nýjar tölur.......
ÉG Á EITT KÍLÓ EFTIR Í MARKMIÐIÐ SEM ÉG SETTI MÉR!!
Ef ég held rétt á spöðunum næsta hálfa mánuðinn þá gæti nú alveg farið svo að ég nái markmiðinu og þá fer maður að skanna framboðið á sólarstrandarferðum

Matardagurinn verður svona: Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani í morgun. Grænmetissúpa, brauð með osti í hádeginu. Fiskibollur og grænmeti í kvöld. Ávextir, fita, mjólkurskammtur hér og þar yfir daginn.
Í dag er síðasti dagur Þórðar Loga hjá dagmömmunum. Hann hafði með sér gulrótarköku til að bjóða upp á í kaffinu og svo smá kveðjugjafir handa Möggu og Ellý, þeirra verður sárt saknað.
Hann byrjar í aðlögun á leikskólanum á mánudaginn en ætlar í smá heimsókn þangað á morgun. Spennandi fyrir stubbinn. Þetta verður fínt svo fer leikskólinn í sumarfrí um miðjan júlí og þá kemur mánaðarfrí hjá honum.
vigtun á miðvikudögum
....ætla bara rétt að vona að ég hafi ekki þyngst en ég er nú samt ansi smeik við það. Þvílíkt óhófsát um helgina.
Dagurinn í dag:
Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani í morgunmat, grænmetissúpa, brauð og reyktur lax í hádeginu. Hakk og grænmeti í kvöld, ávextir, mjólk og fita hér og þar yfir daginn.
Hvað gerist svo???? Núna er 30. maí 2007 og ég hef því 19 daga til stefnu til að komast í 67 kílóin, það kemur allt í ljós í vigtun í kvöld hvort það sé einhver möguleiki á því að ég nái þessu. Ég rígheld í þann danska og hann er alveg að virka, mér gengur ofsalega vel að fara eftir honum og síðan er hreyfingin punkturinn yfir i-ið. Núna fer ég ekki lengur út í sal að lyfta, ætla að taka mér frí frá því í a.m.k. tvo mánuði en ætla að byrja seinnipartinn í dag í leikfimi sem verður tvisvar í viku út júní. Þess fyrir utan þá ætla ég að fara eftir hlaupaáætluninni en sleppa út hlaupadögum ef ég fer í fjallgöngu. Þannig að ég mun hreyfa mig allt að fimm sinnum í viku núna í júní. Það er kannski fullmikið en ég ætla að prófa þetta þennan eina mánuð en ég ætla að vera í góðri æfingu þegar ég fer í Fimmvörðuhálsgönguna í júlí. Það er nefnilega ekkert gaman að fara í svona gönguferðir ef maður er í lélegu formi. Maður þarf að njóta þess að ganga á fjöll.
Svona í lokin þá ætla ég að segja ykkur það að það er ekkert atriði fyrir mig að komast í 67 kg. ef ég kemst ekki í þá tölu fyrir tilsettan tíma þá só?? Mér líður vel og það er fyrir öllu. Lífið gæti ekki verið betra við mig og ég er þakklát fyrir það sem ég hef og þau kíló sem ég hef ekki!! Við fjölskyldan erum heilsuhraust og okkur líður vel og það er fyrir öllu. Fæ stundum móral yfir að vera að tala um þessa kílóa tölu eða hina....þetta gæti allt verið svo miklu, miklu verra.
þriðjudagur til þrautar
Nú er feitri helgi lokið!!! Held að miðað við átið sem hefur verið á manni þessa helgi þá slagi þetta upp í jólin! Þrjár veislur á jafn mörgum dögum.....úff, það verður tekið á mataræðiðinu þessa viku, engin spurning og ef ég hef tíma þá skutlast ég á vigtina í Garðabænum.
Næstu dagar verða bara hefðbundnir; borða, vinna, sofa.......
Mataræðið í dag:
Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani í morgunmat. Skyrdrykkur, grænmeti og brauð í hádeginu, fiskur og grænmeti í kvöld. Ávextir, fita og afgangur af mjólkurskammtí hér og þar yfir daginn.
