Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

tja sko....

30. janúar 2010 klukkan 15:47
Íslenska handboltalandsliðið hefur staðið sig með prýði, þeir töpuðu fyrir frökkum og keppa því um bronsið á morgun. Svekkt?? Já ég er svekkt en svona er þetta bara. Mamma þú sleppur þá við að kaupa bjórinn Tongue out Góðu fréttirnar eru þær að þeir hafa aldrei unnið brons á stórmóti en þeir hljóta að ná því - tökum secret á þetta!! Þá eiga þeir bara eftir að næla sér í gullið. Kannski þeir geri það bara á HM í Svíþjóð á næsta ári????

Dagurinn er annars búinn að vera afskaplega rólegur, Þórður fór í afmæli hjá Paul sem er þýskur vinur hans en afmælið var haldið í Hurlumheihuset.


fyrsta setningin komin í pælingabókina mína.....

29. janúar 2010 klukkan 19:03
Stjörnuspá - 29. janúar 2010
fyrir 18. febrúar 1974

"Þú ert næm og skapandi í dag. Ímyndunaraflið er sterkt. Þetta er því dagur til að hugleiða, pæla í andlegum málum, fást við skapandi verkefni eða skemmta þér. Nú er einnig gott að hjálpa öðru fólki. Hjálpsemi stuðlar að góðvilja sem skilar sér aftur til þín, þótt síðar verði."

Fyndið, það var svolítið sem kom upp í hendurnar á mér í dag sem varð til þess að ég fór og keypti mér tóma línustrikaða bók með hörðum "front"....þessa bók kalla ég pælingabók. Datt svo í hug að kíkja á stjörnuspána mína og viti menn það er þarna ein setning sem passar og síðasta setningin passar alveg.

Það hefur verið í miklu að snúast í dag og mikið hugsað.

Byrjaði á að vakna með drengjunum uppúr fimm í morgun og keyrðum við á flugvöllinn en Stefán þurfti að vera mættur þar um kl 7, Þórður kom með vegna þess að Haukur var að vinna.

Þegar ég kom heim, eftir að hafa keyrt Þórði á leikskólann, fékk ég símhringingu og síðan fór af stað "pæling". Síðan tóku við ýmsar útréttingar, búðir og skutl hingað og þangað. Við Þórður enduðum í afmæliskaffi hjá Ragnheiði 12 ára skvísu núna seinnipartinn og komum svo heim og elduðum kvöldmat. Haukur kom heim um klukkan sjö í kvöld...jebb það snjóar, hann var semsagt ekkert búinn að koma heim úr snjómokstri síðan hann fór klukkan tvö í nótt!!!

Á morgun fer Þórður í afmæli.

 

Mataræðið í dag: Eftir bókinni, fyrir utan hollustupizzu í kvöld og súkkulaðiköku hjá Lydíu....en eins og Lydía sagði "það er föstudagur" Wink

 

fimmtudagur til frama (var það ekki?)

28. janúar 2010 klukkan 08:02
Ég held við vinnum Norðmenn í dag. Þetta verður æsispennandi leikur og við vinnum þá því við erum með mikið betra lið en þeir, það er nú bara þannig. Norðmenn eru mjög stressaðir yfir leiknum en ef þeir eiga að eiga séns í að komast áfram þá skilst mér að þeir þurfi að vinna með 4 marka mun og Króatar verða að vinna Dani.....þeir skelfa bókstaflega á beinunumLaughing Vona reydnar að Króatar vinni Dani því mér finnst Danir hafa komist svolítið bakdyrameginn inn....en jæja ætla ekki að eyða meiri orðum í það.

Dagurinn er þéttskipaður en nú er ég á leið í fyrirlestur hjá honum Jon Frank sem er sá kennari sem hefur virkilega áhuga á og veit hvað er um að vera í skógræktarmálum á Íslandi, skemmtileg týpa, skemmtilega forvitinn og eins og M&M kúla í laginu!!!! Segi samt ekki að ég vilji borða hann Laughing

Eftir fyrirlestur og heimalestur á ég stefnumót við eldri soninn en við ætlum að skella okkur í ræktina, sækjum svo Þórð Loga og förum heim og horfum á leikinn.
Stefán Snær ætlar að sjá um kvöldmatinn í kvöld, mexikóskur matur verður í boði skilst mér.
Síðan í fyrramálið verðum við að taka daginn snemma og keyra uppá Gardemoen því hann er að fara til Danmerkur í helgarheimsókn til pabba síns og fjölskyldu.

Læt þetta duga í dag ÁFRAM ÍSLAND!!!

