Trompmánuđurinn, maí 2010
30. apríl 2010 klukkan 08:19
Búin að skella inn nýrri undirsíðu hér til vinstri..... verð að passa mig í prófmánuðinum og því verður aðhaldið mikið. Trompmánuðurinn, maí 2010.
Bauhaus
30. apríl 2010 klukkan 06:06
Í gær opnuðu Bauhaus risastóra verslun í Vestby. Ég og Þórður kíktum þangað með Bríeti, Birni og Amý, bara svona til að sjá og spá í hvort við sæjum einhver sniðug tilboð. Við komumst að því að norðmenn eru svoleiðis að láta taka sig í r-ið, þarna var fólk sem í vitfirringu sinni var að kaupa allskonar dót, allt frá garðblómum og upp í iðnaðarvélar á súper góðu veðri....eða það héldu þau allavega. Þarna var fólk með stórar innkaupakerrur sem flæddi svoleiðis úr. Það vildi nefnilega þannig til að við sáum blómapotta til að festa utan á svalir, þarna kostuðu þeir 169 kr en ég var nýbúin að kaupa mér í Plantasjen á 149, það munar um minna, 20 krónur á þessu!!! Það er nú bara eitt almennilegt brauð eða 4 kneppebrauð. Af því að þarna var auglýst opnunarhátíð þá héldum við að það væru einhver tilboð eða blöðrur handa börnunum eða ís eða eitthvað....en nei ekkert svoleiðis, þýsk níska á hávegum höfð. Eftir að hafa gengið þarna í gegn datt okkur í hug af því að úti var 18°hiti að stökkva inn í kaffiteríuna sem er áföst Bauhaus til að kaupa ís í brauði....eitt stykki kostaði næstum 30 krónur!!! Til að toppa þetta allt saman og gerði okkur endanlega fráhverf þessari verslun var að minibus með nokkrum jakkaklæddum mönnum sem töluðu þýsku lagði í stæði fyrir fatlaða!!! Fyrr má nú aldeilis vera andskotans frekja, þó þetta hafi verið háttsettir Bauhausarar frá Þýskalandi.
Á leiðinni í leikskólann í morgun rak Þórður Logi upp óp og sagði "mamma það er hægt að fara að kaupa blóm og setja út, sjáðu þarna" og þar með var tekin ákvörðun um að tímabært væri að kaupa blóm í fínu svalakassana og verður það gert næstu daga.

Eurovision 2010 í Osló
28. apríl 2010 klukkan 06:40
Var að tala við Teddu vinkonu á msn í gær og hún fór að spurja mig út í Eurovision...og vá...það var sko tímabært!!!
Ég er að fara á "Semifinal" eða undankeppnina í Eurovision þann 25. maí n.k. það er ekki nema mánuður í þetta teiti jeeeiiiiijjjjj!!!!
Fór í því tilefni að spá í hvernig sú tónlistarveisla muni hljóma og kíkti á keppendalistann en þetta eru:
1. Moldavía
2. Rússland
3. Eistland
4. Slóvakía
5. Finnland
6. Lettland
7. Serbía
8. Bosnía-Herzegovina
9. Pólland
10. Belgía
11. Malta
12. Albanía
13. Grikkland
14. Portúgal
15. Makedónía
16. Hvítarússland
17. Ísland
Held það sé jákvætt að Ísland er síðast á svið en ég veit ekki með hinar þjóðirnar, finnst þær vera svolítið mikið austantjalds og Balkanlönd....hmmmm 11 af 17
Ég er alavega fegin að hafa veðjað á að fara á undankeppnina frekar en úrslitakeppnina, þó ég sé nú alltaf frekar bjartsýn en æi þetta á allt eftir að koma í ljós. Held að sviðsframkoman, "outfittið" og myndatakan á sviðinu verði að takast vel til að við eigum möguleika. Sorry en Hera er jú frábær söngkona og mér er alveg sama þó hún sé í góðum holdum....hún er bara svo grimm alltaf, það þarf að milda hana....alls ekki að láta hana vera í dökkum fötum og mikið málaða um augun, það gerir hana enn grimmari grrrrr, reyna frekar að ná fram léttleika eins og einkenndi sviðsframkomuna hjá okkur í fyrra (eða það fannst mér).
En muna svo allir að hlusta á Eurovisionútvarpið.

