Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Laufskálarétt

28. september 2007 klukkan 11:54

Seinnipartinn í dag ætlum við að bruna norður í dalinn fagra, Laufskálarétt á morgun Glottandi 
Góða helgi!

FimmtudagsROKblogg

27. september 2007 klukkan 11:35
Úti er ROK, já rok með stórum stöfum, manni líður eins og hitastigið sé mjög lágt en samt sýnir veðurathugunarstöðin hér á Hvanneyri hita uppá 14°C sem er nú allmikið. Ég sit inni við tölvuna og reyni að koma einhverju vitrænu á blað en ákvað samt að henda inn einu bloggi svona upp á grínið. Mataræðið hefur verið svona allt í lagi síðustu daga, þó geta heimsóknir á bæi tekið verulega á þegar bændum hér upp um allar sveitir þykir ómögulegt annað en að bjóða uppá eitthvað með kaffibollanum. Þetta fer að hljóma eins og ég sé alltaf í kaffi á bæjum...en það fylgir víst starfinu að setjast inn og fara yfir málin.

Svona til að upplýsa ykkur um mataræði dagsins í dag:
Morgunmatur: 75 gr. skyr, brauð með smyrju og sultu, 1 banani.
Hádegi: Grænmeti (hrátt) og túnfiskur....hálfgert salat.
Kvöldmatur: Ofnbakað grænmeti en síðan er saumó og ég geri ráð fyrir að borða eitthvað þar og sleppi því kjöti í kvöld.
Rest af ávöxtum, fita og mjólk í saumó í kvöld + slatti í extra.

Komst á ágætt skrið með eitt verkefni seinnipartinn í gær - sem tengist náminu sem ég er í Hlæjandi Er bara bjartsýn á þetta nám - ofsalega gaman og reyndar eitthvað sem ég hef lítið pælt í. Ég sé líka að margir kennararnir mínir í Landbúnaðarháskólanum hefðu haft gott af því að skella sér í þetta nám....eru ekki alveg að standa sig í að byggja hlutina rétt upp!!! Jebbs og þetta meina ég sko af heilum hug....allir í Kennó!

Ég bý svo vel eða réttara sagt er mjög heppin að hafa sveigjanlegan vinnutíma og því hef ég ákveðið að stunda líkamsrækt 2-3 svar í viku í hádeginu. Það eru hádegistímar í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi sem byrja klukkan 12:10 standa þeir yfir í ca 40 mín. sambland af spinning og styrktaræfingum. Ef ég geri þetta er ég taka ca 1 1/2 tíma í hádegismat en ég get unnið það upp með því að vinna lengur á daginn - sem er ekkert mál. Ég tel einnig að ég muni afkasta miklu meiru ef ég geri þetta en ella.
Yfirmaður minn, hann Sigvaldi er mjög hlynntur þessu en hann gerir sér mjög vel grein fyrir mikilvægi þess að vera í góðu líkamlegu formi. Fyrir utan það hvað andlega hliðin verður miklu betri ef maður hreyfir sig Glottandi 
Svona mun þetta verða í vetur: Fyrir utan það að mæta í hádegispúl 2-3 svar í viku þá ætla ég að taka langa göngutúra minnst einu sinni í viku, þá er ég að stunda reglulega hreyfingu (fyrir utan vinnuna) svona 3-4 sinnum í viku sem er fínt, eitthvað sem ég ræð við, hef tíma fyrir og kem ekki til með að gefast upp á.

Fyrsti tíminn í hádegispúli verður í dag. Ætla að smella mér á vigtina í leiðinni. Það verða komnar inn tölur á þyngdarsðuna einhverntíman seinnipartinn.
Ef ég er komin yfir 68 þá ætla ég að standa mig betur í að passa upp á mataræðið en ef ekki þá er ég í góðum málum Brosandi

Smá uppfærsla, klukkan er 13:24 búin að skella mér á vigtina góðu 68,3 kg er staðreynd- nú skal haldið rétt á spöðunum...... Svalur Ég skal halda mig við mín fyrri markmið ekki yfir 68 en 67 er æskilegt!!!!! Semsagt 300 grömm burt og það strax, fer aftur á vigtina í næstu viku Glottandi