Maturinn í dag.
Mm: Kornfleks, léttmjólk, banani.
10-kaffi: epli.
Hm: Grænmeti og egg.
3-kaffi: Appelsína.
Km: Mexikómatur (hakk, grænmeti, salsa).

"Fyrirsögn"

27. janúar 2010 klukkan 13:01
Takk fyrir upplýsingarnar varðandi sprengidaginn, vissi alveg að hann væri á þriðjudegi og 15. eða 16. feb skipti ekki alveg höfuðmáli. Auðvitað er hann svona snemma í ár því páskarnir eru snemma Cool Sem vekur mann til umhugsunar um hvað maður eigi að "gera" um páskana Smile Ótal hugmyndir hafa dúkkað upp en sú öfgakenndasta kemur frá Hauki en hann vill fara á sólarströnd, hann er komin með upp í kok af snjó og langar til að taka viku í sól og sumaryl. Ég var svona meira að hugsa um hyttuferð hér í Norge eða bara að vera hér á Skogveien.....en tja hver veit Wink

Við Stefán fórum í gær og keyptum "ungdomskort" í Ås treningssenter, drengurinn ætlar að byrja að æfa og þá aðallega hlaup og fara í tæki en svo er einnig möguleiki fyrir hann að fara í sérstaka ungdomstíma eða squash.
Ég er að hugsa um að kaupa mér aðgang þarna líka þannig að maður sé eitthvað í þessu með honum en þarna er endalaust framboð af allskonar tímum og flott aðstaða í alla staði. Fann það um daginn þegar ég prófaði að fara í prufutíma í pilates að það er snilld á móti hlaupunum Cool

Mataræðið í dag:
Mm: Kornfleks, léttmjólk og banani.
10-kaffi: Epli.
Hm: Lummur (ekki alveg eftir prógramminu en......).
3-kaffi: Appelsína.
Km: Fiskur og grænmeti.
Hreyfing: Stefni á gönguskíði í kvöld.

Markmið dagsins

26. janúar 2010 klukkan 11:48
Matarmarkmið dagsins:
Mm: Brauð m. smjöri og 25 gr ostur, appelsína.
Hm: 1 egg, 25 gr ostur, grænmetissúpa.
3-kaffi: Banani.
Km: Pylsur, pasta og grænmeti (Þórður Logi eldar í dag).
Kvöldnasl: Appelsína

Hreyfing: Fer á gönguskíði í dag.


Fyrir utan þetta þá verður horft á handboltaleik og kjöt sett í pækil fyrir sprengidaginn. Ég var að kíkja á efni fyrirlestursins á morgun og ætla að renna yfir einn kafla í skógvistfræði í kvöld.

.......en ein spurning, hvenær er sprengidagurinn í ár????

já sæll, bara nokkuð brött!!!

25. janúar 2010 klukkan 12:54
Dópaði mig upp fyrir prófið í morgun (svona til öryggis), einbeitingin var þá allavega til staðar Tongue out Fannst þetta nú ekkert svo rosalega erfitt próf, það var aðallega erfitt að koma öllum íslenskum og norskum hugsunum niður á blað á engilsaxnesku - sem mundi seint teljast mín sterka hlið.
Vona samt að þrátt fyrir veikindi síðustu daga að þá hafi ég nú slumpast í gegn um þetta Cool
Síðan hefst vorönnin á miðvikudag ég tek þrjá kúrsa sem eru: "Skogøkologi",  "Ressursøkonomi og planlegging i skogbruket" og þriðji kúrsinn er "Vitenskapelig metode i økologi og naturforvaltning". Það er einnig mjög gaman að segja frá því að próftaflan er komin, þannig að ef það hefði verið árekstur í próftöflu þá hefði ég geta býttað út kúrsum áður en vorönnin byrjaði Smile Þetta er ágætis kostur og dæmi um góða þjónustu, þó ég setji spurningarmerki við það hvað einkunnir eru að berast manni seint en það geta alveg liðið uppí 5 vikur, eða það gerði það hjá mér.
Núna er ég hálf í losti eftir að vera búin í prófinu, veit ekki hvað ég á af mér að gera en held að eftir að hafa setið þetta við tölvuna núna þá ætli ég að taka smá tiltektarskurk  hér á heimilinu, hér hefur lítið verið þrifið í þrjár vikur og því alveg kominn tími á smá svona "púss". Síðan mun ég sækja Þórð snemma á leikskólann því maður verður að vera tilbúinn fyrir framan tölvuna þegar LEIKURINN byrjar.
Ætla kannski á skíði í kvöld, ef ekki þá í það minnsta á morgun.

