Uppskriftablogg
4 - 5 Kjúklingabringur (má líka vera kjúlli í bitum skinnlaus).
1 - 2 bollir appelsínusafi
1 - 2 bolli vatn
1 laukur saxaður
4 hvílauksrif pressuð
2 appelsínur niðursneiddar
pipar
kanill
salt
Ég byrjaði á þvi að steikja bringurnar í olíu á pönnu og kryddaði með pipar og kanil. Setti þær svo í pott.
Setti vökvann í pottinn, ásamt, appelsínum, lauk og hvítlauk, setti svo smá meira af pipar og kanil og einnig salt.
Sauð í 30-40 mínútur og bar fram hrísgrjón og salat með þessu. Þetta þótti öllum á heimilinu rosalega gott og ekki var það slæmt að eiga smá afgang af bringunum sem ég setti í kjúklingasalat í hádeginu í dag mmmmmmm!!
Þetta ætla ég að elda í kvöld:
Svínasnitsel
Marenering: Taco krydd (þetta í pokunum), pipar og olía - magn eftir smekk.
Svínasnitselið fór í mareneringu í morgun.
Síðan er planið að steikja snitselið á pönnu.
Meðlætið:
1 1/2 Paprika
3 Tómatar
1 Laukur
3 Hvítlauksrif
Sveppir (bara einhver slatti)
Allt steikt á pönnu og 3-4 msk salsa sósa sett saman við.
Hef ekki ákveðið hvort ég baki kartöflur með þessu eða sjóði grjón - sjáum til

Tvö ný albúm
Febrúar 2010 (1) bolludags og skíðagöngumyndir.
Febrúar 2010 (2) myndir frá Svíþjóðarferðinni.
Endilega skoðið hér

Það er einmitt það!!!
Ég eyddi afmælisdeginum í skólanum, fékk þessa líka svakalega fínu afmælisgjöf frá Pálínu súkkulaði og sturtusápu....tók því nú ekkert illa að fá sápu - en þessi gjöf var valin með markmiðin mín í huga, súkkulaðið fyurir hlaup og sturtusápa eftir
Drengirnir færðu mér blóm og ég eldaði fisk. Kvöldinu var eytt í símanum (með rauðvín í glasi) en Haukur fór að vinna þannig að já...hef alveg upplifað líflegri afmælisdag - saknaði eiginlega föstu gestanna minna en ég átti skemmtilegt símakvöld.Seinnipartinn á föstudaginn lögðum við af stað til Skövde, vourm komin þangað rétt fyrir níu en snjókoman var orðin ansi þétt og það moksnjóaði en seinna kom í ljós að þetta var líkelga mesta vetrarveðrið sem komið hefur á þessum slóðum þennan veturinn. Við áttum frábæra helgi með Sverri, Dönu og Jónda - gaman að endurnýja kynnin við ættingjana. Leigðum "stuga" sem rúmaði okkur öll alveg ágætlega, tvö herbergi með kojum og svefnsófi í stofunni. Við skoðuðum okkur um í Skövde, keyrðum til Skara og skoðuðum kirkjuna þar sem er sú elsta í Svíþjóð, fórum út að borða, á kaffihús, elduðum, versluðum og margt fleira. Fórum ekkert á skíði enda var varla færi vegna fannfergis og snjókomu!!
Við lögðum af stað heim á leið uppúr hádegi á mánudag og komum við í Nordby storsenter og gerðum innkaup, vorum hér heima rétt fyrir klukkan sjö um kvöldið.
Í gær vorum við heima, ég lærði helling og renndi yfir nokkrar greinar um hnignun regnskógana og loftslagsbreytingar.
Í dag var ég í skólanum í allan dag og skrapp svo í Ås treningsenter með Theu og Stefáni - hvað maður hefur gott af því að æfa!!! Segi nú ekki annað.
Set myndir inn á myndasíðuna fljótlega.....
