Fyrsta einkunn komin í hús
31. ágúst 2009 klukkan 11:01
Fór í próf í morgun en einkunnin úr því gildir 20% af heildareinkunn í stórum 10 eininga áfanga sem ég er í. Þetta var próf í plöntuþekkingu en við fengum fyrir 10 dögum lista yfir 110 tegundir sem við áttum að læra fyrir prófið í morgun. Af þessum 110 tegudnum voru 28 trjá- og runnategundir en ég þekkti um helminginn fyrir. Trjátegundirnar varð maður að læra bæði norsku og og síðan auðvitað latnesku heitin.
Hinar 82 tegundirnar voru lágplöntur þ.e. blóm, lyng, mosar og grös og þær tegundir áttum við að lærar bara norsku nöfnin. Ég var nú í nettu sjokki fyrst því ég hafði ekki einu sinni latnesku nöfnin til að bjarga mér á...! En ég náði að undirbúa mig vel í síðustu viku og um helgina.
Prófið var svo í morgun og það var þannig upp sett að við komum þarna fórum inn í herbergi og greindum 20 sýni sem lágu á borðum og urðum að skrifa heiti þeirra á blað sem búið var að útbúa fyrir okkur, síðan skiluðum við blaðinu og fórum út úr herbeginu. Það voru alltaf um 5 í einu inni í herberginu og þegar einn var búinn var öðrum hleypt inn. Þannig að þetta gekk nokkuð hratt fyrir sig. Kennararnir voru tveir, annar sá um að hleypa nýjum og nýjum inn en hinn tók við blöðunum og fór yfir.
Þegar við vorum búin áttum við að bíða inná kaffiteríu sem var innan við prófherbergið og eftir ca einn og hálfan tíma lág allt fyrir. Ég var með 16 af 20 rétt og fæ því einkunina B og ég er nú bara nokkuð sátt við hana. Það er ekki slæmt að fá átta!
Ég vissi vel hvað ég klikkaði á en það voru mosarnir og grösin en villurnar voru þessar:
Bjørnemose í stað Fagermose
Krussigd í stað Blanksigd
Hårfrytle i stað Myskegras
Myskegras í stað Lundrapp
Fáránlegar villur, sérstaklega grösin en OK ég er mjög sátt

Kaffibollinn og VG
30. ágúst 2009 klukkan 07:59
Sit hér með kaffibollann og laugardagsblað VG eftir að hafa rúllað eina umferð yfir flórukunnáttuna fyrir morgundaginn.
Í fréttum er það helst að á forsíðu VG er mynd af hinni bandarísku Jaycee sem var rænt fyrir 18 árum í Kaliforníu og inní blaðinu eru tvær opnur í umfjöllun um þetta mál og loftmynd af "bakgarði" ræningjanna. Þetta er nú sjálfsagt í blöðunum heima líka. Annars er annað mjög fyrirferðarmikið mál í öllum fjölmiðlum hér en það er "kongo-dramaet" mál tveggja norðmanna sem sitja í fangelsi í Kongó og eru þeir sakaðir um morð. Það er ekkert lítið sem Kongómenn krefja norðmenn um að greiða fyrir piltana, man ekki töluna heyrði hana um daginn en einhverjir tugir milljóna NOK.
Mál málanna eru hins vegar kosningarnar sem verða hér eftir ca tvær vikur. Hún er mjög áberandi allsstaðar hún Siv Jensen í Frp-valget (framfaraflokkurinn, held ég) en í gær lagði hún fram 101 punkt sem flokkurinn ætlar að framkvæma þegar hann verður búinn að vinna kosningarnar og það á 100 fyrstu dögum í stjórn.
Eitt af því sem er slegið upp hér í blöðunum er að hún vill breyta reglunum um áfengissölu í matvöruverslunum. Hér er nefnilega seldur léttur bjór í búðum og hann má selja til klukkan 20 á vikrum dögum en kl 18 um helgar!!! Ég veit ég veit, skrítnir þessir norðmenn - af hverju að selja bjór í búðum ef það má bara á vissum tímum -spurði ég (og fékk þetta svaka hláturskast!!!) Siv vill breyta þessu og selja allt vín í matvörubúðum og ekki vera með einhvern ákveðin tíma heldur að það megi selja vín/bjór á meðan búðin er opin. OK kúl ef þetta er aðalmálið í kosningunum þá hef ég nú ekki miklar áhuyggjur af kreppu........
Jæja best að halda áfram að stauta sig í gegn um blaðið, góðar stundir!

Loksins komin með Skype!!!
29. ágúst 2009 klukkan 09:53
Það var nú ekki erfitt að skella því upp....en ef þið viljið hringja í okkur í gegn um Skype þá finnið þið okkur með því að leita að: "Haukur og Sigga Norge".
Við fórum á loppemarket í gær og fundum æðislegan bekk sem tveir til þrír geta setið á, hann er hvítur með rimlabaki og lausri köflóttri sessu, ferlega flottur. Gott að hafa ef fleiri en fjórir vilja sitja við eldhúsborðið. Síðan fundum við ryksugu og tölvu/sjónvarpsborð fyrir Stefán, auk þess keypti ég tvær bækur. Allt þetta kostaði 475 NOK. Þetta var ferlega gaman, þessi markaður er haldinn í Ås arbeidskirke og stendur líka í dag og það var svo gaman að Haukur og Þórður fóru aftur og ég bíð núna spennt að sjá hvað þeir koma með.....
Varðandi hreyfingarmál mín þá hef ég tekið ákvörðun, ég ætla bara að hlaupa núna til að byrja með, hér er öll aðstaða til þess góð þ.e.a.s. hér er ekki endalaust rok;) Er ekki búin að setja upp plan annað en það að ég ætla að vera með markmið.
