Septemberuppgjör
30. september 2008 klukkan 09:19
Ég hreyfði mig markvisst 10 sinnum í september. Það er nú bara vel af sér vikið þannig lagað en markmiðið er að gera enn betur í október og hreyfa mig markvisst minnst 12 sinnum.
Skrítið nú er ekki nema rétt um vika síðan ég byrjaði að skokka og í gær fann ég heilmikinn mun á mér. Vandamálið hjá mér er að ég mæðist svo fljótt en ég finn mun á þessari viku sem er góðs viti. Eins og ég var búin að segja þá er markmiðið að geta skokkað 10 km laugardaginn 20. desember og það skal takast hjá mér.
Mataræðið - það gengur svona allt í lagi, er ekkert að gera neitt öfgakennt, reyni bara að velja það sem er hollt og gott. Þegar ég fer að versla er meira en helmingurinn í körfunni hjá mér grænmeti og ávextir en fjölskyldan hefur tekið við sér í þeirri neyslu svo um munar.
Vigtin - hef ekki séð svoleiðis nýlega og ótrúlegt hvað hún skiptir mig litlu máli núna
Stjörnuspáin er nú bara svona lala og getur átt við ansi marga og þá ekki bara í dag, það er nefnilega þannig að það er með ólíkindum hverju maður getur komið í verk undir álagi:
Vatnsberi: Verkefni sem þú þarf marga daga fyrir, hefur verið troðið á einn dag. Þú þarft að klára það strax og byrja á nýju verki. Það er ótrúlegt hverju þú kemur í verk undir álagi.

yfirlýsing
29. september 2008 klukkan 09:45
Ekki það að stjörnuspár séu eitthvað sem ég láti stjórna lífi mínu en minnug stjörnuspár frá síðasta föstudegi og færslu minnar þá stendur þetta: "Vatnsberi: Aðstæður hafa misst kraftinn. Eitt sinn varstu með eld í maganum, en nú er það ryðgaður mótor sem vill ekki vinna. Meyja er fín til að peppa þig upp.
HMhmhm - verð að benda Hauki mínum á þetta (hann er meyja) - spjalla við hann í kvöldmatnum og bendi honum á stjörnuspána mína".
Málið er að ég fór í naflaskoðum um helgina!!! Tók til í ymsum skúmaskotum og hugsaði út í eitt! Var í svartsýniskasti vegna ástandsins á krónunni, með kvíðahnút yfir því að vera að leika mér í skóla og ætla að minnka við mig vinnu vegna þess. Þannig að ég tók ákvörðun og skrifaði tveimur skólasystrum mínum í framhaldi af því og hér sjáið þið part úr því bréfi:
"Það er alltaf sama sagan með mig, alltaf skal ég vera að ætla mér of mikið!

Nú er það fyrirséð að það gengur ekki alveg upp eins og ég ætlaði þ.e. að minnka við mig vinnu og þ.a.l. er ekki að ganga fyrir mig að vera í 100% vinnu og 20 einingum í skóla. Ég verð bara að vera raunsæ, það er nú bara þannig. Þetta hefur því hvílt ansi þungt á mér síðustu daga og vikur og svo var það í gærkvöldi sem ég tók endanlega ákvörðun um að hægja á mér í náminu. Það er heldur ekkert "möst" fyrir mig að klára þetta nám á þessu kennsluári því ekki er ég að kenna og það hefur lítið að segja fyrir mig að vera eitthvað að klára þetta vinnunnar minnar vegna. -......- Ég veit þið trúið ekki hvað ég er búin að vera að hugsa þetta mikið og ég bara verð að segja ykkur frá þessu því mér finnst ég vera að svíkja ykkur!!! (innskot-við ætluðum að vinna verkefni saman í nóvember)Hins vegar býð ég mig fram ef ykkur vantar einstakling í viðtalsverkefnið: dæmi um fullorðinn námsmann sem hefur nóg á sinni könnu og ætlar sér alltaf um of!
Ég tók semsagt skrefið í morgun og sagði mig úr áfanganum á uglunni."
Þá vitið þið það kæru lesendur!
Þá vitið þið það kæru lesendur!
Klukk
27. september 2008 klukkan 13:04
Ég var klukkuð!!! - og svo klukka ég ykkur öll sem lesið þetta
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Hvanneyri
- Sauðárkrókur
- Akureyri
- Hjaltadalur
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina.
- Kaffihús - afgreiðsla
- Sambýli - umönnun
- Verkamaður í garðyrkju og skógækt
- Ráðgjafi-svæðisstjóri í skógrækt
Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur
- Indiana Jones
- Shrek
- Jörð í Afríku
- Flest allar myndir sem Meryl Streep leikur í
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar
- Klown (Trúðurinn danski)
- Desperate Houswifes
- Allir breskir sakamálaþættir
- Ferðaþættir sem ég man ekkert hvað heita og eru á Discovery channel
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum
- Mjóifjörður (fyrir austan)
- Skosku hálöndin
- Geiranger í Noregi
- Hornstrandir
Fjórar bækur sem ég hef lesið
- Hús úr húsi
- Björg
- Svartfugl
- Konungsbók
Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna
- Í gönguferð úti í íslenskri náttúru nr. 1,2,3!
- Í Skagafirðinum fagra
- Erlendis með fjölskyldunni
- Í rúminu mínu
Þá er þetta frá!

