Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Helgin búin

29. mars 2009 klukkan 21:17
Merkilegt hvað þessar helgar fljúga frá manni!!...og eiginlega tíminn almennt.
Þessi helgi hefur einkennst af félagslífi með tilheyrandi áti (óhollustu) og víndrykkju!
Við Haukur fórum í gönguferð í gær með hópi fólks úr vinnunni, við borðuðum góðan mat og skemmtum okkur!
Núna er það ósköp venjuleg vinnuvika framundan sem verður án ef fljót að líða........

Píslargangan....?

26. mars 2009 klukkan 23:29
Jú, ég held ég setji það á stefnuskrána að komast í píslargönguna á föstudaginn langa í Mývatnssveit!! EF veður leyfir. Þá er einn dagur í páskafríinu planaður en svo væri æskilegt að komast á skíði í Tindastól. Langar alveg gífurlega mikið til að taka frí í Dymbilvikunni og taka langt páskafrí - sjáum til með það Smile

Í dag er venjulegur vinnudagur en svo er komin helgi!!! Við ætlum í gönguferð í Norðurárdalnum seinnipartinn á laugardag (með hópi fólks úr vinnunni og nærliggjandi stofnunum) og er boðið í mat á eftir, það verður örugglega mjög gaman. Wink

Stefán Snær er að fara að keppa á móti um helgina en það er fullorðinsmót og hann ætlar að keppa með vini sínum í tvíliðaleik, mjög spennandi.

Allt að gerast....

25. mars 2009 klukkan 11:48
Er að útbúa formlega umsókn í skólann minn Wink
Þórður Logi fer á náttúruleikskóla Laughing
Haukur er að sækja um vinnu og svo kemur bráðlega í ljós hvar við munum búa og þá göngum við frá skráningu fyrir skólann hans Stefáns Snæs Laughing

vigtunar og hreyfingarblogg

24. mars 2009 klukkan 11:51
Var að lagfæra aðeins hreyfingaráætlunina mína og framlengdi hana þannig að nú nær "planið" til 2. maí.
Ég setti reyndar ekki inn hádegisröltið sem ég fer stundum í en ég skrái það samt með, þar sem hreyfingin er skráð.
Ég hef ekki stigið á vigt í nokkrar vikur en ætla að gera það seinnipartinn í dag. Veit samt alveg að ég hef ekki náð af mér 5 kílóum eins og markmiðið var en ég verð nú að viðurkenna það að ég var að fatta það í dag að ég ætlaði að vera búin að ná því fyrir viku! Svona líður tíminn!
Reyndar er ég bara svo sátt við mig eins og ég er að ég er nú ekkert að svekkja mig á einhverjum kílóum.
Ég skoraði á kerlunar mínar sem koma til mín í vigtun að mars væri MÁNUÐURINN og markmiðið er að fjarlægja 20 kíló af hópnum (7 konum) og verður árangurinn mældur 6. apríl n.k. þannig að enn eru tvær vikur til stefnu að gera góða hluti Laughing Verðlaunin voru ekki af verri endanum - við ætlum saman í sund það mánudagskvöld Wink og borða eitthvað hollt gott á eftir.

svo gott

23. mars 2009 klukkan 21:07
Búin að fara í spinning, sitja í gufu og heita pottinum og borða svakalega gott kjúklingasalat sem samanstóð að afgangskjúlla, salati, tómat og gúrku, pestó og smá fetaosti mmmmmm.
Núna er ég að undirbúa kennslu.
Eins og glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir þá hefur nú ekki farið mikið fyrir því að ég fari mikið eftir blessaðri hreyfingaráætluninni en ástæðan er jú annríki. Get samt með nokkuð góðri samvisku sagt að ég hef farin í leikfimi 2x í viku og spinning 1x íviku og þá ætti nú ekki að vera erfitt að bæta við göngu/skokki 2x í viku.....sjáum til-viljinn er fyrir hendi, svo mikið er vístWink

mánudagsblogg

23. mars 2009 klukkan 09:18
Greinin er farin Laughing Ég er glöð í dag Smile 
Þá er spennandi vinnuvika framundan sem fer að mestu í að undirbúa síðustu kennslubréfin til fjarnemanna og skipuleggja verklega daga þar sem staðnemar og fjarnema koma með mér í "praktík" út í felt. Ég var reyndar svo skipulögð að ég negldi dagsetningu strax í upphafi annar en þetta verður 24.-25. apríl (á sjálfan kosningadaginn) en það verður bara gaman - gleðin í fyrirrúmi.