Maturinn í dag:
Mm: Kornfleks, mjólk, banani.
10-kaffi: brauðsneið og epli.
Hm: Kjúklingaafgangur og grænmeti.
Km: Grænmetissúpa, harðsoðin egg, ostur (brie) og nýbakað brauð. Veisla í tilefni dagsins.
Millimála: Ávextir.

Sunnudagur til lesturs, kaffidrykkju og parkódínsáts!!!

24. janúar 2010 klukkan 09:20
Horfðum á leikinn í gær og þvílík gleði!! Ég held við verðum Evrópumeistarar en það var ég búin að segja í upphafi móts við Hauk, sjáum svo til hvort ég hafi rétt fyrir mér Wink

Ég er búin að vera lasin síðan á föstudag og hef því lítið getað lært, algjörlega vantað einbeitingu og bara ekki liðið vel, lá fyrir í gær undir teppi og dormaði. Í dag er ég allt önnur (eða aðeins skárri) og ætla að hella í mig allskonar "stöffi" eins og t.d. parkódín og kaffi til að ná að lesa síðasta sprettinn fyrir prófið á morgun.
Haukur og strákarnir voru að leggja í hann til Svíþjóðar til að versla inn til næstu vikna, þannig að mér er ekkert að vanbúnaði.
Maturinn í dag:
Mm: Ristað brauð, 25 gr ostur, banani.
Hm: Ristað brauð, túnfiskur, majo og grænmeti.
Km: Veit ekki en Stefán á að elda í kvöld og hann ætlar að kaupa e-ð í Svíþjóð, ég veit þó að grænmetisskammturinn verður á sínum stað.
Milli mála epli og appelsína....kaffi, parkódín og vatn - mikið af vatni!!!

smá aðhaldsblogg

23. janúar 2010 klukkan 11:38
Til aðhalds fyrir mig þá set ég þetta hér inn.
Mataræðið í dag:
Morgunmatur: Ristuð brauðsneið, 25 gr ostur, 1 banani.
Hádegismatur: Ristuð brauðsneið, 60 gr túnfiskur (ég veit - aðeins of lítið), 10 gr majones (fita er nauðsynleg) og 250 gr. grænmeti.
Milli málasnarl: Eitt kanilepli á pönnu + sýrður rjómi, ein appelsína.
Kvöldmatur: 120-170 gr kjúklingabringa með bökuðum tómötum og fersku grænmeti (tómatar + grænmeti = 250-300 gr.)

Laugardagsblogg

23. janúar 2010 klukkan 09:53
Jæja nú sér fyrir endann á "janúarblokkinni" en nokkrir kúrsar eru kenndir í janúarblokk og þá er kennt intensivt í 3 vikur og próf í lokin. Kúrsinn sem ég tók heitir Environmental monitoring og telur hann 5 einingar og prófið er núna á mánudaginn.
Mér finnst þetta mjög skemmtilegt hvernig námið er sett upp hér. Það eru haust og vorannir (sept til des og feb til maí) og svo er kenndir kúrsar í blokkum í janúar, júní og ágúst. Þá getur maður annnaðhvort dregið úr álaginu á hefðbundnu önnunum eða tekið námið hraðar. Þetta er samt allt háð því að maður finni áhugaverða kúrsa í þessum blokkum, ekki alltaf sem það gengur upp. Mér sýnist að ég muni nýta mér þetta blokkafyrirkomulag út í ystu æsar Smile


Við búin að plana frí í febrúar. Föstudaginn 19. febrúar eftir skóla og vinnu leggjum við í hann til Svíþjóðar nánar tiltekið til Skövde - sjá hér. Búin að leigja okkur hús í fjórar nætur ásamt Sverri frænda, Dönu og Jónda syni þeirra. Það verður kærkomið frí fyrir okkur öll. Hlökkum mikið til Laughing

Jæja, best að halda áfram að lesa, njótið helgarinnar Cool

hand og fótskrúbbur

20. janúar 2010 klukkan 16:46
Þegar Björk og Þórhildur komu hér fyrir jól þá dekruðum við okkur út í eitt. Eitt sem við prófuðum var m.a. þessi skrúbbur sem Bríet bjó til og færði okkur.

Möndluskrúbbur
Lúka af möndlum, möndlurnar hakkaðar niður í mixara (möndlurnar mega vel vera með hýði).
Svolítið af kókosolíu sett út í.
Piparmyntuolía, örlítið.
Blandað saman og sett í krukku.
Þetta nuddar maður svo á hendur og fætur og trúið mér tararammmm, maður fær silkimjúkar hendur og fætur.

verðlaun...

