Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

súkkulađirúsínur og prins póló

31. júlí 2007 klukkan 08:35

Hæ allir, takk fyrir kommentin. Ég ætla ekki að létta mig neitt mikið meira, ég á að vera 67 kg (miðað við hæð) og komst í þá tölu í júní en markmiðið er að halda sig innan við 68. Finnst reyndar allt í lagi að fara niður í 65 en léttari held ég að ég muni líta út eins og Bíafrabarn, ég er það stórbeinótt. Ég er sátt við mig eins og ég er en ég veit að ég verð að passa mig, óregla er minn mesti óvinur því þá dett ég í brauðát sem síðan leiðir af sér löngun í sætindi....jamm svona er það nú bara. Framundan er þriggja vikna frí og þá verð ég að halda rétt á spöðunum, súkkulaðirúsínur og prins póló er eitthvað sem ég á erfitt með að standast en ég skal nú samt gera það.....heppin að vera að fara til Skotlands í viku það er örugglega ekki hægt að fá prins póló og hvað þá súkkulaðirúsínur þar!!!!

Jæja en svona mun dagurinn líta út hjá mér:
Morgunmatur: Tröllahafrar, fjörmjólk, banani.
Hádegismatur: Skyrdrykkur, appelsína, grænmeti.
Kvöldmatur: Nætursaltaður þorskur, soðið nýuppskorið íslenskt grænmeti.
Rest af ávöxtum, fitu og mjólk hér og þar yfir daginn.

Mamma á afmćli í dag!!!!

30. júlí 2007 klukkan 12:10
Til hamingju með afmælið mamma!

Svona er dagurinn í dag:
Morgunmatur: 30 gr tröllahafrar, appelsína, 1 dl fjörmjólk.
Hádegi: 150 gr skyr, 300 gr grænmeti, 1/2 banani.
Síðdegi: Ávöxtur.
Kvöldmatur: Fiskur og grænmeti.
Kvöldhressing: Ávöxtur, afgangur af mjólkurskammti, fita.

Sunnudagskvöld

29. júlí 2007 klukkan 18:38
Ég er komin heim.... í bili. Við höfum verið á flakki síðan föstudaginn 20. það er búið að eyða góðum tíma í föðurhúsunum í Skagafirði, sumarhúsi í Eyjafirði og svo er rúsínan í pylsuendanum....fórum út í Flatey á fimmtudag og vorum bara að koma. Það er sko frí að fara þangað, ekkert gsm samband, vatn sem þarf að spara, lítið um nútímaþægindi, iðandi fuglalíf og sjávarangan..... já það er sko frí!

Ég ætla að taka ddv með trompi þessa viku, áður en maður leggst í næsta flakk. EN það er ekki einfalt fyrir mig að vera 100% þegar ég er á svona flakki, brauðát endalaust, slikkerí hér og þar, hlutföllin semsagt ekki rétt. Það kemur í ljós síðar hvort ég hafi þyngst en ég væri ekki hissa ef eins og eitt kíló hafi ekki komið.

Við höfum ekki hreyft okkur mikið þessa daga en við ráðum bót á því.

Nóg í bili, adios!

Stopult sumarblogg

18. júlí 2007 klukkan 09:48
Það er kominn 18. júlí og ég hef bara tekið 7 frídaga af sumarfríinu, dagur hér og dagur þar. Ég bíð spennt eftir litla fríinu sem hefst kl 16:00 á morgun en ég þarf síðan nauðsynlega að vinna vikuna fyrir verslunarmannahelgina, eftir það fer ég í vinnuferð til Skotlands (ekki leiðinlegt) og síðan tekur við sumarfrí og ég byrja að vinna aftur í lok ágúst. En þó mun ég eiga einhverja daga eftir sem ég tek eftir hendinni. Ég er orðin mjög sólgin í að komast í frí og þarf bara virkilega á því að halda núna, ég eiginlega hugsa ekkert um neitt annað en frí, frí, frí en góða veðrið sem hefur verið alla daga undanfarið og sundferðir eftir vinnu hafa haldið manni gangandi. Vinnan skemmtileg og allt það en stundum þarf maður að ná að kúpla sig út.

Varðandi mataræðið þá er ég dottin í það að borða 30 gr. af tröllahöfrum, 1 dl. fjörmjólk út á og nokkrar rúsínur í morgunmat, það er æði. Síðan fæ ég mér ávöxt í tíukaffinu og oftast skyr eða eitthvað svoleiðis í hádeginu, ásamt grænmeti. Á kvöldin er það svo kjöt eða fiskur og grænmeti, og af því að veðrið hefur verið svo gott þá er ís leyfilegur hjá mér. Ég fer eftir danska að því leiti að ég borða réttan morgunmat (fyrir utan rúsínurnar) og hádegismat, grænmetið á kvöldin og ávextirnir eru á sínum stað. Þetta er ok á meðan ég þyngist ekki.
Ég rígheld í að halda í markmiðið mitt en það er að fara ekki yfir 68 kíló og það skal takast. Maður fer svo að mæta reglulega i ræktina eftir frí, engin spurning.

