Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Tölulegar staðreyndir

30. nóvember 2009 klukkan 14:50
Smá tölulegar staðreyndir á mánaðarmótum.
Frá 7. september (daginn sem ég hóf að stunda hlaup hér í Noregi) hef ég:
Hlaupið eða gengið 190,5 km. Ég hef farið 38 sinnum út í þessum tilgangi.
Í nóvember fór ég 14 sinnum út að hlaupa eða ganga og lagði að baki 78,3 km.
VERST AÐ ÉG Á EKKI GARMIN ÚR SVO ÉG GETI HALDIÐ VEL UTAN UM ALLAR ÞESSAR ÆFINGAR, Þ.E.A.S. TÍMA, TEMPÓ OG HVAÐ ÞETTA HEITIR NÚ ALLT SAMAN!

Markmið desembermánaðar er að fara 18 sinnum út að hlaupa eða ganga og stefna að 100 km þennan mánuð.

Næturbrölt

30. nóvember 2009 klukkan 01:11
Á erfitt með svefn, farin að finna fyrir bakflæðiseinkennum, borða óreglulega, finnst best að læra seint á kvöldin eða nóttunni, næ "besta" svefninum þegar ég legg mig með Þórði um hálf átta-átta, þó það séu ekki nema 20 mínútur eða hálftími þá virðist ég ná að slaka á. Nætursvefninn einkennist hins vegar af miklum draumum um dæmi, reikniformúlur og gróðurhverfi í skógum, ríkjandi tegundir í þessari og hinni skógargerðinni....og svo er allt í einu kominn dagur.
Þetta kallast streita.
Þó mér finnist ég ekki vera stressuð þá virðist ég vera það undir niðri Undecided En þetta lagast;) Hef heitið sjálfri mér því að drekka kaffi einungis fyrir hádegi, leggja mig með Þórði á kvöldin, nýta dagana vel til lesturs, hreyfa mig og borða hollan mat!!! Já það er einfalt að skrifa þetta hér en sjáum hvað setur...það eru reyndar bara  11 dagar þangað til ég er komin í jólafrí og þá ætti ég að hafa nægan tíma til að jafna mig.
Leysti eitt gamalt próf í kvöld og gerði lestraráætlun fyrir næstu viku.

laugardagsrúnturinn

28. nóvember 2009 klukkan 15:35
Jæja í dag var í nógu að snúast. Stefán Snær fór í afmæli í dag en Tim André skólabróðir hans bauð nokkurm strákum með sér í keilu í Ski. Við hin fórum á rúntinn, kláruðum m.a. að kaupa jólagjafir, þannig að þær ættu að fara í póst eftir helgi.
Við fórum í matvörubúð í Ski sem heitir RIMI, þetta er lágvöruverslun, svipuð og Rema 1000. Getið hvað við fundum í frystinum ....... lambalæri - ÍSLENSKT!!!
Keyptum jólaseríu í vikunni og hún var sett á svalahandriðið í dag - aðventan hefst á morgun, þá ætla ég að eyða megninu af deginum í lærdóm. Svo er spurning hvort við skellum okkur í aðventumessu inní Osló seinnipartinn - tja hver veit Laughing

jebbb

26. nóvember 2009 klukkan 23:31
Ég er ekki alveg að fatta það hvað ég er að gera það gott í náminu hér - skilaði mínu síðasta verkefni í skógmælingakúrsinum í dag og fékk svo póst frá kennaranum mínum núna seinnipartinn þar sem hann sagðist vera búinn að kíkja á verkefnið og hann sagði m.a. "....det var bra jobbet og du får A på den". Þá veit ég það að ég hef A fyrir 40% af einkunn í þeim kúrsi (prófið gildir 60%).
Mér líður eins og smákrakka sem hefur fengið að vita að það er nammidagur, nei eða....
mér líður eins og mér leið þegar ég fékk að vita að ég fengi að fara í flugvél í fyrsta sinn, nei eða....
tja ég get ekki útskýrt þetta en einhvern veginn er allt að ganga upp. Þetta er reyndar bara byrjunin á náminu og ekkert víst að mér eigi eftir að ganga jafn vel í framhaldinu...hver veit Undecided og svo eru prófin eftir Cool
Það má segja að nú sé ég komin í upplestrarfrí, ég fer í próf 9. og 11. des og þá er komið jólafrí. Þá safna ég kröftum fyrir janúarblokk þar sem ég tek 5 eininga kúrs á þremur vikum, það verður örugglega mjög mikil vinna þar og eins gott að vera einbeitt strax á fyrsta degi.

