Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Annáll 2009

31. desember 2009 klukkan 13:04
Janúar: Við Tedda vinkona byrjuðum á MRL námskeiði hjá Önnu Berg, besta leikfimi sem ég hef prófað. Auk þess var ég eins og áður dugleg að mæta í spinning tíma í Borgarnesi. Mjög góð blanda þetta.
Febrúar: Við settum húsið okkar á sölu, vegna fyrirhugaðs flutnings til Noregs.
Mars: Skilaði minni fyrstu vísindagrein inn til IAS.
Apríl: Sendi út umsókn um skóla og Haukur sótti um vinnu á Lesterberg gård.
Maí: Fékk bréf frá skólanum, komst inn. Fengum líka að vita að við fengjum íbúð á stúdentagörðunum. Haukur fékk að vita að hann fengi vinnuna í Noregi. Leikskólapláss á Kroer Friluftsbarnehage var einnig tryggt.
Júní: Hætti að vinna hjá Vesturlandsskógum, seldum íbúðina, Stefán kvaddi skólann sinn og Þórður hætti á leikskólanum Andabæ.
Júlí: Ég og systur mínar tókum þátt í 3 km hlaupi á landsmóti UMFÍ, vorum allar í stíl í appelsínugulum bolum með appelsínugul buff í hárinu! Vorum í fríi í Skagafirðinum og sigldum svo út á vit ævintýranna, vorum í viku í bústað í Danmörku. Fékk greinina senda eftir að ritrýnendur höfðu farið yfir, hafði ekki tíma til að fara í að lagfæra.
Ágúst: Komum til Ås, ég byrjaði í UMB, fór í námsferðalag til Buskerud, Haukur byrjaði í vinnunni sinni, Þórður byrjaði á Kroer friluftsbarnehage og Stefán í Ås ungdomsskole. Hreinn meðhöfundur fór yfir greinina og lagfærði og sendi inn. Bebba, Sgtryggur og Óskar Óðinn komu í heimsókn.
September: Pappírsvesen, aðlögun, fengum kennitölurnar og heimilislækni, byrjaði að hlaupa, fór í gönguferð í Nordmarka með hressum stelpum.
Október: Vinna, skóli, Palli og Torfi komu í heimsókn.
Nóvember: Haukur fór í veiðiferð til Svíþjóðar með íslenskum félögum hér, hann byrjaði einnig í ræktinni. Vinna, skóli. Ég náði markmiði mínu og hljóp 5 km án þess að stoppa. Loksins kom tímaritið út og fyrsta vísndagreinin birt.
Desember: Próf, snjórinn kom - mikil vinna hjá Hauk,þokkalega dugleg að hreyfa mig, Björk og Þórhildur komu í heimsókn og síðan komu mamma og pabbi og voru hjá okkur um jólin.

"Maður á að hafa vit á því að vera í góðu skapi"

29. desember 2009 klukkan 19:56
...rakst á þessa setningu í Hjartslætti Hjálmars Jónssonar en þarna vitnaði hann í stórmerkilegan Skagfirðing Dúdda Skörðugili. Mér finnst þetta nokkuð gott og skora á fólk að hafa þessa setningu að leiðarljósi, ég ætla að hafa þetta á bak við eyrað, svo mikið er víst. Ég er að setja saman smá áramótapakka í huganum, með markmiðum og fögrum fyrirheitum fyrir árið 2010 Smile

Hér er brunakuldi og ekkert annað að sjá í kortunum næstu vikur nema frost, frost og aftur frost. Núna er frostið hér í Ås komið í -16°C.
Við réðumst í skíðakaup í dag, byrjuðum á að fjárfesta í gönguskíðum á mig og Þórð fengum þau í tilboði í XXL. Keyptum einnig ansi veglega smørretösku en þegar maður á gönguskíði þá verður maður að kunna að smyrja rétt og eiga mismundandi "klístur" sem eiga við í mismunandi miklu frosti og í misblautum/þurrum snjó - já þannig að nú stúderar maður þessi fræði. Hefði kannski verið einfaldara að kaupa bara smørrefri skíði en það er ekki mælt með því í skíðaskólanum sem Þórður fer í eftir áramótin en skíðin voru keypt eftir ráðleggingum þaðan. Núna er verið að festa bindingarnar á og verða skíðin sótt á morgun og vígð í kjölfarið Cool

Eftir að mamma og pabbi fóru hóf ég lestur jólabókanna, er búin að lesa ævisögu Ásu Guðmundsdóttu Wright "Kona þriggja eyja" mér fannst hún mjög góð og mæli með henni fyrir þá sem hafa gaman að að lesa um ævintýafólk sem fer ekki sömu leið í lífinu og aðrir. Auk þess er þessi bók mjög vel skrifuð og mikil heimildavinna unnin í kringum þetta hana. Líkar einhvern vegin svo vel við þannig bækur.
Núna er ég langt komin með bók Hjálmars Jónssonar, Hjarslátt - hún er allt í lagi, endurminningar hans og af allt öðrum toga en bókin um Ásu. Klára Hjálmar í kvöld og ætli ég taki þá ekki Svörtuloft eða Auði.

