halló
27. júní 2007 klukkan 13:52
Ég var eins og sprungin blaðra á mánudaginn þegar ég var búin að kveðja færeysku hjónin sem við hýstum um helgina. Vinabæjarmótið heppnaðist vel, eða ég hef ekki heyrt annað.
Þá lá leiðin norður í Skagafjörð að hitta Stefán Snæ og ná sér í skagfirkst loft! Haukur komst því miður ekki með vegna vinnu en Tedda og strákarnir voru samferða. Við áttum ágæta stund í Skagafirðinum. Borðuðum góðan mat, gengum upp í Gvendarskál fyrir ofan Hóla og fórum í sund. Mjög fín ferð en helst til of stutt.
Núna er vinna, vinna og aftur vinna. Ég er farin að hlakka mikið til þess að komast í sumarfrí eftir þrjár vikur en þangað til er mikil vinna og flækingur með útivistarívafi en mikil vinna við kortlagningu er framundan sem er mjög skemmtilegt svo framarlega að veðrið sé sæmilegt.
Matarmálin voru í rugli um helgina en í dag er það danskurinn sem öllu ræður og þannig verður það næstu daga. Veit ekki hvort ég kemst í síðasta leikfimitímann í dag og á vigtina en ef ekki þá skelli ég mér á vigtina í næstu sundferð
Þið verðið að sýna mér þolinmæði þessa dagana ég er ekki í neitt ofsalegu bloggstuði eins og sjá má en ég verð nú samt að halda mér við efnið .........þið skiljið

Ég er á lífi....
22. júní 2007 klukkan 12:42
Takk fyrir kommentin stúlkur!
Það hefur verið mikið um að vera hjá mér síðustu daga í vinnu, félagsmálum og auðvitað líka í því að vera húsmóðir og þess vegna ekki haft tíma fyrir bloggið.
Er í stjórn Borgarfjarðardeildar Norræna félagsins og það er vinabæjarmót um helgina og mikið púsluspil í kring um það......ég skil bara stundum ekkert í mér að láta hafa mig út í að stússast í svona löguðu.....hmhmhmhm EN mikið verð ég nú fegin þegar mánudagurinn kemur, þá ætla ég að taka mér tveggja daga frí og ná mér í Skagfirsk loft!
Ég hef haldið mig að mestu innan ramma þess danska en ég ætla að passa mig. Síðan geri ég svolítið sem er ótrúlega gott stundum það er: sama hversu mikið álag er og mikið að gera að þá tek ég mér "alveg sama stund" t.d. í gærkvöldi þá fór ég í fjallgöngu í stað þess að stússast í kring um vinabæjarmótið og í morgun fór ég í ljós!!!! Mæli með þessu
Blogga örugglega lítið sem ekkert fyrr en í næstu viku

Útskrifuð hjá sjálfri mér...
18. júní 2007 klukkan 20:25
....er það ekki annars í lagi? Fór á vigtina og 300 grömm niður síðan á miðvikudag, þrátt fyrir ís og ýmislegt annað sukk í gær sem ég ætla ekki að tíunda hér.
Ég á eftir 200 grömm í markmiðið en ætla bara samt að útskrifa mig hjá sjálfri mér
ég meina það nú 67,2 er ekki slæm tala....eða er það nokkuð? Ég sætti mig í allavega við hana 
Ferðalagið sem hófst 5. september 2006 er á enda EN núna hefst vinnan fyrir alvöru, það er að halda sig innan við 68 kílóin, en það er mitt markmið.
Ég hef misst að meðaltali 498 grömm á viku.
Þá er húla húla konan komin til enda á ströndinni.....

