Hrekkjavaka
31. október 2009 klukkan 14:44
Í dag er hrekkjavaka. Börnin hér eru öll verulega spennt og fórum við mæðginin í nammileiðangur í Europris til að byrgja okkur upp en við gætum átt von á að það verði bankað uppá hjá okkur í kvöld.
Þórður er mjög drungalegur núna, er kominn í svarta skikkju, með horrorgrímu og öxi!!!!grrrrrr!!! Stefán er uppteknari af því hvaða mynd við getum horft á í kvöld með hrekkjavökuþema
p.s. merkilegt hvað þið hafið lítið álit á Hauk, Edda og Sigurjón.... en söngæfingin var ekki skemmtilegri en það að Haukur ætlar ekki að taka þátt í þessu kórstarfi. Telur kórinn taka sig of hátíðlega en þá ályktun dregur hann af lagavalinu......

af innkaupum.....
29. október 2009 klukkan 20:10
Gerðist eyðslusöm í dag og fór til Ski. Keypti útigalla á Þórð ásamt því að versla þunnar flísbuxur og peysu í stíl og sokka fyrir hann. Lukt á hjólið, ennisljós og vettlinga fyrir Stefán Snæ (samtals 1200 kr norskar). Og svo það sem verður að borga sig með tíð og tíma: Hlýjar hlaupabuxur (þykkri), eyrnaband og fingravettlinga á mig. Þetta voru nokkrir peningar get ég sagt ykkur eða 977 kr norskar. Hef unnið í því að sannfæra mig um hagkvæmni þessara kaupa en ég er allavega ekki að borga mánaðargjald í líkamsrækt á meðan ég sinni hlaupunum......og svo er ég búin að fara og prófa útbúnaðinn og þetta svínvirkar, það er nefnilega að verða svolítið kalt og þess vegna mikilvægt að vera í réttum fatnaði fyrir aðstæðurnar. Sálfræðitrikkið er semsagt að eftir því sem ég fer oftar að hlaupa verður hlaupatúrinn ódýrari 
Keypti ekkert handa Hauk enda verður hann að velja sinn útbúnað sjálfur en hann sást í mýflugumynd hér heima áðan, þurfti nefnilega að rjúka á KÓRÆFINGU í Osló (íslenski kirkjukórinn)!!!
Legg ekki meira á ykkur kæru lesendur AMEN!

Gleđi!
28. október 2009 klukkan 12:11
Það er allt að ganga upp í dag 
Fékk einkunn fyrir verkefnið í skógmælingum og ég fékk A!
Sparkið sem ég gaf mér í formi bloggfærslu í gær heppnaðist.
Ég fer að hlaupa klukkan hálf fjögur í dag.
Stjörnuspáin mín í dag er svona:
Vatnsberi: Spennandi tímar eru framundan. Slappaðu af og skemmtu þér en forðastu að taka mikilvægar ákvarðanir. (mbl.is)
Það verða eldaðar kjúklingabringur hér í kvöld og ég er að vinna að tveimur verkefnum sem ég ætla að fá góða einkunn fyrir !

af kílóum, mat og hreyfingu!
27. október 2009 klukkan 12:08
Þann 8. september sl skrifaði ég bloggfærslu sem hét "Hver vill vera memm" - hvet ykkur sem hafið áhuga á fara í átak til að lesa hana, áður en þið haldið áfram hér.
Þarna segi ég ykkur að nú ætli ég að taka á öllu mínu og lifa 100% eftir ddv og spyr hvort það vilji einhverjir vera memm.....ég fékk fullt af viðbrögðum.
Hvað hefur gerst síðan.....? Spyrjið ykkur, hafið þið náð árangri? Ætluðuð þið að gera eitthvað? Eða vilduð þið bara kommenta?
Ég skal vera hreinskilin, ég hef ekki staðið mig í því að standa við það sem ég skrifaði þarna - jamm ég er svikari!!! Ég sveik sjálfa mig. Svikuð þið ykkur?
Málið er nefnilega að maður verður að velja sér markmið sem maður telur vera raunhæf. Það var ekki raunhæft fyrir mig að byrja 100% á ddv þann 8. september sl. Ástæðurnar eru nokkrar en ein af þeim er að ég er nýflutt til annars lands, er að venjast aðstæðum hér og koma mér upp daglegri rútínu með fjölskyldunni og einnig í náminu mínu. Ég get bara ekki hugsað um margt í einu, það er bara þannig (endalausar afsakanir hugsar einhver!!!). Ég hef lagt meiri áherslu á hreyfingu og við það ætla ég að standa, setti mér markmið sem er raunhæft og það verður staðið við það svo mikið er víst. Mataræðið kemur á eftir fjölskyldunni, náminu og hreyfingunni. Hvað ég læt ofan í mig stjórnast af því hvað ég versla inn og það er sem betur fer í hollari kantinum og á bara eftir að batna því við erum komin með ávaxta og grænmetiskassa í áskrift.