Læt þetta duga í bili, góðar stundirWink

Kveðjustundir...

27. desember 2009 klukkan 17:39
...eru alltaf erfiðar en enginn hér á heimilinu er eins viðkvæmur og örverpið.
Við drengirnir skutluðum mömmu og pabba á rútuna áðan en það er mjög þægilegt að taka rútuna héðan og upp á völl, klukkutímaakstur beinustu leið. Var búin að frétta að það væri mikil traffík á leiðinni þannig að ég ákvað að nýta rútuna í þetta sinn og sleppa við keyrsluna uppeftir. Þórður var með tárin í augunum en þegar við sögðum honum að þau kæmu aftur í sumar þá varð hann kátur á ný.
Þessi vika hefur verið ótrúlega fljót að líða og hefur einkennst af snjókomu, mat og mikilli vinnu hjá Hauk. Hann fór t.d. af stað í nótt um hálf fjögur og er enn ekki kominn og klukkan er farin að nálgast sjö að kvöldi! Það er ótrúlega mikill snjór hérna en pabbi og Stefán röltu í búð á aðfangadagsmorgun og hittu þá mann sem sagði að það hefði ekki snjóað svona mikið á jólum síðan 1963!!! Í dag fór ég í smá gönguferð með mömmu og pabba út í skóg og þar sem ekki var búið að troða eða moka náði snjórinn hátt upp á læri.
Ég er að vona að vinnunni á Hauk fari að linna...eða að hún komist á eðlilegt ról, það væri nú ágætt ef hann fengi smá frí þó ekki væri nema í einn sólarhring!!!
Læt þetta duga að sinni, haldið áfram að njóta hátíðanna Laughing

Stóru bóka og húfujólin

25. desember 2009 klukkan 12:40
Takk fyrir okkur kæru vinir og ættingjar fyrir jólakveðjur og gjafir.

Það verður alveg óhætt að minnast þessara jóla sem stóru bóka og ekki síður húfujólanna!
Stefán fékk þessa titla:
Gyllti áttavitinn höf. Philip Pullman
Býkúpa höf: Mark Walden
Stórhættulega strákabókin höf: Conn og Hal Iggulden
Þórður fékk þessa titla:
Guligoggur, hvar er mamma
Jólabókin
Herra sterkur
Hver er sterkastur
Kertasníkir leysir frá skjóðunni
Haukur fékk þessa titla:
Eventyrlige Follo
Norge på langs
Veisluréttir ferðalangsins höf Halla Hauks
Íslensk knattspyrna 2009
Ég fékk þessa:
Kona þriggja eyja - ævisaga Ásu Guðmundsdóttur Wright
Við Haukur fengum svo þessa titla saman:
Litla stúlkan og sígarettan höf. Benoit Duteurtre
Auður höf. Vilborg Davíðsd.
Hjartsláttur Hjálmars Jónssonar
Svörtuloft eftri Arnald Indriða.

Samtals fengum við 9 húfur og eitt eyrnaband, ýmislegt jóladót, dvd diska, kaffi, te, nammi og margt fleira.
Við gáfum Stefáni snjóbretti og skó og Þórður fékk snjóbretti sem maður situr á (ekki beint þota).
Við strákarnir gáfum Hauk norsku bókatitlana og Lacoste herrailmvatn og ég fékk Garmin 205 hlaupaúr frá þeim.

Mamma og pabbi hafa haft það gott hér hjá okkur og held að þetta séu ekkert svo ólík jól en þau eru vön. Sigríðarsúpan í forrétt, lamb í aðalrétt, eplakaka í eftirrétt (epli soðin í mauk og sett í skál í lögum á móti brauðraspi, borðið fram með rjóma).

Haukur hefur unnið mikið undanfarna daga og vikur en mér er eiginlega nóg um!!! Var stundum þreytt á álaginu og ónæðinu sem hann varð fyrir á Hvanneyri en þetta toppar það alveg, held stundum að norðmenn séu að koma fram við okkur íslendingana eins og við heima gerum við t.d. pólverja.....Embarassed En hann er að finna taktinn og sennilega er þetta bara þannig að ef maður réttir litla puttann þá vilja þeir taka alla höndina.
Núna erum við í rólegheitum hér, mamma kíkir í bækur og pabbi og Haukur leggja sig, strákarnir horfa á félagana á Hvanneyri í sjónvarpinu en við fengum Línu langsokkur sem leikfélagið setti upp á dvd Laughing
Seinna í dag ætlum við að fara til Askim þar sem Stína systir mömmu býr og ætlum við að borða með henni og Ib (kærastanum hennar) hangikjöt og tilbehör Cool

Það eru þrjú ný albúm á myndasíðunni:
Falukorv 13. des 2009
Heimsókn 17.-20. des 2009
21.-25. des 2009

Af gestakomum...

