Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Helgin framundan

30. nóvember 2007 klukkan 11:27

* Kvöldið í kvöld, saumaklúbburinn hittist í bústað, ég ætla að elda dýrindis fiskisúpu, síðan föndrum við smá jólaskraut, blöðrum og bara skemmtum okkur. Ég ætla reyndar ekki að gista, verð að nýta morgundaginn vel til prófalesturs.
* Annað kvöld, við vinnufélagarnir ætlum að hittast ásamt mökum og börnum, borða saman hangikét með öllu tilheyrandi.
* Sunnudagurinn, um morguninn er jólaföndur foreldrafélagsins í leikskólanum. Seinnipartinn ætlum við fjöldkyldan til Sirrýjar og Júlla í árvissa konfektgerð.
* Inn á milli atburða mun ég lesa.

Stjörnuspáin:
Vatnsberi: Nú skal leggja höfuðið í bleyti. Burt með reglur og takmarkanir - og rökvísi! Kastaðu af þér hlekkjum tíma og rúms, hleyptu huganum á flug.
Þetta veit ég alveg hvað merkir....ég á að leyfa mér að hleypa huganum á flug í sambandi við pælingar mínar varðandi mastersnám....úff það er allt á fleygiferð í hausnum á mér,  það er svo margt í náttúrunni og umhverfinu sem á eftir að rannsaka.....það fór einhvern vegin allt á fleygiferð um síðustu helgi þegar ég spjallaði við Ásu Ara á námskeiðinu.....og það eru sko endalausir möguleikar, það er bara að láta vaða Svalur En fyrst klára ég kennsluréttindanámið en það verður í síðasta lagi vorið 2009.

dagurinn í dag...

29. nóvember 2007 klukkan 13:15
Fór í spinning í morgun, fersk og hress í dag.

Mataræðið:
Mm: Banani, brauð, ostur.
Mk: Appelsína.
Hm: Skyr, grænmeti.
Km: Gúllas, grænmeti.
Kk eða sk: Kanilepli, sýrður.

Stjörnuspáin á mbl.is:
Vatnsberi: Það sem hefur áhrif á fjölskyldu þína, hefur áhrif á þig - meira en nokkurn annan eins og er. Gerðu raunsæja áætlun. Ekki láta neitt standa þér fyrir þrifum.
Jamm, einn fyrir alla, allir fyrir einn!

kransagerð, ástandið á heimilinu og jólajólajóla.....

28. nóvember 2007 klukkan 08:46
Í gær fór ég suður í árlega kransagerð okkar skólasystranna síðan í háskóla. Byrjuðum á þessu þegar við vorum á öðru ári í náminu og þetta hefur verið fastur liður í aðdraganda jólanna æ síðan. Alveg nauðsynlegur partur þó stutt hafi verið í prófin, þá var tekinn frá ein dagur til að gera aðventukrans.
Það er ákveðin serímónía í kring um þetta, við hittumst hjá Elínu í Mosó, förum í Garðheima og verslum greni, kerti og bara hitt og þetta. Síðan er komið við í Mosfellsbakarí og við byrgjum okkur upp af næringu. Þegar komið er heim til Elínar fáum við okkur kaffi og brauð og síðan hefjumst við handa við kransagerðina. Skemmtileg stund sem ég gæti ekki sleppt. Við vorum reyndar vængbrotnar núna eins og í fyrra en Ingibjörg (sem býr í Mývatnssveit) komst ekki, s.s. skiljanlegt hún hefur nóg á sinni könnu í námi, kennslu og svo rekur hún kúabú, kjarnakona.

Dagurinn í gær er reyndar líka eftirminnilegur af öðrum sökum, Ofninn inni hjá Stefáni fór að leka eða öllu heldur gaf stykki sig sem liggur að ofninum, píparinn kom og lagfærði það. Þvottavélin bilaði í gær, ég er ekki eins glöð með það en Haukur telur að það sé reimin og er búinn að taka hana og ætlar að athuga með svoleiðis í dag...vona að hún sé til í Borgarnesi.

Þórður Logi kastaði upp í morgun og er bara hálf tuskulegur greyið, við hjónin skiptumst því á að vera heima hjá honum, ég stend vaktina fyrir hádegið síðan tekur Haukur við.

