Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Mér finnst ég nýta tímann illa!!!!

30. september 2009 klukkan 12:53
-....og þess vegna ætla ég að fjalla um sjálfsaga í þessu bloggi.
Ég hef verið að pirra mig á því hvað ég eigi erfitt með að einbeita mér og sitja við og læra hér heima - verið að velta fyrir mér hvað valdi þessum einbeitingarskorti.
Leiðist mér? Nei
Finnst mér námið leiðinlegt? Nei
Er ég með heimþrá? Nei
Er íbúðin sem ég bý í leiðinleg? eeee, jú frekar en ég hef ákveðið að sætta mig við hana í tvö ár.
-Og svo hef ég spurt mig margar annarra spurninga......en lokaspurningin:
Er ég dugleg að skipuleggja tíma minn heima eftir fyrirlestra? Nei!!!
Þarna kom svarið - það sem hrjáir mig er skortur á sjálfsaga og þar verð ég að bæta mig!

Hvað er sjálfsagi? Það er erfitt að segja það í stuttu máli en er það ekki bara það að taka ábyrgð á sínum gerðum, þekkja tengslin á milli orsaka og afleiðinga? Tja, mér finnst ég ekki nýta tíman nógu vel, ég sit ekki við í 8 klukkutíma og læri - orsökin verður sú að ég fæ e.t.v. ekki eins háa einkunn. En ég vil sitja við í 8 tíma á dag en ég get það ekki, er það skortur á sjálfsaga? Jú ég held það - eftir að hafa rætt þetta aðeins við eina mér afar nákomna þá hef ég tekið ákvörðun. Fyrst ég get ákveðið að skokka þrisvar í viku þá get ég krafist þess af sjálfri mér að ég taki 8 tíma lærdómstörn á dag, eða er það ekki?
Þess vegna mun ég halda mun ítarlegt bókhald yfir það hvernig ég nýti tímann núna næstu daga, og það "bókhald" getur gefið mér vísbendingar um vinnulag mitt og með því að "rína" í það ætti ég að finna leiðir til að bæta mig.

Er farin út að hlaupa!
AMEN!

Ţađ kólnar...

28. september 2009 klukkan 18:55
hér í Ås  en hitinn var í rúmum 10°C í dag og svo er farið að snjóa í norður Noregi.
Það má segja að fyrsti vetrarboðinn hafi komið heim með Þórði Loga af leikskólanum en það var bréf frá norska skíðasambandinu. Börnum sem verða 4 ára á árinu 2009 (og eldri) er boðið uppá að koma í skíðakennslu á leikskólatíma í fimm vikur í vetur, eða í viku 3-7 2010. Þurfum að svara fyrir næsta föstudag og mér sýnist á áhuganum að það sé mikill vilji til að fara. Þetta mun kosta slatta eða um 1000 kr norskar (fyrir utan útbúnað) en ég held að þeim peningum verði vel varið, þannig að það er ljóst hvað verður í jólapakkanum þetta árið fyrir drenginn!!
Nú er vika 40 og þá er haustfrí í skólum hér á "austlandinu" sumir fara eitthvert en aumingja Stefán er hér heima, fer ekkert. Heppilegt reyndar að það eru færri fyrirlestrar hjá mér þessa vikuna þannig aðég er meira heima til að veita honum félagsskap. Þetta er reyndar ágætt því hann notar tímann og reynir að vinna upp í stærðfræði en hann hefur misst mikið úr vegna norskukennslunnar sem hann hefur verið í meirihluta skólatímans nú í haust. Síðan röltuðum við í búðina seinnipartinn og stefnan er að gera eitthvað skemmtilegt eftir hádegi á morgun Wink

Ég sveik sjálfa mig í dag og fór ekki út að skokka, þannig að ég skulda - stefni á að drífa mig út í fyrramálið áður en ég mæti í fyrirlestur - sjáum til, ætla ekki að þurfa að skulda sjálfri mér skokk í marga daga (hvað þá að það fari að myndast hali!!!)!

Haukur er í skógarvinnu þessa dagana, kurlar daginn út og daginn inn Smile

Fleiri myndir

27. september 2009 klukkan 17:10
Var að setja inn myndir gærdagsins, eða út gönguferðinni.

Komin úr gönguferđ....og ég sá Holmenkollen

26. september 2009 klukkan 20:10
Ég fór í gönguferð í "Oslomarka" með Önnu Katrínu, Gunnu og Hilde. Tókum lestina frá Ås til Osló S og þar fórum við með T-bananum til Sognsvann sem er ein endastöðin í Osló. Gengum frá Sognsvann til Ullevållseter (hytta) til Kopperhaughytta til Frognerseteren. Forðuðumst "góða" vegi og fórum stíga-troðninga. Upp og niður brekkur í skógivöxnu landi, þetta tók vel í. Set myndir inn síðar, er frekar þreytt eftir þetta ferðalag en gangan var um 21 km. Góður dagur að baki.

Haukur og strákarnir höfðu það fínt, þeir keyrðu til Son og fóru út að borða á einhverjum stað við höfnina og síðan í sund, glaðir með daginn.


p.s. á leiðinni til baka (í strætó) eða frá Frogneseter og á leiðinni niður í bæ, sá ég Holmenkollen í návígi og þá meina ég þennan nýja sem er verið að gera og hefur farið margarmilljónir fram úr áætlunum. Langar mikið til að við skellum okkur í vetur og fylgjumst með keppni í skíðastökki á Holmenkollen!

