Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Föstudagsstjörnuspáin

31. október 2008 klukkan 13:13
Vatnsberi: Það er heillaráð að leggja á ráðin um framtíðina. Verkefnið er bara í vinnslu. Reyndu að veita þér það, ef þú getur.
Það er einmitt það sem ég er á fullu að gera þessa stundina! Þið komist að því eftir nokkra mánuði......

Föstudagsblogg

31. október 2008 klukkan 09:50

Við Halla fórum út að skokka í gær, tókum svokallaða fartlek-æfingu þ.e. hlupum á ójöfnu yfirborði sem var m.a. tún með snjóhulu, reiðvegur, malarvegur og hált malbik. Tókum fullt af sprettum inn á milli og skokkuðum líka rólega.
Annars fór gærkvöldið í afslöppum og þessi hefðbundnu heimilisverk.
Í dag er það vinna sem felst aðallega í undirbúningi fyrir næstu viku en ég er að fara til Danmerkur á námskeið, undirbúningurinn flest í að lesa námsefnið. Ég legg af stað á sunnudag og verð á námskeiði til föstudagsins í næstu viku en þá ætlar Haukur að koma út og við hittumst í Köben og verðum þar fram á sunnudagskvöld þegar við fljúgum heim á leið.

Ég þarf einnig að skreppa í bankann á eftir með farmiðann minn til að geta keypt mér nokkrar danskar krónur en sem betur fer er allt fæði innifalið á meðan á námskeiðinu stendur - þannig að ég þarf aðeins að kaupa mat um helgina í Köben Wink

Annars er þetta planið svona fyrir utan vinnutengingu: Kjúlli í kvöld að ósk drengjanna og á morgun neyðist ég til að fara að pakka niður í ferðatösku.

Ég lofa ykkur einu bloggi í viðbót áður en ég fer...... góða helgi! 

Stóđ ekki viđ allt í gćr......

30. október 2008 klukkan 09:40
Ég fór ekki út að skokka og ég gerði ekki árás á þvottafjallið..... en ég slakaði á með drengjunum, fór og verslaði, kíkti í handavinnubúðina, eldaði mat og fór á fund.
 Úti er alveg frábært veður, frost, snjóhula og sólin sendir geisla sína á fjöllin í kring. Það er komið skammdegi, það er farið að rökkva ansi mikið seinnipartinn þegar maður kemur heim en þá er eins gott að maður hafi endurskinsmerki sem virka þegar maður er úti á skokkinu....
Dagurinn í dag lofar góðu, ég ætla út að skokka eftir vinnu í dag og svo er ekkert annað á dagskrá nema að vera heima með fjölskyldunni.

Fundakvöldiđ mikla

29. október 2008 klukkan 15:37
Það er alveg merkilegt hvað mikið er um að vera til dæmis eru þrír fundir í kvöld og ég þyrfti að vera á þeim öllum! Fundurinn sem ég ætla að láta ganga fyrir er kynning á uppbyggingarstefnunni en samkvæmt þeirri stefnu tekur skólastarfið í Grunnskóla Borgarfjarðar mið af. Mjög áhugavert. En áður ætla ég út að ganga eða skokka, elda mat, þvo þvott og slaka aðeins á! Jamm það er alltaf nóg að gera.
Núna ætti ég til dæmis að vera að lesa grein en það gengur ansi hægt en hún er á dönsku jejeje! Ágætur undirbúningur fyrir námskeiðið í næstu viku en ég er að fara til Danmerkur á viku námskeið um ræktun jólatrjáa Laughing og námskeiðið fer fram á dönsku.
Saumóinn fór vel í gær, ég prjónaði slatta. Stefán Snær passaði bróður sinn á meðan en Haukur var á námskeiðinu "úr mínus í plús" þannig að nú er hann komin með öll "trixin" um það hvernig maður getur orðið ríkur og hvar allir peningarnir manns eru....jú sí!
Það er semsagt allt í góðum gír á Túngötunni.

p.s. hugurinn er á fullu og ég er enn ekki að "fíla" skólann!!!!

Allt í góđu!

28. október 2008 klukkan 14:26
Aðgerðin tókst vel og við vorum komin heim á Hvanneyri um klukkan fjögur í gærdag og svaf stubburinn til hálf sjö í gærkv. fór svo aftur að sofa um hálf tíu og svaf til tæplega sjö í morgun. Við erum bara heima í dag en það stefnir í að hann fái að fara á leikskólann á morgun, því hann er mjög HRESS og talar ekki um neitt annað en að fara á leikskólann.