Gćrdagurinn, Haukur, Gróđur, Veđur og Skemmtileg bloggfćrsla
27. apríl 2010 klukkan 07:45
Gærdagurinn:
Ég fór ekki út að hlaupa eða ganga í gær
hefði haft svo gott af því vegna þess að skapið var ekki upp á sitt besta....eða það var þannig fyrripartinn - var að pirra mig á hópavinnu en tók svo þann pól í hæðina að skrifa slatta og finna heimildir fyrir kaflann sem "hópfélagi" minn skrifaði og vitnaði svo snilldarlega í wikipedia og nrk1.....en já ég vann aðeins í því, fann fjórar greinar sem ég sendi viðkomandi og sagði henni að hún gæti rennt í gegn um þetta og notað ....MAÐUR VITNAR EKKI Í WIKIPEDIA!!!!! DJÖÖÖÖÖ!!!! grrrrrrrrrrrrrrrr!!! LOFA ég skal ekki pirra mig aftur á þessari hópavinnu hér - bara neikvæðir straumar sem fylgja því!!
En jæja.....svo ég haldi áfram að segja frá gærdeginum...:
Síðan fór ég og hitti leiðbeinandann minn og hann er mjög spenntur fyrir verkefninu mínu og sendi mér svo komment á project reportið sem ég ætla að vinna í og senda honum síðan aftur í yfirlestur á fimmtudag en ég á að skila því á mánudaginn. Ég fékk slatta af kommentum frá honum og geri því ráð fyrir að þetta verði alveg tveggja dagsverka vinna....en það er líka allt í lagi
Ég fæ góða æfingu í ensku þegar ég skrifa þessa rannsóknaráætlun og þarf að pæla í verkefninu þannig að þetta er vinna sem mun að öllu leiti nýtast mér síðar.
Allavega þá komst ég í betra skap við að hitta leiðbeinandann þó ég hafi verið hálf í sjokki áðan þegar ég opnaði skjalið með kommentunum frá honum en það er nú alltaf þannig
Ég eldaði mat, horfði á uppáhaldsþáttinn minn "71°Nord" og steinsofnaði í sófanum zzzzzzz.
Haukur:
Haukur er í Glasgow núna, fór í loftið frá Keflavík kl 5 í morgun. Það var ekki flogið hingað til Osló þannig að hann fór þessa leiðina og svo þarf hann að bíða til kl 16 í dag þegar hann á flug hingað.....svona er það að koma frá eyju út í hafi.....ekki hægt að hoppa upp í næstu lest eða rútu til að komast heim til Norge.
Veðrið:
Í gær var mjög notalegt veður, það komu gróðraskúrir og hitastigið fór upp á við...vorangan í loftinu, mmmmm. Í dag ætlar að vera hlýtt og svona hálfskýjað, veðurspáin gerir ráð fyrir að hitastigið fari í 14°C í dag og á morgun á að rigna sem gerir það að verkum að tréin springa út. Ég sé það á björkinni sem er hér úti í garði að það vantar bara herslumuninn, þannig að smá rigning og hærra hitastig er klárlega málið.
Gróðurinn:
Ég ætla svo að taka mér göngutúr í vikunni með myndavélina og setja inn myndir af gróðrinum, veit að margir af lesendum mínum hafa mikinn áhuga á að sjá...... og ég tala nú ekki um allar lyngrósirnar sum munu springa út í maí jeminneini!!!
Heimferð:
Stefanía Finnboga í Varmahlíð spurði hvenær við ætluðum að koma aftur heim, það er á stefnuskránni vorið 2011. Það er samt auðvitað háð vinnu en Haukur var nú fyrir norðan og þar hafa menn ekki gleymt honum....en þetta á allt eftir að koma í ljós. Við erum opin fyrir öllu og auðvitað er vinna forsenda fyrir því hvar við setjumst að. Stefán hefði átt að fermast núna í vor en ákvað að fresta því og fermist því þegar við komum heim, ætli það verði ekki sumarferming í Skagafirði 2011
En.....:
En það er svo langt þangað til, í millitíðinni eigum við eftir að taka á móti fullt af gestum, ferðast um Noreg já og ég að klára námið!!!
Áhugavert:
Í lokin ætla ég að benda ykkur á alveg hreint frábæran spjallþráð af feisbúkk sem Hjálmar Gísla ákvað að bjarga og varðveita á heimasíðu sinni, sjá hér.
Og að lokum:
Jæja best að koma sér að verki og eigið góðan dag!
Ég fór ekki út að hlaupa eða ganga í gær
hefði haft svo gott af því vegna þess að skapið var ekki upp á sitt besta....eða það var þannig fyrripartinn - var að pirra mig á hópavinnu en tók svo þann pól í hæðina að skrifa slatta og finna heimildir fyrir kaflann sem "hópfélagi" minn skrifaði og vitnaði svo snilldarlega í wikipedia og nrk1.....en já ég vann aðeins í því, fann fjórar greinar sem ég sendi viðkomandi og sagði henni að hún gæti rennt í gegn um þetta og notað ....MAÐUR VITNAR EKKI Í WIKIPEDIA!!!!! DJÖÖÖÖÖ!!!! grrrrrrrrrrrrrrrr!!! LOFA ég skal ekki pirra mig aftur á þessari hópavinnu hér - bara neikvæðir straumar sem fylgja því!!En jæja.....svo ég haldi áfram að segja frá gærdeginum...:
Síðan fór ég og hitti leiðbeinandann minn og hann er mjög spenntur fyrir verkefninu mínu og sendi mér svo komment á project reportið sem ég ætla að vinna í og senda honum síðan aftur í yfirlestur á fimmtudag en ég á að skila því á mánudaginn. Ég fékk slatta af kommentum frá honum og geri því ráð fyrir að þetta verði alveg tveggja dagsverka vinna....en það er líka allt í lagi
Ég fæ góða æfingu í ensku þegar ég skrifa þessa rannsóknaráætlun og þarf að pæla í verkefninu þannig að þetta er vinna sem mun að öllu leiti nýtast mér síðar. Allavega þá komst ég í betra skap við að hitta leiðbeinandann þó ég hafi verið hálf í sjokki áðan þegar ég opnaði skjalið með kommentunum frá honum en það er nú alltaf þannig