Myndir

25. september 2009 klukkan 16:00
VAR AÐ HLAÐA INN MYNDUM Á MYNDASÍÐUNA, ENDILEGA KÍKIÐ HÉR!

Ađ aflokinni maistínslu og föstudagsblogg

25. september 2009 klukkan 05:36
Maístínslan gekk vel, við urðum hreinlega að hemja okkur í tínslunni, komum heim með 6,9 kíló af maís!! Einnig tíndum við nokkra kúrbíta, síðan keyptum ýmsilegt fleira af bóndanum; kartöflur, rófur, hvítkál, gulrætur, brokkoli, blómkál, púrrulauk og rauðlauk, auk krukku af besta hunangi sem ég hef smakkað.
Við borðuðum maísinn ferskann, (beint af plöntunni) og síðan grilluðum við nokkra um kvöldið, lögðum þá fyrst í bleyti (með blöðunum) og settum á grillið. Síðan er slatti í ísskápnum sem snæddur verður næstu daga og fullt í frystinum. Við fengum mjög góðar leiðbeiningar frá bóndanum hvernig við ættum helst að geyma maís en til að frysta þá verður maður að taka öll blöðin af og frysta sem allra fyrst til að hann haldi sér (sykrurnar verði ekki búnar að breytast í sterkju). Síðan leiðbeindi hann einnig með hvernig við ættum að geyma í ísskáp í nokkra daga en þá hefur maður blöðin á og leggur síðan í bleyti áður en maður grillar (svo blöðin brenni ekki) eða rífur blöðin af og sýður í 2-10 mín Smile
Mér varð nú hugsað til pabba sem lifir enn á því þegar hann smakkaði ferskan maís í fyrsta sinn sem Inga frænka kom með frá Ameríku fyrir 40 árum.
Þegar við vorum á leiðinni frá maístínslunni sem er rétt utan við Dröbak (hinu megin frá) þá keyrðum við framhjá jarðarberjaökrum og okkur er farið að hlakka til að komast í jarðaberjatínslu í júní-júlí.
Já hér hefur hver árstíð sinn sjarma, haustið alla uppskeruna hvort sem er í jörðu eða á trjám, veturinn fyrir gönguskíðamenninguna og skógarferðir þar sem bál er kveikt og grillaðar pylsur, fiskepinner eða brauð í frostinu, vorin þegar vorlaukarnir blómstra og ávextatrén blómgast, sumarið þegar jarðberin koma og svona gengur þetta koll af kolli Laughing Það er því um að gera að njóta þess og prófa þetta allt saman Smile

Á morgun ætla ég í gönguferð í Nordmarka (rétt norðan við Osló) með tveimur íslenskum stelpum, þeim Önnu Katrínu og Gunnu auk einnar norskrar sem ég veit ekki hvað heitir. Þetta er einskonar vísir af gönguhóp sem stefnir á að fara saman á Galdhöpiggen næsta sumar. Ætluðum að fara núna í september en það er bara svo langt að keyra að við nennum eiginlega ekki fara í svoleiðis ferð þ.e. keyra í 7 tíma, gista, ganga, gista, keyra í 7 tíma!!! Viljum hafa góðan tíma og þá mun gönguferðin verða farin í tengslum við lengra ferðalag eða útilegu í Jötunheima þar sem börn og menn koma einnig með.

Haukur og strákarnir ætla í sund á morgun en leikskólinn er með sundlaug á leigu í tæpan klukkutíma á laugardögum og við vorum búin að bóka okkur á morgun og aðra sex laugardaga fram að jólum Wink

Annars er hefðbundinn föstudagur framundan, lærdómur hér heima hjá mér (enginn fyrirlestur, alltaf "frí" á föstudögum). Karlarnir mínir í skóla og vinnu og síðan pizzugerð í kvöld.

Góða helgi!

p.s. Edda og Þórunn, takk fyrir ábendingarnar Wink

Skipulag morgundagsins....

23. september 2009 klukkan 19:50
Klukkan hringir klukkan 6:30 og þá taka venjuleg morgunverk við af ljúfum nætursvefni, klæða, útbúa nesti, kíkja á vefmiðlana og svo framvegis. Verð mætt í Sørhellinga klukkan 8 þar sem ég hitti hópinn minn sem ég er að fara að gera verkefni með en við ætlum að taka stuttan túr í skóginn og pæla í hvernig við gætum búið til þemadag fyrir skógareigendur og áhugafólk þar sem þemað er: "Hvordan virker skogbehandlingen på biologi og produksjon?" Það verður örugglega skemmtilegt að vinna þetta verkefni en því verður skilað um miðjan nóvember. Þegar við verðum búin að fara í þessa "örferð" út í skóg (örugglega ekki sú fyrsta) þá er fyrirlestur í tvo tíma og eftir það fer ég heim og fæ mér næringu og skokka. Fimmtudagar eru nefnilega skokkdagar. Ef ég held rétt á spöðunum ætti ég að ná að lesa eitthvað áður en Haukur og strákarnir koma heim því það er búið að plana að bruna HINGAÐ til að tína maís í soðið. Laughing

Kominn tími á nýja fćrslu?