20. janúar 2010 klukkan 16:39
Af því að ég náði prófunum mínum á haustönn og af því að ég er búin að vera svo dugleg í janúarblokkinni þá hef ég ákveðið að elda indverskan mat EFTIR mánudaginn næsta, þegar ég hef lokið við janúarblokkarprófið.
Nánari dagsetning er ekki ákveðin en ég er búin að finna uppskrift af uppskriftavef mbl.is og þetta ætla ég að elda:


Tandoori-kjúklingur
1 kg kjúklingabringur eða úrbeinuð læri
1 dós grísk jógúrt
1 lítill laukur
2-3 hvítlauksgeirar
1 grænn chili-pipar, fræhreinsaður
2-3 sm af engiferrót, flysjuð
2 tsk Garam Masala-krydd
1 sítróna
1 tsk salt
Skerið kjúklinginn í bita og setjið í fat. Kreistið safann úr sítrónunni yfir og látið marínerast í allt að hálftíma. Setjið önnur hráefni í blandara. Hellið yfir kjúklinginn og látið liggja í ísskáp í nokkra klukkutíma. Best er ef hægt er að leyfa þessu að blandast saman yfir nótt. Það er þó ekki nauðsynlegt.
Takið kjúklingabitana upp úr leginum. Setjið í ofnfast fat og eldið í 220 gráðu heitum ofni í 25-30 mínútur. Berið fram með blómkáli og kartöflum að hætti Norður-Indverja, indverskum kryddgrjónum, raita-jógúrtsósu og Naan-brauði.

Blómkál og kartöflur að hætti Norður-Indverja
Þetta er bragðmikill réttur sem er tilvalið meðlæti með mörgum indverskum réttum.
1 lítill blómkálshaus
300 g kartöflur
1 tsk cummin
1 tsk, ristuð og mulin cummin-fræ.
1 msk heil cummin-fræ
1 tsk kóríander-krydd
1 tsk túrmerik
1/2 tsk cayennepipar
1 grænn chili, fræhreinsaður og fínt saxaður
Salt og pipar
Sjóðið kartöflurnar og látið kólna. Skerið niður í bita. Brytjið blómkálshausinn gróft niður.
Takið til kryddin. Gott er að safna þeim saman í einn lítinn bolla eða skál (að heilu cummin-fræunum undanskildum) áður en maður byrjar. Þar sem ristuð, mulin cummínfræ eru ekki að jafnaði til í íslenskum kryddskúffum þurfum við líka að útbúa þau. Setjið heil cumminfræ á pönnu án olíu og hitið þar þau byrja að dekkjast. Best er að gera nokkrar matskeiðar og geyma afganginn. Þegar þið hafið ristað fræin myljið þið þau í morteli.
Hitið olíu á pönnu og byrjið á því að setja heilu cummin-fræin út í. Bætið síðan strax við blómkálinu og steikið í nokkrar mínútur. Bætið þá við öllum kryddunum og saxaða chili-piparnum. Saltið og piprið. Blandið kryddunum vel saman við blómkálið og kartöflurnar. Lækkið hitann og haldið áfram að steikja í um fimm mínútur. Veltið kartöflunum og blómkálinu reglulega á pönnunni.

Indversk kryddgrjón
Hrísgrjón eru yfirleitt ómissandi með indverskum mat. Hérna er leið til að gera þau bragðmeiri og ekki síst litríkari.
4 dl Basmatigrjón
1 tsk turmerik-krydd
5 negulnaglar
1 kanilstöng
3 lárviðarlauf
Salt
Setjið grjónin í pott ásamt vatni. Bætið kryddunum útí og blandið saman. Sjóðið rólega. Takið lárviðarblöðin og negulnaglana úr þegar grjónin eru tilbúin.

Raita
Þetta er hin sígilda indverska jógúrtsósa sem kælir vel kryddið í matnum.
1 dós grísk jógúrt
1 lítil lúka af söxuðum myntublöðum
1 agúrka, flysjuð, fræhreinsuð og rifinn gróft á rifjárni
1/2 tsk Cayenne-pipar
1 tsk cummin
Salt og pipar
Setjið jógúrtið í skál og blandið öðrum hráefnum saman við með gaffli. Kælið í ísskáp.

 

já einmitt það...

