Sunnudagsmorgun
Svona lítur dagurinn út: Speltbrauð, smyrja, ostur, 1/2 banani í morgunmat. Soðin ýsa og grænmeti í hádeginu. Ávextir hér og þar í dag. Grill í kvöld hjá Palla og Ingu Dóru, ekkert sukk, bara kjöt og fullt af grænmeti.
Varðandi "Hjólað í vinnuna" átakið þá erum við samtals 5 starfsmenn á þessum tveim vinnustöðum, ég er nokkuð viss um að við verðum aðallega þrjú sem komum til með að hjóla en það er allt í lagi, það eru þá alltaf 60% þátttaka
Átaksgella, auðvitað máttu bæta mér á listan þinn, ég bæti þér við hjá mér.
Jæja, best að fara að gera okkur klár, erum að fara í sund, ætlum að flatmaga þar fram að hádegi.
Hjólađ í vinnuna
Litli vinnustaðurinn minn og teiknistofan sem er hér í næsta herbergi skráðum okkur í "Hjólað í vinnuna" sem er átak "...til að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum...". Mæli með þessu og skora á ykkur að athuga hvort ykkar vinnustaðir hafi áhuga á að taka þátt, heimasíða átaksins er hér.
Í dag:

Annars er logn, 10 stiga hiti og skýjað hér á Hvanneyri í dag, alveg hreint frábært
Morgunn: Cherios, fjörmjók, 1/2 banani, appelsína.
Hádegi: Reyktur lax, brauð og grænmetissúpan góða.
Kvöld: Kjúlli og grænmeti
Veit ekki hvað ég kemst í að blogga á morgun og hinn en það verður námskeið hjá okkur um jólatrjáaræktun með tilheyrandi fróðleik á fyrirlestraformi og vettvangsferðum. Held fast í þann danska
Í gærkveldi var saumó, mjög gaman, aðeins einn saumaklúbbur eftir fyrir "árshátíð" saumaklúbbsins...
Frekar samhengislaust blogg í dag..........
blessuđ blíđan....
Mataræðið er í gúddí: Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani í morgunmat, ýsa og grænmeti í hádeginu, appelsína núna seinnipartinn, grænmetissúpa í kvöldmat og restin af kvöldmatnum, ávaxta, - brauð, -fitu - og mjólkurskammti í saumó í kvöld.
Ekkert nammi, enginn sykur.
Fór í ræktina í morgun og í heilsubótargöngu í hádeginu.
3,5 eftir........
Ég hef líka dregið stórlega úr kaffidrykkju, sérstaklega í vinnunni, fæ mér frekar te en ég er gjörsamlega dottin í tetegund sem fæst í Samkaup (lífrænu deildinni) og heitir Clipper og fást margar bragðtegundir af því...t.d. lakkrís, piparmintu, appelsínu...og svona mætti lengi telja.
Nokkrir punktar
Kosningaspáin mín er hér
B listi - Framsóknarflokkurinn 12 %
D listi - Sjálfstæðisflokkurinn 38 %
E listi - Baráttusamtökin 1 %
F listi - Frjálslyndir 5 %
I listi - Íslandshreyfingin 4 %
S listi - Samfylkingin 21 %
V listi - Vinstri grænir 19 %
Varðandi allt annað og háalvarlegt, ég er að spá í að fara suður á Garðatorg annað kvöld í vigtun.....
Mataræðið og hreyfingin eru á réttu róli hjá mér, allt í rútínu.
Það verður að segjast eins og er að þessi vetur hefur einkennst af veikindum, allt í kring, toppnum var náð í dag þegar hringt var úr skólanum og Stefán Snær orðinn veikur, með mikinn hita og virkilega slappur. Það er nú mikið sagt þegar gaurinn liggur upp í rúmi og horfir ekki einu sinni á dvd.
Sunnudagskvöld
Mataræðið hefur verið því sem næst 100% í lagi, hef þó reyndar svindlað aðeins en hef engan rosalegan móral yfir því
Svo styttist í kosningar og spennan alveg gífurleg, alltaf gaman að spá í stöðuna og fylgjast með umræðunni. Ég hef verið að velta því fyrir mér að gefa út mína spá, um hver úrslitin verða og þá á ég við kosningarnar, ekki enn kominn tími á spá varðandi júróvísjón....hef ekki enn heyrt öll lögin. Semsagt ég sé fram á skemmtilegt júróvísjón/kosningakvöld - barnvænt að sjálfsögðu.
