Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Ég er á leiđ í frí

30. apríl 2008 klukkan 11:16
Það er eins og það hafi gerst í gær að tekin var ákvörðun um að fara til Skotlands 1. maí 2008, það var við kvöldmatarborðið snemma í september sem þetta var ákveðið og nú er komið að því! Kannski kemst ég eitthvað í tölvu á kvöldin og get gefið ykkur skýrslu - og kannski ekki Glottandi
Þið fáið allavega ferðasöguna beint í æð þegar að því kemur Hlæjandi 
Þetta er kærkomið frí, ég verð í Skotlandi í viku og fer ekki aftur að vinna fyrr en 13. maí (eftir Hvítasunnu).
Hafið það gott.

sprungin blađra....

29. apríl 2008 klukkan 10:14
Mér líður eins og ég sé sprungin blaðra.
Var á haus í gær.....fór í spinning, skrapp aðeins í heimsókn í grunnskólann (vantaði smá upplýsingar í ferilmöppuna). Vann eins lengi og ég komst upp með, náði í drenginn á leikskólann, prentaði út ferilmöppuna, eldaði kvöldmat og þá var ég sprungin á því!!!! Vá hvað ég er fegin, í morgun kenndi ég síðustu kennslustundirnar fyrir próf og svo ætla ég í Borgarnes í hádeginu að setja ferilmöppuna í póst!!!!
Það er íbúafundur í kvöld hér á staðnum, Haukur ætlar að fara en ég verð heima að pakka niður í tösku og þvo það sem ég ætla að taka með til Skotlands. Svo er það vinna á morgun og ég fer suður til Keflavíkur annað kvöld......og Skotland hinn daginn Hlæjandi
Auðvitað hittir það þannig á í vinnunni hjá mínum manni að það verður brjálað að gera á meðan ég verð úti að leika mér, Öskrandi helgar og kvöldvinna út í eitt....en tengdamamma ætlar að mæta á staðinn og passa upp á drengina sem er alveg frábært. Þá get ég andað rólega úti og kannski ekki með alveg eins mikið samviskubit......
Varðandi komment við síðustu færslu:
hehehe, já kennarrar voru að skrifa undir nýjan kjarasamning í gær, mest verður hækkunin 22% sem er fínt en þá koma allir hinir hóparnir í kjölfarið og fá enn betri samninga (ég er ekki að segja að það sé ekki gott fyrir þá!!)....er þetta ekki alltaf þannig? Þetta er endalaus hringavitleysa!

Til hamingju međ daginn!

26. apríl 2008 klukkan 19:09

Í dag á Þórunn vinkona mín Harðardóttir afmæli, til hamingju með daginn og takk fyrir mig Glottandi

Ég er farin að sjá grilla í lok ferilmöppunnar, klára eiginlega allt um helgina, stefni á að skila möppunni á þriðjudag Hlæjandi

Ég er búin að velja mér kúrsa fyrir næsta vetur:
Skapandi nám og kennsla í náttúrufræði og samfélagsgreinum
Náttúrufræði í grunnskólum - lykilþættir, verklegt nám og grunnhugtök
Nám og þroski barna, unglinga og fullorðinna (skildukúrs)
Námsmat og prófagerð
Fullorðnir námsmenn og aðstæður þeirra

Samtals eru þetta 50 ECTS eða 25 einingar í gamla kerfinu, ég mun nú aldrei taka þær allar enda ekkert öruggt að næg þátttaka náist. Fattaði reyndar að ég hefði þurft að vera búin með einn undanfara í áfanganum "námsmat og prófagerð" en ég get vonandi athugað það betur í haust þegar opið verður fyrir endurskoðun á valkúrsum.
Ég ætla að ígrunda það í sumar hvort ég:
a) tek námið eins róleg á og í vetur, einn kúrs á önn og þá er ég tvo vetur að klára.
b) minnka við mig vinnu t.d. niður í 60% og tek tvo kúrsa á önn og klára næsta vor.
c) tek einn kúrs á haustönn, tek svo frí í vinnunni í 3 mánuði eftir áramót og verð í þremur kúrsum á vorönn og klára næsta vor.
d) tek mér frí í vinnunni í þrjá mánuði á haustönn og verð í þremur kúrsum og tek svo einn kúrs á vorönn og klára næsta vor.
Semsagt það eru fjórir möguleikar í stöðunni og þetta þarf ég að hugsa vel og spyrja mig spurninga......t.d. hvað græði ég á þessu???