Mamma Mía Sing-A-Long
26. september 2008 klukkan 08:26
Við Þórunn Harðar hittumst í gærkvöldi og pöntuðum miða á Mamma Mia Sing-A-Long sem verður á laugardagskvöldið
í Háskólabíó. Þetta verður öruggglega mjög áhugavert, ég sá nefnilega frá svona sýningu í Kastljósinu í vikunni og minnti þetta helst á samkomu hjá einhverjum "söfnuði" ég hef reyndar aldrei farið á svoleiðis samkomu en ég hef séð þetta í sjónvarpinu.......
Í boði mbl.
Vatnsberi: Aðstæður hafa misst kraftinn. Eitt sinn varstu með eld í maganum, en nú er það ryðgaður mótor sem vill ekki vinna. Meyja er fín til að peppa þig upp.
HMhmhm - verð að benda Hauki mínum á þetta (hann er meyja) - spjalla við hann í kvöldmatnum og bendi honum á stjörnuspána mína........ spáin hans er svona:
Meyja: Merki um velgengni koma og fara. Góð einkunn í gamla daga er fjarlæg minning. Glingrið sem þú keyptir í gær fer til Góða hirðisins á næsta ári. Hvað finnst þér?
......er fjarlæg minning....hehe hann er auðvitað kominn á fimmtugsaldurinn!

læknis- og lærilærilæri
25. september 2008 klukkan 13:18
Þórður Logi fór í ómun á sjúkrahúsinu á Akranesi í morgun. Það gekk bara vel og útkoman góð. Málið er að við og leikskólakonurnar fórum að taka eftir að annað eistað stækkaði óeðlilega og höfðum við samband við lækni sem skoðaði drenginn mjög vel, síðan fylgdumst við með honum í nokkra daga og nú var semsagt komið að ómun. Niðurstaðan er að hann er ekki með kviðslit eða æxli, heldur er þetta vatnssöfnun sem þarna á sér stað. Á morgun verður svo tekin ákvörðum um framhaldið.
Á eftir fer ég með Stefán Snæ til læknis vegna vesenis með táneglur - frekar pirrandi fyrir hann.
Í gær og fyrradag var ég heima með Þórð Loga en hann var með hita.
Ég VONA að þetta sé ekki byrjunin á veikindatímabili! 7-9-13
Nú bara verð ég að komast í að vinna í náminu mínu og horfi ég með mikilli tilhlökkun til helgarinnar en það er vonandi ekkert planað og Haukur þarf vonandi ekki að vinna - ég get nefnilega voða lítið einbeitt mér að skrifum með Þórð Loga yfir mér. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér í september, þvælingur út og suður sem þýðir að maður hefur látið lestur skólabóka algjörlega sitja á hakanum.
Það verður ekki slæmt að frá 1. október verð ég í 60% starfi sem þýðir að ég verð heima að vinna á mánu- og þriðjudögum, skólinn fær semsagt forgang þessa tvo daga í viku.
Til að toppa allt í dag þá á stjörnuspáin á mbl kollgátuna:
Vatnsberi: Til að verk takist sem best þarf að skila framúrskarandi vinnu. Þú þarft samt ekki að gera það allt. Hvettu aðra til að koma með lausnir.
Koma svo kæru lesendur.......!!
HALLA við ætlum svo út að skokka í dag!!!! Nú verðum við að standa okkur - bloggheimar fylgjast með