Annars er dagurinn ósköp venjulegur, skokk seinnipartinn, soðin ýsa í kvöldmat og saumó í kvöld.

Ég hef verið að hugleiða skólann minn mikið að undanförnu, ég er ekki alveg sátt.......og er að spá í að hætta.....Undecided....æi.

Ađgerđ á morgun

26. október 2008 klukkan 17:56
Þá er þessi helgi senn á enda. Draumahelgi alveg hreint og þar spilaði veðrið stærstu rulluna, stillt og bjart og snjór yfir öllu.
Á morgun fer Þórður Logi í aðgerð á Barnaspítalanum, það þarf að fjarlægja rás eða n.k. kviðslit. Málið er að í september fór að verða ansi áberandi að annað eistað var orðið stórt, það var farið með litla manninn til læknis og svo í ómun og kom þá í ljós að ekki var um eiginlegt kviðslit að ræða heldur vökvasöfnun. Þessi vökvasöfnun á sér stað í gegn um rás sem liggur úr kviðarholinu niður í pung. Um þessa rás koma eistun niður en umhverfis þau er himnupoki sem á svo að eyðast ásamt þessari rás í kjölfarið á því að eistun ganga niður, það gerðist ekki og því þarf að kippa þessu í liðinn með aðgerð. Hmmmm ekki viss um að ég nái að útsskýra þetta betur en þið hljótið að fatta Wink
 
Þetta er semsagt verkefni morgundagsins en aðgerðin tekur smá stund og við verðum komin heim eftir hádegið og ef allt gengur að óskum þá ætti stubburinn að geta farið á leikskólann á miðvikudag.

Annars er bara allt gott að frétta, prjónaskapurinn gengur vel og það að fara eftir´æfingaáætluninni gengur súper vel, átti ekki von á því að þolið væri svona fljótt að koma eins og raun ber vitni.
Jæja best að fara að kíkja á kjötsúpuna sem mallar í pottinum......Tongue out Eigið góða vinnuviku.

skokkblogg

23. október 2008 klukkan 11:38
Jæja þá er kominn fimmtudagur sem þýðir æfing samkvæmt "planinu" góða, í dag á að ver það sem ég kalla relax með sprettum á milli en það er eiginlega rangnefni. Eiginlega heitir þetta "Fartlek" og á hlaup.is stendur þetta:
  • Fartlek = hraðaleikur þar sem sprettir (ath. aldrei á fullu) eru mislangir (t.d 150-300 m) með mislöngum hvíldum. Undirlag breytilegt (gras, malarstígar, malbik) og t.d. er gott að auka aðeins hraðann í brekkum. Sem sagt frjálst, en rétt að skokka ca. 1,5 km upphitun og 1,5 km í í lokin. Dæmi um hluta úr fartlek æfingu: Hita upp í 1,5 km rólega, hlaupa 200 m á auknum hraða, hlaupa rólega í 30-60 sek, hlaupa 100 m á auknum hraða, hlaupa rólega í 30 sek, hlaupa 300-400 m á auknum hraða, hlaupa rólega í 1-2 mínútur osv.frv.
  • Við ætlum semsagt að taka svona æfingu í dag og verður hún í heildina 3-3,5 km (stutt til að byrja með) við byrjum á upphitun 1,5 km, tökum svo spretti og skokk á ójöfnu yfirborði (tún og skógræktarsvæði) og skokkum okkur niður í restina.

    Ég ætla að elda steinbít í kvöld og svo er danskt kvöld í sjónvarpinu - Trúðurinn og síðan Nynne - spurning um að fá sér einn Tuborg í tilefni þess Wink....hugs hugs, nei annars það verður bara íslenskur bjór!

    Á morgun förum við með litla manninn til sérfræðings á Barnaspítala Hringsins en allar líkur eru á að hann þurfi svo í litla aðgerð á mánudag. Segi ykkur betur frá því um helgina en þetta er ekkert alvarlegt.

    Prjóniprjóniprjóni

    22. október 2008 klukkan 09:01
    Ég er búin með peysuna, kláraði hana í fyrrakvöld og í gær fékk hún tíma til að þorna og í dag skellti ég mér í hana. Ósköp notaleg verð ég að segja.

