Tvö ein í kotinu
Við Þóður Logi erum á leið út, ætla að ganga eitthvert með hann á bakinu og kannski sníki ég kaffi einhversstaðar á leiðinni.
Morgunmaturinn í dag var brauð með osti og sultu, appelsína og kaffi. Fiskisalat í hádeginu og grænmeti og í kvöldmat verður ofnbakaður þorskur.
Njótið dagsins!
vinnuvikan að verða búin
Morgunmatur eins og undanfarna morgna, matur hjá Ingu í hádeginu (kjöt, grænmeti), aftur kjöt í kvöld....hmhm ekki alveg eftir áætluninni þar sem ég ætlaði að hafa fisk á hverjum degi. Borða bara fisk í bæði málin á morgunn. Hér er rigningarúði, smá gola og hlýtt, ég ætla í hádegisgöngu í dag.
Varðandi sumarið þá er eitt komið á hreint, við ætlum að ganga yfir Fimmvörðuháls, búin að negla niður dagsetningu og alles. Reikna svo með að taka hluta af sumarfríinu í ágúst.
Helgin framundan, ætla bara rétt að vona að veðrið verði gott svo maður geti tekið góða göngutúra. Svo þyrfti ég eiginlega að stússa eitthvað í garðinum....hann er eins og ruslahaugur, þyrfti að tína rusl sem hefur fokið í hann, raka yfir lóðina og klippa.
smá hugs
Ég hef ekki lagt það í vana minn hér á þessu bloggi að koma með eitthvað annað en það sem viðvíkur mataræði, hreyfingu eða daglegu stússi en ég geri undantekningu í dag.
Hér eru nokkrir punktar sem ég vil hafa á hreinu...
Ég er á móti kynjakvóta.
Ég er á móti því að þegar raðað er á lista skipti það einhverju máli hvaðan frambóðendurnir eru.
Mér finnst einstaklingarnir sem eru að bjóða sig fram skipti mestu máli óháð kyni, búsetu eða starfsstétt.
OG ÞAR HAFIÐ ÞIÐ ÞAÐ!....hvað ætli sé að gerast með mig????
Fimmtudagur
Ég skellti mér í stafgöngu með Þórð á bakinu eftir vinnu í gær, fór ekki nema rúma tvo kílómetra en je minn eini, það tók sko á, ég var í svitabaði á eftir.
Fór og lyfti í morgun, fékk mér síðan fjörmjólk, cherios og appelsínu í morgunmat, túnfiskur og grænmeti í hádeginu og kjúlli í kvöld.
Af okkur fjölskyldunni:
Haukur er að fara til London seinna í dag með nokkrum félögum sínum, það á að sjá tvo leiki þar og koma svo heim eftir helgi. Það verður örugglega mjög gaman hjá þeim.
miðvikudagur
Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani í morgunmat. Í hádegismat verður Melba Toast kex, 1 vænn tómatur og laxasalat. Kvöldmaturinn verður soðin ýsa með grænmeti og kartöflum. Ávextir dreifðir á daginn eftir þörfum. Hreyfing dagsins verður í formi hádegisgöngu starfsmannanna hér í húsinu og e.t.v. göngutúr með drenginn á bakinu seinni partinn....það er svo geggjað veður hérna núna!!
Laxasalat
80 gr reyktur lax - niðurbrytjaður
50 grömm ferskir sveppir - saxaðir
200 grömm aspas úr dós
100 grömm sýrður rjómi
Öllu blandað saman og borðað með brauði eða kexi og minnst 50 grömmum af grænmeti til viðbótar.
Elín þetta Hestfjall sem ég tala um í æfingaráætluninni er hér rétt hjá Hvanneyri ....en ég kem nú samt í kaffi við tækifæri
Ég fer ekki í ræktina í fyrramálið en hádegisgangan verður á sínum stað. Ég pantaði mér bók í dag.... er hún nú alveg að tapa sér myndu einhverjir hugsa...og segja!Hef trú á að þetta geti verið fróðleg lesning og væri sniðugt að styðjast við hana þegar fer að vora.