21. desember 2009 klukkan 22:14
Hér er búið að vera líf og fjör síðustu daga og ekkert lát á.
Fimmtudaginn var komu Björk og Þórhildur hingað og ég verð að segja það að Noregur gat ekki tekið betur á móti þeim. Sól og mjög mikið frost, snjóhula yfir öllu þannig að það brakaði í og auðvitað logn. Við brunuðum hingað heim og fengum okkur snarl og síðan lá leiðin til Dröbak í jólahúsið. Ég hafði þarna um morguninn sett "Ribbe" í ofninn sem mallaði allan daginn og um kvöldið borðuðum við þennan norska tradisjonalmat. Fengum okkur líka rauðvín með og smá romm og aðeins Baileys....það var bilað stuð hjá okkur. Hringdum í Sigvalda og létum öllum illum látum. Björk aðstoðaði Stefán sem bakaði Brownies, ég fékk nudd og litaðar augabrýr og allt!
Föstudagsmorguninn tókum við rólega en fórum um hádegið í göngutúr, hefðbudninn hring sem ég fer gjarnan, 5 km. Síðan lá leiðin til Ski þar sem ég leyfði dömunum að leika lausum hala í H&M, XXL og "ríkinu". Þegar heim kom tróðum við pylsum, lompum og heitum drykkjum á brúsa (kakó og glögg) í bakpoka og örkuðum út í skóg vopnuð vasaljósum, luktum og höfuðljósum. Þar hittum við fleiri íslendinga við bál og grilluðum pylsur á greinum og drukkum heitu drykkina okkar. Þetta var ljúf stund og mikið gaman. Við fórum síðan með gestina til Önnu Katrínar og Snædísar þar sem við fengum okkur meira glögg og rauðvín. Kvöldið endaði svo hér heima við eldhúsborðið þar sem við spjölluðum frameftir nóttu.
Laugardagurinn var einnig tekin rólega hér fram að hádegi en þá fórum við í þriggja tíma göngu um Campusinn, skoðuðum elstu húsin hér s.k. prófessorahús og skólabyggingarnar. Mjög fróðlegt og skemmtilegt enda hafði farastjórinn Ragnar tekið kúrs í byggingarsögu. Best að minnast á það hér og nú að við fundum Drøbakveien 21 og Lyngveien 19 þar sem Bjarni og Dísa bjuggu þegar þau voru hér við nám og störf fyrir ca fjórum áratugum.
Eftir gönguna vorum við bara í rólegheitum hér, elduðum fiskisúpu og spjölluðum og höfðum gaman fram á nótt.
Á sunnudagsmorguninn birtust hér gestir, fyrrverandi vinnufélgi minn hann Siggi Freyr og fjölskylda en þau voru á leið til Þýskalands. Höfðu verið nóttina áður í Osló og stefndu á að keyra til S Svíþjóðar í gær til að ná ferju yfir, gaman að hitta þau en þau búa í Stordal sem er ekki langt frá Álasundi.
Við skutlurnar (+Þórður) fórum svo (aftur) til Dröbak þar sem við önduðum að okkur jóla stemmingu, fórum aftur í jólahúsið og fengum okkur dýrindis snarl á mjög notalegu kaffihúsi.
Við Stefán skutluðum þeim svo á völlinn í gærkvöldi og biðum svo í einn og hálfan tíma eftir mömmu og pabba. Þar hófst eitt ævintýrið enn en önnur taskan þeirra skilaði sér ekki og töfðumst vð lítillega út af því en mamma tilkynnti um það og það tók allt smá tíma.
Í morgun hringdi kona frá Fredriksstad sem hafði í misgripum tekið vitlausa tösku og var miður sín yfir því, en þetta reddaðist allt því hún var komin hingað í hús fyrir tólf á hádegi Wink
Við erum svo búin að taka innkaupatúr til Ski, þar sem versluðu voru jólaföt á drengina, auk úlpu og vetrarskó á Stefán (hann er kominn í skóstærð 45!!!)
Í kvöld kom Stína systir mömmu í heimsókn og við erum búin að hafa það ósköp notalegt við kaffispjall.

Síðustu dagar hafa semsagt verið dásemdardagar og það er ekkert lát á.

Á morgun, þann 17. desember

16. desember 2009 klukkan 21:34
Á morgun er 17. desember, afmælisdagur ömmu Siggu Smile Hún hefði orðið 89 ára. Ég hugsa oft til hennar en það er ýmislegt sem hún mátti reyna sem hefur mótað lífsviðhorf mitt. Gleymi því til dæmis ekki þegar hún sagði mér þegar ég var lítil að það væri ekki sjálfsagt mál að ganga menntaveginn, það hefðu ekki allir tækifæri til þess....ég var ekki gömul (örugglega innan við 10 ára) og það var áfall að heyra þá staðreynd.
Seinna áttum við margar góðar stundir saman þegar ég var í skóla á Akureyri, þá vildi hún endilega að ég kæmi í hádegismat á hverjum degi og það var tími sem var mjög dýrmætur, við ræddum margt og mikið. Hún var algjör hetja hún amma mín.