En jæja þar til næst, ha de bra!
frí framundan

Eftir skóla og vinnu á föstudag brunum við til Skövde í Svíþjóð þar sem við ætlum að dvelja fram á þriðjudag með Sverri Þór (frænda mínum), Dönu og Jónda en þau búa í Uppsala.
Tökum skíðin með og aldrei að vita nema maður tékki á skautum í leiðinni.....svo verður líklega borðað ýmislegt eins og t.d. íslenskt lambakjöt frá Fjallalambi sem fæst í Skövde

Það er vetrarfrí í næstu viku hjá Stefáni og því alveg tilvalið að skella sér í svona smá frí, hlökkum mikið til!!
En þar til næst - ha de bra!!!
daglega lífið...
Ég fór í "Circle challenge" í gær og mér líður nokkuð vel í dag, get allavega gengið með góðu móti og lyft upp höndunum en eftir miðvikudagstímann í síðustu viku var ég eins og farlama gamalmenni. Ég átti erfitt með að ganga upp stiga, setjast inn og úr bíl og gera einföldustu hluti eins og að klæða mig í skó - allt vegna þess að ég tók hnébeygjur og keyrði mig svo áfram að ég átti ekkert eftir.
EN ég hef gott af þessu enda finnst mér frábært að mæta í þessa tíma tvisvar í viku. Þarf svo að fara að "eyrnamerkja" ákveðna tíma fyrir útihlaup en nú er hitastigið orðið þannig að það er í góðu lagi að fara út (er max -10°C) en ótrúlega oft nálægt 0° yfir daginn.
Í gær fór Stefán á sjúkrahúsið í Lilleström, það var verið að taka hina stórutánöglina í gegn, hún var tekin næstum öll nema miðjan, og naglaböndin einnig. Nú er hann reifaður og liggur með löppina á púðastafla og fær vekjalyf. Hann fer ekkert í skólann í dag en á morgun þá fær hann 100% þjónustu og verður keyrt úr og í skóla. Fyrri stórutánöglin var tekin í lok nóvember og það heppnaðist mjög vel og vonar maður að það sama eigi við um þessa.
Á morgun er síðasti dagur í skíðaskólanum hjá Þórði og þá ætlar hann að mæta í búning í tilefni öskudags eða eins og norðmennirnir kalla það "Karnival".
Vinnan hjá Hauk hefur verið núna í u.þ.b. viku eins og hjá venjulegu fólki - sem betur fer!!
Annars verð ég að láta ykkur vita af því að norðmenn eru í sjokki yfir gengi þeirra fólks á OL 2010 í Vancouver - það versta sem þeir gætu hugsað sér er að svíar nái fleiri medalíum en þeir í skíðagöngu...BÖMMER!! EN ég skil þá svo vel!
Jæja best að fara að lesa og reikna
Góðar stundir
Fastlavn
Hér í Noregi er fastlaven haldinn hátíðlegur með bollum eins og við þekkjum á bolludag og einnig er það algengt að fólk klæði sig í búninga. Áður fyrr var þetta í raun heilvika sem fór í þetta svokölluð "fastlavn uka". Þá var bolludagur og öskudagur svo dæmi sé tekið og eiginlega einkenndist þessi vika af miklu áti og skemmtun. Það að kötturinn sé sleginn úr tunnunni og fólk flengt með "fastlavn ris" (bolluvendi eins og við þekkjum) er vel þekkt hér.
Í tilefni af fastlaven gerði Þórður fastlavn-ris í leikskólanum líkt og er á myndinni hér og á miðvikudaginn í næstu viku verður "Karneval" þar sem allir mæta í búningum
Hér fyrir neðan er texti sem ég fann á netinu um fastlaven en ég nenni nú ekki að þýða hann enda held ég að þið getið alveg stautað ykkur í gegn um þetta.Historikk rundt fastlavn
Hvorfor feires fastlavn?
Fastelavn er en festdag som blir feiret hvert år. Barna kler seg ut og slår katta ut av sekken. Etterpå er bordet dekket med boller og brus.
