Vigtin, maturinn og handavinnan
Takk fyrir kommentin. Jú, jú, það er vissulega verið að auglýsa námskeið hjá vigtarráðgjöfunum en það var líka gert í haust og í fyrra en lítil sem enginn áhugi var á því - þannig að aldrei hefur neitt orðið úr neinu. Ég hef hins vegar engar áhyggjur því ég veit alveg hvernig ég geri þetta og þarf ekki að eyða 15-20 þúsund krónum fyrir átta vikna aðhald.... nei, nei, nei, ég nota frekar þessar 15-20 þúsund krónur í eitthvað annað t.d. að styrkja björgunarsveitirnar
Markmiðið er semagt að taka 5 kíló af fyrir 15. mars en það gera u.þ.b. 500 grömm á viku sem ætti nú að reynast létt verk. Auk þess stefni ég á að styðja við bakið á nokkrum vinkonum sem ætla að taka þessi mál í sínar hendur og breyta um lífsstíl á nýju ári - það verður gaman

Matarblogg:
Ég fór í Borgarnes í gær og keypti kalkún og efni í fyllingu en fylling ársins verður sú sama og í fyrra en hún tókst svo ljómandi vel: laukur, sveppir, sellerí, skinka, heslihnetur og eitthvað fleira - sósan er heldur ekki af verri endanum púrtvínssósa. Allt þetta er a la Gummi (mágur) og Silla (systir). Meðlætið er svo waldorfsalat og sætar kartöflur - þarf eiginlega ekki að vera neitt meira

Handavinnublogg:
Í gær byrjaði ég á léttlopavesti, það verður kolsvart með skærum, skræpóttum litum í munstrinu, ferlega flott. Svo er ætlunin að prjóna sjal Maríu prinsessu á næsta ári en í uppskriftinni er talað um að nota ullargarn svona barnaull t.d. lanett eða dale en ég er að spá í að nota loðband í sjalið.
Smá hugleiðing:
Annar hver maður á þessu blessaða landi hér talar um "rest" segir gleðilega jólarest!!! Eða gleðilega rest!!! Þetta fer í taugarnar á mér - bara svo þið vitið af því....... Það er alveg hægt að segja bara gleðilega hátíð, hvað er að því? Af hverju að troða þessari "rest" aftan við? OG þetta virðist ekki vera eitthvað sem fylgir ákveðnum aldri að tala svona heldur fólk á öllum aldri, nú síðast í morgun hitti ég mann á sextugs eða sjötugsaldri (svolítið ellilegur) sem er í virðulegri stöðu fyrir "sunnan" og hans sagði "gleðilega rest"!
Hálfleikur
Við fjölskyldan höfðum það alveg ljómandi fínt yfir jólin, allt var þetta hefðbundið: Möndlugrautur í hádeginu á aðfangadag, Sigríðarsúpa og lamb í jólamatinn, kvöldkaffi í Garði - og á jóladag afgangar í hádeginu og hangikjötsveisla í góðum hópi um kvöldið. Á annan í jólum brunuðum við norður í Skagafjörðinn þar sem við þræddum jólaboð og komum svo heim í gær.
Framundan er tveggja daga vinnutörn og svo koma áramótin. Það stendur til að endurtaka leikinn frá í fyrra og elda kalkún sem verður etinn í góðra vina hópi.
Miðað við hvað nálin á vigtinni hefur stigið undanfarna daga og vikur þá held ég að það verði ekkert erfitt að finna áramótaheit
Hafið það sem best kæru lesendur, ég ætla að gera mitt besta
Gleðileg jól
Gleðileg jól
helgin framundan
Þá er þessari vinnuviku lokið, aðeins tveir vinnudagar í næstu viku og þá er kominn aðfangadagur, svo verða tveir vinnudagar og þá er kominn gamlársdagur. Púff hvað tíminn líður. Ég vonast til að greinin sem ég er að skrifa verði í megindráttum tilbúin fyrir áramót, þá er bara vinna við fíniseringu og yfirlestur og smá viðbót frá öðrum höfundi eftir og þá er hún tilbúin. Ég geri ráð fyrir að hafa mánuð í þá vinnu en "deadline" á greinina er 1. feb.
Annars er bara allt gott að frétta, súpuboðið fyrir vinnufélagana heppnaðist vel - skemmtileg samverustund það.
Verkefni helgarinnar, það þarf að:
Baka (bara smá)
Þrífa (létt)
Höggva jólatré í Daníelslundi
Taka á móti gestum (en Kolla mágkona, börnin hennar og tengdó ætla að kíkja við á morgun)
Fara á tónleika með Bubba Morthens í Borgarnesi
Mánudagur: Vinna og smákökukaffi á kaffistofunni í 10 kaffinu (allir koma með sýnishorn)
Blogga aftur eftir helgi
Njótið jólaundirbúningsins
Endalaus gleði...
Varðandi jólakortin þá liggur við að ég sleppi þeim í ár - er bara ekki að nenna þessu!!
Var að leika mér í jólaföndri í gærkvöldi en það þýðir ekki annað en að hafa gaman af þessu.......já, endalaus gleði.
17. desember 2008
Þennan dag árið 1920 fæddist amma mín Guðfinna Sigríður Jónsdóttir, amma Sigga. Hún hefði semsagt orðið 88 ára í dag. Ætli við byrjum ekki að baka í tilefni dagsins
og sjóðum okkur fisk í kvöldmatinn.
Annars erum við ansi slök, eigum eftir að senda frá okkur jólakortin og jú baka kannski eins og 2-3 sortir. Búið er að búa til eða kaupa allar gjafir nema handa Þórði Loga. Svo er bara að versla í matinn og kaupa jólatré, þrífa og skreyta - nei ég er sko ekkert stressuð!
Fór í stafgöngu í morgun 
Vatnsberi: Hver kunningi sem þú eignast reynir á félagsfærnina. Tilfinningar þínar láta þér líða vel og hugsa um lífið á jákvæðan hátt.
Það er einmitt það sem ég geri, reyni að finna jákvæðar hliðar á öllum málum og horfi á mótbyr sem tækifæri. Við vorum nefnilega að fá að vita að fjárvetingar til stofnunarinnar dragast saman um 20%.......jebbs.
helgin að baki
Helgin fór annars að mestu í að gera heimilið jólalegt, kláruðum að setja upp seríur, úti og inni og svo fengum við gesti og þetta var allt voðöa gaman.
Fór í stafagöngu í morgun

