Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Góða helgi

31. ágúst 2007 klukkan 11:19
Morgunmatur: Cherios, fjörmjólk, mandarína.
Hádegi: Skyrdrykkur, hrátt grænmeti.
Síðdegi: Kanilepli.
Kvöldmatur: Pizza, grænmeti, pepsi max.
Afgangur af ávaxta, mjólkur og fituskammti í kvöld.

Eiginlega ekkert ofsalega mikil fjölbreytni hjá mér í mataræðinu fyrri part dags.....

Ég keypti mér nýjasta gestgjafablaðið en þar eru fullt af uppskriftum þar sem grænkál kemur við sögu, ég á helling af því úti í garði....geri grænkálstilraunir á morgun Glottandi

Skírnarveisla í hádeginu á sunnudag, jammí, jammí.

Saumaklúbburinn verður ekki hjá mér á sunnudagskvöldið, allt of margar sem komast ekki.

Góða helgi Brosandi

Svekkelsi kvöldsins....

30. ágúst 2007 klukkan 21:18

....ætlaði að breyta útlitinu aðeins en lenti bara í tómu tjóni.....haustlitaþemað ætlar ekki að ganga upp. Gengur bara betur næst...nenni þessu ekki lengur í kvöld.......ARG! AF HVERJU ER ÉG EKKI TÖLVU OG MYNDVINNSLUSÉNÍ!!!????? MEIRA ARG!!!!!

Allt að komast í fastar skorður

30. ágúst 2007 klukkan 10:52
Morgunmatur: Ristað brauð með smyrju, osti og jarðaberjasultu (sykurlausri), 1 banani.
Hádegismatur: Skyrdrykkur, 300 grömm hrátt grænmeti.
Kvöldmatur: Fiskibollur, grænmeti.
Afgangur af mjólkur, ávaxta og fituskammti hér og þar yfir daginn.

Það gengur allt vel, mataræðið er komið í sínar föstu skorður og er að sigla af stað í reglulega hreyfingu. Það hamlar mér reyndar að vera ekki komin með æfingatímana hjá Stefáni á hreint en þetta kemur allt saman í ljós vonandi ekki seinna en í næstu viku.  Hreyfði mig í gær, gekk rösklega 4,5 km.

Miðvikudagur

29. ágúst 2007 klukkan 13:38
Morgunmatur: Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani.
Hádegismatur: Fór í bakaríið og fékk mér brauðhorn með eggi, osti, grænmeti og sinnepssósu + latte. 250 grömm kirsuberjatómatar á leiðinni heim! Semsagt ekki alveg eftir bókinni.
Síðdegi: Kanilepli + kaffi.
Kvöldmatur: Folaldakjöt, hrisgrjón, grænmeti.
Kvöldhressing: Frosin ber mixuð saman við létt ab mjólk.

Ég hef enn ekki haft tíma til að fara á sundlaugarvigtina, er alltaf á svo mikilli hraðferð þegar ég fer í Borgarnes en það kemur að því, ég lofa sjálfri mér því....já og ykkur Hlæjandi

Ég verð með saumaklúbb á sunnudagskvöldið, ætla að hafa allt voða hollt og gott, algjörlega sykurlaust - einhverjar hugmyndir???

Þriðjudagur

28. ágúst 2007 klukkan 15:47
Morgunmatur: Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani.
Hádegi: Brauð með smyrju og hvítlaukssalti, grænmetissúpa og skyrdrykkur í desert.
Síðdegissnarl: Kanilepli með sýrðum rjóma.
Kvöldmatur: Soðin ýsa, kartöflur beint ú garðinum, grænmeti.
Ávöxtur, fituskammtur og mjólk í lok dags.

Það væri gaman að vita hver verði gestur númer 7 þúsund inn á síðuna Glottandi

Fyrsti vinnudagur eftir frí eða næstum því.....

27. ágúst 2007 klukkan 16:34
Haldið þið að stubburin hafi ekki vaknað klukkan hálf sex í morgun alveg ómögulegur, leið greinilega illa og rétt um átta leytið kom gusan, jebbs ælupestin kom við hér á bæ....ef pest skyldi kalla því eftir gusuna þá vildi hann fá hafragraut og sofnaði síðan værum blundi. Hann er búinn að borða allt mögulegt í dag þannig að mér sýnist þetta vera gengið yfir.
Svona fór semsagt fyrsti vinnudagurinn minn eftir sumarfrí, heima með veikt barn.