Gleđilegt sumar

24. apríl 2008 klukkan 16:05
Sumar og vetur frusu ekki saman hér á Hvanneyri ........... held það sé samt ekki nein ástæða til að klifra upp á næsta fjall og kasta sér fram af eins og Þórný nokkur  húsfreyja í Eilífsdal í Kjós gerði einhverntíman í fyrndinni. Samkvæmt sögunni átti hún ekki að hafa treyst sér að lifa af sumarið fyrst sumar og vetur frusu ekki saman...sú staðreynd var henni um megn svo hún ákvað að klifra upp á fjall og kasta sér fram af því, sem heitir eftir frúnni; Þórnýjartindur. Já svona var sagan sú  Brosandi

Hins vegar byrjaði ég sumarið á að fara í massa spinning tíma og í heitu pottana á eftir, ansi ljúft. Síðan kíktu Halli og Stefanía til okkar í dögurð (bröns á útttlensku) og núna á ég að vera að læra.......Það er værð yfir öllum á heimilinu í dag, stefnan er svo að grilla í kvöld.

Njótið dagsins!

Ég er heima ađ skrifa í dag.....

23. apríl 2008 klukkan 12:07
....og þá er nauðsynlegt að líta aðeins upp frá því og glugga í gamla vitnisburði úr grunnskóla!!! Hérna er smá sýnishorn síðan ég var 9 til 12 ára.

Almenn umsögn á vorönn 1983: Kátur og glaður nemandi með ríka sköpunarþörf. Hættir til að ætla sér um of og vera hroðvirk.

Almenn umsögn á haustönn 1983: Jákvæð og skapandi. Mætti vera hljóðari við vinnu sína.

Almenn umsögn á vorönn 1984: Jákvæð og hugmyndarík. Hefur mikinn áhuga á skapandi vinnu en ekki nógu föst við hefðbundnar greinar.

Umsögn í teikningu vorið 1986: Meðhöndlar liti af þrótti og smekkvísi. Þarf að æfa sig í blýantsteikningu. Tekur mjög vel tilsögn.

Þar hafið þið það...ég ætla að halda áfram að skrifa......

22. apríl 2008 klukkan 15:25
Það er laust í þrjár gönguferðir í Skotlandi í sumar (með Ingu í Glasgow sem skipuleggur ferðina sem ég er að fara í), endilega ef þið hafið áhuga kíkið þá á heimasíðuna www.skotganga.co.uk og kynnið ykkur málið Glottandi 

pćlingar um veđriđ

22. apríl 2008 klukkan 11:10

Jæja, núna eru 9 dagar í Skotlandsferð og þá er tími komin til að forvitnast um veðrið þar ytra. Í dag erum við að tala um hæglætisveður, rigningu og 12 stiga hita og þannig verður það næstu daga en á sunnudag á að létta til og sólin fer að skína. Mikið ætla ég að vona að það verði ekki rigning þegar við verðum á ferðinni þarna.

Fyrst ég er að tala um veðrið þá er fínasta veður hér, 9 stiga hiti og vindhraðinn 6 m/sek. Á morgun og hinn á sólin að skína en líka að rigna.......og hitinn 10-12 stig Glottandi

Síðan er stóra spurningin ætli sumar og vetur frjósi saman? Vonandi!

Ekkert aum og litagleđi

21. apríl 2008 klukkan 11:41
Eymslin eftir fjallgönguna á laugardaginn eru lítil sem engin, fór í sund í gær og held að það hafi bjargað bakinu, finn ekki fyrir neinu og marið sem er rétt neðan við hné er komið út og er ekkert svo rosalegt. Þannig að sem betur fer er ég heil!
Fór í spinning í morgun og það var allt í lagi, ósk mín um að ég væri ekki illa meidd rættist, SEM BETUR FER.