Á morgun koma tvær vinkonur úr Borgarfirðinum í þriggja daga heimsókn, það verður ýmislegt brallað eins og ég hef áður minnst á. Síðan þegar þær fara á sunnudaginn koma mamma og pabbi en þau verða hér hjá okkur í viku Smile
Það má því gera ráð fyrir litlu bloggi á næstunni.
Hafið það gott, njótið lífsins og látið vaða Laughing

uppskriftablogg

14. desember 2009 klukkan 21:33
Fyrsti virki dagur í jólafríi.
Við Þórður vorum í róelgheitum hér í morgun en það var samkomulag hjá okkur að hann færi á leikskólann þessa viku en bara stutt á hverjum degi.
Hann var mjög ánægður með leikskóladaginn, krakkarnir fóru og sungu fyrir gamla fólkið, fengu smákökur og síðan komu þau við heima hjá Benedikte sem er jafnaldra Þórðar og sáu hunda og hænur. Einhverntíman í ferlinu sáu þau kanínur sem voru lausar.
Á meðan þeir voru í sínum skólum og vinnu drengirnir mínir, gerði ég smá tiltekt á heimilinu (og er ekki búin).  Ég fór í Ås treningsenter með Bríet og fékk að fara í prufutíma í Spinning. Þetta var alveg ljómandi tími, frábær hjól og mjög góður leiðbeinandi sem stillti hjólið mitt og virtist vera mjög vakandi fyrir því hvernig allir höfðu það á hjólunum. Kennarinn heitir Lise, væn kona, engin beinagrind sem söng með og setti upp hreindýrshárspöng þegar jólalögin fórum að hljóma...gat ekki annað en hugsað til Erlu og Gunnu í Borgarnesi á þessum tímapunkti Smile
Tíminn var í 45 mínútur og eftir hann fórum við Bríet í annan sal til að teygja, þá kom til okkar maður og spurði hvort við vildum ekki kíkja í Pilates tíma sem hann var að byrja með en það hef ég aldrei prófað áður. Þetta var alveg frábært og góð samsetning að taka fyrst spinning og svo pilates en jeminn eini, ég á örugglega eftir að finna vel fyrir þessu á morgun!!! Ég er að bræða það með mér að kaupa mér kort eftir áramót og hafa með hlaupunum, maður hefði gott af því. Í þessari líkamsræktarstöð eru auk spinningsalarins, aerobiksalur - mjög stór, skvass-salir og ótrúlegt magn af tækjum í þremur öðrum sölum. Stefán er heitur fyrir því að fá kort þarna og er að vinna í því að fá einn félaga sinn með sér, þannig að þeir gætu þá æft í salnum og tekið líka skvass-tíma.

Eftir átökin fór ég í sturtu (n.B heima hjá mér) sem er nú ekki í frásögu færandi nema hvað að ég prófaði nýjan skrúbb. Ég keypti hann ekki dýrum dómum út í búð....eða jú ég keypti það sem þurfti í hann út í búð en verðið hefur kannski verið 2 krónur norskar!!
Hér er uppskrift (gróflega áætluð)
Kaffiskrúbbur
Kaffikorgur síðustu uppáhellingar, má ekki vera frá deginum áður.
1/2 dl olía, ég notaði sólblómaolíu (ódýr) en það má nota hvaða olíu sem er t.d. kókosolíu, ólífuolíu.
Svo er hægt að nota ilmdropa ef maður á (ég á ekkert svoleiðis og sleppti því þá bara).
Hræri þessu saman og skrúbba.
Þetta er ekkert sérlega hreinlegt meðan á því stendur en þetta virkar
Wink Silkimjúk húð og olían gerir það að verkum aðóþarfi er að bera nokkuð krem á sig á eftirWink
 
Eftir leikskóla bökuðum við Þórður þessar súkkulaðibitakökur:

1 bolli mjúkt smjör
3/4 bollar sykur
3/4 bollar púðursykur
1 tsk vanillusykur
2 egg
2 1/4 bollar hveiti
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
1 1/2 bolli saxað suðusúkkulaði
1 1/2 bolli m&m

Ofninn stilltur á 190°C (ég er ekki með blástursofn).
Smjör, sykur, vanilla hrært mjög vel. Eggin sett saman við og hrært enn betur. Hveit, lyftiduft og salt sett út í og að lokum er súkkulaði og m&m hellt út í og hrært.
Sett með teskeið á plötu, bakað í 7-8 mín.
Þetta verða um 60-70 kökur.

Þetta smellpassaði í annað kökuboxið á heimilinu og þá er spurning um að baka eitthvað í hitt......