22. september 2009 klukkan 10:50
Síðan ég bloggaði síðast hefur ýmsilegt gerst hér á heimilinu.
Má þar fyrst nefna að á föstudaginn var lokað fyrir internetið hjá okkur og þegar ég komst í aðra tölvu um helgina komst ég að hverju þetta sætti. Jú það hafði einhver á heimilinu verið að downloada mynd af netinu og vorum við (Stefán) gripinn af eigandanum (Paramount pictures). Tölvumennirnir urðu að fá tölvuna til að skoða hvað væri í henni og eyða tilteknum "fæl" Tongue out sögðu mér svo að nú væri ég komin á svarta listann hjá þeim og ef þetta gerist aftur megi ég búast við að lokað verði fyrir netið í nokkrar vikur!! Það viljum við ekki og Stefán hefur lofað að hætta að downloada.

Ég hef komist vel á skrið með að gera hlaupin að reglu hjá mér og það að fara fast 3 svar í viku er bara gott og allt auka er enn betra - ég ÆTLA að ná markmiðunum mínum Wink

Helgin var róleg, á föstudagskvöldið fórum við til Bríetar og Björns og spjölluðum um heima og geima, komumst að því enn og aftur hvað heimurinn er lítill, Silla ef þú lest þetta þá var Bríet ein af þeim sem skipulögðu "göngum gegn slysum".
Við fórum í verslunarferð til Ski á laugardaginn og fengum okkur Kebab í hádeginu. Ég komst að því að þann mat ætla ég ekki að borða oftar en ég hef einu sinni áður smakkað Kebab og þá fékk ég í magann og líka núna. Næst þegar það verður farið þá ætla ég að koma mér fyrir á kaffihúsi á meðan þeir karlarnir fara í Kebab!!!

Á laugardagskvöldið komu Stína frænka og Ib kærastinn hennar (búa í Askim) og við grilluðum og áttum með þeim alveg frábært kvöld.

Á sunnudaginn fórum við Haukur með Þórði Loga í afmæli en tveir félagar hans á leikskólanum héldu upp á afmælin sín saman úti í skógi í grillhyttu. Það voru grillaðar pylsur, svo var boðið upp á köku og farið í ratleik og leikið í skóginum.
Við urðum alveg heilluð af grillhyttunni og erum að spáí að byggja okkur svoleiðis heima á Íslandi - hvar sem við endum eftir tvö ár...hér getið þið séð mynd.....Smile Þetta er nefnilega algjör snilld. Svo ég haldi áfram að láta mig dreyma þá sé ég fyrir mér að það verði einnig hægt að vera með n.k. eldstæði  utan við - þannig að möguleikarnir gætu verið ýmiskonar á svæðinu.

Jæja, læt þetta duga í bili - verður vonandi stutt í næsta blogg.

Afmælisbörn dagsins frá sérstaka kveðju frá mér: Steinunn og pabbi TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!!

Smá "uppfærsla" hálftíma seinna:  Gleymdi að segja að við keyptum okkur þvottavél um helgina, kostaði 500 kr norskar og fengum hana heim að dyrum, hún verður búin að borga sig upp eftir rúma  tvo mánuði, miðað við hvað ég er að borga í þvottahúsinu hér. Þetta er svakagræja, topphlaðin Whirlpool sem fer ótrúlega lítið fyrir Cool

Hjól og heilbrigđi!!

17. september 2009 klukkan 06:36
Stefán Snær er búinn að fá hjól. Það var farið til Ski í gær í búð sem heitir XXL sem er risa sport og útivistarverslun. Þar var keypt þetta líka flotta hjól HÉR drengurinn er í skýjunum með þessi kaup og fóru hann og Haukur í smá hjólatúr í gærkvöldi Wink

Ég hef alltaf gleymt að segja frá einu sem mér finnst að mætti taka upp á Íslandi. Fyrir nokkrum árum samþykkti norska þingið að í öllum unglingaskólum í Noregi ættu nemendur að fá ókeypis ávexti og grænmeti. Þannig að í löngu frímínútunum sem eru tvisvar á dag (fyrir og eftir hádegi) liggja frammi bakkar með  eplum, banönum, plómum, gulrótum og mörgu öðru og meiga þau borða eins og þau vilja af þessu. Held að þetta sé líka í boði í hádeginu. Finnst ykkur þetta ekki magnað?
Annað sem er frábært í skólanum hans Stefáns er að það er harðbannað að fara út af skólalóðinni - það að ætla að skreppa út í búð/sjoppu er BANNAÐ ef það er gert þá missir maður punkta og það vill maður ekki. Þetta virða allir og það virðist vera lítið mál, hér er sko AGI en allt mjög afslappað samt sem áður.

Fór á foreldrafund um daginn og þá talaði kennarinn um ónógan svefn hjá krökkunum og nefndi það að á þessum aldri þyrftu þau 8-9 tíma svefn. Þannig að það var bara ákveðið að foreldrar stæðu saman í því að krakkarnir færu snemma í hátttinn. Klukkan 10 skal það vera! Enda veitir þeim ekkert af hvíldinni, eins og Stefán Snær hann fer 2 km leið í skólann þannig að hann er að fá fasta hreyfingu á dag uppá 4 km. Fyrir utan allt annað en í íþróttum er mikið lagt uppúr hlaupum þannig að þar bætist slatti við. Kennarinn hans er maraþonhlaupari og mjög meðvituð um heilbrigða lífshætti sem hún smitar inní bekkinn. Allir fara snemma að sofa, drekka mikið vatn og eru duglegir í ávöxtunum og grænmetinu í skólanum!