Kosningaspáin kemur innan tíðar.........
Svo er það göngumarkmið fjölskyldunnar í sumar, 10 fjöll skulu það verða og við látum þig vita, Stína, þegar við förum Siglufjarðarskarðið
bissí dagar....
Vorum síðan eitthvað að vesenast í garðinum og enduðum daginn á því að grilla með Ingu Dóru og Brynjari Snæ (Palli í útlöndum og Ástdís fyrir norðan). Jæja best að fara að leggja sig, er dauðþreytt eftir daginn
örblogg
Þetta lítur þá einhvernveginn svona út:

Ég ermjög ánægð með þetta. Jæja, nóg að gera þarf að vinna slatta en fer svo heim að leysa bóndann af á veikindavaktinni, jamm Þórður Logi er lasinn. Reyni að blogga á morgunn
Takk fyrir kvittið og peppið!!!
vigtunardagur í dag
Ég á alltaf í örlitlu basli með að klára kjötskammtinn minn en "ný" ddv vika hefst á morgun og því verð ég að hafa kjöt í kvöld, þó ég hafi haft kjöt (slátur) í gær.
Dagurinn hljómar svona:
Brauð, ostur, smyrja, sulta, 1/2 banani í morgunmat. 2 egg, tómatsúpa í hádeginu. Hakk og grænmeti í kvöld. Mjólkurskammtur og ávextir svona hér og þar yfir daginn.
Ég drekk ótrúlega mikið vatn þegar ég er í vinnunni, hef alltaf vatnsbrúsa við hendina sem tekur 650 ml en ég er yfirleitt búin með tvo slíka löngu fyrir hádegi! Þannig að ég mæli með því.
Hér er ótrúlega fallegt veður, sól, hiti 2°C, vindhraði 2 m/sek.
Stutt vinnuvika framundan
Venjulegur dagur framundan. Cherios, fjörmjólk, appelsína í morgunmat. Salat með 60 grömmum af kjúlla og 1 harðsoðið egg. Ætli ég sjóði ekki slátur í kvöld, fæ mér bara120 grömm af því, tel það sem unna kjötvöru til að friða samviskuna, borða soðnar rófur og blómkál með því. Ávextir og afgangur af mjólkurskammti hér og þar yfir daginn.
Sunnudagur til sćlu
Mataræðið 100%; brauð, ostur, banani, kaffi í morgunmat. Túnfisksalat í hádeginu og grænmeti, kjúlli í kvöld og grænmeti.
Uppskriftin af kjúllanum er stolin og staðfærð úr Vikunni:
Bringur settar í eldfast mót.
Tandoori, rifinn hvítlaukur og engifer, smá sýrður rjómi (ca 1/2 dós) hrært saman og sett yfir bringurnar. Bakað í ofni í 30-40 mín.
Meðlæti: Tómatar og paprika sett í mixara og maukað....ferlega gott á móti kjúllanum. Hrísgrjón og salat.
laugardagur
Í staðin smurðum við nesti, bjuggum til kakó ("danskt") skelltum okkur í útivistargallana og brunuðum upp í Skorradal, nánar tiltekið í Stálpastaðaskóg. Veðrið var fínt, sólin kom meira að segja. Röltum um og borðuðum nestið. Þórunn, Sigurjón og Hörður Smári komu líka. Svona ekta skyndihugdetta og þetta var æðislegt.
Síðan skelltum við Þórunn okkur í sund í Borgarnes með Hörð og Stefán. Frábær dagur og 100% danskur.
Ohhh hvað Ísland hefur upp á mikið að bjóða, og svo er maður með hugann við útlönd, uss, uss, uss! Ég hef reyndar alltaf verið þeirrar skoðunar að maður eigi að ferðast erlendis á öllum öðrum tímum en á sumrin......
Höfum ekkert ákveðið hvert skal halda í sólarlandaferð eða á hvaða árstíma en allar hugmyndir vel þegnar. Hef bara einu sinni farið í svona sólarlandaferð og það var til Mallorca með Plúsferðum, gistum á hóteli sem hét Pil Lari Playa (minnir mig) líkaði stórvel og ekki spillti staðsetningin rétt við ströndina. Þetta var í september 2004 í upphafi kennaraverkfalls, Stefán Snær 8 ára og Þórður Logi bara hugmynd!
En að öðru, geggjaður tími framundan, Júróvísjón þættirnir norrænu byrjuðu í gær....ÁFRAM EIKI!