    Ég byrjaði á næsta prjónastykki í gær en það er skokkur, var reyndar komin af stað þegar ég fattaði að ég var með vitlausa prjónastærð....Yell....svekkjandi! Þannig að ég rakti allt upp og byrjaði aftur Cool

    Það sér fyrir endan á einverunni, ég hef semsagt verið grasekkja í rúma viku og hyllir í að eiginmaðurinn komi heim í dag eða í kvöld Wink

    Enn eitt - og öppdeit

    19. október 2008 klukkan 17:37
    Jæja, þá erum við Halla búnar að endurskoða hlaupaprógrammið okkar en það styttist í 10 km hlaupið sem verður í kring um 20. des og því erum við búnar að gera 8 vikna hlaupaáætlun.
    Í grundvallaratriðum er prógrammið þannig að við hlaupum fjórum sinnum í viku. Við miðum við að fara á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum. Við erum alltaf að lengja hlaupin með hverri viku sem líður og er markmiðið að hlaupa lengri vegalengd á laugardögum og taka svo rólegt hlaup á sunnudeginum. Þriðjudagarnir yrðu þannig að við tækjum fulla vegalengd samkvæmt vikuplani. Fimmtudagarnir værueitthvað rólegri en við myndum spretta inn á milli. Smátt og smátt værum við svo búnar að lengja vegalengdina sem við værum að skokka og er markmiðið að í byrjun des verði vegalengdin komin í 10 km og þá væntanlega væri ganga inn á milli svo færu vikurnar fram að keppni í það að auka hlutfall skokksins........ og þá erum við orðnar keppnisfærarWink

    Smá "öppdeit" til nánari útskýringa:

    vika 43 - 5,5 km sunnudagur rólegur 4,5 km, þriðjudagur 5,5 km, fimmtudagur "relax" með sprettum, laugardagur 5,5 km.

    vika 44 - 6,0 km sunnudagur rólegur 4,5 km, þriðjudagur 6,0 km, fimmtudagur "relax" með sprettum, laugardagur 6,0 km.

    vika 45 - 7,0 km sunnudagur rólegur 4,5 km, þriðjudagur 7,0 km, fimmtudagur "relax" með sprettum, laugardagur 7,0 km.

    vika 46 - 8,0 km sunnudagur rólegur 4,5 km, þriðjudagur 8,0 km, fimmtudagur "relax" með sprettum, laugardagur 8,0 km.

    vika 47 - 9,0 km sunnudagur rólegur 4,5 km, þriðjudagur 9,0 km, fimmtudagur "relax" með sprettum, laugardagur 9,0 km.

    vika 48 - 10 km sunnudagur rólegur 4,5, þriðjudagur 10,0 km, fimmtudagur "relax" með sprettum, laugardagur 10,0 km.

    vikur 49-50-51 fara í að auka "skokkvægið" Verða svipað uppbyggðar og vika 48 ég geri nefnilega ekki ráð fyrir að geta hlaupið svona langt strax....!! EN í viku 51-52 verður svo hlaupið góða Smile Ef ég verð ekki að "meika" þessa áætlun þá breyti ég henni bara.


    Föstudagur enn og aftur

    17. október 2008 klukkan 09:40
    Það er alveg merkilegt hvað tíminn flýgur áfram, það er kominn 17. október! Það er rétt um tveir mánuðir og ein vika til jóla.
    Helgin framundan en ég ætla að undirbúa ritgerðarsmíð, lesa heimildir og eitt og annað. Síðan ætla ég að heimsækja hana Önnu Lísu mína en veikindi hafa bankað uppá hjá manneskju henni nákominni og ekki veitir af stuðningi, knús til þín/ykkar kæra vinkona Kiss 
    Síðan er aldrei að vita nema maður fari í skógarferð með drengina Smile

    Í dag ætlum við hér á skrifstofunni að mæta á meistaraprófsfyrirlestur. Sherry Curl ætlar að fjalla um MS verkefnið sitt "Áætlanagerð og og rekstur íslenskar skóga í þágu útivistar" Þeir sem hafa áhuga á geta hlustað  með því að smella
    hér. Fyrirlesturinn mun hefjast klukkan 14:00 í dag.

    Annars segi ég bara góða helgi kæru vinir!