Yndisleg haustblíða

25. september 2007 klukkan 17:36
Einn af megin kostum starfs míns, það er mikil útivera. Ég fer og kortlegg væntanlegar skógarjarðir, heimsæki skógarbændur og leiðbeini - mjög gaman. Þess fyrir utan vinn ég heilmikið inni á skrifstofu þar sem ég skrái upplýsingar um þessar jarðir og held utan um þetta allt saman.
Dagar eins og dagurinn í dag eru frábærir að því leyti að þeir minna mann á hvað þetta er frábært vinna. Veðrið var yndislegt, ég byrjaði daginn á því að fara út á skrifstofu og kíkja á tölvupóstinn, fékk mér almennilegt kaffi sem við búum stundum til og svo brunaði ég á jeppanum (vinnan á hann...glætan ekki ég) upp í Reykholtsdal þar sem ég heimsótti eina gamla konu sem er skógarbóndi. Það var frábært, gekk um og skoðaði plönturnar sem hún gróðursetti í sumar og í leiðinni kíkti ég á eldri gróðursetningar, settist svo inn hjá kerlu og við kíktum aðeins á pappíra og fylltum út skýrslu. Hjá þessari gömlu konu er yndislegt að vera, það er eins og tíminn standi í stað hjá henni, ýmislegt hjá henni sem minnir mann á hluti sem voru til hjá afa og ömmu hérna í denn, bollarnir, dúkurinn á borðstofuborðinu, útvarpið, stofuklukkan, klukkustrengirnir og meira að segja blómin eru gamaldags (alls ekki í neikvæðum skilningi). Hún ræktar allt sitt kál og kartöflur sjálf og auðvitað bauð hún mér í kjötsúpu, ég varð eins og eitt spurningarmerki þegar hún bauð mér kjötsúpuna, klukkan rétt um ellefu fyrir hádegi.... "það er miklu betra að bjóða þér upp á kjötsúpu en að ég bjóði þér upp á kaffi, fer miklu betur í magann" ...yndislegt! Síðan fór ég á aðra tvo bæi og bara frábært alveg hreint, gaman að ganga um með fóki og sjá hverju það hefur hrundið í framkvæmd í sumar - allir svo stoltir. Í þessari blíðu sá ég fjóra jökla; Snæfellsjökul, Eiríksjökul, Langjökul og Þórisjökul. Svo sá ég fullt af fjöllum en ég veitti einu sérstaka athygli því ég sé það ekki oft héðan en það er Skjaldbreið, það var þegar ég keyrði upp Flókadalinn- aldrei tekið eftir því áður.
Já, svona var dagurinn hjá mérBrosandi

Daginn...

24. september 2007 klukkan 11:23
Dagurinn byrjaði vel, vaknaði kl 6 og fór út að ganga. Þó ekki ein, Ása Dóra kom líka....HÚRRA FYRIR OKKUR!!!
Ferlega fersk og spræk Brosandi

Hversdagslegt helgarblogg

23. september 2007 klukkan 10:21

Nú er sunnudagsmorgunn og ég er komin út í vinnu til að læra - og þá er upplagt að henda inn einni bloggfærslu Brosandi
Eftir að vinnu lauk á föstudag lærði ég fram að kvöldmat, algjör snilld að hafa aðgang að fyrirlestrunum á netinu og geta hlustað á þá hvar og hvenær sem er. Kvöldinu eyddi ég svo upp í sófa pökkuð í lopasokka, lopapeysu og undir ullarteppi, dottaði ansi mikið og sá glefsur úr bíómyndum kvöldsins.... hm ég get nú eiginlega ekkert sagt ykkur um  þær, því ég svaf mestan hluta kvöldsins.
Laugardagurinn (gærdagurinn) fór í það að koma heimilinu á réttan kjöl en eftir margar tilraunir til að byrja (eftir nokkra kaffibolla) gat ég loksins byrjað, ótrúlegt hverju ég kom í verk og nú hefst smá montupptalning bara fyrir mig (minni á að það er enginn að neyða ykkur að lesa þetta); þreif gluggana í stofunni, þurrkaði af, þreif baðherbergið, ryksugaði og skúraði, þvoði þvott OG braut saman og síðan það sem ég er stoltust af, ég tók til í þvottahúsinu!!! Á meðan á þessu stóð var Stefán að leika sér, Þórður var mestan part sofandi og síðan bara að dunda sér og Haukur var að vinna. Í gærkveldi buðum við svo Sirrý, Júlla, Berghildi og Ásgerði í mat - buðum upp á gúllassúpu og ís með heimalagaðri íssósu í eftirrétt. Settist svo með saumadótið mitt við sjónvarpið og horfði á eina mynd - án þess að sofna Glottandi 
Dagurinn í dag verður helgaður lærdómi.

