Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Já, Gvendólína er fersk í dag!!!

31. mars 2008 klukkan 08:29
Góðan dag! Nú er ég aldeilis fersk, vaknaði fyrir allar aldir í morgun og brunaði í Borgarnes, tók ansi kraftmikinn spinningtíma, sem var reyndar skipt upp, tókum 20 mín á hjólum og síðan var stöðvarþjálfun. Bekkpressa, magaæfingar, æfingar með handlóð, pallar og hjól á víxl í 20 mín og síðan í lokin voru gerðar teygjur í ca 5-10 mín. Miðað við þessar lýsingar þá ætti ég að vera þvílíkt mössuð og ekkert nema skinn, bein og vöðvar....nei,. nei ekki aldeilis....ég er enn með þessa fitusöfnunaráráttu á lærunum - ættgengur andskoti!!!

Stjörnuspá dagsins, tekin af mbl.is:
"Vatnsberi: Félagslífið er blómlegt um þessar mundir, en þú ert ekki alveg viss hvers er krafist af þér. En þú áttar þig á því og stendur undir kröfum. Þú ert hrókur alls fagnaðar".
Já, Gvendólína, það er aldeilis....!

föstudagur

28. mars 2008 klukkan 15:16
Jæja, þá er þessi vinnuvika að renna sitt skeið. Við mæðginin ætlum að skella okkur í sund seinnipartinn og svo er okkur boðið í mat eftir það, frábært (hmhm slepp við að elda). Gráðugur Haukur er væntanlegur til landsins seint í kvöld, hann er búinn að vera á námskeiði í Danmörku þessa viku og er mjög ánægður með það í alla staði. Við hlökkum öll til að fá hann heim.
Helginni verður varið í rólegheit, gönguferðir, sund og lestur.

Stjörnuspá dagsins af mbl.is:
Vatnsberi: Þú þarft ekki alltaf að fella dreka lífins. Sumir drekar eru frábærir vinir. Væri ekki frábært að hafa svona miklinn kraft þér við hlið?
Ó jú, það er engin spurning!


Í lokin langar mig til að spyrja hvort einhver horfði á Kiljuna síðasta miðvikudagskvöld - þar var sýndur bútur úr "Fjögur brúðkaup og jarðarför" þar sem ljóð eftir W.H. Auden var lesið upp í jarðaför.....munið þið eftir þessu atriði?.....ekki það að ég sé eitthvað döpur eða sorgmædd þessa dagana, nei alls ekki, mér finnst það bara svo fallegt.
Horfið á Kiljuna, þetta er snilldarþáttur hvort sem maður er bókmenntaséni eða ekki (ég er t.d. ekkert bókmenntaséni en finnst gaman að lesa og tala um bækur)
Hér er þetta umrædda ljóð og ef einhver sem þetta les á eða veit um góða þýðingu á þessu ljóð endilega bentu mér á það en mér skilst að til séu nokkrar þýðingar, misgóðar.

Funeral Blues

Stop all the clocks, cut off the telephone,
Prevent the dog from barking with a juicy bone,
Silence the pianos and with muffled drum
Bring out the coffin, let the mourners come.

Let aeroplanes circle moaning overhead
Scribbling on the sky the message He Is Dead,
Put crepe bows round the white necks of the public doves,
Let the traffic policemen wear black cotton gloves.

He was my North, my South, my East and West,
My working week and my Sunday rest,
My noon, my midnight, my talk, my song;
I thought that love would last for ever; I was wrong.

The stars are not wanted now: put out every one;
Pack up the moon and dismantle the sun;
Pour away the ocean and sweep up the wood,
For nothing now can ever come to any good.

