stjörnuspáin í dag - fundur - grín og glens.......
31. október 2007 klukkan 09:46
Vatnsberi: Þú þarft ekki að taka þátt í hrekkjavöku til að muna hvað þú hræðist. En þú sigrast smá saman á hræðslunni. Búningur: Mjög kynþokkafull útgáfa af sjálfum þér.
(Þetta var stjörnuspá dagsins í boði mbl.is)
Spurning hvort ég mæti í g-streng á aðalfund Borgarfjarðardeildar norræna félagsins sem verður í kvöld, múhahahaaaaa, formaðurinn ætlar að mæta í líki kattar þar sem í hennar stjörnuspá kemur fram að hún eigi að velja sér búning úr dýraríkinu, OHHHH við erum svo fyndnar
Rúsínan í pylsuendanum er að á þessum fundi verða snittur...ekkert kex eða svoleiðis rusl. Ætla að spara brauðið þangað til.
Dagurinn í dag:
Mm: Cherios, fjörmjólk, banani.
Hm: Skyrdrykkur, grænmetissúpa.
Km: Snittur á fundi norræna félagsins, hráar gulrætur.
Ávextir og mjólk hér og þar yfir daginn.
Ljóð vikunnar kemur í kvöld eða á morgun....spennan magnast....!!!!
Svo verð ég að muna að á morgun er LEIKFANGADAGUR á leikskólanum
(Þetta var stjörnuspá dagsins í boði mbl.is)
Spurning hvort ég mæti í g-streng á aðalfund Borgarfjarðardeildar norræna félagsins sem verður í kvöld, múhahahaaaaa, formaðurinn ætlar að mæta í líki kattar þar sem í hennar stjörnuspá kemur fram að hún eigi að velja sér búning úr dýraríkinu, OHHHH við erum svo fyndnar
Dagurinn í dag:
Mm: Cherios, fjörmjólk, banani.
Hm: Skyrdrykkur, grænmetissúpa.
Km: Snittur á fundi norræna félagsins, hráar gulrætur.
Ávextir og mjólk hér og þar yfir daginn.
Ljóð vikunnar kemur í kvöld eða á morgun....spennan magnast....!!!!
Svo verð ég að muna að á morgun er LEIKFANGADAGUR á leikskólanum
gleymin mamma...
30. október 2007 klukkan 08:32
Játning, ég er ein af þessum mömmum sem gleyma hinu og þessu, t.d. þegar ég kom með stubbinn á leikskólann í morgun þá var leikskólakennarinn á náttfötunum, ég gleymdi að líta á dagatalið - það er náttfatadagur í dag!!!! Spurning um að ég breyti staðsetningu leikskóladagatalsins
Kannist þið við þetta??? Eða eru allir fullkomnir foreldrar og gleyma aldrei svona hlutum?
Jæja, hvað finnst ykkur um stjörnuspá dagsins.....?
Vatnsberi: Grínstuðið í þér kemur öllum í betra skap. Fólk hreinlega elskar klikkaða húmorinn þinn. Flíkaðu honum áfram og þú eignast nýjan aðdáanda.
ohhhhh, ég er í svoooo miklu stuuuuuði í snjókomunni - langar helst heim, upp í sófa, með kakóbolla og bókina sem ég er að lesa (Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson).... en nei vinnan fær að njóta þess gífurlega mikla stuðs sem ég er í....

hvenćr vinn ég í lottó????
29. október 2007 klukkan 11:14
Stjörnuspáin mín í dag segir þetta.......
Vatnsberi: Ertu enn að velta fyrir þér hvar þín sneið af hinni alkunnu köku sé? Þú þarft að baka kökuna sjálfur, gefa öðrum af henni og að lokum færðu þína sneið.
Já, já þetta var vísbending um að ég fæ ekki lottóvinning!!! Ekki nema ég búi hann til sjálf og gefi öðrum meirihlutann!!!!

