vetrarblíða
29. janúar 2009 klukkan 13:12
Þvílík og önnur eins vetrarblíða, það var alveg frábært að taka hádegisrölt með labbakútafélaginu í þessari blíðu. Mjöll yfir öllu, kalt, stillt og glampandi sól
Vigtun og smá fréttir af okkur
28. janúar 2009 klukkan 10:09
Jæja, það var formleg vigtun í gær. Hún kom ekki nógu vel út hjá mér, þyngdaraukning uppá 600 gr sem eru nú reyndar engin ósköp þegar tekið er tillit þess að ég fór á þorrablót um helgina með tilheyrandi mataræði og guðaveigum. Ég ætla mér að vera búin að ná þessum 600 grömmum burt aftur í næstu viku og ég veit að það tekst
Fyrir utan það að mataræði er komið í réttar skorður þá er ég að hreyfa mig þó nokkuð í hverri viku. Við göngum hér lítinn hring í flestum hádegishléum, ég fer í leikfimi tvisvar í viku s.k. magi/rass/læri-leikfimi auk þess hef ég farið í tvo langa göngutúra síðan um helgi - en skokkið er ekki dottið inn enn en það verður gerð bót á því þegar fram líða stundir.
Þessa dagana er þrálátur hósti að gera útaf við mig - hélt í gær að ég væri með hita en ég var að kenna og fann allt í einu að kaldur sviti spratt fram á ennið á mér....en mér finnst ég samt ekki vera neitt veik....skrítið.
Fjölskyldan er í góðum gír, núna snýst allt um þá ákvörðun okkar að flytja út fyrir landsteinana en þetta var ákvörðun sem við tókum s.l. sumar. Þetta byrjaði allt þegar mér var boði starf í öðrum landsfjórðungi en það hefði þýtt flutningur með öllu tilheyrandi og þ.a.l. væru allar pælingar um framhaldsnám komnar í salt. Við hugsuðum um þetta og ákáðum að nú skildum við gera alvöru úr því sem stefnan hefur alltaf verið sett á - að flytja út og ég færi í mastersnám. Við gerðum þetta ekki opinbert fyrr en núna nýlega en erum búin að vinna ákveðna undirbúningsvinnu en ég er búin að fá jákvæð viðbrögð frá skólanum sem ég sæki um í þannig að nú er ekkert annað að gera en að einhenda sér í þetta.
Það má eiginlega segja að efnahagskreppan og allt sem henni hefur fylgt hafi svo styrkt okkur í því að láta vaða en framundan er 20-30% niðurskurður í vinnunni minni og bara fínt að ég yfirgefi "pleisið"!
Við ákváðum að gera tilraun til að selja húsið en það kemur bara í ljós hvort eitthvað gerist í þeim málum.
Námið sem ég stefni á er master í skógfræði við UMB í Noregi en staðsetningin er Ås sem er rétt sunnan við Osló.
Þá vitið þið það kæru félagar
Fyrir utan það að mataræði er komið í réttar skorður þá er ég að hreyfa mig þó nokkuð í hverri viku. Við göngum hér lítinn hring í flestum hádegishléum, ég fer í leikfimi tvisvar í viku s.k. magi/rass/læri-leikfimi auk þess hef ég farið í tvo langa göngutúra síðan um helgi - en skokkið er ekki dottið inn enn en það verður gerð bót á því þegar fram líða stundir. Þessa dagana er þrálátur hósti að gera útaf við mig - hélt í gær að ég væri með hita en ég var að kenna og fann allt í einu að kaldur sviti spratt fram á ennið á mér....en mér finnst ég samt ekki vera neitt veik....skrítið.
Fjölskyldan er í góðum gír, núna snýst allt um þá ákvörðun okkar að flytja út fyrir landsteinana en þetta var ákvörðun sem við tókum s.l. sumar. Þetta byrjaði allt þegar mér var boði starf í öðrum landsfjórðungi en það hefði þýtt flutningur með öllu tilheyrandi og þ.a.l. væru allar pælingar um framhaldsnám komnar í salt. Við hugsuðum um þetta og ákáðum að nú skildum við gera alvöru úr því sem stefnan hefur alltaf verið sett á - að flytja út og ég færi í mastersnám. Við gerðum þetta ekki opinbert fyrr en núna nýlega en erum búin að vinna ákveðna undirbúningsvinnu en ég er búin að fá jákvæð viðbrögð frá skólanum sem ég sæki um í þannig að nú er ekkert annað að gera en að einhenda sér í þetta.
