Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Áramótin framundan

31. desember 2007 klukkan 16:50
Fyrir utan að þetta hafi verið átjól, þá hafa þetta verið sjónvarps, leti og bókajól. Ég er búin að lesa tvær bækur; Ösku og Harðskafa - mæli sérstaklega með Ösku. Fjórar aðrar bækur komu einnig; íslensk knattspyrna, hetjurnar okkar, fólkið í Skessuhorni og barkakýli úr tré sem er ljóðabók. EN það var ekki nóg, Haukur fór í morgun og gerði sér lítið fyrir og keypti bókina "Stiklað á stóru um næstum allt" eftir Bill Bryson og liggjum við yfir henni - skemmtileg bók sem þyrfti að vera til á hverju heimili. Eitthvað af bókun bíða Stefáns - gef ykkur skýrslu um það þegar hann verður kominn heim og búinn að opna restina af pökkunum.

Annars er þetta helst........:
Það er búið að panta afmælisferðina hans Hauks!!! Þeir sem vilja vita hvert og hvenær.......verða að hafa samband Brosandi
Kalkúninn er í ofninum og ég pensla hann samviskusamlega á 1/2 tíma fresti.
Stefán Snær lætur vel af sér í Baunalandi, kemur heim eftir tvo daga....jibbííí!
Framundan eru áramótin, áramótaheitið er næstum klárt (segi ykkur það í næstu bloggfærslu).
Hafið það annars gott!!! Læt heyra í mér á næsta ári Glottandi

millihátíđablogg!

28. desember 2007 klukkan 09:10
Jæja, við höfum haft það alveg aldeilis fínt hér á Hvanneyri um jólin. Ótrúlegt en hér voru hvít jól,frábært! Haukur þurfti að rjúka til og moka göturnar hér því það var bara kominn þónokkuð mikill snjór.
Fórum ekki mikið, Þórður var hálflasinn á jóladag svo við héldum okkur að mestu inni við. Við Þórður misstum því af hangikjötsveislunni á jóladagskvöld en okkur hafði verið boðið til Ingu og Kela, Haukur var okkar fulltrúi þar. 
Stefán Snær hefur það fínt í Danaveldi sem er bara gott en ég er svo eigingjörn og finnst vanta hluta af mér, kvíði hálfpartin fyrir áramótunum, við bara þrjú...... Ég er alltaf hálfklökk um áramótin, ég veit hvernig árið sem er að líða hefur verið og fram undan er ár sem ég veit ekkert hvernig verður....æi ég get ekki alveg lýst þessu með orðum en kannski skiljið þið hvað ég meina. En mér liggur við að segja að mér finnist mikilvægara að fjölskyldan sé saman á áramótunum.

Jólakveđja

21. desember 2007 klukkan 13:28
Kæru ættingjar og vinir.
Þá er enn eitt árið að líða, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Eins og gengur þá hefur árið 2007 verið ár sorgar og missis og gleði og hláturs. Já, svona er lífið og ekkert annað en að sætta sig við það eins og það er, muna að njóta líðandi stundar og horfa á björtu hliðarnar eins og Pollýanna.
Árið 2007 er í hugum fjölskyldumeðlima á Túngötu 19 ár ferðalaga og útivistar. Snemma á árinu var farið að huga að sumrinu. Haldinn var fjölskyldufundur og skrifuð niður markmið....já á tíu fjöll skyldi fara þetta árið!! Það var síðan í maíbyrjun að farið var á fyrsta fjallið og svo koll af kolli;

Varmalækjarmúli, Hestfjall, Brekkufjall, Hafnarfjall, Eldborg, Dragafell, Gvendarskál, Valahnjúkur og svo voru farnar gönguferðir upp fyrir Brekkufjallið (upp í Skarðsheiðina) og yfir Fimmvörðuháls. Stefán Snær fór ekki með yfir Fimmvörðuháls og Þórður Logi fór aðeins í eina fjallgöngu í sumar en stefnir á fleiri á næsta sumri! Markmiðið náðist ekki hjá fjölskyldunni en kennum við versta hausti sem komið hefur í manna minnum á Vesturlandi en frá ágústlokum og þar til í dag hefur gegnið á með roki og rigningu – ekkert gönguveður semsagt.