Varðandi verðlaunaferðina, hún verður ekki farin í bráð, ég hef bara ekki þörf fyrir hana núna, þetta sumar er svo gott að ég held ég þurfi ekkert að fara neitt annað í sól. Hins vegar verður þetta á bak við eyrað í vetur en ég fann það í vor að þá  var maður alveg búin á því og þá hefði maður alveg þegið það að komast í sól.

Svona í lokin þá ætla ég að setja hérna inn nokkrar hugmyndir af grænmetissulli...Glottandi
en ég var að kommenta hjá Ásu Dóru þar sem hún auglýsi eftir hugmyndum....hér kemur ágrip úr kommentinu:
Varðandi grænmetisrétti þá finnst mér æði að gera rófufranskar.
- eða
skera niður kúrbít eftir endilöngu í ca 4-5 sneiðar, leggja á bökunarpappír, hræra saman olíu, pressuðum hvítlauk, söxuðu eða þurrkuðu rósmarín, pínu pipar og jurtasalt, setja þessa olíublöndu yfir kúrbítssneiðarnar og grilla í ofni....rosagot, jammí, jammí.
- eða
taka blómkálshaus og létt gufusjóða hann, taka síðan olíu og krydd, kannski brauðmilsnu (hádegisbrauðið) og jafnvel hálfan ostskammt og dreifa yfir blómkálshausinn og skella inn í ofn í nokkrar mín, jammí, jammí með þessu væri þá hægt að borða eitt egg eða bara meiri ost.
- eða
rífa niður brauð og saxa niður allskonar grænmeti (300 gr), krydda og blanda vel saman. Þetta er allt sett eða þrýst ofan í lítið eldfast form eða svona álform sem hægt er að kaupa í t.d. Bónus. Eitt egg og hálfur ostskammtur (kotasæla eða bara rifinn ostur) hrært saman og kryddað og hellt yfir, bakað í ofni í smá tíma, borðað með tzaiki (sýrður rjómi, hvítlaukur, rifin gúrka).
- eða
grilla allskonar grænmeti.

Ég veit ekki hvað ég næ að blogga mikið á næstunni en ég læt vita af mér svona af og til.

Lífiđ er yndislegt

16. júlí 2007 klukkan 11:37

# Frábær helgi að baki
# Fjórir vinnudagar í þessari viku
# Sól og blíða úti
# Já, lífið er yndislegt
Brosandi

Við gengum yfir Fimmvörðuháls á laugardaginn, alveg frábær ferð með Ferðafélagi Íslands. Fórum frá Skógum og upp á hálsinn þar sem við gengum mestan part í þoku og logni. Renndum okkur niður Bröttufönn, fórum um Hlejarkamba og Morinsheiði, gengum yfir Kattarhryggi og og og.....
Upplifunin var æðisleg og svo birti til þegar við gengum niður í Þórsmörk.....get ekki lýst þessu í orðum. Enduðum í Langadal þar sem við grilluðum læri og það var frábær endir á góðum degi. Gangan sjálf tók 8 klukkutíma. Ég mæli með þessu en ég mæli með því að fólk sé í þokkalegu formi til að njóta þess í botn.
Á sunnudagsmorguninn gengum við á Valahnjúk og yfir í Húsadal, fórum síðan af stað í bæinn kl 13. Brunuðum á Hvanneyri og fórum beinustu leið í pottinn þar sem við slökuðum á í tvo klukkutíma.
Slökuðum á yfir Íslandsatlasinum og ísköldum bjór í gærkveldi.

ný tala

11. júlí 2007 klukkan 22:39

Já, í dag leit í dagsins ljós ný tala, ég er ferlega ánægð með hana Brosandi
Ég og drengirnir mínir fórum í sund  seinnipartinn í dag og þá skellti ég mér á vigtina, ég hef ekki þyngst síðustu vikur, sjúkket. Það hefur hálft kíló fokið síðan 17. júní. Ég er bara mjög ánægð með það en plííís ekki segja að nú verði ég að hætta og fara að passa mig...ég þoli ekki þær ábendingar (veit að þið meinið vel) því að mér líður mjög vel. Danski er sem fyrr með á virkum dögum en þó með undantekningum. Ég á líka allt sumarfríið eftir en ætli maður bæti ekki á sig í því..... hmhmhm kæmi mér ekki á óvart.