Það má eiginlega segja að efnahagskreppan og allt sem henni hefur fylgt hafi svo styrkt okkur í því að láta vaða en framundan er 20-30% niðurskurður í vinnunni minni og bara fínt að ég yfirgefi "pleisið"!
Við ákváðum að gera tilraun til að selja húsið en það kemur bara í ljós hvort eitthvað gerist í þeim málum.
Námið sem ég stefni á er master í skógfræði við UMB í Noregi en staðsetningin er Ås sem er rétt sunnan við Osló.
Þá vitið þið það kæru félagar
Íbúð til sölu......
26. janúar 2009 klukkan 15:51
Jæja, þá er húseignin komin á sölu...... sjá hér
Ástæðan er ekki blankheit né hjónaskilnaður!!!! Nei, nú er Sigga Júlla á leið í nám í útlöndum og hananú!

Hjálp!!!
26. janúar 2009 klukkan 10:58
Er haldin óstjórnlegum verkkvíða - hjálp óskast!!!
Er annars sátt við helgina - þorrablótið var ljómandi fínt - við tókum heilmikið til á heimilinu og er bílskúrinn ferlega fínn - Þórður Logi stundaði hestamennsku um helgina og Stefán Snær hafði það gott með Pétri Frey og Ragnari Magna. Mataræði og hreyfing er í góðum málum og bíð ég spennt eftir nýjustu tölum á morgun
Jæja best ég reyni að fara að koma mér að verki, verð að reyna að komast yfir ákveðinn "þröskuld".
Njótið dagsins og vikunnar sem framundan er

Til hamingju með daginn bændur...
23. janúar 2009 klukkan 11:41
Bóndadagurinn í dag, þorrablót á morgun - þarf eitthvað að segja meira?
Góða helgi
Góða helgi
þriðji hluti í spennusögunni ógurlegu
22. janúar 2009 klukkan 09:28
Á mánudag bloggaði ég aðeins um litla átakið mitt en ég sagðist ekki gera ráð fyrir neinum sigrum á vigtinni þessa vikuna en það gerðist jú, 400 gr kvöddu þessa vikuna þannig að á tveimur vikum hafa 1,4 kg. kvatt.
Það stendur allt til bóta varðandi hreyfingu því á þriðjudag fór ég í fyrsta tímann minn í magi/rass/læri en ég ætla að taka í það minnsta eitt svoleiðis námskeið núna á meðan mesta skammdegið gengur yfir og veðráttan er ekki til þess fallin að hægt sé að treysta á útiíþróttaiðkun. Enda er það nauðsynlegt að fara í svona leikfimi til að styrkja sig
þannig að þriðjudagar og fimmtudagar eru leikfimidagar.
Það er kominn fimmtudagur, bóndadagur er á morgun sem þýðir að þorrinn er að byrja og við erum að fara á þorrablót á laugardag - allt í hófi en ég mun smakka á öllu sem mig langar í af hlaðborðinu
Það stendur allt til bóta varðandi hreyfingu því á þriðjudag fór ég í fyrsta tímann minn í magi/rass/læri en ég ætla að taka í það minnsta eitt svoleiðis námskeið núna á meðan mesta skammdegið gengur yfir og veðráttan er ekki til þess fallin að hægt sé að treysta á útiíþróttaiðkun. Enda er það nauðsynlegt að fara í svona leikfimi til að styrkja sig
þannig að þriðjudagar og fimmtudagar eru leikfimidagar.Það er kominn fimmtudagur, bóndadagur er á morgun sem þýðir að þorrinn er að byrja og við erum að fara á þorrablót á laugardag - allt í hófi en ég mun smakka á öllu sem mig langar í af hlaðborðinu

Uppskrift
20. janúar 2009 klukkan 13:32
Verð að segja ykkur hvað ég borðaði í hádeginu.
1 ristuð brauðsneið og ofan á hana setti ég 80 gr. af reyktum silung.
Dressing: ca 1/2 dós sýrður rjómi, 2-3 tsk saxaður rauðlaukur, 2 tsk capers - hrært saman og sett yfir silunginn.
Með þessu borðaði ég salat, mmmmmmm.

mánudagur enn á ný :)
19. janúar 2009 klukkan 08:01
Hef nú ekki verið nógu samviskusöm síðustu daga og geri því ekki ráð fyrir neinum sigrum í vigtuninni á morgun.