Ég er sprungt!!!!
Í 10- kaffinu í morgun bauð Dísa upp á afganga þ.e. osta og rjómatertu!!!
Það er eins gott að ég fari að hreyfa mig mikið!!! Svo verð ég að fara að fikra mig inná að vera 100% dönsk - þetta gengur ekki lengur!
Einn ljós punktur..... ég er hætt að borða nammi

Af mbl.is í dag:
Vatnsberi: Þótt þú sért félagslyndur þarftu að gefa þér tíma til að vera einn með sjálfum þér. Andaðu rólega, tíminn vinnur með þér.
Nákvæmlega - enda er samfélagsþjónusut desembermánaðar lokið.
Af hreyfingu, föndri og dagurinn í dag....
Í gærmorgun fór ég á fætur fyrir allar aldir og fór út í stafgöngu með henni Sollu. Planið er að fara út með henni þrjá morgna í viku og ganga en skokka á hlaupabretti tvisvar í viku. Laugardagar eða sunnudagar verða þá notaðir til að fara út að skokka. Ég er semsagt búin að endurskoða hreyfingaráætlun mína eftir að hafa legið undir feldi nær allan nóvember. Ég er bara ekki að höndla svona mikla pressu og skokka langt fjórum sinnum í viku, Semsagt stafganga þrisvar í viku í ca 30 mín. Skokk á hlaupabretti tvisvar í viku í 20-30 mín. Útiskokk einu sinni í viku 4,5 km.
Af jólagjafagerð:
Í gærkveldi dundaði ég mér við að búa til jólagjafir.....Þórunn H, Solla og Berglind komu og föndruðu með mér. Ég stefni á að klára jólagjafirnar á morgun og get því pakkað inn og sent pakkana norður með mömmu og pabba á laugardag eða sunnudag.
Dagurinn í dag:
Það eru LITLU JÓL hér í húsnu í dag, starfsmenn allra stofnanana hér hittast í hádeginu og borða saman jólamat og skiptast á pökkum. Ég held að ef allt er talið þá séu um 40 manns sem vinna að einhverju leiti hér en það verða um 30 sem ætla að vera með í dag

Í kvöld verður jólaföndur hjá kvenfélaginu

Muhaaaaaaa
Allir að hlusta....
Helgin afstaðin
Við vorum með matarklúbbsboð á laugardagskvöldið og það mættu allir, frábært alveg

Í gærmorgun fórum við Þórður Logi á leikskólann í jólaföndur hjá foreldrafélaginu, það var alveg ljómandi fínt. Eftir hádegið fórum við öll fjölskyldan á jólamarkað í Gallerý Álfhól á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði, skoðuðum ýmsa handgerða muni, fengum okkur heitt súkkulaði og köku og hlustuðum á Steinar Berg lesa uppúr Tryggaðatrölli.
Enduðum svo í kaffi og smákökum hjá Ingu Dóru og Palla

Stjörnuspá dagsins, tekin af mbl.is er ekki amaleg:
Vatnsberi: Það er gott að eiga fund með góðum vinum. Fólk kann að meta hversu hratt þú hugsar og þegar þú beitir þér, spararðu peninga fyrir þig og fyrirtækið.
jólastemming um helgina
Vinna, þrífa húsið, halda áfram að búa til jólagjafir......

Laugardagur:
Setja upp jólaseríur, út að skokka, undirbúa matarklúbb

Sunnudagur:
Jólaföndur á leikskólanum, út að skokka og jóla-jóla-jólast heima

Alla dagana:
Halda áfram að lesa bókina Sér grefur gröf
p.s. hlakka mikið til að hitta matarklúbbsmeðlimi

þá kom löggumann...... og við vorum að spá í að hordast
Ég: Hvað er það ? ...en fattaði svo að sögnin að hordast kemur af nafninu "Haarde"!!!! Það sem hann átti semsagt við var hvort við ættum nokkuð að gera neitt í dag.
Þetta er sennilega rétt honum miðað við stjörnuspá dagsins af mbl.is:
Vatnsberi: Hlustaðu á ráð frá þér eldri og reyndari manneskju í dag. En málið er að taka bara einn hlut fyrir í einu.
Annars var saumó í gær hjá Önnu Lísu, það vildi svo skemmtilega til að við fengum lögreglufylgd heim - löggan keyrði semsagt á eftir okkur alla leið en stoppaði okkur ekki, voru greinilega að tékka á bílnum eða eitthvað því þegar við komum á Hvanneyri fóru þeir aðra leið inn á staðinn og biðu svo á biðskyldu við hringtorgið....svolítið fyndið. Við vorum að spá í hvað við ættum að gera til að þeir stoppuðu okkur, hefðum t.d. geta hent ullarkembum út um gluggann eða rásað til á veginum en nei ákváðum að vera ekkert með svoleiðis stæla....horduðumst semsagt eins og löggan!
Sparnaðarráð dagsins
Hlakka til að sjá þig.Í morgun var á einni útvarpsstöðinni liður sem hét sparnaðarráð. Ég sperrti upp eyrun og hélt að hér væri stóri sannleikur á ferð..... og hvert haldið þið að sparnaðarráðið hafi verið??? Hættið að kaupa pakkaskraut, þess í stað kaupið þið appelsínur og þurrkið þær og bindið utan á pakkana.....sé ekki í fljótu bragði sparnaðinn, þar sem appelsínurnar kosta og einnig rafmagnið svo ég tala nú ekki um mengunina ...því það fer slatta mikið eldsneyti í að flytja appelsínurnar hingað með tilheyrandi útblæstri svokallaðra gróðurhúsalofttegunda....og þetta er kallað SPARNAÐUR! Ég hefði haldið að það hefði verið allt eins hægt að sleppa pakkaskrautinu því þetta fer allt saman í ruslið. EÐA að gera eins og Berglind vinkona mín og stórfrænka þ.e. að klippa út jólamyndir úr öllum auglýsingabæklingunum sem flæða inn um bréfalúguna hjá manni og líma utan á pakkana....fínt skraut það og svo tala nú ekki um að það geta allir í familíunni tekið þátt

Þetta var sem sagt SPARNAÐARRÁÐ DAGSINS í boði Berglindar en ekki ónefndrar útvarpsstöðvar.......
Meira af jólagjöfum....
Hausverkurinn var enn viðloðandi í morgun og var svo hræðilegur að ég treysti mér ekki í vinnuna, er því búin að sofa í allan morgun og er nú á leiði í heitt bað en mér líður mun betur og vona að þetta sé bara frá. Þannig að kannski rennur á mig jólagjafaæði í kvöld
og ég kemst í vinnu á morgun
Já vonandi, því ég veit ekkert leiðinlegra en að vera veik.Til hamingju með 90 ára afmæli fullveldisins!