Svo langar mig til að segja aðeins frá leikskólanum hans Þórðar Loga, en núna þegar það haustar þá er eitt bannorð það er BÓMULL, börnin eiga að vera sem mest í ullarnærfötum og sokkum úr ull en hér er hægt að fá þunna ullarsokka og nærföt í öllum búðum. Svo eiga þau að vera sem mest í þægilegum fatnaði líkt og bara venjulegum útivistarfatnaði, ull og flís en alls ekki BÓMULL. Þetta er nú alveg rétt, við erum að fara að færa okkur meira í að kaupa t.d. stuttermaboli úr 100% merinoull því þó það sé heitt þá gerir það ekkert til og þegar kólnar þá snögg kólnar manni ekki eins og gerist stundum þegar maður er búinn að svitna í bómullarbolum Wink

Við hittumst nokkrar í gær til að ræða Galdhöpiggen ferð, held við breytum planinu, gerum frekar góða fjölskylduferð úr því á næsta ári því við erum sko 7-8 tíma að keyra uppeftir!!! Þannig að nú erum við að spá í fjallgöngu eitthvað nær okkur en við erum búnar að ákveða allavega dagsetninguna - það er kostur Cool

Í lokin þá segi ég takk mamma og pabbi fyrir sendinguna,  (ef þið lesið þetta áður en ég næ að hringja í ykkur) hangikjötsrúllan kom skemmtilega á óvart!!!


Eigið góðan dag.

p.s. er að fara í skólann, ætla að skokka seinna í dag eða í kvöld

Matarćđisblogg

16. september 2009 klukkan 08:54
Hef nú ekkert verið mjög nákvæm á mataræðinu (eða sko þessu danska). Hef ákveðið að prófa skynsamlegu leiðina mína sem hentar mér vel.
Sneiði fram hjá sykri, nema á laugardögum, þá er nammidagur. Föstudagskvöld eru pizzukvöld.
Borða alltaf AB mjólk og kornfleks+ávöxt á morgnana.
Grænmeti, brauð eða jógúrt í hádeginu.
Heit máltíð á kvöldin með miklu grænmeti.
Ávextir inn á milli.
Vigta lítið, drekk nóg vatn
.......................og ætla bara að sjá hvert þetta leiðir mig.
Hreyfingin er í góðum gír, kemst ekki upp með annað hér þar sem ég geng í skólann og flestra minna erinda hér í bænum.
Skokk/ganga er fast þrisvar í viku og allt annað er því bónus Cool
Léttingur vikunnar  ca 300 grömm.
Það er ég bara mjög ánægð með!!!

EN STELPUR HVERNIG GENGUR YKKUR?

Ţriđjudagur

15. september 2009 klukkan 15:09
Jæja í dag er 15. september, VÁ hvað tíminn flýgur!!! Sjötta vikan í skólanum og þvílíkur munur á statusnum á manni Cool
Nú bíðum við bara eftir skattkortinu hans Hauks svo hann geti farið að fá útborgað, svo bíðum við líka eftir debetkortinu hans svo hann geti farið að nota peningana sem hann fær útborgaða Wink
Ég er búin að skila inn umsókn um barnabætur og svo er ég líka búin að sækja um Pin-númer fyrir alla fjölskylduna svo við getum farið inn á heimasíðu á netinu þar sem við veljum okkur heimilislækni, erum komin með nokkur heilræði varðandi lækna, en það er misjafnlega látið af þeim hér líkt og gerist oft annarsstaðar. Þetta er endalaust, sækja um hitt og sækja um þetta - það er sko ekki þannig að þegar kennitölurnar eru komnar að þá gerist allt af sjálfu sér, það er sko öðru nær!! Þannig að ég er dauðfegin að vera ekki í 100% námi þessa önn því ég veit ekki hvernig maður hefði farið að annars! Pappírsvesen, bjakkkk, ég þoli það ekkiUndecided
Bjartari tímar eru framundan því ég held að maður eigi ekki að þurfa svo mikið að vesenast í öllu þessu nema einu sinni.

Annars er allt gott héðan, við ætlum að kaupa hjól handa Stefáni í vikunni - ekki seinna vænna því hann er að fara í hjólatúr með bekknum sínum á föstudaginn.

hvađ er máliđ....

14. september 2009 klukkan 06:09
....hjá unglingum sem eru með buxurnar á hælunum??? Í mínu ungdæmi voru um tíma svokallaðar kúkabuxur í tísku en þær voru þó girtar upp í mittið þó klofið væri haft svolítið sigið!!!

Annars er í nógu að snúast. Ér er að leggja lokahönd á undirbúning fyrir smá feltvinnu í skógmælingakúrsinum. Síðan er það á dagskrá að fara út að hlaupa og skila inn umsókn um barnabætur til NAV.

Í dag eru þingkosningar í Noregi og ætli maður reyni ekki að fylgjast með talningunni eitthvað fram eftir kvöldi.