Stóra markmiðið mitt er að eiga gott líf með fjölskyldunni, heilbrigð og hress. Njóta þess sem umhverfið hér hefur upp á að bjóða og hreyfa mig
Annars ef ég pæli í kílóatölum þá er ég 6 kg of þung (það er staðreynd) og hef sett mér það markmið að létta mig, eins og áður sagði er hreyfingin aðalparturinn þar og auðvitað spilar mataræðið inn í sem er og verður í hollari kantinum
Veit ekki en er það kannski ekki raunhæft að taka 3 kg af fyrir jól og önnur 3 eftir jól? - tja veit ekki? Stóra markmiðið er að vera búin að því allavega fyrir sumarið
Held að það sé raunhæft og þá þarf ég ekki að svíkja mig!! VERA RAUNHÆF!

Allir komust til sinna verka í morgun
26. október 2009 klukkan 12:56
Það er semsagt enginn veikur hér á bæ 7-9-13!
Haukur var heima þrjá daga í síðustu viku og ég hef verið að ná mér af kvefinu sem ég fékk um daginn.
Ég fór í súpuna á leikskólann til Þórðar á fimmtudaginn og keypti dúk og lukt sem drengurinn hafði gert. Ansi sniðugt en það voru ekkert háar upphæðir í gangi þarna, súpan kostaði 10 kr og munirnir sem voru til sölu 5-10 kr. Ágóðinn af sölunni fer svo til að greiða niður skólakostnað fyrir strák sem heitir Omis og býr í Nepal.
Við áttum ljómandi fína helgi. Okkur var boðið í mat á föstudagskvöldið og áttum þar fína stund með vinum okkar Birni og Bríeti og hittum loksins elstu dóttur þeirra sem er í framhaldsskóla heima á Íslandi. Þórður var reyndar ekki eins og hann átti að sér að vera, fékk hita.
Hann var hressilegri á laugardagsmorgninum og töldum við allt í lagi að fara í íslenska kjötsúpu til Jolla í hádeginu ....mmmmm get ekki lýst tilfinningunni að fá íslenskt lambakjöt jeminneini!
Eftir kjötsúpuna brunuðum við til Svíþjóðar en ísskápurinn, búrskápurinn og frystihólfið var allt galtómt og ekki veitti af því að gera innkaup í snarheitum.
Þegar heim var komið var Þórður mjög slappur og sofnaði á meðan ég gerði pizzu en það var ekki nógu gott því hann hafði fengið nammi í Svíþjóð og maginn var því í hnút þegar hann vaknaði árla sunnudagsmorguns. Drengurinn kastaði upp en hitalaus og svona líka hress!! Hann var semsagt ekki með neinn hita í gær og fór því í leikskólann í dag.
Í gærmorgun var semsagt okkar fyrsta verk að breyta öllum klukkum á heimilinu eða að færa þær aftur um einn klukkutíma - maður græddi semsagt klukkutíma.
Fyrir utan hefðbundin helgarverk (þrífa og þvo þvott) þá bar bökuð kaka og hingað komu nokkrir gestir sem runnu á lyktina
Helgi skólafélagi frá Hvanneyri sem býr og starfar í Strafanger var hér um helgina hjá kærustunni sinni henni Theu og kíktu þau ásamt Gunnu afmælisbarni í kaffi, síðan bættust þau Ragnar og Hrafnhildur í hópinn. Þetta var bara gaman.
Hápunktur helgarinnar var svo í gærköldi þegar við fórum til Ski í bíó á "Stúlkan sem lék sér að eldinum".
Jæja, mánudagur er semsagt í dag og alls ekki til mæðu. Skilaði verkefni í dag og krossa nú puttana.....
Held ég sé búin að jafna mig nægilega á kvefinu til að fara allavega einn hring í rólegheitunum (4,7 km).
Adios!
Haukur var heima þrjá daga í síðustu viku og ég hef verið að ná mér af kvefinu sem ég fékk um daginn.
Ég fór í súpuna á leikskólann til Þórðar á fimmtudaginn og keypti dúk og lukt sem drengurinn hafði gert. Ansi sniðugt en það voru ekkert háar upphæðir í gangi þarna, súpan kostaði 10 kr og munirnir sem voru til sölu 5-10 kr. Ágóðinn af sölunni fer svo til að greiða niður skólakostnað fyrir strák sem heitir Omis og býr í Nepal.