    Síđasta fćrsla var ekki minn stíll

    16. október 2008 klukkan 11:28
    Síðasta færsla var ekki minn stíll eða allavega ekki fyrri hlutinn.
    Upp með jákvæðnina!!!!!
    Húrra fyrir lífinu!!!!
    Lifum núna, við gerum það ekki þegar við erum dauð!!!!!

    Verð svo að segja það að mér finnst frábært hjá Ferðafélagi Íslands að blása til bjartsýnisgöngu í Esjuhlíðum, spurning um að ég fari í skógarferð í Daníelslund með fjölskylduna......

    Ferðafélag Íslands efnir til fjölskyldu- og bjartsýnisgöngu á sunnudaginn 19.okt kl. 14.00. Þetta verður létt ganga eftir göngustígum upp í hlíðar Esju og verður lagt upp frá bílaplaninu við Mógilsá og síðan verður boðið upp á veitingar þegar komið er aftur niður. Þegar vandi steðjar að er fátt betra en að ganga með fjölskyldunni eða í góðra vina hópi úti í íslenskri náttúru. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir að taka þátt í þessari fjölskyldu- og bjartsýnisgöngu Ferðafélagsins.

    Reyndir fararstjórar verða í göngunni og enginn þarf að fara lengra en hentar hverjum og einum. Göngutíminn er því alveg að vali hvers og eins, allt frá því að rölta upp í skóginn til göngu á fjallið sjálft. Stígarnir neðst upp frá bílaplaninu eru breiðir og sléttir og hverjum fullfrískum manni og börnum færir. Við hvetjum fólk til að klæða sig vel og hafa góða skó á fótum. Veitingarnar verða heitt kakó og bakkelsi og þá gefst tími til að spjalla saman áður en haldið er heim.

    Hittumst full af bjartsýni og baráttuanda við Esjurætur kl. 14.00 á sunnudaginn 19.október.

    Er/Var í kvíđakasti

    15. október 2008 klukkan 14:33
    Ég er í kvíðakasti. PUNKTUR. Fer út eftir 18 daga og verð í viku á námskeiði og var að átta mig á því að íslendingar eru ekki vel séðir úti í hinum stóra heimi. Ég heyrði frásögn af fólki sem er að fara út að borða í Hollandi og þá vindur fólk sér að þeim til að forvitnast hvaða tungumál það sé að tala "Við erum frá Íslandi" segir fólkið upp fullt af stolti og þá segja hollendingarnir "heyrðu við vorum að tapa sparifénu okkar út af ykkur og þið eruð bara úti að borða, skammist ykkar!!!!" Svo er ég búin að lesa allskonar greinar á netinu um það hvað við séum stórhættuleg, algjörir krimmar!
    Mannorð okkar er NÚLL Embarassed

    En þá er líka alveg brilljant að blogga um kvíðann og nú er ég búin að losa um og get farið að brosa framan í lífið. Algjör snilld þetta bloggWink

    Eftir vinnu í dag ætlum við mæðginin í sund og svo til Ingu Dóru í kaffi.

    Knús til ykkar allra

    14. október 2008 klukkan 08:27

    KNÚSVIKAN MIKLA

    Hefur þú knúsað í dag ?

    Knúsum okkur í gegnum ástandið.

    Langaði til þess að segja ykkur frá Knúsvikunni miklu 13. - 20. október 2008.

    Breiðum út boðskapinn - knús í hvert hús - knúsum okkur í gegnum ástandið - hefur þú knúsað í dag ?

    Sjá síðu -  
    www.julli.is/knus.htm

    Í upphafi nýrrar vinnuviku.....

    13. október 2008 klukkan 09:07
    ....þá þykir mér ástæða til að koma með stjörnuspá dagsins í dag af mbl.is:
    Vatnsberi: Þú ert vinalegt afl í heiminum. Þú sérð og finnur hversu jafnar allar manneskjur eru. Þeir sem ógnuðu þér áður eru nú innan seilingar og áhugaverðir.
    Alveg frábærir þarna á mbl hvað stjörnuspáin er alltaf jákvæð þessa dagana......ótúrlegt en ég held að þetta hafi góð áhrif á þjóðarsálina eða allavega þá sem lesa stjörnuspána Wink

    Í gær fórum við Þórður Logi í Háafellsreit í Skorradal og vorum við afhjúpun skiltis en tilefnið var að reiturinn varð 70 ára á þessu ári. Þarna mættu milli 30 og 40 manns og þar á meðal ein kona sem var í gróðursetningunni á sínum tíma. Boðið var upp á flatkökur með hangikjöti, nóa konfekt, kaffi og svala. Þetta var skemmtileg samverustund og það er alveg ótrúlegt hvað það hefur góð áhrif á mann að fara út í skóg hlusta á fuglana og upplifa kyrrðina - lognið!!!!