Fastelavn faller ikke på en bestemt dag. Den er seks uker før palmesøndag. Det kan derfor bare være fastelavn mellom 1. februar og 7. mars.
Det er en nær sammenheng mellom fastelavn og påske. I den katolske tid skulle man forberede seg til årets største høytid. Det var påsken som ble feiret til minne om Jesu død og oppstandelse. Man skulle derfor faste i 40 dager før påske. Det betydde at man bare kunne spise ganske lite, og det var mange slags mat man slett ikke kunne spise. Fasten var en sørgelig og trist tid.
Fastelavn betyr kvelden før fastens begynnelse. Den varte imidlertid i flere dager! Det var en riktig festtid hvor folk festet til langt på natt. De kledde seg ut, lekte, danset og spiste god og fet mat før den alvorlige fastetiden med den kjedelige maten begynte. Vi kan få et inntrykk av fastematen. I Harboør i Vestjylland spiste man all den tørre, saltete og røkte fisken man hadde igjen fra hele året. Dessuten spiste man grøt, velling, øllebrød, all slags melkemat og egg.
Karneval var en utbredt fornøyelse i fastelavnstiden. At karneval også har noe med fasten å gjøre, ligger i selve ordet karneval. Det stammer fra italiensk og betyr: farvel kjøtt!
Slå katten ut av sekken
De fleste barn har prøvd å slå katta ut av sekken. Når bunnen går i stykker, renner det ut slikkerier, appelsiner og en katt i papp.
I gamle dager var både barn og voksne med på denne leken. De kunne enten stå på bakken eller komme ridende på hester. Og det var en levende katt i sekken! Det hele gikk ut på å treffe sekken så hardt med stokken at katten falt ut av sekken. Vinneren ble kåret som kattekonge og var dagens helt.
Den stakkars katten har ikke hatt det godt. Den ble ikke slått ihjel, men løp fortvilet sin vei.Det var en tøff skikk, men den har en forklaring. I gamle dager ble katten ansett for å være et vondt og djevelsk vesen som var i ledtog med de onde makter. Den fikk derfor skylden for mange ulykker. Det har vært en fornøyelse for barn og voksne å plage katten. Fordi den selv var vond, skulle den en gang i året får merke vondskapen på sin egen kropp!
Michal Hansen Jernskæg har også beskrevet denne skikken i 1693:
"Det andet spil, det er to katte bundet sammen,
og I en tønde sat, derudi man ser gammen;
den tønde hænger højt på stærke reb og liner,
men katten indeni, hun skriger mer end griner.
De karle ride til med stærke stav og bomme,
og støder tønden hart med tykke stænger grumme,
til tønden går itu, og kattene bortrender."
Å kle seg ut
Det er en meget gammel skikk å kle seg ut til fastelavn. Både barn og voksne kledde seg ut i morsomme og fantasifulle drakter. Når man er utkledd, kan man lettere more seg. Man blir liksom et annet menneske. Man kan for en gangs skyld velge hvem man gjerne vil være og spille sin rolle fullt ut. Den utkledde narren kan ikke gå stille og rolig omkring, han skal vireklig oppføre seg som en narr.
Det gikk villt for seg når de voksne hadde kledd seg ut. Utenfor Holbæk var det vanlig at menn kledde seg ut som damer og kvinnene kledde seg ut som menn. Deretter dro de omkring for å lave ablegøyer.
I dag kan man stadig se noen utkledde barn som er ute å rasler med bøsser. Denne skikken har gått meget tilbake i løpet av de siste 30 årene. Det var ellers meget utbredt at utkledde barn gikk fra dør til dør. De sang en fastelavnssang og fikk en bolle eller litt småpenger.
Det var en stor fornøyelse for folk å spise hvitt brød. Fastelavns-uken ble derfor også kaldt hvetebrøds-uken.