Það kemur reglulega upp vonleysi út af þessu húsnæði sem við búum í, við erum í ca 45-50 fermetrum og það getur stundum orðið rafmagnað andrúmsloft þegar einn er að læra, annar að horfa á sjónvarp, einn að leika og annar að elda..... Hef stundum kíkt á framboðið á leiguhúsnæði hér á frjálsa markaðnum og þar er leigan fyrir 70 til 90 fermetra um helmingi dýrari (sko ef ég er heppin). Sýnist á öllu að það er ekkert í boði fyrir minna en 9 til 10 þúsund en við leigjum þessa litlu íbúð á 4100. Ætli maður reyni ekki að þrauka þetta eitthvað áfram....Wink

Haukur fór á julebord um daginn með vinnufélögunum, þetta var heljarinnar fjör og sagði hann eftir þetta að það væri enginn munur á íslendingum og norðmönnum þegar kæmi að svona skemmtunum, eða það var allavega hans upplifun. Eftir matinn settust allir við barinn og þjóruðu bjórinn sinnLaughing

Það er eitt sem mér þætti vænt um svona af og til...en það er fá smá "kvitt" á greinilega digga lesendur, tja ca 25 til 30 sem líta inn á dag. Veit um nokkra þeirra en það væri gaman að vita hverjir hinir eru Wink (forvitnisgenið mitt) Laughing

Jæja gott fólk, læknareynslusaga frá Noregslandi

23. nóvember 2009 klukkan 21:35
REYNSLUSAGA:
Það var þann 16. október þá hringdi ég í heimilislækninn til að fá tíma fyrir Stefán Snæ en hann hefur átt í mjög krónísku stórutánaglastríði síðustu mánuði og reyndar í nokkur ár. Þann 16. okt hringdi ég semsagt á læknastofuna til að fá tíma fyrir drenginn. Það svaraði símsvari og var ég beðin að skilja eftir nafn og kennitölu sjúklings ásamt símanúmeri og það yrði haft samband síðar til að gefa tíma. Tek það fram að þetta var á föstudagsmorgni sem ég hringdi. Mánudagskvöldið 19. okt hringdi læknirinn sjálfur og gaf okkur tíma morguninn eftir kl 8:45. Við fórum og fyrir var einn maður á biðstofunni, til að gera langa sögu stutta þá biðum við í 1 og 1/2 tíma eða til 10:15 eftir að komast inn, maðurinn sem var á undan okkur fór bara svona ca 20 mínútum á undan okkur. Læknirinn hafði lent í einhverju sem ég skildi ekki en hann afsakaði sig heil ósköp. Hvað um það, hann leit á tærnar á drengnum, skrifaði upp á pensilín og sagði við mig að hann ætti að taka inn 1+1+2 á dag, auk þess skrifaði hann bréf til sjúkrahússins í Osló um að innkalla Stefán í smá "aðgerð". Annað gerði hann ekki. Ég fór með bréfið í póst fyrir hann og í apótekið að sækja pensilínið. Konan í apótekinu hikaði og spurði hvað drengurinn væri eiginlega þungur því hann hafði skrifað á lyfseðilinn 1+1+4 töflur á dag!!! Ég sagði henni hvað læknirinn hefði sagt við mig og hún trúði mér alveg og sagði að það þýddi ekkert fyrir sig að hringja í hann því hann tæki aldrei síma, alltaf þessi símsvari.
Nú leið og beið, Stefán tók pensilínskammtinn og við biðum alltaf eftir bréfi eða hringingu frá Osló - ekkert gerðist, þegar þrjár vikur voru liðnar hófust hringingar á sjúkrahúsið en sem betur fer hafði ég ljósrit af þessu blessaða bréfi. Bréfið virtist ekki hafa skilað sér - til að gera langa sögu stutta eftir ótal símhringingar og bréfaskriftir, var þetta blessaða bréf komið á réttan stað í réttar hendur á fimmtudegi fyrir ca 10 dögum síðan. Sá læknir hafði 30 daga til að svara því og það sem meira var þá var þessi deild ekki í Osló heldur í Lilleström! Heimilislæknirinn eitthvað klikkað á einhverju í þessu bréfi greinilega. Síðan gerðist nokkuð merkilegt á fimmtudagsmorguninn síðasta, ég fékk sms þar sem ég var minnt á tíma þann 23. nóv kl 8:50, klukkutíma síðar hringir kona og spyr mig hvort við þiggjum ekki tímann þann 23. nóv kl 8:50 og eftir hádegið fór ég í pósthólfið þá var þar bréf þar sem við vorum látin vita að Stefán ætti tíma þann 23. nóv kl 8:50!!! Já sæll!!
Í morgun var svo farið og hluti af nögl á stórutá á vinstri fót fjarlægð, ásamt naglabandi. Drengurinn á svo að mæta aftur eftir tja ca hálfan mánuð til að fá það sama gert á hægri stórutá - hann fékk reyndar ekki að vita nákvæmlega hvenær, við fáum sko bréf um það síðar!!!