Nr. 1 er að geta hlaupið 5 km eftir 10 vikur
Nr. 2 er að geta hlaupið 10 km eftir 20 vikur
Nr. 3 er að halda þessu við
Nr. 4 er að hlaupa 1/2 maraþon í Reykjavík 2011 - þegar við verðum vonandi flutt heim
Síðan er aldrei að vita nema maður skelli sér á eitt og eitt námskeið til að styrkja sig en ég ætla bara að sjá til með það. Hlaup henta vel því þá get ég stundað þau á morgnana áður en ég fer í skólann, en samkvæmt stundaskránni þá er ég að byrja tvo morgna kl 8 og tvo kl 10 og svo er frí á föstudögum þannig að þá daga sem ég byrja kl 10 og svo föstudagar væru góðir hlaupadagar. En ætli það sé ekki nóg að hlaupa þrisvar í viku, hvað segið þið hlaupadrottningar sem lesið þetta??? Silla systir gætir þú sent mér hlaupaprógrammið þitt, ég er búin að glata mínu, það virðist hafa gufað upp í flutningunum....???!!!
En af hverju er ég svona mikiðað spá í hreyfinguna núna, jú það er andleysi að hrjá mig núna en það er fylgifiskur hreyfingarleysis, í mínu tilfelli allavega. Síðan held ég að brauðátið á manni sé ekki að gera manni gott, þannig að nú ætla ég að fara að skera það við nögl og einbeita mér betur að gamla góða "danska" mataræðinu.
Jæja best að taka smá skurk í að læra og fara svo kannski í skógarferð seinna í dag.
Góðar stundir:)

Orkuleysi...
27. ágúst 2009 klukkan 21:05
...og þá er um að gera að fara að taka inn vítamín í massavís og finna sér einhverja markvissa hreyfingu til að stunda:) Já og huga að mataræðinu - ég ætla ekki að enda eins og hinn almenni norsari og borða brauð í næstum öll mál, maður lifandi hvað þeir borða mikið brauð púff!!!!
Var að skoða möguleikana sem ég hef hér í Ås en ég get valið á milli tveggja æfingastöðva GG-Hallen og Ås treningsenter. Ansi gott úrval en það er munur á verðinu, þannig að ég ætla að byrja á því að skoða GG-hallen en hún er rekin af SiÅs sem er sama dæmi og rekur nemendagarðana. Sýnist á öllu að ef ég borga 750 NOK fyrir hálft ár þá hef ég aðgang í alla tíma!!! En í Ås treningsenter kostar hálft ár 3500 NOK með aðgangi í alla tíma.....smá munur! En kannski er ég að misskilja eitthvað alveg svakalega. Haukur er mjög samviskusamur, farinn að skokka nokkrum sinnum í viku en hann hefði þurft að finna sér einhverja hópíþrótt til að hitta fólk í frítímanum (sko aðra en mig og strákana).
Annars er bara allt gott að frétta - dagarnir líða ótrúlega hratt hjá og september rétt handan við hornið. Þórður er aðeins farinn að tjá sig við konurnar á leikskólanum en gerir lítið úr því hér heima. Stefán lætur vel af sér í sínum skóla, á mánudaginn byrjar hann í norskukúrs sem er reyndar kenndur á skólatíma í "Voksneopplæringen" hér í Ås en það er eitthvað sem skólinn bíður honum og öllum "nýbúum" uppá. Þetta eru um þrír tímar fjóra morgna í viku og fer hann svo í skólann eftir þá. Annar strákur sem Stefán þekkir fer í þetta og við höldum að þetta sé málið - hann má svo hætta þegar hann vill eða er tilbúinn til.
Haukur hefur það fínt í vinnunni, þetta er ansi fjölbreytt sem hann fæst við; smíðar, bílaviðgerðir, plæging og margt fleira en svo er reyndar unglingur sem hefur lent öfugu megin í lífinu með þeim og það gengur svona lala.
Á morgun erum við að skila af okkur einu hópaverkefni með fyrirlestri - þýðir ekkert annað en að bíta á jaxlinn og láta vaða á norsku en þetta er svosem ekkert sem mér finnst ferlega erfitt, alls ekki. Þau hlæja þá bara af mér og mér er þá bara alveg sama;)
Helgin er lítð skipulögð fyrir utan það að við ætlum að einhvern svaka Loppemarked sem er árlega við Rustardskole hér í Ås, ætlum að horfa eftir hirslum fyrir strákana og kannski ljósum eða lömpum en það á allt eftir að koma í ljós muhahahah!
Síðan er það í deiglunni að fara að tína epli en ég veit um eplatré sem við megum tína af :) Þórði þykir þetta afar spennandi. Svo er aldrei að vita nema maður hafi með sér dall út í skóg og tíni aðalbláber en eins og allir vita þá er aðalbláberjalyng algengur undirgróður í furuskógum á Norðurlöndum, e.t.v. verð ég búin að kaupa mér matsveppabók og tíni einnig sveppi í matinn, hver veit. Síðan fer nú helgin í að undirbúa mig fyrir botanik próf sem er á mánudaginn en ég er reyndar ekki vitund stressuð fyrir það, ég var það en er ekki lengur. Fjölskylduferð út í skóg er líka ágætis undirbúingur fyrir slíkt próf.
Ég keypti eina ferlega sniðuga bók um daginn sjá hér en þarna eru útlistaðar allar helstu tegundir trjáa, lággróðurs, dýra, sveppa, skordýra og fugla í norskum skógum. Þetta er mjög sniðug bók í þægilegu broti sem liggur við að komist í rassvasann.
Læt þetta duga í bili, þakka kærlega fyrir allar kveðjurnar, það er gaman að sjá hvað fólk er duglegt að lesa bloggið en það er eins og vítamínsprauta - þannig að á meðan þið lesið, þá blogga ég:) Góðar stundir.

Örblogg
25. ágúst 2009 klukkan 16:15
Var að setja inn myndir frá síðustu helgi inn á myndasíðuna, Það eru tveir hlekkir hér til hægri (í hlekkjasúpunni minni) sem báðir heita "Myndasíðan". Mappan heitir "20.-23. ágúst 2009" og þar er að finna myndir frá fyrsta skóladegi Stefáns, ferð í Tusenfryd og frá flugvélasýningunni í Rygge.