W. H. Auden

Verđlaunaferđin

27. mars 2008 klukkan 13:21
Var aðeins að renna yfir undirsíðuna "markmið, verðlaun, dagsetningar" hér til hliðar og kom þá auga á að ég átti eftir að færa inn verðlaunin fyrir lokamarkmiðið í átakinu mínu en það er sólarlandaferð.
Var einmitt að hugsa að það er ekkert vitlaust að bíða a.m.k. ár eftir að takmarkinu er náð og fá verðlaunin þá - nota bene EF maður hefur staðið sig. Ég fer a.m.k. með góða samvisku til Krítar í sumar Ullandi

 

Ég mćli međ.....

27. mars 2008 klukkan 09:44
Í dag er fimmtudagur og fimmtudagar eru "Trúðadagar" jamm, hvað skildi það nú vera? Jú, uppáhaldsþátturin minn í sjónvarpinu þessi misserin. 
Danski trúðurinn er á RÚV í kvöld kl 21:30.
Staðalbúnaður:
Vasaklútur
(af því maður bókstaflega grenjar úr hlátri með tilheyrandi táraflóði) 
Svaladrykkur (ótrúlegt hvað maður þornar í hálsinum við að hlæja svona mikið)

Góða skemmtun! 

Labbakútar

26. mars 2008 klukkan 13:17
Jæja, nú hefur "labbakútafélagið" tekið formlega til starfa eftir vetrardvalann, þetta er þannig að allir þeir sem vinna í húsinu á Hvanneyrargötu 3 geta verið meðlimir. Genginn er svokallaður litli hringur þrisvar sinnum í viku, mæting í anddyri hússins kl 12 og þeir ganga sem geta hverju sinni. Þetta eru rétt tæplega 1600 metrar - fínt að standa upp frá skrifborðinu og anda að sér fersku lofti og spjalla um hitt og þetta - tekur ekki nema ca 15 mín af matartímanum - bara gott! Markmiðið er að halda þessum gönguferðum inn í "prógramminu" fram að sumarfríi eða júlí en stefnt er að lokaferð félagsins í lok júní en þá verður tekin dagsferð sem endar á pottaferð og grilli.
Gerðum þetta líka í fyrra og þetta er mjög gaman, eflir andann í húsinu - maður hittir fólk sem annars maður væri ekkert að hafa samskipti við þó maður sé nánast að vinna hlið við hlið.

Páskarnir í örfáum orđum

25. mars 2008 klukkan 08:48
Ekkert varð af bloggi um páskana, var bara ekkert í þeim gírnum. Til að gefa ykkur einhverja hugmynd um páskana á mínum bæ þá var þetta nokkurn veginn svona:
Miðvikudagur (eftir vinnu): fórum norður, kíktum á Steinunni og síðan til Sillu systur.
Fimmtudagur: Vorum í rólegheitum í Dalsmynni, lásum, horfðum á gamlar "Stiklur" og ég fór í gegn um allt gamla dótið mitt (nánar um það síðar).
Föstudagur: Við Stefán fórum á skíði með systrum mínum og sonum annarar - fyrir hádegi. Fórum suður (heim) þá var veðrið svo geggjað að við fórum í göngutúr. Bara næs.
Laugardagur: Fórum í sund, kíktum til Önnu Lísu og Binna, skoðuðum litla stubb sem fæddist 18. mars. Seinnipartinn fengum við gesti, bökuðum köku.
Sunnudagur: Fórum í göngutúr og í sund, virkilega næs. Elduðum svakalega góðan lambahrygg mmmm.
Mánudagur: Fengum gesti, við konurnar fóru í langan göngutúr (10 km +) karlarnir voru heima og elduðu. Fórum í leikhús, sáum "Þið munið hann Jörund" í Logalandi.
Dagurinn í dag: Vinna hjá mér, ferðalag hjá Hauk - hann er  á leið til Danmerkur á námskeið.

Jamm svona er þetta búið að vera hjá mér/okkur síðustu daga Glottandi

ég er á leiđinni!!! og páskafrí....