Ég er að setja inn myndir af mér trúið þið þessu???? Endilega kíkið í albúmin.
Ég ætla síðan að þakka ykkur öllum sem þetta lesið fyrir hvatninguna, án ykkar hefði ég ekki haldið þetta út, svo einfalt er það. TAKK
Ég á eftir 200 grömm í markmiðið en ætla bara samt að útskrifa mig hjá sjálfri mér
Ferðalagið sem hófst 5. september 2006 er á enda EN núna hefst vinnan fyrir alvöru, það er að halda sig innan við 68 kílóin, en það er mitt markmið.
Ég hef misst að meðaltali 498 grömm á viku.
Þá er húla húla konan komin til enda á ströndinni.....

Ég er að setja inn myndir af mér trúið þið þessu???? Endilega kíkið í albúmin.
Ég ætla síðan að þakka ykkur öllum sem þetta lesið fyrir hvatninguna, án ykkar hefði ég ekki haldið þetta út, svo einfalt er það. TAKK
Af hverju 17?
18. júní 2007 klukkan 13:36
Nú man ég af hverju ég miðaði við 17. júní. Það var ekki aðeins út af því að það er þjóðhátíðardagurinn, nei það var út af því að ég taldi að 500 gramma léttingur væri heillavænlegur léttingur 
Lokatölur koma í kvöld.......
Lokatölur koma í kvöld.......
....já það er 17. júní í dag......
17. júní 2007 klukkan 20:26
Gleðilega hátíð 
Í dag er dagurinn sem ég hef miðað öll mín markmið varðandi ddv við síðustu mánuði. Þetta byrjaði allt 5. september á síðasta ári, ég fór á fund í Borgarnesi hjá íslensku vigtarráðsjöfunum. Ég ætlaði mér að komast í 67 kílóin, eða að missa 20,6 kíló á þessum tíma..... (ég fór reyndar ekki í sund á Borgarnesi í dag og þ.a.l. ekki á vigtina en ég veit að ég er ansi nálægt markmiðinu) yfir 20 kíló farin og það er meira en ég átti von á, það get ég sko sagt ykkur! Það er nefnilega málið að ég bjóst aldrei við að ná því að verða sextíu og eitthvað kíló.
Fyrsta bloggfærslan var skrifuð 13. september 2006:
Jæja loksins lét ég verða af því!! Byrjuð að blogga
Ástæðan er sú að ég byrjaði í DDV fyrir viku síðan. Eins og einhver sagði (las það einhversstaðar) þá er ég líka sérfræðingur í að fitna, hef alveg síðan á unglingsárum verið yfir kjörþyngd en ég veit að ef ég tek ekki í taumana núna þá á þetta bara eftir að versna. Ákvörðun mín að ganga til liðs við DDV er mjög meðvituð en það sem hefur veitt mér óendanlega trú á þessu eru átaksbloggarar en ég hef bókstaflega legið yfir bloggsíðum þeirra og finnst ég bara þekkja þessar hetjur alveg heilmikið! Ég á nokkrar vinkonur sem eru að breyta um lífsstíl eins og ég og ætla ég að gera allt sem ég get til að styðja þær og "peppa" þær upp.
Ég ætla að setja inn myndir og fleira næstu daga....vonandi!
Á morgun fer ég í leikfimi og í sund og þá fer ég á vigtina og eftir það kem ég með tölfræði