Hér er dagsskipulagið:
Klukkan hringir kl 6:20, þá er farið að smyrja nesti ofan í mannskapinn og morgunmatur. Haukur og Þórður Logi eru farnir úr húsi rétt fyrir 7, við Stefán leggjum svo af stað í okkar skóla klukkan 8. Síðan þegar líður á daginn förum við að týnast heim, Stefán er kominn um hálf þrjú, Haukur og Þórður milli fjögur og hálf fimm og ég er að koma heim svona á bilinu þrjú til sex, kom heim t.d. klukkan þrjú í dag en sex í gær.
Við reynum að borða á bilinu 5 til 7 en það fer allt eftir hvernig vinnst úr heimkomum;)
Þórður er kominn í rúmið fyrir átta og Stefán og Haukur kannski um tíuleytið - ég er hins vegar að gaufast eitthvað lengur en það er reyndar bara misjafnt.
Þvottamál:
Við þvoum þvottinn okkar í sameiginlegu þvottahúsi hér en erum að spáí að kaupa okkur þvottavél, held það borgi sig þegar maður er að stefna að veru hér í tvö ár. Ég borgaði t.d. 200 NOK inn á þvottavélakortið og núna eftir þrjár vikur á ég 65 kr eftir inn á því, þannig að það er líklega að fara svona ca 200 NOK á mánuði - á tíu mánuðum eru það 2000 NOK og það væri kannski hægt að finna þvottavél á 2-4 þúsund NOK.
Það er eitt ferlega sniðugt hér, það er vefsíða sem heitir Kelkoo.no þetta er svona neytendasíða þar sem maður getur leitað að hagstæðasta verðinu og eins og t.d. þetta að kaupa þvottavél þá getur maður leitað þarna og gefið upp þær forsendur sem maður vill, t.d. eftir verði eða merkjum.....sniðugt:) Svo þegar það er búið þá kemur niðurstaðan með verði og hvar hægt er að kaupa vöruna.
Jæja læt þetta duga í bili......

Mikið að gera....
23. ágúst 2009 klukkan 19:29
....og loksins blogga ég!!!
Í "utferd"-inni sá ég margt og mikið viðkomandi skógi eiginlega allt frá A til Ö. Eins og til dæmis; fórum við í gróðrarstöð sem framleiðir yfirleitt um 7 milljónir plantna á ári, sá nýgróðursettar greniplöntur eftir rjóðurfellingu, hitti bónda sem var að rjóðurfella, fór í timburfabriku og sá trjáboli verða að timburborðum (eins og maður kaupir í Byko), skoðaði útivistarskóg Drammenbúa og sá ummerki eftir skógareld sem var þar í fyrra. Þetta var afarfróðlegt en mikið óskaplega var ég þreytt á kvöldin, ég fór inn á herbergi og las frá ca 7 til 10 og þá fór ég að sofa - algjörlega búin á því. Mér fannst ég ekki skilja neitt, átti erfitt með að fylgja eftir en náði þó oftast þræðinum. Það gengur mikið betur að skilja það sem ég les heldur en að hlusta því mállýskurnar eru mjög breytilegar. Ég var því mjög fegin að komast heim á miðvikudaginn og geta talað við Hauk og strákana.
Stefán byrjaði í skólanum á fimmtudaginn og fór Haukur með honum því ekki komst ég vegna anna í skólanum, ég er þessa dagana alltaf frá 8 til 3 sem er mjög stíft núna í ágúst. Við vorum búin að kvíða þessari skólabyrjun lítið eitt og Stefán var búinn að mála skrattann á veggin fyrirfram sem bætti ástandið ekki og því akkúrat ekki með neinar væntingar. Hins vegar var hann bara kátur eftir þennan fyrsta dag. Hann er í áttunda bekk og er árgangnum skipt í fimm stofur og í stofunni hans Stefáns eru 29 krakkar EN tveir kennarar, sem mér finnst gott, hvor kennari með 14 eða 15 krakka. Það er annar "útlendingur" í bekknum pólskur strákur sem skilur ekki neitt í norsku þannig að Stefán er rólegur - hann er ekki einn á báti.
Á föstudaginn fór Stefán í skólann með nesti og nýja skó því farið var í gönguferð út í skóg en fyrsta vikan verður skilst mér svolítið á þessum nótum, til að krakkarnir kynnist. Það er nefnilega þannig að skólinn er bara fyrir 8.-10. bekk og þess vegna eru allir bekkjarfélagar Stefáns að byrja í nýjum skóla. Þetta er mjög þægilegt, skólinn byrjar klukkan 8:30 og er búin klukkan 14:10. Hann er í 4 stærðfræðitímum á viku, 5 norskutímum, 3 enskutímum, 3 fremmedspråk sem skiptist í núna fyrstu vikurnar á milli frönsku, þýsku og spænsku en svo mega þau velja sér hvaða mál þau lærar, síðan eru 3 náttúrufræðitímar, 3 samfélagsfræðitímar, 2 trúarbragðatímar, 3 íþróttatímar, 2 list og handavinna og 1 tónlistartími. Hver kennslustund er 45 mín. Síðan á Stefán rétt á íslenskukennslu og heimanámsaðstoð en við eigum eftir að fá á hreint hvernig það verður.
Nú höfum við kynnst fleiri íslendingum sem eru hér en það eru Ragnar og Hrafnhildur en við vissum alveg hver þau voru og höfum verið í smá sambandi við þau áður en við komum en höfum ekkert hitt vegna þess að þau hafa verið heima á Íslandi í fríi og einnig upptekin í vinnu, þau búa rétt hjá okkur og vilja allt fyrir okkur gera til aðstoðar. Hrafnhildur er að skirfa mastersritgerð og Ragnar á eftir ca 1 1/2 -2 ár af sínu námi.