Ég er í plús......
23. september 2008 klukkan 15:17
Í dag er ég heima með veikan stubbaling. Hann er með hita, ekkert kvef eða neitt svoleiðis - bara hiti. Núna erum við að hlusta á "Galdrakarlinn í Oz" í fimmta sinn í dag - alltaf jafn skemmtilegt 
Stjörnuspá dagsins í boði mbl.is hljómar svona:
Vatnsberi: Þú ert upptekinn við að láta öðum líða vel yfir framlagi þeirra. Með vinalegum orðum og hughreystingu leggurðu inn á tilfinningareikninginn þeirra og kemst sjálfur í plús.
Það er ekkert annað!
Í kvöld er námsefniskynning í bekknum hans Stefáns og að henni lokinni ætla ég í saumó. Ég er byrjuð að prjóna af því tilefni eða lopahúfu úr hinu ýmsu afgöngum sem til eru inní skáp....það eru jú krepputímar og þá er nú betra að nýta það sem til er
Við Halla byrjuðum í gær að fara eftir prógramminu okkar, út að skokka og í morgun var farið í spinning. Allt samkvæmt áætlun. Varðandi spinnigtímana sem við ætlum að fara í á þriðjudögum þá eru þeir að miklu leyti bara spining í 20 mín en síðan erum við að lyfta í 25 mín - þannig að þetta er ekkert rosalegt. Elva takk fyrir ábendinguna. Mataræðið er líka á góðu róli.

Myndablogg og enn eitt planið!!!!
21. september 2008 klukkan 17:13
Landsmótið tókst vel, ýmslegt bar fyrir augu og var ætlunin að sýna nokkrar myndir hér en mér tekst engan vegin að skella þeim hér inn þannig að best er að ég gefi ykkur slóðina á myndasíðuna mína en hún er hér.
Undanfarin tvö kvöld höfum við Haukur verið í matarboðum og er ætlunin að slá okkur niður á jörðina í kvöld en á diskinn fara fiskibollur!!!
Svo ætlum við Halla út að skokka á morgun en nýtt markmið hefur litið dagsins ljós hjá okkur en þann 20. desember n.k. ætlum við að skokka 10 km og er því búið að endurskoða æfingaáætlunina:
Eins og sjá má er aðalmarkmiðið að skokka þrisvar í viku og taka a.m.k. einn spinningtíma með æfingum.
Svo sjáum við bara til hvernig okkur gengur að fara eftir þessu en þetta er markmiðið fram að áramótum
Ég hef ekki staðið mig nógu vel í að skrá niður hreyfingu á undirsíðuna hér til vinstri en ætla að taka mig á og halda vel utan um æfingarnar.

| Mánudagur | Skokk 4,5 km |
| Þriðjudagur | Spinning eða frí |
| Miðvikudagur | Spinning eða frí |
| Fimmtudagur | Skokk 4,5 km |
| Föstudagur | Frí |
| Laugardagur | Skokk 6-7 km |
| Sunnudagur | Frí |
Eins og sjá má er aðalmarkmiðið að skokka þrisvar í viku og taka a.m.k. einn spinningtíma með æfingum.
Svo sjáum við bara til hvernig okkur gengur að fara eftir þessu en þetta er markmiðið fram að áramótum
Ég hef ekki staðið mig nógu vel í að skrá niður hreyfingu á undirsíðuna hér til vinstri en ætla að taka mig á og halda vel utan um æfingarnar.
landsmót 2008
17. september 2008 klukkan 09:05
Djö...er ég dugleg, fór á fætur kl 6:15 og í spinning....íha!!!!
Seinnipartinn í dag förum við starfsfólkið á vinnustaðnum mínum í Hvalfjörðinn þar sem við ætlum að hitta félaga okkar hjá hinum skógræktarverkefnunum en þetta er árviss viðburður og skiptumst við á að hittast í öllum landshlutum. Við köllum þetta landsmót, keppnisgreinarnar eru af ýmsum toga t.d. höfum við keppt í drumbakasti, körfubolta, river-rafting og nú í ár verður farið í mjög krefjandi fjallgöngu í Hvalfirði eða upp að fossinum Glym (ef veðrið verður þokkalegt). Síðan förum við á nokkrar skógræktarjarðir, fundum um hin ýmsu mál og endum á því að grilla í hlöðunni á Bjarteyjarsandi annað kvöld. Þetta er mjög skemmtilegur viðburður og maður bíður alltaf spenntur eftir því að hitta félagana
það verður fín mæting í ár eða 15 sem ætla að mæta.
Á föstudagskvöldið er síðan matarboð hjá Svövu en þangað erum við allar FAK-írurnar ásamt mökum boðaðar.
Á laugardagskvöld er fundur í matarklúbbnum..... ótrúlegt hvað allt hittir á sama tíma