    Dagurinn í dag er aðeins öðruvísi en hann átti að vera en ég hefði þurft að vera í staðlotu í skólanum mínum en því miður kom ég því ekki við, ástæðurnar eru tvær. Annarsvegar er Haukur farinn suður á land þar sem hann þarf að vinna í nokkra daga og er því ekki til taks á morgnana eða seinnipartinn (vegna drengjanna) og hins vegar er veðrið það gott að ég þarf að klára ýmis "útiverk" í vinnunni. Ég er semsagt á leið út í foldina í dag.

    Ég kláraði fyrsta verkefnið í skólanum í gær, viðtalsverkefni sem ég ætla að segja ykkur lítillega frá í næstu færslu. Síðan er ég búin með búkinn og aðra ermina á peysunni sem ég er að prjóna. Ég ætla út að skokka seinnipartinn í dag eða í kvöld, fer eftir því hvenær Stefán Snær getur passað. Held ég hafi lítið annað að segja í bili. Eigið góðan dag Smile

    Veđurblogg

    11. október 2008 klukkan 15:01
    Þvílík blíða úti! Ég fór út að skokka klukkan hálf níu í morgun - því næst í heita pottinn, íþróttaskólann með hann Þórð, göngutúr og heimsókn til Möggu og svo eru mamma og pabbi væntanleg eftir smá stund.....og dagurinn rétt hálfnaður!
    Á morgun verður vígt skilti á Háafelli í Skorradal í tilefni þess að skógarlundurinn sem þar er varð 70 ára í vor. Semsagt skógardagur á morgun.

    "Kreppu" blogg

    10. október 2008 klukkan 08:55
    Það var talað um það í Kastljósinu í gær að við, íslendingar, værum stödd í eins konar sorgarferli. Við erum enn á afneitunarstiginu en svo ætti eftir að hellast yfir mann vonleysi með öllu því sem því fylgir. Ég get svosem alveg skrifað undir það að sjálfsagt sé fullt af fólki í afneitun og eigi eftir að skella harkalega niður á jörðina, dæmi Korputorgið um síðustu helgi! 
    Það var einnig tekið fram í þessari umræðu að það skiptir rosalega miklu máli að við gleymum engum. Það sem átt er við er að við verðum að hugsa um börnin okkar og gamla fólkið, tala saman, gera eitthvað skemmtilegt saman "eyða" tíma saman (mér hefur alltaf fundist skrítið að nota það orðalag að "eyða" tíma með einhv.). Það þarf ekki að kosta mikið að fara í göngutúr, kaffihús, sund, föndra eitthvað og svona mætti lengi telja. Stefán Snær talar mikið um það að það sé kreppa og hún verði kannski í 15 ár og við verðum olíulaus og hvað gerum við þá....? Hugsið ykkur börnin hafa áhyggjur af framtíðinni. Auðvitað stöndum við frammi fyrir stórum vanda en HALLÓ ekki gleyma því að það er lágmark að börnin sofi - fari ekki yfirum af áhyggjum og stressi.
    Ég hef áhyggjur af öllu því fólki sem er að missa vinnuna og þ.a.l. lendir í erfiðleikum með lánin sín og alla sína afkomu. Nú er eins gott að við stöndum saman og við höfum sýnt það að við íslendingar erum bara ansi góð í því!
    Varð bara að koma þessu frá mér...... ég er í ágætum málum, held vinnunni og get borgað af lánunum mínum en ég/við ætlum að skera ýmislegt niður eins og t.d. jólagjafir, það er hugurinn sem gildir - munið það.
    Svo í lokin ætla ég að segja ykkur að við hér í húsinu erum búin að setja þá reglu að við mætum ekki svartklædd í vinnuna, ef maður er í svörtu þá verður maður að lagfæra það með t.d. trefli eða einhverju í lit. Léttum lundina!

    Heilbrigt líferni og ódýr líkamsrćkt

    09. október 2008 klukkan 09:26
    Nú er ég búin að lesa stjörnuspá dagsins á mbl.is:
    Vatnsberi: Gríptu tækifærið til að æfa þig vel. Endurtekning er leyndarmál velgengni þinnar. Ýttu þér í gegnum þreytu og leiðindi og þú verður meistari!

