli að hann læðist aftan að manni og maður verður eiginlega vanur einkennunum.
Blóðleysi felur í sér skort á rauðum blóðkornum, þau ferðast um líkamann eftir æðunum, vinna súrefni úr lungunum og skila því til frumna líkamans. Frumurnar nota súrefnið til brennslu sem gefur okkur orku.
Ef rauðu blóðkornin eru of fá eða starfa ekki sem skyldi koma fram einkenni súrefnisskorts, þ.á.m. þreyta, slappleiki.
Nú er því málið að kaupa járn í næsta apóteki og muna eftir græna grænmetinu

Við gengum að mestu leyti 7 km í gær og svo er það 12 km hringurinn í dag
Það er frí í grunnskóla og leikskóla í dag, en ég er að fara út í skóla og ætla að lesa eitthvað fram eftir degi, Stefán ætlar að sjá um Þórð á meðan. Ég ætla svo að skreppa aðeins í búð og kaupa mér hlaupaskó sem eru á tilboði og svo vantar mig bráðnauðsynlega sumarboli 
á morgun og hinn
Seinnipartinn á föstudaginn er það svo 12 km hringurinn (verðum að bæta upp fyrir kyrrsetu þessarar viku!!!).
Á morgun ætla ég að læra slatta fyrir næsta próf (sem verður þann 19. maí) en feðgarnir ætla að skella sér í Tusenfryd (tívolíið) á meðan en við ætlum að kaupa ársmiða á línuna
enda borgar það sig því við vitum að við munum fara þangað með gesti í sumar en ef maður fer oftar en tvisvar á ári þá borgar ársmiðinn sig.Djöfull ætla ég að vona að mér hafi gengið þokkalega á prófinu í dag, þetta var þannig próf að ég hefði mikið frekar vilja taka það munnlega, eitthvað svo erfitt að skrifa markviss svör á öðru tungumáli en íslensku
EN þetta fer einhvernvegin, skál fyrir þvípróf í dag
Það er búið að vera eins og var fyrir síðustu prófvertíð brjálað að gera hjá Hauk í vinnu og ég hef því fengið eins og svo oft áður nasaþefinn af því hvernig það er að vera einstæð móðir. Skil bara ekki hvernig sumar fara að.....!!
Ég er ekki búin að standa við stóru orðin í hreyfingunni síðustu daga, hef þó farið aðeins út í stutta göngutúra niðrí bæ, í búðina og svona en ekki eins og ég ætlaði. Svona er nú bara það en þetta er allt uppávið núna

Mataræðið er í góðum gír....fyrir utan súkkulaði sem ég fékk mér í gær - en það er nú svo gott fyrir sálina

Það er hálfgerður föstudagur í öllum í dag, enda ekki furða uppstigningadagur á morgun, frí í leik og grunnskóla á föstudag, þá kemur helgin og á mánudaginn er 17. maí þjóðhátíðardagur Noregs. Haukur og drengirnir stefna að því að skella sér í Tusenfryd á morgun og svo á að fara í hljóðfærabúð í Moss á laugardaginn þannig að ég sé allavega fram á tvo góða lestrardaga í fríinu. Vonandi verða þeir nú samt fleiri og það ætti að vera lítið mál ef Haukur verður heima - en ég fer í próf i aðferðarfræði þann 19. maí. Það próf er 60 spurninga krossapróf með fimm valmöguleikum hver og allt til/eða ekkert getur verið rétt og dregið niður fyrir ranga krossa
Jæja en ég ætla nú ekki að fara að stressa mig á því núna, ætla aðeins að kíkja á glósurnar mínar fyrir skógvistfræðina og svo að tæma hugann áður en ég held af stað út á Campus eftir hádegi í próf dagsins 
Plan dagsins er svona:
Lesa fram að hádegi.
Próf eftir hádegi.
Hreyfing seinnipartinn.
Pizzugerð í kvöld.
p.s. Fékk nettan sumarfiðring í gær þegar rukkun frá íslendingafélaginu kom vegna leigu á sumarhúsinu í Norefjell en við verðum þar í viku í júlí.....ég hlakka svo til....

að hugsa fyrst og framkvæma svo
Stuttu seinna fengum við og sennilegast allir íbúar hér sms frá SiÅs bolig "Hei, takk for godt dugnadsarbeid! Håper alle kan bidra til at alt søppelet kommer oppi containeren som skal være på plass nå!" Djöfullinn sjálfur!!! Þetta er svo fatlað lið....!! Hér var fullt af fólki sem er á kafi í prófum og á lokaspretti í mastersritgerðarskrifum sem mætti og gerði hér heilmikið, rakaði, skúraði, skrúbbaði, smúlaði, klippti og hjó en vegna ótrúlegs skipulagsleysis að hálfu þeirra sem reka batteríið þá var sú vinna næstum fyrir bí og svo vilja þeir að við komum og eyðum meiri tíma í að hreinsa upp!!! Ég er svo pirruð yfir þessu grrrr, er ekki að meika þetta líf hérna á Skogveien!! Held að þetta fólk ætti að hugsa fyrst og framkvæma svo!
9. maí...enn eitt albúmið!!
Próflestur gengur hægt, helgarnar eru bara ekki að gera sig í lærdóm af neinu tagi.....
en ég er nú sem betur fer búin að vera dugleg í vetur og efnið er mér alls ekki ókunnugt - skógvistfræði 
Þórður Logi er búinn í baði og er núna að taka saman dótið sitt - Stefán Snær er í tölvuleik - Haukur er að vinna - ég ætla að lesa í kvöld
8. maí
Veðrið er búið að vera geggjað í dag, hátt í 20°C sól, yndislegt alveg. Við Bríet skelltum okkur í hjólatúr í morgun en það var nauðsynlegt til að liðka sig - því í gær tókum við 12 km göngutúr á meðan karlarnir græjuðu kvöldmatinn
Tvö ný albúm
24. apríl 2010 grill
Skogøkologi ferð til Son 6. maí 2010
Ég lofa að ég skal vera dugleg að mynda næstu daga svo þið getið fylgst með vorinu hér.
skógarferð og þvottaslit

