Föstudagsblogg
Hm: Eitthvað himneskt og hollt í Borgarnesi (Björk bíður mér í mat í afmælisgjöf).
Km: Kjúklingur og grænmeti.
Afgangur af fitu, mjólk og ávöxtum hér og þar yfir daginn.
Núna er alveg ljómandi fallegt veður, sól og hiti í kring um 4°C. Það er vel líklegt að ég reyni að labba stóra hringinn seinnipartinn ef ég hef tíma. Í gær féll leikfimin niður og því fórum við Tedda stóra hringinn og brrrr hvað það var kalt en vellíðanin á eftir gerði það að verkum að manni fannst þetta vel þess virði.
Helgin framundan - er lítið plönuð, fyrir utan að ég ætla að hreyfa mig, þrífa húsið, eiga gæðastundir með fjölskyldunni og halda eitthvað áfram með undirbúning fyrir væntanlegan flutning í sumar. Tíminn líður svo hratt, að hugsa sér eftir ca 4 mánuði verðum við á leið burt, að fara að setjast að í öðru landi - að hugsa sér.
Njótið dagsins og helgarinnar.
Fimmtudagur
10-kaffi: Pera
Hm: Salat, 40 gr túnfiskur, 1 egg
Síðdegi: Appelsína
Km: Steiktur þorskur og grænmeti
Kvöldhressing: Ávöxtur, fjörmjólk og fita
Örblogg
Mamman er rauðhærður skoti, litli pjakkur er krókódíll, stóri strákur er Solla stirða á efri árum og pabbi er bara hann sjálfur.
Af þyngdarstjórnun:
Vigtunin í gær var ekki marktæk þar sem undirrituð var búin að belgja sig út af saltkjöt og baunum í tonnavís - bíð bara eftir tölum að viku liðinni.
Nýr leikskóli og forsetaheimsókn:
Hér er hægt að sjá fréttina eins og hún birtist í kvöldfréttum RÚV.
Þar til næst, góðar stundir.
p.s. smá uppfærsla, ég gleymdi að setja inn matarplan dagsins....
Mm: Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani.
10-kaffi: Appelsína.
Hm: Grænmeti, 50 gr túnfiskur, 75 gr kotasæla.
Síðdegi: Ávöxtur.
Km: Grænmeti og soðin ýsa.
Kvöldhressing: Ávöxtur, afgangur af mjólk og fituskammti.
Ég er sprungt!
Dagurinn í dag er einnig mjög merkilegur fyrir leikskólabörn og foreldra hér á stað því klukkan hálf tíu í morgun fóru börnin í skrúðgöngu á nýjan leikskóla - loksins, hér er hægt að sjá frétt um atburðinn. Einnig er þetta stór dagur því sjálfur forsetinn er væntanlegur og börnin eru mjög spennt yfir því og það var heilmikið mál í morgun þegar væntanleg heimsókn var rædd hvort frú Dorrit kæmi og þá líka hundurinn.....?