Veðrið hér ætlar að vera gott í dag, hitinn var kominn í 10 stig klukkan 9 og vindurinn 2 m/sek.
Ætla að ganga eða skokka í kvöld ![]()
bissí dagar.....
Kl 6:00 Fór í ræktina.
Kl 8:30 fara í Dalina, á einn bæ til að skoða ákveðið mál...
Verð komin aftur á Hvanneyri kl 12:30 fer beint í að klára ákveðin verkefni, ætti ekki að taka langan tíma.
Kl 14:00 meistaraprófsvörn Andreu Ruggeberg
Kl 15:30 Komin heim legg lokahönd á frágang fyrir norðurferð.
Kl 16:00 Legg af stað norður (ætti maður kannski að taka skíðin með!!!)
20:00 Kvöldmatur á Kaffi Krók.
Laugardagur.
Slakað á fram eftir degi...
Eftir hádegi útskrifast systir mín úr Hólaskóla
þar á eftir förum við í "opið fjós" í Garðakoti.
Sunnudagur.....fermingarveisla.....
Það verður semsagt nóg að gera um helgina
stutt í dag....
Cherios, fjörmjólk, appelsína í morgunmat.
Kjúlli og grænmetissúpa í hádeginu.
Fiskibollur og ofnbakað grænmeti í kvöld.
Vinna til fjögur, tiltekt, þvottastúss og þrif þegar heim verður komið. Sett verður niður í töskur og strax eftir vinnu á morgun verður brunað norður á Sauðárkrók í mat á Kaffi Krók
próteinskortur?
Dagurinn í dag:
Morgunmatur: Brauð, smyrja, ostur, sulta, appelsína.
Hádegismatur: Ýsa, grænmetissúpa.
Kvöldmatur: Fiskur í ofni, grænmeti.
Ávextir, fitu og mjólkurskammtur hér og þar yfir daginn.
Ég skellti inn hér til hliðar nýrri undirsíðu sem heitir hlaupaáætlun, ég ætla að fara eftir henni í sumar. Þ.a.l. mun ég sennilega leggja æfingaáætlunina til hliðar. Stefni á að hefja hlaupaæfingar í næstu viku.
Þurra fótabaðið........
Mataræði gengur ágætlega, ég er nánast 100% ddv þessa dagana. Ætla að standa mig næstu 10 dagana en þá stefni ég á vigtun í Garðabænum.
Það sem háir mér þessa dagana er þreyta, ég er ferlega þreytt alltaf hreint hef enga sérstaka skýringu á því, nema þetta sé vítamínskortur, hver veit.
róleg helgi
Í dag hef ég bara verið í rólegheitum hér heima í að undanskilinni sundferð í morgun. Dundaði aðeins í garðinum áðan, það er að koma svolítill sumarfílingur í mann. Ég vona bara að þetta verði gott sumar þannig að maður geti notað pallinn sem mest
Ég hef verið að hugsa heilmikið um þetta átak mitt, þó ég fari í kjörþyngd þá er það bara hálfur sigur, stærsta verkefnið verður að halda þessu en ég ætla að hafa eitt mottó og ætla mér að standa við það..... ÉG FER ALDREI AFTUR UPP FYRIR 70 KG. ALDREI!!!!
Það verður Volare kynning hjá mér annað kvöld (mánudagskvöld, kl 20:30) Það eru allir velkomnir, þið sem eruð líkleg/ar að koma vitið hvar ég á heima! Boðið verður upp á þurrt fótabað
LÉTTAR OG EINFALDAR VEITINGAR
föstudagur
Morgunmatur eins og venjulega, cherios, fjörmjólk, appelsína. Reyktur lax, brauð og grænmeti í hádeginu. Kjúlli og grænmeti í kvöld....jamm ætla ekki að hafa þetta lengra í dag.
Góða helgi!
púlsinn
grænmeti 25 gr camembert, eggjahræra (úr 1 eggi) brauð í hádeginu
hakk og grænmeti í kvöld. Þar með næ ég ekki að standast markmið vikunnar, enginn fiskur í dag.
Gærkvöldið heppnaðist ágætlega, var eiginlega frekar slök eftir pottinn og þráði ekkert heitar en að komast í rúmið....þrátt fyrir góðan félagsskap, var komin heim um hálf eitt.
