Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Örblogg

27. febrúar 2008 klukkan 13:42
Kæru lesendur, þið verðið að fyrirgefa mér en ég hef lítinn tíma til að blogga á næstunni og því gef ég ykkur svona "örskýrslu"!
Í dag: - Vinna og undirbúa mig fyrir framsagnarnámskeið í KHÍ sem er á laugardaginn. Elda mat og þvo þvott.
Á morgun: - Fundur um "Grænsíðumál" í Reykjavík. Út að skokka og annað kvöld er Despó í sjónvarpinu.
Á föstudag: - á að vera í staðlotu en kemst líklega ekki vegna anna í vinnunni en við stöndum fyrir námskeiði sem mér ber siðferðileg skilda til að sitja. Föstudagskvöld, út að borða með þátttakendum á námskeiði + samstarfsmönnum og mökum.
Laugardagur: - framsagnarnámskeið í KHÍ frá kl 8:30 til 16:00. Þar á eftir búðarráp (ef ég nenni) í Kringlunni.
Sunnudagur: - slappa af fram að hádegi, fer í göngutúr eftir hádegið ef veður leyfir. Lokaþáttur í Forbrydelsen (Glæpnum) um kvöldið.
Mánudagur: - ný vinnuvika!!!!

Semsagt alveg nóg að gera á bænum!!!!
Jón Helgi frændi minn á afmæli í dag, jafngamall mér Glottandi Til hamingju!

göngum, göngum, göngum upp í gilið.....

25. febrúar 2008 klukkan 21:36
Það styttist í Skotlandsgönguna. Inga Dóra kíkti áðan og við örkuðum stóra hringinn í kuldanum brrrrrrrrr. Hún sagði mér að það væri fjölgun í gönguhópnum.....nei sko engin ólétt - heldur kemur ein svarfdælsk með okkur, æskuvinkona Ingu Dóru. Bara gaman Hlæjandi 

spinning, blóðfitumæling og kvöldið í kvöld

23. febrúar 2008 klukkan 15:42
Ég og Tedda skutluðumst í spinningtíma í morgun (eurovisionþema) svaka stuð. Eftir það fórum við á heilsugæslustöðina þar sem boðið var upp á blóðfitu- og blóðþrýstingsmælingu. Ég kom vel út úr blóðþrýstingnum en blóðfitan mætti alveg vera lægri, mældist 4,97 en er æskilegt í kring um 4 (miðað við minn aldur). Þetta er samt alveg í lagi en ég hef þetta á bak við eyrað. Hefði verið forvitnilegt að vita hvert blóðfitugildið hafi verið í byrjun september 2006 þegar ég var að byrja að umbylta mataræðinu.

Síðan er stóra kvöldið í kvöld..........GÓÐA SKEMMTUN, ALLIR!

Spenningur......!!!

22. febrúar 2008 klukkan 09:04
Á morgun, laugardaginn 23. febrúar nánar tiltekið klukkan 20:10 mun ég sitja límd við sjónvarpsskjáinn. Það er fyrsti í júróvísjón þetta árið eins og ég kalla það, þá veljum við okkar framlag í þessa stórskemmtilegu keppni sem maður þarf að horfa á með ákveðnu hugarfari - tja og húmor.
Lögin þetta árið eru öll ágæt og geta öll sómt sér vel sem okkar framlag, ég held samt ef dr. Sposk fer þá verði ég að verða mér út um gleðipillur.... svo ég segi nú ekki annað. Hins vegar er alveg ljóst að lögin sem keppa annað kvöld eru öll misvel til þess fallin að fara í þessa keppni en ég veðja á að "Fullkomið líf" með Reginu og Friðrik eða "Ho ho ho we say hey hey hey" með Merzedes Club muni standa uppi sem sigurvegarar kvöldsins.
Lagið "Don´t wake me up" sem Ragnheiður Gröndal syngur er hins vegar lagið mitt, mér finnst það alveg frábært en að sama skapi er það ekki þetta týpíska júróvísjónlag og ekki heppilegt í keppnina þarna úti....

Já laugardagskvöldið verður afar áhugavert - hef ekki verið svona spennt fyrir úrslitum í keppninni hér heima í nokkur ár. Ótrúlega mörg góð lög þarna á ferð - held ég kaupi mér geisladiskinn, strax í dag!

Forvitin....ég...?