I dag er bollene ofte med fyll, de er fyllt med både syltetøy og krem. Slik var det ikke i gamle dager, men omkring år 1700 begynte man noen steder å legge en smørklatt i midten av bollen. Ingenting var for godt til den festlige fastelavn!
Man vet ikke helt nøyaktig hvor gammel skikken med boller er. Det kan være at den går helt tilbake til dengang man dyrket Odin og Tor. Man ofret til gudene, og de skulle ha det beste av det beste. Og de fikk brød bakt av hvitt mel!
Fastlavn-ris
Riset stammer fra en mer enn 1000 år gammel skikk. Man brukte riset til å piske hverandre. I meget gamle dager var det særlig de unge pikene og de barnløse kvinnene som ble pisket. Folk trodde at slagene med riset ville gjøre det lettere for pikene å føde barn.
I gamle dager vekket barna foreldrene med riset. Som belønning fikk de en bolle. I mange familer er det fremdeles en tradisjon å vekke foreldrene med ris. Noen pynter riset med godteri og det som faller av under risingen tilfaller foreldrene. Noen setter bare det pyntede riset i en vase og lar det spire som en påminnelse om at våren er rundt hjørnet.
Fastlavn-uken
Fastelavns-søndag var den første og største festdagen. Den ble kalt fleskesøndag. Den dagen spiste folk bare flesk- og kjøtt-retter. Og da kom det fett flesk på bordet! Man skulle riktig nyte den fete maten, før fastens kjedelige matretter ble hverdagskosten.
Folk fortsatte med å spise godt fleskemandag. Når de først var kommet i gang, kunne de like godt fortsette.
Hvite-tirsdag spiste man friske boller eller kringler i varm melk eller pannekaker. Dagen fikk sitt navn fordi folk brukte hvitt mel. Til daglig bakte de av mørkt mel - rugmel.
Aske-onsdag var fast kirkedag. Den dagen skulle alle i kirken. I meget gamle dager møtte folk opp med aske i hår og ansikt. Denne skikken endret seg etterhvert. Da dyppet presten en finger i aske og tegnet et kors i pannen på hver enkelt kirkegjenger mens han sa: "Menneske, du er bare aske!"
Det skulle være for å gjøre menneskene ydmyke og fromme i den kommende fastetiden.
Fastelavns-ukens øvrige dager har ingen spesielle navn. Det kan skyldes at den stor festtiden nå var over.
Fastlavn- opptog
Det var fastelavnsopptog over hele landet. Til fots eller til hest besøkte byens unge og voksne menn husene og gårdene for å samle inn egg, flesk og penger til aftenens store fest.
Deltagerne i opptoget var utkledd. Noen mer enn andre. Det var tre personer man særlig la merke til: "Stodderen og den gamle kælling." De hadde en kurv med gavene. Og bajasen (narren) som hadde bjeller hengende over det meste av kroppen. Det var hans oppgave å spre morskap der hvor opptoget gikk.
Når opptoget kom til en gård, sang deltagerne ofte en sang:
I denne by i hver manns gård
går vi nu inn i dag
og det er jo egg vi synger for
fallerallera, ja, synger for
til våres gildeslav*.
*fest.
Musikere spillte, og det ble danset. Øl, snaps og epleskiver ble bydd rundt. Til sist dro opptoget videre til neste gård.
Lykilorð og klósettmál
líklega eitthvað rafmagnsdót eða dæla sem hefur bilað en það er alveg svakalegt þegar bygging sem í eru nokkur hundruð manns er ekki með neitt nothæft klósett...eða jú kannski nothæf en yfirfull........
smáblogg
Var að snúast í skólanum til ca hálf fjögur og fór í ræktina uppúr fjögur með Theu. Ég gekk svo fram af mér í þessum tíma að ég var við það að kasta upp í lokin og í dag eru lærin á mér eins og grjót, tók svo agalega á því í hnébeygjunum.Hildur og Sveinbjrön kíktu við í gærkveldi og sátum við við spjall frameftir kvöldi.
