Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Áskorun

29. júlí 2008 klukkan 09:17

Jæja, nú ætla ég að skora á ykkur lessendur góðir að skrá ykkur í "Göngum saman" (sjá hér) og stefna á stóru styrktargönguna þann 7. september. Í Borgarnesi og nágrenni er hópur sem gengur saman einu sinni í viku í tengslum við þetta og síðan er hópur í Reykjavík.  Ég held að aðalmálið sé að skrá sig og mynda hóp, hvar sem maður er á landinu og stefna svo á Reykjavík þann 7. sept.
OG KOMA SVO!!!

Komin úr fríi

28. júlí 2008 klukkan 13:29

Við hjónin erum sammála um að ferðin á Hornstrandir var besta frí sem við höfum nokkurn tíman farið í, held það sé bara ekki hægt að toppa þetta.
Svo til að taka af allan vafa þá vorum við ekki hópurinn sem "sá" ísbjörn!!
Vikuna áður en við fórum brunuðum við norður og vorum í sumarbústað í Eyjafirði í 2 daga fórum svo í Skagafjörðinn og dvöldum þar í þrjá daga. Þaðan fórum við heim á fimmtudegi og brunuðum síðan vestur á Ísafjörð á föstudegi (11. júlí)

12. júlí kl. 11:00 var siglt frá Ramónubryggjunni á Ísafirði að Hornbjargsvita (planið var að leggja af stað kl 9 en bátnum seinkaði).

13. júlí dvalið á Hornbjargsvita. Gengum á Axarfjall og upp í Almenningsskarð, þoka á bjarginu og því ekki til neins að ganga þangað 
14. júlí gengum til Hornvíkur í þoku og súld....rigning og rok um kvöldið. 
15. júlí gengum frá Hornvík uppúr hádegi þegar veðrið skánaði og yfir að Búðum í Hlöðuvík. Eftir hádegi þennan dag var brostin á blíða sem hélst það sem eftir var ferðarinnar. 
16. júlí gengum frá Hlöðuvík í Fljótavík. Þetta var langur dagur og erfiðasti hlutinn var í Fljótavíkinni þar sem við gengum með vatninu endilöngu á mjög blautu landi. 
17. júlí gengum frá Fljótavík í Stakkadal í Aðalvík 
18. júlí gengum frá Stakkadal að Hesteyri, farangurinn fór í bát í Aðalvík. Ég get mælt með kaffi og bakkelsi í læknishúsinu á Hesteyri....aldrei að vita nema maður sé heppin og fái tónleika í kaupbæti. Hrólfur Vagnsson þandi nikkuna og sló í gegn! Ramóna sótti okkur á Hesteyri um kvöldið og við sigldum til Grunnavíkur.
19. júlí dvalið í Grunnavík, fórum í stutta þægilega gönguferð og sátum í heitum potti!!! Grillveisla og gaman um kvöldið. 
20. júlí siglt frá Grunnavík til Ísafjarðar kl. 11.


Við Haukur sváfum í tjaldi allar næturnar nema í Hornbjargsvita, þar var nægt gistipláss í húsi.
Þegar við vorum komin í land á Ísafirði þann 20. fórum við í sund og héldum svo sem leið lá í Skagafjörðinn að sækja Þórð Loga og hitta Stefán Snæ. Við vorum svo komin heim á Hvanneyri að kvöldi 21. og höfum síðan þá verið í rólegheitum heima, farið í sund, grillað og svoleiðis.
Í dag byrjaði ég svo að vinna og er farin að telja niður.... því næsta mál á dagskrá er seinnihluti sumarfrísins sem verður eytt á Krít.

Þriggja vikna frí

04. júlí 2008 klukkan 08:27
Þegar þessi vinnudagur verður að kveldi kominn verð ég komin í þriggja vikna sumarfrí frá vinnu og bloggi.
Ferðast verður norður í land, kíkt í bústað til systur minnar í Eyjafirði, til stórfjölskyldunnar í Skagafirðinum fagra, gengið á Hornströndum og svo verður líka notið lífsins á pallinum hér heima.
Hafið það gott kæru bloggvinir og aðrir lesendur, kannski hitti ég ykkur í fríinu, kannski ekki Svalur
Kær kveðja Sigga.

Góðan dag

03. júlí 2008 klukkan 08:19
Í morgun var síðasti spinningtími æfingatímabilsins 2007-2008 og mér skilst að áætlað sé að tímabilið 2008-2009 byrji fljótlega eftir verslunarmannahelgi. Hvað mig varðar þá hef ég ekki ákveðið hvenær ég byrja aftur, það fer algjörlega eftir því hvernig mér gengur að stjórna hreyfingunni minni í sumar en það lofar góðu því ég verð nú samfellt á göngu í 8 daga og það er nú alveg þónokkuð.
Varðandi framhaldið þá verð ég að segja að með því að fara í spinning þá er föst rútína á einhverri hreyfingu og fínn félagsskapur í þokkabót sem er mikils virði.
Í kvöld ætlum við (spinninghópurinn) að fara saman út að borða Hlæjandi
Jæja ekki meira að sinni, gangi ykkur vel í ykkar daglega amstri.

Hreyfingaruppgjör

01. júlí 2008 klukkan 12:14
Vá hvað tíminn líður. Það er kominn 1. júlí!!
Hreyfingaruppgjör mitt fyrir júní hljómar svona: 17 sinnum stunduð markviss hreyfing í júní, ég er sátt við það þar sem markmiðið var að fara minnst 3svar sinnum í viku að hreyfa sig. Ég tel ekki með hjóla eða gönguferðir í og úr vinnu í þessu uppgjöri mínu.
Nú er aðeins einn spinningtími eftir fyrir sumarfrí, síðan stefnum við Haukur á eina æfingagöngu á Tröllaskaga á sunnudag/mánudag með allt á bakinu og Hornstandaferðin er handan við hornið. Þannig að júlí lofar góðu hreyfingarlega séð.

Við erum þessa dagana að græja okkur fyrir ferðina og farin að leggja línurnar varðandi mataræði þessa daga þannig að það er heilmikið pæl í gangi Glottandi Síðan blaðar maður í bókum og reynir að kynna sér staðhætti, sögusagnir og annað sem gæti verið gaman að segja ferðafélögunum frá á göngunni eða á kvöldin eða bara til að hugsa um þegar gengið er á Hornströndum. Kunnið þið einhverjar sögur?

Jæja best að halda áfram að vinna Hlæjandi

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.