motivasjon, motivasjon, motivasjon!!!
28. mars 2010 klukkan 08:36
Já nú er ég á fullu í að hvetja sjálfa mig, setja fókusinn á langtímamarkmið sem ég virðist alltaf þurfa að hafa á bak við eyrað því annars næ ég engum árangri. Hef verið löt að hreyfa mig, hef borið fyrir mig annríki í skólanum sem er fáránlegt. Auðvitað á maður að setja hreyfinguna í forgang því þá líður manni einfaldlega betur.
Eftir að hafa spáð í þessu og sparkað reglulega í mig komst ég að niðurstöðu, ég verð að skár mig í keppni. Já, og það gerði ég!! Hafði fyrir löngu verið búin að spá í 10 km hlaup í Oslóarmaraþoni en nei....það er víst ekki nógu stór áskorun....ég gæti tæknilega séð hlaupið 10 km innan fárra vikna, miðað við þær framfarir sem áttu sér stað í haust þegar ég var MEGA dugleg að hlaupa. Ég er semsagt búin að skrá mig í hálft maraþon í Osló þann 26. september n.k. Búin að skrá mig og borga þátttökugjald. Já, stelpan sem slefaði 3 km á Landsmótinu á Akureyri í fyrrasumar ætlar að hlaupa 21 km í haust!!!
Planið er að fara eftir fína hlaupaprógramminu mínu til enda maí, þá byrja ég á sérstöku 1/2 maraþonsæfingaprógrammi. Ég veit ég get þetta vel, þarf bara að vera dugleg að hvetja mig áfram og halda mig við efnið
og ég fer létt með það fyrst ég er búin að skuldbinda mig á þennan hátt, þ.e. að borga fyrir það....merkilegt!!! HAHAHAHA!! Ekki er ráð nema í tíma sé tekið 
Fyrir utan hlaupaæfingar þá mun ég verða dugleg að ganga í sumar sem kemur í staðin fyrir hefðbundnar hlaupaæfingar þegar það á við.
Gönguferðir sumarsins eru á mótunarstigi en eitthvað liggur þó fyrir:
1.-3. júlí í Femundsmarka en til vara ef veðrið klikkar þá verður farið í Aurlandsdalen, þetta verður fjölskylduferð með Elverumfjölskyldunni og Teddu og sonum.
Einhverntíman á tímabilinu 9.-13. júlí verður skipulögð dagsganga með stórfjölskylduna í Norefjell.
Fyrstu gönguferðirnar verða þó farnar í apríl eða maí og þá eru þúsund möguleikar á dags eða helgar gönguferðum t.d. í Oslomarka.
Auk þessa er markmiðið sett á tvö fjöll:
Gaustatoppen fjallganga sem hentar allri fjölskyldunni.
Galdhöpiggen
Vá, það er ekkert smá sem liggur fyrir!!!
Var að hugsa til þess núna að veturinn og vorið 2007 vorum við Tedda rosalega duglegar að æfa, skokkuðum stuttar vegalengdir og lyftum tvisvar í viku, fórum að mig minnir í spinnig einu sinni í viku og þess á milli gengum við mikið. Í júlí það ár gengum við yfir Fimmvörðuháls ásamt fríðum flokki frá Ferðafélagi Íslands og það sem ferðin sóttist vel, við gengum þetta rösklega og fórum þetta á 6-7 tímum að mig minnir sem þótti bara ansi gott. Fann varla fyrir þreytu eftir þessa göngu sem sannar það enn og aftur hvað góður undirbúningur er mikilvægur.
Varðandi mataræðið þá er ég ekki á einhverju sérstöku fæði, borða bara hollt og gæti hófs. Get ekki hugsað um margt í einu og finnst það líka bara þónokkuð að hugsa um æfingarnar fyrir utan, fjölskylduna og námið
Jæja best að hætta þessu í bili, læt ykkur fylgjast með, er farin út að skokka

Allir að styðja við átakið og heita á Gulla!!!