Annars er gott að búa í Noregi Laughing Hér fæst t.d. Toro en það fæst ekki í Svíþjóð Tongue out sendi mínum elskulega frænda og hans fjölskyldu nokkra grýtupakka og mér skilst að það sé dansaður stríðsdans í Uppsala þessa dagana Laughing


hugvekja dagsins

18. nóvember 2009 klukkan 21:18
Eftir að svínaflensubólusetningar hófust hér í Noregi höfum við rætt það mikið hér á heimilinu hvort við eigum að fara og þyggja sprautu eða hvort við ættum bara að leifa náttúrunni að hafa sinn gang og sleppa öllum inngripum. Það er skemmst frá því að segja að við höfum farið sautján hringi og að lokum komumst við að niðurstöðu, jú í bólusetningu færum við. Fengum bréf frá leikskólanum í vikunni þar sem við vorum látin vita að boðið yrði upp á bólusetningu í dag milli 14 og 19 fyrir fjölskyldur barna undir 6 mán, fyrir óléttar konur og fjölskyldur þeirra og fyrir leikskólabörn og þeirra fjölskyldur. Það voru engar tímapantanir eða neitt svoleiðis, maður mætti bara. Við borguðum 50 kr á manninn, fengum eyðublöð og "kolap" (miða með númeri á) og var sagt að við skyldum bíða. Mér leyst nú ekkert á þetta því þarna var fullt af fólki. Við vorum nr 98 og það var verið að kalla inn fólk með númer 61-65 þegar við komum, við biðum tja í 20-30 mín. Við fylltum út eyðublöðin á meðan við biðum, fengum okkur smá snarl en hægt var að kaupa jógúrt, vöfflur og ýmislegt annað á meðan maður beið. Tíminn leið hratt. Svo voru númer 96-100 kölluð upp og við fórum inn. Þetta gekk hratt og vel fyrir sig - allir stóðu sig með stakri prýði og hafði hjúkkan það á orði hvað drengirnir stæðu sig vel. Þegar þetta var afstaðið fórum við fram og biðum á kaffiteríunni í 20 mínútur til öryggis ef vera skildi að eitthvert okkar sýndi neikvæð viðbrögð. Eftir það var brunað burt, ég verslaði í Kiwi á meðan Haukur og strákarnir náðu í Kebab sem er vinsælasti skyndibitinn í fjölskyldunni þessi misserin.

Þetta var reyndar sjokkerandi dagur í vinnunni hjá Hauk en verktaki sem var að vinna í ákveðnu verkefni í haust með þeim, lenti í vinnuslysi fyrir hádegi og dó. Þetta gerðist í stóru húsnæði sem Bauhaus er að byggja - hræðilega sorglegt.

Talandi um Bauhaus, við höfum sagt að það sé eitt sem bendir til að Noregur sé á niðurleið efnahagslega, Bauhaus byggir hér!!! Nei án gríns þá hafa margir sagt að hættumerkin séu víða hér, ég er ekki hagfræðingur eða sérfræðingur á þessu sviði og kann ekki að útskýra....sorry. En það er eitt á hreinu, norðmenn eru ekki eins heilbrigðir eins og við höfum alltaf haldið ó nei það hefur mikið breyst hér síðustu 3-5 árin segja kunnugir en einkaneysla hefur aukist verulega. Hér má segja að ríki nokkurs konar 2007 stemming Cool
Annað hættumerki, Elko hlýtur að fara á hausinn bráðlega - John Cleese leikur í auglýsingum fyrir þá....