Ég eldaði mat, horfði á uppáhaldsþáttinn minn "71°Nord" og steinsofnaði í sófanum zzzzzzz.
Haukur:
Haukur er í Glasgow núna, fór í loftið frá Keflavík kl 5 í morgun. Það var ekki flogið hingað til Osló þannig að hann fór þessa leiðina og svo þarf hann að bíða til kl 16 í dag þegar hann á flug hingað.....svona er það að koma frá eyju út í hafi.....ekki hægt að hoppa upp í næstu lest eða rútu til að komast heim til Norge.
Veðrið:
Í gær var mjög notalegt veður, það komu gróðraskúrir og hitastigið fór upp á við...vorangan í loftinu, mmmmm. Í dag ætlar að vera hlýtt og svona hálfskýjað, veðurspáin gerir ráð fyrir að hitastigið fari í 14°C í dag og á morgun á að rigna sem gerir það að verkum að tréin springa út. Ég sé það á björkinni sem er hér úti í garði að það vantar bara herslumuninn, þannig að smá rigning og hærra hitastig er klárlega málið.
Gróðurinn:
Ég ætla svo að taka mér göngutúr í vikunni með myndavélina og setja inn myndir af gróðrinum, veit að margir af lesendum mínum hafa mikinn áhuga á að sjá...... og ég tala nú ekki um allar lyngrósirnar sum munu springa út í maí jeminneini!!!
Heimferð:
Stefanía Finnboga í Varmahlíð spurði hvenær við ætluðum að koma aftur heim, það er á stefnuskránni vorið 2011. Það er samt auðvitað háð vinnu en Haukur var nú fyrir norðan og þar hafa menn ekki gleymt honum....en þetta á allt eftir að koma í ljós. Við erum opin fyrir öllu og auðvitað er vinna forsenda fyrir því hvar við setjumst að. Stefán hefði átt að fermast núna í vor en ákvað að fresta því og fermist því þegar við komum heim, ætli það verði ekki sumarferming í Skagafirði 2011

