Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Nýjar tölur

27. febrúar 2007 klukkan 20:52
Ó sólemíó....dararrararmarraæ........Þetta er alveg með ólíkindum, 1,5 kíló fóru þessa viku. Þakka ykkur fyrir stuðninginn!!!!
Ég á nákvæmlega 3 kíló eftir í tölu sem ég sætti mig við og  6 kíló í kjörþyngd.
 Þrjúþúsundasti gesturinn vinsamlega kvittaðu, verðlaun í boði Glottandi Eiginlega er bara gaman að sem flestir kvitti..........

27. feb

27. febrúar 2007 klukkan 09:23
Í dag á Jónki frændi minn afmæli, til hamingju með það....geri samt ekki ráð fyrir að hann lesi þetta en ég hef þó ekki gleymt honum.  Sömuleiðis átti Ragnar frændi minn afmæli 7. feb en við þrjú erum á sama ári (árg ´74)  Við vorum skírð saman á sínum tíma....og þá vitið þið það! Dóra frænka á líka afmæli í dag hún er 29 ára, til hamingju Dóra!!

Svo ég haldi áfram í frænku og frændaleik þá langar mig til að benda ykkur á hvar þið getið fylgst með Óttari manninum hennar Júlíu (föðursystur minnar) en hann tekur þátt í Vasagöngunni frægu í Svíþjóð sem fram fer næsta sunnudag. Hér er slóðin.
Veðrið er alltaf jafn æðislegt, núna er svo til  logn, hálfskýjað og hitastigið er -5,6.
Mataræðið hefur gegnið bara vel, er reyndar í vandræðum með að klára kjötskammtinn fyrir vikuna, hef verið svo dugleg í fisknum. Ætla að hafa kjöt í kvöld og síðan verð ég bara að setja niður ákveðna kjöt-daga.

SET INN NÝJAR TÖLUR Í KVÖLD

26. febrúar 2007 klukkan 19:31
Þvílík blíða í dag, svo fallegt veður, sól, logn og mjög mikið frost, það fór í 13,5 ° frost hér á Hvanneyri kl 9 í morgun (skv. opinberum mæli veðurstofunnar).
Fór snemma úr vinnu því ég þurfti að keyra Stefáni og vini hans á badmintonæfingu. Notaði tækifærið og skellti mér í ljós já, ég veit það er óhollt en þetta geri ég mjög sjaldan er að spá í að reyna að fá smá lit fyrir árshátíðina þann 16. mars. (hugs, hugs, nema ég prófi brúnkukrem.....?) Eftir ljósin skellti ég mér í laugina og synti 500 metra, fór svo í pottinn á eftir. Þetta var æði, ég elska sund. Þegar við bjuggum á Króknum þá stundaði ég sundið mikið, fór reyndar ekki á hverjum degi en svona 3svar í viku fór ég og synti 500-1000 metra......Jæja nóg um það í bili, nýjar tölur koma svo annað kvöld Glottandi

Gaman, gaman!

25. febrúar 2007 klukkan 20:36
Tók fataskápinn í gegn, mátaði helling af fötum og þau voru mörg hver orðin of stór. Setti þau í poka og færði vinkonu minni. Henti heilum helling og síðan var slatti sem ég komst í en hef ekki komist í leeeeengi. Slatti er líka alveg að verða of stór. Þetta er frábært, alveg ljóst að ég þarf að fara að uppfæra fataskápinn Glottandi

Klúbburinn afstaðinn

24. febrúar 2007 klukkan 17:54
Klúbburinn tókst vel. Forréttirnir voru: Ostar, brauð, pestó, hummus, gulrætur, laukbaka og salat (úr spínati, kokteiltómötum, döðlum, gráðaosti og furuhnetum, balsamic, hunangi og ólífuolíu). Fiskisúpa með lúðu, laxi, krabba og rækjum var í aðalrétt og súkkulaðimús með bláberjum í eftirrétt.

