Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

síðasta vinnuvika fyrir frí

30. júní 2008 klukkan 08:43
Rólegheitahelgi að baki..... eða þó? Fórum í afmæli á föstudagskvöldið, matarboð á laugardagskvöldið og FAK-kvennabrunch í gær. Þess á milli var slappað af. Þá er það bara síðasta vikan fyrir sumarfrí og einnig síðasta vika morgunspinningtíma en Erla spinningleiðbeinandi verður í fríi fram í ágúst - eftir þessa viku. Við ætlum að slútta þessu spinningtímabili með því að fara saman út að borða á fimmtudagskvöldið.

Við öll fjölskyldan erum farin að bíða eftir að komast í frí og fara eitthvað, Þórður Logi talar ekki um annað þessa dagana en að fara í sveitina til ömmu og afa að hitta hvolpana á meðan við foreldrarnir erum á síðustu dropunum í vinnunni.

Mikið að gerast í dag

27. júní 2008 klukkan 09:30
Stefán Snær kemur heim í sólarhringsleyfi.
Nýr sparkvöllur verður vígður seinnipartinn hér á Hvanneyri.
Solla er þrítug í dag og það verður veisla í kvöld.
Stebbi Snæ afi minn hefði orðið 92 ára í dag.
Þennan dag árið 1986 var slegið hitamet það árið á Akureyri 26°C.
Það er föstudagur í dag.
Ég byrja í sumarfríi eftir viku.

Mbl.is í dag:
Vatnsberi: Þú átt svo auðvelt með að hrífa fólk með þér. Allt frá ákvörðun um hvað skuli vera í matinn og upp í stóra lífsviðburði - allir geta verið með og fundið til sín.
Ég verð örugglega vinsæl hjá sonum mínum í kvöld því það verða grillaðir úrvals hamborgarar......

Klapp á bak

26. júní 2008 klukkan 11:17
Vatnsberi: Finnst þér þú þurfa smá klapp á bakið frá öðrum? Í raun þarftu það frá sjálfum þér. Viðurkenning frá speglinum eða dagbókinni gera sálinni mjög gott. (stjörnuspá dagsins á mbl.is)

Kæra Sigga, klapp á bak, klapp á bak. Þú stendur þig vel Hlæjandi

Góðviðri dag eftir dag.....

24. júní 2008 klukkan 11:10
...og virðist ekkert lát á. Það lýtur út fyrir að heyskapur klárist á Hvanneyri í dag þ.e. það sem tekið er í þessari lotu, engjarnar verða teknar síðar í sumar og síðan er seinni sláttur eftir.
Annars er maður farin að liggja á bæn og óska eftir rigningu, það er allt að skrælna. Á gönguferðum mínum um helgina og einnig sem tengist vinnunni minni hef ég orðið vör við mjög mikið af sætukobbum og bendir allt til góðrar bláberjasprettu,  allavega hér á Vesturlandi og eins á Suðurlandinu enda var mikill snjór í vetur sem hlýfði lynginu og vorið var einstakt, ekkert maíhret.

endalausar kröfur

23. júní 2008 klukkan 11:21
Ég tók síðustu athugasemd mjög alvarlega og gerði athugun á aukaskóreimaeign, á tvö sett af aukareimum og er með þær staðsettar í dagpokanum mínum Glottandi
Það gengur ágætlega að læra á nýja símann en geri ráð fyrir að kunna nokkuð vel á hann fyrir jól, ekki alveg mín deild.
Helgin var góð, gengið var á tvö lítil fjöll sem bæði bera nafnið Hestfjall. Annað er hér í nágrenninu og hitt er í Grímsnesinu, á það síðarnefnda var farið með væntanlegum ferðafélögum á Hornstrandir og var endað í kaffi í heimahúsi á Selfossi þar sem fundað var um væntanlega ferð. Búið er að skipa í matarhópa en við munum borða sameiginlega fimm kvöldmáltíðir af átta og þessi fimm kvöld verða einnig kvöldvökur með fræðsluívafi.
Við Haukur þurfum að fara að huga að því að kaupa okkur hinar ýmsu græjur sem okkur vantar en það er slatti, t.d. eru svefnpokarnir okkar í henglum og okkur vantar göngutjald, þannig að það eru fjárfestingar framundan hjá okkur....síðan var nú reyndar draumurinn að vera búinn að kaupa GPS tæki fyrir þessa ferð en við sjáum til hvað fjárhagurinn leyfir okkur. Draumatækið þarf að vera hægt að nota í bíl ef maður er að keyra t.d. úti í Evrópu.... sem við stefnum á að gera einhverntíman og það þarf auðvitað  líka að vera ágætis göngutæki...semsagt kröfur, kröfur, kröfur! En eitt er ljóst, við þurfum ekki að kaupa skóreimar Hlæjandi