Síðan hittum við Gunnu, sem er nú reyndar Skagfirðingur en hún er í doktorsnámi hér og hún er búin að bjóðast til að hjálpa Stefáni á kvöldin með heimanám ef á þarf að halda, vill semsagt allt fyrir okkur gera. Hrafnhildi og Ragnar voru Haukur og strákarnir búnir að hitta á meðan ég var í ferðinni en síðan buðu þau okkur í kaffi á föstudagskvöldið. Gunnu hittum við síðan í gær en við fórum öll saman í Tusenfryd (tívolíið) ásamt gestunum okkar sem komu á fimmtudaginn en það vorur Hvanneyringarnir Berglind, Sigtryggur og Óskar Óðinn.
Það er semsagt búið að vera fjör. Þau komu hingað um það leyti sem ég var búin í skólanum á fimmtudag, þau gistu á flatsæng í stofunni:) Á föstudaginn þvældust þau um og skruppu t.d. til Ski á meðan við vorum í vinnu og skóla. Seinnipartinn fórum við svo öll til Ski og fórum í keilu en það er algjör snilld, allir geta verið með og þótti drengjunum þetta æði. Í gær fegnum við svo útrás fyrir öskur og þá meina ég ÖSKUR!!! því við fórum í Tusenfryd og þvílíkt og annað eins. Ég byrjaði á því að skella mér í svaka rússíbana sem heitir Speedmaster og ó mæ god!!!! ég öskraði svo mikið að ég ég fékk í hálsinn og er ekki búin að jafna mig. Hugsaði um leið og tækisð spýttist af stað "hvern andskotann er ég búinn að koma mér í....!!!!" en sem betur fer tók þetta ekkert rosalega mikinn tíma en jé minn eini. Síðan var farið í timburrússíbana og einhvern splashrússíbana og endalaust, við vorum í 8 klukkutíma í tívolíinu og vorum eins og sannir íslendingar með nesti í bakpoka en keyptum okkur popp og ís til að gleðja mannskapinn enn meir:)
Ég tók hins vegar ákvörðun þegar ég var í Tusenfryd, það var að sleppa svakalegasta tækinu sem er nýlegt (var ekki hér 2007) sem heitir spinspider (eða eitthvað í þá veruna) ætla nefnilega í það næsta sumar þegar systkini mín koma og ætla ég að skora á þau - það er svakalegt tæki og rússíbanar eru bara barnaleikföng miðað við þetta. OG heyriðiþað!!!! Dagurinn í dag var tekinn rólega, reyndar skelltu Haukur og Stefán sér á flugsýningu á Ryggeflugvöll við Moss ásamt Ragnari og Sigtryggi á meðan við Berglind fórum í göngutúr með strákana og gáfum öndunum:)
Haukur skutlaði þeim síðan á Gardemoen um sexleytið.
Núna er ég stútfull af kvefi og er bara alls ekki góð, er þó ekki með einkenni svínainflúensu en hér er mikið talað um hana og búist við faraldri núna þegar skólarnir eru að byrja - við erum á varðbergi og höfum einkennin í huga.
Læt þetta duga í bili, njótið vikunnar.
p.s. ný mappa á myndasíðunni hér til hægri - en þar eru myndirnar úr utferdinni:)

utferd á morgun
16. ágúst 2009 klukkan 14:39
Við fórum settumst út í garð í gærkvöld en það var þetta "festival" sem ég mundi bara kalla partý, við stoppuðum stutt, held að við séum ekki hér á sömu forsendum og margir nágrannar okkar. Það var spilað og sungið og djammað fram á nótt en við náðum að sofa þrátt fyrir það. Í morgun þegar ég kom fram og leit út í garð þá varð ég hneyksluð, fólkið hafði ekki haft fyrir því að hreinsa í það minnsta flöskurnar af borðunum - og við erum að tala um að garðurinn er ætlaður til leikja fyrir börn! Það er allt í lagi að fá sér í glas og gera sér glaðan dag en jeminn eini það er nú alveg í lagi að taka til eftir sig, held að fólk sé núna úti að myndast við að taka til (klukkan er að verða fimm)!!! Þetta fer smá í taugarnar á mér....vona að þetta gerist ekki oft.
Klukkan átta í fyrramálið legg ég af stað í "utferd" og kem ekki aftur heim fyrr en á miðvikudag. Ferðinni er heitið í Buskerud-fylki en ég er ekki alveg búin að átta mig alveg á því hvert nákvæmlega en ég veit þó hvar fylkið er....og veit að það verður endað í Drammen. Spennandi:)
Jæja ætla að fara að undirbúa kvöldmatinn, það verður soðin ýsa með kartöflum og smjöri mmmmmm!
p.s. klukkan hér á bloggar er auðvitað ekki á norskum tíma....

Kúrsarnir mínir
15. ágúst 2009 klukkan 09:10
Jæja hér er planið mitt, eins og það lítur út eftir heimsókn mína til námsráðgjafans míns.
Ágústblokk+haustönn 2009
SKOG100 Skogforvaltning - 10 einingar (helmingur er kenndur í ágústblokk)
SKOG205 Inventering og ressurskartlegging - 5 einingar
LNG135 Norsk som fremmedspråk II - 5 einingar (fæ auðvitað ekki metið inn í masterinn en gott að taka)
Þið sjáið að þessi fyrsta önn verður frekar róleg hjá mér sem er kannski eins gott svona á meðan að aðrir fjölskyldumeðlimir eru að aðlagast.