Mataræðið í dag:
Morgunmatur: Ristað brauð með osti og nýju heilsusamlegu sultunni minni, 1/2 banani, kaffi + vatn.
Hádegi: 40 gr reyktur lax, 75 gr skyr, 50 gr aðalbláber, 20 gr rjómi(Úpppps), brauðsneið, 400 gr grænmetissúpa + vatn.
Kvöldmatur: Hakk, grænmeti + vatn.
Síðdegis + kvöldsnakk: 2 1/2 ávöxtur og fjörmjólk.

Systir mín og hennar maður komu við áðan, á leið norður....þau voru að koma frá London - af Rolling Stones tónleikum Hlæjandi bara frábært!

Tilraunastarfssemi

26. ágúst 2007 klukkan 21:19
Gerði tilraun í dag:
6 dl aðalbláber maukuð í minihakkaranum og sett í pott
2 dl agavesýróp sett út í
suðan látin koma upp, og látið malla í 15 mínútur, hrært í af og til.
Sett í krukkur (passlegt í 5 litlar gerberbarnamatskrukkur).

Hef enn ekki rambað á sundlaugarvigtina....er að safna kjarki! Ég er samt sem áður í brjáluðum dönskum gír, mataræðið er búið að vera danskt um helgina og síðan labbaði ég stóra hringinn í dag....þetta er allt að koma.
Er ekki tilbúin með hreyfingarplanið fyrir veturinn en það á eftir að koma í ljós hvernig badmintonæfingarnar verða hjá Stefáni svo og skólinn þannig að ég plana ekkert fyrr en það liggur allt fyrir. Þangað til reyni ég að labba sem mest.

æææææ ég er að bulla, ekki alveg dönsk, fékk mér rjóma út á berin í dag....en gæti það ekki hafa verið fitu og mjólkurskammtur??? bara í þetta skiptið!!???

Ég tók kaffiprófið

24. ágúst 2007 klukkan 09:54

Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Latte!
og samanstend af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?

Latte!

Þú ert skapstór og íhaldsamur einstaklingur sem lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Undir vissum kringumstæðum leyfirðu þér að prófa nýjungar, en þó aðeins að vel athuguðu máli.

Þú samanstendur af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.

Komin heim...

23. ágúst 2007 klukkan 21:42
...já, hér er ég komin.
Þetta er búið að vera alveg meiriháttar frí. Síðan ég skrifaði síðast þá er ég búin að fara á eitt námskeið í Kennó (reyndar bara örstutt). Strax daginn eftir brunuðum við á Brjánslæk þar sem við hittum Teddu og strákana og gistum þar í bústað eina nótt. Síðan fórum við til Bolungarvíkur þar sem við tókum bát til
Grunnavíkur en þar gistum við í tvær nætur,  yndislegur staður..... Á þriðjudaginn fórum við aftur til Bolungarvíkur með viðkomu í Aðalvík (Látrum) þar  kíktum við aðeins í land. Frá Bolungarvík keyrðum við aftur á Brjánslæk þar sem við gistum í bústaðnum í tvær nætur og við komum svo heim seinnipartinn í dag. Fínt frí að baki. Týndi slatta af berjum og er búin að vigta í poka og frysta slatta, gera sultu og borða slatta með rjóma....mmmm.

Núna er það bara danski, ég þyrfti að smella mér í sund á morgun og um leið á sundlaugarvigtina....verð að horfast í augu við það að sennilega hef ég bætt á mig 1-3 kg....finn það á mér. Enda hef ég ekkert spáð í neitt, vestfirsku hveitikökurnar með smjöri og hangikéti og ber með rjóma hafa haft betur undanfarna daga.......

Núna er ég að upphugsa haustprógramm, skrifa meira um það um helgina Glottandi 

Hér er ég...

16. ágúst 2007 klukkan 19:42
.....endurnærð og í skýjunum!!
Jæja þá er ég komin í mýflugumynd heim til mín. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum með ferðina, þetta var æði. Við skoðuðum skóga, þjóðgarða, náttúrverndarsvæði, bæi og borgir. Fórum á bændamarkað, í whisky verksmiðju, hálandaleika og Ceilidh (þjóðdansaball) og þetta var allt saman frábært. Svo var fólkið svo yndislegt, allir svo almennilegir og vildu allt fyrir okkur gera. Komum m.a. á stað sem ég mundi alveg vera til í að fara aftur til í þeim tilgangi að stúdera........ jamm ég er alveg heilluð af Skotlandi, skemmtilegasta land sem ég hef komið til, og þá er ég að meina bæði þjóðin og umhverfið. Set myndir inn síðar meir.