26. mars 2010 klukkan 13:55
Jæja, þá er mottumars senn að ljúka á Íslandi og þá er ekki úr vegi að benda fólki á að kjósa Gulla sjá hér.
Það sem helst er í fréttum hér er að Stefán Snær flaug til Danmerkur á miðvikudagskvöldið og verður þar fram á páskadagskvöld. Ég er komin í fyrirlestrarfrí fram yfir páska en ætla að vinna í að skrifa "projekt rapport" fyrir mastersritgerðina. Haukur vinnur í skógarhöggi þessa dagana. Þórður er sprækur eins og vanalega og já allt í góðum gír

öppdeit
22. mars 2010 klukkan 14:11
Hef bara ekkert bloggað í meira en viku, hvað skildi valda því?? Jú, ég hef bara ekki haft þörf fyrir það. Tímaleysi er varla eitthvað sem maður ber fyrir sig því það að henda niður einni bloggfærslu eru ekki nein geimvísindi og tekur ekki langan tíma. Það er ekki eins og ég velti hverri setningu fyrir mér og velti fyrir mér hvort hún sé rétt uppbyggð eða full af stafsetningavillum, nei ég skrifa hér það sem kemur upp í hugann þá og þá stundina.
Ég er svolítið svekkt reyndar að ég er að fá yifr 30 heimsóknir á dag og hef ekki hugmynd hverjir það eru sem eru að lesa þetta blogg mitt, hér eru reyndar engin viðkvæm málefni rædd eða neitt sem ekki þolir að bloggheimar viti en ég hef aðeins velt fyrir mér að loka blogginu - en svo kemur alltaf upp í hugann að jú þeir sem ég veit að eru pottþétt að fylgjast með okkur hér og þykir þetta þægilegur máti og kannski fljótlegra en að hringja þá fæ ég jú smá samviskubit.
En þetta er nú bara svona "hugs"
Það var yndislegt í Elverum, eiginlega hálf hættulegt því ég væri sko alveg til í að búa á því svæði!! Við áttum ljúfar stundir með Oddnýju, Ola og Svavari. Pizzuveisla a la Oddný á föstudagskvöldinu og villibráðarveisla a la Ola á laugardagskvöldinu. Við fórum í Skogmuseum sem er snilldarsafn og mæli ég með því að fólk kíki þar við sem leið á um. Við fórum á skotæfingasvæði hersins og fengum að prófa að skjóta úr rifflum, höglurum og allskonar. Á sunnudeginum var Þórður hálfslappur og var ég því heima með hann á meðan karlarnir fóru til Budor og renndu sér á skíðum. Haukur fékk skíðabakteríuna og linnti ekki látum fyrr en við vorum búin að kaupa okkur svigskíði sem voru reyndar á útsölu í "Sporthuset" í Ski. Fengum skíði, klossa, stafi fyrir okkur bæði á innan við 7000 NOK. Klossarinir eru Technica og skíðin Head - þannig að þetta er ekkert slor get ég sagt ykkur.
Halla Kjartans kom hingað á mánudaginn en hún hélt til hjá Hrafnhildi og Ragnari en við fengum að sjá framan í hana af og til. Á fimmtudagskvöldið hittust flestar íslensku konurnar hér í Ås og meira segja kom Oddný en hún gisti hér því það vildi svo heppilega til að hún þurfti að fara á fyrirlestur í Osló á föstudeginum.
Ég fór í skogökonomi próf á föstudaginn og gekk hræðilega illa, skil ekkert í mér að hafa valið það fag &&$$"##/)("$$. Ég fékk í annað eyrað á fimmtudaginn sem ágerðist bara og var ég frekar slæm á föstudaginn en eftir að hafa fengið sterakrem sem ég bar inní það þá sló það mjög fljótt á.