fimmhundruð grömm í sólarlandaferðarpöntun.............
14. júní 2007 klukkan 08:52
Ekki var það mikið þessa vikuna, átti s.s. von á því. Var að hugsa um það áðan að ástæðan fyrir því að ég er ekki að taka ddv 100% þessa dagana þ.e. leyfi mér hitt og þetta um helgar er sennilega sú að ég get ekki ákveðið hvert eða hvenær við ættum að fara í sólina!!!! Sennileg skýring?? Jú það held ég bara...... sko, maður gæti farið eftir að heim er komið frá Skotlandi, tekið drengina með í viku og verið komin heim rétt í þann mund þegar skólinn á að byrja......það væri líka hægt að bíða og við gætum farið í kring um áramótin hmhmhmhm.....þetta er erfitt. Ég vil ekki fara í júlí, þarf að njóta þess litla sumars sem er hér á Íslandi, auk þess tek ég mér lítið frí í júlí, aðeins viku, og einn dag hér og einn dag þar til að lengja helgar. Aðalfríið mitt er í ágúst.
Annars líður mér ljómandi vel, sló persónulegt met á vellinum í gær og hljóp 1600 metra í einu, án þess að stoppa. Það hefur alltaf verið minn draumur að geta hlaupið eitthvað án þess að standa á öndinni og nú held ég að ég sé komin á rétt ról....næst fer ég 2000 metra
Farið vel með ykkur og takk fyrir innlitið á síðuna
miðvikudagur
13. júní 2007 klukkan 08:33
Ég hef sett mér nýtt markmið, en ég geri mér svo fullkomlega grein fyrir að núna hefst vinnan fyrir alvöru þ.e. að halda mér í réttri þyngd. Núna er ég 67 komma eitthvað kíló.... og ég er ekkert voðalega ströng við mig. Markmiðið er semsagt það að fara ekki upp fyrir 68 kílóa tölu, ef það gerist þá verð ég að vera hörð við sjálfa mig og taka ddv með trukki og dýfu 
Það er nóg að gera hjá mér í vinnunni þessa dagana og svo er það vinabæjarmótið sem verður um Jónsmessuhelgina, það verða færeysk hjón í gistingu hjá okkur og ég er að verða nokkuð spennt fyrir því. Ég er samt að farast úr stressi yfir því að við finnum ekki nógu marga gestgjafa til að hýsa allt fólkið.....jæja en það kemur allta í ljós og eins og maðurinn sagði.....þetta reddast.....
Fer í leikfimi seinnipartinn og síðan á vigtina og í sund klukkan sex.

örblogg
12. júní 2007 klukkan 14:04
Úti er 16 stigi hiti, vindur 1 m/sek og sól..........ég er að klára eitt verkefni áður en ég fer út í sólina!!!!
DDV gengur ljómandi vel, fer alveg eftir prógramminu á virkum dögum en leyfi mér aðeins meira um helgar. Vigtun á morgun, adios!

Mánudagur
11. júní 2007 klukkan 09:18
Þá er Borgfirðingahátíð lokið. Hún stóð frá fimmtudegi til dagsins í gær. Við tókum þátt í ýmsu þessa daga, fórum í göngu á Eldborg, gengum síðan á Hafnarfjall á laugardag, fórum í morgunmat í Skallagrímsgarð í gærmorgun og horfðum á furðufótbolta, gröfuleikni og skoðuðum sýninguna "Heimanmundurinn sem villtist af leið". Þetta var semsagt fín helgi. Ása Dóra kom á laugardaginn og fór seinnipartinn í gær og einnig kom mamma hennar við í kaffi hjá okkur. Veðrið er frábært klukkan 9 í morgun var 1 m/sek, 12 stiga hiti og sól.
Gangan á Hafnarfjall gekk vel, Stefán Snær stóð sig vel og kom með okkur, það var þoka á toppnum þannig að lítið sá maður en það var logn. Ég mæli með göngu á Hafnarfjall, tókum slatta af myndum sem ég ætla að setja hér inn við tækifæri.....ásamt myndum af mér

Gærkvöldið
08. júní 2007 klukkan 08:30
Hugsið ykkur;
Kvöld
Logn
Angandi birkiilmur
Fuglasöngur
Algjör kyrrð
Hópur af fólki að ganga á Eldborg.......þannig var gærkvöldið hjá mér.