20. febrúar 2008 klukkan 14:08
Forvitnin á sér engin takmörk, ég hef náð að bæla forvitnisgenin niður í mörg, mörg ár...þ.e.a.s. óþarfaforvitnisgenin en nú ALVEG óvart þá var ég að vafra um og var að lesa blogg hjá ákveðinni manneskju sem var með link inn á  danska síðu og ég álpaðist til að opna og þar stóð  skírum stöfum... að "???" væri morðinginn í GLÆPNUM (Forbrydelsen).  Kom að mörgu leiti ekki á óvart en samt þó..... það var einkum eitt atriði í síðasta þætti sem gerði það að verkum að þessi aðili (karl/kona) varð sérlega tortryggileg/ur......jamm en þættirnir tveir sem eftir eru verða samt mjög spennandi, las samt á öðrum stað að maður væri skilinn eftir með allt of mörg spurningarmerki í lokin....þó að morðinginn finnist ... kræst af hverju þurfti svo hann Mayer að deyja...eða dó hann ekki.... hvað er með þennan Brix??? já og bara allir hinir?? ahhhhhh spennó!
Semsagt ástæðan fyrir því að ég blogga um þetta núna er til að koma í veg fyrir að ég geti ekki sagt í lokin..."já ég var búin að fatta þetta, búin að vita þetta síðan í fyrsta þætti....og lalala" og hugsa svo ansk...vitleysingar halda þau að ég sé svona vitur???
Forvitni er dyggð, ef hún væri ekki til staðar þá væri ég ekki stödd þar sem ég er í dag...og hananú!

ég átti afmæli í gær

19. febrúar 2008 klukkan 10:55
Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar!
Ég er sérlega ánægð með allar gömlu vinkonurnar sem muna eftir mér...Glottandi og allar nýju vinkonurnar þið eruð líka yndislegar.
Ég skokkaði hringinn en þó með smá labbi inn á milli - en iss þetta kemur.....Glottandi

Jæja núna er það bara vinna, vinna, vinna, læra, læra, læra og hugsa um heilsu og börn og bú..... þar til helgina 7. mars þá er stefnan sett á Akureyri en Stefán Snær er að fara að keppa í badmintoni þá helgi Hlæjandi
Jæja hef þetta ekki lengra að sinni, adios!

helgin senn á enda

17. febrúar 2008 klukkan 18:03
Badmintonmótið fór vel hjá eldri syninum, feðgarnir fóru í bítið í gærmorgun suður og komu aftur um kvöldmatarleitið. Við Þórður Logi höfðum það fínt á meðan, fórum í langan göngutúr, vorum úti að moka snjó (það litla sem eftir er í garðinum), drullumölluðum, kíktum til Sirrýar og skruppum í hesthúsin. Við höfum eitt stórum hluta dagsins í dag í sundi og afslöppun. 
Á morgun er svo dagur næsta markmiðs, ég ætla að skokka stóra hringinn án þess að labba neitt eða stoppa en þetta eru 4,5 km.
Annars sé ég fram á annasama viku í vinnu og kennslu - efni  vikunnar eru skaðar í skógum og megináherslan er á sjúkdóma og meindýr
 Brosandi
Njótið vikunnar sem framundan er.

helgi framundan

15. febrúar 2008 klukkan 09:26
Skokkaði í gær, farnir voru ríflega 5 kílómetrar Glottandi í golu og þéttum rigningarúða. Það var ekki þurr þráður á mér þegar ég kom heim, skellti mér í nokkrar magaæfingar og teygði vel á. Mikið var gott að borða kjúkling með girnó grænmeti á eftir. Þá tók við smá stærðfræðiupprifjun með Stefáni Snæ.
Despó var á sínum stað, Tedda mætti og við fengum okkur kakó og stroh.

Helgin framundan, Haukur og Stefán Snær fara á badmintonmót í Þorlákshöfn á morgun. Annars verður helgin bara tekin í rólegheitum, útivist og lærdómur.
Góða helgi!

Despó í kvöld....

14. febrúar 2008 klukkan 11:43
Skemmtikvöldið í gær stóð alveg undir væntingum, mjög skemmtilegt í alla staði.
Það er skokk seinnipartinn í dag - Haukur fer í skólann en bjargvætturinn minn hann Stefán Snær ætlar að passa á meðan ég skokka hringinn.
Kvöldið í kvöld verður líka alveg pottþétt skemmtilegt, Despó, kakó og stroh!!! Tedda ætlar að kíkja en loftnetið fauk af húsinu hennar í veðrinu um síðustu helgi þannig að hún sér ekkert sjónvarp EN verður að sjá Despó Hlæjandi

Afmæli og skemmtikvöld

13. febrúar 2008 klukkan 16:07

Edda á afmæli í dag, til hamingju með daginn Edda! Í tilefni dagsins var það eitt af fyrstu verkum Þórðar Loga í morgun að hringja í konuna og syngja: "húnáammæliidag edda...." drengurinn uppskar boð í afmælisköku núna seinnipartinn.
Sjötti bekkur í Grunnskóla Borgarfjarðar hefur boðið foreldrum á skemmtikvöld í kvöld í tilefni af útkomu blaðs sem þau hafa unnið að undanfarið, auk þess verða þau með leikþátt.....spennó Glottandi

púla, púla, púla!!

