Janúar er búinn að vera erfiður mánuður
Ég er í 90% vinnu hjá Vesturlandssógum (tímabundið í 90% jan-apríl)
Ég kenni tveggja eininga áfanga í Landbúnaðarháskólanum, ca 10-15% vinna
Ég er sjálf í Kennaraháksólanum að taka 10 einingar, ca 66% vinna
Vinnan sem ég er í er: 90+15+66=171%
Auk þess....
á ég tvo syni 2 og 12 ára
mann sem er í fullri vinnu + það að vera að vinna extra mikið vegna ófærðar sem er búin að vera viðloðandi í meira en mánuð, sem þýðir eiginlega 200% vinna + það að vera í námi sem hann er að klára á þessari önn, jibbí!
Við eigum heimili með öllu sem fylgir því, við reynum að stunda heilsurækt, hvort fyrir sig tvisvar í viku.
Ég er í tveimur stjórnum en er sem betur fer að fara að fá mig lausa vonandi í næstu viku úr annarri þeirra.
Já, janúar hefur verið erfiður og mjög mikið álag á okkur öllum.
Er þetta heilbrigt......ég veit ég er í svartsýniskasti en er þetta þess virði? Um helgina mun ég taka ákvörðun varðandi námið, minnka það niður í 5 einingar - ég verð þá bara lengur að þessu. Við erum ekki það rík að við getum leyft okkur að ég geti minnkað vinnuna niður í 40-50% hvað þá að ég taki mér frí frá vinnu í eitt ár til að klára námið, nei ég verð bara að reikna með að taka það á þremur árum.... En eins og ég segi, ég ákvað í gærkvöld að pæla í þessu um helgina.
......EN svo áðan þá las ég stjörnuspána (mbl.is) og þetta þykir mér alveg ótrúlegt.....ekki það að ég láti stjörnuspár stjórna lífi mínu:
Vatnsberi: Þín tegund bjartsýni er blind - það er betra en fullkomin sjón. Þannig sérðu meira en aðrir í aðstæðum. Gerðu ráð fyrir að allt munu ganga upp og það mun.
Hvað er málið.......?
ó sólemíóóó!!!
Núna er sá árstími að koma þegar flestir þurfa að fara að ákveða sumarfríið, Haukur kom með blað þess efnis heim úr vinnunni í vikunni. Það er allavega ljóst að hann VERÐUR í viku fríi í júlí og aðra viku í ágúst, hitt kemur síðan bara í ljós í mars þegar yfirmaðurinn verður búinn að púsla. Svo verður Þórður í 4 vikna samfelldu fríi og svo aftur í vikufríi þarna í ágúst, Stefán talar um að fara norður í sveitina í sumar og ætli ég verði ekki bara í fríi þegar Þórður er í fríi! Þá vitið þið það, öll fjölskyldan stefnir á sameiginlegt frí í viku í ágúst
Ég fer út að skokka á morgun, ekki spurning....kvefið fer að heyra sögunni til
þriðjudagspistill
Annars er þetta allt að koma hjá mér, ég er enn að sníta mér og ég held ég sé farin að sjá fyrir endann á því!
Ársreikningur badmintondeildarinnar er klár.... jebbs ekkert smá fegin
Jæja best að fara að gera eitthvað, þarf að vinna smá greinargerð vegna ákveðins verkefnis í vinnunni (sko aðalvinnunni).
Hafið góðan dag
Nýtt markmið!!!
Þið sem hafið fylgst með mér hér á blogginu eru sjálfsagt búnir að átta sig á að ég kem engu í verk nema ég setji mér markmið....já svona er ég nú bara!
Nú er vika síðan ég byrjaði í skokkhópnum (sem NB skokkar saman 2svar í viku) - nýja markmiðið tengist skokkhópnum, SKO þann 18. febrúar ætla ég að skokka (reyndar bara jogga mjög hægt) stóra hringinn hér á Hvanneyri. Upphafs og lokapunktur íþróttahöll Hvanneyrar. Með því að misnota aðstöðu mína hér í vinnunni og mæla vegalengdina í gis-inu þá eru þetta svo mikið sem 4445 metrar.
Þetta er markmið sem ég ætla að ná..... ![]()
dararraræ
Eftir að hafa borðað yfir mig, þá missti ég röddina og varð djö.... slöpp. Í dag er ég mikið hressari og bind vonir við að hámarki þessa krankleika hafi verið náð í gærkvöld! Held þetta sé ekki flensa sem hefur verið að herja á mig heldu ósköp venjulegt kvef.