En.....:
En það er svo langt þangað til, í millitíðinni eigum við eftir að taka á móti fullt af gestum, ferðast um Noreg já og ég að klára námið!!!
Áhugavert:
Í lokin ætla ég að benda ykkur á alveg hreint frábæran spjallþráð af feisbúkk sem Hjálmar Gísla ákvað að bjarga og varðveita á heimasíðu sinni, sjá hér.
Og að lokum:
Jæja best að koma sér að verki og eigið góðan dag!
helgin
25. apríl 2010 klukkan 06:53
Síðustu dagar hafa verið hálf einmannalegir hjá okkur mæðginunum, Haukur komst til Íslands á fimmtudag og á flug til baka á morgun, mánudag. Það er þó ekkert öruggt að hann komist akkúrat þá - vindáttir og öskufall ráða því.
Það var mjög rafmagnað andrúmsloft hér á heimilinu á fimmtudag og föstudag, allir alveg til í að vera á Íslandi þó það hafi ekki verið sagt upphátt. Strákarnir voru að gera mig gráhærða, gerðu ekki annað en að rífast og pirrast út í hvorn annan....
Við höfum haft það ágætt annars. Skruppum á bókasafnið og fengum lánaðar nokkrar myndir, þannig að kvöldin hafa verið "dekkuð". Í gær skruppum við til Ski í bíó á "Alvin and the chipmunks 2" síðan fórum við aðeins í búðir og þegar heim var komið var sest út á svalir í góða veðrinu. Okkur var svo boðið í grill til Bríetar og Björns, vorum að tala um það þegar við sátum úti og borðuðum að þetta væri svona júnístemming á Íslandi
sátum semsagt um klukkan átta að kvöldi og borðuðum kvöldmat í lopapeysunum.
Í dag ætlum við drengirnir að bruna til Askim til Stínu móðursystur minnar og ætlum að taka rúnt með henni til Töcksfos í Svíþjóð að versla eitthvað í frystinn
Ég reikna svo með að nota kvöldið til að lesa og læra en lítið hefur farið fyrir því um helgina.
Læt þetta duga í bili, góðar stundir
Það var mjög rafmagnað andrúmsloft hér á heimilinu á fimmtudag og föstudag, allir alveg til í að vera á Íslandi þó það hafi ekki verið sagt upphátt. Strákarnir voru að gera mig gráhærða, gerðu ekki annað en að rífast og pirrast út í hvorn annan....

Við höfum haft það ágætt annars. Skruppum á bókasafnið og fengum lánaðar nokkrar myndir, þannig að kvöldin hafa verið "dekkuð". Í gær skruppum við til Ski í bíó á "Alvin and the chipmunks 2" síðan fórum við aðeins í búðir og þegar heim var komið var sest út á svalir í góða veðrinu. Okkur var svo boðið í grill til Bríetar og Björns, vorum að tala um það þegar við sátum úti og borðuðum að þetta væri svona júnístemming á Íslandi
sátum semsagt um klukkan átta að kvöldi og borðuðum kvöldmat í lopapeysunum.Í dag ætlum við drengirnir að bruna til Askim til Stínu móðursystur minnar og ætlum að taka rúnt með henni til Töcksfos í Svíþjóð að versla eitthvað í frystinn

Ég reikna svo með að nota kvöldið til að lesa og læra en lítið hefur farið fyrir því um helgina.
Læt þetta duga í bili, góðar stundir

allt og ekkert
22. apríl 2010 klukkan 10:58
Það er alveg vika síðan ég bloggaði almennilega síðast....tíminn flýgur áfram. Sumardagurinn fyrsti í dag!!!
Það er svolítill skólapirringur í mér núna.
Þoli ekki þegar maður er í hópavinnu og þeir sem eru með manni í hóp skilja ekki að maður notar fleiri en eina heimild .....og þar fyrir utan skilja ekki að það að nota framhaldsskólabók sem aðalheimild í vísindalegri ritgerð á mastersstigi!!!!
Ég þoli heldur ekki að þegar maður er búinn að segjast ætla að funda á ákveðnum tíma að þá mætir maður ekki hálftíma seinna!!!!...og segir ó ég svaf yfir mig...aftur...!!!
Það er bara svolítið erfitt að vera í hópastarfi og einkunnir manns eru háðar því að hluta til hvernig aðrir vinna - ég er ekki að fíla þetta...grrrrrr!
Geri ráð fyrir að taka umrædda ritgerð og geri hana að mestu sjálf, helgin/næturnar verða notaðar í það!!!
Fyrir utan skólann á ég mér líf og það verður að vera þannig svo maður haldi geðheilsu hérna!! Ég fór t.d. út að skokka með Gunnu og Hilde í gær. Við fjölskyldan gerum ýmislegt saman í frístundum og það er það sem ég verð að fókusera á til að halda lífi!!!
Það sem ekki drepur mann, styrkir mann!!!!
Ég er komin vel af stað með rannsóknaráætlunina mína varðandi mastersverkefnið, það mun væntanlega heita eitthvað á þessa leið: "Measurement system for certification of Carbon stock changes on an estate level due to afforestation in Iceland - a case study"
Mun funda með leiðbeinandanum mínum hér á mánudag en ég hef verið í símasambandi við tengiliðinn/meðleiðbeinandann á Íslandi.
Það er orðið ljóst að ég kem ekki heim í byrjun ágúst eins og til stóð. Ég mun koma og verja lengri tíma á Íslandi í haust við gagnaöflun, verð kannski eitthvað í kring um tíu daga þá.
Hlakka til að eyða sumrinu hér í Noregi, vona að við verðum heppin með veður
Í dag er Haukur á leið til Íslands. Hann er núna staddur á Gardemoen að bíða eftir flugi, sýnist það vera "on time". Við verðum bara með honum í anda og vonumst til að hann komist svo aftur til baka á mánudaginn og þá með flatkökur, rúgbrauð (frá Geirabakaríi í Borgarnesi) og lakkrís;)
Ég og drengirnir ætlum að hafa það kósí hér heima um helgina, erum reyndar að spá í að skella okkur í bíó og kannski í gönguferð, strandferð eða í sund....verður allt metið jafnóðum
Læt þetta duga í bili kæru vinir.
Gleðilegt sumar allir