Enn ein vikan að hefjast og alltaf hugsa ég hvað tíminn líður hratt - alveg með ólíkindum, njótið dagsins Wink

Ađeins af norsku skipulagi

11. september 2009 klukkan 16:45
Í gær kom miði frá leikskólanum hans Þórðar en þannig er að hér skreppur maður ekki í sund eins og heima heldur er það meiriháttar mál að finna sundlaug og þegar hún finnst þá kostar það hvítuna úr augunum að fara. Þannig er að þessi yndislegi leikskólaeigandi (Björg) sem rekur Vestby naturbarnehage hefur gert samning við Cato-senteret (heilsuhæli)  í Son um að fá tíma í sundlaug fyrir leikskólabörnin og fjölskyldur þeirra flesta laugardaga fram að jólum. Þá er þetta þannig að við getum "bókað" á okkur vissa laugardaga sem við verðum að sjálfsögðu að skipuleggja núna hverjir verða og ekki nóg með það heldur tímasetningar að deginum en hægt var að velja á milli að vera kl 14:15 til 15:00 eða 16:00 til 16:45. Þannig að eftir að hafa pælt aðeins í þessu þá ætlum við að miða við að nýta okkur þetta tilboð, alls sjö sinnum fram að jólum. Fyrir þetta borgum við 100 kr norskar pr. skiptið fyrir alla fjölskylduna, þannig að þetta verða 700 krónur í heildina. Ég get sagt ykkur það að þetta þykir ekki dýrt ef miðað er við sundhöllina í Askim þar sem það kostar 130 kr um helgar fyrir EINN fullorðinn!!!!

Annar miði kom í gær eða rétta sagt afmælisboð. Þórði Loga er semsagt boðið í afmæli 20. september og þá er ekki seinna vænna en að senda út afmælisboð með níu daga fyrirvara. Það verður spennandi því afmælið verður haldið í grillhyttu Wink

Það er að alltaf smátt og smátt að koma mynd á heimilið okkar, fórum í dag á loppemarket og keyptum sessur á eldhússtólana, náttborð fyrir Stefán og eitt loftljós og einn vegglampa, já-já þetta er allt að koma Wink

Hreyfingarblogg:
Ég hef ákveðið að breyta skipulaginu aðeins, ætla að breyta formlegum föstudagsskokkdegi í laugardagsskokk. Fann ansi skemmtilega leið í morgun sem er rúmlega 3 km en út frá henni væri hægt að gera allskonar variasjónir, þannig að maður skokkar út götuna, um landbúnaðarsvæði, í skóginum, á möl á malbiki, upp brekku og niður brekku - já fjölbreytt mjög.


Mataræðið:
....Er í góðum málum en hef enn ekki fundið baðvog, þarf að fara eitthvert lengra til að kaupa eina slíka, geri það við tækifæriWink

Hlaupablogg 2

10. september 2009 klukkan 06:51
Fór út og skokkaði rúmlega 2 km hring með Bríeti (nágrannakonunni). Hún fór þetta reyndar leikandi, það var ég sem var móð og másandi en við fórum - það er kostur Laughing
Gangi ykkur öllum vel í dag!

Skóla- kennitölu-hlaupa- og matarćđisblogg

09. september 2009 klukkan 10:08
Mikið leið mér nú vel í skólanum í morgun, ég hugsaði oft og títt nokkur ár til baka þegar ég var í skógmælingakúrsinum hjá Arnóri og skildi ekki neitt og upplifði tja minn erfiðasta kúrs sem ég hef tekið á Hvanneyri. Sá kúrs hefur semsagt reynst frábær undirbúningur fyrir báða skógarkúrsana sem ég er í núna. Einnig hafa þeir dagar sem ég hef aðstoðað Arnór nú í seinni tíð reynst mér líka alveg frábær undirbúningur.

Ég hef tekið ákvörðum um að skrá mig úr norksukennslunni, hún var ekkert að gera neitt fyrir mig. Hann er eiginlegaætlaður þeim sem hafa kínversku eða eitthvað viðlíka sem tungumál Tongue out Þannig að ég ætla frekar að vera dugleg að grípa í ýmsa reifara á milli þess sem ég les skólabækur. Svo skiptir það verulega miklu máli að vera innan um fólk því það að skilja er ekkert endilega vandamálið, það er frekar að koma hugsunum sínum í orð - en þetta kemur allt.

Ég fór á foreldrafund í skólanum hans Stefáns í gærkvöldi og það var alveg ljómandi, mér líst vel á kontaktkennarann hans og einnig hina foreldrana. Þetta verður mjög spennandi skólaár Laughing Eitt sem mér þykir mjög sniðugt, það er að núna framað haustfríi þá fá krakkarnir kynningu á frösku, þýsku og spænsku. Eftir haustfrí velja þau sér svo eitthvert af þessum tungumálum eða engelsk fordypning. Þau verða  þá næstu þrjú ár í því sem þau velja sér, ásamt norsku og ensku. Stefán ætlar að velja engelsk fordypning, þvi hann vill verða megagóður í ensku en til vara setur hann þýsku. Held þetta sé mjög sniðugt hjá honum, því þegar hann kemur heim verður hann þá með góðan enskugrunn, auk norskunnar Laughing