Æfingaáætlun 22. feb til 18. apríl
| 8 vikna æfingaáætlun 22. feb til 18. apríl 2009 | |||
| Vika 1 - 22. Feb | Æfing | Km | Athugasemdir um æfingu |
| Sunnudagur | Róleg ganga/skokk | 4,5 | |
| Mánudagur | Spinning | Ca 60 mín | |
| Þriðjudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Miðvikudagur | Hvíld | ||
| Fimmtudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Föstudagur | Hvíld | ||
| Laugardagur | Róleg ganga/skokk | 4,5 | |
| Samtals | 9,0 | ||
| Vika 2 - 1.mars | Æfing | Km | Athugasemdir um æfingu |
| Sunnudagur | Róleg ganga/skokk | 4,5 | |
| Mánudagur | Spinning | Ca 60 mín | |
| Þriðjudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Miðvikudagur | Hvíld | ||
| Fimmtudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Föstudagur | Hvíld | ||
| Laugardagur | Róleg ganga/skokk | 4,5 | |
| Samtals | 9,0 | ||
| Vika 3 - 8.mars | Æfing | Km | Athugasemdir um æfingu |
| Sunnudagur | Róleg ganga/skokk | 5,0 | |
| Mánudagur | Spinning | Ca 60 mín | |
| Þriðjudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Miðvikudagur | Hvíld | ||
| Fimmtudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Föstudagur | Hvíld | ||
| Laugardagur | Róleg ganga/skokk | 4,5 | |
| Samtals | 9,5 | ||
| Vika 4 - 15.mars | Æfing | Km | Athugasemdir um æfingu |
| Sunnudagur | Róleg ganga/skokk | 5,5 | |
| Mánudagur | Spinning | Ca 60 mín | |
| Þriðjudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Miðvikudagur | Hvíld | ||
| Fimmtudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Föstudagur | Hvíld | ||
| Laugardagur | Róleg ganga/skokk | 4,5 | |
| Samtals | 10,0 | ||
| Vika 5 - 22.mars | Æfing | Km | Athugasemdir um æfingu |
| Sunnudagur | Róleg ganga/skokk | 6,0 | |
| Mánudagur | Spinning | Ca 60 mín | |
| Þriðjudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Miðvikudagur | Hvíld | ||
| Fimmtudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Föstudagur | Hvíld | ||
| Laugardagur | Róleg ganga/skokk | 4,5 | |
| Samtals | 10,5 | ||
| Vika 6 - 29.mars | Æfing | Km | Athugasemdir um æfingu |
| Sunnudagur | Róleg ganga/skokk | 6,5 | |
| Mánudagur | Spinning | Ca 60 mín | |
| Þriðjudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Miðvikudagur | Hvíld | ||
| Fimmtudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Föstudagur | Hvíld | ||
| Laugardagur | Róleg ganga/skokk | 4,5 | |
| Samtals | 11,0 | ||
| Vika 7 - 5.apríl | Æfing | Km | Athugasemdir um æfingu |
| Sunnudagur | Róleg ganga/skokk | 7,0 | |
| Mánudagur | Spinning | Ca 60 mín | |
| Þriðjudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Miðvikudagur | Hvíld | ||
| Fimmtudagur | M/R/L | Ca. 55 mín | |
| Föstudagur | Hvíld | ||
| Laugardagur | Róleg ganga/skokk | 4,5 | |
| Samtals | 11,5 | ||
| Vika 8 - 12.apríl | Æfing | Km | Athugasemdir um æfingu |
| Sunnudagur | Róleg ganga/skokk | 10,0 | |
| Mánudagur | Spinning | Ca 60 mín | |
| Þriðjudagur | Róleg ganga/skokk | 4,5 | |
| Miðvikudagur | Hvíld | ||
| Fimmtudagur | Róleg ganga/skokk | 4,5 | |
| Föstudagur | Hvíld | ||
| Laugardagur | Róleg ganga/skokk | 4,5 | |
| Samtals | 23,5 | ||
Endalausar syndir
Á morgun verður hins vegar erfiður dagur, sprengidagur með öllu sem honum fylgir. Samkvæmt venju förum við í saltkjöt og baunir til Ingu og Kela í hádeginu og það verða örugglega bollur í desert!
Spinning í kvöld, M/R/L á morgun og þá koma einnig inn nýjar tölur.
Þriðjudagsplan:
Mm: Cherios, fjörmjólk, banani
10-kaffi: Appelsína
Hm: Saltkjöt og baunir, kartöflur og rófur
Km: Grænmeti og ostur
Matarplan laugar-sunnu- og mánudags
Mm: Kex og camembert, sulta, epli, kaffi.
Hm: Grænmeti og fiskur.
Km: Gúllaspottréttur og grænmeti.
Afgangs ávextir, fituskammtur og mjólk hér og þar yfir daginn.
Sunnudagur:
Mm: Kex, camembert, sulta, epli og kaffi.
Hm: Grænmeti og egg.