Dagurinn í dag er búinn að vera fínn, fór til Önnu Lísu en við erum búnar að taka okur í gegn; vaxa, plokka og lita.......og erum þ.a.l. orðnar rosalega fínar.
Brosandi

23. feb

23. febrúar 2007 klukkan 08:21
Í kvöld er matarklúbbur hjá okkur.....útbjó desertinn í gær hann var mjög girnó, ekki ddv-vænn en þó með engum viðbættum sykri, bara suðusúkkulaði!!! Forréttirnir verða nokkrir og þá geta væntanlega allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Aðalrétturinn er hrikalega girnilegur, grunnurinn að honum er tilbúinn en svo á ég bara eftir að skella rjóma í hann og ákveðnu hráefni sem ég segi ekki frá í dag. Svona fyrir utan rjóma hér og þar suðusúkkulaði og döðlur þá verður þessi klúbbur alveg í lagi fyrir mig. Ætla að spara brauðsneið, ávöxt, mjólkurskammtinn og fituna fyrir kvöldið, síðan krossa ég í alla extra 2 reitina fyrir þessa viku.
Segi ykkur á morgun nákvæmlega hvað var í boði, vil ekki segja það í dag, það er sko leyndó Glottandi
Mér hefur gengið ofsalega vel síðustu daga og ætla að standa mig næstu daga líka, léttingur skal það vera á þriðjudaginn Hlæjandi

Blóm

22. febrúar 2007 klukkan 09:39

Þó það sé alhvít jörð hér á Hvanneyri núna þá er hugur minn óneitanlega bundinn við vorið. Undirbúningur vegna vorgróðursetninga er að fara í gang hér hjá Vesturlandsskógum. Gróðrarstöðvarnar eru byrjaðar að sá sumarblómum en eftir að hafa starfað þónokkuð lengi í þeim geira þá kitlar mig alltaf í fingurna að komast í smá "prikl". Svo ég tali nú ekki um lyktina sem er í gróðurhúsunum á þessum tíma, moldarlyktin. Næst þegar við förum norður í Skagafjörð þá ætla ég að kíkja í gróðrarstöð sem framleiðir sumarblóm. Svo fer ég að spá í hvað ég ætla að gera í garðinum í sumar, hvaða sumarblómategundir ég fæ mér og hvar ég eigi að troða einhverju nýju....... Eitt vil ég benda ykkur á sem hafið áhuga, kaupið frekar dýrari og vandaðri vöru (þá á ég við sumarblóm) heldur en ódýrt drasl í stórmörkuðunum.....trúið mér það borgar sig. Ég er búin að búa til undirsíðu hérna á blogginu og setja inn smá visku varðandi sumarblóm. Kíkið á ef þið hafið áhuga.

Varðandi mataræðið þá held ég sé komin í rétta gírinn núna, ætla að taka á því og held fast í markmiðin mín!!!!!

Ekki nógu gott

20. febrúar 2007 klukkan 18:42

300 grömm upp!! EN ég var búin að svindla mjög mikið auk þess var ég búin að borða saltkjöt og baunir þegar ég fór á vigtina. Vísa hér með í færsluna mína frá því fyrr í dag!!

Saltkjöt og baunir, túkall!!

20. febrúar 2007 klukkan 14:06
Borðaði yfir mig af saltkjöti, baunum, rófum og kartöflum í hádeginu.....kann ekki góðri lukku að stýra, því það er vigtun seinna í dag Skömmustulegur Ég var bara orðin hress um miðjan dag í gær, nýhreinsuð og fín, sagði þeim á kaffistofunni það í morgunn að ég hefði grætt tugi þúsunda í gær .....sumir borga fyrir að fara í stólpípumeðferð á heilsuhæli í Póllandi en ekki ég, ég fékk bara magakveisu!
Ég fékk bók í afmælisgjöf frá tengdó sem heitir " Höndlaðu hamingjuna! Leiðarvísir að öflugu sjálfsöryggi og aukinni lífsfyllingu" eftir Andrew Matthews. Í þessari bók kennir ýmissa grasa, hér er smá dæmi og þetta ætla ég að gera að mottói mínu:

Hvar sem þú ert staddur á lífsleiðinni er það einmitt rétti staðurinn til að hefja för. Framlag dagsins í dag gerir gæfumuninn.