pósturinn minnir á sig

17. nóvember 2009 klukkan 16:45
Fremur óþægilegt að í gær kom auglýsing í sjónvarpinu þar sem fólk var minnt á að setja jólakort og jólapakka í póst í síðasta lagi 16. desember. Jamm einmitt, það er nægur tími - fjórar vikur EN í millitíðinni eru próf Embarassed
Þá gerði ég mér grein fyrir því að allt sem tengist jólakortum (listi yfir þá sem fá kort) er ekki hér......þannig að sennilega verða jólakortin frá okkur í ár eitthvað fá - nema ég fái andann yfir mig og finni út úr þessu öllu, þ.e. finna kort, skrifa á þau, finna heimilisföng og það sem skiptir auðvitað mestu máli að finna út HVERJIR ÞAÐ ERU SEM FÁ KORT!!! Þetta hefur hingað til ekki skipt Hauk miklu máli enda vill hann græja jólin á Þorláksmessu en kannski er hann til í að skoða þetta með smá fyrirvara núna - við þessar aðstæðurSmile

En hvað um það, jólin koma, hvort sem við sendum jólakort, gefum jólagjafir, bökum eða þrífum. Enda eru það allt hlutir sem skipta litlu máli.
Það er þrennt á hreinu fyrir þessi jól:
Við erum allavega búin að tryggja okkur eintak af einni jólabókinni, hún kemur væntanlega til okkar um mánaðarmótin og þá hefjast húslestrar hér í kotinu Smile lestur + samvera = góðar stundir
Við stefnum á að fara á aðventutónleika allra kóranna við UMB (hér eru 4 háskólakórar) = hátíðlegt
Mamma og pabbi koma um jólin, væntanlega með eitthvað sem hægt er að nærast á = við sveltum ekki

Annars er fátt annað sem minnir á jólin hér - fyrir utan þessa auglýsingu frá póstinum. Hér er næstum því 10 stiga hiti og rignir af og til. Sá reyndar jóladót á loppemarket á föstudaginn og jólaljós utan á VIKA bíóinu í Osló um helgina.........

Verð í lokin að minnast á eitt sem mér þykir sorglegt en jafnframt hlýlegt. Allir nemendur við institutið mitt (INA) fengu tölvupóst í gær frá deildarforsetanum þar sem hann tilkynnti um dauðsfall. Einn nemandi í skogfag dó og það var haldin minningarstund í einum fyrirlestarsalnum í gær. Þetta minnti mig á það að þó ég sé í 3000 manna skóla þá er maður ekki bara númer á blaði, maður er einstaklingur með nafn Smile já, mér þótti þetta persónulegt. Komst svo að því í gær að þessi nemandi hafði verið skráður í kúrs sem ég er í og ég var í vandræðum því ég kom þessum nemanda ekki fyrir mig, hver var hann? skildi það vera þessi eða hinn? hugsaði ég. Svo í morgun þá kom í ljós að viðkomandi hafði ekkert mætt, nema e.t.v. fyrst í haust.

Hlaupablogg: Það tókst!

15. nóvember 2009 klukkan 21:20
Markmiðið náðist degi fyrr - akkúrat eins og ég vil hafa það.
Fór út í rigninguna í morgun með Bríet. Við gengum af stað ca 500 m og svo hófst hlaupið, ég fór á mínum hraða, með ipod í eyrunum og bara í nokkuð góðum "fíling". VIð hlupum fram hjá bensínstöðinni og meðfram lestarreininum í áttina til Ski. Mér leið vel á hlaupunum en fór hægt enda hefur þjálfunin ekki snúist um hraðann, enn sem komið er. Þegar við vorum u.þ.b. hálfnaðar lét Bríet mig fá Garminhlaupaúrið sitt og það var alveg magnað hvað það hafði mikil áhrif að vera með úrið og geta fylgst með vegalengdinni - gæti alveg hugsað mér að eiga eitt slíkt. Ég tók stuttan en snarpan endasprett og svo gengum við um 500 metra, þannig að í heildina fórum við 6 km og mér tókst að hlaupa 5 af þeim km án þess að stoppa Smile Þetta er eitthvað sem ég hef aldrei áður gert á ævinni og ég veit að þið trúið ekki hvað ég var að fara yfir ótrúlegan stóran þröskuld í dag, bæði líkamlega og ekki síður andlega. Þetta er eitthvað sem mig hafur alltaf langað til að geta, að hlaupa og fundist það gaman, finna fyrir þörf og löngun til að fara út að hlaupa. En vitið þið af hverju ég hef aldrei hlaupið 5 km áður???
Getið þið ímyndað ykkur af hverju eða hvað hefur valdið því að ég hef aldrei komið mér í slíkt form að ég hef getað þetta???
Ég skal segja ykkur það....
...........það er skortur á sjálfsaga. Þetta snýst ekki um neitt annað í mínu tilfelli. Hef verið sérfræðingur í afsökunum og ég veit að það á við mjög marga.....
Ég vil þakka Bríeti fyrir ómetanlegan stuðning - TAKK BRÍET - gat ekki fengið betri ráðgjafa!!!
Þá er bara að næsta mál á dagsrká að halda sér við en fram að áramótum mun ég einbeita mér að því að fylgjast með klukkunni, hlaupa á tíma og koma mér upp í að hlaupa í klukkutíma án þess að stoppa. Eftir áramót verður markmiðið sett á 10 km.