Ég er að komast í jólaskap, aðventukransinn er á borðinu, kippti einnig jólastjörnu með úr Garðheimum og síðan gerði ég eina netta borðskreytingu fyrir sprittkerti, tvær jólaseríur (sem gætu reyndar alveg verið árið um kring) voru settar upp í gærkvöld....þó mér finnist alveg nóg að byrja að setja svoleiðis upp fyrsta í aðventu ..... jæja en só?! Svona til að toppa jólaskapið þá verð ég að komast á ca eina jólatónleika, helst í Reykholtskirkju...sem er besta tónleikahús sem ég veit umBrosandi

af þyngd, hreyfingu og mataræði

27. nóvember 2007 klukkan 22:30
Ásta spurði hvort ég væri ekki komin í þá þyngd sem ég ætlaði mér... svar:
Jú, ég náði markmiðinu í júní og hef náð að halda mig við það þ.e. að fara ekki yfir 68 kg. Hins vegar hefur mér gengið hálf illa að koma mér í einhverja rútínu í sambandi við hreyfingu nú í haust, hef bara ekki fundið rétta taktinn. Matræðið hefur verið okey en ég hef reyndar slakað fullmikið á núna síðustu vikur(að mínu mati). Ég ætla mér ekki að missa tökin og þess vegna verð ég að halda mig við þann danska í það minnsta á virkum dögum. Ég fór reyndar til Prag um daginn og þar var maður ekki að pæla neitt í neinu, drakk bjórinn eins og ég fengi borgað fyrir það....þið skiljið!
Núna er ég búin að finna taktinn, ætla að mæta í spinning tvo til þrá morgna í viku og ganga tvisvar til þrisvar í viku. Það, plús danski á virkum dögum ætti að halda mér réttu megin við töluna 68. Ég tek það fram að ég hef ekki farið á vigtina nýlega en ég miða eingöngu við eina vigt og hún er staðsett í íþróttahúsinu.

ný vika

26. nóvember 2007 klukkan 08:25
Helgin var fín. Föstudagskvöldið var lítið frábrugðið öðrum föstudagskvöldum, ég lá í sófanum og dormaði yfir sjónvarpinu....ótrúlegt að ég náði þó að vaka yfir Barnaby lögreglumanni. Laugardagurinn fór í námskeið og um kvöldið fórum við á julefroskost á Hraunsnefi, get alveg mælt með þeim stað.
Sunnudagurinn fór að mestu leiti í að vinna á þvottafjallinu sem safnast hafði upp.
Dagurinn í dag byrjaði á ferskum spinningtíma í Borgarnesi og framundan er danskur dagurGlottandi
Matardagurinn......
Mm: Cherios, léttjógúrt, banani.
Hm: Tortilla með kjúlla og grænmeti.
Kvm: Fiskur og grænmeti.
Ávextir, mjólk og fita hér og þar yfir daginn.

Stjörnuspáin á mbl.is segir þetta......
Vatnsberi: Vanalega æsir þú þig ekki út af smámunum, en núna fara vissar upplýsingar í taugarnar á þér, svo þú veltir þér upp úr þeim þar til þú kemst að niðurstöðu.
Þá veit ég það, ég kemst semsagt að niðurstöðu, mér léttir!!

Pælið í því að í dag eru akkúrat fjórar vikur í aðfangadag!!!

Námskeið, lestur og bakstur

23. nóvember 2007 klukkan 15:21
Nóg að gera í dag, eftir nokkrar mínútur hefst námskeið fyrir skógarbændur, sem þýðir að ég verð að vinna til sjö  í kvöld og svo allan morgundaginn. Annað kvöld förum við á julefrokost að Hraunsnefi, hlakka mikið til og svo er stefnan sett á piparkökubakstur á sunnudag. Einnig er ætlunin að lesa slatta af köflum og greinum því það styttist óðum í próf en ég er komin með leslistann í hendurnar: ca 3-400 blaðsíður á íslensku og 2-250 bls á ensku EN ég er nú sem betur fer búin að lesa megnið af þessu en ég ætla mér að komast yfir þetta aftur....og það tekst! Tek það fram að þessi blaðsíðutöl eru ekki hárnákvæm Glottandi
Stefán er að keppa á badmintonmóti um helgina og er mjög spenntur yfir því.