Helgarfrí í augsýn....

21. september 2007 klukkan 12:05
Ég er nú hálffegin, fundinum sem ég átti að fara á eftir helgi austur á Egilsstaði var frestað fram í október. Stundum er gott að hlutirnir frestist smá. Verkefnin eru næg í vinnunni þessa dagana og svo er það skólinn - sem ég hef allt of lítinn tíma fyrir Fýldur Mikið er ég fegin að það er föstudagur Brosandi

Mætt á svæðið

19. september 2007 klukkan 14:00
Síðustu dagar eru búnir að vera yndislegir - var á fundi norður í Skagafirði á mánudagskvöldið og í skoðunarferð í gær sem endaði í siglingu niður Vestari Jökulsá (river rafting). Þetta var alveg frábært, eftir að hafa fengið ærlegt "kikk" í ánni var farið í heitu pottana á Bakkaflöt og þar á eftir var matur. Held ég hafi bara ekki fengið svona ofsalega gott lambalæri, mjög lengi mmmmmm það bráðnaði upp í manni Gráðugur Síðan var setið að sumbli og spjalli fram eftir nóttu. Eftir morgunmat í morgun var svo brunað heim á leið.
Matarmálin voru algjörlega í rugli - ef þið bara vissuð hvað skagfirskar húsmæður eru myndarlegar- á hverjum stað sem við komum á í skoðunarferðinni í gær, vorum við dregin inn í kaffi og á einum bænum beið okkar matarmikil fiskisúpa jammí jammí ofsalega góð......hehehe, smá útúrdúr!
Jæja nú verður tekið á því, matarmálin verða að komast í sinn fyrri farveg og ég ætla ekki að smakka vín í bráð Glottandi

Elsku bestu vinkonur!!

17. september 2007 klukkan 10:56

Takk fyrir uppbyggjandi innlegg Brosandi Þið eruð alveg frábærar!
Lítill tími fyrir blogg, er að fara norður á fund. Lofa nýrri færslu á miðvikudag
Glottandi

Nú liggur mér mikið á hjarta...

14. september 2007 klukkan 09:04
...og svona er nú það:
Málið er það að ég er í kennsluréttindanámi og þáttur í náminu er að taka þátt í umræðuþráðum á netinu þar sem námsefnið er rætt á málefnanlegum grunni. Það er í góðu lagi og ýmislegt sem kemur þar fram, fólk kemur með sína sýn á málefnin og svo eru málin rædd fram og til baka. Það sem einkennir þetta þó er að mér finnst allir hafa eitthvað svo mikið vit á þessu, það er eins og allir hafi þrjátíu ára reynslu og þ.a.l. svo  miklar skoðanir á hlutum. Ég rembist eins og rjúpan við staur að reyna að finna eitthvað gáfulegt til að leggja til málanna en ég er bara gjörsamlega tóm. Hef sett inn þrjú innlegg í umræðuna og finnst þau eitthvað svo ógáfuleg.....hvað er eiginlega að mér? Ég hef áhuga á náminu og finnst þetta skemmtilegt en mér finnst ég ekki geta komið fram með fullmótaðar skoðanir á hlutunum eins og mér sýnist ótrúlega margir gera....ég er kannski bara að misskilja þetta allt?!
Hitti Ástu Einars (hún er deildarstjóri í Andakílsskóla) í gærkveldi og við ræddum skólamál, kennslu og ýmislegt annað og það fannst mér fínt - en að ætla að fara að opna mig fyrir hópi af fólki sem ég þekki ekki neitt, nei það geri ég ekki.............EN svo geri ég það hér á netinu!!!! Hvað er að??
Sé ekki fram á mikið blogg næstu daga, heimilisstúss á morgun, hópavinna í bænum á sunnudag, vinna á mánudag og farið norður seinnipart á mánudag í vinnuferð, kem aftur heim á miðvikudag - já það er í nógu að snúast þessa dagana.

Jæja best að fara út í góða veðrið að kortleggja.
p.s. fór út að skokka í gær Svalur stutt - en ég fór!!!

ohhh hvað ég var glöð....

13. september 2007 klukkan 10:06
...þegar ég sá að það hafði verið kommentað við síðustu færslu!
Það þarf ekki mikið til að gleðja mann!
Gorkúla, ég var í Dölunum því ég er að kortleggja ný skógræktarsvæði eða viðbót við skógræktarsvæðið á Breiðabólsstað, svo þegar það er búið mun ég færa mig út í Gautastaði. Þetta er mjög gaman en ég verð að vinna þetta þegar veðrið er gott en það má alls ekki rigna og heldur ekki vera mikið rok.
Talandi um Dali, ég fór til Skotlands í ágúst og með í för voru nokkrir Dalamenn....