dagurinn í dag...
Borðaði cherios, fjörmjólk og appelsínu í morgunmat, ætla að fá mér grænmetissúpu og rækjur í hádeginu, fiskibollur, rófufranskar og annað grænmeti í kvöldmat. Restin af dagskammtinum verður síðan borðuð seinnipartinn og í kvöld.
Vigtunin er seinnipartinn í dag, á ekki von á stórum sigrum á þeim vettvangi en það er í lagi, mér líður vel og það er fyrir öllu. Nú fer að styttast í fyrstu fjallgöngu vorsins (sjá æfingaáætlun til 17. júní hér hægra megin).
Eigið góðan dag og takk fyrir kvittið...alltaf gaman að vita hverjir það eru sem eru að fylgjast með manni
ferðahugur
Vaknaði kl 5:45 í morgunn fór í ræktina og síðan í hádegisgöngu....maður er að tapa sér........vigtun á morgun, NB næst síðasta vigtun á þessu námskeiði, síðasta vigtunin verður 10. apríl, púff!
Að lokum verð ég bara að segja ykkur að hér er geggjað veður og eiginlega ekki hægt að vinna vegna veðurs...hægviðri, sól og 5 stiga hiti, æðislegt alveg! Spurning um að skella sér í göngutúr....og hver var að tala um að fara til útlanda???
andleysi og ddv leti!!!!
Austurferðin gekk vel, ráðstefnan áhugaverð, margt fróðlegt kom þar fram sem ég ætla nú ekki að vera að tíunda hér. DDV var í klúðri því það var ekki hægt að fá mikið grænmeti með matnum þarna og ávextirnir voru af skornum skammti í morgunmatnum, annars var þetta OK. Að lokinn ráðstefnu fór ég til frænku minnar. Við tókum rúnt um Egilsstaði, aðallega til að skoða hús sem verið er að byggja en þvílík uppbygging sem á sér stað þarna, alveg meiriháttar. Fórum í tískuvörubúð...fullt af fallegum fötum og SKÓM, keypti reyndar ekkert
Það má segja að restin af laugardeginum og dagurinn í dag hafi einkennst af: EKKI DDV!!!!!!!!!!! EN það þýðir ekkert að pirra sig neitt á því, ég ætla að taka næstu viku með trukki, fiskur og hreyfing daglega.
Stefán Snær skemmti sér vel í badmintonbúðunum að Laugum í Sælingsdal, skipuleggjendur og staðarhaldarar eru greinilega á réttri braut, þetta var ÆÐI segir hann. Síðan var hann svo glaður þegar hann kom heim, þakkaði mér rétt áðan mjög innilega fyrir það hvað ég er góð mamma
og áfram heldur Pollýönnuleikurinn áfram
Ég er í brjáluðum DDV-gír, ætla sko að standa mig þessa viku. Þó þessi ráðstefna sé þá ætla ég ekki að láta hana koma mér úr jafnvægi, held mig við grænmetið, ávextina og hæfilega skammta.
Fer suður í fyrramálið og þaðan með flugi austur á Egilsstaði, ráðstefnan byrjar um hádegið og stendur þar til síðdegis á föstudag. Þá ætla ég að kíkja á Júlíu frænku, gista hjá henni og fer svo með flugi á laugardaginn.
Ég var samt að klikka á einu, ég gleymdi að kaupa mér lopa til að byrja á lopapeysunni sem ég ætla að prjóna mér....ARG! Það hentar nefnilega sérlega vel þegar maður fer á svona ráðstefnur að hafa prjóna í farteskinu.
Þórður Logi er með hita, held það tengist tanntöku eða öllu heldur jaxlatöku. Stefán Snær er hress hann er að fara í íþróttabúðir með badmintonhópnum sínum um helgina, svakastuð.
