Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sigríđur Júlía
  • Stađur: Ĺs
  • Atvinna: Mastersnemi í Skogfag viđ Universitetet i miljö og biovitenskap
  • Hjúskaparstađa: Gift
  • Annađ: Á tvo syni

Leit

Innskráningar kubbur

Stađan í dag....

26. júní 2009 klukkan 13:35
Í dag er síðasti vinnudagurinn minn hjá Vesturlandsskógum, ég kveð starfið með söknuð í hjarta og vona ég að skógar- og skjólbeltabændum á Vesturlandi eigi eftir að farnast vel í framtíðinni.

Húsið er eiginlega orðið tómt en heilmikil vinna er eftir við þrif og annan frágang.

Við fengum tilboð í húsið og skrifað verður undir kaupsamning á mánudaginn, þann dag förum við einnig með það litla dót sem við flytjum með okkur til Noregs, suður og stöflum á bretti. 

Stefnan er svo að keyra norður í fjörðinn fagra á þriðjudagskvöld eða á miðvikudagsmorguninn, þar sem við verðum í þrjár vikur.

Við erum búin að leigja okkur hús á Jótlandi í eina viku (frá 25. júlí) og svo verður stefnan tekin á nokkra daga í Svíþjóð og svo fáum við íbúðina í Ås 5. ágúst. 

Læt þetta duga að sinni - sjáumst eða heyrumst, lofa bloggi af og til Smile

Labbakútafélagiđ

12. júní 2009 klukkan 09:33
Labbakútafélgið sem er félag göngufólks sem vinnur hjá ýmsum stofnunum sem eru til húsa að Hvanneyrargötu 3, ætlar í ferð í dag.
Skipulagið er þannig að við mætum ásamt mökum og börnum að
Snorrastöðum núna seinnipartinn í dag og göngum á Eldborg, á eftir förum við í heitu pottana og grillum og höfum gaman. Þetta verður örugglega mjög gaman og veðurguðirnir virðast ekki ætla að svíkja okkur, sól og blíða í kortunum Wink Sumir ætla að tjalda og gista en við ætlum heim, því það er margt annað á döfinni þessa helgi.

Á morgun förum við norður með kerru fulla af dóti, kíkjum í sextugsafmæli Jónu (frænku Hauks) gistum hjá Sillu sys og förum á lítið ættarmót í hádeginu á sunnudag. Semsagt nóg að gera Smile

Mér var boðið á Hvannadalshnjúk um helgina.......ákvað eftir smá umhugsun að sleppa því og fara síðar þegar minna álag er á mann því maður fer ekki í svona krefjandi göngu nema slakur (er aðeins farin að stressast upp vegna allra breytinganna).....en það er nú ósköp eðlilegt Laughing

Bloggleti.....

08. júní 2009 klukkan 10:19
...jú ég held þetta kallist bloggleti! Það er búið að vera svo mikið að gera Smile
Það er allt orðið klárt varðandi ferðina, við siglum út 23. júlí, fáum íbúðina í byrjun ágúst. Þórður fer fljótlega í aðlögun á leikskóla, skólinn hjá mér byrjar 10. ágúst, Stefán Snær á að mæta í skólann 19. ágúst og svo byrjar hann 20.
Haukur byrjar að vinna í september.
Núna gengur lífið út á vinnu - mikill álagstími núna hjá okkur báðum, þrif og að pakka niður.

Gerðum okkur dagamun í gær og fórum í SKorradal á "útifjör" hjá björgunarsveitinni, sáum þyrlu og hvað eina. Fórum svo með nesti upp í Stálpastaði og nutum lífins Wink

Lofa bloggi fljótlega, góðar stundir.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburđarteljari

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.