Km: Grænmeti og fiskur.
Afgangs ávextir, fituskammtur og mjólk hér og þar yfir daginn.
Ætla að byrja á 8 vikna hreyfingaráætlun sem ég er búin að hanna.
Mánudagur:
Mm: Brauð og ostur, banani.
10 kaffi: Appelsína.
Hm: Grænmeti og túnfiskur.
Km: Skyr og grænmeti.
Afgangs ávextir, fituskammtur og mjólk hér og þar yfir daginn.
Helgi framundan.....
Ég var spurð að því í fyrradag hvað ég ætlaði að gera í tilefni af afmæli mínu, ég sagði að ef það væri fimmtudagur færi ég á pöbbinn og fengi mér einn öllara en þar sem það væri miðvikudagur þá væri ég bara í rólegheitunum heima. Mér var þá bent á að ég gæti alveg farið á pöbbinn þó ég ætti ekki afmæli, þannig að það varð úr að milli 10 og 11 í gærkvöldi komu nokkrar konur til mín og við fengum okkur Mojito og röltum síðan á barinn til að fá okkur einn öl. Þetta var mjög gaman, frábært hvað allir voru glaðir, engin leiðindi og krakkarnir "mínir" (nemendur mínir) voru svo frábær, þarna dönsuðu þau út í eitt og Þórunni varð það á orði hvort danskennsla í grunnskólum landsins væri farin að skila sér. Einn dansfimur nemandi bauð mér (gömlu konunni) upp í dans og ég get svo svarið það að ég hef aldrei á ævinni dansað við svona góðan dansara!
Jæja læt þetta duga í bili, þarf að sinna vinnunni, seinnipartinn er Borgarnesferð með drengina í badminton og helgarinnkaup - það á að gera pizzu í kvöldmat - endalaus gleði

Set inn helgarmatseðilinn í kvöld eða á morgun, góðar stundir þangað til.
Hver verður 20 þúsundasti gesturinn??????
Matseðlar tveggja daga
Mm: Kornfleks, fjörmjólk, banani.
10-kaffi: Appelsína.
Hm: Egg, skinka, majo, grænmeti, brauð.
Síðdegi: Ávöxtur.
Km: Hakk og grænmeti.
Föstudagsmatseðillinn:
Mm: Brauð, ostur, kotasæla, 1/2 banani.
10-kaffi: Appelsína.
Hm: Fiskur og grænmeti.
Km: Ostur og grænmeti.
Skýrsla vikunnar

Mataræðið í gær var í góðum farvegi en ég býst ekki við eins góðu í dag:
Mm: Kornfleks, fjörmjólk og appelsína
10 kaffi: Brauðtertuflís
Hm: Kjúklingasalat
Síðdegi: Brauðtertu og eplakökuflís
Km: óákveðið
Kvöldhressing: Brauðtertuflís
Í dag er ég 35 ára, merkilegt hvað tíminn flýgur, mér finnst ég hafi verið tvítug í fyrra! Maður yngist ekki heldur eldist maður sem betur fer en ég hef tekið þann pól í hæðina að vera ekki að sökkva mér í þunglyndi yfir aldrinum. Það er nefnilega ekki hollt, maður á að þakka fyrir að hafa þó fengið að lifa þetta og í þokkabót á maður góðan mann og tvo hrausta syni. Já, lífið er gott
og munið að maður uppsker eins og maður sáir til að öðlast gæfu þarf maður að vinna jarðveginn.Njótið lífsins.
Fjórða boðorð gæfunnar og þriðjudagsplanið
Það að skapa gæfulegar aðstæður felur ekki einungis í sér að hugsa um eigin hag.
Skapir þú aðstæður sem einnig gagnast öðrum verður gæfan þér hliðholl.
Þriðjudagurinn hljómar svona: Fara með ÞLH á leikskólann, kenna, vinna, göngutúr í hádeginu, meiri vinna, í Borgó að versla, fundur, elda mat (reyndar ekki flókið), fara í leikfimi, gera miðvikudagsplan....hm og örugglega eitthvað fleira sem ekki tekur því að nefna.