Hér byrjaði að snjóa lítið eitt í morgun og nú í kvöld alveg þónokkuð inn í Osló, Haukur er því farin af stað að salta og moka og sanda.

Hvað ætla ég að gera í fyrstu viku í jólafríi???

13. desember 2009 klukkan 21:23
Þetta er búin að vera afskaplega afslöppuð helgi hér á bæ. Skógarferð okkar Þórðar Loga í gær, skokk í morgun og rúntur til Dröbak í dag. Eldaði grískt mousaka í gær og sænska falukorv pylsu í kvöld.
Haukur fór síðan til Osló í kvöld að salta en hér kólnar aftur og það lítur út fyrir snjókomu í lok vikunnar.
Það verða þá kannski hvít jól hér, hver veit.
Næstu viku ætlar Þórður að vera stutt á leikskólanum, mætir seinna en venjulega og sóttur fyrr en venjulega. Ég ætla að nota tímann hér heima og þrífa og hreyfa mig og eftir leikskóla ætlum við mæðginin að baka eitthvað smá, setja saman og skreyta piparkökuhús og snúast í ýmsu jólatengdu.
Þórður byrjar svo í jólafríi eftir þessa viku en Stefán fer í skógarferð með bekknum þann 21. des og litlu jól þann 22. des.

Fimmtudagurinn í þessari viku er dagurinn sem ég hef lengi beðið eftir en þá fer ég á Gardemoen að sækja tvær vinkonur úr Borgarfirðinum sem ætla að eiga með okkur gæðastundir í þrjá daga Wink Hlakka mikið til og stefni á að elda norkst þessa daga, smakka sænskt skógarglögg, fara í gönguferðir, búðarferðir og....láta lita á mér augabrýrnar!!!!!

Tvö ný albúm

12. desember 2009 klukkan 18:45
....á myndasíðunni, þau heita:
"Aðventuhittingur í Ås 2009" en við íslensku námsmennirnir og fjölskyldur hittumst á öðrum sunnudegi í aðventu og áttum saman notalega stund, það vantaði reyndar því miður nokkra.
"Skógarferð 12. des 2009" Ég og Þórður Logi fórum í gönguferð út í skóg með nesti í dag en það var það sem drengurinn óskaði eftir að gera með mömmu sinni, loksins þegar hún mátti vera að því að líta upp frá bókalestri Smile

Það er ósköp ljúft að vera komin í jólafrí. Við skelltum okkur til Svíþjóðar í gær, fórum út að borða á ítölskum veitingastað í Strömstad (það er svo jólalegt í Strömstad) og versluðum svo í Nordby storsenter. Var reyndar alveg dauðþreytt en það var kærkomið að gera eitthvað annað en að sitja yfir bókum. Við hittum jólasvein og strákarnir fengu nammi hjá honum. Síðan kom Stekkjastaur við hér í Ås í nótt Wink

Fitubolluhugleiðingar

10. desember 2009 klukkan 12:18
Ég var að hugsa af hverju er fólk svo oft í  þeim sporum að vera of feitt...hvað gerðist eiginlega einhversstaðar sem varð til þess? En allt í lagi, fólk tekur sig á, ákveður á einhverjum tímapunkti að nú sé nóg komið og hefur baráttu við fitupúkann, breytir um mataræði og fer að hreyfa sig. Okey, við erum að bæta okkur og allt það en við megum ekki gleyma okkur því við eigum börn og ekki viljum við að þau lendi í sama "vítahring" og við.
Heyrði óm af því í fréttunum eitt kvöldið að hér í Noregi eru börn á aldrinum 11-15 ára verst á sig komin líkamlega í samanburði við önnur lönd. Sko í Noregi notabene - þið getið ímyndað ykkur hvað norðmenn eru sjokkeraðir, þeir sem eru hreyfingarsjúkir....en það virðist vera að þeir séu að gleyma börnunum....hugsa um eigin hreyfingu og matpakka. Koma svo heim á milli vinnu og æfinga og henda pylsum, fiskepinnum eða brauði á borðið fyrir börnin Frown Ekki nógu gott.


Hvað gerum við þegar við ætlum að umbuna börnunum okkar?? kaupum við kannski nammi eða förum við á skyndibitastað?
Umbunum þeim á annan hátt, veljum t.d. nestisferð, förum í sund, keilu, gönguferð - verum saman með börnunum. Ég er ekkert að segja að börn eigi ekki að fá nammi á nammidögum eða neitt svoleiðis heldur verður maður að hugsa aðeins um afleiðingar þess sem maður býður uppá.

Ætla að halda áfram að lesa fyrir próf.
Góðar stundir.

