Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Skóli skóli skóli

31. ágúst 2008 klukkan 16:47
Þá er fyrsta staðlota í námskeiðinu "Fullorðnir námsmenn og aðstæður þeirra" að baki og framundan mikill lestur og verkefnavinna. Um næstu helgi fer ég svo í staðlotu í "Útikennslu og grænni nytjahönnun". Þannig að það verður nóg að gera hjá mér á næstunni. Þetta eru 20 ECTS (eða 10 ein gamlar) og mundi það teljast 66,6% vinna og þá er ég byrjuð að velta þeim mögleika fyrir mér að minnka við mig vinnu og er meiningin að skoða það mál núna næstu daga. Það að fara niður í t.d. 60% starf mundi létta alveg heilmikið undir en þá verður maður að spá í fjárhagslegu hliðina.... hefur maður efni á þessu??? Hugs hugs Óákveðinn

Vikan framundan er ansi þéttsetin hjá mér, feltvinna á mánu- þriðju- og miðvikudag. Óvissuferð með bóndann á fimmtudag og föstudag og Reykjavík um næstu helgi.....

Komin heim

28. ágúst 2008 klukkan 10:01
Ég hafði vitlaust fyrir mér í síðustu færslu, hitinn var frekar upp undir 40 stig - sem er nú eiginlega einum of..... Oftast var hann samt í 33-35 og á kvöldin fór hann alveg niður í 26!! Fórum í vatnsrennibrautagarð, röltuðum eitt síðdegi/kvöld um höfnina í Chania, fórum í siglingu á bát með glerbotni (til að sjá fiskana), syntum í sjónum og lágum á sundlaugarbakkanum, röltum um og borðuðum aldeilis fínan mat. Hótelið var vel staðsett, mitt á milli Platanias og Chania í þorpi sem heitir K. Stalos, hótelið var við ströndina ss garðurinn með sundlauginni sneri niður að sjó og þegar maður var komin út úr honum var maður staddur á ströndinniSvalur Á þessu íbúðahótelli voru ekki nema 11 íbúðir þannig að þetta var ansi heimilislegt. Búðir til að versla það nauðsynlegasta í 20 m fjarlægð og bakarí í 100 m fjarlægð, næsti strandbar var tja í ca 100-150 m fjarlægð - maður þurfti semsagt ekki að fara langt til að komast í það sem þurfti.
Frábært frí að baki en nú tekur alvaran við, vinnan og skólinn Brosandi

Kriti - Crete - Krít

19. ágúst 2008 klukkan 14:45
Þegar ég kem heim úr vinnunni ætla ég að henda í tösku fyrir okkur: Suttbuxum, bolum, sandölum og sólarvörn - ekki flókið Brosandi
Hafið það gott kæru lesendur, við munum hafa það fínt og lifa og njóta Svalur

p.s. samkvæmt veðurspánni þá er sól og uppundir 30 stiga hiti á Krít næstu vikuna.....Svalur

Haustið er að koma

18. ágúst 2008 klukkan 11:27
... svo mikið er víst. Gróðurinn er farinn að sölna og sést það ágætlega á birki og úthagagróðri. Reyndar er það mjög áberandi þegar maður er kominn yfir Bröttubrekku að óáran er í aðalbláberja og bláberjalyngi, þetta er mjög áberandi í Dölum og allt vestur á firði. Þrátt fyrir þetta hef ég aldrei séð eins mikið af berjum eins og nú í sumar. Í gönguferðum fyrir vestan um helgina stoppaði maður ótt og títt til að stinga upp í sig berjum.
Nú er kertaljósatíminn framundan sem ég get eiginlega ekki byrjað að njóta almennilega fyrr en búið er að taka húsið í gegn....jamm ég veit...ég er rugluð! Þannig að framundan er hausthreingerning, ég þarf svo að mæta í fyrstu staðlotu í Kennó 29. ágúst EN fyrst förum við fjölskyldan í viku til KrítarUllandi

Veðrið....