Og hér er annað sem ég ætla ávalt að hafa á bak við eyrað:

Markmið er afl sem gerir okkur kleift að sigrast á takmörkunum okkar og vaxa umfram eigin mátt. Við þörfnumst markmiða, en ekki vegna þess hvað þau gefa okkur heldur hvað þau gera fyrir okkur. 

Nú hef ég ákveðið að setja mér markmið en það er að næstu þrjár og hálf vika verða 100% ddv. Meira að segja á föstudaginn þegar vð verðum með matarklúb þá verður ekkert svindl.

Núna er ég búin að vera eina viku í ræktinni þ.e. við Tedda höfum farið þrisvar en við ætlum að hafa þetta þannig að í ræktina förum við á mánudögum, miðvikudögum og síðan einu sinni um helgar. Auk þess er gönguferð á laugardagsmorgnum og sund þegar því verður komið við.
Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar Glottandi Svo koma nýjar tölur í kvöld......

dagurinn í gær

19. febrúar 2007 klukkan 12:52
Takk fyrir kveðjurnar elskurnar, já nú er ég orðin 33 og það er bara fínt.
Afmælisdagurinn hljómaði svona: Vakti Stefán Snæ kl 7 því hann var að fara á mót í Þorlákshöfn. Skellti mér í ræktina kl 9 kom svo heim fór í sturtu, borðaði og lagði af stað í Búðardal upp úr 11. Þar var kjördæmaráð VG að funda og uppstillingarnefnd kynnti tillögu sína að framboðslista sem var samþykktur. Þegar ég kom heim var bóndinn að elda læri, alveg ljómandi gott. Eftir matinn skrapp ég í eina heimsókn upp í sveit var komin aftur heim um hálf ellefu og fór þá í háttinn frekar "skrítin" í maganum. Það kom síðan í ljós þegar leið á nóttina að allsherjar hreinsun var að fara í gang....vegna þess er ég heima í dag og einnig Stefán og Haukur en þeir fóru að slappast niður þegar leið á morguninn!! Þetta virðist samt ganga hratt yfir því þegar þetta er skrifað þá er ég bara orðin ótrúlega hress.
Mataræðið er ekki í lagi, það eina sem ég hef borðað í dag er cherios og fjörmjólk......bæti úr því þegar líður á daginn.

Svo vil ég að endingu segja að ég er bara ánægð með hann Eika Hauks, hann verður okkur til sóma í Helsinki í vor.

17. febrúar 2007 klukkan 16:16
Það er búið að vera mikið að gera hjá mér síðustu daga. Svo ég byrji nú á miðvikudeginum en þá "skildi" ég við ykkur síðast, það var bara venjulegur vinnudagur, síðan fór ég í ræktina með Teddu og við tókum góðan klukkutíma í æfingum. Um kvöldið var síðan saumó hjá Möggu en hann var mjög ddv vænn, frábært alveg. Á fimmtudagsmorguninn brunaði ég svo suður á fræðaþing landbúnaðarins, var komin heim aftur um kl hálf sjö en síðan rétt fyrir átta varð ég að bruna á fund í Borgarnes. Föstudagurinn var svipaður, fræðaþing allan daginn. Mér finnst þessi fræðaþing ómissandi partur af því að vera að vinna við landbúnaðarráðgjöf, þarna heyrri maður heilmikið um nýjustu rannsóknir en erindi eru haldin í nokkrum málstofum, að ógleymdri veggspjaldasýningju sem er fastur liður í fræðaþinginu.
Dagurinn í dag byrjaði fullsenmma, vaknaði um sexleytið í morgun við Þórð en hann var að kasta upp......en það var ekki meira en þetta eina skiptið. Skellti mér í göngutúr rétt fyrir hádegið og núna er ég búin að vera í að koma heimilinu á réttan kjöl eftir vikuna.
Mataræðið er OK 7-9-13
Júróvísjón í kvöld, jejejejjejejjejejejje!!!

400 upp!!!