Í dag verð ég í skólanum meira og minna til kl fjögur, ætla ekki í ræktina, verð BARA heima eftir skóla. Stefni á að gera eitt af uppáhaldi fjölskyldunnar í kvöld, fiskisúpu.
rapport dagsins
Mm: Hrökkbrauð með osti og 1 líter kaffi.
Hm: Jógúrt, gulrætur, banani, mandarína.
3-kaffi: Gulrætur og epli.
Km: Svínasnitsel, grænmeti og kartöflur.
Hreyfing: Stuttur göngutúr.
Í gær fór ég í annan tímann minn í "Circle challenge" ég fór með Theu en þarna vinna tveir og tveir saman, samtals 5 "pör" við gerum ákveðnar æfingar í tækjum. Allir helstu vöðvahópar fá einhverja þjálfun þennan klukkutíma sem við æfum, fyrir tímann var ég búin að taka 20 mín á bretti. Þetta eru frábærir tímar og stefni ég á að fara í þá tvisvar í viku og mér heyrist að Thea sé á því líka

Í kvöld er uppáhalds sjónvarpsþátturinn minn "Frustrerte fruer" eða "Aðþrengdar eiginkonur".....þáttur númer tvö í þessari seríu. Bara gaman.
stikkorðablogg
Valdi kom frá Alnarp.
Oddný og Ola komu.
Gaman að hitta allt þetta fólk

Það er nóg að gera í skólanum, var t.d. í hópavinnu í dag en það er svo skemmtilegt að með mér í hóp er íslensk stelpa sem heitir Pálína
Ég er með móral að vera ekki enn búin að hringja í nokkra aðila á Íslandi ....en ég hringi, það kemur að því er ekki búin að gleyma.
Ræktin á eftir.
Mataræðið í dag:
Mm: Brauð, ostur, banani.
Hm: Jógúrt, brauðbolla.
3-kaffi: Appelsína.
Km: Hakk og grænmeti.
Kvöldsnarl: Epli eða vínber.
Við Stefán Snær förum á undankeppnina í "júróvísjón" þann 25. maí
ásamt nokkrum vinum.Setning dagsins:
"Yes we are always doing some mistakes in Iceland" (gullsetnig Pálínu í hópavinnu) - getið þið hvort Norðmenn hafi húmor fyrir þessu.....
Þorrablót á morgun!!!!!!!!!!
Maturinn verður að okkar hætti:
Hangikjöt
Reykt tunga
Sviðasulta
Súrmatur af ýmsum gerðum
Hákarl
Harðfiskur
Rúgbrauð
Soðið brauð
Brennivín
Kartöflustappa
Rófustappa
Þetta verður sko alvöru
Það er ekki pláss fyrir hljómsveit en geislaspilari verður brúkaður og sönghefti með nokkrum vel völdum þorraslögurum.Fullorðnir og börn ætla að eiga saman skemmtilega kvöldstund að íslenskum sið.
Það sem eftir lifir dags verður tileinkaður þessu blóti en ég er nú á leið til Ski ásamt Hrafnhildi til að versla inn ýmislegt sem vantar (servéttur og þ.h.) í kvöld verður brauðið steikt og á morgun verður síðan stöppugerð ógurleg

Haukur er meira að segja kominn í frí fram á sunnudagskvöld í tilefni af þessu
og gestir væntanlegir, Valdi kemur frá Alnarp og Oddný og fjölskylda kemur frá Elverum. Þetta verður svo gaman!!
Ævintýraferð í dag!
Á heimleiðinni vildi svo til að drengurinn sofnar í rútunni og þegar komið er að leikskólanum hans þá steinsvaf kappinn. Bente (fóstran) hafði ekki tekið eftir því að hann hafði sofnað og var komin út úr rútunni til að fá yfirsýn yfir börnin en þau eru ekki nema 6 eða 8 í skíðaskólanum. Nema hvað að þegar hún er að brasa þetta þá keyrir rútan burt!!!! OG Þórður Logi steinsofandi!!!!