Matarlega hljómar þetta svona:
Mm: Brauð með osti, 1/2 banani
10 kaffi: Appelsína
Hm: Túnfiskur, 1 egg, majo, kex og grænmeti
Síðdegi: Appelsína
Km: Kjúklingur í fersku grænmetisbeði
Kvöldhressing: Ávöxtur og afgangur af mjólkurskammt
Haukur var á námskeiði í dag í bænum og verður reyndar líka á morgun. Það varð því ekkert úr spinningtíma hjá mér í kvöld á meðan Stefán Snær var á æfingu í Borgarnesi því Þóður Logi varð að fljóta með. Við skelltum okkur hins vegar í sund sem var aldeilis ljómandi. Núna er að komast ró á alla, held ég fari bara snemma í rúmið í kvöld, ó sei sei.
Vantar fyrirsögn!!
Ég hef ekki verið að standa mig í að gefa skýrslu hér um matarmál, í heila þrjá daga!!! Föstudagurinn fór svona og svona en hefði eflaust getað verið verri, gærdagurinn var alveg ljómandi en dagurinn í dag er í hálfgerðu rugli. Batnandi mönnum er best að lifa stendur einhversstaðar og hef ég það að leiðarljósi þegar þetta er skrifað. Enda er það þýðingarlítið að velta sér upp úr því sem er búið og gert, heldur á maður að nota orkuna til að vera jákvæður og horfa fram á veginn og þó ég hafi farið útaf sporinu um helgina þá ætla ég ekki að slá öllu upp í kæruleysi og sukka enn meira en það er einmitt vandamálið svo ótrúlega oft. Þarna vil ég meina að ég sé búin að temja hugann.
Svo ég gefi upp í hverju sukkið fólst þá var það kvöldmaturinn á föstudag, hammari og franskar - laugardagsmaturinn var nú okey þar til klukkan var orðinn kvöldmatur, ég fékk mér ekki nægt grænmeti og vigtaði ekki, auk þess fékk ég mér nokkra nammimola og tvö glös af krækiberjavíni en okkur hafði verið boðið í mat þá um kvöldið. Dagurinn í dag var fínn í morgun, síðan fengum við þrjár fjölskyldur í heimsókn en haldin var bjúgnaveisla (heimagerð bjúgu) í hádeginu með uppstúf, grænum baunum og rauðkáli - ég vigtaði ekki. Það sem eftir var af deginum hef ég einungis borðað ávexti og mjólk en það stendur með manni að borða svona kraftmikla máltíð fyrripart dags......ég einfaldlega hef ekki löngun í að borða mat.
Morgundagurinn lítur svona út:
Mm: Ristað brauð, kotasæla, sulta og 1/2 banani.
10 kaffi: Appelsína
Hm: Túnfisksalat, grænmeti og hrökkbrauð.
Síðdegi: 1/2 banani
Km: Soðin ýsa og grænmeti
Kvöldhressing: Ávöxtur og afgangur af mjólkurskammti.
Næsta boðorð gæfunnar kemur annað kvöld. Góðar stundir.
föstudagsplan - dagur tvö á fræðaþingi á morgun
Þá er það morgundagurinn matarlega séð:
Mm: Ristað brauð, kotasæla, sulta og banani.
Hm: Út að borða á einhvern grænmetisstað sem Björk Harðar veit um (man ekki nafnið á honum)
Km: Kjúklingur og grænmeti
Ávextir, mjólk og fita hér og þar yfir daginn.
Þriðja boðorð gæfunnar
Hafir þú ekki heppnina með þér gæti ástæðan verið sú að kringumstæðurnar væru þær sömu og þær hafa alltaf verið.
Til þess að öðlast gæfu er nauðsynlegt að skapa nýjar aðstæður.
Þarf að fara að gera mig klára fyrir leikfimina.....
Njótið dagsins.