Ég mæli hiklaust með því að þeir sem hafa gaman af því að ganga geri sér ferð upp á Eldborg, sonur minn sem er 11 ára kom með. Við vorum svona þrjú korter aðra leið en drjúgur spotti er að Eldborg frá Snorrastöðum, þaðan sem við gengum. Létt ganga nema smá príl síðustu metrana. Hafið þið komið á Snorrastaði? Kom mér verulega á óvart, þarna er heilmikil ferðaþjónusta og gæti verið gaman að halda eins og eitt stykki ættarmót þarna.....kíkið á http://www.snorrastadir.com/

vigtunardagur í gær
07. júní 2007 klukkan 08:39
300 grömm fóru þessa viku, 19,9 kg farin í allt. Þetta er alveg að hafast.......
Skrifa meira á morgun.....það er svo mikið að gera núna.....adios!
mánudagur
04. júní 2007 klukkan 14:54
Ég er á lífi, það er mjög ólíkt mér að setja ekki inn færslu í þrjá daga þannig að nú bæti ég úr því.
Ég ætla að byrja á að þakka ykkur fyrir innlitið á síðuna
Djúsígella jú það er alveg sjálfsagt að þú setjir mig inn í tenglasafnið þitt, ekkert mál og þér er velkomið að nota sama kerfi og ég varðandi skráningar á markmiðum og allt það, ég á engan einkarétt á þessu
Þetta er mjög góð leið til að halda utan um þetta allt saman.
Helgin hefur ekki verið alveg 100% ddv-væn. Fékk mér ís bæði á laugardag og sunnudag og svo fékk ég mér smá köku og pínu nammi líka.......
EN ég held mig við ddv á virkum dögum og ef ég held þyngdinni nokkurn veginn á þessu róli þá er ég sátt. Ég hreyfði mig eiginlega ekkert nema í formi garðvinnu um helgina, ætla síðan á æfingu í dag þannig að þessi dagur ætti að verða nokkuð góður. Morgunmaturinn samanstóð af cherios, fjörmjólk og appelsínu. Fékk mér hrökkbrauð, ost og grænmeti í hádeginu og síðan verður það fiskur og grænmeti í kvöld.
Ég er í fríi fyrripartinn af þessari viku, er með Þórð Loga í aðlögun á leikskólanum, svakastuð.
Úti er rok og rigning
Vonandi verður það ekki svona alla vikuna, við stefnum á UMSB göngu næsta fimmtudagskvöld en það er gengið á fjöll aðra hverja viku á vegum þeirra, núna næst er það Eldborgin, gönguferð sem ætti að henta öllum, ungum sem öldnum. Við förum síðan að öllum líkindum norður í fjörðinn fagra (Skagafjörð) um næstu helgi og þá verður vonandi hægt að fara í einhverjar gönguferðir eða jafnvel fjallgöngu, hver veit
Ég ætla að byrja á að þakka ykkur fyrir innlitið á síðuna
Djúsígella jú það er alveg sjálfsagt að þú setjir mig inn í tenglasafnið þitt, ekkert mál og þér er velkomið að nota sama kerfi og ég varðandi skráningar á markmiðum og allt það, ég á engan einkarétt á þessu
Helgin hefur ekki verið alveg 100% ddv-væn. Fékk mér ís bæði á laugardag og sunnudag og svo fékk ég mér smá köku og pínu nammi líka.......
EN ég held mig við ddv á virkum dögum og ef ég held þyngdinni nokkurn veginn á þessu róli þá er ég sátt. Ég hreyfði mig eiginlega ekkert nema í formi garðvinnu um helgina, ætla síðan á æfingu í dag þannig að þessi dagur ætti að verða nokkuð góður. Morgunmaturinn samanstóð af cherios, fjörmjólk og appelsínu. Fékk mér hrökkbrauð, ost og grænmeti í hádeginu og síðan verður það fiskur og grænmeti í kvöld.
Ég er í fríi fyrripartinn af þessari viku, er með Þórð Loga í aðlögun á leikskólanum, svakastuð.
Úti er rok og rigning
stutt blogg
01. júní 2007 klukkan 08:10
Mér sýnist veðrið ætli að vera gott við okkur í dag það er hlýtt, lygnt og sólin gægist á milli skýjanna.
Í dag:
Cherios, fjörmjólk, appelsína í morgunmat. Lax og grænmetissúpa í hádeginu. Kjúlli í kvöld.