Við fjölskyldan fórum ásamt Bríet og stelpunum til Askim í sund og flatmöguðum þar og að sjálfsögðu höfðum við með okkur nesti og snæddum samlokur og drykki á sundlaugarbakkanum. Þegar við komum á Skogveien var Björn (maður Bríetar) búinn að elda mat fyrir okkur sundkappana; ribbe með frönsku ívafi (svona sem minnir á Juliu Child) mmmm það var æði, flottur endir á eftirminnilegum degi.....SKÁL!

Það er alltaf nóg að gera hér hjá okkur í leik og starfi og ég vona að þið hafið öll nóg fyrir stafni lesendur góðir og lifið lífinu lifandi - ekki sleppa tækifærum sem gefast og ef þið sjáið ekki tækifærin fáið aðra til að hjálpa ykkur að sjá þau því þau eru allt í kring um ykkur - já lífið er gott kæru vinir og munið bara eftir "bíbinu" ef þannig stendur á Laughing

Eitt blogg af skildurækni

14. nóvember 2009 klukkan 19:08
Það er í nógu að snúast hjá okkur hér þessa dagana. Auðvitað skólinn og vinna á dagvinnutíma, hreyfing, lestur, heimilisstúss og eldamennska á kvöldin.
Einhvern veginn þá líða dagarnir hratt og alltaf nóg að gera, það gerist allavega mjög sjaldan í mínu tilfelli að ég sitji hér og horfi út í loftið og viti ekkert hvað ég á að gera.

Þegar ég var búin í skólanum í gær og kom heim þá fórum við Stefán á loppemarket, skoðuðum allskonar jóladót sem gladdi augað og gekk ég út með einn trékertastjaka, rauðan með fjórum örmum sem kostaði heilar 10 krónur, einnig splæsti ég í eldgamalt jólakökubox á 40 krónur!! Bara eyðslusöm Money mouth
Dagurinn í dag er búinn að vera ansi drjúgur, hér var hvít jörð í morgun. Þórður var úti að leika meira og minna fram yfir hádegi með Amý og Önnu Maríu. Við Bríet fórum út að ganga, síðan til Osló í bútasaumsbúð, komum heim og fórum í leikskólasund með Þórð og Amý, eldaði kvöldmat og núna erum við á leið í vöfflukaffi!!
Haukur var ræstur út í gærkvöldi í mokstur inní Osló og vann til hálf fjögur í nótt og var í róleghetum hér heima í dag, Stefán var bara í rólegheitum hér í dag einnig en á morgun er stefnt á sundferð til Askim- sjá nánar hér þarnakostar sundmiðinn hvítuna úr augunum Tongue out

Veit það tekst!!!

10. nóvember 2009 klukkan 22:59
Það tókst eiginlega í gær, að hlaupa 5 km, það var reyndar með smá labbi þannig að betur má ef duga skal Cool
Þetta var eiginlega þannig að við Bríet fórum út með það að markmiðið að hlaupa 4 km, við byrjuðum á því að labba svona ca 600-800 metra og hlupum svo af stað. Ég hljóp þetta hægt og fór í örfá skipti niður á göngu, þegar 3 km voru komnir var ákveðið að fara 2 km í viðbót. Þvílík vellíðan og ánægja á eftir, mér tókst það en ákvað að skrá samt ekki að ég hafi náð markmiðinu því ég vil hlaupa þess 5 km án þess að fara niður á labb í eina mínútu. Í heildina fórum við um 6 km því við gengum fyrir og eftir hlaup smá spotta.
Hlaupafrí í dag en stefni á hlaup annaðkvöld. Morgundagurinn verður undirlagður hjá mér í fyrirlestrum, fundi út af mastersverkefni, lærdómi og hópavinnu EN ég ætla samt út að hlaupa annað kvöld.
..........og það styttist í próf..........

