Stór dagur á Hvanneyri í dag
Í dag klukkan 14 verða háskóla- og búfræðinemendur brautskráðir í Reykholtskirkju.
2.
Í dag var stofnað Votlendissetur LbhÍ. Markmið þess er m.a. að rannsaka eðli og lífríki votlendis, rannsaka nýmyndun og endurheimt votlendis auk þess að vernda hin einstöku votlendissvæði á Hvanneyri. Votlendi gegnir margháttuðu hlutverki í náttúru Íslands. Á Hvanneyri er fjölbreytt votlendi, kjörið til fræðslu og rannsókna sem hafa alþjóðlegt gildi.
Votlendissetrinu ætlað að efla menntun í votlendisfræðum og gera votlendissvæðin aðgengileg til útivistar. Þá er setrinu ætlað að taka þátt í alþjóðlegu rannsóknarstarfi og samstarfi á sviði votlendisfræða. Aðalráðgjafi LbhÍ um stofnun þessa seturs er hinn heimsfrægi votlendisfræðingur og prófessor Bill Mitch við ríkisháskólann í Ohio í Bandaríkjunum. LbhÍ er í miklu samstarfi við þennan háskóla og tekur samstarfið m.a. til votlendisfræða.
Landbúnaðarháskólinn mun (í dag) afhenda umhverfisráðuneytinu formlega umsókn um viðurkenningu á votlendissvæðunum á Hvanneyri sem Ramsar svæði, en slíka viðurkenningu fá þau votlendissvæði sem hafa alþjóðlegt mikilvægi. Á Íslandi eru önnur Ramsar svæði sem eru Þjórsárver, Mývatn og Grunnifjörður í Hvalfjarðarsveit. Það er einstakt á heimsvísu að háskólasvæði sé jafnframt náttúruverndarsvæði með alþjóðlegt mikilvægi. Stofnun Votlendissetursins er því merkt skref í náttúruvernd á Íslandi.
3.
Í dag er síðasti skóladagur skólaársins 2007-2008 í grunnskóla Borgarfjarðar.
Þetta er semsagt helst í fréttum frá Hvanneyri í dag
Staðan klukkan 11:59 í dag!
Ég er stútfull af kvefi (næ varla andanum).
Ekki nógu slöpp til að geta talist vera veik og ekki nógu hress til að geta verið úti.
Það er æðislegt veður úti, 12 stiga hiti, sól og logn.
Mér er kalt.
fórnir....eru þær til?
Stjörnuspá dagsins af mbl.is er alveg merkileg..... Vatnsberi: Það virðist enginn taka eftir fórnunum sem þú færir. Það er aldrei eyðsla á orku að vera fórnfús. En ef þú dregur þig í hlé einn dag, ertu betur metinn daginn eftir.
Jæja, ég lít reyndar ekki á lífið sem fórn.....
Kvefið og slappleikinn sem hafði verið á leiðinni að koma í næstum því mánuð hætti við að hætta við að angra mig og ég er frekar fúl, þoli ekki að vera svona hálfslöpp! Ekki nægilega til að liggja fyrir lasin en heldur ekki nógu hress til að vera í mínu besta formi.
brunamál, útskrift, leikhús og leikur!
Ég fór á afar áhugavert málþing á föstudag um brunavarnir á skógræktarsvæðum - ýmislegt kom þar fram og vakti mann til umhugsunar. Ánægjulegt var að heyra að eitt stærsta sumarhúsasvæði landsins eða í Skorradal á að fara að gera úttekt og viðbragðsáætlun ef eldur kemur upp. Það má segja að viðlíka svæði eru tifandi tímasprengjur, það er ekki spurning hvort heldur hvenær eitthvað gerist og þá er eins gott að það liggi fyrir hvernig á að koma öllum frá svæðinu, hvaða vegir/slóðar beri þunga slökkviliðsbíla, hvar er aðgangur að vatni, hvar eru önnur verkfæri staðsett sem komið gætu að notum (klöppur og skóflur). Fær maður tjónið bætt ef landið manns og allir sumarbústaðirnir brenna? ....og svona mætti lengi telja.
Haukur útskrifaðist á laugardaginn, héldum upp á það með að fara á kaffihús með drengina okkar og um kvöldið grilluðum við og horfðum á júróvísjón. Haukur fékk alveg æðislega útskriftargjöf frá góðum vinum, miða fyrir tvo á tónleika með Eric Clapton!!!!! TAKK KÆRU VINIR ![]()
Við komumst ekki í gönguferðina eins og við ætluðum í gær en við fórum hins vegar á leiksýningu í gærkvöldi "Alveg brilljant skilnaður" með Eddu Björgvins...... alveg brilljant og frábært framtak hjá Eddu en andvirði miðanna sem seldust á þessa sýningu runnu til fjölskyldu Siggu heitinnar. Það var uppselt - aldeilis frábært.
Jæja nú er að hefjast ný vinnuvika, og síðasta vika grunnskóla Borgarfjarðar þetta skólaár. Ég er að fara ásamt nokkrum foreldrum með 6. bekk í sumarbústað seinnipartinn í dag upp í SKógarkot, þar sem markmiðið er að leika sér og hafa gaman saman, gist verður í eina nótt og komið aftur í skólann fyrir hádegi á morgun
Bravó!
Spennan magnast og helgin framundan
Helgin verður skrautleg hjá okkur, Haukur er að fara að útskrifast á laugardag, júróvísjón um kvöldið, gönguferð í Reykjadal fyrir ofan Hveragerði kl 11 á sunnudag og leikhús um kvöldið í Borgarleikhúsinu. Sýningin sem við erum að fara á er "Brilljant skilnaður" og er styrktarsýning en fjölskylda Siggu frænku Hauks, (sem dó í vetur frá manni og fjórum börnum) nýtur góðs af þessari sýningu. Flott framtak hjá Eddu Björgvins.
