af kynningu, brauðáti, árshátíð og skólamálum
Ég var ekki komin heim fyrr en um hálf eitt og þá tókst mér ekki að sofna strax, vaknaði svo klukkan sex - ferlega hress sem er nú að koma í bakið á mér því ég get varla haldið augunum opnum fyrir syfju. Undanfarna daga hef ég verið að missa mig í brauði og ég veit ekki hvernig ég á að snúa ofan af þeirri þróun - grunar að syfja síðustu daga megi skrifast að einhverju leyti á brauðáti - því það er bara ekki gott fyrir mig.
Verð að fara að taka mig í gegn og borða kanil og hunang í öll mál, það er víst allra meina bót

Í kvöld er árshátíð LBHÍ og ég er svona að reyna að koma mér í rétta gírinn - en á erfitt með það, Þórunn P er búin að vera að peppa mig upp og ég held henni takist það áður en vinnudeginum verði lokið.... jú, jú, segjum það
Ætla í það minnsta að ná mér í rauðvín (lífrænt) í Vínbúðinni á eftir. Mér skilst að lífrænu vínin séu frábrugðin mörgum öðrum vínum með það að maður fær ekki höfuðverk af þeim......og ég ætla að trúa því í dag, í það minnsta
Góðar fréttir, ég fékk bréf frá skólanum, ég er komin inn í kerfið hjá þeim, er s.s. orðin númer í tölvukerfinu!!! Erum ekki komin með húsnæði og ég er svolítið stressuð yfir því.....er eiginlega með magapínu yfir því......en þetta reddast, trúi ekki öðru

Jæja - frábært að sjá fram á laaaaanga helgi. Reyndar verður Haukur eitthvað í vinnu en ég verð kannski eitthvað á ferðinni, sjáum til.
Góða helgi allir!
Sæluvikan
Góðar stundir.
Minni á......
......að á miðvikudagsmorgnum er opinber göngudagur nokkurra árrisula kvenna, þá hittumst við út við hringtorg hér á Hvanneyri í bítið, klukkan 6:30 - genginn er svokallaði "stóri hringur". Þetta tekur um 40 mínútur og það eru allir velkomnir með 
Í stuttu máli:
Miðvikudagar
Hringtorgið
Klukkan 6:30
Stóri hringur
Síðasta vika aprílmánaðar
Það hefur verið í nógu að snúast hjá mér/okkur síðustu daga. Sumardagurinn fyrsti var nú ekkert spes veðurfarslega séð en við fjölskyldan flúðum út í skjólbelti til að vera í skjóli, kveiktum smá eld, tálguðum okkur greinar og grilluðum sykurpúða. Ég fékk fjarnámsnemana í heimsókn og var að þvælast í skógarferðum tvo dagparta. Kosningarnakvöldið var rólegt og sofnaði ég yfir sjónvarpinu eftir að hafa fengið mér léttan bjór með mínum manni og nokkrum félögum sem kíktu í heimsókn. Síðan var ég vakin í gærmorgun með bestu fréttum sem ég hefði getað hugsað mér eftir þessar kosningar en uppbótarþingmaðurinn í okkar kjördæmi er okkar maður!!! Ásmundur er semsagt orðinn þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi. Öflugur málsvari landbúnaðarins og Landbúnaðarháskólans kominn á þing

Ég og drengirnir fórum svo í kirkju, vorum við fermingu Péturs Freys og veislan á eftir var alveg frábær. Síðdegis kíktum við svo í afmæliskaffi til Þórunnar. Ég fór ekkert í vinnu í dag en Þórður Logi hóstaði svo ljótum hósta í nótt að ég þorði ekki að senda hann á leikskólann.
Markviss hreyfing hefur ekkert verið skráð en ástæðan er ekki hreyfingarleysi því dagana tvo sem fjarnemarnir voru hér þá sátum við sko ekki á rassinum, við örkuðum um Borgfirska skóga og leystum hin ýmsu verkefni - ég hef þannig lagað ekkert samviskubit
Miðvikudagsmorgungöngur
Þakka kommentin við síðustu færslu og ég er alveg sammála Ragnhildi að það þarf að vera til heildarlandnýtingaráætlun fyrir Hvanneyrarjörðina, hver eru markmiðin og gildin sem við viljum hafa með og svo framvegis. Svo er ég með áríðandi tilkynningu til þeirra sem áhuga hafa: Klukkan 6:30 á miðvikudagsmorgnum hittumst við nokkrar úti við hringtorg og tökum stóra hringinn saman (4,5 km) allir mega vera með
Við vorum þrjár fyrir viku og fjórar í morgun - fimm næst?
Fórum í skógarferðina....
Fjallgöngublogg
Eftir að hafa farið í gegn um hundleiðinleg veikindi fyrir páska, tekið svo páskana með TROMPI þá setti ég mér það markmið að frá og með 15. apríl hreyfði ég mig markvisst fjórum sinnum í viku. Ég hef nú þegar staðið við það og er afskaplega sátt.
Ég læt mig dreyma um heljarinnar fjallgöngu í lok maí en hef ekki enn tekið lokaákvörðun um það, er að vinna í að sannfæra eiginmanninn.....Ólöf ef þú lest þetta þá veistu það, ég er ekki búin að gleyma en vonandi kemst þetta á hreint í vikunni
Svo er það einnig e.t.v. á stefnuskránni að ná fjallgöngu norðan heiða í júní með góðum vinum...Rakel 
Það sem er alveg ljóst er að Síldarmannagötur verða gengnar í maí! Auk þess fer maður í það minnsta eina ferð á Hestfjallið, Varmalækjarmúlann og Hafnarfjall.
af útivist og fleiru
við kíktum við hjá Teddu og síðan fórum við í hjólatúr og að endingu var spurt eftir Pétri og þeir léku sér í sandkassanum í dágóða stund. Stefán Snær er komin heim eftir helgardvöl hjá föðurbróður sínum en hann mætti einnig á landsliðsæfingar í TBR þessa helgina - seigur strákurinn