Berglind (Bebba) kom til Norge á laugardaginn og fórum við drengirnir uppá Gardemoen að sækja hana, hún kom með páskaegg handa okkur mmmmm!! Síðan var nú ætlunin að kíkja á skíðabrekkuna við Moss og kom Bebba með okkur í það, okkur leist reyndar ekki á blikuna og keyrðum í staðin til Son, þar var frábær brekka fyrir svona stiðrbussa eins og okkur en lyftan var lokuð
Við fengum þennan líka fína bíltúr út úr þessu og borðuðum nestið okkar við grillhyttuna í Lesterberg.
Á sunnudaginn fréttum við svo af gosinu og fór morguninn í að fylgjast með því en svo skelltum við okkur til Svíþjóðar, ég, Berglind og Stefán og komum við á flugvellinum í Rygge og tókum Gunnu með okkur sem var að koma frá Prag. Við versluðum slatta og enduðum daginn í Tapas og rauðvíni hjá Gunnu.
Dagurinn í dag hefur verið tileinkaður ritgerð sem ég er að skrifa en auk þess hef ég fylgst mjög grant með framgangi eldgossins heima. Hér er mjög mikið fjallað um eldgosið og sérfræðingarnir þyrpast í sjónvarpið til að diskutera hvað gæti hugsanlega gerst.
Jæja, læt þetta duga í bili. Sýnist á fréttum að sett verði lögbann á verkfall flugvirkja þannig að Bebba kemst heim á morgun ....því miður....
Hlaupaskórnir hafa verið í hvíld hjá mér en þeir verða teknir í notkun aftur á morgun og ég verð einbeitt og rúlla viku tvö upp.
Góðar stundir.
Ég er svolítið svekkt reyndar að ég er að fá yifr 30 heimsóknir á dag og hef ekki hugmynd hverjir það eru sem eru að lesa þetta blogg mitt, hér eru reyndar engin viðkvæm málefni rædd eða neitt sem ekki þolir að bloggheimar viti en ég hef aðeins velt fyrir mér að loka blogginu - en svo kemur alltaf upp í hugann að jú þeir sem ég veit að eru pottþétt að fylgjast með okkur hér og þykir þetta þægilegur máti og kannski fljótlegra en að hringja þá fæ ég jú smá samviskubit.
En þetta er nú bara svona "hugs"

Það var yndislegt í Elverum, eiginlega hálf hættulegt því ég væri sko alveg til í að búa á því svæði!! Við áttum ljúfar stundir með Oddnýju, Ola og Svavari. Pizzuveisla a la Oddný á föstudagskvöldinu og villibráðarveisla a la Ola á laugardagskvöldinu. Við fórum í Skogmuseum sem er snilldarsafn og mæli ég með því að fólk kíki þar við sem leið á um. Við fórum á skotæfingasvæði hersins og fengum að prófa að skjóta úr rifflum, höglurum og allskonar. Á sunnudeginum var Þórður hálfslappur og var ég því heima með hann á meðan karlarnir fóru til Budor og renndu sér á skíðum. Haukur fékk skíðabakteríuna og linnti ekki látum fyrr en við vorum búin að kaupa okkur svigskíði sem voru reyndar á útsölu í "Sporthuset" í Ski. Fengum skíði, klossa, stafi fyrir okkur bæði á innan við 7000 NOK. Klossarinir eru Technica og skíðin Head - þannig að þetta er ekkert slor get ég sagt ykkur.
Halla Kjartans kom hingað á mánudaginn en hún hélt til hjá Hrafnhildi og Ragnari en við fengum að sjá framan í hana af og til. Á fimmtudagskvöldið hittust flestar íslensku konurnar hér í Ås og meira segja kom Oddný en hún gisti hér því það vildi svo heppilega til að hún þurfti að fara á fyrirlestur í Osló á föstudeginum.
Ég fór í skogökonomi próf á föstudaginn og gekk hræðilega illa, skil ekkert í mér að hafa valið það fag &&$$"##/)("$$. Ég fékk í annað eyrað á fimmtudaginn sem ágerðist bara og var ég frekar slæm á föstudaginn en eftir að hafa fengið sterakrem sem ég bar inní það þá sló það mjög fljótt á.