Haukur fór í fótboltaferð í mars með góðum vinum  Gísli Einars var skipuleggjandi ferðarinnar en hún var farin í tilefni af fertugsafmæli hans, farið var á tvo leiki West Ham- Middlesbro og Tottenham–Reading. Haukur sætti sig við að fara þó ekki væri um að ræða aðalliðið þ.e. Everton.
Um miðjan ágúst var farin ferð á vegum Vesturlandsskóga (vinnustaðurinn minn) með í för voru skógarbændur á Vesturlandi ásamt farastjóra og bílstjóra, alls 37 manns. Þetta var hin skemmtilegasta ferð. Þið sem hafið ekki komið til Skotlands – ég mæli með því. Held ég hafi aldrei náð að heillast að neinu landi eins og Skotlandi.....það er bara allt!

Um miðjan nóvember fórum við í helgarferð til Prag, með vinum okkar (Sollu og Ísgeir), aldeilis frábær ferð.

Við áttum frábæra daga í Flatey með góðum vinum þeim Þórunni og Sigurjóni. Þórður Logi fékk að fara á sjóinn og sá fullt af fuglum, fiskum, steinum, skeljum og ígulkerjum – mikil upplifun. Við vorum nokkra daga ásamt Teddu vinkonu og sonum í Grunnuvík í Jökulfjörðum það var alveg frábært. Við mælum með því. Á leiðinni úr og í Grunnuvík stoppuðum við á Brjánslæk hjá fjölskyldu Teddu. Aldeilis fínt frí þetta.Stefán Snær átti gott sumar með pabba sínum en þeir voru saman hér á landinu í góðan mánuð en eins og þið vitið býr pabbi hans ásamt fjölskyldu í Danmörku. Stefán Snær ætlar að vera þar yfir jól og áramót þetta árið og er mjög spenntur.Lítið er búið að plana næsta ár nema jú að við Haukur ætlum okkur í nokkra daga gönguferð hér á Íslandi (margt kemur til greina), ég fer í gönguferð með vinkonunum í Skotlandi og síðan á að fara eitthvert í tilefni af stórafmæli húsbóndans í haust, það er allt í mótun (Mallorca, Tenerife, Krít???)Stefán Snær er í 6. bekk og æfir badminton í frístundum og Þórður Logi er á leikskólanum Andabæ. Haukur vinnur alltaf hjá Landbúnaðarháskólanum og ég hjá Vesturlandsskógum. Haukur er að bæta við sig menntun í vélvikjun og klárar það í vor og ég byrjaði í kennsluréttindanámi við KHÍ í haust. Það er semsagt nóg að gera hjá okkur! 
Kæru vinir, við sendum ykkur okkar bestu óskir um gleðileg jól og gæfuríks komandi árs. Við þökkum allt gamalt og gott og vonandi sjáumst við sem flest á næsta ári. Það eru alltaf allir velkomnir til okkar!  Bestu kveðjur Sigga Júlla 

p.s. það er komið nýtt albúm sem heitir "Árið 2007" þar eru heilar fjórar myndir!!!!

síđasti vinnudagur fyrir jól

21. desember 2007 klukkan 08:54
Var mætt í vinnuna í morgun um hálf sjö, var að ná að klára ákveðið verkefni svo núna ætla ég að rölta heim á leið til að vekja Stefán en hann fer suður um hádegi og út til Danmerkur í kvöld. Skelli mér svo aftur í vinnuna og vinn til ca 4....og þá er JÓLAFRÍ!!!!!
Þið vitið ekki hvað ég á eftir að sakna Stefáns Snæs en ég hugga mig við það að þetta verður heilmikið ævintýri fyrir hann.
Ég á ekki eftir að gera neitt sérstakt fyrir jólin, bara taka smá til, þurrka af og skúra. Þannig að ég sé fram á að komast í laugardagsspinning og aðfangadagsspinning. Svo ætla ég bara að taka því rólega, álagið er búið að vera ansi mikið undanfarna mánuði og því nauðsynlegt að fá hvíld.

Jólakortaógöngur og skipulagsleysi!!!!!