Á morgun ætla ég að fara fyrr en venjulega í vinnuna en ég tek mér frí eftir hádegið því leikskólinn verður lokaður þá vegna starfsmannafundar. Ef veður leyfir er stefnt á ferð í Skorradalinn með nesti
Fimmtudagsblogg
Núna er ég á leið suður til borgar óttans þar sem ég verð á ráðstefnu, kem heim annað kvöld.
Núna vonast ég til að veðrið um helgina verði eins frábært og það var í gær og í dag
Sjáumst!Góða helgi ef ég læt ekkert heyra í mér þangað til
stóð við stóru orðin...
Stóð við stóru orðin og fór út í morgun, var mætt út á hringtorg um hálf sjö og hitti þar tvær sprækar kerlur og einn hund, gengum rösklega í 40-45 mín og lögðum um 4,5 km að baki.
Brilliant upphaf að góðum degi.
Síðan keyrði ég upp í sveit, rak inn nefið hjá Önnu Lísu, og fór svo sem leið lá upp í Þverárhlíð þar sem ég átti fund með bónda einum sem var í miklum skógræktarpælingum. Á leiðinni þangað sá ég nokkur nýborin lömb og lóur, stelka og hrossagauka - ó já vorið er komið!!
Síðan er ég að skipuleggja vinnuna næstu daga og vikur en á morgun og hinn daginn verð ég í Reykjavík á fagráðstefnu skógargeirans. Hitti þá góðar vinkonur eins og þær Rakel og Herdísi, það verður örugglega mjög gaman.
Jæja best að halda áfram að vinna......túllítú 
Ljúft líf
Ég lagði mitt af mörkum nú í kvöld og tók vaktina á kosningaskrifstofu Vinstri grænna og leið vaktin ljúflega áfram

Semsagt afskaplega ljúfur dagur að kveldi kominn.
Morgundagurinn verður öruglega enn betri því hann mun hefjast á morgungöngu klukkan hálf sjö í fyrramálið. Það er nefnilega komið inn á dagskrána að nokkrar góðar skvísur ætla að vera árrislunar einu sinni í viku og njóta samvista undir beru lofti, þetta er einn liður í lífstílsbreytingu nokkurra vinkvenna minna
og auðvitað flýt ég með.
Páskafríið senn á enda
Þá tekur alvara lífsins við, vinna og aftur vinna og síðan fer undirbúningur fyrir flutning til Noregs að hellast yfir okkur.
Skrifa meira síðar.
3,6 farin frá áramótum
Hreyfingin hefur setið á hakanum í rúma viku hjá mér en ég veiktist svo hastarlega að ég hef verið að byggja mig upp í rólegheitunum.
Við ætlum norður um páskana og reyndar er eldri sonurinn nú þegar farinn norður og er hann núna í garðyrkjustöðinni hjá ömmu sinni að sigta mold og prikla sumarblómum
Páskarnir verða tileinkaðir vinum og ættingjum fyrir norðan og verðum við örugglega á miklu flakki á milli húsa, einnig langar mig til að hreyfa mig eitthvað og mun hafa fatnað til þeirra hluta með mér (Silla sys....!!!) Píslargangan er í Mývatnssveit á föstudag, það spáir ekkert of vel en við ætlum bara að ákveða það annað kvöld hvort við skellum okkur í þá frægu göngu.
Noregsundirbúningur gengur hægt en örugglega, búin að senda fullt af gögnum um mig (skólaumsókn) og svo erum við búin að senda inn eina umsókn um húsnæði.
Í dag er 8. apríl og tengdamamma og Berglind eiga afmæli, til hamingju með það

Læt þetta duga að sinni og óska ykkur öllum gleðilegra páska
Varð mér til skammar í dag!
Það sem ég hef mér til afsökunar er tæplega vikulöng veikindi sem hafa haft áhrif á rökhugsun, málfar, og almennt séð að koma fyrir sig orði!!!!
Þá vitið þið það!!!!!