Fyrsti prófdagur í útlöndum að kvöldi kominn

09. desember 2009 klukkan 20:03
Jæja þá er það frá, Invetering og ressurskartlegging SKOG205.
Ég vaknaði fyrst klukkan fimm í nótt við símann, Haukur kallaður út til að salta inní Osló. Ég vakti strákana um hálf sjö og svo skutlaði ég Þórði á leiskólann. Þegar ég kom heim aftur var klukkan átta, einn klukkutími í próf. Ég tróð í mig brauðsneið og banana. Hafði ekki lyst á nema einum kaffibolla og svo var ég rokin út.
Mætti svo í TF bygginguna þar sem prófið var og fann stofuna. Það sátu tveri ellilífeyrisþegar yfir. Þau deildu út prófblöðum í þríriti, umslögum og krotblöðum. Sögðu okkur svo hverjar reglurnar væru og svo framvegis. Kennarinn var ekki en hann kíkti við þegar prófið var ný byrjað annars lét hann ekki sjá sig en ég held að það sé venjan.
Prófinu var skipt upp í fjögur verkefni. Ég leysti tvö fyrstu eins og ekkert væri en eyddi samt allt of miklum tíma í þau, lenti í smá vandræðum með þriðja og þegar ég var komin af stað í að skrifa "vurdering" í fjórða og síðasta verkefninu þá var tíminn búinn. Þessir þrír klukkutímar FLUGU áfram.
Þá tók við að merkja arkirnar og umslöginn á réttan hátt, rífa þríritin í sundur og leggja í viðeigandi umslag. Kennarinn fær svo frumritið, sensor fær eitt afrit og ég hélt einu.

Já þetta var fróðlegt, gaman að vera búinn að prófa þetta. Það er eitt sem ég er hugsi yfir og það er gengdarlaus notkun lengds próftíma á Íslandi eða allavega þar sem ég þekki til í Landbúnaðrháskóla Íslands. Þar fá t.d. útlendingar, og það virðist vera óháð hversu lengi þeir hafa verið í landinu, lengdan próftíma......er það endilega réttlátt? Þeim finnst það allavega ekki hér í UMB.

Eftir prófið fór ég til Bríetar í tesopa, lagði mig svo, sótti Þórð og eldaði mat. Gunna kom í mat og er núna með Stefán Snæ í yfirhalningu í stærðfræði - gengur mun betur heldur en að við séum að hjálpa honum.
Ég sit við tölvuna, blogga og spjalla við Sverri frænda í Uppsala á msn Smile - slaka á en á morgun verður langur dagur í lokaundirbúningi fyrir næsta próf sem verður á föstudaginn.
Klukkan 12 á hádegi þann 11. des verð ég búinn í prófum fyrir þessi jól Smile

Og hvernig er nú svo að búa í Noregi???

07. desember 2009 klukkan 13:26
Margir hafa spurt okkur hvernig við höfum það hér í Noregslandinu og þá hvort við höfum það betur eða verr á Íslandi....tja, það er ekki hægt að svara þessu á einfaldan hátt EN dæmi hver fyrir sig.
Mjólkurlíterinn kostar 12,70.
Klementínurnar kosta 12 kr kílóið.
Rauð epli kosta 15 kr kílóið.
Mjög misjafnt verð á brauðum, það ódýrasta sem ég fann í Rema1000 kostar 4,99 kr og svo er hægt að fá þau upp í 24 kr og trúið mér það er verulegur munur á gæðum...
Stratos súkkulaðistykki 200 gr kostar 24 krónur
Geri mér ekki grein fyrir hvað við eyðum miklu í mat+hreinlætisvörur á mánuði en ég gæti trúað að það sé um 5000 á mánuði.
Frímerki á venjulegt bréf til Íslands 10 kr.
Að senda pakka heim til Íslands sem er undir 9,9 kg kostar 340 kr.
Bensínið kostar 11-12 krónur ótrúlega mikill dagamunur og bensínstöðvamunur.
Við erum í MJÖG ódýru húsnæði borgun 4100 á mánuði
Svo kemur rafmagn ofan á það en það getur farið í 1000 kr á mánuði þegar maður er að kynda mikið (og við búum í 45-50 fm).
Við borgum 2600 kr fyrir leikskólann en hann er reyndar dýr því þetta er einkarekinn náttúruleikskóli, annars væri þetta um 2000 af því við erum gift og annar aðilinn útivinnandi (væri enn minna ef við værum bæði í skóla).
Hef aðeins verið að fylgjast með frjálsa leigumarkaðnum hér í Ås, þú getur leigt einbýlishús á 15 þús-20 þús, eða litla íbúð ca 40 fm á 6 þús. Íbúð á frjálsa sem mundi henta okkur (3 herb+eldhús+bað+stofa) kostar um 10 þús - allt þetta fyrir utan rafmagn aðsjálfsögðu.
Haukur borgar 36% skatta.
Hér er ekkert makasystem eins og heima, þ.e. hann getur ekki fengið mitt skattkort og nýtt persónuafslátt.
Skattarnir leynast víða ef ég fer t.d. til Svíþjóðar þarf ég að borga í tvo vegatolla hvora leið 20 kr í skiptið og það gerir 80 kr!
Einn lestarmiði inn í Osló aðra leið kostar 75 kr og við erum ca 35 mín þangað.
Ég hef áður rætt um heilbrigðissystemið og ætla ekki að ræða það aftur.
Barnabæturnar hér eru góðar, eitthvað um 960 kr með barni, óháð tekjum.
Stefán fer með nesti í skólann og Þórður þarf einnig að hafa með sér nesti í eina máltíð á leikskólanum.
Ég hugsa að við séum með ca 18-19 þúsund til ráðstöfunar eftir skatta og þá eru barnabæturnar inn í þeirri tölu.