13. febrúar 2007 klukkan 22:00
Já nú kom að því....manni hefnist fyrir að vera óþekkur!!! Mér var nær og allt það, búin að haga mér eins og, eins og, eins og...ja ég veit bara ekki hvað, hömlulaus um helgina, datt í nammiát á laugardaginn af því að mér "leiddist"! Fjögurhundruð grömm bættust á mig þessa vikuna. Þá er ekkert annað að gera en að setja hausinn undir sig og æða áfram, þetta á sko ekki að endurtaka sig, það er á tæru.
Ég veit alveg hvað það er sem virkar og ég ætla mér að kippa þessu í lag.
Í fyrsta lagi ætla ég að vera dugleg að skrifa, halda utan um allt sem ég læt ofan í mig.
Fiskur af einhverju tagi flesta daga.
Passa upp á að borða allt sem ég á að borða.
Og síðan ætla ég að muna að sykur er vondur, hentar mér ekki og hann á ekki að koma inn fyrir mínar varir, ojbara!
Það verður enginn bolludagur í ár hjá mér, ég útbý mér bara eitthvað ddv-gotterí í staðinn.
VERA JÁKVÆÐ!!!!!! MÉR HÆTTIR TIL AÐ VERÐA FULL NEIKVÆÐ OG ÞUNG Á ÞESSUM ÁRSTÍMA EN ÞAÐ ER BARA BANNAÐ, NÚ VERÐ ÉG BARA AÐ FARA AÐ BROSA!

Að lokum, takk fyrir stuðninginn stelpur hann er mér mikils virði ég get ekki annað en verið ánægð með árangur minn fram að þessu en ég veit að ég get betur Glottandi

p.s. Á morgun fer ég í líkamsrækt og ég stend við það!!!!!!

13. feb

13. febrúar 2007 klukkan 11:03
Jæja, svo er vigtun í kvöld....ó mæ!
Anda inn, anda út, anda inn , anda út......

Afmæli

13. febrúar 2007 klukkan 08:35
Í dag er stórvinkona mín Edda Þorvaldsdóttir fimmtug, TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ EDDA.
Hún Andrea Ruggeberg á líka afmæli í dag og hún er þrítug, TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ANDREA.

Ný vinnuvika

12. febrúar 2007 klukkan 08:07
Jæja, enn og aftur er kominn mánudagur. Ég er búin að ákveða að taka vel á því þessa viku, nú verður fiskur á hverjum degi, það er það sem hefur reynst mér farsælast, að borða nægan fisk, allskonar fisk.
Síðan verður nóg að gera í vinnunni og fræðaþing á fimmtudag og föstudag. 
Eitt er farið að valda mér hugarangri, það er farið að styttast í bolludaginn og þá félaga.......hvað á maður að gera þá? Á einhver góða ddv bolluuppskrift? Hingað til hefur þetta verið þannig að við borðum bollur heima hjá mér á sunnudeginum, síðan hefur maður "lent" í bollum hér og þar á bolludaginn sjálfan og á sprengidaginn höfum við farið í saltkjöt og baunir til Ingu og þar er alltaf boðið upp á bollur í desert!!!! Laglegt át þar!!! Gráðugur
Jæja best að fara að gera eitthvað, eigið góða vinnuviku!

Klúður

11. febrúar 2007 klukkan 17:13
Já, það er nú málið, matarlega séð er þessi helgi búin að vera klúður hjá mér. Þorrablót á föstudagskvöldið, afmæli í gærkvöld, hádegisboð í dag og kvöldmatarboð í kvöld!!! Svo leiddist mér svo í gær að ég þefaði upp nammi, arg!!! Þakka fyrir ef ég hef ekki þyngst þessa vikuna. Ég ætla að taka mig á og standa mig vel í matarboðinu í kvöld en það er eiginlega ekki annað hægt því matarboðshaldarinn er líka á danska. Svo verður fiskur og aftur fiskur alla næstu viku......skulum við vona!!!
Hins vegar heppnaðist þorrablótið vel, mjög gaman og afmælið var líka fínt.
Jæja þá er best að koma sér í leppana og hafa sig af stað.....Glottandi