    Þetta er svolítið merkilegt því ég var að spjalla við eina í gærkvöld sem hefur verið að skokka og hún var að benda mér á að í sambandi við markmiðið mitt að skokka 10 km þann 20.des þá gæti verið heppilegt að finna eitthvert almenningshlaup í kring um þessa dagsetningu til að stefna að. Ég held það sé mjög sniðugt og nú er ég að leita að almenningshlaupi sem væri þá á tímabilinu 15.-31. des. Ef þið vitið um almenningshlaup (nota bene það verður að bjóða upp á vegalengdina 10 km) endilega látið mig vita. Hlaup eru nefnilega mjög sniðug leið til að halda sér í formi, ekki kosta þau neitt extra fyrir utan fatnað og skó en það er búnaður sem maður þarf í öllum íþróttum hvort eð er....... ohhhh hvað ég hlakka til að hlaupa 10 km í desember :)
    Ég gerði svolítð annað í gær, ég fór í gegnum vítamínbirgðir heimilisins og raðaði þeim í pilluboxið mitt og nú ætla ég að vera dugleg að muna eftir þessu. Ekki veitir af á síðustu og verstu tímum. Ég tek semsagt: Kalk,
    cell activator (frá Herbalife), trefjar, zink og ómega fitusýrur (í fljótandi formi). Það þýðir ekkert annað en að nota það sem er til í ísskápnum á þessum síðustu og verstu tímum.

    Smá athugasemd, nýja umsjónarkerfið hjá bloggar.is er ekki alveg að gera sig, næ ekki að vista rétta leturstærð....sorry!

    íslenskt já takk!

    08. október 2008 klukkan 11:38
    Í kaffitímanum í vinnunni áðan fékk ég mér appelsínu eins og ég geri vanalega á hverjum morgni, allt í lagi með það. Nema hvað að í morgun buðu starfsmenn Hagþjónustu landbúnaðarins (sem eru hér til húsa) upp á  konfekt. Ég fékk mér tvo mola bara til stuðnings íslenskri framleiðslu....en svo fór að síga á ógæfuhliðina þegar ég fékk mér þrjá eða fjóra mola í viðbót!.... eða voru þeir kannski fimm...??! AHHH en ég var að styrkja íslenskt en það er alveg bráðnauðsynlegt á krepputímum Glottandi Reyndar er ég bara bjartsýn á framtíðina, getur maður nokkuð annað?

    Smá "update" eftir hádegismatinn.... komst að því rétt í þessu að ég á náfrænda í húsinu, langaafar okkar voru bræður þ.e.a.s. þeir Snælaugur Baldvin og Jón Haraldur Stefánssynir eru forfeður okkar Jóhannesar (sem vinnur hjá Landgræðslunni). Gaman af þessu...... og svo er Berglind sem vinnur hjá BÍ (og er líka með skrifstofu í húsinu) frænka mín, Kristín Ragnheiður langamma mín og Jakob langafi Berglindar voru systkin og þessi Kristín Ragnheiður var gift Snælaugi.....ótrúlega fyndið. 

    slćpst í vinnunni.....og saumó í kvöld

    07. október 2008 klukkan 09:22
    Bloggandinn er ekki alveg yfir mér þessa dagana en ég get sagt ykkur það að ég fór í handavinnuhúsið eftir vinnu í gær og keypti mér Bulky lopa í eins og eina peysu. Æsingurinn var svo mikill að ég byrjaði á strax og stefni á að klára þessa peysu í þessum mánuði Glottandi Hreyfði mig markvisst tvisvar í gær, spinning í gærmorgun og stutt skokk í rokinu í gærkvöld þannig að ég er búin með 3 af 12 skiptum í október (skv. markmiði). Jæja best að vera ekki að slæpast þetta og halda sig að verki. Það er saumó í kvöld.....það er fínt þar sem ég er byrjuð á peysunni - spurning hvort við verðum til tvö eins og síðast......
    Jæja og í lokin langar mig til að fá ykkur til að kvitta fyrir komuna Ullandi