hahahaha
16. september 2008 klukkan 10:24
Í beinu framhaldi af síðustu bloggfærslu:
Vatnsberi: Ef bagaðar sálir geta komið skikki á líf sitt virðist ekki svo mikið mál að herða agann hjá sjálfum sér. Byrjaðu á því að tala einungis vel um sjálfan þig.
Gat ekki annað en glott þegar ég las þetta. Stjörnuspá dagsins er í boði mbl.is

Játning
16. september 2008 klukkan 08:24
...ég fór ekki út að skokka í morgun!!!! arg og garg, það er bara svo drulluleiðinlegt veður núna eða súld heitir það víst.
Vegna fjölda áskorana þá er ég búin að fá mér aðgang að fésbókinni en ég kann ekkert á þetta en mun fikta mig áfram næstu vikur.
Tímaleysi er að hrjá mig núna og það er engum um að kenna nema mér. Ég leyfi mér þann munað að leggjast upp í rúm með Þórði Loga þegar hann á að fara að sofa og oftar en ekki er ég sofnuð og svo sef ég kvöldið frá mé!!! Þannig að ég kem engu í verk, þvotturinn safnast upp og svo það sem skiptir eiginlega meiru máli ég er ekki að læra neitt á kvöldin
En ég held að það séu bjartari tímar framundan - ég veit af vandamálinu og þá er ekkert annað í stöðunni en að gera eitthvað í þessu
Vegna fjölda áskorana þá er ég búin að fá mér aðgang að fésbókinni en ég kann ekkert á þetta en mun fikta mig áfram næstu vikur.
Tímaleysi er að hrjá mig núna og það er engum um að kenna nema mér. Ég leyfi mér þann munað að leggjast upp í rúm með Þórði Loga þegar hann á að fara að sofa og oftar en ekki er ég sofnuð og svo sef ég kvöldið frá mé!!! Þannig að ég kem engu í verk, þvotturinn safnast upp og svo það sem skiptir eiginlega meiru máli ég er ekki að læra neitt á kvöldin
Mánudagur
15. september 2008 klukkan 10:37
Jæja þá er ný vinnuvika að hefjast og allir í góðum gír eftir norðurferð um helgina.
Fór í spinning í morgun og svo er stefnan að skokka í fyrramálið. Við Halla erum að trappa okkur upp í hreyfingunni, hreyfing tvisvar sinnum í síðustu viku og stefnan sett á hreyfingu þrisvar sinnum í þessari. Eins og ég var áður búin að segja þá er markmiðið að hreyfa sig markvisst fjóra daga í viku.
Hafið góða vinnuviku
og alltaf gaman að sjá hverjir eru að lesa bloggið - gaman að sjá að gamlar skólasystur eru að lesa...... Það að fólk kvitti er alveg ótrúlega jákvætt fyrir mann, eflir mann í því að halda áfram þessu bloggi (ekki það að ég sé að hugsa um að hætt, nei alls ekki!!)
Fór í spinning í morgun og svo er stefnan að skokka í fyrramálið. Við Halla erum að trappa okkur upp í hreyfingunni, hreyfing tvisvar sinnum í síðustu viku og stefnan sett á hreyfingu þrisvar sinnum í þessari. Eins og ég var áður búin að segja þá er markmiðið að hreyfa sig markvisst fjóra daga í viku.
Hafið góða vinnuviku
11. september 2008 klukkan 18:31
Ég fór eftir vinnu í dag í heimsókn til annars (af tveimur!) vinnufélaga míns og hans konu - tilefnið var það að þau ágætu hjón buðu mér gamla ný-yfirfarna saumavél til kaups. Mér leyst vel á gripinn og okkur samdist um verð, þannig að núna stendur eitt stykki saumavél á eldhúsborðinu.
Varðandi föstuna þá held ég að sumir sem eru "hálfvegis" múslímar gangi endanlega af trúnni þegar ramadan hittir á þann árstíma þegar sólin sest rétt til að koma upp aftu. Eða ætli fastan miðist við daglengdina í Mekka???......... nei , nei þetta var ljótt!!!!
"Hálfvegis" hm......minnir mig einhverra hluta vegna á Ástrík og Steinrík.......