Við verðum semsagt eins og þeytispjöld um helgina
Góða skemmtun í kvöld!!!
1. í júróvísjón að baki
En svona er júróvísjón held að lögin sem keppa á fimmtudaginn verði eitthvað skárri, ég er allavega búin að heyra nokkur og vil Portúgal áfram og svo lögin sem eru í aðalkeppninni á laugardag þá finnst mér Serbía vera með mjög fallegt lag.
EN lagið sem ég mun kjósa er frá Frakklandi
sunnudagskvöld
Ég var búin að blogga slatta og það datt allt út!!! andskotinn!!!!! EN hér er ágrip af því sem ég var búin að skrifa!!!!
Við fórum í tveggja ára afmæli í gær. Vinkona Þórðar Loga hún Hekla bauð í afmæli upp í Hvítársíðu, það var aldeilis gaman. Björk móðir hennar hafði hrist fram úr erminni slatta af ýmsu góðgæti, þarna var t.d. heima tilbúið brauð, gúllassúpa (í 2 stórum pottum), salat, ostar, ávextir, súkkulaðikaka og ýmislegt annað góðgæti. Torfi (pabbi Heklu) grillaði pylsur ofan í smáfólkið og allir voru glaðir, börnin hlupu inn og út í leik og fullorðna fólkið spjallaði. Toppurinn var svo þegar kúnum var hleypt út í fyrsta sinn þetta vorið.
Fyrir utan þessa veislu hef ég verið að taka aðeins til í garðinum, þrífa, fara yfir próf og þvo þvott. Það er mikið að gera í vinnunni hjá Hauk og hann vann mestan part gærdagsins og svo fyrri partinn í dag. Framundan er júróvísjón vikan ógurlega og auðvitað vinnan en nú er að hefjast annasamur tími á þeim vígstöðvum.
Á þessari vef-útvarpsstöð hér eru eingöngu spiluð júróvísjónlög....bara svona ef þið hafið áhuga
hahaha
Vatnsberi: Með aðstoð frá vinum, geturðu klárað hluti sem hafa dregist á langinn. Sinnt reikningum, tölvupósti, garðvinnu - ótrúlegt hve mikið er hægt að hreinsa í einu.
Fyndið ég var einmitt spurð að því rétt áðan hvað ég ætlaði að gera um helgina og miðað við þessa stjörnuspá þá ætti mér að verða eitthvað ágengt um helgina!
tíminn líður....
Lokapróf í nytjaskógrækt var í gær og ég hef því nóg að gera við að fara yfir úrlausnir á milli þess sem ég er í vinnunni eða heima að mála....... jamm mála, ég tók upp á því að kaupa málningu í vikunni og klístraði henni á einn vegg, kemur ótrúlega vel út. Síðan stendur til að taka til um helgina og gera heimilið huggulegt.
Þórði Loga er boðið í afmæli um hádegisbil á morgun, hjá vinkonu sinni sem er ný orðin 2 ára. Verður örugglega skemmtilegt en það á að kíkja í fjósið og sjá nýfæddan kálf sem heitir Jökla og svo skilst mér að það eigi að leyfa kúnum að fara út í smá stund ef veðrið verður gott
Ég er ekki búin að vera nógu dugleg í hreyfingunni þessa viku en ástæðan er vottur af kvefi og hálsbólga sem hefur verið angra mig...... en þetta kemur allt saman.
Það eru komnar myndir
Kíkið á myndasíðuna "Skotland 2008" hér til hliðar....bara svona smá sýnishorn.
Ferðasagan gæti orðið svolítið löng, þið komið bara í kaffi til mín og fáið að heyra um þessa ferð og skoða fleiri myndir ![]()
Annars er lífið allt að færast í réttar skorður, við Þórður Logi vorum bara í rólegheitum um helgina, Haukur vann á laugardag og í gær og Stefán Snær skellti sér norður á föstudagskvöldið og kom aftur í gær.
Við Skotlandsgöngukonur og fjölskyldur hittumst á sunnudagskvöldið og borðuðum saman, vorum einnig með forláta skjávarpa í láni þannig að við gátum varpað myndunum upp á vegg.
Framundan eru annir í vinnunni en ég tek svo sumarfrí í tvær til þrjár vikur í júlí.
Nú er hafin ný niðurtalning en það er Hornstrandaferðin okkar Hauks. Við ætlum að ganga um Hornstandir frá Hornbjargsvita til Aðalvíkur og enda í Grunnavík, tökum 8 daga í herlegheitin.
Í dag er fyrsti vinnudagurinn minn í tæplega hálfan mánuð og ég byrjaði hann á spinningtíma í morgunsárið. Markmiðið er að hreyfa sig eins og verið hefur, a.m.k. þrisvar í viku, allt annað er plús og allt er þetta fært hér inn, samviskusamlega.
Þetta kallar maður frí!
Gef mér kannski tíma til að skrifa ferðasöguna um helgina......en ég verð að koma því að, að allir sem hafa gaman af útivist og göngu ættu einhverntíman að prófa að fara í gönguferð í útlöndum. Mér fannst alveg frábært að vera þarna á þessum tíma, flest öll tréin laufguð (nema eikurnar) og ávaxtatréin í blóma - bleik og hvít, lyngrósirnar í þann vegin að springa út og prímúlurnar um allt í blóma.
Hef þetta ekki lengra í dag en ég stend við það ÞETTA KALLAR MAÐUR FRÍ!!!!