20. desember 2007 klukkan 09:09
Ég dreif í að skrifa á jólakortin í gær, á síðustu stundu ens og svo ótrúlega oft áður. Ég er með allt of lítið skipulag á hlutunum þegar ég skrifa á kortin, ég er ekki með jólakortalista í tölvunni eða neitt svoleiðis.....nei nei ég er bara með gömlu kortin frá í fyrra. Þannig að þeir sem sendu okkur kort í fyrra fá kort núna. Nú brá mér heldur betur í brún því þegar ég var að skrifa á fínu kortin mín þá bara kláruðust þau!!!! Þannig að þeir sem eru svo ótrúlega óheppnir fá öðruvísi kort. Lærdómur: Alltaf að telja jólakortin frá því í fyrra áður en maður pantar jólakort EÐA gera fínan jólakortalista strax eftir áramót og byrja að skrifa á jólakortin í nóvember.

stjörnuspáin 18. des 2007

18. desember 2007 klukkan 08:25
Má til með að skella hérna inn stjörnuspá dagsins í dag (tekin af mbl.is):
Vatnsberi: Sköpun skipti heilastarfsemi þína miklu máli. Að vinna með tveim manneskjum sem fá frábærar hugmyndir gæti komið þér á hæsta tind heimsins.
Okey, þá veit ég það.....bíður einhver sig fram til að vinna með mér????

úthvíld og slök

17. desember 2007 klukkan 13:50

Ég er svo slök og úthvíld núna að það er ekki hemja!
Vorum í bústað um helgina sem var algjört æði....REYNDAR var ég lungan úr laugardeginum í félagsheimilinu Brún að undirbúa og vinna í erfidrykkju en það var líka bara gaman og lærdómsrík reynsla Hlæjandi já það þýðir ekki annað en að styðja sig við hana Pollýönnu Glottandi Feðgarnir ásamt Þórunni, Torfa og börnum skemmtu sér vel og vorum búin að elda dýrindis mat um kvöldið þegar ég kom dauðþreytt eftir trampið um daginn.

Hvað á ég svo eftir að gera fyrir jól??
Það er nú svosem ekkert sérstakt framundan núna, ætla að reyna að skrifa á blessuð jólakortin í kvöld og kannski að prufukeyra nýju fínu eldavélina mína sem ég var að kaupa núna í morgun Hlæjandi Búin að baka eina sort í þeirri gömlu bæti kannski tveimur sortum við ef ég nenni.....og þá í þeirri nýju Hlæjandi
Ég á eftir að kaupa þrjár jólagjafir og stefni að því að gera það fyrir helgi. Síðan eigum við eftir að kaupa jólatré, setja upp nokkrar seríur og versla í matinn.

Fór í spinning í morgun og ætla að vera sem mest "dönsk" þessa viku. Saumaklúbbskerlurnar ætla að koma til mín annað kvöld.....ætla að bjóða upp á eitthvað hollt og ekkert annað!

Sumarbústađaferđ um helgina

14. desember 2007 klukkan 14:23
Það er aldeilis rokið.....ætlar þetta engan endi að taka??

Jæja, hvað um það. Við fjölskyldan ásamt Torfa, Þórunni og börnum erum á leið  í sumarbústað í Norðtunguskógi, síðar í dag. Það er ekki nema hálftíma akstur héðan sem er kannski bara eins gott miðað við þetta blessaða rok.

Planið fyrir helgina er svona: Í kvöld verður skelfisksúpa, annað kvöld verður grillað læri, þess á milli verður brauðmeti og ávextir á boðstólum.

Potturinn verður nýttur til hins ítrasta og svo verður bara slakað á í skjóli hárra trjáa.

Eigið góða helgi og ekki láta jólastressið ná tökum á ykkur
Glottandi Mitt plan er að njóta líðandi stundar - ekkert stress, nei takk!

ný uppskrift og daglegt líf...