Kennitölurnar eru komnar í hús. Okkur var farið að lengja verulega efitr þeim og eftir að hafa hringt í konu út í bæ og spurst fyrir s.l. mánudag leit allt út fyrir að allt hefði týnst í pósti (þ.e. frá skrifstofunni í Ski til aðalskriftstofunnar) og við þyrftum því að sækja um aftur. Mikið varð ég nú pirruð og svartsýn við þetta!! Þyrftum við að bíða í aðrar fjórar vikur eða hvað???? Það sem pirraði okkur mest var líka að helv....kerlingin á skrifstofunni í Ski var svo ansk....leiðinleg og þá er nú best að lýsa fyrir ykkur heimsókn okkar á skateatatet í SKi þann 5. ágúst. Sko þetta var nú ósköp fallegur dagur, sólin skein og við voða spennt nýkomin á svæðið og vegna þess hvað það tekur langan tíma að fá kennitölur (upplýsingar frá íslendingum) hér þá ákváðum við að þetta yrði okkar fyrsta verk. Við keyrðum til Ski, fundum skrifstofuna og æddum inn og að afgreiðsluborði, þar sem tvær konur sátu - tek það fram að enginn kúnni var þarna. Konan sem seinna reyndist þurfa að afgreiða okkur leit á þessi viðundur (okkur) sagði ekki neitt heldur benti með handapati að við þyrftum að taka miða, öðruvísi gæti hún ekki afgreitt okkur!! Ok okkur fannst þetta alveg merkilegt, kerlingin var mjög óþolinmóð og nennti eiginlega ekki að afgreiða okkur en það hafðist á endanum. Við fórum, glöð yfir að þá væri þetta afstaðið, nú þyrftum við bara að bíða í 3-4 vikur og þá væri allt klárt, kennitölurnar kæmu í pósti.
Við biðum og biðum og biðum og biðum!! Ekkert kom og það endaði með að Hrafnhildur hringdi á mánudaginn fyrir okkur (svona til að komast hjá misskilningi) með áðurgreindum upplýsingum.
Hvað um það eftir skóla í gær fórum við Hrafnhildur til Ski, tókum Eyjólf með því hann þurfti að sækja um kennitölu. Eiginlega var ég með hnút í maganum yfir þvíað ef þessi kerlingarbeygla væri þarna - en mikið varð mér létt, þarna voru tvær konur og hvorug þeirra var beyglan. Mér létti mjög og við gengum samviskulega inn og TÓKUM MIÐA og fengum afgreiðslu og þá reyndust kennitölurnar vera komnar þannig að konan prentaði skjalið út og afhenti mér. Þannig að í leiðinni sótti ég um skattkort fyrir Hauk og það kemur í næstu viku. Næsta mál á dagskrá er að skrá okkur hjá heimilislækni, skrá okkur inn einhversstaðar til að fá barnabætur, stofna bankareikning og ýmislegt fleira sem staðið hefur á vegna kennitöluleysis.
Þetta var semsagt sagan um kennitölurnar okkar Wink

Hlaupablogg:
Hitti Bríeti nágrannakonu mína í morgun, hún ætlar að verða samferða í skokkinu og síðan er planið að fara í þreksal einhverja aðra daga til að styrkja sig. Ekkert skokk í dag en það verður í fyrramálið, samkvæmt plani
Cool Annars verð ég að segja ða það eru mikil plön í gangi hjá okkur íslensku konunum hér, legg aðeins eitt í einu á ykkur.... Galdhöpiggen 2469 m hæsta fjall Noregs....legg ekki meira á ykkur í bili.

Mataræðisblogg:
Jæja þá er fyrsti dagur "100% ddv" hafinn.
Er að spá í að vera ekki með neina tölur opinberar aðrar en +/- og svo set ég mér markmið.
Þannig að fyrsti vigtunardagur er í dag en raunverulegar +/- tölur fara ekki að birtast fyrr en eftir viku. Þið sem ætlið að fylgja mér í þessu ráða að sjálfsögðu sjálfir hvernig þeir fara með sínar tölur. Ég get auðvitað skráð +/- tölur inn í töflu hjá minni - látið mig bara vita.
Tölutaflan verður hér til vinstri undir heitinu "Tölfræði"


Hver vill vera memm??

08. september 2009 klukkan 10:54
Eftir að hafa setið drjúga stund yfir bókunum þá er það alltaf sama sagan, ég fer að ókyrrast og langar í eitthvað. Löngunin verður svo mikil í eitthvað að ég enda auðvitað á því að standa upp og athuga hvað sé að finna í ísskápnum. Þetta er skárra ef ég er mjög meðvituð og hef ávextina á áberandi stað og þá eru þeir það fyrsta sem ég gríp, sem er jú jákvætt. Þá fer ég að koma að því sem plagar mig verulega en það er sú staðreynd að með því að sitja á skólabekk þá margfalda ég áhættuna á að ég verði spikfeit!!!! Og það vil ég ekki!!!! Þess vegna hleyp ég þrisvar í viku!!!!! Ég hef hins vegar ákveðið að byrja 100% á ddv, hef alltaf verið svona hálfpartinn í því eftir að ég komst í kjörþyngd en nú verð ég að hefja forvarnaraðgerðir. Þess vegna er spurning hvort það væri ekki hægt að stofna smá grúppu sem hefði samskipti í gegn um sameiginlega bloggsíðu eða bara tölvupóst til að styðja hver aðra. Kíkti á netið og hér er engar vigtanir að hafa nema í 2-3 tíma akstursfjarlægð og það er of langt fyrir mig.
Fer í búð á eftir og ætla að kaupa vigt, ávexti, grænmeti og gervisykur og svo skal ég byrja í fyrramálið. Þá mun ég vigta mig og skrá á góðan stað og kannski set ég mér einhver markmið Laughing
Þá er komið að aðalspurningunni....Hver vill vera memm??

p.s. þið getið ekki ímyndað ykkur hvað norðmenn borða mikið brauð!!!!