Hér er alltaf jafn frábært veður, svei mér þá maður gæti vanist þessu.....hvaða staður á Íslandi gæti komist næst þessu???

Gestagangur

09. nóvember 2009 klukkan 13:03
Nú erum við búin að búa hér í rúma þrjá mánuði, á þessum þremur mánuðum erum við búin að fá tvær heimsóknir frá Íslandi. Sú fyrri var fljótlega eftir að við komum en það voru Berglind Óðins og fjölskylda og svo fyrir mánuði síðan komu Palli og Torfi.
Þann 17. des koma svo tvær skutlur sem unnu í sama húsi og ég á Hvanneyri, þær Björk og Þórhildur og þegar þær fara þann 20. des lenda mamma og pabbi og munu þau vera hjá okkur í viku.

Árið 2010 lítur vel út. Halla Kjartans ætlar að koma í mars, búin að panta miða og allt. Síðan kemur önnur vinkona þann 24. júní (ætla nú að leyfa henni sjálfri að tilkynna þessa ferð) og mun hún dvelja í 10 daga. Það passar vel því síðasti dagurinn minn í júníblokk (kúrs í júní) er 24. júní Wink
En þetta er það sem er staðfest, fólk búið að bóka flugmiða og svona Laughing JEIJ!!!

Laugardagsblogg

07. nóvember 2009 klukkan 08:47
Jæja þá er kominn laugardagurinn 7. nóvember, heima á Íslandi er verið að selja "Neyðarkallinn" og það minnir mig á örlagaríkan dag fyrir nokkrum árum í lífi einnar vinkonu minnar, Elín Bergs ég sendi þér kveðju hér með.

Hérna er álagið að aukast en ég er að vinna í hópaverkefni sem við eigum að skila þann 16. og kynna þann 19. nóv en við erum búin að setja okkur það markmið að vera alveg búin með verkefnið í þessari viku. Held það hafist alveg Wink
Jafnframt því að álagið sé að aukast hjá mér þá eykst álagið hjá Hauk en það er víst farið að snjóa í "efstu" byggðum Olsóar sem þýðir að Haukur fór t.d. í morgun að moka.

Haukur kom heim í gærkvöldi úr veiðiferð en þeir fóru á fimmtudagskvöldið nokkrir íslendingar til Svíþjóðar og keyrðu að Vatteren (langa mjóa vatnið) í gær veiddu þeir svo, fóru á bát með stangir með leiðsögumann og allt. Nema hvað að það litla sem ég veit um þetta er að þeir voru ekki góðir í maganum (fyrst um sinn allavega) en það gæti hugsanlega skrifast á bjórsmökkun sem þeir fóru í kvöldið áður. Þeir höfðu semsagt komið við í Strömstad og verslað ýmsar bjórtegundir sem þeir höfðu ekki smakkað fyrr og morgunmaturinn á föstudagsmorgninum var egg og beikon...þannig að sú blanda var líklega ekki alveg það besta þegar fyrir lá að fara út á risastórt vatn (sem er næstum haf) í roki!
Þeir veiddu einn fisk.
Sko samtals ekki hver og einn.

Á meðan Haukur var í þessari kallaferð í Svíþjóð, vorum við mæðginin bara í rólegheitum hér á fimmtudagskvöldið, hingað kom ein norsk stelpa sem ég er í hóp með og borðaði með okkur middag og við fórum aðeins yfir stöðuna á verkefninu okkar og spjölluðum um hitt og þetta, hef minnst á hana áður hún heitir Runa og er frá Elverum. Hún er mikið jólabarn og spyr mikið út íslenskar jólahefðir - veit einhver hvar maður getur fundið lýsingar á íslensku jólasveinunum, grýlu og leppalúða á norsku??