út og suđur

11. júlí 2007 klukkan 08:25
Síðan ég bloggaði síðast þá hef ég, farið suður til Reykjavíkur og eytt peningum í útivistarbúð, farið á útsölur í Kringlunni og eytt peningum þar, aðallega í Polarn o pyret og í Fat Face sem er uppáhaldsbúðin mín þessa stundina. Ég fór í heimsókn til Elínar í Mosfellsdalnum á laugardag, lá í leti úti á palli á sunnudaginn. Við fórum í gönguferð eftir vinnu á mánudag, ca 3 tíma göngu og sund á eftir með' samstarfsfólkinu í skrifstofuhúsinu, þvældist um Skorradal og Lundareykjadal með félagi skógarbænda á Vesturlandi í gær og endaði í mat í Fossatúni í gærkvöld......semsagt brjálað að gera. Fimmvörðuháls verður genginn um helgina, síðan er vinna í fjóra daga og vikufrí eftir rúma viku!!!
Hef svindlað heilan helling núna síðustu tvo dag en verð dugleg fram að gönguferð, danskurinn verður ekki með í för á Fimmvörðuhálsi, hnetur og súkkulaði fá að vera með þar Glottandi
Fór á vigtina í sðustu viku og þar er allt á góðu róli, ef ég fer í sund í Borgarnes seinnipartinn þá skelli ég mér á vigtina. EN NÚNA ER ÞAÐ VINNAN SEM BÍÐUR. NJÓTIÐ DAGSINS!

tararamm

06. júlí 2007 klukkan 11:33
Það rigndi á Hvanneyri í gærkvöld í næstum því tvo klukkutíma!!!! Ótrúlegt alveg, það er allt að skrælna úr þurrki en akkúrat núna er 17 stiga hiti, sól og blástur = þurrkur. Matarmálin ganga vel en ég hef ekki alveg þann tíma sem ég helst vildi til að ganga en hádegisgöngurnar halda manni við efnið. Hefði þurft að ná að labba eitthvað lengra nú um helgina, síðan ætlar hádegislabbakútahópurinn í lengri gönguferð eftir vinnu á mánudaginn, svo þyrfti ég að ná góðri hreyfingu á miðvikudag, því það styttist í Fimmvörðuhálsgönguna Svalur 
Ætli við skutlumst ekki til Reykjavíkur að kaupa ýmislegt sem vantar fyrir sumarfríið á morgun og kíkjum jafnvel á Landsmót UMFÍ í Kópavogi...Haukur verður reyndar dómari í einni greininni...hugs, hugs, Kópavogur....ferlega skrítin staðsetning verð ég nú að segja, fín aðstaða en maður er bara svo fastur í því að landsmótin séu úti á landi....já, svona er maður nú skrítinn!

Sumarfríiđ

03. júlí 2007 klukkan 15:28

Svona verður þetta....
Næsta helgi er laus,
14.-15. júlí er það Fimmvörðuháls.
Helgina 20.-22. júlí verðum við í Skagafirði m.a. í afmæli þar á eftir förum við í nokkra daga í bústað systur minnar og mágs í Eyjafirði.
Helgin 27.-29. júlí er óplönuð allar tillögur vel þegnar!
Verslunarmannahelgin....þá verðum við heima, svo er það vinnuferðin til Skotlands.
Ég var að bóka okkur fjölskylduna í siglingu og gistingu í tvær nætur í Grunnavík, fljótlega eftir Skotlandsferðina í ágúst. Svo verður púslað eitthvað sitthvorumegin við, kannski í Vatnsfirði..... ég sé fyrir mér ber, ber og aftur ber!!!! Við verðum komin heim í tæka tíð fyrir skóla en Grunnskóli Borgarfjarðar byrjar 27. ágúst.
Mér finnst þessi plön alveg hreint ótrúlega fín og ég hlakka virkilega til að ferðast um landið okkar í sumar Hlæjandi
Verðlaunaferðin er ennþá í höfðinu á mér, erum ekkert búin að bóka neitt, ætlum bara að sjá til hvað dettur upp í hendurnar á okkur Glottandi

Mánudagur

02. júlí 2007 klukkan 10:58
Sól, sól, sól, heitt, heitt, heitt......alveg geggjað! Vorum heima í rólegheitum um helgina, fórum reyndar í fjallgöngu í gær, gengum á Brekkufjall. Fórum erfiða leið, upp snarbratta skriðu en það er nú ágætt að þjálfa sig aðeins í erfiðum aðstæðum. Fórum í sund, sátum úti á palli, nutum lífsins. Danskurinn hefur verið til staðar um helgina fyrir utan einn bjór í gærkvöldi þegar við sátum úti við kamínuna Brosandi
Ása Dóra er búin að vera hjá okkur um helgina og Friðdóra kíkti líka en hún gisti hjá Oddu vinkonu sinni. Fín helgi að baki.
Það styttist í sumarfrí, ég verð komin í vikufrí eftir þrjár vikur og svo vonast ég til að ágúst verði góður en þá tek ég meira frí.....
Við höfum verið að pæla í þessu með verðlaunaferðina....hugs, hugs, læt ykkur vita þegar niðurstaða verður komin í það mál Glottandi

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.