Hvað segið þið um eitt blogg??
02. júlí 2009 klukkan 17:45
Jæja þá erum við komin norður í fjörðinn fagra þar sem við verðum með aðsetur næstu þrjár vikurnar. Já það eru þrjár vikur þangað til við siglum úr höfn á Seyðisfirði á vit ævintýranna.
Við skrifuðum undir kaupsamning á mánudag og afhendum lyklana í gærmorgun. Nú eigum við ekki heima á Hvanneyri....skrítið að keyra burt frá staðnum sem hefur verið heimili okkar síðustu ...tja (næstum) tíu árin! Þórður á mjög erfitt með að skilja þetta, "hvar eigum við heima mamma?" spyr hann. Þá er að útskýra fyrir honum að við eigum heima í sveitinni í smá tíma áður en við förum til Noregs en þar ætlum við að eiga heima í tvö ár. Hvað verður svo kemur bara í ljós síðar meir.
Við komum semsagt hingað seinnipartinn í gær og höfum bara verið að koma okkur fyrir og útrétta. Ég ætla að stunda æfingar með Sillu sys þennan tíma sem við verðum hér en hún er með nokkrar konur í hlaupaprógrammi. Á morgun og laugardag ætlar Haukur að keppa á Pollamóti Þórs á Akureyri og reikna ég með að fylgjast eitthvað með því en Stefán Snær er mjög spenntur yfir að komast þangað, veit ekki hvort það er áhugi á fótbolta eða einhverjar verslanir sem hann sækist í.....held þetta síðarnefnda.
Hvernig sem þessar Akureyrarferðir verða þá er mitt helsta markmið að hitta ömmu gömlu, fá mér Brynjuís, kíkja í Listigarðinn og jafnvel í Kjarnaskóg. Síðan á ég nokkrar vinkonur sem gaman væri að hitta......
Læt þetta duga í bili, lofa bloggi eftir nokkra daga - er nefnilega ekki með netið í sveitinni, sit núna til dæmis á kennarastofunni í grunnskólanum á Hólum.
Njótið lífsins