    1 af 12

    05. október 2008 klukkan 13:02
    Loksins komst ég út að hreyfa mig í morgun....... ástæður þess að ég hef ekkert farið fyrr en í morgun í október eru margvíslegar og ætla ég ekki að telja þær upp hér en ég er ekki af baki dottin 1 búið 11 eftir Ullandi
    Við fórum á sauðamessu í gær og allir skemmtu sér vel yfir skemmiatriðum og kjötsúpuáti. Ég dvaldi góða stund við bás handprjónasambandsins en ég þekki eina sem var á þeirra vegum á sauðamessu - mjög áhugavert og skemmtilegt starf hjá þeim og auðvitað keypti ég nýjustu lopaprjónabókina og er búin að ákveða hvað á að gera úrhenni. Við fjölskyldan enduðum svo í kaffi og tertuáti á Þórðargötunni sem fór þannig að Þórður datt og fékk gat á hausinn og enduðum við með hann á heilsugæslustöðinni þar sem einu spori var skellt á hann. Fórum svo eftir það aftur á Þórðargötuna í osta og heita danska kæfu - fínn endir eftir allt saman. Núna er ég á leið upp í Skorradal þar sem ég ætla að taka viðtal við skógarbónda í tengslum við verkefni sem ég er að vinna Glottandi

    Á morgun er vinna, skokk og ferð með IDH og ÁV í handavinnuhúsið........ jebbs!

    p.s. Halla þú spyrð hver sé svona sniðugur að hafa milligöngu um eggjasölu í húsinu, svarið er Jóhannes.

    Föstudagsblogg

    03. október 2008 klukkan 09:56
    Í dag er starfsdagur á leikskólanum og sömuleiðis í grunnskólanum. Ég ætla að nota daginn í ýmislegt, t.d. vinnu, nám, hreyfingu og ekki síst fjölskyldu. Stefán Snær á að mæta hjá lækni á eftir en það er endalaust vesen á einni tánöglinni hans og er svo komið að hann verður að láta taka eins og hálfa nögl af stóru tá, ekki gaman það!
    Sirrý er þrítug í dag og er hún búin að bjóða í veislu í kvöld. Stefán Snær ætlar að passa. Alveg frábært að eiga sína eigin barnapíu Glottandi

    Úti er alhvít jörð, logn og glampandi sól, hiti kl 9 á Hvanneyri -3,6°C aldeilis fínt veður það.

    Á morgun er
    sauðamessa og allir ætla að mæta eða er það ekki?
    Góða helgi allir saman Hlæjandi

    Fjárlög og heilsan

    02. október 2008 klukkan 09:59
    Þá er það ljóst að stofnunin mín er að fá ca 7% hækkun á fjárlögum sem er þó enn og aftur ekki í takt við upphaflegar áætlanir og engan vegin í takt við verðbólguna......en tja svona er þetta nú bara og við bara sníðum okkur stakk eftir vexti hér á bæ. Hægt er að skoða fjárlögin hér ef svo ólíklega vildi til að þið vilduð skoða þau Glottandi

    Að allt allt öðru: Hafið þið einhverja reynslu af því að drekka eplaedik?? Endilega komið með reynslusögur........ég er forvitin.

    Svo í lokin þá vil ég benda ykkur á að þrátt fyrir alla neikvæða umræðu í samfélaginu um peninga og þ.h. þá kemur hún ekki í veg fyrir að við getum hugsað vel um okkur..... lesið þennan pistil hér. 
    "Höldum áfram að hugsa jákvætt um okkur sjálf"

    Landnámshćnueggjablogg

    01. október 2008 klukkan 10:58
    Fattaði nú rétt í þessu að ég gleymdi að taka eitthvað matarkyns uppúr frystikistunni í gærkvöldi en ég held þetta reddist alveg því ég var að fá fyrstu sendingu af landnámshænueggjum. Jamm, nú kaupi ég egg í áskrift beint af húnverskum bónda, um hver mánaðarmót fæ ég semsagt 30 egg og þarf ekki að sækja þau langt því dreifingaraðilinn er með skrifstofu í húsinuGlottandi Held ég hafi gert margt vitlausara um ævina! En þið sjáið það nú, að miðað við danska kúrinn sem ég hef ég hef nú alloft bakvið eyrað þá er talað um 4 egg á viku þannig að þið sjáið það að á einum mánuði ætti ég að borða 16 stk. og fjölskyldan fær þá rest Svalur

    Auglýsing

    Teljari

    • Heimsóknir í dag: ...
    • Ţennan mánuđ: ...
    • Frá upphafi: ...

    Athugiđ

    Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.