myndir, myndir, myndir....
19. apríl 2010 klukkan 20:41
Nýtt albúm, stútfullt af myndum á myndasíðunni.
Myndir af börnunum á Skogveien að leik, myndir frá Loppemarket í Åsgardskole, bókasafnsferð og að lokum fjöru/strandferð til Dröbak.
Það styttist í fer Hauks til Íslands en hann á flug á fimmtudaginn, það er auðvitað ekki á okkar valdi að ákveða hvort það verði flug en við vonum það besta..... ótrúlegt hvað mikið hefur gengið á heima undanfarna daga.
Blogga meira síðar.

Fimmtudagurinn fimmtándi
15. apríl 2010 klukkan 06:14
Langaði aðeins til að gefa ykkur smá rapport yfir hreyfingu það sem af er apríl:
Fim 1. apríl: Rösk ganga 4,3 km (39 mín)
Fös: Frí
Lau: Frí
Sun: Frí
Mán: Rösk ganga 4,5 km (42 mín).
Þri: Rösk ganga 3,6 (34 mín).
Mið: Rösk ganga 6 km (57 mín).
Fim: Skokk 3,5 km (31 mín).
Fös: Róleg ganga í skóginum 5,7 km (2 klst). og skokk 3,8 km (35 mín).
Lau: Frí.
Sun: Hjólatúr 8,4 km (39 mín). Fórum upp og niður brekkur til Danskerud og til baka.
Mán: Frí
Þri: Róleg ganga 2,5 km (30 mín).
Mið 14. apríl: Rösk ganga 4,5 (42 mín).
Skokkið er mjöööög hægt get ég sagt ykkur en þetta á allt eftir að koma. Skógarstígarnir eru allir að þorna og engir pollar sem stöðva mann þannig að manni eru allir vegir færir. Nú eru ekki nema 39 dagar þangað til ég mun hlaupa mitt fyrsta 10 km hlaup og því verð ég að spíta í lófana og koma mér upp úr göngufasanum.
Í dag stefni ég á að fara út að hlaupa áður en ég sæki Þórð á leikskólann. Síðan er stefnan sett á Skistorsenter að versla eitt og annað sem vantar m.a. hjólahjálm handa mér. Hugsa alltaf til Oddnýjar Sólveigar á Hvanneyri þegar ég fer niður brekkur á fleygiferð á hjólinu...án hjálms.
Stefáni er boðið í hyttetur með Mats vini sínum og hans fjölskyldu um helgina, alveg frábært bara. Þessi fjölskylda á hyttu í Svíþjóð við Vanern (stóra vatnið í Svíþjóð). Við fórum og hittum mömmu hans í gærkvöld til að vita hvernig þetta væri allt saman og hún var líka svona svakalega hress, minnti mig svolítið á Unni hans Ágústar rektors og Teddu, já skondið
Svona líka rosalega hress og vildi endilega að við kæmum inn og læti en við vildum nú ekkert vera að vaða inn svona....enda kom það svo flatt upp á okkur því okkur hefur verið sagt að norðmenn séu ekkert að bjóða manni inn si svona....en jæja fyrstu kynni voru mjög góð.Við fegnum leiðindarfréttir s.l. fösutdag, andlátsfréttir. Elsku Bjössi hennar Jónu (móðursystir Hauks) varð bráðkvaddur. Maður á besta aldri svo hress og kátur. Hugsum mikið heim til fjölskyldunnar en yljum okkur við góðar minningar um góðan, jákvæðan, glettin og skemmtilegan mann. Áður en við fluttum hingað út sl. sumar áttum við góðar stundir með þeim Bjössa og Jónu og þeirra afkomendum, held að kjötsúpuveislan og kókosbollukeppnin standi þar uppúr. Það er gott að eiga góðar minningar.
Haukur fer heim á jarðaförina sem verður þann 24. apríl, við hin verðum bara með í anda. Já allt er breytingum háð í þessu lífi.
Muna bara að lifa, njóta og vera sáttur, lifa í núinu.
Ţrjú ný albúm
14. apríl 2010 klukkan 08:39
Var að setja inn þrjú ný albúm.
Þetta er albúm frá páskum þegar Sverrir og fjölskylda komu í heimsókn. Skógarferð í skogøkologi sl föstudag. Helgin 10.-11. apríl en þá lærði Þórður Logi að hjóla og við skruppum til Osló í Vigelandparken. Hér má nálgast myndasíðuna.