Seinna um kvöldið kom svo Hrafnhildur (Ragnar var í veiðiferðinni) með prjónana sína og við sátum og prjónuðum. Það vildi svo skemmtilega til að Halla Kjartans hringdi í tölvusímann og gáðum við spjallað við hana báðar, það var mjög gaman og eins og Halla var áður búin að segja þá var hún að tala um að hún stefnid á Noregsferð á næsta ári. Nema hvað að við hvöttum hana til dáða að fara bara í það að kaupa miða og með það kvöddumst við. Eftir 10 mínútur hringdi síminn aftur og þá var Halla að spáí hvort 6.-21. mars væri hentugur....hún var sem sagt ekkert að hika og pantaði flug og verður sennielga eina viku hjá systrum sínum sem búa í Telemark og svo seinni vikuna hjá okkur hér í ÅsWink Vona að það verði gönguskíðafæri Laughingef ekki þá förum við bara eitthvert þar sem er snjórLaughing

Í gær fórum við grasekkjurnar til Svíþjóðar og gerðum innkaup í Strömstad og Nordby storsenter. Ég keypti mér skó og íþróttaföt á Stefán (stuttbuxur, bol og sundskýlu), einnig verslaði ég nokkrar jólagjafir og mat.
Dagurinn var svo toppaður hér í gærkvöldi með pizzu og Mexíkósúpu.

Framundan eru hlaup en við stefnum á 8-9 km í dag hlaup/ganga og einnig á morgun. Það styttist í daginn þegar ég mun hlaupa 5 km hlaupið (án þess að stoppa eða fara niður á labb í eina mínútu), 10 dagar til stefnu.

Læt þetta duga í bili, njótið helgarinnar Wink

Fengum pakka í dag....

03. nóvember 2009 klukkan 14:46
....og í honum var léttlopi, lakkrís og kaffi frá Kaffitár Wink Hjartans þakkir kæra Tedda!! Nú get ég kannski fitjað uppá hauskúpupeysunni í kvöld, á sama tíma og saumókerlurnar mínar á Hvanneyri hittast Wink

Ég er að klára verkefni 2 í skógmælingum, skila á morgun - geri mér nú ekki vonir um A, væri sátt með C og allt hærra en það er plús.
Stefán Snær bakar brownies og Þórður Logi pantaði kjöthakk í kvöldmatinn.
Haukur græðir á þessu öllu saman Laughing.....eeee það er kannski rétt að taka það fram að við borðum samt öll ég er ekki meina að við hin sveltum, nei, nei, það er fjarri lagi Wink
Hér er svo mottó dagsins í dag, sem er gott leiðarljós fyrir alla - alla daga:
Betra er að baða sig í dásemdum lífsins en að sökkva sér í leiðindi þess.

Slyddusnjór í Ås

02. nóvember 2009 klukkan 15:47
Það snjóaði hér í dag en það breyttist í rigningu núna seinnipartinn. Lét það ekki aftra mér frá skokki enda er ekki rok sem var nú helsta ástæða þess að maður nenti ekki út að skokka á Hvanneyri Wink
Haukur fer kannski í nótt að moka eða salta göngustíga - á að fá símhringingu um klukkan 21 í kvöld ef af verður. Það hefur einu sinni verið þörf á söltun þetta haustið en það var í síðustu viku.
Lítið að frétta nema nóg að gera í skólanum.
Nokkrir karlar hér, þar á meðal Haukur ætla í veiðiferð í lok vikunnar. Þeir ætla að veiða í stóra vatninu í Svíþjóð (get ekki munað hvort það er Vaneren eða Vatteren) fara seinnipartinn á fimmtudag og koma seint á föstudagskvöld.

Það er hafið!!!!

01. nóvember 2009 klukkan 15:19
Sjóræningjatímabilið í lífi Þórðar Loga er hafið!!!! Veit ekki hvort það komi til með að endast og svo taki riddaratímabilið við eða hvort hann sleppi alveg riddaratímabilinu. Stefán Snær var nefnilega lengi á riddaratímabilinu en minnist ekki sjóræningjatímabils. Þórður á fullt af trékubbum, bæði sem hann hefur fengið í gegn um tíðina og eins er hann með trékubba frá því að ég var lítil en þá notar hann til að kubba sjóræningjaskipCool Heppilegt að ég á von á léttlopa í hauskúpupeysu á sjóræningjadrenginnLaughing
Annars er Þórður líkur bróður sínum með það að ef við förum í göngutúr þá finnur hann ótrúlegt magn af allskonar verðmætum varningi sem hann verður að taka með heim eins og t.d. trjágreinar sem eru notaðar til að veiða og berjast við ýmis dýr (elgi, rádýr og hreindýr!!!).

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.