Jæja, best að koma sér að verki, bókhald badmintondeildarinnar bíður....vonandi í síðast skipti - ef ég er heppin!
Þorrinn
Það er alveg ágætis veður núna í augnablikinu en ekkert víst að það verði lengi, það á víst að hvessa á morgun.
Í dag ætla ég að vinna á þvottafjallinu ógurlega, læra og ætli ég reyni ekki að laga aðeins til og þrífa eitthvað smá......húsmóðurtaktar
Í kvöld ætlum við að borða þorramat mmmmmmmmm!
Hvað er málið með þessa stjörnuspá??? (mbl.is 26.jan)
Vatnsberi: Vatnsberanum líkar ekki að bíða og er því eins og ískrandi hjól sem þarfnast smurningar. Bros og smávegis tiltal gerir gæfumuninn.
Er ég óþolinmóð...??? Hvað er í gangi?
Föstudagur
Því miður þá fær maður ekki að ráða hvernig hlutirnir fara. T.d. í dag verður elsku frænka og jafnaldra Hauks borin til grafar, fertug móðir fjagra barna og eiginkona. Blessuð sé minning hennar. Lífið er ekki sanngjarnt og svo er ég að kvarta yfir flensuskít. Úti er vitlaust veður og við sjáum ekki að við komumst að jarðaförinni sem er ferlegt, við á Hvanneyri og jarðaförin á Selfossi. Var að skoða sálmaskrána en hún er aðgengileg á heimasíðunni þeirra og það þyrmdi yfir mig. Það virðist þurfa svo mikið til að minna mann á að þakka fyrir allt sem maður hefur og það geri ég svo sannarlega.
Fögnum lífinu!
Flensuskítur
Við Þórður Logi erum spræk, sjö, níu, þrettán! Ég í vinnunni og hann í leikskólanum.
Dagurinn í dag er bara ósköp venjulegur vinnudagur, og svo á að læra eftir vinnu.
Þetta segir stjörnuspáin í dag:
Vatnsberi: Það sem þú segist ætla að gera er áríðandi, jafnvel þótt þú segir bara sjálfum þér það. Sérstaklega þá. Haltu öll loforðin sem þú gefur sjálfum þér.
Einmitt, ég ætla að vinna og læra í dag, það verður kjúlli matinn í kvöld og svo langar mig alveg óskaplega í spinning eða í einhverja hreyfingu í dag!
Eigið góðan dag
Skák og mát!
Ný borgarsjtórn...hvað ætli hún endist lengi?
Aðalmálið fór hins vegar ekkert mjög hátt, uppsagnirnar á Akranesi, sjá hér.
Af mér er allt gott, kenndi mínar fyrstu tvær kennslustundir í morgun. Fór út að skokka í gær.
skokkerískokk
Þannig að það sem eftir er vetrarins fer ég 2 sinnum í skokkhóp og 0-3 sinnum í spinning í viku. Þannig að reglubundin hreyfing verður aldrei sjaldnar en 2 sinnum og í allra mesta lagi 5 sinnum.
Held þetta sé alveg ágætt, maður verður að vera í góðu formi í Skotlandi í byrjun maí og svo allar hinar gönguferðirnar sem eru á teikniborðinu...uss, uss, uss.
Já og meira uss, uss, uss, er gjörsamlega með hreyfinguna á heilanum (þeir sem hafa ekki tekið eftir) og allar gönguferðirnar sem stefnt er á í sumar uss, uss, uss! Eigum við að ræða það eitthvað frekar? - nei ég hélt ekki! (mín er sko nýfarin að horfa á Næturvaktina á dvd og er BARA búin með þrjá fyrstu þættina....HEPPIN
Ekki slæm stjörnuspáin í dag.....
Vatnsberi: Þú ert sérfræðingur í að selja, þú getur jafnvel selt bjartsýni eða trú á mannkynið. Þú lýtur ekki framhjá staðreyndum en endurkastar þeim þannig að þær fái betri mynd á sig.
Er ekki í lagi?
Fer ekki á Kaffi Krók um helgina!!