Janúarblokk 2010
NATF210 Miljöovervåkning - 5 einingar
Vorönn (feb-maí) 2010
ECOL300 Vitenskapelig metode i ökologi og naturforvaltning - 5 einingar
SKOG230 Ressursökonomi og planlegging i skogbruket - 10 einingar
SKS300 Skogökologi - 10 einingar
Júníblokk 2010
SKOG250 Skogforvaltning - övningskurs i tverfaglig analyse - 10 einingar
Júlí - SUMARFRÍ
Ágústblokk 2010
AOS230 Organisasjons- og ledelsspsykology - 5 einingar
Haustönn 2010
RÖP310 Investerings- og lönnsomhetsanalyser i energi- og skogforvaltning - 5 einingar
SKOG300 Skogplanlegging - 10 einingar
SKOG302 Flerbruk i skog - 10 einingar
M5FRIE-INA Fritt emne - 5 einingar (þarna ætla ég að sækja um að gera stóra ritgerð tengda ökologi og/eða skogskjötsel)
Vorönn 2011
Masteroppgave - 30 einingar
Svo er auðvitað alltaf spurning hvort ég lendi í vandræðum á tímabilinu, t.d. ef það er árekstur í stundaskrá að þá er ekkert víst að þetta gangi allt eftir. Málið er að ég þarf að taka ákveðið margar einingar tengdum ákveðnum "efnum" til að ég geti útskrifast með master í skogfag - þetta er sko púsluspil;)
Svo eru reyndar tveri kúrsar sem mig langar til að taaka en ég kem þeim ekki fyrir nema ég lengi námið um eitt sumar, annar er í landslagsvistfræði og hinn er um skaðvalda og sjúkdóma í skógum.....en ég veit ekki hvað verður, hef það allavega á bakvið eyrað.
Verkefni dagsins eru lærdómur, þrif og gönguferð. Seinnipartinn verður "festival" í garðinum hér fyrir utan þar sem fólk á að koma með mat og drykk og skemmta sér.
Á morgun ætlum við að keyra upp á Gardemoen en Berglind er að koma en hún er á leið norður á fund og er með sendingu til okkar í farteskinu:)
Síðan er ég að fara í námsferð á mánudag, kem heim á miðvikudag og skóli á fimmtudag og föstudag það er brjálað að gera og búið að leggja fyrir tvö verkefni. Vikan þar á eftir fer í botanic og próf í því í lok mánaðarins.
Berglind, Sigtryggur og Óskar Óðinn koma svo í lok vikunnar og verða hér um næstu helgi :) Fjör framundan semsagt:)
Læt þetta duga í bili.

Já SÆÆÆLL
13. ágúst 2009 klukkan 20:40
Vá hvað rigndi hér í gærkvöld, hef bara aldrei upplifað þvílíkt og annað eins. Þetta byrjaði allt voða vel, hér var yndisleg blíða í gær, við löbbuðum í "bæinn" og fengum okkur ís og vorum bara að dúllast. Síðan eftir kvöldmat fór að þykkna upp og þegar ég var inni að koma Þórði í rúmið byrjuðu þessar líka þrumur. Þetta stóð örugglega í góðan hálftíma með tilheyrandi úrhelli og eldingum, þetta var svo svakalegt að rafmagnið fór af!!! Kannski er þetta ekkert merkilegt fyrir þá sem hér búa en mér eða öllu heldur okkur þótti þetta alveg merkilegt.
Hér hringdi vekjaraklukkan klukkan hálf sjö í morgun og drifu þeir sig af stað í vinnu og leikskóla, Haukur og Þórður. Haukur sagði að Þórður hefði kvatt með trega og tárum í morgun en það lagaðist fljótt. Haukur fór svo í vinnuna og þessi fyrsti dagur gekk alveg ágætlega. Hann byrjaði með því að þeir hittust karlarnir og fengu sér kaffi og te, ræddu málin um verkefni dagsins (hálfgerð "Bút" stemming). Síðan fóru þeir Haukur og Eivind í búð til að kaupa skó og tvennar vinnubuxur, auk þess fékk hann; flíspeysu, þrjá T-boli og þrjár vinnupeysur. Mér finnst þetta alveg frábært, hann þarf s.s. ekki að skaffa nein vinnuföt á sig. Vinnudagurinn fór svo í smíðavinnu í enn einum leikskólanum sem þau Björg og Eivind eru að starta. Þetta fólk er með mörg járn í eldinum og eru greinilega alltaf að spotta út eitthvað sniðugt sem þau geta gert s.s. mjög atvinnuskapandi fyrir samfélagið.
Dagurinn hjá mér gekk alveg ljómandi vel, ég var meira að segja búin fyrr en stóð til í dag, sem kom sér vel því rétt eftir að ég kom heim, kom flutningabíll með DÓTIÐ OKKAR. Við Stefán vorum búin að bera dótið upp (með aðstoð Úlfs og Lydíu, nágranna okkar) og vorum komin langt með að taka upp úr kössum þegar Haukur og Þórður komu heim eftir langan og strangan dag.
Þannig að það er einskonar jólastemming búin að vera hér. Ég held að ég geti fullyrt að sá sem var fegnastur að fá "dótið sitt" var Stefán Snær enda er hann búin að vera í essinu sínu hér í kvöld að sortera og skipuleggja herbergið sitt.
Stína frænka í Askim hringdi áðan og sagði okkur frá sófasetti sem við gætum fengið frítt og við ætlum að þiggja það, vitum reyndar ekki hve stórum hluta við komum hér inn en við sjáum til. Þetta er sko 3+2+1+sófaborð!!! Fáum það reyndar ekki fyrr en 1. sept en það er nú í lagi. Ástæðan fyrir þessari heppni er að Fredirik (tengdasonur Stínu) er að kaupa sér íbúð og manneskjan sem hann er að kaupa af er að hefja sambúð með annarri manneskju og eiga þau því tvennt af öllu og ætla sér að skilja eitthvað eftir í íbúðinni ef hann (Fredirik) hefði áhuga á að hirða það - hann var nú svo almennilegur að detta í hug að bjóða okkur þetta því hann á sófa - þannig að við græðum:)
Föstudagur á morgun.....ohhh hvað ég er fegin að það er að koma HELGI!!!!

heheheheh
12. ágúst 2009 klukkan 16:33
Hann er ótrúlegur hann sonur okkar. Hann fór í sína fyrstu heimsókn á leikskólann á mánudaginn, var skilinn eftir í klukkutíma í gær, í fjóra tíma í dag og á morgun ætlar hann að vera allan daginn!!!!