Berglind (Bebba) kom til Norge á laugardaginn og fórum við drengirnir uppá Gardemoen að sækja hana, hún kom með páskaegg handa okkur mmmmm!! Síðan var nú ætlunin að kíkja á skíðabrekkuna við Moss og kom Bebba með okkur í það, okkur leist reyndar ekki á blikuna og keyrðum í staðin til Son, þar var frábær brekka fyrir svona stiðrbussa eins og okkur en lyftan var lokuð
Við fengum þennan líka fína bíltúr út úr þessu og borðuðum nestið okkar við grillhyttuna í Lesterberg. Á sunnudaginn fréttum við svo af gosinu og fór morguninn í að fylgjast með því en svo skelltum við okkur til Svíþjóðar, ég, Berglind og Stefán og komum við á flugvellinum í Rygge og tókum Gunnu með okkur sem var að koma frá Prag. Við versluðum slatta og enduðum daginn í Tapas og rauðvíni hjá Gunnu.
Dagurinn í dag hefur verið tileinkaður ritgerð sem ég er að skrifa en auk þess hef ég fylgst mjög grant með framgangi eldgossins heima. Hér er mjög mikið fjallað um eldgosið og sérfræðingarnir þyrpast í sjónvarpið til að diskutera hvað gæti hugsanlega gerst.
Jæja, læt þetta duga í bili. Sýnist á fréttum að sett verði lögbann á verkfall flugvirkja þannig að Bebba kemst heim á morgun ....því miður....

Hlaupaskórnir hafa verið í hvíld hjá mér en þeir verða teknir í notkun aftur á morgun og ég verð einbeitt og rúlla viku tvö upp.
Góðar stundir.
Hlaupavika 2
14. mars 2010 klukkan 19:58
Vika 2 (Rask gange og oppstykket jogging).
Dagur 1.
Ganga rösklega í 25-30 mínútur, leiðin sem gengin er má gjarnan vera hæðótt.
Dagur 2.
Ganga rösklega í 10 mínútur. *Skokka í 1 mín, ganga í 1 mín*, endurtaka *til* fimm sinnum. Ganga í 10 mínútur.
Dagur 3.
Ganga röskelega í 10 mínútur. Ganga upp brekku í 2 mín og skokka niður, endurtaka fimm sinnum. Ganga í 5 mínútur.

Norge i 2010
12. mars 2010 klukkan 07:27
Við Haukur fórum á foreldrafélagsfund í bekknum hans Stefáns í gær. Málefni fundarins var órói og óviðunandi vinnunæði í bekknum, skólaferðalag sem á að fara haustið 2011 (já ég skrifaði rétt 2011!!) og einelti.
Það er einn nemandi í bekknum sem hefur orðið fyrir einelti í vetur en það eru ekki bekkjarfélagarnir sem eru gerendur, einelti (n. mobbing) er ólöglegt og því er tekið á því hið snarasta en forledrar voru beðnir um að vera vakandi fyrir líðan barnanna sinna.
Síðan var farið að tala um óróan í bekknum, þetta á sér reyndar ekki stað þegar Ellen umsjónarkennarinn er með bekkinn heldur þegar aðrir kennarar koma inn. Hvað veldur, svarið er einfalt.
Málið er að í bekknum eru 25 krakkar, 7 stelpur og 18 strákar. Í haust voru tveir umsjónarkennarar Ellen sem er raungreinakennari og Renate sem er norksu og enskukennari. Renate veiktist í október og varð því "sykemelt" og í staðin fyrir hana var fenginn afleysingakennari í gegn um "Addekko" sem er svona afleysingafólksskrifstofa, eins konar miðlari. Til að gera langa sögu stutta þá er staðan sú að Renate verður "sykemelt" til sumars. Afleysingakennarinn sem var lengst með norksuna fékk fast starf í amerískum skóla í Osló, sko afleysingakennarinn í norsku var bandarísk kona sem talaði sænsku!!!