Í dag vann ég fram að hádegi, árstíðarbundið álag í vinnunni semsagt hafið, allir að undirbúa sig fyrir gróðursetningu. Annars bara slök eftir hádegið, fór í kaupstað og verslaði í rólegheitum, fékk mér bjór núna seinnipatinn með Teddu....jamm bara fínn dagur en ekki 100% ddv vegna bjórsins.....en skítt með það!
Annars er það ræktin í fyrramálið og vinna til fjögur og þá er komið helgarfrí
p.s. frétt dagsins, það er búið að slíta stjórnarsamstarfinu........
Miðvikudagur
Svona verður þetta í dag í matarlegu tilliti: Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani í morgunmat. Graflax, brauð og grænmeti í hádeginu. Grillað lambalæri með öllu tilheyrandi í kvöld.
Eftir vinnu keyri ég Stefáni á æfingu, síðan geri ég mig klára fyrir sund/pottferðina með saumó og eftir að hafa skolað af sér skítinn borðum við saman. Ég veit ég mun fá mér bjór í heita pottinum og kannski rauðvín með matnum en ég hef nú ekkert sérstaklega miklar áhyggjur af því....semsagt svindl framundan í dag ![]()
Dagurinn lofar góðu í veðurfarslegu tilliti, sól, 5 stiga hiti og næstum logn kl 8 í morgun.
eitt og annað
Dagurinn í dag er ósköp hefðbundinn þriðjudagur, vinna og síðan vona ég að veðrið verði jafn gott og það er í þessum skrifuðu orðum (sól og logn) en þá er stefnan tekin á garðstúss. Ég veit ekki hvort ég fari í Borgarnes á vigtina, skellti mér á hana í gær þegar ég kom úr sundi en ég var rennandi blaut og í sundbol svo það er lítið að marka töluna sem vigtin sýndi en miðað við hana hef ég náð að léttast um kíló á einni viku en ég tek það með miklum fyrirvara, trúi því bara ekki. Ég stefni á að fara í vigtun í lok maí hjá vigtarráðgjöfunum og VONANDI næ ég að útskrifast
Morgundagurinn verður stuðdagur eða réttara sagt annað kvöldið en þá verður árshátíð saumaklúbbsins. Við ætlum að fara í sund og heitan pott á afviknum stað upp í sveit.....darararam....og síðan förum við heim til Valdísar í mat en þá verða lambalæri tilbúin til átu eftir að hafa damlað á glóðunum. Þetta verður örugglega mjög gaman og stuð frameftir nóttu.
Ég fékk einstaklega ánægjulegt bréf í gær, komst inn í námið sem ég var að sækja um.....jibbíííí!!! Stefni á að taka minnst 15 einingar næsta vetur hef ekki ákveðið hvort ég minnki við mig vinnu en það kemur allt í ljós þegar á reynir hvað maður gerir.
örblogg
Brauð, cherios, 1/2 banani, fjörmjólk í morgunmat.
Túnfiskur og grænmeti í hádeginu, kjúlli og grænmeti í kvöld.
Ávextir, fita og mjólkurskammtur hér og þar yfir daginn.
Ræktin í morgun, hádegisrölt í hádeginu og að sjálfsögðu hjólað í vinnuna
Markmið vikunnar...
Svona lítur dagurinn í dag út í matarlegu tilliti:
Hrökkbrauð, smyrja, ostur, kiwi í morgunmat. Tvö egg, brauð, salat í hádegi. Sesamsteiktar steinbítskinnar og grænmeti í kvöld. Ávextir og ís í desert. Afgangur af ávaxta og fituskammti hér og þar yfir daginn.
Fór í júróvísjón/kosningaspinnig í gærmorgunn, alveg hreint geggjað.
Sátt við úrslit kosninganna, spurning hins vegar hvernig stjórnarmyndunarviðræður fara. Sátt við júróvísjón, fyndið bara hvað Búlgaría náði langt
Stutt vinnuvika framundan en nóg verður að gera samt
jæja, eru ekki allir í stuði???