9. feb

09. febrúar 2007 klukkan 08:14
Bissí dagur í vinnunni hjá mér Tóta frá tölvuþjónustunni á Egilsstöðum kemur til að hjálpa okkur í sambandi við yfiirflutning gagna á Grænsíðu .........og svo eftir vinnu þarf ég að bruna heim, taka til, skúra, þrífa klósettið, sjóða saltkjöt, búa til rófustöppu og kartöflumús....ó já það er þorrablót heima hjá mér!! Vinnufélagar í skógræktargeiranum koma ásamt mökum, við verðum þrettán, svakastuð.
Eigið góðan dag og góða helgi!!!!! Hlæjandi

Draumalandið

08. febrúar 2007 klukkan 13:11
Draumalandið, þetta fer að verða hálfþreyttur frasi!
Það er ótrúlegt hvað menn reyna til að slá ryki í augu neytenda.....lítið á þetta hérna fyrir neðan sem ég stal af
http://landbunadur.is

Draumalandsauglýsingar Bónuss slá ryki í augu neytenda
Auglýsingar Bónuss um síðustu helgi, sem kenndar eru við „Draumalandið”, eru ekki aðeins ávísun á stórlækkað verð á innfluttum landbúnaðarafurðum til neytenda. Miklu meiri athygli vekur, að þær virðast fyrirboði gerbreyttrar álagningarstefnu fyrirtækisins. Bændasamtök Íslands hvetja Bónus til að sýna styrk sinn og heimfæra þessa stefnu upp á íslenskar landbúnaðarvörur og stuðla þannig að verulegri lækkun þeirra nú þegar.

Í auglýsingunni eru neytendum boðnar danskar kjúklingabringur á 499 kr. kg. Hér er miðað við frjálsan innflutning, án allra gjalda. Meðalinnflutningsverð (CIF) á bringum á síðasta ári var 418 kr. kg samkvæmt innflutningsskýrslum. Án virðisaukaskatts er verð á bringunum 439 kr. kg.

Samkvæmt þessari auglýsingu er álagning Bónuss 21 króna á hvert kíló af kjúklingabringum eða um 5%. Fyrir þá upphæð á eftir að skipa bringunum upp, aka vörunni til birgðastöðvar, dreifa á sölustaði, selja og taka tillit til vörurýrnunar. Að ekki sé svo minnst á kostnaðinn við að auglýsa vörurnar!

Sambærilegar reikningskúnstir eru notaðar til þess að stilla upp freistandi verðdæmum fyrir lambalæri frá Nýja-Sjálandi og frosnar nautalundir. Í báðum tilvikum er álagning fyrirtækisins lítil sem engin.

Því verður ekki trúað að Bónus ætli að leggja minna á innfluttar búvörur en innlendar, segir í fréttatilkynningu sem BÍ sendi frá sér í kjölfar málsins, og þau spyrja af hverju ekki sé hægt að lækka vöruverðið strax.

JESS!!!

06. febrúar 2007 klukkan 18:46

Staðreynd, 1 kíló farið þessa viku.

komin á lappir

06. febrúar 2007 klukkan 08:36
Jæja þá er ég öll að koma til, hætt að liggja í rúminu og komin til starfa á ný!
Eins og ég sagði við vinnufélaga minn, ég er að hósta þessu upp úr mér núna.
Nú er ég búin að taka könnunina og ég verð nú bara að segja að mér þykir þið hafa trú á mér! Meðaltalið segir 7 kg burt á næstu 10 vikum!!! Ég ætla að vera aðeins neðar og set markmiðið á 5 kg burt á þessu námskeiði, þá verð ég komin í 69,8 kg og þá tölu hef ég ekki séð í mjöööööög mörg ár. Örugglega 12-14 ár síðan það var.
Takk fyrir stuðninginn, er að fara að vinna.

mánudagur

05. febrúar 2007 klukkan 15:03
Enn eina ferðina er mánudagur....ótrúlegt hvað tíminn flýgur.
Ég er heima í dag, ætla að ná þessum flensuskít úr mér fyrir fullt og allt. Þórður Logi fór til dagmömmunnar en Stefán Snær er heima með hálsbólgu og hita.
Það er vigtun á morgun....spennandi að vita hver útkoman verður þar en einhvernveginn er ég ekkert viss um að það hafi mikið gerst hjá mér þrátt fyrir 100% daga, það kemur allt í ljós á morgun. Annað kvöld ætla ég að endurskoða markmiðin mín.
Hef annars mjög lítið að segja.
Njótið vikunnar!