Ég blogga líklega ekkert fyrr en um helgina, þangað til....farið vel með ykkur og haldið fast í DDV! OK, og koma svo!!!!!! VIÐ MÖSSUM ÞETTA STELPUR!!!!
Pollýönnuleikurinn ógurlegi
Ég er bara mjög sátt við árangur vikunnar, fór á árshátíð án þess að spá og leyfði mér eitt og annað....hmhmhmhm. EN núna tek ég á því, reyndar er ráðstefna á Eiðum á fimmtudag og föstudag en ég geri mitt besta.
hugs
Málið er að ég hef verið að lesa hjá mörgum bloggurum að þeir hafi byrjað á danska og náð þvílíkum árangri en hætt svo og bætt á sig svo og svo miklu. Ég hef áhyggjur af þessu. Hvað er málið? Mér finnst mér ganga rosalega vel og get eiginlega ekki ímyndað mér að ég eigi eftir að fara í sama farið aftur. Ætli það sé málið að trúa nógu mikið að maður geti haldið þessu og þá nær maður því?
Ég þekki nokkrar sem hafa byrjað á danska en ekki verið með 100% hugann við þetta frá upphafi og því gengur þeim ekkert og það er alveg skiljanlegt því til að ná árangri að þá verður maður að hafa hausinn 100% með. Ég er svosem ekkert að hafa áhyggjur af þeim hér og nú því e.t.v. er danski ekki að henta þeim. Þetta er kannski hroki en það er bara málið, að danski hentar ekkert öllum, mamma mín gæti t.d. aldrei verið á danska en HerbaLife hentar henni, sumum hentar kolvetnalaust fæði og aðrir eru í 10 grunnreglum.
Þetta var bara smá innskot......en það sem ég hef verið að hugsa er að ég hef miklar áhyggjur af þeim sem hafa getað þetta en ná sér ekki aftur af stað eða ná ekki að halda sér í kjörþyngd. Þetta er verkefni sem maður þarf alltaf að hafa á bak við eyrað og eins og Spekoppur segir þá er það vænlegt til árangurs að halda sig 100% við ddv á virkum dögum en leyfa sér þá eitthvað meira um helgar (ef maður vill). Þetta eru pælingar mínar þessa dagana en ég er alltaf að hugsa hvenær ég eigi að vera sátt, (ég er reyndar mjög sátt við mig núna) á ég að stefna á 67 kg. eða á ég að stefna að 69,5 kg.??? Það er stór spurning, ég get eiginlega ekki ímyndað mér að það hreinlega fari mér að vera 67 kg....ég er þannig í vextinum og er með þannig beinabyggingu. Eitt er víst að niður fyrir 70 kg. vil ég komast....en jæja þetta var bara smá hugs...
Nýjar tölur koma svo í kvöld.....
19. mars
Ætluðum að vera komin heim í gær en urðum frá að hverfa vegna veðurs og ófærðar. Snerum semsagt við í Víðihlíð, heyrðum þá í útvarpinu að búið væri að loka heiðinni og þá var ekkert annað að gera en að snúa við, ekki nenntum við að þreyfa okkur áfram í lélegu skyggni og stoppa svo einhversstaðar og bíða...nei takk við snerum við á Krókinn.
Helgin var góð, ársfundurinn og árshátíðin var mjög vel heppnuð. Áður en árshátíðin byrjaði þá skelltum við Stefanía okkur í sund í Árgarði, ohhh það var frábært, höfðum með okkur öl og sátum og kjöftuðum......þegar við komum upp úr þá var klukkan hálf átta en kokteillinn byrjaði klukkan sjö opg maturinn átti að hefjast klukkan átta.......við settum met þetta kvöld, náðum að farða okkur og greiða á 20 mínútum.....og við vorum svo fínar....eiginlega orðnar svolítið kærulausar af bjórþambinu en þetta var gaman! Í stuttu máli þá var árshátíðin svona: Maturinn æði, skemmtiatriðin æði, hljómsveitin æði og gistiheimilið æði.