Nú er svo komið að enginn kennari er til að kenna norksu og þannig hefur það verið í rúman mánuð. Það finnst ekki fólk, þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar og leit. Mér finnst þetta óviðunandi. Þetta hefur einnig haft það í för með sér að Ellen raungreinakennarinn er orðin umsjónarkennari og tengiliður allra barnanna í bekknum og er í meira en 100% starfi. Þessi óstöðugleiki og það eru sífellt nýjir kennarar að koma inn veldur að sjálfsögðu óróa í bekknum og erfitt við það að eiga. Hér vantar starfsfólk inn í skólana, sárlega!!!
Hugsið ykkur, ég hef hitt Ellen kennara á óformlegum fundi okkar á milli og þá hittumst við á kaffihúsi því það er ekki aðstaða fyrir kennarana til að spjalla við foreldra í skólanum, hún tekur með sér verkefni nemenda og bækur heim til að fara yfir því hún er með smá vinnuaðstöðu heima hjá sér og litla sem enga aðstöðu í skólanum. Finnst ykkur þetta í lagi??? Og eins og hún sagði á fundinum í gær, "vi er i Norge 2010!"
Svo var annað sem kom til tals, það er bara hægt að opna einn glugga í einu í kennslustofunni...jebb en sem betur fer er reyndar lokan á einum biluð þannig að hann er alltaf opinn og þá er hægt að hafa tvo glugga opna!!!
Svo ég haldi áfram með fundinn þá var einnig verið að ræða væntanlegt skólaferðalag sem fara á í haustið 2011!!! ...og það sem hægt er að diskútera hlutina, jeminneini....ekki alveg íslenski stíllinn á þessu. Okey allt í lagi að skipuleggja í tíma en já sæll, við erum að tala um ferðalag eftir eitt og hálft ár!!!

Ferðahugur
10. mars 2010 klukkan 08:31
Fengum heimsókn hér á mánudaginn, Þórunn Reykdal kíkti við í kaffi en hún var á NOVA-BOVA fundi hér í Ås. Hún kom með kaffipakka og einnig glaðning frá Eddu, Hagvers döðlur, lakkrís og lítil páskaegg. Allir glaðir með það, tusen takk Edda!! 
Vikan hefur annars verið aðgerðarlítil, ég er að myndast við að lesa fyrir próf, gengur erfiðlega en Þórður var heima í gær veikur og er líka heima í dag. Stefán er hálfslappur líka og er þess vegna einnig heima. Við vonum bara að þeir verði orðinir hressir á föstudaginn þegar við leggjum í hann til Elverum. Ætlum að heimsækja Oddný, Ola og Svavar. Stefnum að því að fara á skíði í Budor á laugardeginum og svo finnum við uppá einhverju á sunnudeginum, höfum aldrei komið til Elverum og því mikið hægt að skoða og sjá eins og t.d. skógarsafnið en þetta á allt eftir að koma í ljós en þetta verður eflaust ekki síðasta ferðin okkar á þessar slóðir trúi ég.
Það gengur vel að fara eftir nýja hlaupaprógramminu, bara tveir dagar búnir í viku eitt en ég hef góða tilfinningu fyrir þessu
Annars gengur lífið bara út á skóla og vinnu en við erum með plön um að nýta fríhelgarnar sem mest til ferðalaga enda er mikið að skoða hér og tíminn ískyggilega fljótur að líða, finnst eins og ég sé alveg að fara að flytja heim, bara rúmt ár eftir!!!
Páskarnir eru ekkert planaðir enn en við verðum eitthvað á faraldsfæti, því get ég lofað.

Útivist og góðviðri
07. mars 2010 klukkan 17:05
Í gær fóru drengirnir, allir þrír ásamt Ragnari að dorga. Í dag fóru þeir allir aftur að dorga og ég skellti mér með og einnig kom Sveinbjörn kærasti Hildar.