jebbs....
28. október 2007 klukkan 14:54
Síðan síðast hef ég: Verið í staðlotu, farið í matarklúbbsboð, farið í fjölskylduferð til Reykjavíkur, tekið á móti gestum og legið í leti....
Það er semsagt líf og fjör hjá mér
Það er semsagt líf og fjör hjá mér
Ljóđ vikunnar
24. október 2007 klukkan 18:46
Fasti punkturinn er ljóð vikunnar úr bókinni Ljóðasvig II eftir Stefán J. Fjólan. Valin tilviljanakennt........
Samrými
Fjólublár litur finnst þér, vina,
fallegur einsog mér.
Og vorið er litauðgi lífs þíns
og ljósið er þér
voldugur félagi fortíðarhyggju
og framtíðin einsog smér
og þetta stuðlar meðal annars að ýmsu
og að þú ert ennþá hér.
Samrými
Fjólublár litur finnst þér, vina,
fallegur einsog mér.
Og vorið er litauðgi lífs þíns
og ljósið er þér
voldugur félagi fortíðarhyggju
og framtíðin einsog smér
og þetta stuðlar meðal annars að ýmsu
og að þú ert ennþá hér.
Verđlaunaferđin.....
23. október 2007 klukkan 09:11
Fyrr í haust tók ég ákvörðun um að sleppa verðlaunaferðinni (fyrir að komast í kjörþyngd) eða öllu heldur að breyta úr sólarlandaferð í gönguferð í útlöndum. Búin að panta flugmiða og skrá mig í gönguferð í Skotlandi í byrjun maí á næsta ári. Veturinn fer í það að halda mér innan við 68 kg. og halda mér í þokkalegu líkamlegu formi svo ég geti notið ferðarinnar.
Matardagurinn í gær:
Mm: Cherios, fjörmjólk, banani.
Hm: Ýsa og grænmetissúpa.
Sk: Rúsínur og hnetur (má vegna þess ég er komin í kjörþyngd)
Km: Slátur og soðnar rófur.
Sofnaði snemma og gleymdi að klára ávöxt og mjólkurskammt.
Matardagurinn í dag:
Mm: Cherios, fjörmjólk, banani.
Hm: Skyrdrykkur og grænmetissúpa.
Sk: Ávöxtur
Km: Grænmeti og fiskur (óákv. í hvaða formi)
Kk: Ávöxtur + mjólk.

Sukkhelgi ađ baki
22. október 2007 klukkan 10:06
Það var auðvitað þannig að fyrst mamma og pabbi voru á svæðinu þá var sukkað alveg hrikalega!!! Rjómaberjabomba á föstudagskvöldið þegar þau komu, bakaríisbakkelsi í hádeginu á laugardag, grillsukk um kvöldið og snarlað í bakaríinu í hádeginu á sunnudag. Semsagt brauð, brauð og aftur brauð, ásamt heilum helling af sætu sukki 
Þetta var hins vega mjög gaman en núna horfi ég fram á veginn, gerði fullan pott af grænmetissúpu í gærkveldi og ætla að vera 100% dönsk!!! Þarf virkilega á því að halda, ætlaði að skreppa í spinning í morgun en hafði mig ekki af stað, var vakandi svo lengi við að læra.
Annað sem við gerðum um helgina, við bjuggum til saltkeramik og Þórður lék sér með það, stimpluðum lófa og fótafar, svakalega gaman. Síðan bjuggum við til leikdeig og það var endalaust hægt að vesenast með það.
Stefán keppti á móti í gær og gekk glimrandi vel, ánægður með þetta og hlakkar strax til næsta móts.
Ég er að undirbúa mig fyrir staðlotuna sem verður á fimmtudag og föstudag í Kennó, svo er það vinnan og heimilið....já alltaf nóg að gera á okkar heimili