19. mars 2008 klukkan 09:14
Þetta segir stjörnuspáin á mbl.is í dag:
Vatnsberi: Þú lærir best af reynslunni, en hún þarf ekki að vera eigin reynsla. Taktu viðtal við fólk sem veit það sem þú vilt vita, kann það sem þú vilt kunna.
Jæja, Silla systir, Dísa Gests og Ásta Einars....ég er á leiðinni!!!!

Eftir vinnu í dag ætlum við fjölskyldan að bruna norður í Skagafjörð, ætlum að dvelja þar í eins og tvo daga. Það spáir ekki vel fyrir morgundaginn en það gæti verið að það viðri til skíðaiðkunnar á föstudaginn langa. Blogga eitthvað um helgina... gleðilega páska!

tíminn líđur....púst og ţunglyndisblogg!!!!

18. mars 2008 klukkan 15:24
Ég held ég sé þunglynd....kem engu í verk.....GARG!!!! Búin að þvælast um á netinu, finna allskonar heimildir lesa og lesa en kem engu á blað, hugurinn er úti um allt og ég næ ekki að fókusa, djös, ansk, djös!!!! Hef verið að velta fyrir mér að minnka VEL við mig í vinnu næsta vetur svo ég geti einbeitt mér betur að náminu.... EN það er bara svo mikið að gera í vinnunni, fyrir utan peninginn....ansk, djös, djös, ansk..... Núan er ég að hugsa um að fara í LAAAANGAN göngutúr og hugsa næstu skref.

Það segja margir að apríl verði langur því það er ekki nema einn "frí"dagur þ.e. sumardagurinn fyrsti.... Það sem ég hlakka til í apríl er að þá mun ég fara á tveggja daga ráðstefnu á Hvolsvelli þar sem ég mun deila herbergi með Rakel....ohhhh hvað það verður gaman, getum aldeilis rætt málin elsku kerlingin mín! Svo viku síðar verður árshátíð LBHÍ , þá verður aldeilis tjúttað!

Já, svona er líf mitt í dag, kem engu í verk en hugsa um það sem á að gerast einhverntímann púst, púst! Þetta er bara ekki ég, ég er ekki neikvæð eða leið, það er ekki minn stíll en ahhhh jæja, ekki orð um það meir, lofa því að þið fáið ekki svona blogg á morgun.

Fermingarþemasaumóinn er í kvöld og þá verð ég að vera búin að koma mér í betra skap...ég nenni ekki þessu bulli!

grrrrrrrr!

18. mars 2008 klukkan 08:30
Stjörnuspá dagsins af mbl.is:
Vatnsberi:
Það er eitthvað sem ekki gengur upp í áætluninni. Stundum fara hugmyndir þínar ekki saman við raunveruleikann. Reyndu að aðlaga þær.
grrrrrrrr, ohhh í alvöru, trúi þessu ekki...grrr!!!
Ég er komin með "vorveikina" hún lýsir sér þannig að ég er ólýsanlega þreytt á morgnana - held það sé uppsöfnuð þreyta af völdum vetrarins sem brýst svona út. Þetta henti mig líka í fyrra en þá er bara eitt í stöðunni - það er að hvíla sig vel um páskana. Það mun ég að sjálfsögðu gera þegar við verðum komin að norðan, búin að fara á skíði. Talandi um skíði, spáin er víst ekkert mjög spennandi fyrir fimmtudaginn en eitthvað skárri fyrir föstudaginn - GARG!
Jæja best að fara að vinna, eftir vinnu ætla ég í gönguferð eða út að skokka og svo er saumó í kvöld, við eigum að mæta með fermingarmyndir af okkur ....íha..!

sól sól skín á mig

16. mars 2008 klukkan 16:37
Hlæjandi Ég hætti snemma í vinnunni á föstudaginn, brunaði í Borgarnes og hitti Ingu Dóru klukkan 15:30, við fórum saman í ræktina, skokkuðum og lyftum, fórum svo í gufuna og enduðum í heita pottinum - ótrúlega fáir sem eru í salnum á þessum tíma - brilljant!
Helgin er búin að vera fín, mamma og pabbi komu á föstudagskvöldið og fóru í morgun.
Fórum öll á Ladda í gær og það var nú alveg meiriháttar. 
Dagurinn i dag..... eftir að hafa tekið smá göngutúr með Hauk og Þórði í morgunsárið fórum við í sund - hitti sundlaugarvigtina góðu, allt gott að frétta af þeim málum.