Er hægt að vera eitthvað hálfpartinn???
10. september 2008 klukkan 13:21
- Ja maður spyr sig. Ég þekki nefnilega mann sem er múslími og samkvæmt því þá ætti hann að fasta núna því það er ramadan (föstumánuður). Hann fastar í þeim skilningi að hann neitar sér um mat á daginn (frá sólarupprás til sólseturs) en hann fær sér te, kaffi eða vatn á daginn, ég hélt að það mætti ekki samkvæmt þessari trú. Það var aðeins verið að gera grín að viðkomandi í kaffinu áðan en eftir það hef ég verið að hugsa.... höfum við þessi kristnu einhvern rétt á því.....ég meina ekki er ég að iðka mína trú á fullu þó ég segist vera trúuð. Ég bið ekki bænir á hverjum degi, fer ekki í kirkju á sunnudögum, ég fer í kirkju ef um er að ræða jarðafarir, skírnir eða brúðkaup....ég meina það ég fer ekki einu sinni í jólamessu - hvað er ég að gera grín að þessum ágæta manni???
Þá er ég komin að þessari grundvallarspurningu: Er hægt að vera eitthvað hálfpartinn????
Að öðru, eftir vinnu í dag ætla ég að laga rammíslenska kjötsúpu, fara í skotapilsið mitt (skotum til heiðurs) en jafnframt að styðja okkar menn, ÁFRAM ÍSLAND!