18. janúar 2010 klukkan 17:06
Jahérna hér!!
Þetta hefur gerst afar sjaldan, ég hef ekki bloggað í þrjá daga í röð!!
Ég hef einhvernvegin ekki fundið fyrir þörf til þess og þess vegna ekkert verið að rembast eins og rjúpan við staur.
Afmælisveislan gekk vonum framar.
Ég var búin að vera með í maganum yfir því að fá átta unglinga (níu með Stefáni) í pizzu, hugsaði með mér hvað ég væri nú búin að koma mér í. Reyndar hefur sú hugsun oft oft komið upp í kollinum á mér síðustu misserin en ætli þetta sé ekki einn liðurinn í þroskaferlinu...maður þarf alltaf að vera að ögra sjálfum sér. En hvað um það, afmælið gekk vel, ég bakaði fjórar pizzur, keypti sex gosflöskur og fullt af nammi. Til að gera langa sögu stutta þá var rúmlega ein pizza eftir, helmingurinn af gosinu og helmingurinn af namminu!!! Haukur fékk lánaðan litlan minibus og keyrði svo genginu í bíó og splæsti nasli og drykk á liðið.
Á leiðinni í bíóið (ca 10-15 mín keyrsla) voru græjurnar þandar og sungu drengirnir og klöppuðu en það var norsk tónlist, hljómsveitin DDE. Þeir voru ánægðir með myndina og því var það alsæll 14 ára unglingur sem kom heim um kvöldið. Hann fór svo með allan afmælispeninginn í Skistorsenter á laugardaginn og keypti sér draumagræjuna "ipod touch".
Restin af helginni fór svo að mestu í lestur, afslöppun, þrif, eldamennsku og skíðaæfingar en við Þórður erum að feta okkur áfram á skíðabrautunum, auk þess datt ég ofan í "yndisbókalestur" og síðan kláraði ég "hauskúpupeysuna" Þórður er alsæll með hana og var mjög montið að fara í henni í leikskólann í morgun.
Það er mikil viðvera í skólanum þessa dagana (s.k. janúarblokk) en ég fer í próf eftir viku og eftir það byrjar vorönnin.
Við fórum í smá felövelse í dag í janúarkúrsinum, skoðuðum veðurstöðina hér í Ås og fórum svo út í skóg, þar sem við kynntum okkur trjáklifur og hvernig sýnatöku er háttað í skógi þ.e. þegar tekin eru sýni, ofarlega af trjám, þessi voru um 23 m há og því ansi mikið klifur og notaður var samskonar búnaður og notaður er við fjallaklifur. Síðan var kveikt bál og við borðuðum "lunjs" Wink
Eftir að hafa sótt Þórð á leikskólann fórum við á skíði og Amý og Björn komu með, það var mjög gaman og mikill styrkur fyrir þau litlu vinina að vera saman í þessu.
Ég hef ekkert verið að standa mig í hlaupum eða kraftgönguferðum, hef bara ekki haft tíma....en það lagast. Ég fjárfesti í hlaupagormum um helgina sem eru einskonar mannbroddar og gera mann því öruggari á hlaupum/göngu í hálkunni. Bíð bara eftir að Bríet komi heim fra Bahamas en við höfum stutt hvor aðra í þessum hlaupum.....Smile
Læt þetta duga í bili, fiskurinn er "reddí" Cool

Stefán Snær......

14. janúar 2010 klukkan 13:48
.......... á afmæli í dag, 14 ára!!!!
Vá hvað tíminn flýgur - finnst svo stutt síðan hann fæddist og tók fyrstu skrefin. Það er ekki til betri mælikvarði á hvað tímanum líður en aldur barnanna okkar.
Við gáfum honum pening og mér skilst hann ætli að safna sér og kaupa rafmagnstrommusett eða ipod touch.
Hann er búinn að bjóða nokkrum vinum sínum hingað heim í pizzu eftir skóla á morgun og svo verða drengirnir ferjaðir til Ski þar sem farið verður í bíó. Búin að kaupa miða á Sherlock Holmes...í númeruð sæti (það er sko svoleiðis hér og svo kaupir maður miðana á netinu)Cool
Við hættum semsagt við sundferð því það er mun lengri akstur þangað.

Ferming: Hef mikið verið spurð út í fermingu Stefáns en það er ákveðið að hann mun fylgja sínum bekkjarfélögum í fermingarfræðslu næsta vetur en hér fermast börnin ári seinna en heima. Þannig að við stefnum að sumarfermingu í Skagafirði 2011 en þá verðum við vonandi að flytja heim á eyjuna fögru. Hljótum að geta fengið einhvern prest til að ferma drenginn, nema hann fermist hér þó veislan verði heima - sjáum til, nægur tími til stefnu.