Við áttum ljómandi fína helgi. Okkur var boðið í mat á föstudagskvöldið og áttum þar fína stund með vinum okkar Birni og Bríeti og hittum loksins elstu dóttur þeirra sem er í framhaldsskóla heima á Íslandi. Þórður var reyndar ekki eins og hann átti að sér að vera, fékk hita.
Hann var hressilegri á laugardagsmorgninum og töldum við allt í lagi að fara í íslenska kjötsúpu til Jolla í hádeginu ....mmmmm get ekki lýst tilfinningunni að fá íslenskt lambakjöt jeminneini!
Eftir kjötsúpuna brunuðum við til Svíþjóðar en ísskápurinn, búrskápurinn og frystihólfið var allt galtómt og ekki veitti af því að gera innkaup í snarheitum.
Þegar heim var komið var Þórður mjög slappur og sofnaði á meðan ég gerði pizzu en það var ekki nógu gott því hann hafði fengið nammi í Svíþjóð og maginn var því í hnút þegar hann vaknaði árla sunnudagsmorguns. Drengurinn kastaði upp en hitalaus og svona líka hress!! Hann var semsagt ekki með neinn hita í gær og fór því í leikskólann í dag.
Í gærmorgun var semsagt okkar fyrsta verk að breyta öllum klukkum á heimilinu eða að færa þær aftur um einn klukkutíma - maður græddi semsagt klukkutíma.
Fyrir utan hefðbundin helgarverk (þrífa og þvo þvott) þá bar bökuð kaka og hingað komu nokkrir gestir sem runnu á lyktina
Helgi skólafélagi frá Hvanneyri sem býr og starfar í Strafanger var hér um helgina hjá kærustunni sinni henni Theu og kíktu þau ásamt Gunnu afmælisbarni í kaffi, síðan bættust þau Ragnar og Hrafnhildur í hópinn. Þetta var bara gaman. Hápunktur helgarinnar var svo í gærköldi þegar við fórum til Ski í bíó á "Stúlkan sem lék sér að eldinum".
Jæja, mánudagur er semsagt í dag og alls ekki til mæðu. Skilaði verkefni í dag og krossa nú puttana.....

Held ég sé búin að jafna mig nægilega á kvefinu til að fara allavega einn hring í rólegheitunum (4,7 km).
Adios!
fariđ ađ síga á seinnihluta vikunnar
22. október 2009 klukkan 07:17
Mér var boðið í bíó í gær með tveimur íslenskum stelpum, önnur býr hér í Ås (Bríet) og hin býr í Osló (Sigrún). Þetta var ferlega gaman, fórum og sáum Julia og Julie og ég verð nú að segja að ég mæli með þessari mynd. Hún gengur mikið út á matargerð og það finnst mér alveg frábært og svo er Meryl Streep alveg óborganleg. Eftir bíóið fórum við á Tapas-bar og fengum okkur að borða og spjölluðum um heima og geima, þetta er nauðsynlegt að gera öðru hvoru.
Var að hugsa að það er ekki slæmt að eyða kvöldstund með guðfræðingi og lýðheilsufræðingi - enda er ég í mjög góðu jafnvægi núna
Yndislegar stelpur.
Haukur liggur heima núna, er líklega með sömu pest og ég fékk um síðustu helgi, hann verður fljótur að hrista hana af sér.
Strákarnir eru hressir. Fór reyndar með Stefán til læknis í vikunni út af inngrónum tánöglum sem plaga hann endalaust, núna fer hann tvisvar á dag í fótabað, tekur inn pencilin og býður eftir að verða innkallaður á sjúkrahús þar sem eitthvað verður gert í þessum fjanda.
Það er súpudagur á leikskólanum hjá Þórði í dag. Súpa, kaffi og nepalskt te til sölu frá 15-16:30 og einnig verða ýmsir munir til sölu sem leikskólabörnin hefa búið til. Þetta gera þau til að safna peningum til styrktar skólagöngu barna í Nepal. Þetta er í gegn um FORUT barneaksjon. Þórður er mjög upptekinn yfir þessu (skiljanlega) en gærdagurinn fór í það að brytja niður grænmeti í súpuna og leggja lokahönd á söluvarninginn
Jæja læt þetta duga í bili, góðar stundir.
Var að hugsa að það er ekki slæmt að eyða kvöldstund með guðfræðingi og lýðheilsufræðingi - enda er ég í mjög góðu jafnvægi núna
Yndislegar stelpur.Haukur liggur heima núna, er líklega með sömu pest og ég fékk um síðustu helgi, hann verður fljótur að hrista hana af sér.