12. febrúar 2008 klukkan 15:58
Ég hef verið með hausinn á kafi í kennsluundirbúningi, ótrúlegt hvað þetta tekur langan tíma...þetta er meira púlið að vera kennari. Ég er alveg viss um að ég er að leggja meira á mig og eyði meiri tíma í þetta en ég fæ borgað fyrir... tja ef ég reikna þetta þá er ég að fá greitt ca 10 klst. á viku (svo mikið af því að ég er að kenna í fyrsta skiptið)  en ég kenni 4*40 á viku og þetta er bara 2 eininga fag. Framhaldsskólakennarar eru hvað að kenna ca 20-25 kennslustundir á viku og það á að rúmast innan 40 stunda vinnuviku!! Ekki séns að ég fatti þetta.

Jæja, best að njóta þess að loksins er LOGN og engin úrkoma - og fara út að skokka!

Sé að klukkan hér á blogginu er vitlaus.......klukkan er nákvæmlega 16:01 þegar þetta er skrifað.

ný vinnuvika á morgun

10. febrúar 2008 klukkan 22:09
Jæja, þá er þessi helgi senn á enda. Hef litið gert um helgina, allt fór á annan veg en ætlað var. Ekkert þorrablót - engin skíðaferð. Haukur var meira og minna að vinna í allan gærdag, við mæðginin hengum heima, þvoðum þvott, skruppum í pönnsur til Ingu og svo var "smíðað" eitt stykki snjóhús og virki úti í garði. Fékk lítinn frið til að læra eða vinna um helgina og er farin að sjá fram á annasama viku og kvöld EN það er alltaf eitthvað, HÞ á æfingu annað kvöld, HÞ fer suður í skólann á þriðjudagskvöld, bekkjarkvöld hjá SSF á miðvikudagskvöld og HÞ í skóla á fimmtudagskvöld....og ég að skila verkefni á föstudag sem ég er nú langt komin með en einhvernveginn þarf ég að finna tíma til að klára það. Síðan er SSF að keppa á móti um næstu helgi...FJÖR.

Það eru reyndar ein gleðitíðindi, ég er ekki lengur gjaldkeri badmintondeildarinnar!!!! Húrra, er held ég nærri búin að ganga frá lausum endum í því sambandi.

Var að lesa það einhversstaðar að það væri kuldapollur yfir okkur/landinu núna og það sem meira er að hann verður það líklega út mars!!!! Þannig að snjómokstur og vetrartíð er ekki nærri lokið. Þetta er reyndar gott fyrir gróðurinn þó maður sé nú hálfþreyttur á þessu. Ég fór í Borgarnes á föstudagsmorguninn á milli "veðra" það var reyndar andskoti hált og hvasst en samt var það besti tíminn til að fara... ég verslaði helling og fyllti á ísskápinn....  miðað við mjólkur, grænmetis og ávaxtamagn sem enn er til (ásamt matarbirgðum í frysti) þarf ég ekkert að versla fyrr en seinnipartinn í vikunni.

Matarmálin erum í ágætum gír en hreyfingin er ansi stopul vegna veðurs!!! Maður fer ekki út að skokka í yfir 20 metrum á sek eða  í snjókófi. Ekki kemst ég í morgunspinningtímana vegna snjómokstursins...... Vonandi verður veður til að skokka á morgun Glottandi Það má alltaf vera bjartsýnn! og sýnist ekki veita af!

Engin norðurferð

08. febrúar 2008 klukkan 18:31
Það er alveg með ólíkindum hvað veturinn hefur látið okkur hafa fyrir sér í þetta skiptið- enda bara ágætt. Það á að vera vetur þegar það er vetur og þá gerir maður þá kröfur til almættisins að það verði sumar í sumar!
Hér hefur verið gjörsamlega snarvitlaust veður síðustu daga, eins og víðast hvar á landinu.
Við förum (skiljanlega) ekki norður á skíði og á þorrablót, ætlum að taka því rólega hér heima um helgina. Ég fór ekki á fræðaþingið, var ekkert að brjótast suður í snarvitlausu veðri....ég er ekki "kjúklingur" heldur tel ég mig vera skinsama! Svalur
Jæja kjúllinn er í ofninum, ætla að skella fullt af grænmeti á pönnu (laukur, hvítkál, hvítlaukur), sjóða grjón og búa til sataysósu mmmmmmmm og kannski maður fái sér rauðvín með Óákveðinn
Góða helgi!

púff.....