Nú þegar sólin er farin að sýna sig svona eins og hún hefur gert undanfarna daga verður maður svo fullur orku og ferskur. Mér finnst einhvernveginn að nú sé vorið að skella á..... er á meðan er! Það eru ekki nema rúmlega sex vikur í Skotlandsferðina og það finnst mér alveg ótrúlegt.
Páskarnir eru alveg að koma, ekki nema þrír vinnudagar í þessari viku og svo páskafrí, við ætlum að kíkja norður á skíði í tvo daga en vera heima hjá okkur á páskunum sjálfum. Ég þarf að gera skurk í náminu mínu og þá er rétt að nýta fríið eitthvað í það. Jú og svo vilja kannski einhverjir heimsækja okkur um páskana.....um að gera. Við erum ekki boðin í neina/r fermingu/ar þess páska, þannig að við erum ekki með neitt "plan" fyrir utan skíðaferðina góðu.

Jæja best að hætta þessu og reyna að nýta tímann í lærdóm.

föstudagsblogg

14. mars 2008 klukkan 11:37
Ekkert Despó, flugan verður að fá að taka smá tímia til að setjast ...eða ekki.... ég lá hins vegar yfir sjónvarpinu og horfði á danska Trúðinn - algjör ...tja veit ekki hvaða lýsingarorð hægt er að nota á hann Hlæjandi
Stjörnuspáin í dag er svona:
Vatnsberi: Það er ótrúlegt hversu hart þú leggur að sjálfum þér að taka framförum, þegar þú tekur öðrum með öllum þeirra kostum og göllum. Þú mátt líka taka þinn tíma.
Jamm ég veit Skömmustulegur ótrúlegt hvað ég hef mikið langlundargeð stundum - Öskrandi

Að öðru - mamma og pabbi eru að koma í kvöld, við ætlum með þeim suður á morgun og sjá Ladda (sýninguna). Hlökkum mikið til, síðan ætlum við að sjá "Þið munið hann Jörund" sem er verið að sýna í Logalandi um þessar mundir .... hlakka líka mjög mikið til að sjá það
Glottandi

Góða helgi allir saman og gleðilega páska - þið sem eruð komin í páskafrí Hlæjandi

Tökum upp léttara hjal!

13. mars 2008 klukkan 09:24
Það er alveg greinilegt að lesendum mínum líkar ekki eitthvað væmið eða hugljúfar litlar sögur....engar athugasemdir.... þannig að í dag er það stjörnuspáin, sem er allt of langt síðan ég hef sett hér inn og reynt að túlka.
Vatnsberi: Líkami þinn þarf að hvílast, og hugur þinn þarf að vinna. Þú ert hugmyndasmiður dýrahringsins núna, svo það ætti ekki að reynast þér erfitt.
Aha, sko...í dag er fimmtudagur og þá leggst maður upp í sófa í kvöld og hvílir líkamann, horfir á sjónvarpið og hugsar upp kenningar er varða atburðarás "Aðþrengdra eiginkvenna". Algjör snilld! Reyndar er hugur minn sífellt að vinna - er t.d. núna að fara yfir ritgerðir nemenda minna, búin að fara eina umferð og er að fara yfir í annað sinn til að fullvissa mig um að ég sé að gefa rétt og sanngjarnt fyrir Glottandi 
Síðan er ein fluga búin að vera sveimandi yfir höfði mér í nokkra daga....veit ekki hvort hún hefur kjark til að setjast eða ég kjark til að leyfa henni að setjast!! .....flókið - en hér tala ég undir rós - læt ekkert uppi fyrr en hún sest endanlega.... eða kannski hristi ég hana af mér eins og ég geri oft með svona flugur...en þessi er ekkert óraunhæf, þetta snýst ekki um að ganga á Norðurpólinn eða neitt svoleiðis...nei, nú er ég raunhæf... (og líka betri helmingurinn).

stöldrum ađeins viđ....