Mögnuð byrjun á deginum

22. nóvember 2007 klukkan 09:33
Hæ, hó!
Vaknaði kl 6:15 í morgun, skellti mér í gallann, út að skafa bílinn, sótti Þórunni Harðar og við brunuðum í íþróttahúsið í Borgarnesi. Vorum mættar þar kl 6:45, hjóluðum og gerðum æfingar hjá Erlu spinningleiðbeinanda og það voru ótrúlega margir sem mættu, vorum örugglega tíu. Svo var bara sturta, í föt og brunað heim. Vorum komnar á Hvanneyri kl 8:05 þannig að þetta gekk allt upp, Þórunn byrjar að vinna kl 8:15 og ég er með sveigjanlegan vinnutíma Glottandi Morgunmaturinn tilbúinn í töskunni og nestið fyrir hádegið þannig að maður var pottþétt mættur í vinnuna kl 8:15. Já við ætlum að gera þetta í vetur, en auðvitað kemur að því að brjáluð veður geysa og allt það en þá gerum við eitthvað annað, skellum okkur í spinning seinnipartinn eða eitthvað. Ég verð rosalega ánægð ef ég næ að mæta í spinning minnst tvisvar í viku og ganga úti þrisvar í viku. Allt annað er plús.

Stjörnuspáin á Mbl.is segir þetta:
Vatnsberi: Þú ert sveigjanlegur og léttur í rekstri. Þú ert til í að samþykkja stutt og lifandi augnablik í stað skuldbindingu öryggisins. Það er sérlega aðlaðandi.

Hóst, hóst - ef ég væri einhleyp þá myndi ég túlka þetta þannig að ég væri lauslát en af því ég er gift og sérlega stapíl þá túlka ég þetta á þann veg að ég sé ekki með ....hmhmhm kaupæði...(léttur í rekstri)hehehhe Glottandi ég neyta að trúa því að þetta sé fyrirboði um það að ég ætli ekki að standa mig í spinninginu í vetur!!!
Aðrar túlkanir óskast!

Tiltekt

21. nóvember 2007 klukkan 17:49

Var aðeins að taka til hér á síðunni, bætti inn tenglum og tók aðra út.....látið mig vita ef þið viljið að ég bæti ykkur í tenglasafnið. Síðan faldi ég nokkrar undirsíður sem ég hef ekkert verið að nota undanfarið t.d. fjallgöngumarkmiðin og lyftingaprógrammið.

Miðvikudagur....

21. nóvember 2007 klukkan 09:01
Brrrrrrr brunakuldi úti en þó ekki nema 1°C frost og rakastigið 57% og eiginlega logn. EN alveg sama, það er KALT!
Maður er rétt komin heim úr utanlandsferð þá fer maður og græjar næstu, eða þannig - var búin að kaupa flug til Glasgow næsta vor og núna var ég að borga staðfestingargjald í gönguferðina....tararammm Svalur
Hef góða tilfinningu fyrir þessum degi og stjörnuspáin....sko hver er það sem semur hana??

Vatnsberi: Þáðu boð sem þú færð, jafnvel þótt þú sért þreyttur og í vondu skapi. Þú finnur orkuna og góða skapið við það að klæða þig upp.
Okey, þá veit ég það....ég bíð spennt...og í "vondu" skapi og svo innilega ekki þreytt!! Ullandi

Eitthvert bévítans rugl í gangi....

20. nóvember 2007 klukkan 18:51
...já, ætlaði að taka til á síðunni og breyta myndasíðunni....en það er eitthvert bévítans rugl í gangi, þannig að þið fáið ekkert að sjá nýjar ferðamyndir í dag. Á eftir að setja inn fullt af myndum frá sumrinu og líka auðvitað ferðinni til Skotlands og svo núna til Prag.....en seinna, vonandi gengur þetta í kvöld eða á morgun Glottandi

Framundan er þetta helst.....

