Hvítasunnan framundan
Í dag var svo síðasti skóladagurinn hjá Stefáni Snæ. Við förum svo norður á morgun með fulla kerru af dóti og Stefán Snær verður eftir fyrir norðan, í vinnu hjá ömmu sinni.
Það hefur verið í nógu að snúast í vinnunni en ég kom að því að setja út tilraun í hraðframleiðslu jólatrjáa og var því útivið í gær og fram að hádegi í dag. Get ekki líst því hvað það er frábært að komast út í slíka vinnu, þrátt fyrir rok og rigningu - þetta er svo GAMAN. Þetta er 10-12 ára tilraun sem jákvæði prófessorinn er með á sínum snærum og vorum við nokkur sem komum að útsetningu hennar (segir maður þetta ekki þannig?)
Annars gengur allt alveg ágætlega, allt er að ganga upp varðandi flutningana og ég sé fram á að geta unnið til 24-26. júní svona ca.
Ég hef nú ekki verið að standa mig sem skyldi í reglulegri hreyfingu en það er búið að vera nóg að gera. Haukur hefur verið að fara í vinnu mjög snemma á morgnana undanfarið og þá hef ég sleppt hreyfingunni. Hins vegar ætla ég að byrja að fara eftir 8 vikna hlaupaprógrammi sem vinkona mín var að senda mér en það passar því síðasta vikan klárast þegar ég verð um borð í Norrænu og þar er hlaupabretti

Löng helgi framundan.
Í kvöld förum við í útskriftarveislu til Berglindar og Sigtryggs en þau voru að ljúka við masterinn - TIL LUKKU MEÐ ÞAÐ
Við förum svo norður á morgun (eins og áður sagði) með fulla kerru af dóti, á sunnudag ætla ég að hjálpa foreldrum mínum að gróðursetja (vonandi eru plönturnar komnar) og við komum svo heim annaðhvort á sunnudagskvöld eða á mánudag.Góða helgi allir!
Kveðjupartý Stefáns Snæs
Síðasti skóladagur Stefáns Snæs þetta árið er næsti föstudagur, síðan förum við norður á laugardag og þá kveðjur Stefán Snær Hvanneyri - hann ætlar nefnilega að vinna allan júní hjá ömmu sinni í gróðrarstöðinni Laugarmýri í Skagafirði og planið er semsagt að hann komi ekkert meira hingað á "Eyrina" í sumar.
smá spjall......
Á föstudagskvöldið skruppum við norður með fulla kerru af bókakössum en búslóðin verður í geymslu í Skagafirðinum svona fyrir utan það sem vinir hér ætla að passa. Við gistum hjá Sillu og Gumma og stútuðum við systur einni rauðvínsflösku sem verður nú varla talið til frétta ............
Í gær skrapp ég svo með mömmu og Sillu í Laugarmýri þar sem þær versluðu sér sumarblóm og Silla keypti sér trjáplöntur. Verð nú að segja að það er frekar skrítin tilfinning að vera ekki að kaupa sér sumarblóm en mikið óskaplega klæjaði mig í fingurna.Við komum svo heim seint í gærkvöld þannig að eins og áður sagði nýttist dagurinn vel til garðvinnu.
Framundan er annasöm vika í vinnu og einnig hér heima en við stefnum á að fara norður um næstu helgi með fullt af dóti þannig að síðasta mánuðinn hér á Hvanneyri verðum við í hálf tómu húsi.
....ég vonast einnig til að komast í gróðursetningu um Hvítasunnu hjá mömmu og pabba.....þó ekki verði nema í einn dag þá verð ég glöð

Njótið vinnuvikunnar sem er framundan.
nánari fréttir......
Þórður byrjar svo væntanlega í aðlögun á leikskóla fljótlega í ágúst, ég byrja í skólanum 10. ágúst og sennilega Stefán Snær á svipuðum tíma. Haukur byrjar að vinna í haust þegar allir verða búnir að aðlagast í sínum skólum.
Nú er þetta allt að verða klárt á BARA eftir að pakka og skipuleggja en fyrsta ferð með dót norður (í geymslu í Skagafirði) verður farin á laugardaginn.
Hef lítið haft tíma til að hugsa um annað en ég vona að þið fyrirgefið það kæru vinir - en það má líka alveg kíkja við, ég get tekið mér pásu í þessu öllu saman

FRÉTTIR FRÉTTIR FRÉTTIR!!

Í dag fengum við að vita að við erum komin með íbúð í Ås

Í dag fékk ég að vita að ég er komin inn í mastersprogramm í skogfag við UMB og "studiestart" er 10. ágúst

Það er semsagt allt að smella
Ef ekki væri eurovision.......
En af þvi við sjaum eurovision þa eru allir eru i jakvæðnisgirnum og tala um hvar við munum svo halda keppnina að ari

Eg er hoflega bjartsyn en það væri voða gaman að komast uppur undankeppninni

I tilefni dagsins ætlum við að elda Tortillas sem er i miklu uppahaldi a heimilinu

Þið verðið að fyrirgefa en lyklaborðið er eitthvað bilað, ef eg ætla að nota kommustafi er utkoman svona: ´´i´´a´´e´´u!!!!
Talning
Nú er betra að nota tímann vel.
Annað kvöld er fyrsti í júróvísjón, mikil tilhlökkun á bænum
bara gleði.Njótið dagsins!
Yndisleg helgi senn á enda
Þegar við komum eim í dag skellti ég mér í göngutúr með henni Ásu minni og enduðum við á ða fara stóra hringinn. Núna er þvottavélin á fullu og ég hef varla við að brjóta saman úr þurrkaranum........
Mikið framundan:
Frænkumót 16. maí.
Saumaklúbbsferð í Stykkishólm 22. maí.
Gönguferðir af ýmsum toga eiga svo að rúmast inn á milli í dagskránni, svo og önnur hreyfing, samvera með fjölskyldu og vinum, pökkun á öllu dótinu okkar og frágangur á íbúð....
........og vinna!!!!!
staðan tekin...
Árshátíðin var algjör snilld, kom skemmtilega á óvart. Fyndið þegar maður fer án allra væntinga þá kemur allt svo mikið á óvart.
Fyrir áhugafólk um vín þá var lífræna vínið alveg að gera sig 
Slappaði af um helgina, fór í sund með drengina, allavega tvisvar. Síðan var farið í heimsókn í Hvamm en Þórður Logi varð að hitta vinkonu sína hana Heklu, þau fóru m.a. að gefa kúnum bygg en Þórður Logi vildi nú meina að þetta bygg væri fræ - svo gáfaður 
Síðan var unnið í garðinum og vinatengsl ræktuð.
Fimm daga vinnuvika framundan, í dag stend ég í bréfaskriftum, á miðvikudag mun ég prófa búfræðingana mína í því sem ég hef verið að kenna þeim í vetur (nytjaskógrækt), á föstudag er skjólbeltanámskeið á okkar vegum fyrir skjólbeltabændur á Vesturlandi og ætli þriðjudagur og fimmtudagur fari ekki í að undirbúa fyrirlestra 
Segjum þetta gott í bili......og það eru ekki nema tæpir tveir mánuðir í flutning!!!