Hlaupablogg 1

07. september 2009 klukkan 06:08
Þegar Haukur og Þórður Logi voru farnir út úr dyrunum í morgun, skellti ég mér í hlaupagallann og þeyttist út!! Gleymdi reyndar að líta á hlaupaprógrammið áður Embarassed Hins vegar var ég búin að mæla út leið, rúmlega 2 km langa inn á loftmyndagrunninum http://www.norgeibilder.no/ Ég hljóp þessa tvo kílómetra í fjórum áföngum og gekk á milli - ekki alveg samkvæmt planinu en samkvæmt því hefði ég átt að ganga fyrst í 5 mín og síðan skokka í 60 sek og ganga í 90 sek til skiptis í 20 mín.
Ég á nefnilega ekki ipod til að hlaða prógramminu inn og hafa í eyrunum á meðan ég er að hlaupa og ég á ekki heldur Garmin hlaupaúr Wink en maður reddar sér.
En hvað um það, ég hef nú grun um að þessi leið sem ég fór sé of stutt því ég var 19 mínútur - mun kannski fara hana aftur með ipodinn hans Stefáns í eyrunum og þá get ég séð hvernig "landið liggur" (eða öllu heldur hvar ég stend) miðað við þetta hlaupaprógramm
EN!!! Ég er þó allavega byrjuð!!!

Sunnudagurinn

06. september 2009 klukkan 10:04
...hófst á rólegu nótunum, barnatíminn í sjónvarpinu og ég gerði eitt verkefni (útreikningar í skógmælingum) sem þarf að skila 15. sept en gott að vera búin með.
Haukur og strákarnir ætla til Ski í bíó í dag, held þeir ætli að sjá Ísöld 3 (með norsku tali Cool). Ég ætla að vera heima og lesa fyrir fyrirlestur morgundagsins. Síðan er nú planið að taka smá göngutúr í blíðviðrinu Smile

Við erum mjög stolt af okkar mönnum í landsleiknum í gær en hér eru menn mjög ósáttir með sína menn og á forsíðu VG í dag er Eiður Smári sem segist ekki kunna við svona bolta eins og norðmenn spila hehehehe.


Ísland er best í heimi!!!

laugardagsmorgun

05. september 2009 klukkan 09:23
Jæja þá er kominn laugardagur og enn ein vikan liðin. Við erum búin að vera hér í mánuð og rútína komin á mannskapinn.
Fögur fyrirheit um að byrja að skokka í vikunni sem leið var kastað út um gluggann en ég hef verið að púsla mér saman eftir kvefpestina sem ég fékk um daginn.
Haukur átti afmæli í gær og í því tilefni buðum við þeim íslendingum sem við þekkjum hér og voru heima, þannig að í gærkvöldi voru hér átta fullorðnir og fjögur börn. Það var mjög gaman og ég held þetta hafi verið fín tímasetning fyrir alla, bæði nýbúa hér og svo þá sem lengur hafa verið. Það er rosalega mikilvægt að vita af íslendingum hér sem maður getur leitað til ef eitthvað er og svo mikið er víst að hér stöndum við saman.
Það má segja að gærkvöldið hafi verið kvöld stórra "plana"!
Karlmennirnir í hópnum plönuðu veiðiferðir upp um öll fjöll en einn í hópnum hefur áður búið hér í Noregi og bjó þá í fimm ár og þekkir mjög vel til. Við konurnar plönuðum gögnuferðir, skíðagöngukeppni, hjól og skokk þannig að það lýtur út fyrir að það verði nóg að gera!!! Og þá betra að skella sér á gönguskíði um leið og snjórinn kemur og þar á undan að vera duglegur í annarskonar hreyfingu!! Það er allavega ágætt að við erum að æsa hverja upp í þetta og þá er nú líklegra að eitthvað verði úr Cool
En hvað um það ég ætla nú að byrja að skokka/ganga þrisvar í viku og fer helgin í að undirbúa mig fyrir það (andlega) heheheh.

Í gærmorgun fórum við Hrafnhildur í verslunarferði til Svíþjóðar þannig að hér eru allir skápar fullir en eins og ég hef áður sagt þá fer maður til Svíþjóðar að versla ýmsa pakkavöru, kjöt, álegg og osta, já og áfengi.
Ég kaupi nú mjólkurvöruna hér í Noregi og eins brauð, ávexti og grænmeti.