Í dag er mánudagur sem þýðir að klukkan sex skelli ég mér í spinning, gufu og heita pottinn - við erum farnar að gera þetta einu sinni í viku nokkrar og þetta er lúxus - fínt í upphafi vinnuviku.

Njótið dagsins mínar kæru Laughing

staðan á laugardagskvöldi.....

21. mars 2009 klukkan 22:11
Var í tæplega sex klukkutíma út á skrifstofu en þegar garnirnar voru farnar að gaula illilega ákvað ég að rölta heim, erindaðist reyndar smá á leiðinni. Ætla að stússast aðeins meira í greininni í kvöld.

Hér er stjörnuspáin af mbl.is í dag:
Vatnsberi: Láttu ekki hugfallast þótt allt virðist ganga á afturfótunum þessa dagana. Njóttu þess að fá þér eitthvað virkilega gott að borða.

Ég er reyndar ekkert að hugfallast neitt en ég tek hitt til athugunar og ætla að poppa upp á gamla mátann Laughing

er í les og skriftarpásu

21. mars 2009 klukkan 16:07

Við Haukur fórum í matarklúbb í gærkvöld sem var alveg rosalega gaman, ofsalega góður matur og maður gjörsamlega át yfir sig. Við gistum í bænum og komum svo heim uppúr hádegi í dag. Strákarnir voru hjá Teddu í mjög góðu yfirlæti.
Síðan skrapp ég út í vinnu að tékka á stöðunni á greininni minni og var hún komin í inboxið og þar með er restin af helginni ráðin, lestur og skriftir og endalausar lagfæringar. Núna er ég í pásu og ákvað að henda inn einu bloggi til gamans Laughing en jæja best að halda áfram, þetta gerist ekki nema ég geri eitthvað......

furðulegt....

19. mars 2009 klukkan 13:32
Ég bloggaði heil ósköp í gær, einhverra hluta vegna er sú bloggfærsla dottin út.....draugur á ferð vúvúvúSurprised
Ég man reyndar ekki í snarheitum um hvað það var sem ég bloggaði um en það var örugglega eitthvað sérlega innihaldsríkt og merkilegt......Cool
Ég er í biðstöðu núna, greinin er í yfirlestri en ég er nú að vonast til að fá hana til baka í dag eða í kvöld en sjáum til, það styttist í "dead line".
Í kvöld ætlum við Haukur að snúa okkur af einhverri alvöru að Noregsundirbúningi - ekki veitir af, tíminn flýgur áfram. Það eru rétt rúmir þrír mánuðir í flutningWink

...á milli vita...

18. mars 2009 klukkan 11:08
Greinin mín er í yfirlestri núna og mér finnst eitthvað hálf tómlegt - hef samt alveg næg verkefni en einhvernveginn finn ég fyrir tómleikatilfinningu. Undanfarnir dagar og vikur hafa einkennst af miklum önnum og stressi sem ég er að gera mér grein fyrir núna þegar allt er að komast í eðlilegt horf.
Gat ekki annað en glott út í annað þegar ég las stjörnuspá dagsins á mbl.is:

Vatnsberi: Þú ert svo kappsamur að sólarhringurinn dugar þér ekki til að koma öllu því í verk sem þú vildir.

Fór í leikfimi í gær og þvílíkt og annað eins - hún tók sko á, lærin fengu að finna fyrir því og sama er að segja um magann.
Um kvöldið var saumó þar sem ég gæddi mér á allskonar góðgæti .... mmmm. Ég var hins vegar svo þreytt að ég var komin heim snemma.
Í dag er ég fersk, er að vinna í kennsluundirbúningi og á eftir er meiningin að skella sér til Jennýjar að notfæra sér gjafabréfið góða Wink

Góðar stundir.

dekur í sjónmáli

17. mars 2009 klukkan 12:15
Ég talaði um að innleysa gjafabréfið mitt í næstu viku, svo fór ég að hgusa og ákvað að bíða ekkert með það. Fer í hand og fótsnyrtingu á morgun;) Fín afslöppun mitt í öllu stressinu Smile