07. febrúar 2008 klukkan 12:01
Góðan dag!
Í morgun fékk ég tölvupóst sem ég vil deila með ykkur:
opið bréf til biskups 
Einnig er hægt að lesa meira um málið
hér í lið 3.

Málið er mér skilt og mér er bara alls ekki sama!!!!


Annað fjölskyldutengt... Ragnar Karl annar tveggja skírnarbræðra minna er 34 ára í dag, við systkinabörnin fæddumst með 11 og síðan 9 daga millibili þ.e. 7. 18. og 27. feb. Til hamingju með afmælið frændi ef svo ólíklega vildi til að þú læsir þetta Svalur

miðvikudagsblogg

06. febrúar 2008 klukkan 14:22
Var að kenna í morgun og guð minn góður hvað ég var í litlu stuði....örugglega alveg hundleiðinlegt að hlusta á mig- ekki hægt að segja að áhuginn hafi skinið út úr andlitum nemenda minna! Var að kenna um vistfræði skóga og þau höfðu ekki mikinn áhuga á því, þessir krakkar vilja bara læra um hvernig ÞAU rækta skóg, eitthvað um vélar og tæki (græjur) ekki grunninn á bakvið sem er nauðsynlegt að skilja....

En hvað um það, á morgun byrjar fræðaþing landbúnaðarins á Hótel Sögu, þetta er tveggja daga þing og dagskráin pökkuð. Ég ætla reyndar bara á föstudaginn, kemst ekki á morgun, þarf að nýta tímann í að undirbúa kennslu og vera til staðar fyrir synina eftir klukkan hálf fimm en fimmtudagar eru skóladagar hjá Hauk mínum og þá þýðir ekkert fyrir mig að vera að þvælast fyrir sunnan.

Kannski sé ég Gamla svepp á fræðaþingi...? var á því í fyrra....

Þórður Logi er heima með pabba sínum í dag, gubbupest er að hrjá hann í dag, vonandi gengur það fljótt yfir.

Varðandi stjörnuspána þá skil ég ekki hvað er í gangi þar....
Vatnsberi: Þú ert beðinn um að samræmast öðrum, sem þýðir að þú skalt fara í öfuga átt. Eyddu tíma í að skrifa, biðja eða hugleiða til að finna þitt eigið sjónarhorn.
Í gær átti ég að láta verkin tala og hætta að hugleiða og skrifa, ætli það sé stjórnmálamaður sem semur stjörnuspána á mbl.is?

sprengidagur og bara smá "tjatt"

05. febrúar 2008 klukkan 09:15
Ótrúlega furðuleg þessi stjörnuspá....
Vatnsberi: Margt stórmenni hins ritaða orðs hefur virðukennt að það þarf að láta orðin tala. Hættu nú að dreyma, tala og skrifa - gerðu!
Á ég að hætta að skrifa....en það er vinnan mín núna....skrifa verkefni, skrifa skýrslur og skrifa fyrirlestra.... og hvað á ég svosem annað að gera?? Já, nú næ ég þessu - það er saumó í kvöld og ég er kannski ekki alveg búin að vera sú duglegasta í handavinnu á þessum vetri. Kannski ég prjóni vettlinga - tvöþúsund vettlingarnir mínir eru að verða gatslitnir (það eru vettlingar sem amma Hauks prjónaði árið 2000).
Svo er stjörnuspáin kannski vísbending um að ég eigi að hætta að slæpast við að blogga!!! (nei það held ég nú ekki).
Ég fór út að skokka í gær og eftir skokkið bauð ég fjölskyldunni (og Guddu systur sem kíkti við) upp á bollur. Í dag er sprengidagur og þá fer ég í hádeginu í saltkjöt og baunir til Ingu- það er hefð. Ég ætla að vinna eitthvað fram á kvöld, þarf að undirbúa kennslu og eitthvað fleira....
Annars er mataræðið á góðu róli og hreyfing og útivist er stór partur af mér. Við systur stefnum á skíðaferð í Tindastól á laugardag og e.t.v. líka á sunnudag ef veður leyfir...jamm og svo er þorrablót um næstu helgi Gráðugur
Eigið góðan dag!