Góđa helgi
19. október 2007 klukkan 19:00
Nú er ég orðin svöng og ætla því að pakka saman og rölta heim til mín, framundan er langþráð helgi. Foreldrar mínir eru á leið til okkar í helgarheimsókn, Stefán keppir á badmintonmóti á sunnudaginn og Þórður fer í tíma númer tvö í íþróttaskólanum. Ég ætla að stússast eitthvað í lærdómnum, undirbúa mig fyrir staðlotuna í næstu viku og svo bara að njóta þess að vera til 
Góða helgi
Góða helgi
Ljóđasvig II
18. október 2007 klukkan 09:25
Ég er nú meiri svikarinn, sveik ykkur um miðvikudagsljóðið.....komst bara alls ekki í tölvuna í gær og bæti því úr ljóðaleysinu í dag.
Ljóðabókin sem ég fékk senda um daginn heitir Ljóðasvig II og er eftir Stefán J. Fjólan á Akureyri. Þetta eru tæplega 300 blaðsíður stútfullar af ljóðum, gæti trúað að í bókinni séu um 1200-1500 ljóð.
Ég ætla að velja ljóð vikunnar með því að opna bókina tilviljanakennt og benda einhversstaðar á síðuna - það ljóð birti ég. Ljóð dagsins er að finna á blaðsíðu 186.
AÐLÍÐUN VETRAR
Haustregnið er hressandi
og heldur betur stressandi
er allt og ekki neitt.
Og að stuða stemmingu er
stórtækt vesen þar og hér
en ljúf ert þú úthvíld og einnig þreytt.
Og svo kemur eitt í bónus af blaðsíðu 266....
JOHN LENNON
9/19 1940 (=6)
You are always a carpenter
by the peace of god.
Ég legg það ekki í vana minn að lesa ljóð en úr því ég fékk þessa bók gefins og aldeilis áritaða þá er það skilda mín að lesa hana eða í það minnsta að taka svona stikkprufur, fínn vettvangur hér
Hvað finnst ykkur?

Ekkert blogg í fjóra daga!!!!!
16. október 2007 klukkan 11:23
Jæja, núna fær maður móral, búin að skammast í ykkur kæru lesendur en stend mig svo engan vegin í blogginu!
Það gengur allt voða vel hjá mér og mínum. Loksins farin að vera heima hjá mér og svei mér þá ef ég næ ekki bara tíu dögum heima við eða í 100 km radíus við heimilið - húrra fyrir mér
Það þarf þá enginn að hneykslast á flakkinu á mér á meðan.
Ætlaði að byrja í hádegispúlinu í dag en verð að láta það bíða því heima er lítill stubbur sem er lasinn, Haukur verður heima hjá honum í dag og ég á morgun.
Púlið fer ekkert frá manni fresta því bara aðeins að byrja.
Ég þyngist ekki og léttist ekki - þetta er bara allt eins og það á að vera. Vinna, skólastúss og heimilisstúss framundan og já saumóinn verður loksins hjá mér núna í vikunni.
Takk fyrir öll "kvittin" frábært að sjá að frænkurnar hafi rambað á síðuna mína, þið eruð æði!
Já, svo má ég ekki gleyma að segja ykkur frá því að ég fékk senda, tæplega þrjúhundruð síðna ljóðabók eftir vin föðurbróður míns sem býr á Akureyri. Er að spá í að leyfa ykkur að fá smá nasaþef af þessari bók með því að dengja hér inn ljóðum sem verða valin handahófskennt úr bókinni - en það kemur á morgun- já er að hugsa um að hafa miðvikudaga ljóðadaga......

Hverjir lesa ţetta??
12. október 2007 klukkan 11:49
Ég hef verið að velta því fyrir mér að hætta að blogga eða að læsa síðunni - hingað hafa komið nokkur hundruð manns það sem af er október en innan við tíu hafa kvittað eða komið með skoðanir.......hverjir eru eiginlega að lesa þetta hversdagslega blogg mitt?? En svo hugsa ég aftur á móti að bloggið er fyrir mig og engan annan, dagbókarform sem hentar mér - mundi aldrei nenna að skrifa dagbók í stílabók eða í word. Þætti samt gaman að fá að vita hverjir álpist hingað - forvitnin er að drepa mig 
Helgin: Förinni er heitið að Laugum í Sælingsdal, í dag. Námskeiðið verður brotið upp á morgun með gönguferð og staðkunnugur mun fræða okkur - þarna er sagan við hvert fótmál. Laugardagskvöldið og sunnudagurinn verður fjölskyldutími
Góða helgi!