13. desember 2007 klukkan 09:48

Við fjölskyldan fórum öll í klippingu til Kötu, það má segja að mesti munurinn var á Þórði, hann breyttist allt í einu í fullorðinslegt tveggja ára barn - algjört krútt!
Stefán keypti nokkrar jólagjafir handa systkinum sínum en hann verður hjá pabba sínum í Danmörku yfir jól og áramót. Við hin eigum eftir að sakna hans mikið um jólin en það jákvæða við þetta er það að hann heldur sambandi við pabba sinn og systkini svo og dönsku fjölskylduna. Það er mjög dýrmætt.

Ég hef ákveðið að breyta aðeins til í vinnunni eftir áramót, minnka aðeins við mig hjá Vesturlandsskógum og fer að kenna einn áfanga í Landbúnaðarháskólanum (bændadeild). Það gæti verið mjög dýrmæt reynsla fyrir mig og kemur sér líka vel þar sem ég verð í kúrsi í Kennó sem heitir "kennslufræði greinasviða". Talandi um Kennó, ég er skráð í tvo kúrsa eftir áramót - alltaf nóg að gera hjá mér. Ég býð enn eftir einkunum úr tveimur verkefnum og prófinu....það skilar sér vonandi fyrir áramót.

Ég fór í spinning í morgun, mataræði er á ágætu róli....eða svoleiðis....fékk mér súkkulaððibrownies hjá Teddu í gær.....arg arg!!

Kata hárgreiðslukona sagði mér frá "hollu" nammi sem hún býr til fyrir jólin:
Kókosolía, agavesýróp og kakó(lífrænt) sett í jöfnum hlutföllum í pott og brætt saman. Sett í konfektform og hnetum eða möndlum stungið í - fryst. Það má einnig setja kornfleks (lífrænt) út í og setja þá gumsið í muffinsform. Það er mjög mikilvægt að geyma þessar kökur eða konfekt í frysti.

Dagurinn í dag:
Mm: 1 glas fjörmjólk, brauð með osti, 2 mandarínur.
Hm: Grafinn lax, brauð, grænmeti.
Km: Steiktur kjúlli, rófufranskar.
Afgangur af mjólkurskammti, ávöxtum og fitu hér og þar yfir daginn.

strengir, bakstur og danskir dagar!!!

12. desember 2007 klukkan 14:33
Já, ég er með strengi! Í spinning tímanum í gær fórum við reglulega af hjólunum og lyftum.....sem hefur haft þessar afleiðingar. Ef ég ætla að lyfta upp höndunum þá finn ég bara fyrir eymslum.....sem er vissulega bara gott því það merkir að æfingarnar eru að virka Hlæjandi Var einmitt að sms-ast við Þórunni Harðar og hún er líka með strengi. Við förum nenfilega tvær saman á morgnana í spinning, þýðir ekkert annað en að æfa fyrir Skotlandsgönguna Hlæjandi
Bakaði piparjúnkur í gær, körlunum mínum til mikillar ánægju - Haukur var að tala um að hann vildi fá lagtertu, ég hvatti hann til að baka hana sjálfur...hehehehe....sjáum til hvort hann taki þeirri áskorun. Ég ætla mér að baka sörurnar eins og ég er vön að gera og svo gæti verið að láti tilleiðast og baki hálfmána....en það kemur svo bara í ljós hvort ég láti verða af þessu. Ég heyrði af einni ungri húsmóður hér á Hvanneyri sem er búin að baka 8 sortir og ætlar að bæta öðrum 8 við!! Mér sem fannst mamma vera búin að standa sig svo vel, bara 11 sortir þar á bæ!!!
EN ég held mig við þann danska (verð að eiga eitthvað "inni" um jólin).
Mm: Cherios, fjörmjólk, 2 mandarínur.
Hm: Brauð, ostur, grænmeti.
Km: Kjúlli og grænmeti.
Rest af ávöxtum, fitu og mjólk hér og þar yfir daginn Gráðugur

Rok, seríur, spinning og danskur dagur

11. desember 2007 klukkan 09:59

Í gær voru settar upp jólaseríur í herbergjum drengjanna, þeir voru kátir með það. Er fegin að hafa ekki verið búin að setja mikið af útiseríum upp því þær hefðu nú varla náð að lafa á trjánum, þvílíkt rok í gærkvöldi og nótt!!
Dagurinn í dag Brosandi
Spinning í morgun, danskur dagur í dag...
Mm: 1 fjörmjólkurglas, brauðsneið með osti, 2 mandarínur.
Hm: Skyrdrykkur, grænmeti.
Km: Fiskur og grænmeti.
Ávextir, mjólk og fita hér og þar yfir daginn.

engin bloggframmistađa...