12. mars 2008 klukkan 09:35

Fór ekki út að hlaupa í gær, var að vinna til rúmlega sjö og þá var ég ekki í stuði til að skokka.... við borðuðum og svo kúrði ég með litla stubb.
Dagurinn í dag byrjaði vel, fór út um hálf sjö og skokkaði hringinn ásamt Höllu (löbbuðum líka slatta....tölum svo mikið skooo!!).

Set hérna inn litla sögu til umhugsunar. 
 
Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað.
Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli. Síðan
bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og skrifa það
fyrir neðan nafnið. Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau blöðunum til
kennarans sem fór með þetta heim og bjó til lista yfir hvern nemanda og
safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.
Síðan fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir. Þegar þeir lásu
þetta urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu
skrifað. Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu
máli. Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða
við foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu
ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.
 
Lífið hélt áfram.
 
Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn ákvað að
vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til hennar og
spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði talað
mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna
henni svolítið. Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var
það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn
hafði fengið honum fyrir mörgum árum. "Þakka þér fyrir að gera þetta, því
eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli" sagði móðir Magnúsar.
Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt
þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af því
sem þeim þótti vænst um.
Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún niður og grét, bæði syrgði
hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa snert nemendur sína með
þessu uppátæki.
 
Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að lífið
endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður.
Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu þér
mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér. Gerðu það oft áður en það
verður of seint.

Sýndu að þér er annt um vini þína. Mundu að þú uppskerð

eins og þú sáir. Mundu að þú ert mikilvægur einhverjum.
Vona að dagurinn verði þér fínn og sérstakur því þú skiptir miklu máli.

Knúskveðjur frá mér Koss Eigið góðan dag.

Ţriđjudagsskrítla

11. mars 2008 klukkan 12:01
Kraftaverk salernispappírs

Hrein og fersk  eftir sturtu, stóð ég framanvið spegilinn, ég virti fyrir
mér brjóstin á mér og að vanda kvartaði ég yfir því hvað þau eru smá! Í
stað
venjulega svarsins um að brjóstin á mér væru  ekkert smá, breytti maðurinn
minn út af venjunni og kom með  tillögu.

"Viljir þú að brjóstin stækki, skaltu daglega nudda  salernispappír á
milli þeirra í nokkrar sekúndur."

Þar sem að ég  vildi reyna hvað sem væri, sótti ég mér blað af
salernispappír og stóð síðan  framan við spegilinn, nuddandi því á
milli brjóstanna  minna.

"Hvað þarf ég að gera þetta oft"  Spurði  ég.

"Þau munu vaxa þeim mun meira sem þú gerir þetta oftar,"  svaraði kallinn
minn.

Ég hætti.

"Trúirðu því virkilega  að mér nægi að nudda klósettpappír á milli
brjóstanna daglega til þess að fá  þau til að stækka?"


Án þess að líta upp svaraði  hann,
"Virkaði á rassinn á þér, ekki satt?"


Hann lifir enn og með mikilli sjúkrameðferð getur verið að hann gangi
á ný, jafnvel þótt hann muni áfram fá sína næringu um strá.

Heimski,  heimski karl.