20. nóvember 2007 klukkan 11:36
Jæja, þá er alvaran tekin við. Nóg að gera í vinnunni og svo er ýmislegt framundan.
Ø      Námskeið í vinnunni á föstudag og laugardag, semsagt vinna
Ø      Jólahlaðborð á Hraunsnefi á laugardagskvöld - barnapía óskast!!
Ø      Stefán Snær keppir á badmintonmóti um helgina
Ø      Baka piparkökur á sunnudaginn EF ný  eldavél verður komin í húsið!!!
Ø      Saumaklúbbsskrall föstudagskvöldið 30. nóv
Ø      Jólamatarboð 1. des hjá samstarfsmanni mínum og frú
Ø      Próf 7. des
Ø      Förum norður 7. des (eftir próf) að gera laufabrauð og heimsækja Steinunni og Dóra
Ø      Sumarbústaðaferð með bekknum hans Stefáns 13. des
Ø      Fjölskyldusumarbústaðaferð 14.-16. des (gönguferðir og jólaföndur)
Ø      Höggva jólatré 22. des
Ø      Stefán Snær fer til Danmerkur á Þorláksmessu – verður þar yfir jól og áramót en kemur heim 2. jan.
Ø      Auk þess mun ég finna mér tíma til að gera sörur og jólakonfekt
ATH!!!! ég er búin að gera jólahreingerninguna, nú er bara að halda öllu við Glottandi
Já, umfram allt ætla ég og mín fjölskylda að njóta aðventunnar í botn. Danski mun verða með í för alla virka daga og svo fer að koma að því að ég hafi mig af stað í REGLULEGA hreyfingu, þarf svo á því að halda – hef ekkert kíkt á vigt en ég finn á fötunum mínum að ég þarf nú ekki að óttast neitt ofboðslega en það er betra að hafa þennan danska með. Er alveg pottþétt á því að hann styður mig Brosandi

Komin frá Prag

19. nóvember 2007 klukkan 11:26
Jæja, þá er ég komin, hress og endurnærð.
Þetta var yndisleg ferð, skoðuðum mjög mikið. Fórum í tvær ferðir með farastjórn, önnur var um gamla bæinn og gyðingahverfið en hin var í kastalahverfið. Hefði ekki vilja sleppa þessum ferðum, Pavel fararstjóri var frábær....mæli með honum.
Borðuðum allskonar mat og smökkuðum allskonar heita tékkneska drykki. Ráfuðum um, smökkuðum pylsur hjá götusölum og heitt jólaglögg. Keypti smá kristal (gat ekki verið þekkt fyrir annað) verslaði aðeins í H&M jólaföt á mig og drengina, Haukur fékk sér skó og þá voru allir vel settir. Fórum í bókabúð og ég keypti tvær bækur um Prag, önnur ljósmyndabók og hin var saga Prag í kiljuformi, fín bók. Svo "duttum" við inn í belgíska súkkulaðibúð og þvílík nautn að koma þar inn...mmmmm....
Allsstaðar var mikið að sjá, fallegar byggingar, iðandi mannlíf, endalausar búðir, fullar af listaverkum, babúskum, kristal og strengjabrúðum.

Í flugvélinni náði ég að klára Svartfugl og svo hafði ég með mér fjórar greinar sem ég las, þannig að skólinn var líka með í ferðinni Glottandi
Í fríhöfninni missti maður sig í sælgætisrekkunum en ég held að við fjölskyldan séum vel birg af jólanammi og jólapúrtvínið því var ekki sleppt.... furðulegt með okkur, það er ekkert ódýrara að kaupa nammið í fríhöfninni en maður er svo vanafastur Hlæjandi
Ef ég á eftir að fara aftur til Prag þá vil ég fara að vori, langar til að sjá borgina í blóma.

En nú getur maður farið að hugsa um næsta stóra viðburð en það eru jólin Brosandi

Allt að gera sig núna.....

14. nóvember 2007 klukkan 09:33
Stóð við það sem ég sagði í gær, var komin í rúm upp úr hálf átta....svaf vel í nótt, úthvíld og fín.
Nú er það vinnan í dag, hádegisrölt í hádeginu, setja niður í tösku í kvöld (ætla að klára Svartfugl í flugvélinni og svo verða þrjár greinar lesnar) og bruna út á flugvöll í nótt....
Prag á morgun - kíkti á veðurspána, hún er eins og ég bjóst við hiti um frostmark og snjókoma í dag, morgun og sunnudag en annars þurrt.