Fimmtudagsáætlun
Matardagurinn 12. feb lítur þá svona út:
Mm: Cherios, fjörmjólk, banani.
Hm: Grænmeti og ????
Síðdegishressing: appelsína
Km: Grænmeti og skyr
Kvöldhressing: Afgangur af mjólk, ávöxtur og fituskammtur.
Annað boðorð gæfunnar
Margir vilja njóta hamingju í lífinu
en fáir ákveða að leita hennar.
Góðar stundir.
Samantekt vikunnar
Ég vigtaði mig áðan og get ekki annað en verið ánægð, á fimm vikum hafa 2 kíló farið.
Það er reyndar nokkuð ljóst að það að ég skrifi hér inn hvað ég ætla að borða hvern dag er að virka og ætla ég að halda því áfram. Fyrir utan hvað það er gott fyrir mig þá er þetta gott fyrir alla fjölskylduna, það er þá á hreinu hvað á að vera í matinn hvern dag.
Varðandi gærdaginn þá gafst ekki tími til að elda kjöt og fékk ég mér því skyr í kvöldmat, ásamt grænmeti (að sjálfsögðu).
Vikan leit þá svona út ef ég fer yfir stóru flokkana:
3 x kjöt
1 x kjúklingur
6 x fiskur
4 x egg
6 x ostaflokkur 1 (75 gr)
2 x ostaflokkur 2 (25 gr)
3 x morgunkorn
Þá er það miðvikudagsplanið:
Mm: Cherios, fjörmjólk og 1/2 banani
10-kaffi: Appelsína
Hm: Túnfiskur, léttmajo, hrökkbrauð og grænmeti
Síðdegi: Appelsína
Km: Soðin ýsa og grænmeti
Kvöldhressing: 1/2 banani og fjörmjólk
Svona í lokin vil ég vitna í bók sem ég hef verið að glugga í en hún heitir "Þú ert þinnar gæfusmiður" eftir Alex Rovira og Fernando Trías De Bes, þar stendur:
Fyrsta boðorð gæfunnar
Þú færð engu ráðið um tilviljanakennda heppni. Þess vegna endist hún stutt.
Sanna gæfu skapar maður sér sjálfur. Þess vegna varir hún að eilífu.
Læt þetta duga í bili og gangi ykkur vel.
Þriðjudagsmatseðill
10-kaffi: Appelsína
Hm: Skyr og grænmeti
Shr: Ávöxtur
Km: Hakk og grænmeti
Kvhr: Appelsína, fituskammtur og afgangur af fjörmjólk
"Kyrrseta frystir líkama og sál"
Textinn hér fyrir neðan er fenginn af vefnum femin.is
Mannslíkaminn er hannaður fyrir hreyfingu en bregst að sama skapi illa við mikilli kyrrsetu. Öll hreyfing er betri en engin hreyfing en almennar ráðleggingar miða við að fullorðnir hreyfi sig rösklega í minnst 30 mínútur samtals daglega og börn hreyfi sig í minnst 60 mínútur daglega.
Með hreyfingu smyrjum við liðamót og losum um andlega og líkamlega spennu. Við færum líkamanum súrefni og næringarefni og losum hann við úrgangsefni. Með tímanum styrkjast bein og vöðvar og hjarta- og æðakerfið verður afkastameira. Allt þetta stuðlar að því að við höfum meiri orku og styrk til að takast á við verkefni daglegs lífs og til að gera það sem okkur finnst skemmtilegt. Algengir fylgifiskar langvarandi kyrrsetu eru hins vegar stirðleiki, kraftleysi, verkir og vanlíðan ásamt því að líkurnar á ýmsum sjúkdómum aukast til muna.
Þetta er nefnilega málið, ég finn það vel núna þegar ég hef lítið getað farið út að hreyfa mig vegna kvefs og hósta að mér líður ekki eins vel og venjulega,. bæði andlega og líkamlega og ég held að hreyfingin sé þarna stóra málið.