Ég komst að því þegar ég var að finna til útivistarfötin mín í morgun að það er allt að "hrynja" fötin mín eru meira og minna orðin svo slitin að það er agalegt, ef það eru ekki göt þá er grá slikja yfir þeim og þegar vel er að gáð þá er þetta hreint og klárt slit. Held að einn aðalsökudólgurinn sé þvottavélin á heimilinu, ég er sannfærð um að hún er að slíta fötunum óeðlilega mikið. Tromlan er frekar gróf að innan og ég því fullviss um að það sé skýringin.
Veðrið hérna er alltaf að koma mér á óvart, í fyrradag snjóaði, seinnipartinn í gær sat ég á svölunum mínum í hlýrabol og kvartbuxum.....sveiflur - já heldur betur!! Vona allavega að það verði þurrt í dag en samkvæmt veðurspánni eru bara tveggja stafa tölur í kortunum næstu viku, vona að það haldist
Sýð egg
Það getur nefnilega verið ansi leiðigjarnt að vera alltaf með samloku í nesti sem er alltaf eins.....
Ég var að sjá að það verður hlaupið Kvennahlaup ÍSÍ í Osló þann 20. júní. Þrjár vegalengdir í boði 3, 6 eða 9 km - bara gleði og það sem meira er að staðsetningin er æði. Það verður hlaupið í kring um Sognsvann en einn hringur er 3 km. Ég ætla - það er á hreinu, bolirnir eru appelsínugulir í ár - geggjað alveg hreint.
Ég tók enga hreyfingu í gær, varð að svíkja því við vorum bara ein heima ég og Þórður og ekki fór ég að skilja litla manninn eftir einan heima. Fór þess í stað samtals 7 km í dag gekk nú mestan partinn en þetta kemur með kalda vatninu. Finn fyrir beinhimnubólgu sem er ekki góð tilfinning....en hún lagast

Mataræðið er í góðum gír, vá hvað ég er hrikalega glöð með danska vin minn "þann danska"
Það eina sem ég hef ekki staðið við er að borða mínar tvær brauðsneiðar á dag enda finnst mér oft betra að skipta út brauði fyrir grjón/kartöflur/pasta/ eða ávöxt.Jæja nú hugsa ég að eggin séu soðin - GÓÐA NÓTT!!
p.s. ég skrifa alltaf matardagbók á undirsíðuna "Trompmánuðurinn maí 2010", skrifa alltaf að morgni það sem ég ætla að borða og svo fer ég yfir það að kvöldi og lagfæri ef einhverjar breytingar hafa orðið....
staða mála....
og umfram allt utandyra.Ég skilaði Project Reportinu mínu í dag, fjúff....ég er ekki búin að vera neitt smá stressuð yfir því. Hef tekið allan skalan og hefur svartsýni og efi á eigin getu verið í aðalhlutverki. Ég var rosalega glöð þegar ég prentaði verkefnið út og labbaði með það út í skóla áðan. Hnúturinn í maganum er óðum að hverfa en herregud hvað ég er þreytt. Núna á ég eftir að leggja lokahönd á verkefni með vinkonu minni úr Dovre sem vitnar í wikipedia,....kræst og grrrrr en mér er bara farið að finnast þetta fyndið núna, anyway því verkefni verður skilað á miðvikudaginn. Þá eru BARA tvö próf eftir, þau eru 12. og 19. maí og já ekki má gleyma vettvangsferð til Son á fimmtudaginn þar sem skógar verða skoðaðir .....kemur á óvart

Síðan byrjar júníblokkin 31.maí þannig að ég fæ þarna 12 daga frí.
Ég ætlaði út að ganga eða hreyfa mig núna seinnipartinn en það gekk ekki eftir því Stefán Snær skellti sér í bíó með félögum sínum og Haukur er að vinna. Ég skulda þá bara hreyfingu, tek tvöfalt einhvern daginn

Það er bilað að gera í vinnunni hjá Hauk, við sjáum hann mjög lítið en mikið verðum við öll glöð þegar þessari törn lýkur hjá honum, sem verður í það minnsta lokið 17. maí en líklega í kring um 10. Því fyrr því betra.
Jæja best að horfa á Mjallhvíti með Þórði Loga og dorma yfir sjónvarpinu í kvöld en vera samt glaðvakandi þegar 71°N verður klukkan hálf níu
Heilræði
Maður setur sykur fyrst og svo olíu í skál og hrærir í með puttanum, svo nuddar maður þessu á hendurnar og skolar....þá verður maður sko mjög mjúkur á höndunum
Prahlad Jani