Gönguskíði, gönguferðir, útivist, samvera með skemmtilegu fólki ...... já þannig hefur helgin verið hjá okkur
Núna um helgina sá maður í fyrsta sinn + tölu á útimæli síðan löngu fyrir jól en það var alveg 1°C
Það eru komin tvö dorgveiðialbúm á myndasíðuna hér.
Einnig er hér til hliðar undirsíða sem heitir hlaupaprógrammið en þar er ég búin að slá inn fyrstu fjórar vikurnar.

Í dag fór ég....
05. mars 2010 klukkan 16:44
...í Ås treningsenter og hitti Annicken. Hún lét mig fá hlaupaprógram sem hún mælti með og nær það yfir næstu tuttugu vikur, hvorki meira né minna! Ef ég verð einbeitt og held mig við efnið þá ætti ég að geta hlaupið 10 km og fara létt með það.
Eitt sem hún lagði mikla áherslu á er að þegar maður byrjar að fara eftir prógrammi eins og þessu þá:
1. Fara eftir prógramminu, ekki stökkva yfir vikur.
2. Passa að festa sig ekki við sömu hlaupaleiðina og ef maður er á bretti stilla hallann í ólíkar gráður og hafa svona "variasjon" í þessu.
3. Teygja VEL á eftir.
Miðað við þessi einföldu tips þá er ég alltaf að gera vitleysur þegar ég tek mínar hlaupadífur.
1. Ég fer aldrei nákvæmlega eftir prógramminu.
2. Ég vil oftast fara sömu leiðina.
3. Ég er löt að teygja.
Hlaupaprógammið er eins og áður sagði tuttugu vikna prógram og er miðað við að maður fari þrisvar í viku.
Ég byrja á morgun
Vika 1. "Hovedvekt på å gå sammenhengende".
Dagur 1.
Ganga rösklega í 25 mínútur. Tempóið á að vera þannig að maður geti haldið uppi samræðum á meðan á göngu stendur.
Dagur 2.
Interval-æfing. Ganga rösklega í 10 mínútur. Skokk í 1 mín, ganga í 2 mínútur, skokk í 1 mín, ganga í 2 mínútur, skokk í 1 mín, ganga í 2 mínútur, skokk í 1 mín. Ganga í 5 mínútur.
Dagur 3.
Brekkuæfing. Ganga rösklega í 5 mínútur. Ganga upp brekku í 2 mínútur og skokka til baka niður brekkuna,ganga upp brekku í 2 mínútur og skokka til baka niður brekkuna, ganga upp brekku í 2 mínútur og skokka til baka niður brekkuna, ganga upp brekku í 2 mínútur og skokka til baka niður brekkuna. Ganga rösklega 5 mínútur.
Fyrsti dagur er á morgun, dagur tvö á mánudag og dagur þrjú á miðvikudag. Eftir viku læt ég ykkur vita hvernig vika 2 hljómar

Veðrið hér er alveg frábært, sló öllu upp í kæruleysi eftir hádegið í dag og fór á skíði. Í morgun var -16,5° á hitamælinum í bílnum en uppúr hádeginu var hitastigið komið niður í -3° en þannig er þetta hér þessa dagana. Hitasveiflan er gífurleg. Í morgun kom sólin upp klukkan 7:03(heimild Østlandsbladet)....og já sólin skín!!!
Njótið helgarinnar 
03. mars 2010 klukkan 20:13
Ég held ég sé ekki búin að segja ykkur frá því kæru blogglesendur að ég er komin með Mastersverkefni, með stóru M-i
Sum ykkar vita það en aðrir ekki.
Það sem felst í þessu verkefni er að útbúa mats og vottunarkerfi fyrir kolefnisbindingu í íslenskum skógum, þetta er verkefni sem verið er að starta núna og mér var boðið að vera með
Þetta hefur í för með sér ferðalög heim á Fróna á árinu, eitt er fastákveðið en það er í byrjun ágúst en þá kem ég heim og vinn með vinnuhópnum við kortlagningu. Svo dúkka upp aðrar ferðir þessu tengdu en þær eru þó ekki fastákveðnar enn.