Í gærkvöldi var einskonar húsfundur í parhúsinu sem við búum í.... það á sko að mála í sumar
Glottandi við grilluðum og fengum okkur smá rauðvín með og djókuðum heilmikið með það hvaða lit við ættum að velja, púff það eru svo margir litir til!!! Niðurstaða náðist og verður það forvitnilegt.......

blíđa!

20. apríl 2008 klukkan 10:27
Vá, þvílík blíða undanfarna daga. Nú er maður úti í garði og í göngutúrum út í eitt!
Fór á Hestfjallið í gær, datt illa og er blá og marin, bjóst við að finna fyrir verkum í bakinu í dag vegna þess en það virðist ætla að sleppa 7-9-13. En ég ætla aðeins út í garð áður en ég sest við tölvuna og held áfam með ferilmöppuna mína
Glottandi

Tónlistarferill minn svart á hvítu

17. apríl 2008 klukkan 11:37
Þegar við fórum norður um páskana þá tók ég slatta af dóti sem var geymt upi á lofti heima hjá  foreldrum mínum, þar kenndi ýmissa grasa, t.d. dúkkudót í úrvali, allskonar bollastell, gamlar námsbækur, gamlar ritgerðarbækur og einkunnablöð og vitnisburðir........ og ó mæ god!!!!!! Hér kemur eitt sýnishorn:

STÓRUTJARNARSKÓLI
TÓNLISTARDEILD
Sigríður J. Brynleifsdóttir, 2. bekk
hefur stundað nám við tónlistardeild Stórutjarnarskóla á fyrri önn 1982-1983.
Hljóðfæri: Orgel
UMSÖGN KENNARA:
Stundaði tímana vel, en sýndi lítinn áhuga og árangur þar af leiðandi lítill.
(Undirritað af)
Inga Hauksdóttir kennari - Sverrir Thorstensen skólastjóri

Fyndið.........HissaHlæjandi Síðan þá hef ég ekki snert hljóðfæri í þeim tilgangi að læra á það - og þá vitið þið það!

örbloggsblogg???

16. apríl 2008 klukkan 18:04
Þetta er nú að verða hálfgert örbloggsblogg!!! En svona er þetta nú bara, nú keppist ég við að reyna að klára verkefni í tengslum við skólann eða eins og einu stykki ferilmöppu en ég ætla að skila áður en ég fer til Skotlands, sem er jú eftir 15 daga.
Síðan á ég eftir að fara með nemendur í tvær vettvangsferðir og kenna tvo þriðjudaga þar sem ég fer aðallega í upprifjun á námsefni vetrarins.....og þegar þetta allt er búið þá er ég farin í FRÍ! Semsagt frí frá og með 1. maí og kem aftur til vinnu þann 13. maí - fersk og endurnærð, sem er eins gott því eftir miðjan maí og til 4. júlí verður mikill álagstími hjá mér í vinnunni. Ég stefni svo á meira frí frá og með 7. júlí.

Annars gengur allt vel, mataræðið er algjört æði og hreyfingin er einhver. Stefni á að ganga á Hestfjallið eftir vinnu á morgun.

Lukkutröllin.....

15. apríl 2008 klukkan 14:16
Eins og svo margir aðrir þá horfði ég á söngkeppni framhaldsskólanna, það skal þó viðurkennast að ég hef ekki mikið fylgst með þessari keppni undanfarin ár en núna þegar nemendur manns voru skráðir til leiks þá horfði maður - auðvitað. Hér getið þið séð "kyntröllin" ....eða kannski frekar lukkutröllin Glottandi

Vorbođinn ljúfi

14. apríl 2008 klukkan 15:07
Vorið er komið!!!!
Þegar vinkona mín hún Sigurlaug Einarsdóttir er farin að plana útilegur sumarsins þá er vorið komið!
Svo frétti ég það reyndar frá útibúi Landbúnaðarháskólans á Reykjum í Ölfusi að vorið kæmi 14. apríl og mér sýnist það ætli að standast.