Dagurinn í dag lítur svona út:
Mm: Cherios, fjörmjólk, mandarína.
Hm: Brauð með osti, bakað grænmeti.
Km: Fiskur og grænmeti.
Afgangur af ávöxtum, mjólk og fitu hér og þar yfir daginn.

Takk fyrir innlit og kvitt!  Brosandi

Syndir gærdagsins....

12. september 2007 klukkan 09:50
......voru þær að áður en ég brunaði vestur í Dali kom ég við í bakaríinu í Borgarnesi og keypti mér einn latte og kanilbollu (hugsaði með mér að hún kæmi í stað brauðsneiðar og extra!!!). Dagurinn var semsagt ekki alveg eins og ég hafði ætlað mér því þegar heim var komið þá var ég svo þreytt og langaði í eitthvað og fékk mér NÓAKROPP sem var til inni í skáp - ohhh ég þoli ekki þegar það er eitthvað svona til inni í skáp Öskrandi

Dagurinn í dag:
Mm: Cherios, fjörmjólk, 1 banani.
Hm: Grænmetissúpa, brauð með reyktum laxi.
Sh: Appelsína.
Km: Kjúlingur og grænmeti.

Dagsskipulagið: Vinna, skreppa í klippingu, læra/lesa út í vinnu fram að kvöldmat, heimilisstúss í kvöld.

Það eina sem ég sakna það er að hafa inní dagsskipulaginu HREYFINGU!!!!
Þetta hreyfingarleysi er komið á sálina hjá mér því mér finnst ég alltaf vera svo þreytt....hvað gæti orsakað það? Þunglyndi....eða áhyggjur af því að ég komist ekki yfir allt sem ég ætla að gera....hvað er í gangi???

Af þeim danska....

11. september 2007 klukkan 09:35
Ég hef náð að halda mér svona 90% við danska, held ekki nógu vel utan um hvað ég er að láta ofan í mig yfir daginn/vikuna, kannski er ég ekki að fá nógu mörg egg eða ávexti eða mjólk.
Þarf helst að hafa matardagbókina til að krossa í.
Fór á mjög ónákvæma vigt í gær og hún sýndi 67 kg....trúi því ekki alveg, sjáumt til hvað vinkonan í sundlauginni segir - hlýt að hafa bráðum tíma til að skella mér í sund - er eitthvað svo bissí þessa dagana.
Dagurinn í dag:
Morgunmatur: Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani.
Hédegi: Gulrætur, brauðsneið, laxasalat (1 egg, 40 gr reyktur lax, 20 gr léttmajo).
Síðdegi: Kanilepli og sýrður og kaffi
Kvöldmatur: Fiskur og grænmetissúpan góða
Kvöldnasl: Appelsína + vínber

Jæja er farin út í góða veðrið, að kortleggja Svalur

Kaupa, kaupa, kaupa

09. september 2007 klukkan 22:16
Ótrúlegt hvað þessar helgar eru fljótar að líða. Skutluðumst í bæinn í gærmorgun, nánar tiltekið í IKEA að versla ýmislegt sem er alveg lífsins nauðsynlegt að eiga en við höfum aldrei á okkar búskapartíð átt: samstæð náttborð!!! Ég á eitt gamalt í stíl við kommóðuna mína en aumingja Haukur hefur þurft að notast við stól, svo það var eiginlega kominn tími til!
Verslaði helling af flottum fötum á Green House kynningu hjá Ástu -hrikalega flott allt og ég er ekki frá því nema það hafi komið smá reykur og hitalykt þegar kortinu mínu var rennt í gegn um posann! Já það er ekki það ódýrasta sem maður gerir að létta sig um 20 kíló og þurfa að endurnýja í fataskápnum......en ég er nú samt bara sátt Glottandi
Fór fyrir hádegið í dag út í vinnu og lærði smá, hlustaði á fyrirlestur og blaðaði í gegnum glærur, spallaði við samnemanda minn (Karólínu) á msn um fyrirliggjandi verkefni. Ég er að spá í að halda mig bara við að læra þar, í ró og næði. Þar er enginn þvottur, eldamennska, óskúruð gólf eða sumir heimilismeðlimir að trufla mig. Er að pæla í að taka a.m.k. tvo daga í viku þannig að þegar vinnudegi er lokið að þá skrepp ég aðeins út, sæki Þórð á leikskólann og svoleiðis en fer svo aftur út í vinnu og tek svona ca tveggja tíma lærdómstörn. Ef ég geri þetta tvisvar í viku og svo sunnudagsfyrriparta fast þá held ég að ég verði á ágætu róli, ég get svo alltaf lesið í bókunum á kvöldin.....hugs, hugs... Jú, ég held þetta sé fínt plan.
Varðandi hreyfinguna þá er ég ekki alveg búin að púsla........ en hádegisgöngurnar eru þó hafnar sem er bara gott, þyrfti endilega að koma mér af stað í morguntrimmi þetta gengur bara ekki lengur. Haukur er reyndar að pæla í að fara þrisvar í viku í hádegisspinning í Borgarnesi, spurning hvort ég skelli mér með honum í þetta í vetur....?
Hef enn ekkert stigið á vigt..... Skömmustulegur