Haukur byrjar í vinnunni á morgun, þannig að það verðu einmannalegt fyrir aumingja Stefán....en sem betur fer er vika í að skólinn byrjar hjá honum.
Ég dó næstum úr hlátri í gær, þannig var að við vorum að spjalla við fólk hér úti og einhverra hluta vegna var verið að tala um bjór. Málið var s.s. það að ég frétti að þó bjórinn sé seldur í matvörubúðum þá má ekki selja hann eftir klukkan 20 á kvöldin og kl 18 um helgar. Hvert er point-ið með að setja svona lög spyr ég???
Ég hef ekkert minnst á fjölmenningarsamfélagið hér, hér á Skogveien býr fólk héðan og þaðan t.d. Marokkó, Indlandi, Kólumbíu, Senegal, Sómalíu og svo auðvitað norðmenn og íslendingar. Fyrir utan þjóðernið þá tilheyrir fólkið misjöfnum trúarhópum. Börnin leika sér saman hér í garðinum og það er alveg merkilegt hve mikill munur er á þeim í leik - verð ég að segja.......og það liggur við að ég sé að verða fordómafull eftir að hafa horft á leik sumra - ég ætla s.s. ekkert að fullyrða neitt en þetta eru börn sem e.t.v. eru komin frá stríðshrjáðum löndum sem hefur haft sín áhrif á þau EÐLILEGA.
Já eitt enn, við fórum áðan til Ski og keyptum gluggatjöld fyrir stofugluggann, þá er öllum gluggatjaldapælingum lokið. Dótið okkar kemur síðan á morgun og á laugardaginn verður farið í stofusófaleiðangur til Askim. Þó að ég sé búin að finna draumasvefnsófann í Ikea þá kostar hann alveg 5000 norskar sem er eins og gengið í dag tja 100-120 þúsund íslenskar.
Í kvöld verður horft á landsleik í fótbolta, Noregur-Skotland en í útvarpinu í dag hefur mikið verið talað um þennan leik og mikið líf í Osló nú þegar skotarnir eru mættir á svæðið:)
Jæja læt þetta duga í bili - það gleður okkur óendanlega mikið hvað margir fylgjast með blogginu og vonum við að það haldi áfram;)
Góðar stundir.

Dagurinn í dag.....
10. ágúst 2009 klukkan 19:00
.....hann gekk vel. Þórði leyst vel á leikskólann, þar voru allskonar leikföng sem honum líkar (gröfur, dráttarvélar og fl.) Á leikskólanum var að vinna eldri kona sem minnti Hauk á Særúnu á leikskólanum á Hvanneyri, þetta var eldri kona sem heitir Þórunn en hún er mamma Eivind sem Haukur er að fara að vinna hjá. Sko heimurinn er líka lítill hér í Noregi;)
Ég fór í skólann en þetta var nú eiginlega bara svona kynning á deildinni sem skogfag er kennt við en deildin heitir Institutt for naturforvaltning INA. Yfirmaður deildarinnar var með smá tölu og síðan komu námsráðgjafarnir og kynntu sig og við fengum að vita við hvert þeirra maður ætti að tala við varðandi skipulag námsins. Námið sem ég er í er heitir Masterprogram i skogfag. Aðalbyggingin sem ég verð í heitir Sörhellinga og er rosaflott, öll nýuppgerð og öll aðstaða til fyrirmyndar. Ég byrja í mínum fyrsta kúrsi í fyrramálið klukkan átta, en þarf reyndar að stinga af í einn klukkutíma til að hitta námsráðgjafann en það er allt í lagi;) Núna er bara tvennt sem kemur upp í hugann varðandi námið og ég ætla að hafa að leiðarljósi:
1. Hugsa eins og íþróttamaður. Ég verð að leggja mig 100% framm til að ná árangri, ég gæti alveg komist upp með að leggja mig 70% fram en þá nær maður engum árangri þegar fram í sækir - minnir að Eiður Smári hafi verið með þetta hollráð í "Strákunum okkar".
2. Ég hef engan annan til að treysta á í þessu námi nema sjálfa mig og þá er eins gott að hafa einbeitinguna í lagi. Þetta kemur frá Lilju Kristínu;)
Eftir skóla keyrðum við til Askim, til Stínu systur mömmu en hún var að koma frá Íslandi og var með sendingu til okkar frá mömmu, það var ferlega gaman. Við eigum sjálfsagt eftir að verða eins og gráir kettir hjá henni, stefnum t.d. á að fara þangað á laugardaginn næsta.
Við erum komin með norsk gsm númer og höfum lagt íslensku númerin á hilluna.
Haukur: 0047 96839587
Sigga: 0047 96839583
Heimasímanúmer fáum við þegar kennitölurnar verða komnar í hús.

ÅS
08. ágúst 2009 klukkan 22:52
Við lögðum af stað frá Gautaborg rétt fyrir klukkan níu, þriðjudaginn 4. ágúst. Rétt áður en við komum að landamærunum stoppuðum við í bæ sem heitir Nordby og fengum okkur hádegismat og keyptum vistir til nokkurra daga. Við vorum komin til Ås uppúr eitt, við keyrðum beint á Skogveien þar sem við hittum íslenska konu sem þar býr og hún rölti með okkur á skrifstofu SiÅs sem er apparatið sem sér um stúdentagarðana. Það var ekki mikið uppúr því að hafa nema eitt þvottavélakort með 200 kr inneign (sko í norskum), lyklarnir voru semsagt ekki til taks þar sem síðasti leigjandi hafði ekki skilað lyklunum fyrr en daginn áður og það þurfti að laga ýmislegt áður en við gætum flutt inn. Íslenska konan bauð okkur gistingu því það var ekkert spennandi að tjalda þennan dag, allt rennandi blautt eftir vænan rigningardag. Við tókum þess í stað smá göngutúr um svæðið, fórum í REMA 1000 og keyptum pylsur og slegið var upp pylsuveislu. Þennan dag notuðum við einnig tækifærið og spottuðum út eina eldavél en hér eru íbúðirnar leigðar án eldavélar og ísskáps. Á miðvikudagsmorguninn var okkar fyrsta verk að keyra til Ski til að sækja um kennitölur, það gekk ágætlega og komum við einnig við í Rúmfatalagernum og í Ski storsenter þar sem við fengum okkur hádegismat. Eftir hádegið fengum við lyklana að íbúðinni og sváfum við í svefnpokum á tjalddýnum þessa fyrstu nótt okkar hér í þessari ágætu íbúð.