Rigning/sól og sumarylur
Var orðin frekar svartsýn á skíðaferð í Tindastól á morgun, þangað til rétt áðan þegar ég hringdi í símsvarann þar og þar segir að fínt veður sé í Stólnum og ágætur skíðasnjór!! Jess þannig að við erum að fara norður snemma í fyrramálið, jess! Ætla að gera mér ddv kakó og hafa með mér á brúsa.....enginn sykur ojojoj nei!
Matarmálin í góðum gír, cherios, fjörmjólk 1/2 banani, 1 appelsína í morgunmat. Camembert, melba toast og grænmeti í hádeginu. Fiskibollur og grænmeti í kvöld.
Er komin hálfa leið á sólarströnd..... er svo viss um að ég nái markmiðinu..... svona fyrir utan það að ég er búin að fá upp í kok af rigningu.
Takk fyrir peppið!
jamm.....
Setti inn slatta af nýjum verðlaunum og dagsetningum í "markmið, verðlaun, dagsetningar".........bara svona til að hvetja mig til dáða
Takk fyrir kvittið konur!
Játningar

Jæja, ekki þyngdist ég í þetta skiptið. Best að horfa á það jákvæða....300 grömm fóru. Þar með er þessu námskeiði lokið. Hérna koma nokkrar staðreyndir:
Á námskeiðinu sem var fyrir áramót fóru 9,7 kg. ca 746 grömm fóru á viku
Á milli námskeiða fóru 3,1 kg. ca 440 grömm fóru á viku
Á seinna námskeiðinu fóru 2,2 kg. ca 220 grömm fóru á viku
Samtals hafa því farið 15 kg á 30 vikum eða 500 grömm að meðaltali á viku.
Ég viðurkenni eitt hér og nú, ég hef ekki verið nógu öguð þessar síðustu tíu vikur. Hef talið mér trú um það að það sé OK að "svindla" aðeins af því að ég er svo dugleg (að mínu mati) að hreyfa mig.........gáfulegt? nei! Frá og með gærdeginum er ég komin í allsherjar sætindabindindi. Sykur er ekki góður fyrir mig! Hann er ógeð!
Varðandi nýja markmiðssetningu þá ætla ég að halda mig við það markmið sem ég var búin að setja mér í upphafi, 5,6 kg skulu fjúka til viðbótar og það fyrir 17, júní. Þann dag mun ég síðan endurskoða þetta allt saman. Það þýðir ekki að gefast upp þó að á móti blási, nú er málið bara að vera staðföst sem aldrei fyrr og stefna að þessu markmiði mínu. Ég fæ ekki að panta mér sólarlandaferð fyrr en 17 júní EF ég stend mig! Það gæti verið að ég muni bæta við verðlaunum á tímabilinu, ætla að hugsa það aðeins. Ég ætla mér að fara í það minnsta einu sinni í mánuði í vigtun suður en Kristín vigtarráðsgjafi bauð okkur Borgarnes konum það, svona í sárabætur.
Nú þarf ég bara að fá extra pepp frá ykkur lesendur góðir, þið haldið mér við efnið!
Alltaf gaman að sjá hverjir það eru sem "ramba" hingað inn og kvitta fyrir sig ![]()
Páskafríiđ búiđ.....
Við erum að gæla við að fara aftur um næstu helgi ef veðurskilyrðin verða þannig, þetta er svo gaman!
Mataræðið hefur verið svona og svona...ekki alveg í nógu góðum gír en ég tók ákvörðun í gær. Frá og með þessum degi er ég komin í nammibindindi, það hefur allt of mikið af sætindum farið inn fyrir mínar varir síðustu daga og mér líður ekki vel með það.
Síðasti vigtunardagur er í dag en ég skrifaði hérna í síðustu viku að ég mundi setja inn ný markmið, ég stend við það og ný markmið verða komin hér inn ekki seinna en annað kvöld. Hef hugsað heilmikið um þetta núna um páskana......jæja best að hætta í bili.
Eigið góða vinnuviku
laugardagur
Föstudagurinn langi
Í dag byrjaði dagurinn á stafgöngu, allt hefur gengið eins og í sögu þar til rétt áðan að ég "rakst" á fríhafnarnammi og fékk mér nokkra mola nóa siríus mola með lakkrísfyllingu - semsagt svindl í dag!
Á morgun ætla ég aftur í spinningtíma og síðan ætla ég að reyna að hafa daginn 100%.....ég meina það er nú síðasta vigtun næsta þriðjudag og þá verður maður að standa sig.