Nýr banner

14. apríl 2008 klukkan 09:49
Hvernig finnst ykkur? Þetta er reyndar mynd sem ég tók í Skotlandi síðasta sumar, um miðjan ágúst, nánar tiltekið í Glen Afric. Frábær staður sem ég fer reyndar ekki til í næstu Skotlandsferð.... en einhverntíman fer ég þangað Glottandi 

grasagarđapćlingar og allt í drasli

13. apríl 2008 klukkan 15:50
Árshátíðin heppnaðist vel, vorum komin heim uppúr hádegi í gær. Dagurinn í dag er algjör letidagur en ég ætla reyndar að reyna að taka til og jafnvel skúra, gengur ekki að allt sé í drasli og skítugt, þannig að maður klessist þvílíkt við allt hér!!!!! Þvottavélin og þurrkarinn eru á fullu að vinna .... og ég slæpist bara í í tölvunni. Var aðeins að kíkja á staðsetninguna á hótelinu sem ég gisti á í Glasgow og var að finna út hvar grasagarðurinn er staðsettur og hvernig ég kem mér frá hótelinu og þangað. Lendi í Glasgow fyrir hádegi og er að hugsa um að nota þann dag til að fara  í grasagarðinn hér getið þið séð afstöðuna. Jæja en þetta gengur ekki lengur, nógur er tíminn til að skipuleggja ferðina rúmlega tvær vikur í brottför....þannig að ég er farin að ryksuga og skúra!

10. apríl 2008 klukkan 08:44
Árshátíð Landbúnaðarháskólans verður annað kvöld - ekki leiðinlegt Glottandi
Var hins vegar ferlega slöpp í gærkvöld og var viss um að ég myndi liggja í rúminu í dag EN ég er ekki nógu mikið slöpp til að liggja heima, vonandi sleppur þetta alveg, já, já, já!
Nú er ég að klára að fara yfir verkefni nemenda og ganga frá lausum endum varðandi vettvangsferðina á morgun.
Það er allt í góðu hér, veðrið er frábært - vor í lofti Hlæjandi

Ferilmappan og kennslan...og gönguferđin

09. apríl 2008 klukkan 09:55
Það var að koma ferðaplan frá Skotlandsgöngukonunni Brosandi bara gleði. Í þessu ferðaplani er farið yfir alla dagana frá a-ö skondið en t.d. stendur þetta á einum stað í planinu: "Á miðri leið er staldrað við á sveitakrá (Beech Tree Inn) – þar sem hægt er setjast  og fá sér í svanginn." - ekki leiðinlegt! Einnig fylgdi ferðaplaninu ansi góður útbúnaðarlisti:

Gönguskór, (göngustafir)Íþróttaskór, sandalarBakpoki + Pokahlíf
VatnsbrúsiRegnfatnaður (Buxur og jakki), hlífðarfötFatnaður af ýmsum toga
HöfuðfatSundfötMyndavél
Lítil regnhlífMittistaskaBreiður heftiplástur
Hælsærisplástrar (Second Skin)Lítil skæri Verkjatöflur 
SólaráburðurDagbók + skriffæri Hnésokkur (teygjusokkur)
Millistykki fyrir Breskar innstungurGóða skapið J  

Það eru þrjár vikur í ferðina og áður en ég fer þarf ég að gera ýmislegt, það helsta er að ég þarf að ljúka við gerð ferilmöppu í skólanum sem ég "þykist" vera í. Mér er lífsins ómögulegt að taka tíma frá fjölskyldunni til að vinna í henni - svo er bara alltaf nóg að gera ef ég er ekki í vinnunni. Verkefnin í vinnunni eru líka óþrjótandi. Þannig að ef ég ætla að vera í þessu námi þá bara verð ég að ætla mér að taka nokkra daga í frí til að leggja lokahönd á verkið, það er ekkert annað í stöðunni en þessari ferilmöppu ætla ég að vera búin að skila áður en ég fer til Skotlands, það er á tæru!
Varðandi kennsluna í Landbúnaðarháskólanum þá hefur mér tekist að halda áætlun. Ég er nánast búin að fara yfir allt efni vetrarins þannig að nú eru bara vettvangsferðir eftir (alls þrjár) og sex kennslustundir sem fara að mestu í upprifjun á efninu.
Annars er allt bara í góðu hér, hreyfingin og mataræðið eru á góðu róli Svalur

Komin heim.....