Það er mjög gott að vera hér, frábærir útivistarmöguleikar og alltaf hægt að finna sér eitthvað að gera.
Veðrið hér er frábært.
Maður lærir að spara ;)
Við erum auðvitað eðli málsins samkvæmt mikið saman en við værum það eflaust líka á Íslandi ef við ættum enga ættingja og fáa viniLaughing

Við söknum alls heima á vissan hátt en nú erum við hér og þá er eins gott að njóta þess og læra af. Þetta er ómetanlegt í reynslubankann og við verðum miklu sterkari einstaklingar á eftir.
Auðvitað hlökkum við til að flytja heim en að öllu óbreyttu ætlum við ekkert að ákveða neitt eða gera neitt í þeim málum fyrr en eftir rúmt ár. Þangað til er það mottóið að lifa og njóta Laughing

Svona gæti morgundagurinn orðið:

06. desember 2009 klukkan 21:56
Klukkan 6:25 hringir klukkan, allir fara á fætur, taka sig til fyrir daginn, smyrja nesti og borða morgunmat.
Klukkan 7:05 eru Þórður og Haukur farnir úr húsi.
Klukkan 7:05 kíki ég á netið, tékka á stöðu heimsmálanna, hvernig löggunni í Osló gengur að undirbúa komu Obama og svo framvegis.
Klukkan 8:00 er Stefán farinn úr húsi.
Klukkan 8:00 fer ég í skólann eða sest niður hér heima við prófundirbúning/lestur
Klukkan 12:00 klæði ég mig í hlaupagallann og skokka eitthvert út í buskann með Bríet.
Klukkan 13:30 sest ég aftur og held áfram að undirbúa mig fyrir próf.
Klukkan 14:30 Kemur Stefán heim.
Klukkan 16:00 til 16:30 Koma Haukur og Þórður heim og þá fer ég að undirbúa kvöldmatinn.
Klukkan 17:15 Borðum við kvöldmat (middag).
Klukkan 19:30 Fer Þórður að hátta sig og upp í rúm (sofnar mjög fljótlega).
Klukkan 20:30 Byrjar einn af uppáhaldsþáttunum okkar 71°N sem er norskur raunveruleikaútivistarfjallamennskuþáttur.
Klukkan 10:00 Eru allir komnir í háttinn, nema kannski ég sem ákveð að lesa í rólegheitum þegar allt er komið í ró.
Sennilega er klukkan langt gengin í tólf....eða eitt þegar ég hef hef mig í rúmið.

DÆS mikið hlakka ég til þegar klukkan verður 12 á hádegi föstudaginn 11. des!!!
 

það stóð ekki lengi....

06. desember 2009 klukkan 18:35
Snjórinn stoppaði ekki lengi hér í Ås, er næstum farinn og svell yfir öllu og það lýtur út fyrir rigningar þessa viku.

Haukur var að moka í Osló á föstudaginn, náði þó í bláendann af pizzuveislunni. Hann var síðan kallaður út aftur um nóttina og var farin um fimm leytið, var svo kominn rétt um hálf tíu þannig að þá fór ég út í skóla að læra. Ég kom svo heim um hálf fjögur því Haukur varð að rjúka aftur til Osló, því það hafði snjóað mjög mikið um daginn. Ég fór þá með Þórð í leikskólasundið í Son en Stefán var í afmæli. Eftir sundið elduðum við Þórður hakk og settumst svo fyrir framan sjónvarpið með nammi og horfðum á "Mamma Mía" - þetta er það sem Þórður óskar alltaf eftir ef hann má ráða ferðinni Laughing Stefán var kominn ur afmælinu um hálf níu og Haukur var kominn úr mokstrinum um ellefu. Í morgun fór ég svo í skólann klukkan níu og sat þar til rúmlega þrjú. Íslensku námsmennirnir og fjölskyldur hér í Ås hittust svo seinnipartinn, þar sem við belgdum okkur út af ýmsum kræsingum Smile og jólaandinn sveif yfir vötnum.