Strákarnir eru hressir. Fór reyndar með Stefán til læknis í vikunni út af inngrónum tánöglum sem plaga hann endalaust, núna fer hann tvisvar á dag í fótabað, tekur inn pencilin og býður eftir að verða innkallaður á sjúkrahús þar sem eitthvað verður gert í þessum fjanda.
Það er súpudagur á leikskólanum hjá Þórði í dag. Súpa, kaffi og nepalskt te til sölu frá 15-16:30 og einnig verða ýmsir munir til sölu sem leikskólabörnin hefa búið til. Þetta gera þau til að safna peningum til styrktar skólagöngu barna í Nepal. Þetta er í gegn um FORUT barneaksjon. Þórður er mjög upptekinn yfir þessu (skiljanlega) en gærdagurinn fór í það að brytja niður grænmeti í súpuna og leggja lokahönd á söluvarninginn

Jæja læt þetta duga í bili, góðar stundir.
Allt á uppleiđ
20. október 2009 klukkan 18:44
Bara gleði! Þessi pest sem ég fékk eða smágrísaflensa a la Sigga en mjög eðlilegt fyrir mig, fæ nefnilega oft kvef svona líka hastarlegt að ég steinligg í einn dag, er svo svona 2-3 daga að ná mér. Til marks um það að ég er að hressast er að ég fór í göngutúr með Bríet seinnipartinn í dag
Á von á því að geta hlaupið um helgina og þá verður sko tekið á því!!! Enda ekki nema tæplega fjórar vikur til stefnu til að ná markmiði mínu; hlaupa 5 km án þess að stoppa eða labba - og því ætla ég að ná!!!
Svo er ég orðin svakalega fókuseruð núna að nú er allt eða ekkert, hef endurskoðað vigtunarmarkmið mín en ég er orðin 6 kg of þung og því um að gera að grípa inní. 2 kg skulu burt á næstu fjórum vikum og hananú! Svo hef ég sett inn fleiri markmið inn undirsíðuna "tölfræði".
Var að vinna í hópaverkefninu með henni Runu frá Elverum í dag, skemmtileg stelpa og ekki mjög týpísk norsk. Hún er jú með bakpoka og matpakka, fer í skógarferðir og allt það. Það er meira svona hennar viðhorf sem er ekki mjög norkst, hún t.d. er alveg sammála því að hlýnun jarðar sé að verða vandamál og skilur ekki hvað norðmenn eru ferkanntaðir í þeim efnum. Það er nefnilega viðhorfið hér að gróðurhúsaáhrifin séu ekkert vandamál......jebb! Ég var einnig að tala um það við hana að ég hef skynjað svo mikinn hroka hjá mörgum samnemendum gagnvart MIS sem er umhverfisvöktun en ákveðið hlutfall af öllum skógum Noregs eru MIS skógar, þetta eru svæði hér og þar í Noregi og þarna er verið að fylgjast með framvindu. Semsagt málið er að á meðan þeir eru pirraðir á þessu þá nota þeir mest innlendar tegundir (rauðgreni og skógarfuru) þó aðrar tegundir gætu gefið meiri við og meiri framleiðni, nei sko þá eru það trúarbrögð!!! Erfitt fyrir mig að skilja þá af hverju þeir eru svona pirraðir á MIS....en svona er þetta bara. Það er bara svo margt sem við Runa höfum rætt sem er svo gaman að heyra hennar viðhorf t.d. í sambandi við jafnréttismál.
Við Runa ákváðum það að við verðum mjög glaðar ef við fáum B fyrir verkefnið, líka í ljósi þess að við erum fjögur í hópnum og hinir tveir hafa ekkert lagt til málanna, enda eru þeir ekki í skógfræðináminu, heldur á tískubrautinni - nýjustu brautinni "Fornybar energi" en krakkarnir sem eru á þeirri braut eru á allt annarri bylgjulengd en við skógarálfarnir en það er skilda hjá þeim að taka þennan skógarkúrs og við verðum að sætta okkur við að hafa þau með .....
Læt þetta duga í bili - góðar stundir.
Á von á því að geta hlaupið um helgina og þá verður sko tekið á því!!! Enda ekki nema tæplega fjórar vikur til stefnu til að ná markmiði mínu; hlaupa 5 km án þess að stoppa eða labba - og því ætla ég að ná!!!Svo er ég orðin svakalega fókuseruð núna að nú er allt eða ekkert, hef endurskoðað vigtunarmarkmið mín en ég er orðin 6 kg of þung og því um að gera að grípa inní. 2 kg skulu burt á næstu fjórum vikum og hananú! Svo hef ég sett inn fleiri markmið inn undirsíðuna "tölfræði".