05. apríl 2008 klukkan 12:29
Ráðstefnan var fín, mörg erindi, öll áhugaverð, mikið í gangi og mikið af nýju fólki. Frábært að hitta alla, t.d. Rakel og Herdísi og alla hina sem maður hittir allt of sjaldan. Á miðvikudagskvöldið hafði ég smá smugu til að kíkja í kaffi í Butru, sem var alveg frábært, borðin svignuðu undan veitingum og litli Valur er algjör dúlla. Takk fyrir mig Oddný og Gústi! ....og Elín ég kem bara fljótlega í spes heimsókn til ykkar í Riddaragarð....og Heiða....sko...ég kem bara aftur seinna og geng með þér um HvolsvöllGlottandi
Dagskráin á ráðstefninni var stíf þannig að eitthvað varð minna úr þeim fyrirheitum að ganga út um allt á Hvolsvelli. Gekk þó eina ferð í sundlaugina á fimmtudagsmorguninn, synti nokkrar ferðir. Það var reyndar ágætur kostur við þessa ráðstefnu að hún var í félagsheimilinu og maturinn var á hótelinu þannig að maður gekk þar á milli Glottandi í staðinn fyrir að grotna niður og fara ekki út úr húsi allan daginn.
En mikið er nú gott að vera komin heim, það á að taka því rólega í dag, skreppum kannski í eitt fjós sem er verið að taka í notkun í sveitinni..... síðan á morgun brunum við til Reykjavíkur á fund varðandi Hornstrandarferðina  Hlæjandi sem við förum í, í sumar.
Já, það er mikið framundan.... vinna, vinna og vinna, ein árshátíð um næstu helgi í Stykkishólmi og svo er Skotlandsgangan handan við hornið Svalur

ráđstefna framundan....

02. apríl 2008 klukkan 09:28

Ég mundi segja að mataræðið og hreyfingin séu bara á góðu róli þessa dagana, ef ég næ að hreyfa mig eitthvað minnst þrisvar í viku þá er ég sátt og þá líður mér líka best. Merkilegt hvað krafturinn eða orkan eykst þegar skammdegið er að baki.
Seinnipartinn brunum við sem vinnum hér,  austur á Hvolsvöll, fundur í kvöld og ráðstefna á morgun og hinn. Kem ekki heim fyrr en á föstudagskvöld. Aðal áhyggjuefnið hjá eldri syninum er hvað skyldi verða í matinn þegar mamma er ekki heima.....pylsur í kvöld og skyr annað kvöld er lausnin, fyndið hvað þeir virðast alltaf verða hálf handarlausir þegar mamman er ekki heima!! EN ég er nú svo vond að ég vorkenni þeim ekkert, þeir hafa bara gott af því að taka smá æfingu í "mömmuleysi" áður en ég læt mig hverfa til Skotlands í HEILA viku.
Blogga  lítið næstu daga - ætla að reyna að taka góðan göngutúr um Hvolsvöll "á milli atriða" á ráðstefnunni.....Aðalheiður......!!!

01. apríl 2008 klukkan 14:47
Það er - 
1 mánuður eða
30 dagar í Skotland!!!


Jeremías, hvað ég hlakka til að vera í hópi vinkvenna að ganga um í rólegheitunum og upplifa náttúruna,  upplifa skoska vorið og mannlífið á leiðinni....koma við á skoskum pöbb og bragða á "lókal" bjór og auðvitað viskíinu! Hlæjandi 

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.