Ef þið viljið lesa þessa grein í heild þá er hún hér
Svo í blálokin - ALLIR ÚT AÐ HREYFA SIG - 30 MÍNÚTUR Á DAG 
Mánudagsmatseðill
Mm: Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani.
10 kaffi: Appelsína.
Hm: 40-60 gr Túnfiskur + 1 egg, léttmajo, hrökkbrauð og grænmeti.
Síðdegishressing: Epli.
Km: Kjöt í einhverju formi + grænmeti.
Kvöldhressing: Appelsína og afgangur af mjólkur- og fituskammti.
Laugardagurinn og smá uppfærsla
Hm: Grænmeti, 40 gr túnfiskur+egg og brauð
Síðdegishressing: Kanilepli með sýrðum
Km: Karrýþorskur, grjón og grænmeti.
Mjólk og ávöxtur í kvöldhressingu.
Smá uppfærsla klukkan 17:15 - Var að tala við Ingu Dóru og bauð hún okkur í mat í kvöld, kjúkling. Þannig að karrýþorskurinn verður þá bara á morgun.
Sunnudagsplanið lítur svona út:
Mm: Kex, camembert, epli
Hm: Eggjakaka og grænmeti
Km: Karrýþorskur, grjón og grænmeti
Ávextir, mjólk og fita hér og þar yfir daginn
Föstudagsmatseðill


Dagurinn í dag.
Mm: Cherios, fjörmjólk, banani.
10 kaffi: Appelsína.
Hm: Út að borða með Fak-írum í Landnámssetrið - allt í hófi, ég lofa.
Síðdegishressing: Melóna
Km: Hakkbuff og grænmeti
Kvöldhressing: Afgangur af fitu og mjólkurskammti.
Helgin framundan er lítið plönuð annað en að Haukur verður upptekin á morgun þannig að við mæðginin verðum í rólegheitum heima. Stefnan er svo að taka göngutúr á sunnudag - hele familien

Stóð við stóru orðin í dag
Á morgun lítur þetta svona út:
Mm: Brauð, kotasæla, sulta, banani
10-kaffi: Appelsína
Hm: Grænmetissúpa og ýsa (afgangur frá því í kvöld)
Síðdegi: Epli eða melóna
Km: Grænmetisbaka + meira grænmeti og egg
Kvöldhressing: Fjörmjólk og fituskammtur.
Annars er allt í þessu fína, saumóinn í gær heppnaðist vel, leikfimin var auðvitað snilld og bíð ég spennt eftir næsta tíma sem er á morgun.
Enginn léttingur og nú skulum við berjast!!!

Takk fyrir ráðið Rakel, ég veit að þetta virkar
- kannski komin þarna skýringin á þyngdarmissisleysinu!!!Ég er öll að koma til, hef verið í rólegheitunum heima síðan á hádegi í gær fyrir utan kennslu í morgun en núna er Þórður Logi kominn með hita og hósta....ó já febrúar er kominn í öllu sínu veldi!
Saumó hjá mér í kvöld og það sem verður í boði er: blaðlauksbaka a-la danski, heitur réttur með aspas og svoleiðis "gamaldags" síðan verður heit ídýfa og doritos, melóna og sýnishorn af gulrótarköku..... en áður en klúbburinn er fer ég í leikfimi!!! ó jeeeeee
Á morgun ætla ég að borða:
Mm: Ristað brauð með kotasælu og 1/2 banana
Millibiti: Appelsína
Hm: 80-120 gr rækjurog léttmajo + 300 gr grænmetissúpa + brauðsneið
Síðdegishressing: Melóna
Km: Soðin ýsa og grænmeti
Kvöldhressing: Fjörmjólk+appelsína
....og þá er að standa við stóru orðin!!! En ég ætla að skirfa hér inn í eina viku það sem ég borða þannig að það má segja að framundan sé bloggvika ógurleg tileinkuð þeim "danska"
Slappleiki
Jæja, verð að halda mér að verki, eigið góða vinnuviku kæru félagar