tvö blogg á dag...
13. apríl 2010 klukkan 07:15
...léleg tímastjórnun/nýting það!!!
Verð bara að segja frá því að nú í þessari viku getum við nemendur við UMB tekið þátt í að velja nýjan rektor. Mjög spennandi, var að lesa aðeins í gegnum blogg frambjóðendanna en eitt af því sem næsti rektor mun þurfa að eyða miklum kröftum í er fyrirhuguð sameining UMB og dýralæknaháksólans í Osló. Samruninn mun eiga sér stað árið 2018......verð að segja ekki alveg íslenski hátturinn tekinn á þetta, þar sem skólar hafa verið sameinaðir án nokkurs ...nei þarna var ég ósanngjörn LÍTILS undirbúnings átti þetta að vera......say no more!
Auðvitað er þetta nokkuð stór pakki, það þarf að byggja skólabyggingu og einhversstaðar þarf að vera hægt að koma þeim fyrir sem munu kjósa að búa hér í Ås. Það er nefnilega ekkert víst að allir kjósi að "pendla" á milli Osló og Ås í framtíðinni.
Ef þið hafið áhuga á að forvitnast um kandidatana í rektorsvalinu þá getið þið skoðað það hér.

tímastjórnun
13. apríl 2010 klukkan 06:10
Til að finna út hvernig hægt er að bæta atferli mannanna þarf fyrst að finna út hvernig atferlið er, nokkuð "lógíst" er það ekki? Mér finnst því ágætt að spá í það hvernig ver ég mínum tíma og rýna í sjálfa mig og þ.a.l. að meta það hversu sátt ég er við afrakstur dagsins.
Ef ég tek daginn fyrir þá er þetta nokkurn vegin svona:
Vakna kl 6:30
Eyði næstu tveimur tímum í að koma mér og drengjunum í gang, smyrja nesti og sinna ýmsum heimilisverkum. Ég tek góðan kaffibolla, kanna stöðuna á fréttamiðlunum (íslensku eru sjaldnast vaknaðir, sér í lagi þegar sumartíminn er kominn á), skoða feisbúkkið, blogga kannski smá.
Að þessu loknu fer ég í skólann eða um klukkan hálf níu.
Mér þykir voðalega gott þegar eru fyrirlestrarlausir dagar, þá get ég sökkt mér niður í það verkefni sem ég er að vinna í , í það og það skiptið og þarf ekkert að hugsa um hvar ég þarf að vera klukkan eitthvað ákveðið.
Það er misjafnt, fer eftir úthaldi hverju sinni hvort ég tek hreyfinguna áður en allir koma heim eða á eftir. Uppáhaldshreyfingartíminn minn er á bilinu kl 15 til 17, sér í lagi ef maður er úti að sprikla. Þannig að ég er minnst sex og hálfan tíma út í skóla.
Við borðum frekar snemma, helst um klukkan sex og á milli sjö og hálf átta er Þórður gerður klár í háttinn.
Það er misjanft hvort ég sest niður við lærdóm á kvöldin, fer mest eftir dagsforminu og hve miklu ég hef komið í verk í skólanum fyrr um daginn. Þessi kvöldlærdómur er þá frekast í formi lesturs en skrifta.
Ég er að reyna að átta mig á þessu, finnst hálf fáránlegt að vera búin að eyða smá tíma í að blogga um þetta en.....svona er maður nú....sk....!!
Eigið góðan dag!

akkúrat
11. apríl 2010 klukkan 07:03
Alltaf gaman að lesa bloggið hans Hjalla, skoðið þetta
Svolítið sem margir hugsa en hafa e.t.v. ekki sagt upphátt.