Klór í haus

20. júní 2008 klukkan 15:28
Búin að fá nýjan síma..... rauðan samlokusíma með fullt af allskonar valmöguleikum  sem ég botna ekkert í! Held ég hafi aldrei átt svona flottan síma Glottandi verst að Stefán Snær er fyrir norðan í vinnu hjá ömmu sinni, ég hefði geta sett hann í það að læra á símann - en ætli ég verði þá ekki bara að reyna.......

Að öðru
Það styttist í gönguferð á Hornströndum, það verður æfingaganga um helgina og stefni ég á að mæta ásamt Þórði Loga en ég ætla bara að bera hann á bakinu, fín æfing það. Haukur verður örugglega að vinna þannig að við mæðginin töku okkur bara rúnt og ætli sundfötin verði ekki með í för, jú ég held það.
Góða helgi Hlæjandi

Allt er þegar þrennt er....

20. júní 2008 klukkan 09:17
Gsm-síminn bilaður.
Uppþvottavélin biluð.
Hvað bilar næst?.... ég? Say no more......

Tilkynning

19. júní 2008 klukkan 13:31
Síminn minn er að deyja, heyri ekki í honum þegar hann hringir, get ekki svarað ef ég sé að hann er að hringja (sem gerist reyndar ekki alltaf) sé bara ef það er missed call!!! Þannig að ef þið heyrið ekki í mér, ég svara ekki símtölum og annað í þá veruna þá er þetta ástæðan.
Ég verð semsagt að redda mér nýjum síma sem fyrst.

1,7 kg. í plús

18. júní 2008 klukkan 09:46
Saumaklúbbsskrallið heppnaðist gríðarlega vel, vantaði reyndar fjórar dömur í hópinn en það varð bara að hafa það og við sem mættum skemmtum okkur vel. Vorum lengi í pottinum, borðuðum mikinn og góðan mat. Grillað einiberjakryddað lambalæri með allskonar meðlæti sem allt passaði svo vel saman og desertinn...mmmmmm fullt af ávöxtum í eldföstu móti, nokkrar kókosbolluklessur ofan á og hitað á grilli ...mmmmm!
Í gær var síðan þjóðhátíðardagurinn okkar. Farið var í sund, skrúðgöngu og grillað úti í skjólbeltum ásamt hópi af íbúum Hvanneyrar og nágrennis. Seinnipartinn kíktu svo vinir okkar í heimsókn, þannig að deginum var vel varið.
Í gær var líka ár síðan ég útskrifaði mig úr danska, þann 17. júní 2007 var ég 67,2 kg. og í gær 17. júní 2008 var ég 68,9 kg. Semsagt 1,7 kg hefur bæst á mig síðan fyrir ári síðan en allt í lagi ég er sátt.
Ég veit ég hef tök á þessu svo þetta er allt í góðu.

Ég er ekki þessi manneskja sem man afmælisdaga vel, það er hins vegar þannig að ef fleiri en einn eiga sama daginn þá eru meiri líkur á að ég muni það!!! Semsagt í dag eiga: Ása Dóra, Sigurjón og Hrafnhildur afmæli. Til hamingju!

Hól dagsins.....

16. júní 2008 klukkan 15:57
Má til með að hæla Kennaraháskólanum. Var að taka eftir því að 12. júní sl voru drög að stundatöflu fyrir haustönn komin inn á vefinn.... þetta kallar maður framför en í þessu námi sem ég er í er fólk í vinnu og þarf að geta skipulagt sig með góðum fyrirvara. Veit að þeir voru gagnrýndir fyrir þetta í kennslumati sem var fólk átti að skila inn fyrir 1. maí og þeir hafa heldur betur unnið vinnuna sína og virðast taka mark á mati nemenda. Fyrir utan það að núna veit ég hvaða kúrsar verða kenndir og báðir kúrsarnir sem ég valdi verða kenndir. Ég verð semsagt í skólanum (skv. þessum drögum): 29. og 30. ágúst, 6. september, 13. og 14. október, 7. 20. 21. nóvember. Jamm þeir eiga hrós skilið Hlæjandi

Annar ísbjörn

16. júní 2008 klukkan 14:33
Hvað er í gangi??? Nú er annar ísbjörn vappandi um úti á Skaga. Ætli það sé búið að gera viðbragðsáætlun eins og talað var um að þyrfti að vera til? Ja, maður bara spyr!