Fimmtudagsmorguninn rann upp ljómandi fagur. Ég fór og gerði tilraun til að skrá mig og fá skólaskírteini og svoleiðis en obbobbobb, ég var ekki skráð í kerfið hjá þeim!!!! Strákurinn sem afgreiddi mig hringdi í einhverja skrifstofu og kom þá í ljós að ég var alveg skráð inn en ekki inní þetta tiltekna kerfi...æi nó big díl ;) Mér var sagt að ég fengi póst þegar þetta væri frágengið og ekkert mál, var þá ákveðið að skella sér í IKEA og kaupa rúm, eldhúsborð og stóla og eitthvað eldhúsdót, svona til að komast af. Ferðin gekk vel, held við höfum gert met, því þetta tók ekkert langan tíma, lögðum af stað um hálf tólf og vorum komin hingað á Ås fyrir fjögur NB við vorum búin að skoða allt á netinu áður en við fórum og vissum því hvað við ætluðum að fá. Eftir IKEA ferðina hittum við væntanlega vinnuveitendur Hauks en þau voru að vinna hér í Ås og því lítð mál að hitta þau í smá stund. Þegar því var lokið brunum við næstum alla leið til Ski í lítið fyrirtæki sem heitir "Brodin service" sem sérhæfir sig í að taka notuð Asko raftæki í gegn og selja aftur, við fengum þennan fína 175 sm ísskáp á 2500 kr norskar sem telst mjög gott verð því hér snobba allir fyrir Asko! Kvöldið fór svo í að setja saman rúm, borð og stóla og já Billy bókahillur (má ekki gleyma þeim)!!!
Föstudagurinn var tekinn nokkuð snemma, ég fór og gerði aðra tilraun til að skrá mig og fá skírteini en ég hafði fengið póst seinnipartinn á fimmtudaginn að id númerið mitt væri klárt. Þetta gekk allt eins og í sögu, nema hvað myndin var herfileg, ég í svitamóki því hitinn fór í 28 gráður þann daginn! Síðan tóku strákarnir í "datatjenesten" tölvuna mína og settu upp F-security og aðstoðuðu mig að skrá tölvuna mína inn þannig að nú er komin tölvutenging í íbúðina, auk þess er þráðlaust net á Campusnum. Eftir þessa skráningarvinnu alla saman var ég komin með aðgang að mínu svæði þar sem ég get fengið póst, valið kúrsa og fylgst með tilkynningum (svona eins og skoli.is eða webCT á Íslandi). Þegar þessu var lokið og við búin að sitja á svölunum og sóla okkur var stefnana tekin til Ski storsenter og keyptum við sængesett á tilboði 299 kr stk en hver pakki innihélt sæng, kodda og sængurver. Við sendum nefnilega sængurnar okkar ekki út því þær voru allar á síðasta snúning nema sængin hans Þórðar. Við versluðum einnig gardínur fyrir herbergisgluggana. Það eina sem við eigum eftir að redda okkur í íbúðina er sófi, helst svefsófi í stofuna, gluggatjöld fyrir stofuna og ljós yfir eldhúsborðið - ekki slæmt eftir aðeins fjóra daga???
Núna er laugardagskvöld allt orðið dimmt og drungalegt úti (það er sko engin flóðlýsing hér) eftir alveg frábæran dag, við tókum því rólega sátum úti, fórum í göngutúr og hittum fólk sem býr hér - allir eru mjög yndislegir og vilja allt fyrir mann gera, ég kvarta ekki. Undir kvöld fórum við í bíltúr til Dröbak og var erindið að finna staðinn þar sem Stefán getur sennilega stundað badminton í vetur.
Varðandi skólann þá byrja ég á mánudaginn en það er aðallega kynning á institutinu og svo farmvegis en á þriðjudag byrja ég í ágústblokk og verða næstu þrjár vikur skóli alla daga frá 8 til 15.
Haukur verður að sjá um strákana, Þórður byrjar í aðlögun á leikskólanum á mánudag og svo er skráning í skólann hjá Stefáni þann 19. og svo byrjar hann á fullu þann 20. ágúst - það verður semsagt í nógu að snúast og mikið álag framundan og þá eins gott að vera JÁKVÆÐUR ;)
Á morgun ætlum við til Svíþjóðar......jebb, kaupa kjöt, ost og pakkavöru ýmiskonar fyrir næstu tja... þrjár vikur;)
Eitt enn í lokin, ef þið ætlið að senda okkur eitthvað með bréfpósti þá er utanáskriftin svona:
Sigridur Julia Brynleifsdottir
Postbox 401
1432 Ås
Norge
Ef Haukur eða strákarnir eiga að fá póstinn þá megið þið skrifa þeirra nafn en mitt veður helst að koma líka t.d. c/o Sigridur Julia Brynleifsdottir
Góða nótt !

Hvanneyri - Seyðisfjörður - Danmörk - Gautaborg
08. ágúst 2009 klukkan 11:53
Jæja gott fólk þá er komið að því - fyrsti hluti ferðasögunnar!
Við yfirgáfum Hvanneyri þann 1. júlí sl, vorum þá búin að standa í ströngu við undirbúning flutnings og sölu á íbúðinni okkar, já og klára vinnuna okkar.