Fyrir rúmlega tíu árum vann ég þar um helgar, þurfti svo að hætta þar þegar ég fór að vinna á sambýlii. Það var alltaf mikið fjör á okkur starfsfólkinu, mér er sérstaklega minnisstætt kvöldin/næturnar þegar við vorum búin að loka og þurftum að þrífa og gera allt fínt að þá voru græjurnar settar í botn og það var sungið með.... við vorum þarna ég, Arndís, Ásta Búa, María Björk og Svanfríður....... vá hvað það var mikið fjör hjá okkur
Í gær fór ég sem foreldri með nokkrum leikskólakennurum á stuttan fyrirlestur um tákn með tali - ótrúlega sniðugt. Þórður Logi er svolítið seinn til tals og það virðist vera að hann sé einn af þeim sem geti nýtt sér tákn með tali og þá þarf maður að vita eitthvað um hvað málið snýst. Því ekki notar hann það við þá sem kunna ekki eða nota það ekki á móti.
Jæja, það er föstudagur í dag. Í kvöld förum við fjölskyldan í matarboð þar sem þemað er indverskur matur. Ætla síðan að reyna að nýta helgina í námið - lesa eins og 1-2 kafla (eða bara summary-ið) í þroskasálfræðinni. Síðan þarf ég að undirbúa mig fyrir kennsluna í næstu viku.
Haukur og Stefán Snær eru að gæla við að fara suður til Reykjavíkur á morgun, Stefán Snær þarf að komast í TBR-húsið og kaupa sér nýjan badmintonspaða og eitthvert badmintondót fyrir afmælispeninginn. Einnig þarf hann að kíkja í eina búð svo hægt sé að klára að gera öskudagsbúninginn kláran.....betra að vera tímanlega í því. Svo er draumurinn að skella sér líka í bíó.
Við Þórður Logi verðum þá í rólegheitum heima og ég reyni að lesa....... Ég fer semsagt ekki norður um helgina á Kaffi Krók
stjörnuspáin í dag
Vatnsberi: Þú ert í laumi að hlakka til tíma þegar þú þarft ekki að gera það sem þú ert núna að gera. Já, sá dagur mun koma. En reyndu samt að njóta nú-sins.
Vá þetta á sko við....... ég hlakka til vorsins. Reyndar ætla ég ekki að kvarta, núna er mjög mikill snjór yfir öllu, bjart og sólin er farin að ná að gægjast hingað á milli fjallanna. Já ætla að njóta "nú-sins"!!
góður nætursvefn er málið
Annars verð ég að segja að ég er að lesa svo skemmtilega bók og mæli hér með "Þar sem vegurinn endar" eftir Hrafn Jökulsson - yndisleg bók.
Annars gengur lífið sinn vanagang hjá okkur - sem betur fer.
grrrrrr
Vatnsberi: Visst verkefni mun hanga yfir þér mánuðum saman ef þú brettir ekki upp ermarnar. Ef þig vantar félaga, eru vog og ljón upplögð.
Jæja og hvað segið þið um þetta??? Hvaða verkefni er þetta? Skólinn? Jú, hann hann kemur til með að hanga yfir mér næstu mánuðina, þyrfti að tékka á því hvort konurnar sem ætla að vera með mér í hóp í þroskasálfræðinni séu í "réttum" stjörnumerkjum
Saumó í kvöld - ahhh kannski ætti ég að vera heima að læra....??? ....nei, nei, verð bara duglegri núna seinnipartinn.
Hann á afmæli í dag!!!!
Núna kl 10:35 þann 14. janúar 2008 eru nákvæmlega 12 ár síðan Stefán Snær fæddist í þennan heim. Það voru heilmikil átök að koma honum í heiminn sem varð í og með til þess að ég lét ekkert hafa mig í frekari barneignir í níu ár.....án gríns - erfið upplifun í fyrstu fæðingu getur haft heilmikil áhrif á sálarífið.
EN gullmolinn komst í heiminn og hefur verið mér (og reyndar öllum) stoð og stytta í gegn um þykkt og þunnt frá því hann fæddist..... ekki lítið laggt á lítinn mann.
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN STEFÁN SNÆR
Afmælishelgi
Þetta hefur svo sannarlega verið afmælishelgi! Stefán Snær verður 12 ára á morgun og í tilefni af því var fullorðinskaffiboð hér í gær og í dag komu vinirnir í veislu......það hefur semsagt lítið farið fyrir hollustu um helgina. Gosdrykkir, súkkulaðikökur, pizzur, rjómabombur og snakk....jakk jakk, jakk!!!!!!!
Hæfileikar eða ekki....
Vatnsberi: Þótt þú fáir allt sem þú vilt, og virðingu í kjölfar viss afreks, þá er mjög áríðandi að þú gerir þér grein fyrir að þú ert mun meira en hæfileikar þínir.