Sá danski hefur verið í rugli og vonast ég bara til að ég hafi ekki bætt miklu á mig um helgina. Ég hreyfði mig ekkert nema á ballinu þá dansaði ég eins og ég ætti lífið að leysa. Jæja best að fara að gera eitthvað, annað kvöld koma svo nýjar tölur.....
fersk
Ég er svo fersk þessa dagana að það er ekki venjulegt. Vaknaði eins og ekkert væri kl 5:45 í morgun og skellti mér út í líkamsræktaraðstöðu með Teddu, það er sko frábær byrjun á deginum, mæli með því.
Við förum norður seinnipartinn í dag (á nýja flotta bílnum okkar), ársfundur LBHÍ á morgun í Varmahlíð og árshátíð annað kvöld í Árgarði, við gistum á gistiheimilinu á Steinsstöðum. Strákarnir verða í góðu yfirlæti hjá ömmum og öfum.
Blogga örugglega ekki fyrr en eftir helgi, þangað til þá adios!
p.s. já við erum komin á nýjan bíl Skoda Superb, algjört æði og liturinn, úff!!!!!
Markmiði 3 náð!!
Áætlanagerð á semsagt vel við mig í þessum efnum! Hef svolítið verið að velta lokamarkmiðinu fyrir mér, hvort ég eigi að breyta því í 69,5 kg en ég ætla ekki að ákveða neitt, hvað segið þið um þetta?
Núna eru fjórar vikur eftir af námskeiðinu en þrár vigtanir, þær eru næsta og þarnæsta þriðjudag og síðan þriðjudaginn eftir páska. Það er ekki óraunhæft að stefna að 1,6 kg burt á þessum tíma en nú gerist þetta allt saman miklu hægar en áður. 400 grömm á viku er fínt!
þriðjudagur til þrautar....
Mataræðið er allt í lagi, gerði súpu í gær og á nokkra skammta, það er geggjað að nota afgangs fisk út í súpuna.....fiskur og súpa í gærkveldi og fiskur og súpa í hádeginu, saumó í kvöld......ætla að bjóða upp á eplaköku a la danski, döðluköku (veit hún er á bannlista en kíkið á hlekkinn hér fyrir aftan) a la maður lifandi. Síðan ætla ég að gera spínatrétt úr dönsku grænmetisbókinni (Spis dig sund med grönt) og kjúklingasalat, uppskrift fengin hjá Hrafnhildi, jammí, jammí. Kjúklingasalatið er reyndar kannski ekki alveg a la danski en girnó er það:
Kjúklingasalat f. 2-42 kjúklingabringurSmá pipar3 msk BBQ sósa1 poki jöklasalat1/2 poki klettasalat2 tsk grænt pestó1 box kirsuberjatómatar1 rauð paprika1/2 rauðlaukur½ krukka fetaostur rauðurHvítlaukssalt 2 lúkur nachosSkerið kjúklingabringurnar í litla bita og steikið. BBQ sósunni helt yfir, kryddað með pipar og látið malla í nokkrar mínútur.Blandið saman klettasalati og jöklasalati í skál, hrærið pestóinu saman við. Þá tómötum, papriku og rauðlauk.Þá er fetaostinum blandað saman við, olían úr krukkunni má fylgja með, og kryddað með hvítlaukssalti. Nachos flögurnar eru muldar yfir og að lokum er kjúklingnum bætt út í .
p.s. Vigtun seinnipartinn, vona að ég hafi í það minnsta staðið í stað nokkur hundruð grömm BURT væru einnig vel þegin..............
helgin að verða búin
Í gær keppti Stefán Snær á Íslandsmótinu í badmintoni og gekk vel, komst í 8 manna úrslit í sínum flokki, við erum mjög stolt af honum. Krakkarnir héðan fengu mjög mikilvæg verðlaun, fyrir bestu framkomuna, það er alveg frábært.