Við fórum norður í Skagafjörð n.t.t. Marbæli í Óslandshlíð æskuheimili Hauks og höfðum þar bækistöðvar í þrjár vikur. Það sem við afrekuðum þessar vikur var: Haukur fór á pollamótið á Akureyri, við strákarnir vorum bara að dúllast á Marbæli á meðan því daginn áður en við fórum frá Hvanneyri fékk Þórður hlaupabóluna. Við fórum norður í Eyjafjörð í bústað með Sillu og Gumma 7. júlí og vorum þar í fimm daga - bæra gaman, við kíktum á Landsmótið á Akureyri þar sem Haukur var einn af dómurunum í dráttarvélaakstri. Eftir Landsmótið komu til okkar gestir á Marbæli, það voru Tedda og strákarnir og Keli og Inga sem varð sextug um þetta leytið. Við fengum semsagt heimsenda afmælisveislu. Eftir að þau voru farin tóku við raðirnar af kveðjuveislum og miðvikudaginn 22. júlí löggðum við af stað austur á Egilsstaði í fylgd Gumma og Sillu. Við gistum hjá Diddu frænku en Árni og Sigga keyrðu með okkur yfir á Seyðisfjörð vegna þess að það kom upp smá babb í bátinn!!! Og hér kemur smá saga:
Þegar við vorum á leiðinni norður frá Hvanneyri, ræddum við Haukur um allt dótið sem við værum með og þyrftum að hafa með okkur út í bílnum (vorum nefnilega með útilegubúnað til öryggis) - þá ákvað Haukur að líklega væri bara best að kaupa það hallærislegasta sem hann veit um TENGDAMÖMMUBOX!!!!! Jebb Þórunn og Berglind hann lét sig!!! Það var fjárfest í því á Akureyri og fékk ég það hlutverk að hringja í Norrænu til að breyta bókuninni því bíllinn hefði hækkað - ég gleymdi því óvart eða réttara sagt trassaði það þar til daginn áður en við áttum að sigla af stað þá gafst Haukur upp og hringdi, þar svaraði kona sem var ekkert nema leiðindin og sagði að vð kæmumst ekki með á hærri bíl, hæðin mætti max vera 190 cm (bíllinn var orðinn 195 cm) og það væri allt fullt!!! Jebbs, nú voru góð ráð dýr, þegar við komum á Egilsstaði fórum við í mat til Árna og Siggu og með hjálp Árna og verkfræðingsins vinar Árna var TENGDAMÖMMUBOXIÐ tæmt og því troðið inn í bílinn. Svo er við þetta að bæta að ég hef nú bara aldrei annan eins dónaskap eins og hjá þessari konu hjá Norrænu því þegar Haukur keyrir inn í skipið þá var minnsta kosti 3 m lofthæð og bílar mikið hærri en okkar í stæðunum í kring!!!
Annað vandamál sem við þurftum að leysa: Við vorum með bílalán á bílnum sem við vissum að við þyrftum að greiða upp áður en við færum, eins og ég hef áður sagt þá seldum við íbúðina okkar og fáum lokagreiðslu 1. sept og spurningin var þá hvort þeir hjá LÝSINGU gætu séð í gegn um fingur sér og við fengið að fresta uppgreiðslu þar til 1. sept..... NEI! EKKI TIL AÐ TALA UM, við voruym bara aumingjar sem vorum að flýja ástandið heimaog við gátum sko alveg fengið okkur yfirdrátt í þennan tíma NÆS!! Ok við gerðum það og hún Hrönn (þjónustufulltrúinn okkar) reddaði því en þá vorum við ekki komin með nýtt skráningar skírteini á bílinn því auðvitað gerðum við þetta daginn áður en við vorum að fara til að spara yfirdrátt. Á bryggjunni á Seyðisfirði þegar við erum búin að skkrá okkur inn og allt í gúddí, Haukur í röðinni með bílinn, koma tveir svartklæddir menn og rífa upp hurðina hjá honum og segja...Hva er bara verið að flýja land á bílnum??? Helvítis DÓNARNIR - en svo sáu þeir nú að það var allt í góðu, við búin að borga upp lánið en Haukur varð að hringja í Odd vin sinn til að redda þessu skráningarskírteini.
Lærdómur:
Ég lýsi frati á konur sem vinna á skrifstofum í Reykjavík og hafa ekki hugmynd um hvað þær eru að segja og eru bara DÓNAR. Held það væri allt í lagi að innleiða fleiri námskeið um mannleg samskipti og hvernig maður kemur fram við fólk!
Ég lýsi frati á LÝSINGU!
Jæja, eftir að hafa kvatt alla með tilheyrandi tilfinningaflóði á bryggjunni hófst mikið ævintýri sem ekki er séð fyrir endann á.
Við höfðum það ágætt á siglingunni þó þetta sé nú ekki skemmtilegasti ferðamátinn þá er þetta okey. Til Danmerkur komum við laugardaginn 25. júlí og við keyrðum rakleiðis í Vejlefjörðinn þar sem okkar beið æðislegt sumarhús þar sem stutt var á strönd og sjoppu!
Elva æskuvinkona mín að norðan kom til okkar og var hjá okkur í þrjár nætur það var yndislegt að ná svona góðum tíma með henni. Við keyðrum aðeins um fórum til Fredericia og Vejle og einnig eyddum við einum degi í Löveparken. Við vorum í viku í þessum bústað í Danmörku og 1. ágúst lögðum við af stað til Gautaborgar.
Við gistum hjá Júlíu Rós (frænku Hauks) og Harrý í þrjár nætur, það var yndislegur tími. Fórum í tívolíð, heimsóttum eitt moll (femman) og þar sem Þórður var 4 ára í Gautaborg sló Júlía Rós upp veislu, eldaði uppáhaldsmat Þórðar (hakk og spagetti) og bjó til æðislega bangssímon köku. Eftir veisluna var farið í leikjaland og þar á eftir var boðið upp á sjeik og ís.
Þriðjudaginn 4. ágúst (brúðkaupsdaginn okkar) lögðum við af stað til Noregs. Set inn aðra færslu um það á morgun;)