Stefán og tveir vinir hans eru búnir að stofna hljómsveit, þeir fá að æfa í skólanum á miðvikudögum og það sem er á stefnuskránni er að æfa Nirvana lög.
Það gengur ágætlega hjá honum í skólanum en hann stefnir á að bæta sig og félagslegi hlutinn er í mjög góðum málum og það er fyrir öllu.

Í dag stóð hins vegar til að baka köku og hafa það náðugt hér heima en auðvitað er eldavélin og bakarofninn að stríða okkur, slökkti á sér áðan Yell Vona að hægt sé að laga það á einfaldan hátt, er ekki alveg til í að leita að nýrri eldavél núna Undecided
ofninn þarf að vera í góðu lagi á morgun svo ég geti bakað allar pizzurnar!!!!

Annars eru aldeilis góðar fréttir, fjölskyldan mín (mamma, pabbi, systkini, makar og börnCool) koma í sumar. Þau koma 6. júlí og verða til 15. nema mamma og pabbi þau verða viku lengur.
Það er heldur betur farið að þéttast á dagatalinu okkar og stefnir í mikinn gestagang. Ása Dóra kemur í lok júní og verður í viku, Halla kemur í mars og svo eru margir aðrir að spá og spegúlera en ekkert fast í hendi enn.

Askorendapenninn

13. janúar 2010 klukkan 08:56
Að nýta tækifærið
Það má með sanni segja að meiningin í fyrirsögninni hafi verið mitt mottó síðustu misserin. Eftir þó nokkurn undirbúning (andlega aðallega) breyttum við fjölskyldan til á liðnu sumri, eftir nærri tíu ára búsetu á Hvanneyri (og tíu ára búsetu utan Skagafjarðar)og fluttum til Noregs þar sem ég fann hjá mér þörf til að mennta mig meira.
Það væri ekki heiðarlegt af mér að segja að þetta væri ekkert mál, því þetta er heilmikið mál. Fyrir utan pappírsfargan þá hafa allir þurft að aðlagast nýjum aðstæðum, venjum og hugsunarhætti.
Við tókum hins vegar mjög meðvitaða ákvörðun í upphafi, en hún var sú að hvernig sem þetta allt færi, hvernig mér líkaði í skólanum, manninum mínum í vinnu eða drengjunum í grunnskóla og leikskóla þá skyldum við nýta tækifærið. Við lærum t.d. öll nýtt tungumál sem er afar dýrmætt. Rúsínan í pylsuendanum er að við búum í „Mekka" skíðaíþróttanna og því er þetta kjörið tækifæri til að læra þá íþrótt. Hér er alltaf logn og sjaldan afsökun til að vera ekki úti nema þá kannski þegar frostið er orðið meira en -20°C. Hlaup og gönguferðir eru því kjörnar íþróttir, það er allavega engin afsökun til að fara ekki út að hreyfa sig. Hér eru göngustígar um allt, sumir hverjir skógarstígar eru einnig upplýstir og nýtast þá sem skokk-eða göngubrautir þegar snjólaust er en á veturna eru þar troðnar skíðagöngubrautir. Já, útivist og skíðaganga er þjóðareinkenni Norðmanna.
Þó svo að þetta sé svona hér þá ætti fólk ekki að gleyma því hvað það hefur það gott á Íslandi, þrátt fyrir þrengingar í efnahagslífinu. Tækifærin eru allsstaðar, það er bara að koma auga á þau. Ég vil nefna sérstaklega eitt séreinkenni Íslands en það eru sundlaugar landans. Ég hef t.d. komist að því að aðgöngumiði í sundlaug hér í nágrenninu kostar 120 til 135 krónur norskar (fer eftir því hvort um er að ræða helgi eða virkan dag) en hvað kæmist maður mörgum sinnum í sund á Króknum fyrir það? Þar sé ég tækifæri.

Sigríður Júlía Brynleifsdóttir
Ås
Noregi

Blessuð sértu sveitin mín....