Fimmtudagur
11. október 2007 klukkan 14:49
Jæja, ég anda léttar er komin heim, búin að læra helling, vinna helling og búin með kaflann minn í hópaverkefninu - geri nú samt ráð fyrir að bæta aðeins við hann EN ég hef alveg viku til þess ef mér finnst ástæða til. Annars er ég bara nokkuð sátt við kaflann.
Á morgun fer ég vestur í Dali (Lauga í Sælingsdal) því við hér í vinnunni minni stöndum fyrir námskeiði fyrir skógarbændur - það mun standa fram til seinniparts laugardags. Annað kvöld ætla ég að nýta tímann á Laugum og klára smá undirbúning fyrir annað verkefni í skólanum.... já það borgar sig að nýta tímann vel.
Laugardagskvöldið og sunnudagurinn fer líklega í samverustund með fjölskyldunni....ohhh hvað ég hlakka til.
Ég verð nú að segja ykkur eitt alveg ótrúlega fyndið, haldið þið að litli stubburinn minn hann Þórður Logi sé ekki að fara að byrja í íþróttaskóla!!!!!! Jamm tveggja ára og er skráður á námskeið næstu sex sunnudagsmorgna
Mataræðið er í góðu lagi - hef þó ekki farið á vigtina nýlega en ég finn það að fötin eru ekki að þrengjast, það er góðs viti
.........smávægilegur hlutur sem skiptir ekki máli því hugur minn er hjá frænku mannsins míns og hennar fjölskyldu þessa dagana. Ef ég gæti einhverntíman reiðst við Guð þá er það í þessu tilfelli, þegar ungt fólk glímir við sjúkdóma og það er ekki búið að koma upp sínum börnum. Ég er þakklát fyrir allt sem ég hef, heilsan er fyrir öllu en ef ég mætti biðja um eitt, aðeins eitt, þá er það það að ef það á fyrir mér að liggja að banvænn sjúkdómur herji á mig - þá vil ég vera búin að koma börnunum mínum til manns.
Á morgun fer ég vestur í Dali (Lauga í Sælingsdal) því við hér í vinnunni minni stöndum fyrir námskeiði fyrir skógarbændur - það mun standa fram til seinniparts laugardags. Annað kvöld ætla ég að nýta tímann á Laugum og klára smá undirbúning fyrir annað verkefni í skólanum.... já það borgar sig að nýta tímann vel.
Laugardagskvöldið og sunnudagurinn fer líklega í samverustund með fjölskyldunni....ohhh hvað ég hlakka til.
Ég verð nú að segja ykkur eitt alveg ótrúlega fyndið, haldið þið að litli stubburinn minn hann Þórður Logi sé ekki að fara að byrja í íþróttaskóla!!!!!! Jamm tveggja ára og er skráður á námskeið næstu sex sunnudagsmorgna
Mataræðið er í góðu lagi - hef þó ekki farið á vigtina nýlega en ég finn það að fötin eru ekki að þrengjast, það er góðs viti
Egilsstađablogg
09. október 2007 klukkan 13:18
Er á vinnufundi - rosalega gaman, tölvukóðar, grunngögn, LUK gögn....endalaust tölvubrall.
Er ekki búin að gleyma ykkur
Er ekki búin að gleyma ykkur
Í nógu ađ snúast
04. október 2007 klukkan 16:13
Það er í nógu að snúast þessa dagana, allt á fullu í skólanum (eða á að vera það!!!) og svo er það vinnan. Þarf að vinna á sunnudaginn , fer svo sennilega (eða öllu heldur vonandi) suður á sunnudagskvöldið í hópavinnu, austur á fund á mánudag og þriðjudag, vinna á skrifstofunni miðvikudag + fimmtudag, vinnuferð í Dali á föstudag og laugardag og FRÍ sunnudaginn 14. október! Í þeirri viku ætla ég að taka mér kannski eins til tveggja daga frí og sinna náminu eitthvað og einnig mun ég byrja formlega í hádegispúlinu þá, enda verð ég sennilega hætt allri útivinnu eftir miðjan október og því miklu meiri regla á öllu.
Jebbs, veit ekki hvort ég hef mikinn tíma fyrir bloggerí en sjáum til.
Gangi ykkur vel ![]()
Uppskrift og Jesúbrandari
02. október 2007 klukkan 11:39
FAK fundurinn heppnaðist vel, ég bauð upp á þetta kjúklingasalat, uppskriftina fann ég einhversstaðar en breytti aðeins þannig að ég held það sé í góðu lagi að birta hana hér:
2 kjúklingabringur, matreiddar og niðurbrytjaðar (líka bara sniðugt að nota afganga)
1 bréf beikon, steikt
1/2 haus icebergsalat, rifið niður
1 paprika söxuð
1/2 gúrka söxuð
1-2 bollar soðin hrísgrjón
1/2 krukka fetaostur (í góðu lagi þó eitthvað af olíunni fari með)
1/2 krukka sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
Kjúllinn, beikonið og grænmetið er saxað eða tætt niður í skál. Hrísgrjónin, fetaosturinn og sólþurrkuðu tómatarnir er blandað saman og sett svo með hinu í skálina.
Svakalega gott!