Ég ætla nú bara að taka því rólega í kvöld, lít kannski aðeins á námsefni en bara ef ég er í stuði.
Það er að byrja ný norsk framhaldsþáttarröð á NRK1 í kvöld og ég hef áhuga á að fylgjast með.....:
God natt, elskede
Norsk dramaserie. (1:3) Terje Lyngmo er en mislykket musiker som lever av å stemme andres pianoer og er stadig blakk. På impuls rapper han et dyrt videokamera, og når han skal teste det filmer han et drap ... Med Gard Eidsvold, Stig Henrik Hoff, Ingunn Beate Øyen, Marte Engebretsen, Linn Skåber, Øivind Blunck, Kari Simonsen, Elsa Lystad, Anders Mordal og Christian Greger Strøm. Regi: Tor M. Tørstad

Spennó....

Jólasnjór

04. desember 2009 klukkan 07:49
Haukur fór til Osló í gærkvöldi til að salta. Hann gisti svo þar og er núna að moka snjó!!!
Jebb, það byrjaði að snjóa í nótt.
Vanalega hringir klukkan hér um hálf sjö og þá vill maður ná að sofa þangað til en það var ekki í boði í morgun, Þórður Logi var vaknaður uppúr klukkan sex, svona líka hress Laughing við tókum morguninn frekar rólega en svo keyrði ég Þórði á leikskólann og Stefáni í skólann (í leiðinni). Stefán er ekki kominn með nagladekkin á hjólið og því varla þorandi að senda hann á því. Þegar við vorum að keyra í morgun var engin snjókoma, bara hvít mjöll yfir öllu en núna er byrjað að snjóa aftur Smile Þið getið rétt ímyndað ykkur, snjókoma í logni, snjór yfir öllu, snjór hangandi á trjágreinum og svo til að toppa myndina jólaljós hér og þar. Þetta er mjög fallegt get ég sagt ykkur. Nú fer maður að drífa í að kíkja á gönguskíði fyrir alla fjölskylduna og finna til snjóþotur og sleða!
Við vorum einmitt að borga námskeiðið sem Þórður fer á eftir áramót (gönguskíðanámskeiðið) en í bréfi frá Ski foreningen er mælt með skíðum sem þarf að smyrja - þá vitum við það og förum þá líklega öll í þann pakka.
Hitastigið er rétt um -2° og það brakar í snjónum.


Ég ætla að sitja inni við og njóta dásemdanna út um gluggan, próflestur með gæða kaffi með karamellubragði frá Kaffitár. Ætla út í snjóinn þegar strákarnir verða komnir heim.

Pizzugerð í kvöld, eins og alla föstudaga.
Próflestur á morgun með tilbreytingu; handverksmarkaður í landbúnaðarsafninu og jólagrautur í hádeginu. Sund hjá drengjunum seinnipartinn.
Sunnudagur: meiri próflestur og aðventusamvera íslendinganna hér að Åsi seinnipartinn.

Ég ætla bara rétt að vona að það verði ekki mikill mokstur hjá Hauk um helgina því þá hef ég ekki möguleika á að fara út í skóla og þ.a.l. ekki eins gott næði til að lesa.......


Best að nýta tímann svo ég komist út í snjóinn seinnipartinn!

Vek athygli á einu

03. desember 2009 klukkan 09:28
...að ég er búin að setja inn undirsíðu hér til vinstri sem heitir "MARKMIÐ 2010 OG 2011". Þessi ár hanga svolítið saman í öllu skipulagi hér á bæ.
Það sem ber hæst er auðvitað nýjasta hugdettan sem er komin frá Sverri, frænda mínum í Uppsala. Það er að hefja æfingar fyrir Vasaloppet 2011, þannig að það er markmið okkar frændsystkinana - engin undanbrögð í boði hér Tongue out
Jess mæ frend!!! Eins gott að það fari að snjóa og við að kaupa gönguskíði!!!

Læt þetta duga í bili - furðulegt hvað maður finnur sér margt lífsnauðsynlegt til dundurs í prófalestrinum!!

úr hríminu í Norge

02. desember 2009 klukkan 08:07
Ákvað að henda inn smá bloggi af því ég á að vera að gera annað....!!
Í fréttum er þetta helst:
Þórður Logi söng "matarsönginn" einn á leikskólanum í gær Laughing
Store, små
Store, små, stitter nå
for nå er det mat å få
værsågo'
sitt i ro...

Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað menn eru ánægðir með sig Smile

Stefán skrapp til Osló með bekknum sínum í gær, þau fóru á trúarbragðasafn og síðan var kíkt í eina verslunarmiðstöð - auðvitað Cool
Haukur fór um klukkan níu á mánudagskvöldið til Osló að salta, hann var að alla nóttina, við mættumst í útidyrunum um hálfátta í gærmorgun.

Hér er enginn snjór en hrím yfir öllu, logn og 5° frost. Mjög fallegt um að litast og jólaljósin farin að tínast upp hvert af öðru.

Hjá mér snýst allt um prófin, nú les ég yfir efnið og skrifa niður mikilvægustu punktana og reikna. Hreyfi mig og sinni húsmóðurhlutverkinu inn á milli.


Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.