Stjörnuspáin:
Vatnsberi: Það er hægt að leggja hart að sér án þess að fá borgað eða ganga í augun á fólki. Hentu hugmyndum þínum um áreynslu og vertu galopinn fyrir nýjum hugmyndum.
Þessi spá kom of seint - lagði þvílíkt á mig um helgina og síðustu daga við að þrífa og koma öllu réttu megin við núllið - en sumir hafa ekki haft orð á því - búin að læra helling....og svo er öll þessi áreynsla til ekki neins!!!! Eða jú annars, var þetta ekki mest gert fyrir mig en ekki aðra? Ég bíð spennt eftir nýjum hugmyndum - eða þær eru kannski allt í kring??

Blogga ekkert fyrr en í næstu viku Glottandi Gangi ykkur vel Koss Ég hugsa til ykkar á röltinu í Prag Hlæjandi

stikkorð

13. nóvember 2007 klukkan 13:19
Ég er þreytt, svefnlaus og stressuð.
Fór á fætur um sex í morgun til að geta haft frið til að læra í vinnunni áður en allir mættu þar kl átta sem var alveg brilliant hjá mér því  ég náði að klára og skila síðasta verkefni annarinnar í morgun Hlæjandi Átti reyndar að skila því í næstu viku en fannst ómögulegt annað en að klára það núna,  þá er að einbeita sér að lestri fram að prófi sem verður 7. des.
Ég er að fara í frí, ekki á morgun heldur hinn verð ég í Prag með Hauki mínum. Við ætlum svo að njóta þess að rölta um, borða góðan mat og slappa af.
Ég ætla senmma í háttinn í kvöld Saklaus
Pakka niður í töskur eftir vinnu á morgun....geisp Hissa

þrif og fótabað

12. nóvember 2007 klukkan 08:32
Það sem stóð upp úr -
- Um helgina rak ég karlana mína að heiman! Laugardagurinn fór í það að taka til og þrífa, tók alla glugga, skápa og hurðir, þreif meira að segja veggina á baðherberginu - hefði aldrei komist yfir þetta allt nema vegna þess að Ása kom og tók til hendinni með mér, takk Ása!!! Um kvöldið komu þær Ása Dóra og Þórunn H í mat, gerðum dýrindis kjúklingasalat og brownies með vanillusósu og jarðaberjum í eftir mat. Horfðum á laugardagslögin og sátum í fótabaði, lökkuðum á okkur neglurnar - rosa fjör Glottandi skelltum okkur svo á pöbbinn og dönsuðum þar fram eftir nóttu. Gærdagurinn fór í lærdóm, gönguferð (stóra hringinn) og svo komu þeir heim og tengdó með en hún ætlar að passa börn og bú á meðan við förum til Prag.....sem er eftir þrjá daga.

Stjörnuspáin:
Vatnsberi: Eitthvað óvænt kemur upp á vinnustað sem fólki stendur ógn af. Þú tekur aðstæður í þínar hendur og reddar málunum. Hvað gerði fólk án þín?

.....já ég segi það nú..... Svalur

neikvætt-jákvætt

09. nóvember 2007 klukkan 09:31
Það var saumó í gær, þvílíkar kræsingar á borðum hjá henni Sirrý mmmmm, takk fyrir mig Brosandi
Eins og góðum saumaklúbbi sæmir þá sitja allir/flestir með einhverja handavinnu, borða og drekka þess á milli og ræða málin.
Í þessum saumaklúbbi eru heimsmálin ekki rædd - ekki er leyst úr öllum heimsins vanda eins og sagt er. Hins vegar er nærumhverfið oftar en ekki mál málanna og í gær voru allir frekar neikvæðir út í götulýsingu, gangstéttir, hraðakstur og endurskinsmerkjaleysi.....Fýldur....ég tók alveg þátt í þessu neikvæða tali, gagnrýndi af mikilli hörku - en svo hlóum við Tedda á leiðinni heim, þegar við þreyfuðum okkur heim í myrkrinu ÁN endurskynsmerkja!! Hlæjandi hehehehhe!!
Annars er ekkert vit í að vera svona neikvæður og mér datt saumóinn í hug þegar ég las stjörnuspá dagsins í dag:
Vatnsberi: Alveg eins og sólargeisli sem kíkir í gegnum stækkunargler getur kveikt eld, þá tekur hið góða yfir og margfaldast þegar þú ert jákvæður.
OK það er ekkert að marka stjörnuspár því þær eru bull og síðan er innbyggð skekkja í þeim vegna flögrandi gervitungla og hárra bygginga (eins og gamli sveppur hefur bent á) EN þessari stjörnuspá eða réttara sagt visku tek ég mark á! Enda er munur á spá og visku, eða er það ekki....??