Það upphófst þetta líka stress og fát á leikskólanum, og komust leikskólakonurnar að því m.a. að bílstjórinn var símalaus, þannig að þær þurftu að hafa upp á númeri hjá einhverjum öðrum starfsmönnum (frá öðrum leikskólum) til að láta vita að eitt barn hefði gleymst í rútunni!!!
Þórður var vakinn af einhverri ókunnugri manneskju í rútunni og leikskólastjórinn fékk að tala við hann til að segja honum að það væri allt í lagi og Kathleen (annar starfsmaður) myndi koma á bíl og sækja hann. Þórður var bara glaður með þetta, fékk að sitja frammí hjá rútubílstjóranum og voða hress með sig.
Eftir að Inger Lise leikskólastjóri hafði talað við Þórð hringdi hún strax í mig til að láta mig vita af þessu, mér fannst það gott hjá henni. Auðvitað hefði hún getað sagt mér þetta þegar ég sótti Þórð en æi mér fannst þetta mjög gott hjá henni. Kathleen náði svo í Þórð í barnaskóla í grenndinni og Þórður fékk eplasafa hjá henni á leiðinni í bílnum - þetta var heljarinnar ævintýri!!
Allir voru svo glaðir þegar ég kom að sækja kappann núna seinnipartinn en aumingja Bente var enn í sjokki og stressuðyfir viðbrögðum mínum.
Allt er gott sem endar vel sagði ég við hana, vona að hún sofi í nótt

Miðvikudagsmatseðillinn
10-kaffi: appelsína.
Hm: 2 Egg, grænmeti.
3-kaffi: ávöxtur.
Km: Hakk og spagetti + grænmeti (Þórður eldar).
Hreyfing: Ætla í ræktina seinniparti með frumburðinum og Theu.
Myndir!!
Þriðjudagur til þrautar
Mm: Kornfleks, léttmjólk, banani.
Hm: Kjúklingur, grænmeti, hrísgrjón.
3-kaffi: Appelsína.
Km: Buff og grænmeti (Stefán eldar).
Hreyfing: Sennilega engin markviss í dag, fór í spinning og pilates í gær.
Verð í fyrirlestri til kl 18 í dag

Annars verð ég að segja að hér er allt gott að frétta. Stefán hafði það gott hjá pabba sínum og fjölskyldu í Danmörku um helgina og þótti lítið mál að ferðast á milli einn. Munar mjög mikið um það að þurfa ekki að skipta um vél í Kaupmannahöfn en við fundum flug fyrir hann beint frá Gardemoen til Billund.
Við erum mjög ánægð með snjóinn en hér er búinn að vera snjór nánast alveg í tvo mánuði og frostið varla farið niður fyrir -10°. Núna er mikið um vinteraktivitet í skólunum, í næstu viku verður frí frá námsbókum í skólanum hans Stefáns en þá geta krakkarnir valið á milli nokkurra skíðagönguferða, skíðaferðar til Kongsberg, skauta eða gönguferð. Þórður hefur líka gönguskíðin með í leikskólann þannig að það er mikið verið að nota þessa árstíð, n.b. á öllum skólastigum.
Samkvæmt öllum spám þá fer snjórinn sennilega að gefa sig um páskana og þá kemur vorið. Við hlökkum líka til þess og ég tala nú ekki um sumarið
Ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram, eins gott að nýta veturinn vel!!
Get nú gert betur en þetta.....
Hreyfði mig markvisst í níu skipti og lagði að baki rúmlega 30 km.
Mjög lélegt að mínu mati og í engu samræmi við markmið mín.
Léttingur mánaðarins er -1,1 kg. Það er ég sko ánægð með og skrifast eingöngu á mataræðið.
Markmið febrúarmánaðar: Bæta mig í hreyfingu og léttast um 1 kg!!!