11. janúar 2010 klukkan 07:28
.....þessi bloggfærsla á nú ekkert sérstaklega að fjalla um sveitina mína í hinum fagra Skagafirði. Hún á nú meira að fjalla um þorramat Cool Óneitanlega fléttast þá mín heimasveit inn í þá umræðu því það er að sanna sig hvað eftir annað hvað afturhaldssemi/íhaldssemi getur borgað sig. Það mundi seint teljast afturhaldssemi/íhaldssemi að halda þorrablót heldur er það meira framkvæmdin sem ég vil ræða. Málið er að í minni heimasveit og ég held á flestum þorrablótum í Skagafirði mætir fólk með matinn með sér. Það eiga allir trog og útbúa matinn í trogið. Þetta er ákaflega hentugt því ekki þarf að eyða plássi í félagsheimilinu í hlaðborð sem oft þegar litið er yfir minna lítið á þorrann (pottréttir eru sko ekki þorramatur). Auk þess er það afar hentugt að geta gætt sér á þorramat allt kvöldið á meðan skemmtiatriðin "rúlla". Svo ég tali nú ekki um að fá sér nætursnarl þegar heim er komið.
Núna er svo komið að við íslendingarnir hér að Åsi ætlum að reyna að halda lítið þorrablót. Við höfum verið að sanka að okkur allskyns varningi því tengdu og ef við leggjum saman þá leynist hér í frystum harðfiskur, slátur og hangikjöt, okkur vantar því sviðasultu (hentugra að flytja sviðin í sultu...), súrmat og hákarl. Á vissum svæðum hér í Noregi er hefð fyrir að borða reykt svið og við gætum kannski orðið okkur út um svoleiðis mat. Við getum keypt súpukjöt sem við gætum pæklað sjálf (en okkur vantar uppskrift...einhver??) Við kunnum að gera rófustöppu og kartöflustöppu og hér getum við keypt ekta smjör. Flatkökurnar gætum við búið til, svo og rúgbrauð og steikt brauð...allar uppskriftir vel þegnar.

Í framhaldi að þessu þá er ég að komast að því hvað það er nú gott að þurfa að hafa fyrir þessu, maður getur gert ýmislegt sjálfur og menningarverðmæti eins og að kunna að gera þorramat, baka og steikja brauð er mikilvægt að halda í. Við þurfum að hafa fyrir því að halda í okkar menningu - jú auðvitað eru alltaf einhverjir sem spá í þetta en afar fáir sem gera þorrabakkana sína frá A til Ö.

Læt þetta duga að sinni en hér á eitthvað að slakna á frostinu, það fer niður í -10°C um miðja vikuna.....Smile

Samvinna

07. janúar 2010 klukkan 17:37
Haukur kom með snilldartillögu um daginn. Hún var sú að hver og einn á heimilinu verði að elda eina máltíð í viku og vaska upp og ganga frá í eldhúsi á eftir Laughing Held hann hafi verið að gera sér grein fyrir því að nú sé álagið á mér að aukast og því verði þeir að taka meiri þátt í heimilishaldinu.
Þeir byrjuðu í þessari viku. Þórður Logi eldaði á þriðjudagskvöldið (ég hjálpaði honum), hann tók til pott og náði í grjón upp í skáp og mjólk í ísskápinn. Hann lagði síðan á borðið og eftir að ég hafði sett grjónin upp og hann búinn að hræra í þá fór hann að leika við Amý vinkonu sína og "gleymdi" að hann var að elda.....auðvitað...bjargaði mamman því Laughing Í gærkvöldi eldaði Stefán Snær pítu - brúnaði hakk, brytjaði grænmeti, lagði á borð og vaskaði upp Laughing Haukur eldaði í kvöld bjúgu og kartöflumús. Bjúgun og jóla-dalabrie færði Eyjólfur okkur þegar hann kom "heim" úr jólafríi. Ég sé fast um föstudagspizzuna og svo "fæ" ég að ráða hvað verður eldað hina dagana.

Auk þess að þeir hafi tekið á sig aukna ábyrgð í eldhúsinu þá verður hver og einn að ryksuga einu sinni í viku....það var reyndar ekki ákveðið hvaða dagar það væru þannig að þeir hafa ekkert ryksugað enn.

Skólinn er byrjaður á fullu hjá mér, fyrirlestrar og GIS yfirferð í tölvusal. Kennarinn mun leggja fram alls tuttugu verkefni en maður þarf að standast a.m.k. 15 þeirra til að hafa próftökurétt. Við höfum 2 sólarhringa til að leysa hvert (eftir að hann hefur lagt þau fyrir). Hann er nú þegar búin að leggja fram nokkur þeirra og hefur gengið vel að vinna þau. Í lok áfangans verður 3 klst. próf eða þann 25. janúar.

Hér er mjög kalt þessa dagana eins og ég hef minnst á undanfarið en það hefur ekkert bætt í snjóinn. Haukur hefur hins vegar verið kallaður í söltun og sópun í Osló með ca 4 daga millibili.