í upphafi nýrrar vinnuviku

10. mars 2008 klukkan 09:36
Búin að búa til nýja undirsíðu sem heitir "hreyfingaráætlun + öll hreyfing skráð". Þetta er einskonar aðhald fyrir mig sem virkar vel Glottandi Í gær fórum við í sund sem er ekki í frásögu færandi en ég skellti mér á vinkonu mína hana íþróttahúsvigt og ég er lítið eitt þyngri en ég vil vera..hmhmhmhm 69,5 kg. markmiðið var að fara ekki yfir 68 þannig að nú ætla ég að taka mig á í mataræðinu, skrá allt niður sem ég læt ofan í mig og halda vel utan um þetta allt saman!
Vikan leggst vel í mig, úti er frost, logn og sól - getur ekki verið betra.
Í kvöld er FAK fundur ó jeeeee.....

sunnudagsblogg

09. mars 2008 klukkan 16:03
Ég ætlaði bara að láta vita af mér.
Þessar helgar eru alveg ótrúlega fljótar að líða alltaf hreint. Tókum smá göngutúr í gær og í dag, slökuðum á í sundi um hádegisbil og enduðum í bakaríinu góða hjá Geira.
Fór á fund í gær sem ég hélt að þýddi ekki nema MAX 3 tíma fjarveru frá fjölskyldunni en það var nú gott betur en það 4,5 klukkutíma fóru í fundahöld. Stefán Snær fór til Reykjavíkur í heimsókntil föðurbróður síns og svo er pabbi hans væntanlegur í dag - mjög mikið fjör þar semsagt. Núna er stefnan að fara yfir eins og 16 ritgerðir - gaman, gaman....... já svo er ég víst í skóla....... En fyrst ætlum við Þórður Logi í smá göngutúr Glottandi

Svo hér er smá ...spes fyrir Hjördísi, óhreinatauskarfan er full eina ferðina ENN!!

Bilun .....

06. mars 2008 klukkan 20:03
Það er ekkert alvarleg bilun, ég get bara ekki fært samviskulega inn í "Hreyfingartöfluna" mína hér til hliðar - ég skokkaði áðan hringinn (4,5 km), gekk reyndar hluta af honum þar sem ég er illa haldin af mánaðarlegu heimsókninni Skömmustulegur

hvíld og streyta

05. mars 2008 klukkan 17:55
Ég hef verið að lesa það á bloggum allt í kring og líka orðið vör við það hjá fólki sem ég hitti t.d. í vinnunni að það eru allir orkulausir og þreyttir. Fólki finnst það ekki vera að ná þeim árangri sem það vildi, eiginlega lýsi ég þessu best með að segja að það er eins og það vanti neista. Ég fór áðan í Borgarnes og í íþróttamiðstöðinni settist ég aðeins niður og fór að glugga í eitthvert fitness blað - þar voru margar fínar greinar t.d. ein um hvað streyta getur haft slæm áhrif á líkamann, konur sérstaklega fitna vegna einhvers hormóns sem ég man ekki hvað heitir. Önnur grein fjallaði um ofþjálfun og fjallað var um það hvað hvíld er nauðsynlegur partur í allri vellíðan - æfa 3-4 sinnum í viku - MAX!!! Það er allt í lagi að sleppa því að púla og skella sér bara í heita pottinn Glottandi Eins og ég áðan, ég fór ekkert í salinn að púla heldur fór ég í slökun í ljósabekknum... sem er reyndar stórhættulegt!!!...ekkert má!!
Ég hef alltaf haft seinna atriðið sem fjallað var um í þessu blaði til hliðsjónar og geri mér vel grein fyrir hvað hvíldin er mikilvæg en það að ætla sér of mikið vissi ég ekki að hefði svona mikil áhrif - ég vissi jú að streyta hefði áhrif en ekki svona mikil eins og sýnt var fram á í þeirri rannsókn sem vitnað var til t.d. þegar fólk er með allt of mikið á markmiðslistanum þá framkallar það streytu..... ekki það að markmiðin mín í baráttunni við aukakílóin hafi framkallað streytu (eða það finnst mér ekki) þá er það frekar álagið sem  er á mér í vinnu og í skóla sem er alls ekki gott.
Kæru átaksbloggarar og aðrir lesendur, slakið á, munið eftir hvíldinni og ekki ætla ykkur of mikið - ókey?