Nú er 100% ddv vika framundan, gangi ykkur öllum vel Koss

E.S. Varðandi IKEA, ég var að fara í fyrsta skiptið í þá verslun eftir að hún flutti....örugglega ein af fáum ...???!!!!

Enn.....

07. september 2007 klukkan 13:17

....og aftur var farið í hádegisgöngu, það er algjör snilld að gera þetta. Þið sem hafið tækifæri á að rétta úr ykkur í hádeginu þá: mæli ég með stuttum göngutúr, bara 10-15 mínútur - kemur blóðrásinni af stað eftir langa setu fyrir framan tölvuna. Svo ég tali nú ekki félagsskapinn, (þ.e.a.s. ef þú ferð ekki ein/n) það er spjallað um heima og geima í þessum göngum.....farið yfir það sem efst er á baugi í samfélaginu eða hvað við erum að fást við hverju sinni.

Fimmtudagur

06. september 2007 klukkan 12:25
Við Helga Halldórs fórum í hádegisgöngu áðan...rútínan er semsagt að komast í gang.
Staðlotan tókst vel og ég náði að halda mataræðinu á réttu róli Glottandi
Það fer að líða að því að ég hafi tíma til að skreppa í sund og á vigtina......og að blogga meira Brosandi

Staðlotan í fullum gangi

04. september 2007 klukkan 17:57
Ég er í staðlotu, hef setið á fyrilestrum og í umræðuhópum í allan dag, dagurinn á morgun verður eins. Nú spyr ég mig, man ég eitthvað frá fyrirlestrum dagsins?
Látum okkur sjá:
Hvað er góður kennari?
Hvað er kennslufræði?
Hvað er nám?
Hvaða skilning legg ég í sögnina að læra?
Hvað er þekking?
Piaget
Vygotskjy
Einstaklingsnám
Félagslegt nám
brbrbrbrbbsdjhafdklakag........!!!!!

Mataræðið í góðu lagi Glottandi og takk fyrir kvittið og peppið!!!

Letidagur

01. september 2007 klukkan 20:41
Letidagur, já svo sannarlega. Hann byrjaði á því að Inga Dóra kíkti í morgun/hádegismat/kaffi. Síðan höfum við lítið gert, jú skruppum og keyptum skírnargjöf, versluðum eitt og annað í leiðinni. Stefán Snær er farinn til höfuðborgarinnar að hitta pabba sinn sem er á landinu núna.
Það er komin smá fiðringur í mig, er að byrja í staðlotu í kennsluréttindanámi við KHÍ eftir helgi, hlakka til en kvíði pínu fyrir líka, ég hef velt þessu fyrir mér: Kemst ég yfir allt sem er á minni könnu nú í vetur? Ég er í 100% vinnu, maðurinn minn líka og auk þess er hann líka í námi, heimilið, heimanámið hjá Stefáni, keyrsla í eitt og annað t.d. íþróttir, já og svo þyrfti ég líka að ná að hreyfa mig líka og ekki má gleyma því langtíma verkefni að halda sér í kjörþyngd.....HVAÐ ER ÉG BÚIN AÐ KOMA MÉR ÚT Í?????????? EN eitt veit ég, það er að ég er algjör snilli í að skipuleggja mig (þó ég segi sjálf frá). Vænn slurkur af skipulagi og jákvæðni og þá tekst þetta allt Glottandi hún Pollíanna er ávalt mér við hlið Brosandi

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.