Í kvöld verður saumaklúbbsgrill og pottaferð, gaman, gaman.

sunnudagsrabb

15. júní 2008 klukkan 21:39
Ég var búin að skrifa inn ágæta færslu en hún þurrkaðist út fyrir einhver mistök...... en ég geri aðra tilraun.
Helginni hefur verið eytt að mestu úti við. Við Þórður Logi í garðstússi, að setja niður sumarblóm, dreifa moltu í runnabeðin, reita arfa og ýmislegt í þeim dúr. Við vorum búin að ákveða að fara í göngutúr í morgun í tilefni af
"degi hinna villtu blóma" en það gleymdist bara alveg í öllum atganginum. Það rann upp fyrir mér þegar við Þórður Logi lágum í grasinu úti í skjólbelti  í dag og gæddum okkur á hundasúrum að við hefðu steingleymt þessum göngutúr og verð ég nú að segja að ég er frekar fúl út í mig Öskrandi
Haukur hefur hins vegar verið með málningarúllu og pensil í hönd um helgina og er alveg óhætt að segja að húsið okkar hafi tekið miklum breytingum í gær og í dag. Núna er húsið semsagt ekki lengur ljósgrænt heldur mosagrænt. Gluggarnir eru eins og áður hvítir og sömuleiðis þakkantarnir.
Þegar allt er að verða voða fallegt úti við þá fer maður að horfa í kring um sig hérna inni og held ég að nú bara verði ég að þrífa í kvöld, nú ofbíður mér!! Það er svona þegar veðrið er svona gott þá vill maður helst vera sem minnst inni við.
17. júní handan við hornið og þá má ekki allt vera á öðrum endanum, nei, nei, nei - ég er farin að þrífa!

Bikini-innkaup

13. júní 2008 klukkan 13:33

Ég er búin að versla mér eitt stykki bikini!!!! Hér er mynd af því.
Það kostaði ekkert rosalega mikið miðað við bikini almennt eða 6490 krónur. Takk fyrir Hlæjandi

12. júní

12. júní 2008 klukkan 09:14

Þennan dag árið 1988 rölti ég í sól og blíðu inn í Hálskirkju í Fnjóskadal. Með í för var ein vinkona og skólasystir, ættingjar og vinir auk prestsins sr. Péturs Þórarinssonar. Það eru semsagt 20 ár síðan ég fermdist. Eitt af því sem ég man best frá þessum degi  er veðrið, það var svo gott veður og veislan var að hálfu leiti úti, allir hlaupandi inn og út. Ráðhildur móðursystir mín og hennar fjölskylda höfðu komið nokkrum dögum fyrr til að aðstoða við undirbúninginn og voru svo í nokkra daga á eftir því þetta vor fluttum við úr Fnjóskadalnum í Skagafjörð þar sem foreldrar mínir höfðu fest kaup á jörð.
Þetta var líka vorið sem ég fór að vinna í fyrsta skiptið annarsstaðar en heima hjá mér. Þetta var vorið sem framtíðarstarfið var sigtað út því ég fór að vinna hjá Skógrækt ríkisins í Vaglaskógi. Ég vann í ca mánuð frá því eftir skóla í maí og þar til við fluttum.
Ótrúlegt hvað tíminn líður Hlæjandi

næstum ár síðan ég útskrifaði mig....

11. júní 2008 klukkan 12:24
Var að gera mér grein fyrir því að á 17. júní er akkúrat ár síðan ég útskrifaði sjálfa mig úr "danska" þá steig ég á hina margumtöluðu sundlaugarvigt í Borgarnesi.  Ég hef ákveðið að hitta þessa vinkonu mína á þjóðhátíðardaginn og skrá inn niðurstöðuna hér á undirsíðuna "þyngd og BMI". Þangað til eru sex dagar Hlæjandi

Góðan og blessaðan....