Seinnipartinn á morgun er jólaball á leikskólanum og síðan er Þórði boðið í afmæli á laugardaginn.
Stefán Snær á afmæli í næstu viku og erum við með þá hugmynd að bjóða nokkrum vinum hans í sund í Askim en þeir eru með ágætis afmælistilboð þar sund+matur Wink Íbúðin hér býður ekki alveg upp á neitt "geim" og þetta er svona það sem Stefáni langar helst til að gera í tilefni dagsins.

Alltaf nóg að gera hér Cool

tølvuvandrædi!

06. janúar 2010 klukkan 07:39
Sit i tima i tølvusalnum og thad er eitthvad vesen a systeminu sem vid eigum ad nota, thannig ad nu er eg bara ad bida eftir ad allt komist i lag.
Allt gott ad fretta her. Mjøg kalt -22 gradur!!! Nu gildir ekkert annad en ull, ull og aftur ull!
Stefan ætlar ad skreppa eina helgi til Danmerkur i lok januar og eru allir gladir med thad, loksins kemst hann til pabba sins og hans fjølskyldu. Gengum fra thessu i gærkv. Laughing Fann nefnilega flug med Cimber-Sterling sem flygur beint fra Gardemoen til Billund sem er ekki langt fra Jelling thar sem pabbi hans byr. Ekki nema klukkutimaflug Wink
en kostar alveg slatta, tæpar 1400 kronur danskar....en vid sjaum ekki eftir theim peningum.
Sidan stefnum vid a ad fara eina langa helgi til Svithjodar (i februar) og hitta Sverri (frænda), Dønu og Jonda i sumarhusi i Skövde. Reikna med ad thad verdi tekin æfing fyrir Vasa 2011!!!
Læt thetta duga i bili, allt ad komast i lag her.

smáblogg

03. janúar 2010 klukkan 16:10
Við höfum farið út á hverjum degi núna undanfarið til að prófa skíðin og venjast. Get nú ekki státað mig af mikilli og hraðri yfirferð en nú gengur þetta út á að læra tæknina (eins og ég held að maður eigi að gera.....). Þórður verður fljótur að ná þessu og verður gaman að sjá þróunina þegar skíðanámskeiðið byrjar. Stefán hefur verið að prófa snjóbrettið og var ekki á því að gefa því neinn séns en eftir daginn í dag þá er hann jákvæðari. Nú pressa ég á Hauk að láta vaða og kaupa sér útbúnað - hundleiðinlegt ef hann ætlar ekki að nýta tækifærið með okkur....
Við erum alveg að "fíla" það að búa á stað þar sem veturinn er virkilegur vetur, allir þessir möguleikar, bara dásemd. Hvaða staður á Íslandi gæti komist næst þessu....?? Við þangað!!

Ætla út í frostið og taka góðan göngutúr áður en ég elda kvöldmatinn sem verður gómsæt ýsa, kartöflur og rúgbrauð.

Áskorun dagsins...

02. janúar 2010 klukkan 17:28
....ég skoraði á Hauk að elda kvöldmatinn og þvílík dásemd mmmmm, verð að deila:

4 kjúklingabringur sem skornar eru í tvennt, brúnaðar á pönnu.
Laukur saxaður og steiktur í potti, kjúklingurinn settur saman við, kryddað með salti og pipar. 1 1/2 dl grænmetissoð, safi úr einni sítrónu, 1 tsk oregano, 1 tsk majoran bætt í ásamt einni dós af tómötum (niðursoðnum). Látið krauma í 30 mín. Ein rauð niðursöxuð paprika og 1 lítil dós tómatkraftur (70 gr) sett út í og látið krauma áfram í 10 mín. Borið fram með salati og annaðhvort kartöflum eða hrísgrjónum.


Uppskriftin er fengin úr einni af bókunum sem hann fékk í jólagjöf Cool

Gleðilegt nýtt ár!!

01. janúar 2010 klukkan 21:37

Takk fyrir allt gamalt og gott, njótið lífins og sjáið tækifærin í árinu 2010, þau eru sko allt um kring!!

Það sem ég ætla að gera á árinu 2010 er eftirfarandi:
Hafa gaman af lífinu.
Vera til staðar fyrir drengina mína og manninn.
Njóta þess að vera í góðra vina hópi.
Stunda námið af fullum krafti.
Ferðast.
Ganga á fjöll.
Hlaupa.
Læra á gönguskíði.


Markmið desembermánaðar var:
Að hlaupa eða ganga 18 daga - tókst ekki, fór 13 sinnum
Að hlaupa eða ganga 100 km - tókst ekki, fór um 60 km
Markmið janúarmánaðar er:
Að hreyfa mig markmisst 18 daga
Að hlaupa, ganga, hjóla 100 km
Að léttast um 1 kg.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.