Í dag...
09. apríl 2010 klukkan 07:17
Jæja þá er ég búin að skutla Þórði á leikskólann og vinnudagurinn að hefjast. Ég ætla að byrja á að fara út í skóg að taka myndir og spá og spegúlera með hópnum mínum í skógarvistfræði. Við eigum að gera úttekt á teig og koma með tillögur að framtíðar plani fyrir teigin. Í hádeginu er svo meiningin að hitta Pálínu og snæða með henni lunjs í kantínunni. Eftir hádegið mun ég sennilega kíkja í bækur og fara svo að skokka áður en ég sæki Þórð. Síðan þarf að versla inn ýmislegt til helgarinnar m.a. pizzugerðarefni en það er fastur liður á föstudögum. Það gæti líka farið svo að ég fari í klippingu og litun seinnipartinn 
Helgin verður tileinkuð lestri og verkefnavinnu hjá mér en Haukur og strákarnir ætla í veiðistangainnkaup
Eigið góða helgi kæru vinir!

miđvikurdagur til eintómrar gleđi
07. apríl 2010 klukkan 07:25
Æfingaáætlun fyrir apríl og maí liggur hér til hliðar á undirsíðu sem heitir "Hlaupaprógramm apríl-maí". Þetta er hlaupaprógram sem ég fékk hjá þjálfara í Ås treningsenter, svolítið krejandi kannski en ég massa það!
Í byrjun júní fæ ég svo æfingaprógram fyrir stóra hlaupið í haust en góð kona á Íslandi ætlar að útbúa það fyrir mig, eftir að ég hef tekið tímann á mér í 10 km hlaupi
Í gær fór ég út að ganga eftir kvöldmatinn og svo mun ég skokka í dag.
Sit núna út í Sørhellinga í nýja fína lesplássinu mínu innan um alla hina skógarpúkana
Úti er þoka og raki en svo fer nú sólin að skína þegar líður að helgi og þá fer líka að hlýna verulega VORIÐ ER KOMIÐ!!
Njótið dagsins
Í byrjun júní fæ ég svo æfingaprógram fyrir stóra hlaupið í haust en góð kona á Íslandi ætlar að útbúa það fyrir mig, eftir að ég hef tekið tímann á mér í 10 km hlaupi

Í gær fór ég út að ganga eftir kvöldmatinn og svo mun ég skokka í dag.
Sit núna út í Sørhellinga í nýja fína lesplássinu mínu innan um alla hina skógarpúkana
Úti er þoka og raki en svo fer nú sólin að skína þegar líður að helgi og þá fer líka að hlýna verulega VORIÐ ER KOMIÐ!!Njótið dagsins
eftirpáskablogg...eđa sjokk!!
06. apríl 2010 klukkan 06:46
Þá hellist hversdagsleikinn yfir mann og maður fær sjokk yfir öllu sem liggur fyrir......og þá er að gera það sem ég er best í, að SKIPULEGGJA mig!!!
Ég fer í þrjú próf í maí. Ég þarf að skila þremur verkefnum og halda einn fyrirlestur núna í apríl. Ég þarf að lesa fullt af efni. AUk þessa verð ég að æfa svo ég nái hlaupamarkmiðinu mínu sem er að hlaupa 10 km í lok maí og svo er ég á leiðinni í hálft maraþon í haust þannig að ég verð að sinna æfingum líka.
Hugmyndin er að hafa þetta nokkurnvegin svona:
Mán: Hlaup
Þri: Ganga
Mið: Hlaup
Fim: Ganga
Fös: Hlaup
Lau: Ganga
Sun: Frí
Þá daga sem ég á að hlaupa fer ég eftir hlaupaprógrammi, sem þýðir að æfingarnar eru misjafnar (brekkuæfingar, intervalæfingar) en göngudagana ætla ég að fara allt frá 4 uppí 10 km, bara eftir skapi, veðri, vindum og tíma. Göngudagarnir gætu líka verið hjóla eða sunddagar. Ég er svona að vona að ég nái að hlaupa á morgnana en það er þó ekkert öruggt að það takist....sjáum til.
Nú fer að byrja mikil törn hjá Hauk í vinnunni (vinna frá kl 5-17) sem þýðir að ég verð að sjá um akstur í og úr leikskóla, þannig að ég býst við að geta hlaupið klukkan átta á morgnana, þá er ég komin í skólann um hálf tíu og get setið þar til fjögur....annars væri líka möguleiki að hlaupa á morgnana klukkan sex, áður en ég vek strákana.....hugs, hugs