Hins vegar gerðum við fjölskyldan svolítið uppbyggjandi í gær, við brunuðum upp í Skorradal með heitt súkkulaði á brúsa og snúða og röltum einn hring í trjásafninu, síðan gengum við smá spöl meðfram vatninu. Þetta var mjög hressandi og mæli ég með svona gæða-stund (e. quality time) Þetta kostar ekki mikla peninga og tíminn sem fer í þetta getur verið breytilegur.
Jæja, best að fara að gera eitthvað, kennsluundirbúningur og greinarskrif eru verkefni vikunnar.
smá uppfærsla.....
Við réðumst á bílskúrinn í gær. Losuðum okkur við fullt af dóti sem safnast hefur upp í þar undanfarin ár....eða síðastliðin fimm og hálft ár. Þarna voru kassar utan af jólaseríum og gömlum símum sem við höfum ekkert að gera við, brotnir hlutir sem einhverntíman átti að gera við, úrsérgengin föt, gamlar glósur og margt margt fleira. Það sem liggur núna fyrir er að við Stefán Snær förum í gegn um kassana hans sem eru fullir af allskonar dóti en eitthvað á að fara í plastkassa og geymast þar til Þórður Logi stækkar upp í það en það er eins og playmodót í tonnavís, víkingaskip, kastali og fleira, lego - einnig í tonnavís og forláta bílabraut. Annað dót verður farið með á leikskólann eða gefið þeim sem vilja hirða. Ég sé fyrir mér að það þurfi ekki að kaupa dót handa Þórði Loga í framtíðinni þar sem það er nóg til - en lego og playmo er dót sem eldist sérlega vel.
Þegar ég pakkaði niður jólaskrautinu um daginn tók ég einnig vel til í því en við áttum helling af drasli sem hafði verið keypt í upphafi búskapar okkar í RL búðinni og fékk það að fjúka. Okkur hefur nefnilega áskotnast í gegnum árin fullt af íslensku handverki sem við kjósum að skreyta með í stað innfluttra plastkúlna sem heilla okkur lítið.
Jæja, látum þetta tiltektarblogg duga í bili

1868 var það....
16. janúar 2009 klukkan 11:25
Vatnsberi: Hvers konar rannsóknarvinna liggur vel fyrir þér í dag. Gleymdu því ekki að tvær hliðar eru á öllum málum og oft þarf lítið til að skapa misskilning.
Það var einmitt málið í morgun, kannski frekar ómerkilegt fyrir venjulegan lesanda en virkilega mikilvægt fyrir áhugafólk um hnignun íslensku skóganna. Ég var semsagt að undirbúa kennslu og fór að reyna að rifja upp í morgun hvernig þetta hafi verið með skoska ljáinn. Skoski ljárinn olli byltingu á Íslandi á seinnihluta nítjándu aldar en hann þurfti ekki að dengja líkt og gert var við aðra ljái. Sem þýddi að þörf fyrir viðarkol minnkaði sem þýddi að kolagerð minnkaði til muna og ágangi á birkiskóga landsins minnkaði líka.....birkið var notað í kolagerð. Það sem ég var að spá hvort Ólafsdalsljárinn hafi verið gerður að skoskri fyrirmynd eða var skoski ljárinn alltaf kallaður Ólafsdalsljárinn....jú það var þannig og hann var fyrst fluttur inn árið 1868. Það sem ruglaði mig var tengingin við Ólafsdal en það var Torfi í Ólafsdal sem flutti hann inn...sko ljáinn. Það munaði semsagt litlu að þarna færi smá misskilningur í gang, var þetta einn og sami ljárinn eða ekki, það var málið.
Já, ég veit, skrítið að blogga um þetta.....en annars er allt gott að frétta. Það gekk vel með bekkinn hans Stefáns í gær en ég bakaði 8 pizzur sem kláruðust að mestu, auk þess voru þambaðir ótrúlega margir lítrar af gosi og fullt af snakkpokum voru etnir upp til agna. Já, það er ótrúlegt hvað 15 stykki úr 7. bekk geta torgað. Eftir að allir voru farnir, ég búin að ganga frá og ryksuga og skúra stofu, eldhús, hol og gang var klukkan að verða hálf ellefu, þá fór ég út í ferska loftið í afmæliskaffi til Þórunnar Eddu - fínn endir á góðum degi.
Helgin fer að einhverju leyti í vinnu og auðvitað samveru með fjölskyldunni. Stefán Snær er að fara að keppa á móti á morgun þannig að við Þórður Logi verðum ein heim, ætli við förum ekki út að renna ef veðrið verður til friðs. Sjáum til. Góða helgi

Stjörnuspá dagsins vakti athygli mína......