Hér hefur rignt slatta undanfarið en það er ótrúlega fyndið hvað það skiptir fljótt úr sól og blíðu yfir í RIGNINGU, veðarabrigðin eru alveg þónokkur en hér er auðvitað enginn vindur svo talandi sé um. Núna er gott veður útihálfskýjað og sjálfsagt 15 stiga hiti en það gæti alveg rignt seinnipartinn, hver veit. Ég ætla að skella mér í göngutúr á eftir og svo er spurning hvort við förum eitthvað í dag eða á morgun til skemmtunar fyrir strákana en við verðum eiginlega að gera eitthvað um helgar fyrir þá því maður slappar ekki af í 50 fermetrum og maður getur ekki ætlast til að þeir sitji bara og liti og leiri allan daginn á meðan ég læri og Haukur horfir á Eurosport!!! Nei, það gengur bara alls ekki upp. Það er ávísun á mjög rafmagnað andrúmsloft, svo mikið er víst.

Í kvöld er svo planið að grilla en Haukur fékk grill frá okkur í afmælisgjöfSmile og svo er það sem allt snýst um í dag eða í kvöld réttara sagt, Ísland-Noregur landsleikur í fótbolta.

ÁFRAM ÍSLAND!!

Símanúmer

02. september 2009 klukkan 21:50
Erum komin með s.k. tölvusíma. Hann virkar þannig að við erum með íslenskt númer, þannig að ef þið viljið hringja í okkur þá kostar það bara það sama og kostar að hringja í heimasíma (fastlínusíma) á Íslandi.
Það sama á við um okkur, nema við borgum fast gjald 990 krónur (íslenskar) á mánuði og getum hringt í öll heimasímanúmer á Íslandi.
Svo virkar þetta þannig að hægt er að hringja í okkur alltaf þegar tölvan er í gangi, sem er nú flesta seinniparta og kvöld Cool Ég lofa reyndar ekki 100% gæðum en mér tókst þó að testa þetta og hringdi í mömmu áðan.

Símanúmerið er 499-2568 (ath ekkert landnúmer eða svoleiðis vesen)

Síðan munið þið að ef mikið liggur við þá erum við með gsm síma:
Sigga 0047 96839583
Haukur 0047 96839587

...er du frĺ Island? Kjenner du Bjarni???

02. september 2009 klukkan 11:06
....jú ég þekki Bjarna, hann er sko mágur minn og er greinilega eftirminnilegur hér í Ås! Ef þú lest þetta Bjarni þá var þetta Tim-eitthvað sem spurði en ég er með honum í einum kúrs.

Það er allt eins og blómstrið eina hér í Ås.
Stefán fór til Døbak í gær á sína fyrstu badmintonæfingu hér í Noregi. Honum leyst bara vel á þetta, það voru um 15 krakkar á æfingunni og bara gaman. Hver æfing er í tvo tíma og ég held þrisvar í viku. Standardinn er svona la-la en ef Stefán vill komast á meiri krefjandi æfingar þá þyrfti hann að fara til Osló eða Moss, við sjáum til, kannski dugar þetta honum.

Ég byrjaði í skógmælingakúrsi í morgun sem mér líst vel á, það verður töluverð vinna en leggst bara vel í mig - kemur sér vel að hafa farið í nokkrar skógmælingaferðir með Arnóri, vissi alltaf að ég mundi græða á því.

Var að lesa smá grein um svínaflensubólusetningar.....munið eftir að taka lýsi gott fólk!!

Hér kom maður áðan og losaði stífluna í niðurfallinu á baðinu.....jibbíííí!!!

Við fáum sófasettið á morgun....jibbííí!!!

Á föstudaginn ætla ég til Svíþjóðar að versla og um kvöldið verður smá veisla fyrir Hauk sem verður fjörtíu og eitthvað..... Smile

Á morgun verður fyrsti hlaupadagurinn minn Cool

Það er eitt sem ég hef verið að spá...eru allir (nema Gamli sveppur) hættir að nenna að blogga?? Er það ekki lengur inn eða.....? Ég ætla að halda áfram að blogga á meðan ég hef eitthvað til að segja frá....verð að segja að ég sakna allra bloggvinanna sem voru aktívir hér fyrir nokkru síðan, en við erum víst ekki eins og misjafnt hvað við höfum þörf fyrir að tjá okkur Tongue out

Góðar stundir

Góđan morgun (eins og fćreyingarnir segja)

01. september 2009 klukkan 06:20
Sit með kaffibollann og nýt í botn, það kom nefnilega maður hér í gærkvöldi með pakka af nýmalaðri morgundögg frá Kaffitár sem hann hafði keypt í Leifsstöð um morguninn! Hann hafði semsagt lesi það á Facebook að ég saknaði þess að fá ekki almennilegt kaffi í útlöndunum. Þetta var Dalamaðurinn Eyjólfur sem er kominn hingað í Ås í framhaldsnám. Þetta var sannkallaður íslendingaheimsóknardagur í gær því Anna Katrín nemi á Hvanneyri kíkti við en hún ætlar að vera hér sem skiptistúdent í eitt ár. Við erum þá nokkur hér sem erum í námi hér s.s. ég, Gunna, Hrafnhildur, Ragnar, Lydía, Eyjólfur, Anna Katrín og Björn. Björn þessi er nýfluttur hingað líka með konu og tvær dætur og er einnig að byrja í framhaldsnámi. Önnur dóttir Björns er jafngömul Þórði og hafa þau leikið mikið saman núna síðustu daga.

Annars er allt gott, hér eru allir farnir úr húsi, í skóla eða vinnu og ég er að fara að reikna nokkur dæmi og skelli mér svo í skólann.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.