Við förum síðan norður seinnipartinn á morgun en við erum farin að sakna Stefáns Snæ óskaplega en hann er í góðum gír hjá ömmu sinni fyrir norðan.Kannski skellum við okkur á skíði á páskadag ef veðrið er gott, aldrei að vita
Spáin hefur ekki gengið eftir enn og ekkert annað en gott um það að segja.
Gleðilega páska!
Páskafríiđ er alveg ađ koma
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag (skírdagur): Austan 5-10 m/s og slydduél suðaustanlands, en hægari og víða bjart veður annars staðar. Hiti 0 til 5 stig sunnanlands, en frost 1 til 7 stig fyrir norðan. Á föstudag (föstudagurinn langi): Austan 8-13 m/s með slyddu eða rigningu sunnanlands, en snjókomu síðdegis fyrir norðan. Heldur hlýnandi. Á laugardag: Sunnanátt með vætu um landið sunnanvert, en stíf austanátt fyrir norðan, einkum við ströndina, og snjókoma. Hiti 2 til 8 stig sunnantil, en nálægt frostmarki norðanlands. Á sunnudag (páskadagur): Suðvestanátt með skúrum, en gengur í hvassa norðanátt með snjókomu fyrir norðan þegar líður á daginn, en léttir til syðra. Kólnar í veðri. Á mánudag (annar í páskum): Minnkandi norðlæg átt og dálítil él í flestum landshlutum. Frostlaust syðst. Á þriðjudag: Suðlægar áttir með vætu og hlýnar. Spá gerð 03.04.2007 kl. 23:36 (tekið af www.vedur.is)
Mataræðið í dag: Cherios, fjörmjólk, appelsína í morgunmat. Ostur, egg, brauð, grænmeti í hádeginu. Pestókjúklingur í kvöld. Hádegisgangan verður á sínum stað.
ţriđjudagar eru vigtunardagar
Byrjaði daginn á því að fara í ræktina, fékk mér brauð, með camembert og sultu, 1/2 banana og kaffi í morgunmat. Laxasalat (er alveg húkt á því) og grænmeti í hádeginu, fiskibollur í kvöld. Þriðjudagar eru vigtunardagar hjá mér, það vill reyndar þannig til að það verður engin vigtun í Borgarnesi í dag heldur verður hún næsta þriðjudag og þá lokavigtun á þessu námskeiði. Eftir vinnu í dag fer ég í sund (eða í pottinn) í Borgarnesi en þó ekki á vigtina því ég ætla að láta námskeiðið klárast áður en ég fer að blanda annarri vigt í málið!
Ég hef ákveðið að eftir lokavigtun, næsta þriðjudag mun ég endurskoða markmiðið mitt, þ.e. að stefna að því að vera komin í 67 kg fyrir 17. júní. Er ekki viss um að ég vilji endilega verða svo létt, held það fari mér hreinlega ekki. Nú orðið finnst mér meira virði að standa mig í því að stunda líkamsrækt þrisvar í viku, manni líður svo vel af því!....en eins og ég sagði, þetta verður allt endurskoðað eftir viku.
dimbilvika
Á laugardagskvöldið bauð ég Teddu, Ingu og Kela í mat og eldaði ég Tandorri fisk:
1 kg. þorskbitar
2 1/2 dl fjörmjólk
olía
2 msk tandoori
1-2 tsk karrý
sítrónupipar
2 græn epli
2 bananar
1 dós ananasbitar
Eplin, olían, tandoori og karry velgt á pönnu mjólkinni hellt yfir og þá er banönum og ananas blandað saman við. Þorskbitunum raðað í eldfast mót og kryddaðir með sítrónupipar. Ávaxtagumsinu hellt yfir og osti stráð yfir ef maður vill. Bakað í ofni í ca hálftíma.
Bar þetta fram með byggi sem ég hafði kryddað með steinselju og sítrónu og setti smá olíu út í.
Dagurinn í gær einkenndist af afslöppun fyrir utan líkamsræktarbauk okkar Teddu. Eyfi og Magga buðu okkur Þórði Loga í kvöldmat mmmmm mjög góður hakkréttur og ofnbakaður kúrbítur með hvítlauk og rósmarín.
Dagurinn í dag: Cherios, fjörmjólk og 1/2 banani í morgunmat, skyrdrykkur og grænmeti í hádeginu, fiskur í kvöld.
Haukur kemur heim seinnipartinn eða í kvöld og verður örugglega glaður með að fá fisk.....