13. ágúst 2008 klukkan 23:02
Það er alveg með ólíkindum hvað veðrið hefur leikið við okkur að undanförnu. Ég var í ferð á Suðurlandi í gær og dag og blíða allan tímann, fyrir utan rigningu sem stóð kannski í klukkutíma. Á morgun fer ég svo á Ísafjörð á aðalfund Skógræktarfélags Íslands, ætla að vona að það viðri vel allavega þann tíma sem maður er á keyrslu.

Sunnudagsblogg

10. ágúst 2008 klukkan 17:19
Helgin byrjaði á föstudaginn með tónleikum í Egilshöll með Eric Clapton, það var vægast sagt æðislegt. Síðan hefur garðastúss og sundferðir það sem lífið hefur snúist um hér á bæ..... og jú svo var dráttavéladagur á Hvanneyri í gær.
Fundur í stjórn skógræktarfélags Borgarfjarðar í kvöld og ný vinnuvika á morgun
Glottandi

bissí bissí!!!!

07. ágúst 2008 klukkan 15:28
Merkilegt hvað allt ætlar að raðast á fáa daga núna í ágúst og þ.a.l. getur maður ekki gert allt....sko:
12.-13. ágúst fer ég með skógarbændum af Vesturlandi á Suðurland
15.-17. ágúst verð ég á fundi á Ísafirði
18.-19. ágúst hefði ég þurft að láta sjá mig á ráðstefnu á Selfossi 
20.-22. ágúst ER ÉG KLÁRLEGA  að missa af mjög áhugaverðri ráðstefnu á Egilsstöðum sem er akkúrat á mínu sviði
sjá hér.
20. ágúst er ég að fljúga út á vit ævintýranna á Krít!
Kem heim viku seinna, og þá fljótlega byrjar skólinn minn og ýmis verkefni í vinnunni skella á manni sem þarf að klára fyrir veturinn.
Puff, puff,  já maður getur ekki gert allt en mest er ég þó svekt yfir að missa af EgilsstaðaráðstefnunniÖskrandi

Kvöldmaturinn í gær, sem var bara góður

07. ágúst 2008 klukkan 08:26
2 dósir kjúklingabaunir
brokkoli, soðið (t.d. afgangur frá kvöldinu áður)
kartöflur, nýjar soðnar (t.d. afgangur frá kvöldinu áður)
2-3 hvítlauksrif
karrý
salt
pipar
hrært í mauk og annaðhvort látið malla í potti eða sett með skeið á plötu og bakað.

Meðlæti:
Soðið bankabygg
Allskonar grænmeti (ég notaði papriku í ýmsum litum, rauðlauk og hvítlauk)
Salt og pipar
Hitað saman í potti

Sósan:
Sýrður rjómi
rifinn hvítlaukur
rifin gúrka
magn eftir smekk

....á ferð og flugi

06. ágúst 2008 klukkan 08:36

Ég hef verið á ferð og flugi í vinnunni, flækist nú á milli bæja og kortlegg væntanleg skógræktarsvæði. Ekki amalegt í því veðri sem verið hefur síðustu daga og vikur Glottandi
Við vorum heima um helgina. Mamma og pabbi komu á laugardag og gistu eina nótt. Síðan komu fleiri gestir á sunnudag í tilefni þriggja ára afmælis Þórðar Loga.
Við Haukur áttum tíu ára trúlofunar og sex ára brúðkaupsafmæli á mánudag og til að halda upp á það fórum við á jeppanum (campernum) þeirra mömmu og pabba upp í Langavatnsdal með nesti og hituðum okkur kaffi og kakó. Síðan var aðeins kíkt á berjasprettuna sem er GÓÐ. Inga og Keli voru samferða í þessari ferð og auðvitað Stefán Snær og Þórður Logi. Þegar heim var komið var grillað hjá Ingu og Kela og fyrsta "tékk" á kartöfluuppskerunni ásamt brokkoli úr garðinum okkar var smakkað, allt lofar þetta góðu - og desertinn kom Tedda með: aðalbláber með rjóma mmmmmmm.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.