Páskafrí
01. apríl 2010 klukkan 07:00
Eftir að ég ákvað að brjótast út úr vetrarhýðinu og gera eitthvað hvetjandi eins og til dæmis að skrá mig í hálft maraþon þá hefur allt verið á uppleið
Eitt af því sem maður þarf að æfa sig í þegar maður ætlar að hlaupa langar vegalengdir er að æfa úthaldið, vera að í langan tíma, því hef ég sett mér það markmið að með hefðbundum hlaupaæfingum tek ég langa göngutúra ca 1-2 klukkutíma langa helst tvisvar í viku. Það hljomar afar vel að taka 3 daga í hlaup og 2 daga í gönguferðir, þá eru 2 dagar eftir sem gætu því verið helgaðir hvíld. Ef ég væri á Íslandi þá væru það sunddagar en........já svona er það nú bara.
Síðan ég bloggaði síðast hefur lífið gengið sinn vanagang. Við kíktum í afmæliskaffiboð til Eyjólfs á mánudagskvöldið og eins og vanalega þá klikkuðu ekki kökurnar hans. Á þriðjudagskvöldið skrapp ég í bíó með Gunnu, Hrafnhildi og Hilde. Við sáum Crazy Heart með Jeff Bridges sem fékk óskarinn fyrir leik sinn í myndinni, þið getið séð trailer-inn hér. Mæli alveg með þessari mynd, hún lýsir eymdarlífi alkohólista og hvað lífið getur verið tilgangslítið og hvað þarf til svo fólk tekur á sínum málum. Hljómar kannski ekkert spennandi en þetta er mjög góð mynd og hafði mikil áhrif á mig.
Við Þórður vörðum gærdeginum hér heima við í tiltekt en það var svo mikil rigning úti að við vorum ekkert að eyða tíma í útiveru.
Seinnipartinn í dag eigum við von á íslenskum gestum frá Svíþjóð, þau Sverrir, Dana og Jóndi ætla að koma frá Uppsala og vera hér í nokkra daga
Við stefnum á að sýna þeim nágrennið en af nógu er að taka, það er bara að velja, Osló, Fredriksstad, Dröbak, Óskarsborg og svo auðvitað Ås en farinn verður gögnurtúr um háskólasvæðið hér undir styrkri leiðsögn Ragnars Finns sem er búinn að taka kúrs í byggingarsögu 
Stefán Snær kemur svo heim á páskadagskvöld og á annan í páskum er okkur boðið í mat til Teddýar og fjölskyldu í Asker, endalaus gleði
Læt þetta duga í bili og óska ykkur öllum gleðilegra páska.
Eitt af því sem maður þarf að æfa sig í þegar maður ætlar að hlaupa langar vegalengdir er að æfa úthaldið, vera að í langan tíma, því hef ég sett mér það markmið að með hefðbundum hlaupaæfingum tek ég langa göngutúra ca 1-2 klukkutíma langa helst tvisvar í viku. Það hljomar afar vel að taka 3 daga í hlaup og 2 daga í gönguferðir, þá eru 2 dagar eftir sem gætu því verið helgaðir hvíld. Ef ég væri á Íslandi þá væru það sunddagar en........já svona er það nú bara.Síðan ég bloggaði síðast hefur lífið gengið sinn vanagang. Við kíktum í afmæliskaffiboð til Eyjólfs á mánudagskvöldið og eins og vanalega þá klikkuðu ekki kökurnar hans. Á þriðjudagskvöldið skrapp ég í bíó með Gunnu, Hrafnhildi og Hilde. Við sáum Crazy Heart með Jeff Bridges sem fékk óskarinn fyrir leik sinn í myndinni, þið getið séð trailer-inn hér. Mæli alveg með þessari mynd, hún lýsir eymdarlífi alkohólista og hvað lífið getur verið tilgangslítið og hvað þarf til svo fólk tekur á sínum málum. Hljómar kannski ekkert spennandi en þetta er mjög góð mynd og hafði mikil áhrif á mig.