Hér er ansi kalt þegar maður fer út á morgnana oftast í kringum -10° en sólin skín og þá volgnar á daginn, fuglarnir syngja og göturnar eru rakar - það er að koma vor, ég finn það!!
Við ætlum að skreppa í ferðalag helgina 12.-14. mars. Förum til Elverum í heimsókn til Oddnýjar og fjölskyldu. Það verður örugglega gaman en planið er að fara á skíði og skoða umhverfið
En þangað til verð ég að halda rétt á spöðunum og vinna vel
Það sem felst í þessu verkefni er að útbúa mats og vottunarkerfi fyrir kolefnisbindingu í íslenskum skógum, þetta er verkefni sem verið er að starta núna og mér var boðið að vera með
Þetta hefur í för með sér ferðalög heim á Fróna á árinu, eitt er fastákveðið en það er í byrjun ágúst en þá kem ég heim og vinn með vinnuhópnum við kortlagningu. Svo dúkka upp aðrar ferðir þessu tengdu en þær eru þó ekki fastákveðnar enn. Hér er ansi kalt þegar maður fer út á morgnana oftast í kringum -10° en sólin skín og þá volgnar á daginn, fuglarnir syngja og göturnar eru rakar - það er að koma vor, ég finn það!!
Við ætlum að skreppa í ferðalag helgina 12.-14. mars. Förum til Elverum í heimsókn til Oddnýjar og fjölskyldu. Það verður örugglega gaman en planið er að fara á skíði og skoða umhverfið

En þangað til verð ég að halda rétt á spöðunum og vinna vel
MEST ER EKKI BEST!!
01. mars 2010 klukkan 19:04
Var að lesa umræðuþráð á netinu þar sem kona ein var að biðja um ráðleggingar varðandi hlaupaprógramm. Til að svara henni var ein af fræknustu hlaupadrottningum Íslands sem hefur yfir 25 ára reynslu af hlaupum og 10 ár í þjálfun hún sagði eina gullsetningu sem mér þótti ansi góð: "MEST ER EKKI BEST"!
Það er nefnilega málið, fólk á það nefnilega til að ofkeyra sig, ætla sér of mikið en til hvers??
Ég hef verið nokkuð dugleg að fara í tíma í Ås treningsenter í það minnsta tvisvar í viku en svo hefur það verið planið að bæta inn hlaupaæfingum og hef ég legið yfir allskonar hlaupaprógrömmum. Hef ekki enn fundið það eina rétta fyrir mig.
Það er mikilvægt að gera eitthvað annað en bara að hlaupa sem ég geri jú með þessum tímum í treningsenterinu og eins og hlaupadrottningin sagði þá er jú mjög gott að taka eitthvað annað með eins og t.d. leikfimi eða yoga.
Ég talaði við einn þjálfarann í Ås treningsenter og ætlum við að hittast á föstudaginn í þessari viku þar sem útbúið verður hlaupaprógram með mínar þarfir, getu og markmið í huga. Markmiðið er ekki að verða best, nei takk! Mitt markmið er að ég verði í góðu formi, tilbúin í afrek sumarsins (gönguferðir úti í náttúrunni og á fjöll eru jú mitt helsta áhugamál) og auðvitað að vera klár í slaginn og hlaupa 10 km
Ég held að lykillinn að velgengni sé að fá aðstoð hjá fagfólki þegar maður er að setja sér markmið - sérfræðingarnir eru jú til þess....ég meina ekki er ég sérfræðingur í hreyfingu - sérhæfingin mín er meira tengd skógum
Slátrarar slátra, snyrtifræðingarnir vaxa mann, hárgreiðslukonurnar klippa mann, bifvélavirkjar gera við bíla, læknar lækna og svo framvegis......