11. júní 2008 klukkan 09:34
Stefnir í alveg frábæran dag, hér er sól og sumar í sinni og hjarta og ekki verra að það er í alvöru alveg frábært veður. Sól og blíða, þar sem ég sit á skrifstofunni með útsýni út á Snæfellsnes og upp í Borgarfjarðarhérað sé ég Bauluna og Snæfellsjökul í hitamóðu. Ekki slæmt útsýni það Glottandi

Í gær fór ég og gerði matjurtainnkaup hjá henni Sædísi í "Gleym mér ei" í Borgarnesi, 12 brokkoli, 4 grænkál, 4 hnúðkál og 4 hvítkálsplöntur fara semsagt niður í matjurtagarðinn minn. Auk þess er Þórður Logi að rækta jarðaber og svo voru settar niður 20 kartöflur í litla kartöflugarðinn fyrir hálfum mánuði. Jamm það er svona að eiga litinn garð..... auk þess ræktum við mintu, skessujurt og rababara og umhverfis matjurtasvæðið eru sólberja, stikilsberja og rifsberjarunnar (þaktir blómum) þannig að við ættum eitthvað að geta mett okkur með eigin framleiðslu í haust Hlæjandi

Eftir vinnu í dag verður stefnan tekin á sundlaugina Svalur og ég á eftir að kaupa bikini.........BÖMMER!

Montblogg

10. júní 2008 klukkan 09:33

Þórður Logi er búinn að sofa tvær nætur bleyjulaus....
Stefán Snær fékk tvær tíur.... (náttúrufræði go samfélagsfræði) og svo var hann valinn í landsliðshóp (æfingahóp) í badmintoni......
Haukur er búinn að þrífa húsið okkar að utan með háþrýstidælu í þeim tilgangi að undirbúa fyrir málningu..... hann er líka að byrja að slá hér á Hvanneyri í dag....
Ég fór í spinning í morgun......og ætla út að skokka í fyrramálið.....

Það styttist í Hornstrandaferð, grrrrrrr er kominn með langan útbúnaðarlista...... og nóg að gera í vinnunni Brosandi

kvöldganga UMSB

06. júní 2008 klukkan 08:27
Við fjölskyldan (allir nema Þórður Logi) fórum í kvöldgöngu UMSB í gær, gengið var frá brúnni yfir Flóku og niður með ánni að Svarthöfða en skammt frá þeim höfða mætast Hvítá, Reykjadalsá og Flóka. Samtals voru þetta u.þ.b. 7,5 km sem við gengum og bara ansi notaleg kvöldganga.

spjall dagsins

05. júní 2008 klukkan 09:13
Ég sé það á teljaranum mínum (sem telur heimsóknirnar á síðuna) að eitthvað er fólk farið að draga úr heimsóknum, greinilegt að fólk er byrjað að taka sumarfrí. Það er hins vegar rétt rúmar 4 vikur í að ég byrja að taka hluta af mínu en þangað til verður alveg nóg að gera í vinnunni.

Við vorum þrjár frá Hvanneyri sem mættum í spinning í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi í morgun, aldeilis fínt að vera ekki alltaf ein á ferð Glottandi Mataræðið í góðum lagi en ég eins og ég sagði um daginn þá er ég að reyna að fara eftir "danska" að mestu leyti því þannig líður mér best.

Næstu dagar eru annasamir, vinna auðvitað, uppákoma hjá foreldrafélagi leikskólans seinnipartinn í dag, kynningar og útskrift hjá Grænni skógum I á Vesturlandi á laugardag og ferming á sunnudag og í næstu viku verð ég á ferð og flugi.

Annað árið í röð þá kemst ég ekki í KVENNAHLAUPIÐ bömmer Fýldur Held ég fái mér samt bol til að styrkja gott málefni Glottandi

Hvað kemur næst??? fyrst jarðskjálftar og nú......

03. júní 2008 klukkan 11:12
....... ísbjörn á röltinu meðfram Þverárfjallsvegi ehemmm hvað næst!!?
Þetta er alveg með ólíkindum, þeir geta nú synt alveg óralangt og líklega hefur þessi verið á einum ísjakanum sem kom á Húnaflóa í vetur...... ja hver veit.

Ný vinnuvika og....

02. júní 2008 klukkan 09:40
....það er kominn JÚNÍ!!!!! Tíminn er ekkert smá fljótur að líða.

Ég fór í spinning í morgun, það eiga að vera tímar þrjá morgna í viku, út júní sem er alveg frábært. Tedda kom með mér í morgun og vonandi verður hún með þennan mánuð. Það er nefnilega töluvert skemmtilegra að vera ekki alltaf ein að fara héðan.
Eftir þessa endalausu kvefpest sem hefur verið að herja á mig hefur mataræðið verið í rugli. Núna er ég kominn 100% í danska til að ná mér niður aðeins. Ekki það að ég hafi eitthvað fitnað heldur er það meira þannig að mér líður bara svo miklu betur ef ég er heilbrigðari í mataræðinu.

Svo eru það stóru fréttirnar; Þórður Logi er hættur með bleyju en þó ekki á nóttunni Glottandi

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.