Núna er verið að þvo þvott því stefnan verður tekin vestur á firði um helgina og norður í Grunnuvík....nú erum við sko í sumarfríi! Skólinn byrjar ekki fyrr en 27. ágúst hjá Stefáni þannig að okkur liggur ekkert á Brosandi

Takk fyrir kvittið, veit ekki hvort ég hef tíma til að kíkja á ykkur í dag eða á morgun, en ég lofa að þegar ég kem að vestan þá kíki ég Glottandi

Bloggfrí

06. ágúst 2007 klukkan 18:46
Jæja, núna fer ég í smá bloggfrí. Ég er svo heppin að vera að fara í vinnuferð til Skotlands, maðurinn minn kemur með ásamt vinnufélögum mínum og hópi skógarbænda á Vesturlandi en ætlunin er að kynna sér skógrækt í Skotlandi. Kannski hef ég tíma fyrir bloggið í ferðinni en ég lofa engu Glottandi
Hafið það gott og gangi ykkur öllum vel!


 

Tíminn líður hratt.......

03. ágúst 2007 klukkan 08:36
Í dag:
Þórður Logi , litli stubburinn okkar er tveggja ára  Brosandi
Það sem tíminn flýgur, finnst eins og það hafi gerst í gær þegar hann fæddist....þegar við fengum hann í hendurnar, hann lá á bringunni á mér og horfði á okkur, það var ótrúleg stund....já tíminn líður hratt. Við eigum von á gestum í kvöldmat í tilefni dagsins en síðan verður haldið upp á afmælið fyrir norðan á sunnudaginn.

Á morgun:
Eigum við Haukur fimm ára brúðkaupsafmæliBrosandi þá reikar hugurinn norður í Laufás til allra þeirra sem eyddu deginum með okkur og áttu stóran þátt í að gera hann ógleymanlegan. Þetta var lítil veisla fyrir nánustu ættingja og vini, ætli það hafi ekki verið um 35 manns. Ég sé fyrir mér alla svo glaða þennan dag, við Þórunn að undirbúa veisluna og tína blóm úti í móa til að skreyta með, Inga og Dúa dansandi inni í eldhúsi á meðan Pétur og Þorsteinn skiptast á að spila á gítarinn og allir syngja.

Meira um daginn í dag:
Ég byrja í þriggja vikna sumarfríi eftir daginn í dag Brosandi

Hamingja, þú spurðir um kakóið þá set ég alltaf ca 5-10 gr kakó(fer eftir smekk) og leysi það upp í heitu vatni, hita svo mjólk og hræri út í, bæti síðan sætuefni og rjómadropum út í. Það er líka hægt að setja kakó og undanrennuduft, sætuefni og rjómadropa út í heitt vatn en mér finnst hitt betra en ef þú ert með mjólkuróþol gætir þú notað sojamjólk.

Elín færeyska, jú þú giskaðir rétt.....þetta var Óðinn Gíslason hehehehe!

Tröllahafrarnir góðu.....

02. ágúst 2007 klukkan 08:42
Varðandi tröllahafrana þá sýð ég þá ekki, set bara mjólk og saxa ávexti út í, það er líka gott að setja smá sykurlausa sultu út á mmmm og í einhverri uppskrift sem ég hef séð þá væri hægt að skella tröllahöfrunum á pönnu og setja sultuna út á og þá verður þetta pínu stökkt, hef reyndar aldrei prófað það, er alltaf að flýta mér svo mikið á morgnana.
Mér finnst tröllahafrarnir fínir, þeir henta mér en bragðið er ss ekkert mikið.

Mataráætlunin stóðst ekki alveg í gær, það komu gestir og ég útbjó heitan rétt í staðin fyrir kvöldmat, þannig að ég fékk ekki fiskibollurnar mínar.