Hreyfa sig....og koma svo!!!!

04. mars 2008 klukkan 13:53
Í dag veð ég úr einu í annað í blogginu......
Ég hef ekki staðið mig nógu vel í hreyfingunni undanfarið..... og þó, fór í göngutúr á mánudaginn, skokk á þriðjudaginn og spinning á miðvikudaginn......svo í göngutúr í gær þá var sko mánudagur - tjahhh hvað er ég að röfla? Það er alls ekki slæmt að hreyfa sig þrisvar í viku - þó það mætti kannski vera dreifðara á vikuna en svona er þetta nú bara. Ég var búin að setja stefnuna á skokk í dag en mér sýnist veðrið ekki ætla að verða til friðs, rok og rigning úti - æi það er svona undir sæng veður Glottandi Ég er líka syfjuð og pakksödd en ég fór í hádeginu í mat til Ingu og Kela en í boði var saltkjöt og baunir mmmmmm.
En meira varðandi hreyfinguna en þá get ég sagt það í fréttum að ég er búin að kaupa mér árskort í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi sem þýðir að ég get farið í lyftingasalinn, í spinning og sund eins oft og ég vil í eitt ár og vitið þið hvað það kostar?? 25 þúsund krónur - legg ekki meira á ykkur - þetta er nú ekki svo mikið svo ég tali nú ekki um að stéttarfélögin eru mörg hver og bara flest sem ég veit um að styrkja meðlimi um eitthvað ákveðið á ári og minn styrkur fer langt með að dekka þetta. Nú er bara að vera duglegur að notfæra sér þetta. Ég ætla að halda mig við það að reyna að fara í spinning a.m.k. einu sinni í viku og síðan erum við fjölskyldan að fara 1-3 sinnum í viku í sund. Auk þess skokka ég tvisvar í viku og geng minnst einu sinni í viku - þá er ég komin með hreyfingu 4 sinnum í viku sem er fínt. Spinning tímarnir eru reyndar ekki alveg "hreinir" spinning tímar heldur er svona ca hálfur tíminn body pump (efri hluti líkamans) það er fínt þó mér finnist það að lyfta lóðum ekkert sérlega skemmtilegt en stundum þarf maður að gera það sem er ekki skemmtilegt Svalur

Svona lítur þetta út svona ca:
Mánudagur  Gönguferð
Þriðjudagur Skokk
Fimmtudagur Skokk
Laugard. eða miðvikud. Spinning/body pump

Við Skotlandsgöngukonur verðum svo að fara að vera duglegar að ganga eitthvað lengra og við verðum bara að fara að taka helgarnar í eitthvað svoleiðis. Svo veit ég að fleiri hafa áhuga að koma með í slíkar göngur sem búa hér á staðnum og í nágrenni svo það er bara um að gera að fara að "haska" sér af stað Glottandi
Það eru sko bara átta helgar til umráða fram að gönguferðinni í Skotlandi og þá er páskahelgin meðtalin. Já tíminn líður, ég verð áður en ég veit af úti í yndislegu umhverfi í skosku hálöndunum (nú er ég dreymin á svip)!

Hvað finnst ykkur um lokaþátt í forbrydelsen (glæpnum) úff, maður.....!!!!!!

ennţá í örblogginu!!!

03. mars 2008 klukkan 16:48
Ég nennti í Kringluna á laugardaginn og keypti mér tvo kjóla!!!! Annar er svartur, klassískur - árshátíðarkjóll og hinn er hvítur með smá svörtu - eiginlega ætlaður til að nota á kvöldin úti á Krít í sumar.....gat bara ekki sleppt því þar sem sá hvíti var hræódýr (3 þús).
Það er nóg að gera hjá mér Glottandi Skrifa meira síðar.

p.s. sé að ég er að fá allt upp í 30-40 heimsóknir á dag en það kvittar enginn!!!!!!!!!! Fýldur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.