14. janúar 2009 klukkan 15:53
Vatnsberi: Það er erfitt að sætta tvo valkosti þegar þér finnst þú ekkert val hafa í raun. Reynið samt að draga réttar ályktanir af hlutunum, hvað sem á dynur og þá eruð þið á grænni grein.
Afmæli og spennusagan ógurlega
14. janúar 2009 klukkan 08:28
Í dag er Stefán Snær þrettán ára. Vá hvað tíminn líður. Við vöktum hann í morgun með afmælispakka og var ekki laust við að yngri drengurinn hafi verið afbrýðissamur. Stefán Snær var mjög ánægður með pakkann en í honum var ipod hátalari.
Það átti að vera fundur í skólanum seinnipartinn í dag en við ákváðum því að það yrði bekkjarpartý eftir skóla á morgun í staðinn. Þau eru 15 í bekknum, þannig að það verður nóg að gera hjá mér að baka pizzur í tonnatali, því það er ekkert smá sem krakkar á þessum aldri geta gúffað í sig. Svo á að horfa á mynd og borða fullt af snakki......
Að öðru. Í gær var vigtunardagur en þá hafði ég verið búin að taka þann "danska" með trompi í viku. Merkilegt hvað þetta er að virka vel en ég missti eitt kíló á þessari viku en markmiðið er að losna við 5 kg fyrir 17. mars n.k. Auk þess hef ég verið að hreyfa mig eitthvað nánast daglega þó ég hafi ekki verið að gera neitt stórfenglegt, bara að ganga í og úr vinnu, hádegisgöngur með fólkinu sem vinnur í sama húsi og ég og svo einn og einn langur göngutúr. Stefnan er að fara á hlaupabretti nokkrum sinnum í viku því nú verð ég að fara að þjálfa lungun upp því með vorinu ætlum við Haukur að þramma á nokkur fjöll.
Jæja en svona lítur þetta út á tickernum.

†
12. janúar 2009 klukkan 14:28
Mér er orðavant. Kennari, samstarfsmaður og nágranni Sverrir Heiðar lést aðfaranótt mánudagsins 12. janúar eftir stutta en harða baráttu við krabbamein. Aðeins 41 árs, faðir tveggja unglinga þeirra Birgis og Álfheiðar og maðurinn hennar Emmu. Sumt fær maður aldrei skilið. Búið er að stofna minningarsíðu á Facebook og bendi ég öllum sem til þekkja á hana.
Jæja
11. janúar 2009 klukkan 16:33
Nú er helgin að styttast í annan endann og best að athuga hvort ég hafi áorkað einhverju af því sem ég talaði um á föstudag.... jú við fórum í matarboð, ég tók til og þvoði þvott, hreyfði mig, fengum gesti, fórum í eina heimsókn, skelltum okkur í sund og hjálpaði Stefáni að baka eina sort. Til að toppa helgina (eða hitt þó) þá varð eitthvað lítið um svefn síðustu nótt en Þórður Logi kastaði upp tvisvar og leið ekki vel, hann var reyndar mjög brattur strax í morgun og er búin að borða þannig að þetta hefur gengið hratt yfir. Þvottavélin fékk því extra mikið að gera í nótt og morgun og ég ætla bara rétt að vona að lúsin fari ekki að skjóta upp kollinum - því þá brennur vélin yfir - það væri alveg til að toppa helgina. Við höfum ekki orðið vör við hana blessaða en kamburinn er við hliðina á tannburstanum og kembing er hltui af daglegu rútínunni en það hefur verið barátta við þetta óféti á leikskólanum undanfarnar vikur.
Jæja best að hætta þessu tuði, hér verður fiskur í kvöldmat mmmmm og styttist í að ég fari að undirbúa hann til eldunar.
p.s. ef fólk á Hvanneyri les þetta þá var ég beðin um að láta vita að Edda Þorvalds getur tekið við jólatrjám ef fólk er ekki búið að gera aðrar ráðstafanir
hafið bara samband við hana.