Börnin stækka...tíminn líður....

08. nóvember 2007 klukkan 08:42
Í gær þegar stubburinn var kominn í rúmið var ég óvenju hress, lá ekki eins og skata upp í sófa og dormaði, nei ég fór í það verðuga verkefni að ryksuga íbúðina. Bað Stefán að taka til í sínu herbergi svo ég gæti rennt yfir það í leiðinni. Allt í lagi með það nema hvað að drengurinn var eitthvað svo lengi með lokað að sér og greinilega alveg brjálað að gera hjá honum. Það sem blasti við mér þegar ég svo fór inn í herbergið voru kassar. Dagurinn í gær var dagurinn þegar tindátarnir, steinar og skeljar, legóið og playmóið fékk að fara í kassa, þeir merktir og þeim komið fyrir í hillu úti í bílskúr. Strákurinn minn sem er 11 ára en verður 12 eftir tvo mánuði er hættur að leika sér að þessu dóti!!! Takk fyrir! Núna eru það tölvur og sjónvarpð sem eiga hug hans allan.... eða svona næstum því. Hann er farinn að lesa bækur sér til skemmtunar og það er ég mjög ánægð með. Flottustu steinarnir fóru ekki í kassa út í bílskúr, ekki heldur alvöru tindátarnir frá Rússlandi og William Wallace-dótið, GeoMac-ið er enn á sínum stað enda er það alveg eins fullorðins...

ný eldavél eða ekki....

07. nóvember 2007 klukkan 10:00
Verkefni dagsins (fyrir utan þetta venjulega) er að fara að kaupa nýja eldavél.... sú sem fyrir er er algerlega óþolandi, hellurnar s.s. ok en ofninn - algjörlega ömó!! Get ekki bakað neitt svo ég sé örugg með að HANN (ofninn) klúðri því ekki Öskrandi Sé fyrir mér eldavél með keramikhelluborði og blástursofni Glottandi
Hins vegar þegar ég kíkti á stjörnuspána mína þá var ég ekki viss.......
Vatnsberi: Fylgdu reglum og vertu var um þig. Huga verður að minnstu atriðum þegar kemur að viðskiptum og eyðslu. Smáa letrið leynir á sér.
Þið skiljið hvað ég meina....spurning um að skoða bara eldavélar í dag en kaupa á morgun - eða hugsa bara: æidjöermérskítsamaumstjörnuspárþærerualgjörtbull - hugs Svalur

AHHHHHHH nú man ég það er hljóðfæradagur á leikskólanum í dag - gat verið að ég gleymdi því?? Jú eiginlega en til afsökunar þá lítur þetta svar miklu betur út: Nei, ég hef svo mikla samúð með leikskólakonunum....hugsið ykkur allir krakkar með munnhörpur, flautur og hristur..... úff ég fæ nú bara höfuðverk við tilhugsunina Glottandi

risin úr rekkju

06. nóvember 2007 klukkan 08:20
Pælið í því - að á þessum tíma (þegar þetta er skrifað) eftir 9 daga verðum við á leið til PRAG....tararammmmm!  HlæjandiHlæjandi

Merkileg stjörnuspáin mín í dag í ljósi þess að ég var veik í gær og er nú mætt í vinnu og blogga bara.......

Vatnsberi: Farðu að vinna hvort sem þig langar það ekki. Hvort sem löngunin kemur eða ekki eftir að þú byrjar, þá hefurðu alla vega lokið verkinu.