Sá danski hefur ekki verið að gera sig um helgina.....ARG hef kannski ekki sleppt fram af mér beislinu í áti heldur hef ég kannski ekki verið að borða rétt samsett, fékk mér reyndar pönnsur í dag og reyndar líka í erfidrykkjunni á föstudag hmhm en ég tek á því eitthvað .....svo er ég líka að hreyfa mig
blogg dagsins
Við ætlum að bruna norður á Akureyri í kvöld, komum aftur seint annað kvöld. Jarðaförin er á morgun
Haukur og Stefán Snær fara suður á Íslandsmótið í badmintoni á laugardaginn þannig að við Þórður verðum ein heima og ætlum að skella okkur í góðan göngutúr..... þið sem viljið rölta með okkur stóra hringinn (4,3 km) kíkið við hjá mér rétt fyrir ellefu á laugardaginn!!
Sjáumst svo dúllurnar og gagni ykkur vel, takk fyrir hvatningu, komment og klapp á bak
Svo alveg í blálokin þá sendi vinkona mín þetta, lesið!!!!!!
spjall
Nú get ég farið að einbeita mér að öðrum verkefnum í vinnunni en af nógu er að taka þó sérstaklega að færa gögn yfir á "Grænsíðu" spennandi verkefni það. Ráðstefnan á Eiðum er eftir tvær vikur, það verður fróðlegt.
Svo er stjórnarfundur hjá Norræna félaginu í kvöld en framundan er vinabæjamót HÉR!!! OMG, ó mæ, eitthvað þarf að undirbúa það. Þeir sem eiga heima í Borgarbyggð og hafið áhuga á að hýsa norræna gesti helgina 23.-25. júní endilega hafið samband við mig. Þetta er mjög skemmtilegt verkefni og þroskandi, ekki má gleyma því
Jæja best að fara að gera eitthvað af viti, held ég verði bara að skella í mig eins og einum rótsterkum kaffibolla til að koma heilasellunum á hreyfingu, heyrumst síðar!
Ný tala

Takk fyrir endalausa hvatningu!!!!
5. mars
4. mars
Síðan brunuðum við Þórður Logi suður í Mosó til Elínar fórum svo í bæinn og sóttum Ingibjörgu, komum við á útsölumarkaði Zo-On og versluðum slatta þar. Þaðan lá leiðin austur í Fljótshlíð til Gústa og Oddnýjar, ohhh hvað það var gaman að sjá þau og litla barnungann þeirra. Fórum í fjárhúsin, litum á nautgripina og tókum þetta alltsaman út hjá þeim. Á leiðinni til baka lentum við í því að bíða heillengi í bílaröð en það hafði orðið slys....við vorum svolítið stressaðar því Ingibjörg þurfti að ná flugi norður en það hafðist allt saman. Þórður og ég vorum komin heim rétt fyrir klukkan tíu.
DDV var í klúðri!!!!! EN þá tekur maður bara á því í dag.
Takk fyrir öll kommentin
Gekk stóra hringinn í morgunn, búin að baka eina ddv eplaköku og taka á móti gestum. Það er afrek dagsins. 100% Dagur hjá mér!!!
en lífið heldur áfram
Skellti mér síðan til Kötu í klippingu og strýpur, ferlega ánægð með það.
Til að toppa daginn fór ég á GreenHouse-kynningu. Það er danskt fatamerki. Ég verslaði mér pils og peysu. Síðan verð ég að fara að skella mér í bæinn og versla mér buxur, frekar þreytt á að vera í of víðum gallabuxum
Það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur, það er kominn mars og enn eina ferðina er föstudagur.....góða helgi!
sorgarféttir
labbi labb
Þrjúsþúsundasti gesturinn kvittaði ekki og varð því af verðlaununum sem í boði voru....sorry!