Var að vinna í hópaverkefninu með henni Runu frá Elverum í dag, skemmtileg stelpa og ekki mjög týpísk norsk. Hún er jú með bakpoka og matpakka, fer í skógarferðir og allt það. Það er meira svona hennar viðhorf sem er ekki mjög norkst, hún t.d. er alveg sammála því að hlýnun jarðar sé að verða vandamál og skilur ekki hvað norðmenn eru ferkanntaðir í þeim efnum. Það er nefnilega viðhorfið hér að gróðurhúsaáhrifin séu ekkert vandamál......jebb! Ég var einnig að tala um það við hana að ég hef skynjað svo mikinn hroka hjá mörgum samnemendum gagnvart MIS sem er umhverfisvöktun en ákveðið hlutfall af öllum skógum Noregs eru MIS skógar, þetta eru svæði hér og þar í Noregi og þarna er verið að fylgjast með framvindu. Semsagt málið er að á meðan þeir eru pirraðir á þessu þá nota þeir mest innlendar tegundir (rauðgreni og skógarfuru) þó aðrar tegundir gætu gefið meiri við og meiri framleiðni, nei sko þá eru það trúarbrögð!!! Erfitt fyrir mig að skilja þá af hverju þeir eru svona pirraðir á MIS....en svona er þetta bara. Það er bara svo margt sem við Runa höfum rætt sem er svo gaman að heyra hennar viðhorf t.d. í sambandi við jafnréttismál.
Við Runa ákváðum það að við verðum mjög glaðar ef við fáum B fyrir verkefnið, líka í ljósi þess að við erum fjögur í hópnum og hinir tveir hafa ekkert lagt til málanna, enda eru þeir ekki í skógfræðináminu, heldur á tískubrautinni - nýjustu brautinni "Fornybar energi" en krakkarnir sem eru á þeirri braut eru á allt annarri bylgjulengd en við skógarálfarnir en það er skilda hjá þeim að taka þennan skógarkúrs og við verðum að sætta okkur við að hafa þau með .....

Læt þetta duga í bili - góðar stundir.
LASIN
18. október 2009 klukkan 09:57
Föstudagur: Fann að ég var að fá kvef, slappaðist meir og meir eftir því sem leið á daginn. Lærði lítið.
Laugardagur: Lá fyrir allan daginn í bælinu, í svitakófi, gat varla lyft höfði frá kodda nema til að sníta mér, hóstaði mikið, fékk mér vatnssopa af og til, notaði Otrivin nasaúða í miklu mæli og hálstöflur....svaf ótrúlega mikið.
Haukur og Þórður fóru í sund og Stefán hitti vini sína.
Dagurinn í dag: Er lurkum lamin eftir "langa" rúmlegu, er að drepast í bakinu, með þungan hósta (hósta öllu gromsinu upp), ætla í sturtu og vonast til að ná mér eitthvað á strik, hvíld er mottó dagsins og svo ætla ég að líta í skemmtilegustu námsbækurnar. Haukur og strákarnir fóru til Osló, á tæknisafnið (Teknisk museum) þannig að þeim ætti ekki að leiðast.
Fórum ekki til Svíþjóðar að versla í ísskápinn en stefnum að því eftir vinnu einhvern daginn í vikunni.

Ég er lasin
17. október 2009 klukkan 10:39
en þó ekki með svínaflensuna, hefði samt alveg vilja klára hana bara af!
Haukur og strákarnir ætla í búðir og sund í dag. Á morgun var meiningin að fara til Svíþjóðar en veit ekki hvort neitt verður úr því fyrr en bara einhvern seinnipart í vikunni. Sjáum til.
Ég ætla að liggja mest fyrir í dag og reyna að ná þessum fjanda úr mér AAAATSJÚÚÚ!

Vá, enn einn föstudagurinn runninn upp!
16. október 2009 klukkan 06:45
Ótrúlegt hvað vikurnar fljúga burt. Október hálfnaður og næstum þrír mánuðir síðan við sigldum frá Seyðisfirði, það er bara fjórðungur úr ári, takk fyrir. Það eru um tveir mánuðir þar til næstu gestir eru væntanlegir, tvær Borgfirskar skutlur koma 17. des í helgarferð og síðan koma mamma og pabbi og verða hér í viku yfir jólin.
Vikan hefur einkennst af vinnu og skóla hjá okkur hér á heimilinu og lítið verið gert annað. Það er spurning hvort við skellum okkur til Svíþjóðar í fyrramálið eða á sunnudagsmorguninn að versla - ekki alveg ákveðið. Seinnipartinn á morgun er sund í Son með leikskólanum en við gætum alveg náð því að fara og versla í Svíþjóð, koma heim og fara í sund. Svo er alveg kominn tími á að fara í skógartúr og kveikja eld úti í skógi og grilla pylsur - gerum það kannski bara líka
Sjáum til.