rauður dagur

05. nóvember 2007 klukkan 11:34
Mín mundi eftir rauða deginum í morgun, klæddi drenginn í rauð föt - og þegar alllir voru tilbúnir og farnir í vinnu skóla og leikskóla, þá fór ég upp í rúm!
Já, ég meldaði mig veika í dag, hef legið í rúminu í svitabaði og skjálfandi úr kulda brrrrrrr.
Jú Heiða, Unnur vinnur á leikskólanum Andabæ en þó ekki á allra yngstu deildinni, þar sem minn gaur er. Leikskólinn er þriggja deilda (Hulduheimar, Álfheimar og Goðheimar) og Unnur vinnur með elstu börnin á Goðheimum. Við erum ótrúlega heppin hér, það eru þrjár deildir og minnst tveir leikskólakennarar að vinna á hverri deild. Minnir að þær séu átta leikskólakennarar og þar af er ein að fara í fæðingarorlof og ein er leikskólastjóri. Ég er ekki alveg viss hvað börnin eru mörg á leikskólanum í heild en ég gæti giskað á svona 50-60 +/- eitthvað Glottandi 

helgin í stikkorðastíl

04. nóvember 2007 klukkan 22:11
Ég var að vinna í gær vegna námskeiðs, það gekk vel.
Fann að ég var að fyllast af kvefi en ég er sauðþrá og fór samt í afmæli í gærkvöld - gjörsamlega raddlaus - missti röddina algjörlega svona klukkutíma áður en ég lagði af stað í afmælið.... en þetta var geggjað afmæli Hlæjandi
Fór í annað afmæli í dag - þar voru prófaðar 5 nýjar uppskriftir úr síðustu Gestgjafablöðum mmmmmmm.
Ég er eiginlega svolítið slöpp, finn að mér er að slá niður..... kannski fer ég í vinnuna á morgun og kannski ekki.... erfitt þegar maður er svona "hálf" veikur. Ef ég hefði legið heima í rúmi alla helgina þá væri ég kannski hressari Skömmustulegur mér er nær!

MUNA: Á morgun er rauður dagur  á leikskólanum!!!!

Að lokum.
Ljóð vikunar, valið tilviljanakennt úr Ljóðasvig II eftir Stefán J Fjólan.

Rjátl
Ég dunda mér við að reyna að gleyma þér
en heimatökin eru fráleitt hæg og þessvegna
óska ég þér góðs gengis hvernig sem viðrar.

markmið dagsins

02. nóvember 2007 klukkan 10:08
Markmiðið með þessari færslu er að hafa hana lengri en í gær Hlæjandi

Stjörnuspáin á mbl segir þetta:
Vatnsberi: Þú ert í skyggnu vatnsmerki og veist í hjarta þínu að kjarni þekkingarinnar býr í tilfinningunum ekki hugsuninni. Innsæi þitt leiðir þig nákvæmlega þangað sem þú átt að vera.
- sem þýðir að ég á ekki  að láta hausinn ráða för....heldur hjartað....jebbs þá veit ég það.

Annars er ég bara hálf slöpp í dag, finn að kvef er að hreiðra um sig í hausnum á mér - frekar slæm tímasetning þar sem ég bara verð að vinna fram á kvöld í dag og allan morgundaginn. Þarf að vera til taks á námskeiði fyrir skógarbændur en sem betur fer þarf ég ekki að fara langt að heiman, get sofið fyrir framan sjónvarpið mitt í kvöld og fært mig svo inn í rúmið mitt í nótt Glottandi

Ég var að fatta að gleymskan er farin að há mér mjög mikið, gleymdi miðvikudagsljóðinu.... ohhh þessi skóli! (skrifa alla gleymsku á hann, sko)

Annars fór ég í saumó í gærkveldi, fínn klúbbur verð ég nú að segja. Þar áður hafði ég farið í klippingu og stípur - allt annað að sjá mig - NB að mínu mati....held það hafi bara enginn tekið eftir breytingunni Ullandi greinilega fleiri sjálfhverfir en ég ....tek mjög sjaldan eftir því þegar fólk er nýkomið úr klippingu Svalur

Er að reyna að líta veturinn björtum augum, gaf sjálfri mér vetrargjöf í gær, þrammaði í apótekið og keypti spírúlínu, hef verið allt of þreytt og duglaus undanfarið.

Hádegisröltið hefst að nýju í dag - stefnt er að hádegisrölti mánudaga, miðvikudaga og föstudaga og genginn er einn hringur hér á Hvanneyri ca 1,5 km.

Takk fyrir kvitt stúlkur og verum bjartsýnar!

Góð byrjun á nóvembermánuði

01. nóvember 2007 klukkan 10:15
Flikkflakkheljarstökkogdýfa BrosandiSvalurHlæjandi
Ég mundi eftir leikfangadeginum..........ohh hvað ég stend mig vel Koss

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.