alltaf sama fjörið

04. febrúar 2008 klukkan 14:58
Það eru:
324 dagar til jóla
199 dagar í ferðalag til Krítar
153 dagar í sumarfrí
87 dagar í gönguferð í skosku hálöndunum
45 dagar í páskafrí (skíðaferð norður)
5 dagar í skíðaferð í Tindastól
5 dagar í þorrablót fyrrverandi  Hóla- og Viðvíkurhreppa
21 klukkutími í saltkjöt og baunir
2 1/2 klukkutími í bolludagsbollurnar
1 1/2 klukkutími í skokk

Sko það er alltaf eitthvað sem maður getur látið sér hlakka til
Hlæjandi

Uppskrift!!

03. febrúar 2008 klukkan 14:05
Göngutúrinn sem fara átti í - í gær varð að skíðagöngu. Það var ansi fínt og færið algjört æði. Núna er það læri-læri-læri, búin að ákveða að segja mig úr áfanganum: "Nám og þroski barna, unglinga og fullorðinna" þannig að vinnan hefur minnkað um 33% sem er nú ansi notalegt.

Í tilefni dagsins þá ætla ég að slengja hér inn uppskrift af einu ofboðslega góðu sem ég gerði í gær

Steiktur kjúklingur - heilsteikti kjúllann á hefðbundinn hátt.

Ofnabakaður kúrbítur 
Kúrbítur er sneiddur niður langsum. Hann er saltaður og olía sett yfir ásamt mörðum hvítlauk. Þetta er bakað í ofni í ca 15 mín.

Meira meðlæti
Annar kúrbítur er afhýddur og rifinn niður með kartöfluskrælara eða einhverju rifjárni. Borinn fram með (semsagt hrátt)

Sósan:
1 epli
1/2 bolli sólþurrkaðir tómatar
olía (nokkrar msk)
dill
oregano
steinselja
pipar
jurtasalt
ca 1 msk sítrónusafi
1 hvítlauksrif (marið)
Allt tekið og mixað saman í blandara.

Verði ykkur að góðu!

Jæja best að hætta þessu hangsi og halda áfram, svo verður maður að slengja rjóma á nokkrar bollur fyrir morgundaginn og kannski skellir maður oetker búðingi á nokkrar Ullandi

brrrrrrrrunakuldi

02. febrúar 2008 klukkan 09:56

Á opinberum mæli Veðurstofu Íslands sem er staðsettur hér á Hvanneyri var 19 gráðu frost klukkan 9 í morgun!!! Þrátt fyrir það ætla ég ásamt Þórunni Harðar að fara út og ganga stóra hringinn - maður dúðar sig bara vel, það eru ullarnærföt sem blífa við þessar aðstæður auk, lopapeysu, snjógalla, þykkum trefli, nokkrum lögum af vettlingum, húfum og ullarsokkum!
Opinberlega er þessi göngutúr farinn vegna undirbúnings vegna Skotlandsgöngu, jamm sko í gær voru nákvæmlega þrír mánuðir í þann atburð....ohhh hvað það verður gaman.
Enn og aftur takk fyrir kommentin konur, þið eruð alveg yndislegar og Silla þetta er jú málið - þú þekkir það ansi vel.

Takk!

01. febrúar 2008 klukkan 12:15
Þið eruð alveg frábærar, takk fyrir kommentin, símhringingar og msn spjall!
Þó ég hafi sagt að ég tæki ákvörðunina um helgina þá er ég eiginlega búin að því....... nenni svo sjaldan að hanga með svona ákvarðanir.
Ég held ég segi mig úr þroskasálfræðinni - vil ekki gera þetta með annarri hendi, þegar maður er kominn með 9,5 í einkunabókina þá sættir maður sig ekki við einhverjar rusleinkunnir! Jamm, svo ég monti mig smá þá var ég ein af 10 sem fékk 9,5 í lokaeinkunn fyrir kúrsinn fyrir áramót - við vorum 63 sem kláruðum.
Markmiðið er semsagt að vera komin með  kennsluréttindi og hálfa leið í master vorið 2010 Glottandi

Fór út að skokka í kuldanum í gær, það var frábært.
Helgin framundan, útivist og lærdómur er "þemað".
Guðrún litla systir er að koma á mánudaginn hún er að fara á fund í sambandi við verkefnið "Beint frá býli" en hún starfar hjá sveitarfélaginu Skagafirði í "matarkistunni"en það er svona matarverkefni.....jú sí!
Það verður semsagt fjör í bolludagskaffi á mánudaginn......Hlæjandi

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.