Það er búið að vera frekar kalt hér þessa viku, hitastigið hefur farið niður í -7°á nóttunni og er svona rétt yfir frostmarki á daginn en það er logn, þökk sé trjánum og svo sýnir sólin sig flesta daga, eitthvað smá. Á leiðinni í skólann "veð" ég laufblöð í haustlitum
Ég hef ekki staðið mig nógu vel í skokkinu en ætla ekki að svíkja mig í dag og ætla út. Það er nefnilega svo ágætt þegar maður hefur setið lengi við lestur að standa upp og fara út í ferska loftið.
Í dag verður semsagt lærdóms og lestrardagur hér heima, skokk um miðjan daginn og pizzugerð í kvöld.
Það gengur vel hjá öllum öðrum á heimilinu, Stefán er tvö kvöld í viku í norskukúrs og kemst því bara einu sinni í viku í badminton. Þórði líkar vel á leikskólanum, farinn að tala eitthvað og slettir hér heima. Hauk líkar vel í vinnunni en er hálf aumur í bakinu, þarf að passa vel upp á sig.
Jæja læt þetta duga í þetta sinn.
Góða helgi allir saman.
Vikan hefur einkennst af vinnu og skóla hjá okkur hér á heimilinu og lítið verið gert annað. Það er spurning hvort við skellum okkur til Svíþjóðar í fyrramálið eða á sunnudagsmorguninn að versla - ekki alveg ákveðið. Seinnipartinn á morgun er sund í Son með leikskólanum en við gætum alveg náð því að fara og versla í Svíþjóð, koma heim og fara í sund. Svo er alveg kominn tími á að fara í skógartúr og kveikja eld úti í skógi og grilla pylsur - gerum það kannski bara líka
Sjáum til.Það er búið að vera frekar kalt hér þessa viku, hitastigið hefur farið niður í -7°á nóttunni og er svona rétt yfir frostmarki á daginn en það er logn, þökk sé trjánum og svo sýnir sólin sig flesta daga, eitthvað smá. Á leiðinni í skólann "veð" ég laufblöð í haustlitum

Ég hef ekki staðið mig nógu vel í skokkinu en ætla ekki að svíkja mig í dag og ætla út. Það er nefnilega svo ágætt þegar maður hefur setið lengi við lestur að standa upp og fara út í ferska loftið.
Í dag verður semsagt lærdóms og lestrardagur hér heima, skokk um miðjan daginn og pizzugerð í kvöld.
Það gengur vel hjá öllum öðrum á heimilinu, Stefán er tvö kvöld í viku í norskukúrs og kemst því bara einu sinni í viku í badminton. Þórði líkar vel á leikskólanum, farinn að tala eitthvað og slettir hér heima. Hauk líkar vel í vinnunni en er hálf aumur í bakinu, þarf að passa vel upp á sig.
Jæja læt þetta duga í þetta sinn.
Góða helgi allir saman.
Menningarmunur
13. október 2009 klukkan 11:19
Varð áþreifanlega vör við menningarmun milli Noregs og Íslands nú á dögunum.
Þannig var að ég var í gönguferð um háskólasvæðið með Palla og Torfa (sem voru í heimsókn). Viðákáðum að enda gönguna á kaffihúsi niðrí bæ og taldi ég upp þau þrjú kaffihús sem kæmi til greina: Ås torget, Texas og bókakaffið. Ås torget er sambland af matsölu, pöbb og kaffihúsi og okkur leist ekkert rosalega vel á það, Texas hljómaði einkennilega í eyrum gestana þannig að bókakaffið varð niðurstaðan. Við fórum þangað en það ber alveg nafn með rentu, þarna er mikið af bókum, sófi sem í sat gamall karl og við fætur hans lá hundur og á gólfinu var drykkjarskál (fastagestir greinilega), fólk sat við nokkur borð grúfði sig í bækur, vann í tölvu, talaði á Skype, spjallaði og börn voru þarna einnig að leik. Einstaklega heimilislegt semsagt. Á dagens menu var: kaffi (latte, expresso og fl.), te, kakó og svo var hægt að fá gos og safa. Ekkert meðlæti var hægt að fá en afgreiðslukonan sagði að við gætum farið út í sjoppuna við hliðiná eða í Kiwi (sem er kjörbúð) til að kaupa meðlæti!!! Við tókum svo eftir því að þarna inni var fólkið með matpakka með sér.
Í skólanum í morgun barst það í tal við eina stelpu að ég hefði farið í bókakaffið, ég ætlaði eitthvað að segja að mér finndist þetta einkennilegt að geta ekki keypt meðlæti með kaffinu þarna. Stelpan sem ég var að tala við greip frammí fyrir mér og fór að dásama þetta og hvað það væri frábært að maður gæti bara haft með sér meðlæti..... ÞETTA ER MENNINGARMUNUR.