Fáið þið ekki stundum allskonar brandara og bull í tölvupósti? Fékk eitt alveg ótrúlega fyndið sem mig langar til að leyfa ykkur að njóta....veit ekki hvað prestinum finnst sem kíkir hingað stundum.....en þetta kemur mér til að hlæja
Talandi um presta þá hneykslaði einn mig svo um daginn að ég hef bara eiginlega ekki geta tjáð mig um það hér.....svo frétti ég það að atvikið hafði fréttst austur á land, þannig að ég tjái mig kannski um þetta mál síðar sem er þó ótrúlega saklaust mál en gerði mig þó hálf fúla út í þennan prest...eða nei ég held ég tjái mig kannski ekkert um þetta hér
EN hér er brandarinn:
Hver var hann?
Þrjár sannanir fyrir því að Jesú var mexíkani.
- Hann hét Jesú
- Hann talaði tvö tungumál
- Hann hafði aldrei frið fyrir yfirvöldum
Sömuleiðis eru líkur á því að Jesú hafi verið svertingi.
- Hann kallaði alla "bræður sína"
- Hann var hrifinn af gospel
- Hann fékk aldrei sanngjarna málsmeðferð hjá yfirvöldum
En það gæti líka vel verið að hann hafi verið Gyðingur.
- Hann fetaði í fótspor föður síns
- Hann bjó heima þangað til að hann var 33 ára
- Hann notaði ólífuoliu
Þrjár sannanir sem sýna sterklega að Jesú hefði vel getað verið
ítalskur.
- Hann baðaði út höndunum þegar hann talaði
- Hann drakk vín með hverri máltíð
- Hann var viss um að mamma sín væri hrein mey og mamma hans var viss
um það að hann væri Guð.
Þrír möguleikar sem sýna að hann hefði getað verið frá Kaliforníu.
- Hann lét aldrei klippa sig
- Hann gekk berfættur
- Hann lagði grunn að nýrri trú
En það er þó mjög líklegt að hann hafi verið Íri.
- Hann giftist aldrei
- Hann elskaði að vera úti í náttúrunni
- Hann var sífellt að segja sögur
EN....það líklegasta er að Jesú hafi verið KONA.
- Hann var neyddur til að fæða fjölda manns án fyrirvara þótt ekki
væri nokkur matur til !!!!!!
- Hann reyndi að láta rödd sína heyrast meðal fjölda karla sem ekki
föttuðu baun.
- Þrátt fyrir að hann væri dáinn, varð hann að rísa upp aftur því það
var meira sem hann átti eftir að gera !!!!!!!!!!

Yfirlit:
01. október 2007 klukkan 14:04
Helgin var fín, allt í rólegheitum. Veðrið var svo gott á laugardaginn að manni fannst eins og það væri bara örfáir í réttinni, allir eitthvað svo slakir.
Í dag er ég heima, Þórður Logi er lasinn, búnn að vera með í maganum og svo er hann með vott af barkabólgu. Hann er svosem ekkert sárlasinn en alls ekki leikskólafær.
Í kvöld verður FAK fundur hjá mér - jebbs FAK er félag aðfluttra kvenna. Skemmtilegur félagsskapur en alltof langt síðan við hittumst.
Vantar meiri tíma til að geta sinnt náminu - lesið allt sem mig langar til að lesa.... en þetta kemur allt saman
Gangi ykkur öllum vel í því sem þið eruð að fást við, já og takk fyrir að kvitta fyrir ykkur - ótrúlegasta fólk sem rambar hingað inn.
Meira síðar þegar andinn kemur yfir mig