Ókey!!! þá veit ég það.......þetta gæti brotið mig niður algjörlega - en kannski líka aukið sjálfstraustið - það er kannski ekki alslæmt að vera hæfileikalaus??? Eða er meiningin með þessu sú að ég þarf að hugsa um meira en það sem ég er góð í ...... t.d. hef ég ekki staðið mig sem húsmóðir undanfarið (þið ættuð að sjá þvottafjallið mitt) svo hefur ryksugan rykfallið inn í þvottahúsi, já og ekkert gengur mér að baka fyrir afmælið hans Stefáns og þar er ég með STÓRT samviskubit.
Jæja best að fara að vinna - verkefnin bíða eftir því að ég, þessi hæfileikalausa, klári þau!
Góða helgi.
10. janúar
Staðlotan búin
Við höfum haldið alveg ótrúlega vel á heilsuspöðunum - við höfum verið af fara í gönguferðir á kvöldin, stuttar en góðar. Ég segi við, því Haukur hefur verið að taka sig í gegn núna - semsagt sykurinn BURT!!!!!!
Ýmislegt framundan og sjónvarpsstjarnan.....
Helgin framundan gæti orðið annasöm.
Laugardagur: Jólaballinu sem átti að vera hér þann 30. des var frestað og verður á morgun, gömlu íslensku jólasveinarnir mæta og svo koma allir með eitthvað á hlaðborð.
Sunnudagur: Ég geri ráð fyrir að taka niður jólaskrautið og síðan ætlum við að borða hangikét með öllu tilheyrandi. Þá er væntanlega brenna rétt hjá Mótel Venus um kvöldið og vonandi verður bara veðrið skaplegt!!!
Eftir helgi er staðlota í skólanum, ég verð á fyrirlestrum í þroskasálfræði barna, unglinga og fullorðina á mánudag og á þriðjudag verður áherslan öll á kennslufræði greinasviða.
Í millitíðinni þarf ég að fara á fund á kaffihúsi einu í borginni þar sem skrafað verður um væntanlega gönguferð í skosku hálöndunum
Það verða semsagt nokkrar ferðirnar á milli Hvanneyrar og Reykjavíkur í næstu viku - ekki mjög spennandi! Ég ætla rétt að vona að veðrið verði almennilegt annars fer ég ekki fet!
En að allt allt öðru, sáuð þið Kastljósið í gær? Mæli með því að þið skoðið það á netinu, það var viðtal við Þórð, son Önnu Lísu (vinkonu) en hann fór með kvæði og rímur og spjallaði um goðafræði og forna kappa! Algjör snilld og alveg óhætt að kalla Þórð sjónvarpsstjörnu.
Stanslaus gleði og....klór í haus!
Þetta voru bóka, fata og dvd jól hjá Stefáni (og líka ipod-jól) - sex bækur komu og ég er í þann vegin að byrja að lesa eina þeirra "Rúnatákn" heitir hún.
Í gær eldaði ég fisk.....og það voru allir svo ánægðir með það
Núna er ég að undirbúa mig fyrir kennsluna en ég ætla að kenna tveggja eininga áfanga í bændadeild nú á vorönn, þessi áfangi heitir "nytjaskógrækt" púff og ég veit ekki hvernig ég á að geta haft allt þetta efni í aðeins tveggja eininga áfanga...klór í haus! Ég gæti tekið bara fyrir skógarvistfræði og ég færi létt með að fylla þennan kúrs bara með því efni......meira klór í haus!
GÓÐANN DAGINN 2008
Hér til vinstri á skjánum er undirsíða sem heitir "Árið 2008 - áramótaheit" Þar eru helstu markmið fyrir þetta ár.
En að öðru.....
Núna eru 120 dagar í gönguferðina í Skotlandi og því nauðsynlegt að fara að setja upp almennilegt æfingaplan. Reikna með að ég haldi spinningtímunum áfram ca 2svar í viku og bæti inn skokki og lyftingum 2svar í viku.
Spinning á mánudags og fimmtudagsmorgnum.
Skokk og lyftingar á þriðjudags og föstudagsmorgnum.
EF veður leyfir þá vil ég líka bæta inn göngutúr á laugardögum eða sunnudögum ca 4-5 km (stóri hringurinn).
Get eiginlega ekki hafið þetta prógramm fyrr en eftir næstu viku því ég er í staðlotu í skólanum á mánudag og þriðjudag. Semsagt mánudaginn 14 janúar (á afmælisdegi Stefáns Snæs) hefst æfingatímabilið formlega
Svo er það frétt dagsins - STEFÁN SNÆR KEMUR TIL LANDSINS Í DAG