helgin

05. febrúar 2007 klukkan 00:26
Helgin hefur verið róleg það sem af er. Hún hefur einkennst af hori, hósta og hita. Fór í göngutúr með "gönguhópnum" í gærmorgun, kom svo heim og þegar fór að líða á daginn fann ég hvað ég var að undirleggjast af kvefi.....Haukur fór því einn í afmælið sem okkur hafði verið boðið í en ég skemmti mér á meðan dúðuð upp í sófa að horfa á jóróvísjón. Ég hef síðan verið drulluslöpp í dag, sofið eins og ég ætti lífið að leysa.
Mataræðið er OK........langar samt ekkert sérstaklega til að elda en ætli ég hafi mig ekki í það.....gegnur ekki annað! Maður lætur ekki flenskuskít eyðileggja fyrir sér....nei, nei.

2. feb

02. febrúar 2007 klukkan 15:08
Takk fyrir ráðleggingarnar, jú kannski fer ég bara í apótekið og kaupi mér spirolinu.
Ég er heima núna með stubbinn minn, fannst hann eitthvað svo daufur seinnipartinn í gær og mældi hann, 39°C. Hann svaf ekki vel í nótt og þ.a.l. ekki ég heldur, fyrst í morgun var hann hitalaus en núna er hann komin með bullandi hita. Þessu fylgir síðan hósti og kvef. Ég ætla  í vinnuna eftir hádegið en Haukur kemur þá heim. Mataræðið gegnur bara vel.....ég ætla að vera dugleg í fisknum þessa vikuna, í dag er þriðji dagurinn í röð sem ég er með fisk í kvöldmatinn....í fyrradag voru það bollur, í gærkv. nætursaltaður þorskur, í kvöld ofnbökuð ýsa og ætli ég verði ekki með rækjur í hádeginu á morgun.....
Eitt er ég búin að koma í verk, keypti mér aðgang að líkamsræktaraðstöðunni sem skólafélag LBHÍ rekur, þannig að nú verur maður að fara að koma sér í form!
Eigið góðan dag!

1. feb

01. febrúar 2007 klukkan 14:20
Gærdagurinn gekk vel, var alveg 100%. Skellti 40 gr af sveskjum og einni dós af léttvanillujógúrt í litla mixarann minn og lét hann vinna á þessu........bragðaðist þetta mjög vel, mæli með þessu.
Eftir vinnu í gær skellti ég mér í sund með Teddu og við syntum eins og við ættum lífið að leysa, potturinn á eftir var síðan alveg til að toppa daginn. Er mikið að spá í að endurtaka þetta í dag.....sjáum til.
Ég var í letikasti í gærkveldi en það bjargaði kvöldinu að Anna Lísa kíkti í heimsókn. Síðan ætlaði ég bara ekki að hafa mig á lappir í morgun, úff eitthvað svo orkulaus og þreytt.....ætli það sé lægð yfir landinu eða þarf ég að fara að fá mér vítamín? Jamm kannski, ég tek engin vítamín eða lýsi, algjörlega vonlaus.
Nú er nýr dagur og nýr mánuður með nýjum markmiðum.
Tölfræði:
Það er 21 vika síðan ég byrjaði í DDV og hafa 12,8 kg fokið. Það eru semsagt rúm 600 gr á viku. Þannig að tölfræðilega ætti ég að geta losað mig við 6 kg á þessu námskeiði.....það er samt á mörkunum að ég þori að setja markið svona hátt því þegar maður fer að nálgast kjörþyngd þá fer nú að hægja á léttingnum. Hins vegar hef ég oft sagt það að ég væri mjög sátt við 70 kg....jæja en sjáum til ég ætla að halda áfram að pæla í þessu. Gaman að sjá hvað þið sem hafið tekið þátt í könnuninni hafið mikla trú á mér, hehehehe.
Eigið góðan dag og áfram Ísland!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.