Ég var þó ánægð með að Ungverjaland og Serbía komust áfram, en svekkt yfir hinu, ég meina það nú Eiki átti að vinna því hann var flottastur og bestur
Ég slökkti á klukkunni þegar hún hringdi rétt fyrir kl 6, ætlaði aðeins að loka augunum....sem þýddi að ég steinsofnaði og skrölti á fætur um hálf átta.
Dagurinn verður venjulegur matarlega séð en síðan er það vinna. Eftir hádegið fer ég síðan á meistaraprófsvörn Þórunnar P vinkonu minnar.
Fyrsti í júróvísjón!
Cherios, fjörmjólk og 1/2 banani í morgunsárið. Tómatsúpa og fiskibollur í hádeginu. Kjúklingasalat í kvöld. Ávextir, ddv ís og afgangur af mjólkur og fituskammti í kvöld.
Smávegis feltvinna í dag, nú fer vinnan smá saman að færast út. Annars gaufast ég við tölvuna og símann.
Fór á baráttufund Vinstri grænna í gær, vel heppnaður fundur, hér í norðvesturkjördæmi ætlum við að koma tveimur inn, og þá er nú betra að standa saman. Eftir fundinn var stefnan tekin á saumó, sem var mjög skemmtilegur að vanda.
Júróvísjón í kvöld og ég held svei mér þá að Eiríkur komist áfram, ég held að hann vinni!!!!!! Hann fær allavega bara jákvæða strauma frá mér
já, já
Morgunmatur: Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani.
Hádegi: Grænmeti, ofnbökuð ýsa.
Kvöldmatur: Súpa og saumó....ávextir, fita, brauð og mjólk spöruð þangað til.
Þar hafið þið það
sól sól skín (ekki) á mig!
Ætli ég fari ekki á vigtina líka, bara af því það er þriðjudagur. Á ekki von á neinum stórsigrum þar eftir ekkisvomikiðhundraðprósentddvhelgi! Hreyfingin er samt alveg á réttu róli enda finnst mér það vera lykillinn að vellíðan minni þessa dagana.
Í síðustu viku var ég að hafa áhyggjur af annríki, það er alveg merkilegt með mig að ef ég hef svo mikið að gera að mér finnst ég vera að kafna þá er eins og maður komi helmingi meiru í verk en annars. Semsagt ég skipulegg mig miklu, miklu betur.
Við vorum að fá boð í eina fermingarveislu og þrefalda útskrift í tveimur skólum um Hvítasunnuna.....(ég á eina systur sem er að útskrifast úr Hólaskóla og bróður og mágkonu sem eru að útskrifast úr fjölbraut) þannig að við förum norður þá helgi en verðum bara í veislum!!! Er samt að vonast til að veðrið verði gott og maður geti komið við hjá Kollu til að prófa pottinn......
Jæja best að vinna í einn klukkutíma í viðbót og taka síðan stefnuna á sundlaugina!
Smá uppfærsla, vigtin stóð í stað, eins og ég bjóst við.
Hvað á að kjósa?
Kannski finnið þið svarið hér
Ég get nú sagt ykkur það að ég er sjálfri mér samkvæm í þessu......
6 vikur til stefnu!!!!
Mataræðið var svona allt í lagi, kannski svona 80% um helgina en só!!!!??? Það er ekki eins og ég sé dottin í eitthvert rugl, fór í mánudagsræktina í morgun og næstu vikur verðar teknar með trompi. Ég hef 6 vikur til stefnu, til að ná af mér 2,3 kílóum og það skal takast. Það þýðir að 383 grömm verða að hverfa á viku.
Þann 17. júní verð ég komin í kjörþyngd!
Góðar fréttir
Gleðifréttir, það eru 18,3 kg farin
Alltaf nóg að gera
Ég ætla að byrja á því að þakka ykkur fyrir öll kommentin.