föstudagsblogg
09. janúar 2009 klukkan 13:33
Jæja, þá er vinnuvikan senn á enda, ótrúlegt alveg hvað ég hef verið virk í blogginu undanfarið. Við ætlum að borða mat með góðum vinum í kvöld, þeim Guðrúnu og Gísla og Páli, Inga Dóra verður fjarri góðu gamni en við hin ætlum að slaka á eftir vinnuvikuna. Drengirnir fá að koma með að hitta félagana í nesinu, þannig að það verður fjölskyldustemming í kvöld. Svo er það helgin - ætli henni verði ekki bara varið heima fyrir í tiltekt og kannski gestamóttöku ef einhver kíkir við....ja hver veit
Kannski ég baki eitthvað því það styttist í að eldri drengurinn verði 13 ára! Púff hann er að vaxa frá mér....... Jú og svo fer maður auðvitað í göngutúr - fer ekkert að klikka á því eftir þokkalega viku hreyfingarlega séð.
p.s. Þórður Logi hitti háls-nef- og eyrnalækni í gær og það gekk bara vel, allt í góðu með drenginn - hann er ekki heyrnalaus heldur er haldinn genatískum háværum róm og nennir ekki að nota suma stafi....
Kannski ég baki eitthvað því það styttist í að eldri drengurinn verði 13 ára! Púff hann er að vaxa frá mér....... Jú og svo fer maður auðvitað í göngutúr - fer ekkert að klikka á því eftir þokkalega viku hreyfingarlega séð.p.s. Þórður Logi hitti háls-nef- og eyrnalækni í gær og það gekk bara vel, allt í góðu með drenginn - hann er ekki heyrnalaus heldur er haldinn genatískum háværum róm og nennir ekki að nota suma stafi....
í annarbyrjun
08. janúar 2009 klukkan 14:30
Vá, hvað þetta er fallegur dagur, ansi hlýtt úti og eiginlega logn.
Fjarnemarnir voru hér í dag og átti ég klukkutíma með þeim fyrir hádegið, fórum yfir skipulag annarinnar og þ.h. Eftir helgi koma svo staðnemarnir og þá mun ég verða með í kennslustundum tvisvar í viku fram á vorið. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða, mér finnst svo stutt síðan ég var að kynnast hópnum sem ég kenndi í fyrra, svo útskrifuðust þau og eru núna út um allt en flest eru þau nú reyndar vinir mínir á Facebook
þannig að ég get fylgst með þeim.
Fékk greinina mína frá meðhöfundinum núna rétt í þessu þannig að verkefnin eru næg næstu vikur - kennsla, greinarskrif og einhver skráningarvinna.
Allt gengur annars bara vel, jólaskrautið komið í kassa, matarboð og tiltekt um helgina, bara gleði. Hlakka líka til að skrifa "part two" í spennusögunni ógurlegu en það verður ekki fyrr en í næstu viku.
Fjarnemarnir voru hér í dag og átti ég klukkutíma með þeim fyrir hádegið, fórum yfir skipulag annarinnar og þ.h. Eftir helgi koma svo staðnemarnir og þá mun ég verða með í kennslustundum tvisvar í viku fram á vorið. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða, mér finnst svo stutt síðan ég var að kynnast hópnum sem ég kenndi í fyrra, svo útskrifuðust þau og eru núna út um allt en flest eru þau nú reyndar vinir mínir á Facebook
þannig að ég get fylgst með þeim.Fékk greinina mína frá meðhöfundinum núna rétt í þessu þannig að verkefnin eru næg næstu vikur - kennsla, greinarskrif og einhver skráningarvinna.
Allt gengur annars bara vel, jólaskrautið komið í kassa, matarboð og tiltekt um helgina, bara gleði. Hlakka líka til að skrifa "part two" í spennusögunni ógurlegu en það verður ekki fyrr en í næstu viku.
brennukaffi og saumó í gær....
07. janúar 2009 klukkan 09:12
Eins og vanalega þegar ég byrja í aðhaldi þá er Inga (hans Kela) búin að bjóða mér í mat eða kaffi.....það klikkaði ekki því hún bauð okkur í heitt súkkulaði og smákökur eftir brennu í gær!!! Já og svo var líka saumó í gær þannig að ég sparaði allt brauð, stóran hluta af mjólkurskammti og tvo ávexti, fékk mér grænmetissúpu og fisk í hádeginu og grænmeti áður en ég fór á brennuna og svo krossaði ég bara puttana og reyndi að standa mig og það gekk allt upp. Nema hvað að auðvitað svaf ég yfir mig þannig að ég fór ekkert út að hreyfa mig í morgun grrrrr!
Spennusagan ógurlega "part one"!