Fór síðan að hugsa það að ég hef bara ekki séð "bóhemtýpur" hér....man eftir því þegar ég var að vinna á Kaffi Krók að þar voru nokkrar listaspírur sem hengu þar og hugsuðu eða ortu...hef ekki séð svoleiðis hér....ég meina það ég bý í 15 þúsund manna sveitarfélagi og ég hef ekki séð einn svoleiðis!!!

bloggleti
12. október 2009 klukkan 15:35
- eða eiginlega er þetta ekki bloggleti, ég hef haft svo mikið fyrir stafni undanfarið og mun hafa næstu vikur að það mun koma niður á blogginu. Vara ykkur hér með við.
Það voru gestir hjá okkur um helgina, það voru Palli og Torfu sem áttu leið um. Gekk með þeim um háskólasvæðið á föstudaginn, fórum á kaffihús ehemmmmm, í grillhyttu, skoðuðum okkur um í Drøbak, leyfðum þeim að smakka kebabið sem fæst niðrí bæ. Palli kynnti okkur fyrir Peppes pizzum og svona mætti lengi telja!
Þeir komu með ýmislegt sem okkur þykir eftir sóknarvert að fá, súkkulaðirúsínur, lakkrís og þrist, ásamt belgísku konfekti og "íslensku" kaffi.
Já þetta var fín helgi - set myndir inn við tækifæri.

Óţekktaranginn ég!!
07. október 2009 klukkan 12:30
Hef ekki gefið mér tíma til að fara út að hlaupa síðan á sunnudag.....arg!!!
Það er ákveðið hættumerki skal ég segja ykkur. Ég kemst reyndar ekki í dag en ætla að reyna að skokka á morgun klukkan tólf. Síðan stefni ég á skokk á laugardag og sunnudag og þá er ég allavega búin að ná markmiði mínu að fara þrisvar í viku út að skokka.
Seinnipartinn á morgun koma gestir til okkar, þeir Palli og Torfi en þeir eiga leið um og ákváðu að stoppa hér í nokkra daga. Stefnan er sett á grillhyttuferð á föstudagskvöld, laugardagurinn er opinn en það er ýmislegt hægt að gera hér t.d. fara til Oscarsborg, Follo museum, landbúnaðarsafnið, kaffihús hér eða í Drøbak, búðir, gallerí og svona mætti lengi telja. Veit t.d. um gourmet kaffihús í Drøbak sem ég mundi alveg vilja fara aftur og aftur á!
Það vill reydnar svo skemmtilega til að núna um helgina er svo kölluð listahelgi hér í Ås og því væntanlega einhverjir viðburðir í tengslum við hana sem gaman væri að kíkja á.
Læt þetta duga að sinni - þarf að lesa.
p.s. Við erum komin með svefnsófa í stofuna

Helgarmyndirnar komnar...
05. október 2009 klukkan 08:12
...endilega kíkið á myndir helgarinnar, HÉR.
Þetta er tvær möppur, önnur er frá laugardeginum en þá fóru Haukur, Þórður Logi og Ragnar Finnur á á plægingar og keðjusagarkeppni. Hin mappan er frá sunnudeginum en þá fórum við til Hrafnhildar og Ragnars en þau vinna við afleysingar á kúabúi hér rétt austan við okkur. Fjölskyldan á bænum skrapp til útlanda í eina viku og þá eru þau þar á meðan. Við ásamt annarri íslenskri fjölskyldu hér ákváðum að skreppa í heimsókn.
Það er nóg að gera núna þessa dagana, ég er á fullu að lesa og reikna og síðan eigum við von á gestum á fimmtudaginn en við höfum verið að skipuleggja þá heimsókn
dararamamarmmm, hvað skildum við gera...??
Haukur fór í vinnuna í dag - vona að hann passi sig og komi ekki heim enn verri en áður. Síðan er stefnan tekin á IKEA seinnipartinn eða í kvöld þar sem ákveðið hefur verið að splæsa í svefnsófann góða
Eigið góðan dag!
p.s. á föstudaginn skruppum við Stefán Snær og Bríet til Ski - fórum í Ultra og keyptum lakkrísdraum og ríssúkkulaði
Þetta er tvær möppur, önnur er frá laugardeginum en þá fóru Haukur, Þórður Logi og Ragnar Finnur á á plægingar og keðjusagarkeppni. Hin mappan er frá sunnudeginum en þá fórum við til Hrafnhildar og Ragnars en þau vinna við afleysingar á kúabúi hér rétt austan við okkur. Fjölskyldan á bænum skrapp til útlanda í eina viku og þá eru þau þar á meðan. Við ásamt annarri íslenskri fjölskyldu hér ákváðum að skreppa í heimsókn.
Það er nóg að gera núna þessa dagana, ég er á fullu að lesa og reikna og síðan eigum við von á gestum á fimmtudaginn en við höfum verið að skipuleggja þá heimsókn
dararamamarmmm, hvað skildum við gera...??Haukur fór í vinnuna í dag - vona að hann passi sig og komi ekki heim enn verri en áður. Síðan er stefnan tekin á IKEA seinnipartinn eða í kvöld þar sem ákveðið hefur verið að splæsa í svefnsófann góða

Eigið góðan dag!
p.s. á föstudaginn skruppum við Stefán Snær og Bríet til Ski - fórum í Ultra og keyptum lakkrísdraum og ríssúkkulaði
Tamningin gengur vel....
02. október 2009 klukkan 07:02
...þ.e.a.s. að temja mér sjálfsaga.
Var meirihluta vinnudagsins í gær úti í skógi í verklegum æfingum í skógmælingum, þá söfnum við ýmsum upplýsingum og förum svo með þær heim og reiknum ýmsar stærðir eins og t.d. þéttleika skógarins og rúmmál. Það er nenfilega mikilvægt að kunna þessa útreikninga og aðferðafræði við skógarúttektir. Talaði við Valda í Álfhól og hann var að segja mér að nú færi fram mjög stór grisjun í Skorradalnum eða um 9 ha en markaðurinn er Grundartangi sem tekur allt efnið í kurli og notar í vinnsluna. Þetta er jákvætt - það er þá ekki verið að flytja inn kurl í vinnsluna
Þegar ég var nýlega komin heim úr skóginum, hringdi Haukur en hann var á leiðinni til læknis....ég fékk sjokk! Hann hafði verið að brasa við að toga í múgavél og lyfta henni um leið og við það small eitthvað í hryggnum og hann hneig niður og var næstum liðið yfir hann af sársauka. Björg (kona Eivinds á Lesterberg) keyrði Hauk til vakthafandi læknis hér í Ås og það var indverjinn....ahhhh sem hafði ekki mikið um þetta að segja nema að skrifa uppá bólgueyðandi verkjastillandi töflum. Aðalmálið hjá þessum lækni var að hann gat ekki skrifað nafnið hans Hauks og Björg varð að frekjast í tölvuna hjá indverjanum til að skrifa nafnið, því hann gat ekki skrifað það þó hún stafaði það aftur og aftur. Björg sagði svo að hann talaði mjög lélega norsku og það væri ekki furða að Haukur skildi næstum ekkert sem hann sagði (eða það litla sem hann sagði). Fegin að hann er ekki heimilislæknirinn okkar, við völdum okkur sænskan heimilislækni sem er með stofu hér rétt hjá og er frekar vinsæll
Þannig að nú liggur eiginmaðurinn fyrir á sterkum verkjalyfjum. Björg talaði um að hann gæti farið til kírópraktors. Norðmenn nýta sér þá mjög mikið ásamt nálastungum og mér skilst að kírópraktórarnir séu alveg inní heilbrigðissysteminu hér, þó það kosti slatta þá mega þeir skrifa upp á "sykemeldingar" og annað slíkt. Við bara vonum að þetta gangi sem fyrst til baka því þetta er ömurlegt, svo nagar það Hauk að honum finnst hann vera að svíkjast um í vinnunni - nóg að gera og svona...en svona er þetta, slysin gera ekki boð á undan sér.
Þannig að nú þeytist ég með Þórð í og úr leikskóla, hann var hissa að sjá mig koma í gær að sækja sig. Síðan var nú ætlunin að vera ekkert að spenna hann upp fyrir allar aldir í morgun því okkur lá ekkert svo á. Hann svaf korteri lengur en vanalega þannig að við vorum komin á leikskólann rétt fyrir hálf átta!!
Það er ansi kuldalegt hér á morgnana, maður þarf að skafa bílinn og klæða sig vel, þannig að ullarskyrtur og síðbrækur koma að góðum notum þessa dagana. Þegar Þórður mætir á leikskólann er ekkert farið inn, það er leikið úti í garði og síðan borða þau morgunmatinn úti eða í grillhyttunni sem er á leikskólalóðinni - ansi kuldalegt stundum finnst mér.
Dagurinn hjá mér verður svona:
Lestur og útreikningar
Skokk
Sækja Þórð á leikskólann
Fara í búð og kaupa föstudagsgotteri (hefð hér á þessu heimili - snakk og gos)
Þvottastúss
Pizzugerð
Jamm það er föstudagur
Góða helgi.