Það er brjálað að gera hjá mér þessa dagana, bæði í vinnu, félagsmálavafstri og einkalífi. Er að undirbúa mig fyrir tvo fyrirlestra sem ég á að halda á morgun á námskeiði í skjólbeltarækt. Í gærkvöldi hittist hluti stjórnar Borgarfjarðardeildar norræna félagsins vegna vinabæjarmóts sem verður í júní, allt á fullu í að undirbúa það. Við fjölskyldan ætlum í bústað um helgina....þrátt fyrir annríki en mikið held ég að þetta verði kósí, potturinn verður örugglega mikið notaður þar. Strax á sunnudagskvöldið fer ég í að undirbúa styrkumsókn fyrir badmintondeildina, á mánudagskvöldið langar mig alveg rosalega mikið á fyrirlestur með Eddu Björgvins....en ég veit ekki hvort ég kemst.....annars verð ég bara heima. Á þriðjudag er spurning hvort ég taki vakt á kosningaskrifstofu...... jamm ég er VG ef þið skylduð ekki hafa verið búnar að fatta það fyrr! Saumó á miðvikudagskvöld, júróvísjón á fimmtudagskvöld!!!! Svo detta inn kosningar og meira júróvísjón. Úps, ekki veit ég hvenær ég hef tíma til að fara suður í vigtun...þyrfti eiginlega að fara sem fyrst ![]()
Annars er dagurinn fínn, cherios, undanrenna, 1/2 banani í morgunmat. Tvö egg, grænmetissúpa í hádeginu. Soðin ýsa og grænmeti í kvöld, ávextir á víð og dreif. Þið takið kannski eftir því en ég svindla aðeins í brauðinu...sleppi því stundum alveg en ef ég fæ mér brauð þá á ég það á hættu að "detta" ærlega í það! Þannig að mér finnst alveg eins gott að sleppa því.
Varðandi fituskammtinn þá fæ ég mér m.a. fiskiolíu (omega) frá Lýsi en ætli hún geti ekki flokkast sem hluti af fituskammti? Hvað haldið þið?
Ég hjólaði í vinnuna í dag....ég er ekkert að skrá það inn í hreyfingardagbókina, gef ykkur bara skýrslu eftir að átakinu "hjólað í vinnuna" er lokið.
Svo var ég að pæla í að ég þyrfti eiginlega að fara að skella inn fleiri myndum, þær koma inn bráðlega, segjum í maí!
1. hjóladagur
Dagurinn lítur svona út: Cherios, undanrenna, ab léttmjólk, 125 gr ananas (ferskur) í morgunmat. Skyr, grænmeti og brauð í hádeginu. Fiskibollur og grænmeti í kvöld. Ávextir á víð og dreif það sem eftir er dags...
Fór á sundlaugarvigitna í gær, mér sýnist nýr tugur hafa heilsað mér, man ekki hvenær ég var síðast sextíu og eitthvað........EN ég tek þessu öllu með fyrirvara, stóri sannleikurinn kemur í ljós þegar ég hitti vigtarráðgjafana. Ég var að skoða verðlaunin sem ég var búin að heita mér, ég á bara alveg heilan helling inni, hlaupaskó og sundbol. Veitir ekki af að fara að kaupa sundbol minn gamli er allt of stór!

1. maí
Jæja, það hefur verið í nógu að snúast hjá mér. Sýnist vigtin alveg vera ágæt við mig en ég fer á sundlaugarvigtina seinna í dag, eins og venjan er á þriðjudögum.
Það sem af er degi hefur verið fínt, skelltum okkur í fjallgöngu í morgun, gengum á Hestfjall í alveg fráæru veðri. Þórður er sofandi núna en eftir miðdegislúrinn ætlum við í sund.
Nú eru annasamir mánuðir framundan í vinnunni hjá okkur Hauk. Ég ætla bara rétt að vona að veðrið verði gott þar sem vinnan fer að miklu leiti fram utandyra.....eftir grámyglu vetrarins þá er þetta frábær tími sem minnir mann á hvað maður er í annars frábærri vinnu. Ég verð á heilmiklu flakki, bæði í að taka út og líta eftir gróðursetningargengjum og síðan þegar allur gróður er lifnaður þá er það kortlagning væntanlegra skógræktarsvæða með tilheyrandi útiveru og náttúruskoðun....æðislegt alveg ![]()
Við tökum okkur lítið frí fyrri part sumars, kannski bara dag og dag til að lengja helgar en seinast í júlí og í ágúst fer maður að slaka á.