Fór í Borgarnes seinnipartinn og varð svo pirruð yfir öllu fólkinu eða aðallega bílunum og aftanívögnum svo ég flýtti mér eins og ég gat að versla, sleppti sundinu og fór heim. Mér finnst göturnar og bílastæðin í Borgarnesi engan veginn gera ráð fyrir ferðafólki, þó er gert út á ferðamenn þarna samanber sjoppurnar allar, jamm mín varð pínu pirruð Skömmustulegur svo var ég komin með dúndrandi hausverk og ekkert gaman. Af því að ég er nú að kvarta hérna þá er ég alltaf skíthrædd þegar ég er á leið úr Borgarnesi og ætla að taka beygjuna af þjóðvegi 1 inn á Borgarfjarðarbrautina (upp í Reykholt, Hvanneyri, Skorradal) ef það er mikil umferð að sunnan þá þarf maður að stoppa og bíða, sem er ok  NEMA þegar maður sér bíla á suðurleið koma á syngjandi siglingu úr Borgarnesi og rétt ná að sveigja framhjá manni. Þarna finnst mér þurfa að gera einhverjar bætur á, þarna hafa orðið slys og spurning um tíma hvenær það muni gerast aftur. Jæja varð að pirrast aðeins, sorry Skömmustulegur

Dagurinn í dag hljómar svona:
Morgunmatur: Tröllahafrar, fjörmjólk, banani.
Hádegi: Brauðsneið með reyktum laxi og grænmeti.
Kvöldmatur: Afmælisveisla hjá Herði Smára, borða grænmetið áður en ég fer.
Allt annað hér og þar yfir daginn en flest verður sparað til kvöldsins.

Hörður Smári til hamingju með þrettán ára afmælið!!!!

íslenskt eða færeyskt???

01. ágúst 2007 klukkan 09:10
Þið hefðuð átt að sjá mig í gær, þegar ég var búin að svæfa stubbinn þá gekk ég um íbúðina eins og brjálaður tarfur.....langaði svo geeeeðveikt í eitthvað gott, fann ekkert suðusúkkulaði sem ég hefði spænt í mig ef ég hefði fundið það en fór þess í stað í heitt bað!!!! Þegar því var lokið fékk ég mér appelsínu og síðan bjó ég til ddv kakó Brosandi
Já, þetta er ekki átakalaust, skal ég segja ykkur!

Ég var að kommenta hjá Ásu Dóru í morgun og minntist eitthvað á hreyfingu þar en ég hef verið að pæla heilmikið í þessu. SKO það fara flest allir sem ég þekki svo hratt í alla hreyfingu, fara 4-5 sinnum í viku í ræktina og finnst það vera algjört lágmark. Ég fór í líkamsrækt 2svar í viku til að byrja með í vetur en jók það í 3svar í viku og fannst það fínt, nb það hentaði mér, síðan fórum við reyndar 3svar í viku í hádegisrölt í vinnunni (ca15-20 mín). Auðvitað verður hver og einn að finna sér þann takt sem hentar en mjög margir sem fara oft í viku (sem ég þekki)  springa því miður oft á limminu og hætta alveg. Er þá ekki betra að sníða sér stakk eftir vexti og fara rólega af stað, finna þann takt sem hentar og halda sér við hann?? Ekki láta einhvern segja manni að maður verði bara að fara 4-5 sinnum í viku af því að annars sjáist enginn árangur. Ég get alveg sagt ykkur það að ég sá árangur þó ég færi bara 2-3 í viku!
Sumarið er tíminn þegar allt vill fara í vitleysu hjá manni en þá mætir maður því með því að ganga eða hjóla það er betra en ekkert......
Jæja þetta er nú meira röflið í mér......og stelpur vitið þið hvað einn kunningi okkar sagði okkur í gær, hann var á Ólafsvöku og hann sagði  í óspurðum fréttum að færeyskar konur væru huggulegri en við íslensku og svo væru þær áberandi grennri!!!!!!!!!!! Hann er að spá í að flytja til Færeyja.........ég veit eiginlega ekki hvað hann var að fara, ég meina við erum fallegastar í heimi, er það ekki?? Koss 

Ég hugsa að ég skelli mér í sund í dag og skelli mér á vigtina í leiðinni.

Svona verður þetta í dag, ansi lítil tilbreyting í þessu
Morgunmatur: Tröllahafrar, fjörmjólk, 1/2 banani
Hádegismatur: Skyrdrykkur, grænmeti, appelsína
Kvöldmatur: Fiskibollur, grænmeti
Afgangur af ávöxtum, mjólk og fitu hér og þar yfir daginn.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.