06. janúar 2009 klukkan 09:15
Jæja, þá er komið að því - nú verða hvorki fleiri né færri en 5 kíló að fara og það sem fyrst! Ég set mér þó raunhæft markmið og er ætlunin að losa sig við þau fyrir 17. mars en þangað til eru 10 vikur en það gera 500 gr á viku sem verða að fara. Þetta verður ekkert mál og er það mataræðið seem er þarna lykilatriðið en eins og áður þá er sá "danski" hafður til hliðsjónar, hann hentar mér alltaf best
Skellti inn ticker á undirsíðuna "Tölur 2009 - ekki fyrir viðkvæma" Þannig að það ætti að vera auiðvelt að fylgjast með þessu myndrænt. Vigtunin fór fram seinnipartinn í gær en í framtíðinni verða þriðjudagsseinnipartar vigtunardagar og þá er bara að fylgjast með......spennó
Einn, tveir og tíu.

mánudagur til.......gleði!!!
05. janúar 2009 klukkan 15:11
Jæja, góðir hálsar. Mikið óskaplega er eitthvað erfitt að sitja í vinnunni á mánudegi og HEIL vinnuvika framundan!
Þá er bara að setja hausinn undir sig og vinna sig í gegn um vikuna - það er víst alveg nóg af allskonar verkefnum.
Árið fer vel af stað, allir með ný heit og er fólkið hér í húsinu engin undantekning, tekið var upp á þeim sið sem við viðhéldum hér um árið að fara út í hádeginu og ganga 1,5 km. Húrra fyrir okkur!!!....og ykkur sem horfið fram á veginn með bros á vör
hjálpumst öll að ...jejejeje!!!!

hjálpumst öll að ...jejejeje!!!!Gleðilegt ár kæru vinir
02. janúar 2009 klukkan 09:52
Jæja, þá er árið 2009 gengið í garð, enn ein áramótin og maður alltaf jafn hissa á því hve tíminn líður.
Við höfðum það alveg ljómandi gott yfir hátíðirnar en erum rútínunni fegin. Framundan eru annasamir mánuðir en auk vinnunnar minnar hjá Vesturlandsskógum ætla ég að kenna einn áfanga í bændadeild og þá bæði í staðnámi og fjarnámi. Haukur hefur alltaf nóg að gera í sinni vinnu og sama á við um strákana, litlar breytingar þar fyrir utan að leikskólatíminn hjá Þórði mun styttast um korter frá 1. apríl vegna niðurskurðar hjá Borgarbyggð.
Stefán Snær æfir badminton sömuleiðis Haukur en að auki er hann í ellismellafótbolta
Samkvæmt tímaplaninu þá eru það fimmtudagar og laugardagar sem þeir eru báðir heima, þ.e. eru ekki á æfingum. Ég verð ekki í neitt skipulögðum íþróttatímum heldur mun reyna að fara sem mest á morgnana í einhverskonar hreyfingu skokk-spinning-göngutúrar, það er tími sem hentar mér vel auk þess kemst ég ekki á öðrum tíma og ekki er ég að taka þennan tíma frá einhverju öðru.
Annars ætla ég að vona að stjörnuspáin mín í dag komi til með að vera nokkuð lýsandi fyrir þetta ár, ekki bara daginn í dag:
Vatnsberi: Þú hefur mikla löngun til þess að víkka út heim þinn og læra nýja hluti. Hugsun þín er skynsöm, raunsæ, íhaldssöm og rökföst.
Við höfðum það alveg ljómandi gott yfir hátíðirnar en erum rútínunni fegin. Framundan eru annasamir mánuðir en auk vinnunnar minnar hjá Vesturlandsskógum ætla ég að kenna einn áfanga í bændadeild og þá bæði í staðnámi og fjarnámi. Haukur hefur alltaf nóg að gera í sinni vinnu og sama á við um strákana, litlar breytingar þar fyrir utan að leikskólatíminn hjá Þórði mun styttast um korter frá 1. apríl vegna niðurskurðar hjá Borgarbyggð.
Stefán Snær æfir badminton sömuleiðis Haukur en að auki er hann í ellismellafótbolta
Samkvæmt tímaplaninu þá eru það fimmtudagar og laugardagar sem þeir eru báðir heima, þ.e. eru ekki á æfingum. Ég verð ekki í neitt skipulögðum íþróttatímum heldur mun reyna að fara sem mest á morgnana í einhverskonar hreyfingu skokk-spinning-göngutúrar, það er tími sem hentar mér vel auk þess kemst ég ekki á öðrum tíma og ekki er ég að taka þennan tíma frá einhverju öðru. Annars ætla ég að vona að stjörnuspáin mín í dag komi til með að vera nokkuð lýsandi fyrir þetta ár, ekki bara daginn í dag: