Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

tilraun

29. nóvember 2008 klukkan 16:33
Í dag gerði ég tilraun til að búa til jólagjöf, ansi hreint sniðuga en það kemur í ljós á morgun hvort hún hafi heppnast! Ef þetta er að virka þá næ ég vonandi að búa til allar jólagjafirnar í ár Wink

ekkert laufabrauð um helgina....

28. nóvember 2008 klukkan 09:05
Nú er langþráður föstudagurinn 28. nóv runnin upp. Seinnipartinn í dag var meiningin að renna af stað norður í laufabrauðsgerð en það verður ekkert af því vegna þess að stóri strákurinn minn er kominn með hita. Hann hringdi í mig þegar hann kom úr skólanum í gær og sagðist halda að hann væri að verða lasinn - sem reyndist rétt, drengurinn var með 39°hita. Þannig að helgin veðrur eitthvað öðruvísi en stefnt var að og ætli við reynum ekki bara að dunda okkur við jólaföndur og jólagjafagerð um helgina.
Held við gerum því góða ferð norður um jólin í staðin......

smá video

27. nóvember 2008 klukkan 11:07
Flest er nú til, fékk þetta sent í morgun.

Er hætt að pirrast.

Við röðuðum saman bingóvinningum í gær og í kvöld verður blessað bingóið. Allir að mæta Wink fullt af flottum vinningum t.d. hótelgisting, sumarbústaður eina helgi, nudd, jólatré, út að borða, hangikjöt, ostakarfa, konfekt, snyrtivörur, jólaskraut, bækur, dvd, cd og fullt, fullt meira......


Hér er líka svolítið fyndið af mbl.is:
Vatnsberi: Þú getur ekki skipulagt tíma þinn án þess að reikna með öðrum fjölskyldumeðlimum. Já, það er skrýtið að vera fullorðinn og enn að pæla í hvað maður vill verða.
Tongue out hehehe jú svona er lífið Wink

Pirringur í gangi!

26. nóvember 2008 klukkan 13:14
Núna eru akkúrat 51 klukkutími þar til ég get lagt af stað í heimahagana, ég hlakka til!!!
Núna er ég í þeim gír að ég læt allt fara í pirrurnar á mér en mjög margir hafa lagt sitt á vogarskálarnar til að pirra mig undanfarna daga svo það verður fínt að komast burt - þó það sé ekki nema ein helgi.
Ég ætla nú samt að þakka þeim sem hafa sýnt mér nærgætni því það er ekki ykkur að kenna að  ég er pirruð, það eru bara allir hinir!
Taki þeir til sín sem eiga og ekki orð um það meir.

Mamma við erum á leiðinni.......

mánudagur til mæðu

24. nóvember 2008 klukkan 11:53
nei, nei engin mæða hér, það gengur ekki. Ég er búin að búa til 2 af 18 jólagjöfum, jeijjjj. Næstu tvær til þrjár vikurnar verða öll kvöld nýtt til gjafagerðar.... og ekki veitir af! Hef afskaplega lítinn tíma til hreyfingar en það eru helst morgnarnir sem eru lausir hjá mér og verð ég að nýta þá sem best. Bakstur verður í minna lagi í ár, sörur, piparjúnkur og auðvitað laufabrauð. Annars verður bara nóg til af ís en það er alltaf vinsælt.
Í gær var haldið upp á sjötíu ára afmæli Skógræktarfélagsins, það fór allt saman vel, nóg var að borða handa veislugestum en plássið var ekki eins mikið þ.e. salurinn. Annars gengur bingóundirbúningur vel þ.e. það sem snýr að mér en mikið verð ég fegin þegar þetta er búið.

félagsmálablogg

21. nóvember 2008 klukkan 13:29

Næsta sunnudag verður haldið uppá sjötíu ára afmæli skógræktarfélags Borgarfjarðar, sem stjórnarmanneskja í því félagi hef ég komið að undirbúningi þessa atburðar. Veislukaffi, erindi, ræða og heiðranir.

Á fimmtudagskvöldið næsta verður svo bingó kvenfélagsins og ég er í bingónefnd og er að safna vinningum þessa dagana.

Þegar þessir tveir atburðir eru afstaðnir verð ég voða glöð Embarassed

Lánin hrúgast inn.....

20. nóvember 2008 klukkan 11:18
Þá erum við búin að fá lán - næsti kafli er að hefjast - við þurfum að borga lánið og svo er sagt að það verði hér djúp kreppa 2009-2010..... er það ekki svolítið stutt? Ég held að hún verði nú eitthvað lengur en það - eða er það ekki? Það er reyndar talað um að þegar innlendir og erlendir aðilar hafi öðlast trú á hagkerfinu þá muni eftirspurn, neysla, fjárfesting aukast hratt árið 2011 (heimild Mogginn) en ég held að eftir sem áður verði kreppa hjá okkur......

regnskógablogg og stjörnuspá dagsins

19. nóvember 2008 klukkan 09:59

Heyrði í útvarpinu í morgun að nú væru bresk forvarnaryfirvöld að hefja áróðursherferð gegn kókaín-neyslu og sú aðferð sem þeir ætla að beita er að höfða til umhverfisvitundar fólks en til þess að geta framleitt 1 gramm af kókaíni þarf að ryðja 4,4 fermetra af regnskógi! Og hvað ætli kókaínmarkaðurinn sé stór? Við erum að tala hér um ótrúlega stórt svæði sem er rutt í þessum tilgangi. Ég er búin að vera að leita að þessu á netinu en hef ekkert fundið, ef þið rekist á þetta endilega sendið mér linkinn.

Annars lofar dagurinn góðu, byrjaði á spinningtíma í morgunsárið og svo er það vinna til hálf fimm eða svo.....

Stjörnuspá dagsins af mbl.is:
Vatnsberi: Þú hefur þurft að leggja hart að þér frá árinu 1999. Sýndu nú svolítinn kjark. Gættu þess bara að halda utan um þína nánustu eins og þeir gera um þig.

....og túlkið nú lesendur góðir!

Hreyfingarblogg

18. nóvember 2008 klukkan 09:29
Það er svo magnað þegar maður fær uppbyggjandi komment , þá finnst mér allir vegir vera færir. Takk stelpur.
Nýja prógrammið mitt er semsagt þannig að ég ætla að skokka stóra hringinn (4,5 km) og verða góð í því og taka svo stórt stökk í desember. Desember er langur mánuður og ég mun þá skokka 10 km á gamlársdag. Eins og áður hreyfing minnst fjórum sinnum í viku.

Jeijjjjjj!

17. nóvember 2008 klukkan 08:58
Búin að fela enda og á bara eftir að skola úr, þurrka og pressa SKOKKINN LaughingLaughingLaughing
Næsta mál er að hefjast handa við jólagjafirnar.
Helgin var góð. Ég þreif húsið hátt og lágt, glugga og skápa en á þó eftir að taka skápa og glugga í svefnherbergjum, stefni á að klára það um næstu helgi. Okkur var boðið í mat á laugardagskvöldið, Stefán Snær keppti á A móti í badmintoni og komst í undanúrslit en hann er alltaf að færast ofar á styrkleikalistanum Wink
Sunnudagruinn var letidagur og endaði með kvennfélagshittingi í gærkvöld þar sem konurnar mættu með handavinnuna sína og einhverjar lærðu að hekla jólabjöllur á jólaseríu - bara gaman.
Vikan framundan verður líklega annasöm en ég er í bingónefnd og þarf að fara að biðja um vinninga í verslunum og fyrirtækjum hér og þar. Bingóið verður fimmtudagskvöldið í næstu viku. Síðan erum við að undirbúa afmæli skógræktarfélags Borgarfjarðar en haldið verður upp á það á sunnudaginn næsta.
Hreyfingin er enn í tíunda sæti, ég hef bara ekki tíma til að fara út að skokka og þarf ég að leggjast yfir þetta, greina vandann og drífa mig af stað. Ég sé ekki að ég skokki 10 km í desember með þessu áframhaldi. Ein ástæðan fyrir því að ég fer ekki út að skokka er m.a. að það er svo mikið myrkur alltaf hreint Yell og náttblinda ég er ekki mikið fyrir það að leggja mig í lífshættu í myrkrinu!
Sjáum til hvað ég geri til að finna lausn á þessu.

Skokkurinn er ekki of lítill!!!

14. nóvember 2008 klukkan 11:55
Edda kom í gær og rak mig í að máta skokkinn og hann passar hjúkket! Takk Edda það er þungu fargi af mér létt Laughing Held að þarna sé fyrri hluti stjörnuspárinnar frá í gær að koma fram.
Þannig að nú styttist í að ég klári skokkinn (kannski bara í kvöld) og þá er ekki seinna vænna en að fara að byrja á jólagjöfunum Wink Kannski gerist það á morgun - fer eftir því hvernig heimilisþrifin ganga fyrir sig Smile
Góða helgi!

Kominn tími á stjörnuspártúlkun.....

13. nóvember 2008 klukkan 11:05
Jæja góðu lesendur, nú finnst mér vera kominn tími á að ég skelli inn einni stjörnuspá af mbl.is:

Vatnsberi: Eitthvað á eftir að koma þér svo á óvart að þú munt undrast þín eigin viðbrögð. Finndu allt dót sem þú notar ekki lengur og gefðu það til að styðja gott málefni.

Okey og hvernig á ég að túlka þetta?? Ég verð nú að segja að ég veit fátt eitt skemmtilegra en að mér sé komið á óvart og þess vegna bíð ég spennt og svo er það hitt með viðbrögðin Surprised Seinna atriði sem þarna er nefnt það er með allt dótið sem ég á að losa mig við.....ó já það skal ég sko gera - fer í það um helgina að skúra, skrúbba og bóna og ætli ég muni ekki losa slatta af skápum og já gefa þá í gott málefni.
Þá vitið þið hvernig þið getið látið stjörnuspá stjórna lífi ykkar!!! Laughinghehehe.

Annars er bara allt í góðu hér nema það að ég kem mér ekki af stað í skokkgírinn aftur eftir Danmerkurferðina - ætli það sé ekki ferðaþreytan. Ég er hins vegar búin að setja mér plan, núna frá og með deginum í dag ætla ég að fara út að ganga annan hvern dag og skokka hinn og þá bara hringinn (4,5 km) eftir viku ætti ég að vera komin í gírinn til að halda áfram með áætlunina þ.e.a.s. að auka vegalengdirnar aftur.

Jæja best að halda áfram að gera eitthvað af viti......Kiss

Smitandi skipulagsæði!!!

11. nóvember 2008 klukkan 09:35
Ég var að lesa bloggfærslu hjá Önnu Lísu þar sem hún lýsir því að hún verði að fara að skipuleggja jólaþrifin..... og þá fór ég að hugsa Wink Nóvember er að verða hálfnaður og ég er vön að þrífa allt voða vel í október/nóvember þ.e. taka glugga, skápa og ofna. Mér finnst nefnilega ekki hægt að vera að standa í slíkum þrifum í desember þegar maður á að vera að baka. Þannig að ég verð að setja upp plan og það er að nýta næstu og þarnæstu helgi í að þrífa allt voða vel. Um næstu helgi verður það stofan og eldhúsið og kannski forstofan. Um hina helgina (22.-23) verða það herbergin, baðherbergið og þvottahúsið (enda alltaf á því). Ég ætla nefnilega að vekja athygli ykkar á því að það eru ekki nema rúmlega 2 1/2 vika í fyrsta í aðventu og þá er LAUFABRAUÐSHELGI fyrir norðan Smile

Annars er allt í góðu gengi, í dag er skokkdagur en ég veit ekki hvort ég kemst í að skokka vegna þess að okkur er boðið í afmæli til Brynjars Snæs seinna í dag, drengurinn er sjö ára. Skokkið fær því kannski að bíða til morguns.

Komin heim

10. nóvember 2008 klukkan 13:42

Þá er ég komin heim, það alltaf jafn frábært að koma heim eins og það er nú alltaf gaman að ferðast.
Dagurinn í dag fer nú bara í að aðlagast hinu daglega amstri, fara í búð og þvo þvott. Ég er reyndar svo heppin að tengdamamma var ráðskona heima hjá mér um helgina og allt voða fínt þegar við komum heim. Þórður og Stefán voru mjög glaðir með heimkomuna líka og Stefán mætti með gullpeninga tvo inn til mín snemma í morgun sem hann hafði unnið á badmintonmóti í Keflavík um helgina, sko minn mann Laughing

Stjörnuspáin fær að fljóta hér með:
Vatnsberi: Bjartsýni er til margra hluta nytsamleg og eiginlega dásamlegt fyrirbæri. Nú er spuni meira virði en rannsókn.
Já það er sko satt, hún Pollýanna er alltaf að virka.....Tongue out

Er alveg ad koma heim!!!

09. nóvember 2008 klukkan 15:13

Jæja nu eru bara nokkrir klukkutimar i ad eg og Haukur verdum komin a Foldina føgru. Buin ad gera margt skemmtilegt her i Køben, eiginlega allt sem flestir islendingar gera (held eg). Smørrebrød a Hvidts vinstue, bjor i Nyhavn, Jensen's bøfhus, kaffihus, ristadar møndlur og endalaust labb.... Amalienborg, Kristjansborg, Thorvaldsensafnid, Strikid og margt, margt fleira. Rusinan i pylsuendanum var svo frabaæt gærkvøld med æskuvinkonunni henni Elvu minni en vid forum med henni a pøbba og ut ad borda a frabaeran vietnamskan restaurant sem heitir LeLe og er a Vesterbrogade 40 - mælum med honum.
Frabært fri senn a enda en samt sem adur (sem betur fer) gott ad komast heim!
Vinna a morgun og allt thetta venjulega.
Sjaumst Smile

jæja

04. nóvember 2008 klukkan 18:22
Ta er dagur tvo ad kveldi kominn en to ekki alveg tvi nuna eftir kvoldmat eigum vid eftir ad sitja einn fyrirlestur.....tetta er sko engin luxusferd - svona fyrir utan matinn!!!!
I dag vorum vid mikid a ferdinni, skodudum, litinn framleidanda sem er 75 ara og framleidir um 900 tre a ari og 7 tonn af jolagreinum og hann faer svona af og til hjalp vid framleidsluna um helgar!!! Svo skodudum vid fraleidslu hja einum storum framleidanda og saum m.a. jolatre sem Husasmidjan/Blomaval er buin ad kaupa - mjog falleg tre get eg sagt.
A morgun er brottfor kl 7:45 og ta keyrum vid med nokkrum stoppum til Nødebo tar sem vid gistum sidustu tvaer naeturnar.
Haukur kemur a fostudaginn og vid verdum i Køben fram a sunnudag ad hygge okkur eins og danir segja. Veit ekki hversu audvelt verdur fyrir mig ad komast i tolvu - kannski /kannski ekki blogga eg a morgun.

Danskir dagar!

03. nóvember 2008 klukkan 16:47
Jæja, ta er fyrsti dagur namskeidsins ad kveldi komin. Eg flaug ut i gaer med seinnipartsflugi, sidan tok vid keyrsla og sigling og meiri keyrsla og var madur komin a nattstad rett fyrir eitt eftir midnaetti.
Dagurinn i dag hefur verid einstaklega frodlegur, fyrirlestrar, vettvangferd til bonda og svo her uti. Verd ad vidurkenna ad madur fer ad komast i jolaskap af allri tessari umfjollun um jolatre! Herbergid sem eg er i er fint, maturinn mjog godur og hinir nemendurnir hid skemmtilegasta folk, oll nema ein islensk. Annars eru fyrirlestrarnir på dansk sem er nu bara svolitid treytandi!!!!!! En tetta kemur allt saman. Jæja best ad koma ser i mat og svo skilst mer ad tad eigi ad sitja vid eld i kvold og drekka kaffi.....kannski sma Amarula ut i en eg keypti mer einn pela i Leifsstod (kostadi 999)!! Faranlegt ad taka med ser likjor - eitthvad svipad tvi og ad flytja kaffi til Brasiliu!
Jæja, nu er nog komid - eg sakna ykkar Kiss

Ég er farin....

02. nóvember 2008 klukkan 10:18
Ég er farin til Danmerkur - ætla ekki að lofa bloggi þessa viku sem ég verð í burtu, en sjáum til.......

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.