Smá pása

16. mars 2009 klukkan 12:08
Það er svo mikið að gera hjá mér þessa dagana og um svo mikið að hugsa að ég hef ekkert bloggað í viku - hefur líklega aldrei gerst áður nema þegar ég var á Hornströndum eða í útlöndum.
Það sem ég hef verið önnum kafin við undanfarið fyrst og fremst það að ég var varamaður í kjörstjórn VG í norðvesturkjördæmi og það fór þannig að ég þurfti að taka sæti þar og hefur vikan flogið!! Þetta er búið að vera afar lærdómsríkt svo ekki sé meira sagt.
Það verður í nægu að snúast þessa viku en svo förum við Haukur í bæinn á föstudag í matarklúbb og ætlum við að gista í borg óttans. Síðan geri ég ráð fyrir að vinna eitthvað lítilsháttar á sunnudag og eftir það verð ég orðin slök. Er að íhuga að panta mér tíma í hand og fótsnyrtingu í næstu viku en ég fékk gjafabréf í afmælisgjöf og það gengur ekki annað en að fara að nota það og miðað við þessa brjáluðu "törn" sem ég er í núna, þá á ég það svo skilið Smile
Læt þetta duga í dag. Góðar stundir.

hér er ég.....

09. mars 2009 klukkan 12:09
Ég er ferleg, ekkert blogg í nokkra daga og fólk farið að stöðva mig á göngunum og rukka!!!
Það er semsagt nóg að gera hjá mér sem endra nær og því bitnar það á blogginu.
Í fréttum er það helst að síðasta þriðjudag funduðum við þriðjudagskonur og var tekin mjög svo "drastísk" ákvörðun. Mars er megamánuður og ætlar hópurinn - alls 7 konur - að losa sig við 20 kíló. Ef það næst ætlum við saman í sund þann 6. apríl!!!!
Haukur kláraði sveinsprófið í gær þannig að tveggja mánaða undirbúningi og endalausum hugsunum um það próf er að baki og nú er komið að mér en ég verð að spíta í lófana og skila greininni af mér sem fyrst og verð ég því að nýta allan lausan tíma til vinnu. Haukur sér um drengina og heimilið á meðan þetta gengur yfir en svona verður þetta að vera, samvinna, samvinna, samvinna.
Svo eru það félagsmálin ég er varamaður í kjörstjórn og verð við talningu atkvæða í forvali VG um næstu helgi.....já, já ótrúlegt hvað ég kem mér í.
Það er semsagt þannig að ég mun vinna út í eitt, hreyfa mig eitthvað á milli og reyna að hugsa um mataræðið  og engin pása fyrr en kvöldið 20. mars þegar við förum í matarklúbb.
Hendi inn bloggi við tækifæri - farið vel með ykkur.

Kaup og sala

05. mars 2009 klukkan 14:12
Stjörnuspá dagsins er algjör snilld!
Vatnsberi:
Þú er svoddan snillingur í að skapa þér þína eigin velgengni, að þú gleymir að stundum þarftu þess ekki. Keyptu eða seldu.
Tongue out Ég ætla að selja - kaupi ekki neitt Wink nema að vel ígrunduðu máli Cool

Endalaus gleði

05. mars 2009 klukkan 09:36
Hér er allt við það sama, nóg að gera, veðrið fallegt og allir hressir.
Ég blogga lítið þessa dagana en ég bæti það allt upp síðar - vildi bara láta vita af mér Wink
Hafið það gott Laughing

Sunnudagskvöld

01. mars 2009 klukkan 18:44
Helgin að verða búin, hún gekk að mestu út á samveru með drengjunum. Við Stefán Snær fórum á Akranes í dag að hitta frændfólk sem er nýflutt þangað, þau Sturla og Telma og litla snúllan þeirra Þórkatla Þyrí. Amman var í heimsókn en hún er Júlía föðursystir mín.

Mataráætlun morgundagsins:
Mm: Cherios, fjörmjólk og banani.
10-kaffi: Appelsína.
Hm: Brauð, reyktur lax, dressing úr rauðlauk, sýrðum rjóma og capers, grænmeti.
Síðdegi: Pera
Km: Fiskur og grænmeti.

Næsta vika verður snúin, Haukur verður með annan fótinn á Akranesi og ég þarf að nýta tímann vel, það er svo margt sem ég þarf að komast yfir........ Foot in mouth Ég veit ekki hvað ég næ að fara mikið eftir hreyfingaráætluninni en ég geri mitt besta.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.