Hreyfing veturinn 2008-2009
09. september 2008 klukkan 09:27
Í gær setti ég upp prógram sem ég ætla mér að fara eftir í vetur. Auðvitað verður þetta alltaf í endurskoðun en aðalmálið er að ég haldi mér í formi. Ég hef ekkert farið á vigt nýlega en geri nú alveg ráð fyrir að í sumar hafi bjórdrykkja, sykurneysla og grillmatarát haft einhver áhrif og finnst mér ekkert ólíklegt að ca 3-5 kg. verði að fjúka en ég læt ykkur vita þegar ég verð búin að hitta vinkonu mín þ.e. vigtina og veit hvaða verkefni bíður mín. Ég er í það minnsta búin að heita mér því að ná vigtinni niður fyrir jól.
Hreyfingarprógrammið er þannig:
Þegar ég er að fara í spinning eða út að skokka er ég að far á fætur kl 6:15 en þetta er einfaldlega sá tími sem hentar mér langbest, ef ég ætla út seinnipartinn þá finnst mér ég vera að taka tímann frá einhverju öðru (sem ég er auðvitað að gera). Þannig að morgnarnir eru minn hreyfitími. Hreyfing 4 sinnum í viku er líka alveg ljómandi, þegar veturinn skellur á með öllum sínum þunga mun ég líklega eitthvað breyta prógramminu og fara þá meira inn í líkamsræktaraðstöðuna í Ásgarði (LbhÍ) en þar eru hlaupabretti og lóð og tæki sem ég gæti þá nýtt mér en við sjáum til hvernig viðrar..... eiginlega er það kannski frekar myrkrið sem verður til þess að maður fer inn, tja sjáum til
Hreyfingarprógrammið er þannig:
| Mánudagur | Skokk |
| Þriðjudagur | Spinning + æfingar með lóðum í Borgarnesi |
| Miðvikudagur | Frí eða göngutúr |
| Fimmtudagur | Spinning + æfingar með lóðum í Borgarnesi |
| Föstudagur | Skokk |
| Laugardagur | Frí eða göngutúr |
| Sunnudagur | Frí eða göngutúr |
Þegar ég er að fara í spinning eða út að skokka er ég að far á fætur kl 6:15 en þetta er einfaldlega sá tími sem hentar mér langbest, ef ég ætla út seinnipartinn þá finnst mér ég vera að taka tímann frá einhverju öðru (sem ég er auðvitað að gera). Þannig að morgnarnir eru minn hreyfitími. Hreyfing 4 sinnum í viku er líka alveg ljómandi, þegar veturinn skellur á með öllum sínum þunga mun ég líklega eitthvað breyta prógramminu og fara þá meira inn í líkamsræktaraðstöðuna í Ásgarði (LbhÍ) en þar eru hlaupabretti og lóð og tæki sem ég gæti þá nýtt mér en við sjáum til hvernig viðrar..... eiginlega er það kannski frekar myrkrið sem verður til þess að maður fer inn, tja sjáum til
Óvissuferðin og helgin
08. september 2008 klukkan 11:53
Fimmtudagurinn 4. september
Stefán Snær stóð fyrir heljarinnar morgunverði: egg, bacon, brauð, trópí og fl.
Þegar drengirnir voru farnir í skóla og leikskóla, tók ég okkur til og við fórum af stað í óvissuferðina ógurlegu. Fyrsta stopp var í Borgarnesi þar sem tekið var bensín á bílinn, svo var komið við í Geirabakaríi og við fengum okkur tertu og kakó.
Þá koma að vísbendingunum og fyrsta hljómaði svona "Stingum höfðinu í sandinn ......kennitala 932" og þið gátuð þetta öll þannig að við keyrðum sem leið lá upp í Borgarfjörð, Hvítársíðuna og fram hjá Fljótstungu og enduðum uppá topp á Strút sem er fjall fyrir ofan Kalmannstungu. Þá kom önnur vísbending en á henni var enginn texti heldur kort og aukavísbending fylgdi einnig og í henni stóð" jötunn einn er Surtur hét......" og við enduðum í Surtshelli, skoðuðum þar ýmsa króka og kima en ég held við höfum verið þar í um þrjá klukkutíma. Bara gaman. Á þessum tímapunkti vorum vi'ð bara ansi þreytt og fékk Haukur þá þriðju og síðustu vísbendinguna sem leiddi hann að Hótel Hamri, þar beið okkar herbergi með aðgengi að heitum potti og frábær kvöldmatur. Haukur var mjög ánægður með þennan dag og komum við heim á föstudaginn bara rétt til að sækja drengina og taka okkur til fyrir helgina en við vorum með íbúð í bænum.
Helgin 5. -7. september.
Ég var í skólanum á laugardag. Haukur og strákarnir rúntuðu á milli hljóðfærabúða, fóru í Kolaportið og fleira. Við horfðum á landsleikinn við Noreg á Friday´s í Smáralindinni og fengum gesti á laugardagskvöldið (Silla og Oddur, takk fyrir komuna). Á sunnudaginn hittum við Rakel og Bolla í IKEA (frumlegur staður!) versluðum lítillega og fórum þá heim.
Kvefpest gerði vart við sig þessa daga og var ég fárveik á föstudagskvöldið Haukur hefur líka verið frakar slappur en þetta er allt að koma
Dagurinn í dag:
Vinna og alvara lífsins tekin við.
Framtíðin:
Ég fer í 60% starf frá og með 1. október.
Hreyfing: Verð að koma mér upp skipulagi/plani fyrir veturinn.
Að lokum þakka ég fyrir öll komment

afmæli og óvissuferð
03. september 2008 klukkan 15:07
Haukur á afmæli á morgun, hann verður fertugur karlinn, óvissuferðin er KLÁR........en ég fer með hann á flakk og enginn veit hvert ég ætla með hann - nema sérlegur aðstoðarmaður og ráðgjafi sem ekki verður gefið upp núna í dag hver er..... 
Tedda ætlar að sjá um drengina okkar á meðan við verðum í burtu. Eftir að Stefán verður kominn heim úr skóla á föstudag brunum við öll fjögur suður þar sem við verðum um helgina. Ætli það verði ekki reynt að fara í bíó, húsdýragarðinn og eitthvað fleira og síðan þarf ég að vera í skólanum á laugardaginn..... alltaf sama stuðið hér