10. desember 2007 klukkan 09:38

Það er langt síðan þetta hefur gerst hjá mér, næstum vika síðan ég bloggaði síðast...össössössöss! Það hefur bara verið brjálað að gera undanfarna daga. Síðasta vika fór að mestu í undirbúning fyrir próf. Braut prófalesturinn upp og bauð  eldri syninum með mér á tónleika á fimmtudagskvöldið með Freyjukórnum, Páli Óskari og Moniku....frábærir tónleikar, keyptum jóladiskinn með þeim Páli og Moniku og síðan nýja diskinn með Páli.....fengum þá áritaðaGlottandi
Prófið var síðan á föstudag og það gekk bara mjög vel. Um helgina fórum við norður í Skagafjörð, gerðum laufabrauð hjá forledrum mínum (heilar 300 kökur), kíktum í heimsóknir og átum á okkur gat.
Vikan framundan verður dönsk.
Dagurinn í dag:
Mm: Brauð með osti, 2 mandarínur, 1 fjörmjólkurglas.
Hm: Grænmeti, skyrdrykkur.
Km: Hakk, grænmeti.
Rest af ávöxtum, mjólk og fitu hér og þar yfir daginn.

sykur ojojojojojojojojoj!

04. desember 2007 klukkan 18:44
Ég er nú ekkert svo skipulögð Anna Lísa (sjá komment við síðustu færslu).
Það er bara svo skrítið að ef ég skrifa eitthvað hér inn, hvað ég ætla að gera þá geri ég það...... þyrfti t.d. að skrifa hér að ég sé með ofnæmi fyrir sykri, að hann sé beinlínis banvænn EN ég geri það ekki því ég er á sætindaflippi núna. Mér líður eins og ég sé að bæta þvílíku á mig þessa dagana...."gleymi" að fara á vigtina í íþróttahúsinu....það er sko ekki í lagi með mann! Svo segi ég alltaf, nei nú er það 100% dagur og ok ég næ alveg 100% dönskum dögum en svo er það þessi bannsetti sykur - af hverju fæ ég mér alltaf....það er ekki eins og hann sé að fara eitthvað rosalega vel í mig, maginn í rugli og andlitið á mér er eins og á fílamanninum öll í rauðum flekkjum og upphleyptum í þokkabót... sem er bein afleiðing sykuráts.........HMHMHM HHEY!!! ÞAÐ KVEIKNAÐI LJÓS - ÆTLI ÞETTA SÉU OFNÆMISVIÐBRÖGÐ...JESS!

Á morgun tek ég mér frí í vinnunni til að geta lesið í ró og næði, því prófið skal tekið með glans....ég ætti kannski að montast aðeins núna, það er komin einkun í einu verkefni...sem gildir 15% ... 9,0 var það og það hópaverkefni þar sem aðrir tveir hópar dæmdu verkið....þessi einkun er vel yfir meðaltali en það var 8,4.

Úff þetta er nú meira bloggið, veð úr einu í annað - sem er reyndar ekkert nýtt með mig Hlæjandi
EN!!! Hvernig lýst ykkur á nýja bannerinn minn?? Takk Ása Dóra fyrir hjálpina Koss

Vikan framundan.....

03. desember 2007 klukkan 11:31
Gerði allt sem ég ætlaði mér um helgina (sjá síðustu færslu) - lesturinn var samt helst til of lítill. Vikan verður annasöm, vinna og prófalestur sitt á hvað en svo fer ég reyndar með Stefáni Snæ á jólatónleika með Freyjukórnum, Páli Óskari og Moníku upp í Reykholtskirkju á fimmtudagskvöldið. Á föstudaginn er próf og ef veður og færð leyfa þá munum við bruna norður og gera laufabrauð með stórfjölskyldu minni á laugardaginn. Ætla svo að kíkja á Steinunni og fjölskyldu og líta nýja fjölskyldumeðliminn augum.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.